{"id":6242,"date":"2025-10-15T19:53:12","date_gmt":"2025-10-15T19:53:12","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6242"},"modified":"2025-10-15T20:07:20","modified_gmt":"2025-10-15T20:07:20","slug":"thrju-lond-tveir-faetur-fjorutiuogtveir-kilometrar","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6242","title":{"rendered":"\u00derj\u00fa l\u00f6nd, tveir f\u00e6tur, fj\u00f6rut\u00eduogtveir k\u00edl\u00f3metrar"},"content":{"rendered":"<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright size-large is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"477\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/Screenshot-2025-10-15-at-21.59.31-477x1024.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6259\" style=\"width:298px;height:auto\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/Screenshot-2025-10-15-at-21.59.31-477x1024.png 477w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/Screenshot-2025-10-15-at-21.59.31-140x300.png 140w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/Screenshot-2025-10-15-at-21.59.31.png 706w\" sizes=\"auto, (max-width: 477px) 100vw, 477px\" \/><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<div class=\"wp-block-group is-nowrap is-layout-flex wp-container-core-group-is-layout-f221bfd0 wp-block-group-is-layout-flex\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 \u00fer\u00edtugasta k\u00edl\u00f3metra h\u00e6tti hlauparinn \u00e1 undan m\u00e9r a\u00f0 hlaupa, gekk \u00fat \u00ed kant, beyg\u00f0i sig yfir r\u00e6si og \u00e6ldi r\u00famm\u00e1li s\u00ednu \u00ed orkudrykkjum og gelum. Fram a\u00f0 \u00fev\u00ed haf\u00f0i \u00e9g aldrei \u00e1 m\u00ednum \u00ferett\u00e1n \u00e1ra hlaupaferli upplifa\u00f0 a\u00f0 vera \u00f3m\u00f3tt \u00e1 hlaupum, sem er v\u00edst algeng hli\u00f0arverkun langhlaupa \u2013&nbsp;jafnvel \u00feannig a\u00f0 el\u00edtuhlauparar telji \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa aldrei sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00e1reynsluuppk\u00f6stum vera til marks um a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u \u00ed raun ekki a\u00f0 reyna n\u00f3gu miki\u00f0 \u00e1 sig. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar hlupum vi\u00f0 \u00ed gegnum einhvern b\u00e6 \u00fear sem var talsver\u00f0 sk\u00edtaf\u00fdla \u2013&nbsp;og myndin af unga manninum a\u00f0 gubba \u00ed r\u00e6si\u00f0 spila\u00f0ist \u00edtreka\u00f0 \u00ed h\u00f6f\u00f0inu \u00e1 m\u00e9r. Sj\u00e1lfsagt er \u00fea\u00f0 sumum lesenda minna vonbrig\u00f0i en \u00f6\u00f0rum l\u00e9ttir a\u00f0 \u00e9g gubba\u00f0i aldrei sj\u00e1lfur og komst \u00ed mark \u00e1 4 t\u00edmum og 42 m\u00edn\u00fatum. Nadja var litlum t\u00f3lf m\u00edn\u00fatum \u00e1 eftir m\u00e9r. <\/p>\n<\/div>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 vorum m\u00e6tt til Zurich \u00e1 f\u00f6studeginum fyrir hlaup. 3-l\u00e4nder mara\u00feoni\u00f0 \u2013&nbsp;No borders, no limits \u2013 hefst \u00ed Lindau \u00ed \u00de\u00fdskalandi og fer inn \u00ed Austurr\u00edki, \u00fea\u00f0an inn \u00ed Sviss og aftur til Austurr\u00edkis \u00fear sem \u00fev\u00ed l\u00fdkur \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttaleikvanginum \u00ed Bregenz. En fyrstu n\u00f3ttina gistum vi\u00f0 sem sagt \u00ed g\u00f6mlu heimaborg James Joyce \u2013&nbsp;\u00fear sem Ulysses var a\u00f0 miklu leyti skrifu\u00f0. Eftir a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um