Eiríkur Örn Norðdahl – Blogg

17. maí – uppstigningardagur
Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna.

Í dag ákvað ég – eftir að hafa lesið frétt um forsetagrein eftir ónefndan klámguðfræðing – að maður þyrfti kannski að leggja meiri vinnu í að láta sér líka vel við fólk. Altso fólk á þingi, fólk í framboði. Ólaf og Þóru. Að reyna að röfla minna um framakrata, gaddhesta og smjörkúka. Að fyrsta heiðarlega spurningin sem maður vilji spyrja aðra sé ekki: Af hverju ertu svona ógeðslegur skíthæll?

Þannig byrja og enda mörg blogg í dag. Margar aðsendar greinar. Jafnvel fréttir og fréttir af Facebook.

En altso. Jógúrt, kaffi. Enginn leikskóli því í dag er uppstigningardagur (ofan í þjóðhátíðardag Norðmanna – þeir missa því væntanlega einn frídag í ár). Pakkaði eldhúsdóti.

Í hádeginu átum við úti. Grænmetisborgara frá því í gær. Það var sól. Annars hafa skipst á skin og skúrir í dag. 24% líkur á þrumuveðri segir síminn minn.

Tók mér síðan pásu. Fékk mér lúr og las í tveimur bókum – Invisible Cities eftir Italo Calvino og 23 They Don’t Tell You About Capitalism eftir Ha Joon Chang. Sú fyrrnefnda er umtalsvert betri en sú síðarnefnda, þótt báðar séu reyndar fyrirtak.

Ég kláraði annars siðferðissálfræðitryllinn minn í gær. Hún var fróðleg þótt mér þættu ekki allar rökleiðingarnar frábærar. En mikið af skemmtilegu smælki, mikið af áhugaverðum rannsóknarniðurstöðum. Eitt af því áhugaverðasta var að hægrimenn (conservatives) eiga auðveldara með að setja sig í spor vinstrimanna (liberals) en öfugt. Hægrimenn eru sem sagt umtalsvert betri í að svara spurningum einsog þeir væru vinstrimenn en vinstrimenn eru í að svara spurningum einsog þeir væru hægrimenn. Vinstrimenn gera sér alls konar hugmyndir um hægrimenn sem standast ekki en hægri menn eru ekki haldnir sams konar fordómum. Og hafiði það, hipparnir ykkar.

Það sem situr eftir að lestri loknum er meðal annars þetta: Það er mikilvægt að skilja þá sem maður er ósammála, kannski er það jafnvel forsenda þess að lýðræðið gangi upp. Og með því að „skilja“ á ég ekki við þetta patróníserandi rugl um að þeir sem eru ósammála manni séu á einhvern máta „gallaðir“ (altso vitlausari en maður sjálfur, viðkvæmari fyrir manipúlasjón). Og það getur líka verið þess virði að minna sig á að líkindin á því að maður – og manns mengi, því skoðanir okkar fylgja mestmegnis hópalógík – hafi alltaf rétt fyrir sér eru fjarska lítil. Árni Johnsen hlýtur að hafa rétt fyrir sér um eitthvað (annað en það sem ég er sammála honum um). Að svo miklu leyti sem maður samþykkir rétt og rangt sem niðurstöður í pólitík auðvitað. Og ef maður gerir það ekki hlýtur maður að sækjast eftir málamiðlunum – þá telur maður bara atkvæðin og reiknar kúrsinn út frá því. Eitthvað þannig. Þetta eru einfaldanir. Flækjur á einföldunum. En við hugsum yfirleitt ekki þannig. Eða, réttara sagt – flestir kaupa þetta abstrakt en strax og við tökum konkret dæmi byrjum við að rökræða okkur í burtu.

Svo við tökum dæmi um eitt heitt móralskt efni: hver er það sem ákveður að bleikt fyrir stelpur og blátt fyrir stráka (eða litaaðgreining kynja yfir höfuð) sé „tímaskekkja“? Eða „röng“? Eða „rétt“? Hvernig ræðum við þessa litaaðgreiningu – og ólíkar skoðanir okkar á henni – án þess að það leiði út í uppnefni? Og menntað fólk kann líka að uppnefna – „tímaskekkja“ er jafn mikið uppnefni og gaddhestur og smjörkúkur og framakrati og öfgafemínisti. Það er algengt að umburðarlyndir vinstrimenn líti svo á að þeir sem eru ósammála þeim séu tímaskekkjur – einhvers konar hellisbúar í geimskipum – að veröldin sé í framrás og sú framrás verði mæld í því að veröldin taki í ríkari mæli upp vinstra siðferði.

