{"id":6229,"date":"2025-09-30T15:15:52","date_gmt":"2025-09-30T15:15:52","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6229"},"modified":"2025-10-01T08:49:53","modified_gmt":"2025-10-01T08:49:53","slug":"margt-litid-um-fatt-eitt-fotbolti-bokmenntir-fotbrot-bokamessur","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6229","title":{"rendered":"Margt l\u00edti\u00f0 um f\u00e1tt eitt (f\u00f3tbolti, b\u00f3kmenntir, f\u00f3tbrot, b\u00f3kamessur)"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6ll \u00feessi ritlaunaumr\u00e6\u00f0a gerir ekkert anna\u00f0 en a\u00f0 triggera \u00ed m\u00e9r frekjuna. \u00c9g vil f\u00e1 f\u00f6st ritlaun sem \u00e9g \u00fearf ekki a\u00f0 s\u00e6kja um \u00e1 hverju \u00e1ri og \u00e9g vil a\u00f0 \u00feau s\u00e9u svona a.m.k. 40-50% h\u00e6rri en \u00feau eru \u2013&nbsp;a\u00f0 l\u00e1gmarki. \u00c9g n\u00fdt bara talsver\u00f0rar velgengni \u2013&nbsp;b\u00fd \u00f3d\u00fdrt, lifi sparlega \u2013 en \u00e9g er samt alltaf blankur. Kemur alltaf minna inn en fer \u00fat. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 reka Dav\u00ed\u00f0 Sm\u00e1ra. \u00dej\u00e1lfara Vestra. \u00c9g hef l\u00edti\u00f0 fylgst me\u00f0 \u00edslenskum f\u00f3tbolta fyrren r\u00e9tt svo s\u00ed\u00f0ustu misseri og skil \u00feennan bransa ekki enn almennilega. Skil ekki hvernig tr\u00fana\u00f0urinn virkar. M\u00e9r fannst frekar erfitt a\u00f0 horfa \u00e1 Matta Villa \u2013&nbsp;son Villa n\u00e1granna m\u00edns \u2013&nbsp;spila me\u00f0 V\u00edkingi \u00e1 m\u00f3ti Vestra. Alveg f\u00e1r\u00e1nlegt eiginlega. \u00dea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega enn skr\u00edtnara fyrir pabba, sem er V\u00edkingsma\u00f0ur fr\u00e1 fornri t\u00ed\u00f0. M\u00e9r finnst l\u00edka sem Spursari til svona t\u00edu \u00e1ra f\u00e1r\u00e1nlegt a\u00f0 Son s\u00e9 a\u00f0 spila fyrir Los Angeles og Harry Kane s\u00e9 me\u00f0 Bayern M\u00fcnchen. Og n\u00fa langar mig mest a\u00f0 fara bara a\u00f0 halda me\u00f0 n\u00e6sta li\u00f0i sem Dav\u00ed\u00f0 Sm\u00e1ri \u00fej\u00e1lfar. En \u00e9g vil helst a\u00f0 allir sem leiki me\u00f0 Vestra leiki \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fev\u00ed li\u00f0i l\u00edka. Kannski \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00feetta a\u00f0 \u00e9g skilji ekki f\u00f3tbolta. Og sennilega er \u00e9g bara or\u00f0inn of gamall til a\u00f0 l\u00e6ra \u00fea\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f3kamessan \u00ed Gautaborg var skemmtileg. En \u00e9g er mj\u00f6g l\u00fainn \u00e1 eftir. Mann\u00fer\u00f6ng og fuglabjargsh\u00e1va\u00f0i er ekki alveg minn tebolli. Svo ver\u00f0a kv\u00f6ldin stundum svol\u00edti\u00f0 l\u00f6ng. En \u00feau eru l\u00edka skemmtilegasti hlutinn af \u00feessu og s\u00e1 eini sem \u00e9g kann eitthva\u00f0 \u00e1. \u00c9g f\u00f3r \u00e1 silent disco (allir me\u00f0 heyrnart\u00f3l) og s\u00f6ng Livin&#8217; on a Prayer me\u00f0 \u00fatgefandanum m\u00ednum \u00ed kar\u00f3k\u00ed (ekki silent, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur). Og \u00ed \u00ferj\u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0arkv\u00f6ldver\u00f0i