t\u00e9kka\u00f0 okkur inn \u00e1 h\u00f3tel r\u00f6ltum vi\u00f0 um b\u00e6inn og litu\u00f0umst um. Nadja keypti s\u00e9r takkas\u00edma \u2013&nbsp;vi\u00f0 erum b\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00feeim buxunum en \u00e9g er a\u00f0eins skemmra \u00e1 veg kominn. \u00c1tum v\u00edetnamskan kv\u00f6ldmat og f\u00f3rum snemma a\u00f0 sofa. \u00c9g haf\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0 l\u00e1gan hita af og til alla vikuna og kvef\/nefrennsli. \u00deetta var aflei\u00f0ing af b\u00f3kamessunni sem \u00e9g var \u00e1 fyrir tveimur vikum \u2013&nbsp;b\u00e6\u00f0i umgengni vi\u00f0 alla \u00feessa \u00f3hemju af f\u00f3lki og \u00f3heilbrig\u00f0u l\u00edferninu sem fylgir jafnan f\u00f6r minni til Gautaborgar (\u00fea\u00f0 er mj\u00f6g gaman \u00fati \u00e1 l\u00b4\u00edfinu me\u00f0 m\u00ednum s\u00e6nska \u00fatgefanda og vini). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Daginn eftir \u00e1tum vi\u00f0 kolvetnar\u00edkan morgunver\u00f0 og t\u00f3kum lestina til Lindau. \u00c9g st\u00f3\u00f0 enn \u00ed \u00feeirri meiningu a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i b\u00f3ka\u00f0 h\u00f3tel fyrir okkur \u00e1 eyjunni \u2013 Lindau Insel \u2013\u00fear sem hlaupi\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 hefjast og \u00fear sem eru sjarmerandi gamlir g\u00f6tusteinsst\u00edgar og allt morandi \u00ed veitingast\u00f6\u00f0um. Vi\u00f0 vorum komin alla lei\u00f0 lestarst\u00f6\u00f0ina \u00feegar \u00fea\u00f0 rifja\u00f0ist upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 \u00feegar \u00e9g loksins b\u00f3ka\u00f0i reisuna haf\u00f0i allt nema \u00fea\u00f0 allra d\u00fdrasta veri\u00f0 uppb\u00f3ka\u00f0 \u2013&nbsp;og \u00e9g enda\u00f0i \u00e1 a\u00f0 b\u00f3ka verksmi\u00f0juh\u00f3tel \u00ed einhverju mj\u00f6g lei\u00f0inlegu i\u00f0na\u00f0ar\u00fathverfi. \u00c9g vir\u00f0ist hreinlega hafa b\u00e6lt \u00feessi vonbrig\u00f0i og var \u00ed alv\u00f6ru b\u00fainn a\u00f0 steingleyma \u00fev\u00ed \u00feegar vi\u00f0 komum \u00e1 sta\u00f0inn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um hent inn t\u00f6skunum okkar \u00e1 Premier Inn \u2013&nbsp;\u00fear sem var ekkert nema risast\u00f3rt Tesla st\u00e6\u00f0i, bens\u00ednst\u00f6\u00f0 og McDonalds \u2013 komum vi\u00f0 okkur til Bregenz \u00ed Austurr\u00edki \u2013&nbsp;8 k\u00edl\u00f3metra \u00ed burtu, handan landam\u00e6ranna \u2013&nbsp;\u00fear sem vi\u00f0 s\u00f3ttum n\u00famerin okkar, keyptum einhver aukagel (me\u00f0 koff\u00edni) og f\u00f3rum \u00ed pastaveislu me\u00f0 \u00f6\u00f0rum hlaupurum. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 einfalda okkur hlutina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka leigub\u00edl \u00feanga\u00f0 en umfer\u00f0in var sturlu\u00f0 svo vi\u00f0 s\u00e1tum heila eil\u00edf\u00f0 \u00ed b\u00edlnum \u2013 svo kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 b\u00edlstj\u00f3rinn (sem rata\u00f0i ekki) komst ekki inn \u00e1 neti\u00f0 \u00ed Austurr\u00edki og gat \u00fear me\u00f0 ekki teki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti kortagrei\u00f0slu. Vi\u00f0 vorum evrulaus og umfer\u00f0in var \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00f3hugsandi a\u00f0 fara a\u00f0 r\u00fanta eitthva\u00f0 eftir hra\u00f0banka. \u00dea\u00f0 enda\u00f0i eftir japl, jaml og fu\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 fengum hj\u00e1 honum