Við smættum og afhúmaníserum. Ég smætta og afhúmanísera.

Ég á nota bene svo sannarlega ekki við að hægrimenn smætti ekki líka og afhúmaníseri – og mér þykir líka litaaðgreining kynja hallærisleg (en sýnu alvarlegra þegar heilu menningarheimarnir eru skilgreindir sem „karla“ eða „kvenna“). Ég á bara við að við erum öll sannfærð um að við ein höfum komist að réttustu niðurstöðunni í öllum siðferðilegum og pólitískum álitamálum – allir aðrir misstigu sig á leiðinni, villtust og afvegaleiddust eða hafa hagsmuna að gæta (umfram okkur sem eru hlutlaus, gáfuð og næm). Og það er ekki hægt að koma í veg fyrir það – öll okkar hugsun (þar með talin þessi hér) er merkt þessari vissu. Ég held ekki einu sinni að það sé gott að koma í veg fyrir það – ef að hugmyndaþróun er að nokkru leyti darwinísk er mikilvægt að við gerumst ekki slíkir afstæðishyggjusinnar að við afsölum okkur réttinum til að hafa einfaldlega á réttu að standa. Ég held bara að það sé mikilvægt að skilja og skynja þá sem maður er ósammála og stunda ekki samræðu einsog jarðýta.

En ég las sem sagt ekkert í þessari blessuðu bók í dag enda kláraði ég hana í gærkvöldi. Ég ætti miklu heldur að delera eitthvað um Calvino. Það væri áreiðanlega gleðilegra fyrir alla.  Maður getur samt ekki eytt öllum deginum í að blogga svo það bíður betri tíma.

Ég hlóð líka Subbukallabókinni inn á símann minn til að skoða epub-skjalið annars staðar en í tölvunni minni – símalesarinn (Ionic) gerir það sama og Adobe forritið í tölvunni og teygir á forsíðumyndinni svo hún passi skjánum. Ég skil ekki þann fítus. Hann er alveg fáránlegur.

Pakkaði meira eldhúsdóti. Pakkaði kryddum og matvinnsluvélum, sleifum og bökunarformum. Lagaði viðburðaskrána mína (sjá hér vinstra megin). Skrifaðist á við sænska forleggjarann minn. Eldaði panang með tofú í kvöldmat. Svo glápir maður á eitthvað, les eitthvað og fer að sofa.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/17/17-mai-uppstigningardagur/"></g:plusone>

Tweet

16. maí
Annar ömurlegur dagur. Á vorhátíðinni í gær hafði ég tekið eftir því að það var komið gat á nýju sokkana mína og þegar ég vaknaði í morgun byrjaði ég á því að fara á klósettið og klippa á mér fimmtán metra langar táneglurnar með trésög. Eftir jógúrt, kaffi og leikskóla ætlaði ég að taka strætó niður í bæ. En upp á síðkastið hef ég gengið heim með vagninn og Nadja sótt Aram á hjólinu (hjólið mitt er í klessu). En nú var ég ekki á leiðinni heim og þurfti að skilja vagninn eftir engu að síður, svo ég þarf að sækja hann á morgun. Næst áttaði ég mig á því að ég var ekki með Oulukortið mitt því ég hafði látið Nödju fá það þegar þau mæðginin fóru í sund á helginni og hún gleymt að skila því. Sem þýddi að ég þurfti að borga í strætó, fram og til baka – samtals sex evrur og 40 sent. Og það er náttúrulega brjálæði.

Ég fór niður í bæ til þess að tala við skattinn. Það segir líklega sína sögu að það var ánægjulegasti hluti dagsins, hugsanlega fyrir utan kvöldmatinn. Eftir fundinn fékk ég mér pizzu og settist á kaffihús til að vinna. Ég hafði gleymt kindlinum mínum heima og dundaði mér því við að skematísera – rifja upp allar staða-vandi-lausn sögur í bókinni (eða auðvitað ekki allar, svona sögur leynast margar í hverri setningu ef vel er að gáð, en þær allra helstu a.m.k.). Þetta reyndist tilgangslaust og veitti mér enga nýja sýn, einsog ég hafði hálfpartinn verið að vona. Ég gleymdi auk þess að fara í gegnum einar samræður sem ég er nýbúinn að breyta og lá miklu meira á, gleymdi að uppfæra upplestradagskrána á heimasíðunni minni og svara tölvupóstum. Og svo eyddi ég alltof miklum tíma í hangs og kaffihúsið var ömurlegt, tónlistin var ömurleg og allt dró sífellt til sín athygli mína.