me\u00f0 \u00f3l\u00edkum h\u00f6fundum og \u00fatgefendum og b\u00f3kmenntadipl\u00f3m\u00f6tum. Hitti svona 300 kunningja \u00ed \u00f3l\u00edkum mannh\u00f6fum \u2013&nbsp;nikka\u00f0i, kn\u00fasa\u00f0ist, t\u00f3k \u00ed hendur, stutt spjall, \u00f3p \u00ed gegnum h\u00e1va\u00f0ann \u00e1 einhverjum bar. Tv\u00f6 samt\u00f6l \u00e1 svi\u00f0i, tveir lj\u00f3\u00f0aupplestrar, m\u00f6rg hot shots og talsvert af fr\u00f6nskum pylsum \u00ed 7-Eleven. Gautaborgarp\u00f3sturinn t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r \u00feegar \u00e9g kom \u00ed b\u00e6inn me\u00f0 fjarska fallegum d\u00f3mi um N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lin. \u00d6ll eint\u00f6kin sem \u00fatgefandinn t\u00f3k me\u00f0 \u00e1 messuna ruku \u00fat \u2013 Grimwalkerhj\u00f3nin, sem einhverjir kannast kannski vi\u00f0, keyptu s\u00ed\u00f0asta eintaki\u00f0. Daginn sem \u00e9g kom heim birtist svo l\u00edka \u00e6gilega skemmtilegur d\u00f3mur \u00ed Kyrkans Tidning \u2013 en gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingar hafa au\u00f0vita\u00f0 s\u00e9rstakt sj\u00f3narhorn \u00e1 \u00feessa b\u00f3k. Og gaman \u00feegar \u00feeir n\u00e1 henni. M\u00e9r skilst \u00fea\u00f0 s\u00e9 l\u00edka von \u00e1 d\u00f3mi \u00ed Expressen og svo ver\u00f0 \u00e9g bara a\u00f0 sj\u00e1 hvernig fer me\u00f0 restina \u2013 s\u00f6luna og athyglina. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g h\u00e1tt til lofts \u00ed s\u00e6nskum b\u00f3kmenntaheimi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 sp\u00f3ka mig \u00ed \u00fatl\u00f6ndum datt Aino og f\u00f3tbrotna\u00f0i. E\u00f0a f\u00e9kk sprungu \u00ed bein og var sett \u00ed gips. \u00dea\u00f0 var hringt \u00ed okkur \u00ed morgun og vi\u00f0 be\u00f0in a\u00f0 koma \u00ed a\u00f0ger\u00f0 klukkan h\u00e1lffimm. Sem er au\u00f0vita\u00f0 \u00f3gerlegt af \u00fev\u00ed a\u00f0ger\u00f0in er \u00ed Reykjav\u00edk. En vi\u00f0 f\u00f6rum \u00e1 morgun og \u00feurfum a\u00f0 leggja \u00fat 160 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur fyrir fer\u00f0um og gistingu. Og \u00e9g \u00fearf a\u00f0 taka tveggja daga fr\u00ed fr\u00e1 vinnu. Svo stendur \u00ed uppl\u00fdsingapdfinu a\u00f0 greitt ver\u00f0i fyrir a\u00f0ger\u00f0ina samkv\u00e6mt gjaldskr\u00e1. Sem \u00e9g veit ekki hver er. \u00c9g held vi\u00f0 f\u00e1um \u00feetta allt endurgreitt \u00e1 endanum en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur kannski ekki fyrren eftir 12 vikur. En \u00e9g \u00fearf samt a\u00f0 borga fyrir \u00feetta n\u00fana og borga vextina af yfirdr\u00e1ttarl\u00e1ninu n\u00e6stu 12 vikurnar. Konan m\u00edn er s\u00e6nsk og \u00e9g skammast m\u00edn fyrir a\u00f0 vera \u00edslenskur \u00feegar svona kemur upp \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd g\u00e6r f\u00f3r l\u00edka Play \u00e1 hausinn en sama barn \u00e1tti mi\u00f0a til a\u00f0 fara a\u00f0 heims\u00e6kja \u00f6mmu s\u00edna og afa \u00e1 Sp\u00e1ni. \u00dea\u00f0 bjarga\u00f0ist l\u00edka en \u00fea\u00f0 var ekki heldur \u00f3keypis, \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi ekki \u00feurft