s\u00edman\u00famer og bankauppl\u00fdsingar og lofu\u00f0um a\u00f0 leggja inn \u00e1 hann \u2013&nbsp;svo f\u00f3rum vi\u00f0 fr\u00e1 bor\u00f0i og skildum kreditkorti\u00f0 hennar N\u00f6dju (\u00f3vart) eftir \u00ed s\u00e6tinu. Sem var kannski s\u00e9rstaklega fyndi\u00f0 \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 \u00fear me\u00f0 gat h\u00fan ekki lengur skili\u00f0 snjalls\u00edmann sinn eftir neins sta\u00f0ar \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 borga me\u00f0 takkas\u00edmum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar vi\u00f0 komum aftur til Lindau reyndum vi\u00f0 a\u00f0 hringja \u00ed b\u00edlstj\u00f3rann en hann hl\u00fdtur a\u00f0 hafa skrifa\u00f0 n\u00fameri\u00f0 sitt eitthva\u00f0 vitlaust ni\u00f0ur \u00fev\u00ed vi\u00f0 n\u00e1\u00f0um engu sambandi. Vi\u00f0 hringdum \u00ed fyrirt\u00e6ki\u00f0, skildum eftir skilabo\u00f0 og f\u00f3rum \u00fat a\u00f0 hlaupa \u2013&nbsp;2 k\u00edl\u00f3metra, bara r\u00e9tt til a\u00f0 li\u00f0ka f\u00e6turna. Eftir \u00fea\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 okkur kv\u00f6ldmat \u00e1 h\u00f3telinu en \u00fe\u00e1 kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 eldh\u00fasi\u00f0 loka\u00f0i klukkan \u00e1tta og vi\u00f0 vorum 20 m\u00edn\u00b4\u00fatum of sein. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 n\u00fa var \u00e9g farinn a\u00f0 halda a\u00f0 \u00fea\u00f0 hv\u00edldi einhver b\u00f6lvun \u00e1 \u00feessum hlaupapl\u00f6num okkar. \u00dea\u00f0 muna\u00f0i minnstu a\u00f0 vi\u00f0 k\u00e6mumst aldrei af sta\u00f0 \u2013&nbsp;Aino, sem \u00e1tti a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara \u00ed l\u00faxusp\u00f6ssun hj\u00e1 \u00f6mmu sinni og afa \u00e1 Sp\u00e1ni \u2013 f\u00f3tbrotna\u00f0i fyrir tveimur vikum og \u00fea\u00f0 virtist frekar \u00f3l\u00edklegt \u00e1 t\u00edmabili a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti veri\u00f0 \u00e1n okkar. H\u00fan er \u00fe\u00f3 mj\u00f6g sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 og var farinn a\u00f0 bjarga s\u00e9r vel \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 f\u00f3rum \u2013 og enda\u00f0i gl\u00f6\u00f0 \u00ed p\u00f6ssun hj\u00e1 vinkonum s\u00ednum, hverra foreldrum vi\u00f0 erum afar \u00feakkl\u00e1t (pl\u00fas a\u00f0 vi\u00f0 m\u00fatu\u00f0um henni me\u00f0 n\u00fdjum fatask\u00e1p).  <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 skiptir sem sagt miklu m\u00e1li, er m\u00e9r sagt, a\u00f0 ma\u00f0ur bor\u00f0i g\u00f3\u00f0a m\u00e1lt\u00ed\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir langt hlaup. En \u00fea\u00f0 skiptir l\u00edka m\u00e1li a\u00f0 fara snemma a\u00f0 sofa og \u00fea\u00f0 var lj\u00f3st a\u00f0 vi\u00f0 g\u00e6tum ekki gert b\u00e6\u00f0i. Vi\u00f0 l\u00e9tum okkur \u00fev\u00ed hafa \u00fea\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a \u00e1 bens\u00ednst\u00f6\u00f0inni \u2013&nbsp;samlokur og brezel. V\u00f6knu\u00f0um svo snemma og fengum okkur st\u00f3ran morgunmat. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lentum vel a\u00f0 merkja \u00ed svipu\u00f0u veseni \u00ed 10km hlaupinu \u00ed Bangkok \u00ed desember&nbsp;\u2013 \u00fear var \u00e9g b\u00fainn a\u00f0 finna \u00edtalskan veitingasta\u00f0 n\u00e1l\u00e6gt h\u00f3telinu okkar en \u00feegar til kastanna kom reyndist hann loka\u00f0ur og vi\u00f0 \u00e1tum eitthva\u00f0 l\u00e9legt tacos. N\u00e6st hringi \u00e9g og b\u00f3ka bor\u00f0 og hef allt \u00e1 hreinu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var \u00e1rei\u00f0anlega me\u00f0 hita \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sofa. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 \u00e9g hafi nokkurn t\u00edma \u00edhuga\u00f0 a\u00f0 leggja ekki af sta\u00f0 \u2013&nbsp;ekki af neinni alv\u00f6ru \u2013&nbsp;en \u00e9g var mj\u00f6g me\u00f0vita\u00f0ur um a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti allt eins veri\u00f0 a\u00f0 \u00e9g myndi \u00f6rmagnast e\u00f0a f\u00e1 h\u00e1an hita\/hjartsl\u00e1tt \u00ed sj\u00e1lfu hlaupinu og \u00feurfa a\u00f0 h\u00e6tta. \u00c9g margsl\u00f3 \u00fev\u00ed upp og eina r\u00e1\u00f0i\u00f0 sem interneti\u00f0 gaf m\u00e9r var a\u00f0 ef \u00e9g v\u00e6ri me\u00f0 hita \u00e6tti \u00e9g alls ekki a\u00f0 hlaupa. \u00cd ofan\u00e1lag gla\u00f0vakna\u00f0i \u00e9g eftir \u00feriggja t\u00edma svefn og l\u00e1 svo meira milli svefns og v\u00f6ku en beinl\u00ednis svaf s\u00ed\u00f0ustu fj\u00f3rar klukkustundirnar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g f\u00f3r \u00e1 f\u00e6tur vissi \u00e9g samt ekki hvernig m\u00e9r lei\u00f0 \u2013&nbsp;\u00e9g veit \u00fea\u00f0 aldrei \u00feegar \u00e9g er n\u00fdvakna\u00f0ur, \u00fea\u00f0 tekur mig alltaf a.m.k. h\u00e1lft\u00edma a\u00f0 f\u00e1 st\u00f6\u00f0una \u00e1 hreint. Vi\u00f0 \u00e1tum st\u00f3ran morgunver\u00f0 \u2013 a\u00f0allega brau\u00f0 \u2013&nbsp;og \u00e9g bei\u00f0 \u00feess a\u00f0 finna s\u00f3tthitann renna yfir mig en hann kom aldrei. M\u00e9r lei\u00f0 satt a\u00f0 segja bara \u00e1g\u00e6tlega, s\u00e9rstaklega mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 hva\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i l\u00edti\u00f0 sofi\u00f0. \u00c9g var samt \u00f3\u00fe\u00e6gilega stressa\u00f0ur \u00ed str\u00e6t\u00f3num a\u00f0 upphafsl\u00ednunni \u2013&nbsp;me\u00f0 \u00fari\u00f0 \u00e1 handleggnum var \u00e9g auk \u00feess mj\u00f6g me\u00f0vita\u00f0ur um a\u00f0 hjartsl\u00e1tturinn var \u00f3\u00fearflega hra\u00f0ur. En \u00feegar vi\u00f0 vorum komin \u00e1 sta\u00f0inn l\u00e6kka\u00f0i hann aftur og m\u00e9r f\u00f3r a\u00f0 l\u00ed\u00f0a vel. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"768\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/IMG_1544-1024x768.jpeg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6245\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/IMG_1544-1024x768.jpeg 1024w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/IMG_1544-300x225.jpeg 300w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/IMG_1544-768x576.jpeg 768w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/IMG_1544.jpeg 1280w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g man ekki hva\u00f0 h\u00fan heitir hlj\u00f3msveitin sem spilar vi\u00f0 starti\u00f0 en h\u00fan hefur v\u00edst spila\u00f0 \u00fear \u00ed ein \u00e1tj\u00e1n \u00e1r \u2013&nbsp;gamaldags forb\u00edtlarokk \u2013&nbsp;og byrja\u00f0i \u00feremur korterum \u00e1\u00f0ur en allt f\u00f3r \u00ed gang. Vi\u00f0 notu\u00f0um t\u00edmann til a\u00f0 losa okkur vi\u00f0 fatapokann okkar og gera okkur almennilega kl\u00e1r. Einsog v\u00e6nta m\u00e1 var rafm\u00f6gnu\u00f0 eftirv\u00e6nting \u00ed loftinu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar vi\u00f0 t\u00f3kum af sta\u00f0 \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 kveikja \u00e1 strava \u00ed \u00farinu m\u00ednu til a\u00f0 geta fylgst me\u00f0 t\u00edma og vegalengd og hjartsl\u00e6tti en af \u00fev\u00ed \u00e9g hef veri\u00f0 a\u00f0 fikta \u00ed alls konar \u201eekki-vera-alltaf-\u00e1-netinu-stillingum\u201c f\u00f3r \u00fea\u00f0 ekki \u00ed gang \u2013 \u00fea\u00f0 var v\u00edst einhvers konar hv\u00edldart\u00edmi sem \u00e9g kunni ekki a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1 \u2013&nbsp;og \u00e9g byrja\u00f0i hlaupi\u00f0 b\u00f6lvandi \u00feessu \u00ed s\u00f3t og \u00f6sku. Sem er kannski ekki til fyrirmyndar. Kveikti svo \u00e1 strava \u00ed s\u00edmanum \u00ed sta\u00f0inn og svo stuttu s\u00ed\u00f0ar spur\u00f0i \u00fari\u00f0 hvort \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 hreyfa mig og hvort \u00e9g vildi a\u00f0 Apple Health m\u00f3nitora\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir mig \u2013&nbsp;sem \u00e9g \u00fe\u00e1\u00f0i og var \u00fe\u00e1 farinn a\u00f0 taka upp hlaupi\u00f0 \u00e1 tveimur v\u00edgst\u00f6\u00f0vum. Sem var allt\u00edlagi en \u00fe\u00fdddi l\u00edka a\u00f0 \u00feegar \u00e9g kom \u00ed mark voru b\u00e6\u00f0i t\u00e6kin svo gott sem batter\u00edislaus. \u00dea\u00f0 er v\u00edst l\u00edka \u00e1st\u00e6\u00f0a fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 svo f\u00e1ir hlauparana voru me\u00f0 Apple Watch \u2013 l\u00edft\u00edmi rafhl\u00f6\u00f0unnar vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur er ekki nema um fimm t\u00edmar. Langhlauparar eru me\u00f0 alv\u00f6ru dedikera\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3tta\u00far. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hvernig l\u00fdsir ma\u00f0ur s\u00ed\u00f0an svona hlaupi? Ma\u00f0ur hleypur. Setur einn f\u00f3tinn fram fyrir hinn \u00ed fimm t\u00edma \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 er l\u00e9tt \u00ed byrjun og ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an erfi\u00f0ara. Lei\u00f0ir okkar N\u00f6dju skildu mj\u00f6g snemma og eiginlega \u00f3vart \u2013&nbsp;\u00e9g \u00fevinga\u00f0ist a\u00f0eins \u00fat \u00ed kant og \u00feurfti a\u00f0 st\u00f6kkva fram \u00far nokkrum og fann hana svo ekki \u00feegar \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 komast aftur til hennar. Vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um aldrei a\u00f0 hlaupa hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 svo \u00fea\u00f0 kom ekki a\u00f0 s\u00f6k en \u00e9g hef\u00f0i \u00fe\u00f3 vilja\u00f0 kve\u00f0ja. M\u00e9r lei\u00f0 vel og byrja\u00f0i hra\u00f0ar en \u00e9g haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 m\u00e9r, sem m\u00e9r er sagt a\u00f0 s\u00e9 \u00f3r\u00e1\u00f0, ma\u00f0ur eigi alltaf a\u00f0 fylgja planinu. En \u00e9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 hef\u00f0i breytt miklu. Ve\u00f0ri\u00f0 var til fyrirmyndar \u2013&nbsp;sk\u00fdja\u00f0, r\u00famlega t\u00edu gr\u00e1\u00f0ur, d\u00e1l\u00edtill andvari \u2013 og hlaupi\u00f0 er til \u00feess a\u00f0 gera flatt. Vi\u00f0 hlupum flj\u00f3tlega \u00fat \u00far \u00de\u00fdskalandi og inn \u00ed Austurr\u00edki \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 kvarna\u00f0ist \u00far h\u00f3pnum fyrst \u00feegar 10 og 15K f\u00f3lki\u00f0 beyg\u00f0i af og svo s\u00ed\u00f0ar \u00feegar h\u00e1lfmara\u00feon f\u00f3lki\u00f0 sneri vi\u00f0 en vi\u00f0 hin h\u00e9ldum \u00e1fram inn \u00ed Sviss. \u00dear var frekar stuttur r\u00fantur \u2013 kannski 3-4 k\u00edl\u00f3metrar, \u00e1 a\u00f0 giska \u2013&nbsp;og allur \u00ed slaufum og brekkum. \u00dea\u00f0 var l\u00edklega einmitt eftir slaufurnar og brekkurnar sem f\u00f3r a\u00f0 draga svol\u00edti\u00f0 af m\u00e9r en \u00fe\u00e1 var \u00e9g kominn um 30k, sem er l\u00edka \u00fea\u00f0 lengsta sem \u00e9g hef hlaupi\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u2013&nbsp;og hlj\u00f3p \u00fe\u00e1 talsvert h\u00e6gar (7.19 minnir mig \u2013&nbsp;m\u00edn\u00fatur \u00e1 km \u2013&nbsp;vs. 6.25 sirka fyrir \u00feennan kafla). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt bar fyrir augu og lei\u00f0in var afar falleg. Vi\u00f0 hlupum me\u00f0fram Bodensee og \u00ed gegnum Bregenz og \u00fea\u00f0an \u00e1fram til b\u00e6jar sem heitir \u00fev\u00ed vi\u00f0eigandi nafni, Hard, og \u00fea\u00f0an til b\u00e6jar sem heitir \u00fev\u00ed enn meira vi\u00f0eigandi nafni Fu\u00dfach, til H\u00f6chst (allt mj\u00f6g vi\u00f0eigandi) \u2013&nbsp;\u00ed Sviss f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed gegnum St. Margrethen, sem er bara venjulegt b\u00e6jarnafn, \u00fea\u00f0 best \u00e9g veit. Hlauparar voru af \u00f6llum st\u00e6r\u00f0um og ger\u00f0um \u2013&nbsp;einn t\u00f3k fram \u00far m\u00e9r sem var \u00e1rei\u00f0anlega ekki nema svona \u00e1tta \u00e1ra (og hefur v\u00e6ntanlega veri\u00f0 \u00ed 10k \u2013&nbsp;en \u00fea\u00f0 er sama, 10k er f\u00e1r\u00e1nlega langt fyrir \u00e1tta \u00e1ra barn) og \u00fea\u00f0 var talsvert af ellil\u00edfeyris\u00feegum. Af og til t\u00f3k l\u00edka fram \u00far manni einhver ep\u00edskur el\u00edtuhlaupari \u2013 \u00feeir hlaupa \u00e1 sirka tv\u00f6f\u00f6ldum hra\u00f0a vi\u00f0 alla a\u00f0ra og voru margir me\u00f0 m\u00f3tor- e\u00f0a rei\u00f0hj\u00f3lafylgd. \u00c9g \u00e1tta mig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna \u00feeir f\u00f3ru ekki allir af sta\u00f0 fremstir \u00ed fylkingu (einsog \u00fe\u00f3 flestir \u00feeirra ger\u00f0u). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 einum sta\u00f0 hlj\u00f3pum vi\u00f0 framhj\u00e1 h\u00f3ruh\u00fasi. \u00c1 \u00f6\u00f0rum \u00ed gegnum timburlager. \u00c1 \u00feeim \u00feri\u00f0ja \u00fatileikh\u00fas. V\u00ed\u00f0a voru litlar kirkjur og vi\u00f0 eina \u00feeirra var st\u00f3r tr\u00e9kross me\u00f0 \u201ehangandi sp\u00fdtukarli\u201c alveg vi\u00f0 veginn \u2013&nbsp;\u00fe\u00e1 vorum vi\u00f0 \u00f6ll tekin a\u00f0 \u00fej\u00e1st til kunna verulega a\u00f0 meta samst\u00f6\u00f0u karlsins. \u00c1 kafla var sk\u00f3garbrunalykt \u00ed loftinu \u2013&nbsp;e\u00f0a einhvers konar tr\u00e9bruni. Vi\u00f0 hlupum yfir R\u00edn. Alls sta\u00f0ar var f\u00f3lk \u00fati \u00ed kanti a\u00f0 hvetja mann \u00e1fram \u2013&nbsp;og f\u00f3lk me\u00f0 alls konar skemmtiatri\u00f0i. Sums sta\u00f0ar var bara gett\u00f3blaster og plakat \u00fati \u00e1 g\u00f6tu. Annars sta\u00f0ar heil l\u00fa\u00f0rasveit a\u00f0 spila Beyonc\u00e9l\u00f6g. \u00cd St. Margrethen hlj\u00f3p \u00e9g einn \u00ed fangi\u00f0 \u00e1 svona \u00ferj\u00e1t\u00edu uppstr\u00edlu\u00f0um klappst\u00fdrum sem bl\u00f6stu\u00f0u t\u00f3nlist og d\u00f6nsu\u00f0u sem mest \u00fe\u00e6r m\u00e1ttu til a\u00f0 hvetja mig \u00e1fram. Svo voru rapparar a\u00f0 rappa. Fleiri hlj\u00f3msveitir. Fer\u00f0adisk\u00f3. Gamlar konur sem hristu k\u00faabj\u00f6llur. Og hr\u00f3pandi f\u00f3lk me\u00f0 alls konar skilti me\u00f0 innilegum kve\u00f0jum og allra handa h\u00f3tfyndni.  <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef alla jafna ekki treyst \u00e1 gel \u00ed langhlaupum \u2013 bara tro\u00f0i\u00f0 ban\u00f6num \u00ed vesti\u00f0 \u2013&nbsp;en ger\u00f0i \u00fea\u00f0 n\u00fana. Haf\u00f0i keypt nokkur \u00ed Nett\u00f3 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r en \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 b\u00e6ta \u00e1 mig a.m.k. tveimur me\u00f0 koff\u00edni til a\u00f0 eiga sm\u00e1 aukaorku \u2013&nbsp; \u00feegar Feidippides hlj\u00f3p upprunalega mara\u00feoni\u00f0 \u00e1 s\u00ednum var hann einsog fr\u00e6gt er hvorki me\u00f0 gel n\u00e9 banana og f\u00e9ll \u00feess vegna ni\u00f0ur \u00f6rendur um lei\u00f0 og hann kom \u00ed mark. \u00dea\u00f0 er skemmst fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 \u00feessi koff\u00edngel sem \u00e9g keypti eru einhver mesti vi\u00f0bj\u00f3\u00f0ur sem \u00e9g hef innbyrt um \u00e6vina \u2013&nbsp;einsog a\u00f0 drekka \u00feriggja daga gamalt kaffi upp \u00far kl\u00f3settst\u00f3l, sem hefur ekki veri\u00f0 \u00ferifinn lengi. En koff\u00edni\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0i \u00e1byggilega til. Eftir 33km sett \u00e9g l\u00edka upp heddf\u00f3na og kveikti \u00e1 m\u00fas\u00edk \u2013 shuffle \u00e1 g\u00f6mlum hlaupaplaylista sem skila\u00f0i m\u00e9r \u00feessu fyrst af \u00f6llu:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-rich is-provider-spotify wp-block-embed-spotify wp-embed-aspect-21-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe title=\"Spotify Embed: Twenty Five Miles\" style=\"border-radius: 12px\" width=\"100%\" height=\"152\" frameborder=\"0\" allowfullscreen allow=\"autoplay; clipboard-write; encrypted-media; fullscreen; picture-in-picture\" loading=\"lazy\" src=\"https:\/\/open.spotify.com\/embed\/track\/0vstoapfzoOlqD8zurG2uJ?si=bdea0f1bd9aa4df2&#038;utm_source=oembed\"><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 t\u00f3nlistinni gr\u00e6ddi \u00e9g \u00e1rei\u00f0anlega tvo-\u00ferj\u00e1 \u00f3keypis k\u00edl\u00f3metra bara upp \u00e1 stemninguna, \u00e1\u00f0ur en f\u00f3r a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 m\u00e9r aftur. S\u00ed\u00f0ustu fimm k\u00edl\u00f3metrana hlj\u00f3p \u00e9g bara frekar buga\u00f0ur. Stoppa\u00f0i \u00e1 \u00f6llum drykkjarst\u00f6\u00f0vum og gekk me\u00f0an \u00e9g hellti ofan \u00ed mig vatni. En \u00feetta er undarleg tilfinning \u2013&nbsp;a\u00f0 halda bara \u00e1fram. Og a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0ur s\u00e9 \u00ed alv\u00f6ru a\u00f0 komast \u00ed mark. Eftirv\u00e6nting eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201ef\u00e1\u201c a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 hlaupa og stolt yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa gert \u00feetta \u2013 \u00e1\u00f0ur en ma\u00f0ur er einu sinni kominn \u00ed mark. \u00c9g hef lengi hlaupi\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi ekki \u201eteki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed hlaupum\u201c en fyrir fj\u00f3rt\u00e1n m\u00e1nu\u00f0um var \u00e9g kominn \u00ed frekar sl\u00e6mt form&nbsp;\u2013 f\u00f3r \u00fat a\u00f0 hlaupa \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, hlj\u00f3p t\u00e6pa 3k \u00ed s\u00f3l og brekkum og var gersamlega b\u00fainn \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 eftir, og skildi ekki hvernig m\u00e9r hef\u00f0i