Næst fór ég í búðina og keypti í matinn – nú mundi ég að kaupa fyrir frídaginn líka (allt lokað á uppstigningardag). Svo kom ég heim og lék aðeins við Aram – það var ekki ömurlegt. Það var sól og blíða, átján gráðu hiti og við róluðum og spörkuðum bolta. Svo fór Nadja í jóga og ég fór að laga kvöldmatinn – sem var linsuquinoaborgarar með kóríanderpestó og rúkóla og bakaðri papriku. Eða, ég byrjaði reyndar á fjörutíu mínútna uppvaski (gærdagurinn og dagurinn í dag). Aram horfði á bílamyndina og hjálpaði mér svo að leggja á borðið og snúa salatinu í tilþessgerðri salatssnúningsskál (ég veit ekkert hvað þessi suðurevrópska aðgerð heitir á íslensku). Maturinn var mjög fínn.

Þegar ég ætlaði að leggja Aram eftir matinn fékk hann brjálæðiskast og vildi ekki sjá að ég legði sig. Sem var ömurlegt. Hann grét og öskraði að mamma hans ætti að leggja sig og ég þurfti að halda á honum sparkandi trylltum inn á baðherbergi. Það gekk yfir á endanum. Við lásum Í búðinni hans Mústafa í tíuþúsundasta sinn.

Mér er illt í bakinu. Illt í eyrunum. Ég er þreyttur og ef maður væri ekki litinn hornauga fyrir það myndi ég sprauta hreinni amfetamínprósakklausn í hálsslagæðina á mér. Ég þarf að dröslast í sturtu svo fýlan af mér geri ekki út af við mig en ég nenni því ekki.

Þetta líf, þetta líf!

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/16/16-mai/"></g:plusone>

Tweet

15. maí
Ömurlegur dagur. Ég held ég sé eitthvað veikur. Nema það séu himintunglin. Loftþrýstingur. Ég held það bresti brátt á með þrumuveðri og þá líður mér alltaf einsog hausinn á mér sé að springa.

Jógúrt og banani, kaffi, leikskóli. Fór ekki í búðina á leiðinni til baka af því ég hugðist ekki elda neinn kvöldmat. Það var vorhátíð á leikskólanum sem hófst klukkan sex og lauk klukkan sjö og ég sá ekki fyrir mér að ég myndi nenna að byrja að elda kvöldmat klukkan hálfátta-átta. Ekki á virkum degi allavega. Svo við fórum út að éta á kínverskan stað sem er hér einhvers staðar í skóginum. Maturinn minn var góður (setsjúan kjúklingur) en allir aðrir pöntuðu sér eitthvað rusl og geta sjálfum sér um kennt. Ekki þar fyrir að þetta eru nú engir gourmet veitingastaðir hérna í úthverfinu, inni í miðju finnsku skóglendinu.

Nema hvað. Kom heim og svaraði spurningum Grapevine, þessum tveimur sem ég átti eftir (og hafði hugsað mér að sleppa – en Haukur Magg sýnir enga linkind, þótt hann hafi reyndar sagt að ég mætti sleppa spurningum, þá stóðst það auðvitað ekki neitt þegar til kastanna kom). Ég var mjög skemmtilegur. Þetta voru bestu svörin mín. Þeir vita hvað þeir eru að gera þessir blaðamenn.

Og svo var dagurinn ömurlegur. Ég reyndi bróðurpartinn af vinnudeginum að panta flugfar til Barcelona fyrir fjölskylduna en fékk endalaus errorboð og allir láta einsog það sé ekki þeim að kenna – flugfélög, ferðaskrifstofur, bankinn og borgun.is. Líklega þarf bara að hringja pöntunina inn með öllu því veseni og aukagjöldum sem slíku fylgir. Af þessu fékk ég feykilegan höfuðverk (nema það hafi verið himintunglin). Svo las ég þessa kafla í bókinni sem ég var efins um og ég er ekkert efins um það lengur. Þetta er alveg skotheld bók. Og ég mun samt hafa áhyggjur af henni næsta rúma hálfa árið að lágmarki. Þannig er það bara.