a\u00f0 leggja \u00fat fyrir \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g er heima \u00ed t\u00edu daga. E\u00f0a t\u00e6plega \u00fea\u00f0 ef talin er me\u00f0 \u00feessi Reykjav\u00edkurfer\u00f0. Svo er \u00fea\u00f0 mara\u00feon \u00ed \u00de\u00fdskalandi\/Austurr\u00edki\/Sviss (Drei-l\u00e4nderinn svokalla\u00f0i). Tveggja vikna skriftafr\u00ed \u00ed b\u00fasta\u00f0. Tveggja vikna kynningart\u00far um Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og ein vika me\u00f0 Heimsku \u00ed P\u00f3llandi. Svo er bara fari\u00f0 a\u00f0 styttast \u00ed j\u00f3l. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd s\u00e6nskum fj\u00f6lmi\u00f0lum tekst f\u00f3lk \u00e1 um a\u00f0 hversu miklu leyti bla\u00f0amenn og or\u00f0r\u00e6\u00f0a \u00feeirra um palest\u00ednumenn og stu\u00f0ningsf\u00f3lk palest\u00ednska m\u00e1lsta\u00f0arins afmennski \u00fea\u00f0 f\u00f3lk. Vinstrim\u00f6nnum finnst auglj\u00f3st a\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0an s\u00e9 afmennskandi og \u00fear me\u00f0 h\u00e6ttuleg en \u00fev\u00ed hafna h\u00e6grimenn me\u00f0 \u00f6llu. \u00cd bandar\u00edskum fj\u00f6lmi\u00f0lum tekst f\u00f3lk \u00e1 um a\u00f0 hversu miklu leyti vinstrimenn (e\u00f0a dem\u00f3kratar) og or\u00f0r\u00e6\u00f0a \u00feeirra um rep\u00fablikana og stu\u00f0ningsmenn MAGA-m\u00e1lsta\u00f0arins afmennski \u00fea\u00f0 f\u00f3lk. H\u00e6grim\u00f6nnum finnst auglj\u00f3st a\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0an s\u00e9 afmennskandi og \u00fear me\u00f0 h\u00e6ttuleg en \u00fev\u00ed hafna vinstrimenn me\u00f0 \u00f6llu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit hva\u00f0 m\u00e9r finnst. M\u00e9r finnst allt\u00edlagi a\u00f0 kalla MAGA-f\u00f3lk fasista af \u00fev\u00ed m\u00e9r s\u00fdnist \u00fea\u00f0 leggja stund \u00e1 fas\u00edska p\u00f3lit\u00edk og \u00e9g held a\u00f0 \u00feau s\u00e9u alls ekki einl\u00e6g \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3ttast or\u00f0r\u00e6\u00f0una \u2013 \u00feau eru bara a\u00f0 fella p\u00f3lit\u00edskar keilur. Og m\u00e9r finnst mikilv\u00e6gt a\u00f0 r\u00e6tt s\u00e9 um f\u00f3rnarl\u00f6mb hamslauss herna\u00f0ar \u00cdsraelsmanna af n\u00e6rg\u00e6tni og k\u00e6rleika \u2013&nbsp;a\u00f0 minnt s\u00e9 \u00e1 a\u00f0 \u00feau eru ekki t\u00f6lur \u00e1 bla\u00f0i heldur f\u00f3lk \u2013&nbsp;en a\u00f0 sama skapi m\u00e1 alveg rei\u00f0ast s\u00e6nskum kjallarah\u00f6fundum sem eiga \u00fea\u00f0 til a\u00f0 l\u00e1ta \u00feetta allt sn\u00faast um sig og s\u00edna s\u00fdn \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0. E\u00f0a s\u00fdn okkar hinna \u00e1 \u00feau sem fulltr\u00faa r\u00e9ttl\u00e6tisins. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd dag er al\u00fej\u00f3\u00f0adagur \u00fe\u00fd\u00f0enda. \u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 svo langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g \u00fe\u00fdddi nokku\u00f0 af viti sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00e9g get varla tali\u00f0 mig \u00ed \u00feeim h\u00f3pi. En \u00e9g \u00e1 fjarska marga g\u00f3\u00f0a \u00fe\u00fd\u00f0endur sem \u00e9g er mj\u00f6g \u00feakkl\u00b4atur \u2013 John Swedenmark vann n\u00fdlega \u00ferekvirki me\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ingu sinni \u00e1 N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lunum \u00e1 s\u00e6nsku og margt hef \u00e9g l\u00edka heyrt gott um n\u00fdlega \u00fe\u00fd\u00f0ingu Jaceks Godek \u00e1 Heimsku \u00fe\u00f3tt \u00e9g geti ekki lesi\u00f0 hana sj\u00e1lfur. Svo eru allir hinir \u2013\u00a0Eric Boury, Jean-Christophe Sala\u00fcn, Nanna Kalkar, Vicky\u00a0Alyssandrakis, Anna Gunnarsdotter Gr\u00f6nberg, Enrique Bern\u00e1rdez, Roula Georgakoupoulu, Betty Wahl, Tina Flecken, Alexander Sitzman, J\u00f3n Bjarni Atlason, Tapio Koivukari, Daria Lazic, Anna von Heynitz og Anita R\u00a8ubberdt. Og svo allir hinir sem hafa \u00fe\u00fdtt st\u00f6k lj\u00f3\u00f0 e\u00f0a greinar. \u00de\u00fd\u00f0endur eru hinar \u00f3kr\u00fdndu og \u00f3s\u00fdnilegu kempur b\u00f3kmenntanna \u2013\u00a0\u00e1n \u00feeirra v\u00e6rum vi\u00f0 \u00f6ll bara eitthva\u00f0 a\u00f0 garfa \u00ed naflanum \u00e1 okkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars hef \u00e9g teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk er fari\u00f0 a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 tala um \u00fe\u00fd\u00f0endur og \u00fe\u00fd\u00f0ingar og leitar \u00ed \u00f6nnur or\u00f0. Einn segist \u201eendursegja\u201c lj\u00f3\u00f0. A\u00f0rir \u201e\u00fatleggja \u00e1 \u00edslensku\u201c. Og svo framvegis. Einu sinni var \u00f6nnur hver b\u00f3k ekki \u00fe\u00fddd heldur \u201e\u00edslenzku\u00f0\u201c. \u00c9g skil eiginlega ekki tilhneiginguna. \u00c6tli f\u00f3lki finnist \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a of h\u00e1t\u00ed\u00f0legt? E\u00f0a of hversdagslegt? <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6ll \u00feessi ritlaunaumr\u00e6\u00f0a gerir ekkert anna\u00f0 en a\u00f0 triggera \u00ed m\u00e9r frekjuna. \u00c9g vil f\u00e1 f\u00f6st ritlaun sem \u00e9g \u00fearf ekki a\u00f0 s\u00e6kja um \u00e1 hverju \u00e1ri og \u00e9g vil a\u00f0 \u00feau s\u00e9u svona a.m.k. 40-50% h\u00e6rri en \u00feau eru \u2013&nbsp;a\u00f0 l\u00e1gmarki. \u00c9g n\u00fdt bara talsver\u00f0rar velgengni \u2013&nbsp;b\u00fd \u00f3d\u00fdrt, lifi sparlega \u2013 en \u00e9g er &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6229\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Margt l\u00edti\u00f0 um f\u00e1tt eitt (f\u00f3tbolti, b\u00f3kmenntir, f\u00f3tbrot, b\u00f3kamessur)<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6229","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6229","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6229"}],"version-history":[{"count":4,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6229\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6235,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6229\/revisions\/6235"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6229"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6229"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6229"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}