Svo lá ég og las svolítið um það hvernig trúarbrögð (í skilningnum hópar af fólki sem stunda sameiginleg ritúöl og líta á þau sem heilög) gera fólki auðveldara um vik að þjappa sér saman og standa sig betur í samkeppni hópa. Þar kom meðal annars fram að samkvæmt rannsóknum endast kommúnur betur ef þær krefjast fórna af meðlimum sínum, og þær kommúnur sem stofnað er til á trúarlegum forsendum endast að jafnaði lengur en þær sem stofnað er til á veraldlegum forsendum. Ástæðan er sú að þeir sem trúa efast ekki að sama marki um markmið hópsins eða þau ritúöl sem notuð eru til að skapa hóptilfinningu (svo sem bænir og messur og söngvar og leikfimi og hóphugleiðsla) – veraldlegar kommúnur (sem voru í þessari rannsókn flestar á vegum sósíalista) héngu ekki jafn lengi saman vegna þess að þar var statt og stöðugt verið að pota í allt, rýna í það og rífast og efast um tilganginn og þar fram eftir götunum. Sem meikar náttúrulega sens.

Allavega. Við fórum á vorhátíðina og það var gaman og svo átum við kínamat og gengum heim í hnapp undir regnhlíf.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/15/15-mai/"></g:plusone>

Tweet

14. maí
Hvernig var þetta nú aftur? Jógúrt með müsli, kaffi, leikskóli. Leiðindaveður. Hálfblautt en ekki alveg. Kom heim og las og las. Og las og las og færði síðan inn ríflega 300 athugasemdir. Ég á eftir að laga eitthvað smáræði í þriðja hluta – eða laga, það eru kaflar sem virka ekki alveg einsog þeir eiga að virka. Nema ég hafi bara verið of þreyttur þegar ég las þá í þessari yfirferð (þetta eru nýjir kaflar og mér fannst þeir stórfínir í fyrstu yfirferð, þetta var önnur). Það kemur í ljós á morgun. Annars er þetta fáránlega nevrótísk vinna. Ég átta mig á því að ég hef allt sumarið fyrir mér, eða bróðurpart þess allavega, en það er samt alltaf síðasti séns til þess að koma í veg fyrir mistök. Þegar það er búið að prenta þetta er það endanlegt. Búið.

Ég hef einu sinni gert ófyrirgefanleg mistök. Það var í Howl-þýðingunni minni, þar sem illuminated varð flóðlýst en átti að vera (og var fyrst) uppljómaðir. Uppljómaðir menn á húsþökum urðu ósköp venjulegir menn á flóðlýstum húsþökum. Ég breytti því einhvern tíma snemma í ferlinu – a.m.k. áður en ég tók upp hljómorðadiskinn með Gímaldin því þetta er vitlaust þar líka. Sú bók fór í gegnum ritstjórn á held ég fjórum forlögum áður en hún kom út og var þess utan lesin af ótal öðrum – ég fletti upp í alls lags bókum (sérstaklega um Ýlfur) og ráðfærði mig við fólk og bar saman við þýðingar á þau mál sem ég kann eitthvað í. Það vantaði ekki að ég væri að vanda mig, að metnaðurinn væri mikill. Og samt skeit ég í brækurnar í þýðingu á einu frægasta kvæði bandarískrar bókmenntasögu. Og ég get aldrei tekið þetta til baka; þetta verður aldrei endurprentað, enda held ég að litla upplagið sem var prentað sé stjarnfræðilega langt frá því að vera búið. Fokk.

Þetta má ekki. Og þetta má ekki koma fyrir í Illsku. Ekkert ömurlegt fokkopp sem ég verð mörg ár að jafna mig á. Þau eru auðvitað annars eðlis fokköppin sem geta komið fyrir í manns eigin bók en sem geta komið fyrir í þýðingu – en ég veit líka alveg hversu blindur maður getur orðið. Maður getur orðið mjög blindur. Ég hef leiðrétt og lagað fáránlega hluti í handriti að öllum mínum bókum. Ég viðurkenndi þetta ekki einu sinni lengi, með Ýlfur – sagði bara að flóðlýst og uppljómaðir væri jafnrétthá túlkun. Og í einhverjum bókstafsskilningi er það alveg rétt. En það breytir því ekkert að ég og allir aðrir vita hvað var meint þarna.

Við átum couscoussalat í kvöldmat. Lásum Í búðinni hjá Mústafa. Horfðum á Game of Thrones.

Á næstu dögum bíður mín að panta far til Frakklands, svara síðustu spurningunum fyrir Grapevine, lesa meira og vandlegar og pakka og flytja.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/14/14-mai/"></g:plusone>

Tweet

13. maí – mæðradagurinn
Ég vaknaði við að sólin skein innum gluggann og ég skildi ekkert hvers vegna Aram hafði ekki komið enn. Eftir smástund leit ég á klukkuna og þá var hún 4:44 og ég búinn að sofa í tæpa fjóra tíma. Mér gekk eiginlega ekkert að sofna eftir það. Aram kom skömmu fyrir átta og við fórum á fætur og horfðum á Lukku-Láka. Ef maður efast um að pólitískur rétttrúnaður hafi komið einhverju til leiðar á síðustu 20 árum ætti maður að horfa á Lukku-Láka og velta því fyrir sér hvort nokkuð af þessu sé einu sinni hugsanlegt í dag. Ég man ekki til þess að Lukku-Láki hafi verið sérstaklega mikill helgibrjótur eða umdeildur – en þetta er eiginlega bara reykingar, ofdrykkja, ofbeldi og staðalmyndagrín. Fyrir utan auðvitað að svo gott sem allar kvenpersónur eru mellur (eða Can Can dansarar). Ef að Lukku-Láki yrði fundinn upp í dag yrði hann bannaður. Hann er svona félagslegt asbest. Freon síns tíma.

Nei, ég er kannski eitthvað að ýkja. En allavega. Teiknimyndirnar eru líka feykilega hugvitssamar, sniðugar og fallegar. Og svo var auðvitað Svala Sjana, sem var sko enginn can can dansari – en hún var ekki í þessari mynd. Svala Sjana lék líka stórt hlutverk í Deadwood. Vætu Erpur var líka bæði í Lukku-Láka og Deadwood – og ætli Wild Bill Hickok hafi ekki komið fyrir í Lukku-Láka líka? Hann var allavega í Deadwood. Deadwood var kannski bara Lukku-Láki fyrir fullorðna. Nema það er minna reykt í Deadwood og meiri allsberilegheit. Og meira bölvað, auðvitað.

Svo vöktum við Nödju með súkkulaði, kaffi og armbandi sem Aram gerði á leikskólanum. Fórum öll saman út í göngutúr í sólinni, stoppuðum á leikvelli og á ströndinni – komum svo heim og átum paelluleifar, sem voru, einsog spáð hafði verið, betri í dag en í gær. Eftir matinn fór ég loks að finna fyrir þreytunni og fékk mér lúr. Fyrst svaf ég í tíu mínútur en svo í fimmtán – það tók mig samt tvo tíma að ná þessum svefni. Og ég hvíldist þarna í millitíðinni þótt ég svæfi ekki.

Þegar ég var stiginn á fætur tæmdi ég bókaskápinn í eldhúsinu og skrúfaði hann í sundur. Svo dró ég fram eldavélina og þreif bakvið hana. Ætlaði í búðina að versla en uppgötvaði (á staðnum) að Finnar taka mæðradaginn alvarlegar en ég mundi. Hér er hvergi opið. Sem var í sjálfu sér ágætt upp á planið með að klára úr skápunum fyrir flutningana. Úr varð tómatsúpa og rúgbrauð með osti, hvítlauki, oregano og tómati. Sem var mjög gott.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/13/13-mai-maedradagurinn/"></g:plusone>

Tweet

12. maí
Svaf út. Jógúrt. Einn heima. Pakka. Á leiðinni í búðina seinnipartinn fór ég skyndilega að ofanda í örvæntingu út af bókinni minni – ég man ekki alveg hvað kallaði það fram, kannski var það bara lengdin. Kannski fannst mér einsog hún væri ekki nógu létt og skemmtileg. Hún er samt mjög létt og skemmtileg og maður finnur ekkert fyrir lengdinni. Þetta er bara einsog að skella í sig stuttri bloggfærslu. Renna yfir statusa dagsins. Nema bara djúpviturt og uppljómandi. Kannski var það eitthvað annað. Kannski var ég viss um að kápan yrði ljótt. Kannski að þetta yrði bara enn ein bókin. Einsog stimpilkort í ritlaunasjóð. Ég veit ekki hvort veröldin þarfnast fleiri bóka, við eigum enn eftir að lesa þær sem við eigum nú þegar. Ég er að minnsta kosti ekki búinn með nema brotabrotabrot af stórkostlegustu bókum mannkynssögunnar. En kannski þarf líka að tala um daginn í dag, tala um gærdaginn og morgundaginn, einsog þeir virðast í dag. Tala saman. Kannski þurfum við að tala saman.

Það tók mig klukkutíma að þrífa eldavélarhellurnar með stálull og hníf. Ég eldaði paellu úr afgöngum (en ekki bara, líka rándýru sjávarfangi). Hún var góð en ég hugsa að hún verði ennþá betri í hádeginu á morgun.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/12/12-mai/"></g:plusone>

Tweet

Djúpsteiktir Won Tons
Hráefni

Sirka 40 Won Ton bréf (ein pakkning, ég taldi ekki og notaði ekki öll)

Tvær stórar gulrætur (einn og hálfur bolli hakkaðar)

200 grömm rjómaostur

180 grömm rækjur

Einn laukur – fínhakkaður

Einn hnefi af hakkaðri persilju

Hellingur af olíu

Þetta er beisik. Blanda öllu saman í skál, raða svo í Won Ton bréfin – loka þeim vandlega (bleyta fingurna í vatni) og djúpsteikja í olíu. Sósan með var blanda af Wasabi (1 matskeið), sætu, sterku sinnepi (hálfur bolli) og sojasósu (kvartbolli). Borið fram með hrísgrjónum og fersku grænmeti (t.d. tómötum og gúrku).

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/11/djupsteiktir-won-tons/"></g:plusone>

Tweet

11. maí
Það heyrir kannski helst til tíðinda í dag að ég át jógúrt með niðurskornum banana í morgunmat (en ekki müsli). Svona er nú komið fyrir manni. Þetta er spennandi tilvera.

Ég er alveg að verða búinn að lesa bókina. Eða svona. 17% eftir samkvæmt Kindlinum.

Fékk pakka frá Íslandi í dag. Meðal annars með ljóðaþýðingum Gyrðis.

Hlustaði á Passaðu þig með Nadiu. Hlustaði síðan á Dear Marshall með mömmu hans Eminem. Hlustaði svo á Sönn íslensk sakamál með Rottweiler, Kill you með Eminem, Drop it like its hot með Snoop (sem mig minnir að femínistafélagið hafi ályktað gegn þegar hann kom til landsins um árið) og Elskum þessar mellur með BlazRoca og Emmsjé Gauta. Ég þori ekki að hlusta á Kim með Eminem því þá fæ ég bara martraðir.

Ég leitaði að yfirlýsingu frá Lars von Trier sem hann sendi frá sér eftir harða gagnrýni frá femínistum eftir Anti-Christ (sem ég hef ekki séð því þá fengi ég bara martraðir) – þar sem hann altso bara sagði að þetta væri allt satt, hann hataði konur og vildi útrýma þeim af yfirborði jarðar. En fann hana ekki.

Ég eldaði Pytt i panna í kvöldmat.

Tók sundur lampann yfir eldavélinni og fiskaði út brotna ljósaperu.

Svaraði mjög fáum tölvupóstum.

Helgin fer í að pakka meira.

Epíska 4000 kílómetra bílferðin mín undir lok mánaðarins verður enn epískari – því nú er komið í ljós að ég verð einn allan tímann. Nadja tekur Aram með sér til Helsinki – þar sem hann fer væntanlega í pössun til guðmóður sinnar og Nadja fer á ráðstefnu – og ég keyri þetta bara sjálfur. Ég er með 30 nýja útvarpsþætti í símanum mínum og þyrfti endilega að finna mér einhverja góða hljóðbók til að hlusta á. Uppástungur vel þegnar.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/11/11-mai/"></g:plusone>

Tweet

10. maí
Dagurinn í dag var alveg einsog dagurinn í gær nema hvað við fórum í sána eftir vinnu og ég gerði djúpsteikta wonton í kvöldmat (það var helgebbað). Morguninn fór í að svara tölvupóstum og spurningum Grapevine um Booby og eftirmiðdagurinn í að lesa Illsku. Ég var ægilega pirraður í uppvaskinu (að ástæðulausu/frá náttúrunnar hendi) og bætti ekki úr skák að mér tókst að skera mig til blóðs á einhverri helvítis plastdollu. Ég hoppaði og blótaði og kláraði svo að vaska upp. Síðan settumst við niður og horfðum á þrjár af ýkjusögum Króks.

Ég á eftir að lesa mig í gegnum þriðjung bókarinnar. Ég veit enn ekki hvenær maður segir að bók sé búin. Þetta er svo mikil skriffinnska. Einsog að binda landfestar eftir langa siglingu, borga tolla og gjöld, landa. Maður er ekki lengur úti á rúmsjó en það er ennþá smá í að maður komist heim. Og svo þarf víst að svara fyrir aflann langt fram eftir öllu hausti.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/10/10-mai/"></g:plusone>

Tweet

9. maí
Ég sofnaði ekki fyrren seint – eitthvað eftir tvö. Vaknaði fyrst fjögur, svo fimm, svo sex, svo sjö en svaf einsog steinn frá sirka hálfátta til korter yfir níu. Kaffi, müsli, leikskóli. Keypti í matinn og tók með mér tvo pappakassa á leiðinni heim.

Morguninn fór í að skrifa Hauki Má bréf. Ég ætlaði að svara spurningum Grapevine en gerði ekki. Ætlaði að hringja í Hertz en gerði ekki. Lá svo í sófanum eftir hádegi og las. Nærri því hálfnaður með bókina. Illsku.

Les The Righteous Mind á kvöldin. Í gær las ég meðal annars um hinn alræmda „confirmation bias“ – sem er auðvitað grunnurinn að allri pólitískri samræðu (að standa með eigin kenningu og sjá ekki hvernig annað getur staðist). Hugtakið kemur úr einfaldri talnarannsókn þar sem viðföng fengu þrjár tölur í röð og áttu fyrst að endurtaka regluna með nýjum tölum og geta sér síðan til um hver reglan væri – rannsakandi svarar bara já og nei.

Rannsakandi: 2-4-6.

Viðfang: 8-10-12?

Rannsakandi: Já.

Viðfang: Sléttar tölur í röð?

Rannsakandi: Nei.

Viðfang: 7-9-11?

Rannsakandi: Já.

Viðfang: Hækkar talan alltaf um 2?

Rannsakandi: Nei.

Viðfang: 25-50-75?

Rannsakandi: Já.

Viðfang: Uhh …

Og svo framvegis. Það sem viðfangið gerði (eiginlega) aldrei var að brjóta regluna sem það hafði gefið sér alveg frá í byrjun (jöfn bilhækkun) og giska bara út í loftið – 5-1-7 (nei) eða 13-2001-15.000.000 (já). Reglan er hins vegar bara að tölurnar hækka – ef tölurnar hækka fær maður já, ef þær lækka eða lækka og hækka á víxl þá fær maður nei. En fólk myndar sér strax kenningu út frá fyrsta dæminu (án þess að hafa fengið fleiri dæmi) og hefur greinilega tilhneigingu til þess að standa með eigin kenningum og vilja ekki láta á þær reyna svo neinu nemur, það víkur ekki svo langt frá kenningu sinni að líklegt sé að hún bresti. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að öllum finnst þeir alltaf hafa rétt fyrir sér – og standa þeim mun fastari fótum í trúnni á réttmæti kenninga sinna eftir því sem erfiðara er að sanna eða afsanna kenningarnar. Siðferðismál eru ansi ofarlega á blaði yfir þau mál sem erfitt er að sanna eða afsanna.

Annað atriði sem kemur fram í bókinni er að þegar við stöndum frammi fyrir því að trúa einhverju eða trúa því ekki þá tökum við líklega leiftursnögga ákvörðun um hvort við viljum trúa – svo spyrja þeir sem vilja trúa hvort þeir megi það en þeir sem vilja ekki trúa spyrja hvort þeir þurfi þess. Og fyrri spurningunni svörum við undantekningalaust játandi en þeirri síðari neitandi.

Bókin er reyndar ótrúlega pedagógísk og oft mjög þreytandi í því hvað hún reynir að vera kammó (eðli málsins samkvæmt – maðurinn er nú einu sinni búinn að skrifa bók um það hvernig samræður pólaríserast) en hún er samt áhugaverð. Og langt síðan að ég las svona bók.

Í kvöldmat var síld, kartöflur og egg. Við Aram lásum svolítið og spörkuðum í bolta og nú er Nadja að leggja hann.

<g:plusone size="medium" count="false" href="http://norddahl.org/blogg/2012/05/09/9-mai/"></g:plusone>

Tweet