tekist a\u00f0 glopra svona ni\u00f0ur \u00e1g\u00e6tis hlaupaformi. Og \u00fe\u00e1 \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 finna m\u00e9r einhverja \u00e1skorun \u2013 og spur\u00f0i N\u00f6dju (sem er miklu meiri \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur en \u00e9g) hvort h\u00fan vildi ekki koma me\u00f0 m\u00e9r \u00ed mara\u00feon a\u00f0 \u00e1ri. Sem h\u00fan sam\u00feykkti d\u00e1l\u00edti\u00f0 treglega, enda hlaup ekki hennar eftirl\u00e6tis \u00ed\u00fer\u00f3tt. Og fj\u00f3rt\u00e1n m\u00e1nu\u00f0um s\u00ed\u00f0ar var ma\u00f0ur bara a\u00f0 koma \u00ed mark. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"680\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-680x1024.jpeg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6248\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-680x1024.jpeg 680w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-199x300.jpeg 199w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-768x1156.jpeg 768w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-1021x1536.jpeg 1021w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-1361x2048.jpeg 1361w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/10\/22218748_orig-scaled.jpeg 1701w\" sizes=\"auto, (max-width: 680px) 100vw, 680px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ustu fimm hundru\u00f0 metrana gaf \u00e9g a\u00f0eins \u00ed, t\u00f3k \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta sem \u00e9g \u00e1tti \u2013&nbsp;og hlj\u00f3p inn \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttaleikvanginn \u00ed Bregenz. \u00c9g f\u00f3r yfir markl\u00ednuna. Staula\u00f0ist \u00ed fangi\u00f0 \u00e1 einhverjum str\u00e1k sem hengdi \u00e1 mig medal\u00edu \u2013&nbsp;\u00e9g f\u00e9kk enga medal\u00edu \u00ed Vesturg\u00f6tuhlaupinu \u00ed sumar, sem m\u00e9r fannst svol\u00edti\u00f0 f\u00falt, mest sennilega af \u00fev\u00ed \u00e9g var ekki \u00ed\u00fer\u00f3ttabarn og \u00e1 ekki haug af medal\u00edum einsog t.d. Nadja (\u00fe\u00e6r eru reyndar allar t\u00fdndar en \u00fea\u00f0 er \u00f6nnur saga). \u00c9g f\u00e9kk eina fyrir 60m hlaup sj\u00f6 \u00e1ra drengja \u00e1ri\u00f0 1985 \u2013&nbsp;brons. Silfur fyrir a\u00f0 vei\u00f0a minnsta fiskinn \u00ed vei\u00f0ikeppni 9 \u00e1ra (gull f\u00e9kk s\u00e1 sem veiddi st\u00e6rsta fiskinn og brons s\u00e1 sem veiddi flesta \u2013&nbsp;\u00e9g samdi ekki reglurnar). Og svo ekkert fyrren \u00e9g f\u00e9kk \u00fe\u00e1ttt\u00f6kumedal\u00edu fyrir 10km \u00ed Bangkok n\u00fa um j\u00f3lin og n\u00fa \u00feessa, sem m\u00e9r \u00feykir mj\u00f6g v\u00e6nt um. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00edminn minn var 4 klukkustundir og 42 m\u00edn\u00fatur. Sem m\u00e9r finnst bara harla gott. \u00c9g haf\u00f0i hugsa\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 bestu a\u00f0st\u00e6\u00f0ur myndi \u00e9g n\u00e1 \u00feessu \u00e1 fj\u00f3rum og h\u00e1lfum en verstu eitthva\u00f0 r\u00famlega fimm. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kominn \u00ed mark gekk \u00e9g bara um \u00ed d\u00e1litla stund einsog h\u00f6fu\u00f0laus \u2013&nbsp;og f\u00f3talaus \u2013&nbsp;h\u00e6na. Nadja var enn a\u00f0 hlaupa og \u00e9g einhvern veginn bara frekar lost. \u00c9g vissi ekki alveg hverju \u00e9g \u00e1tti a\u00f0 b\u00faast vi\u00f0. \u00cd Bangkok voru ekki bara steinefnadrykkir \u00ed bo\u00f0i heldur l\u00edka alv\u00f6ru m\u00e1lt\u00ed\u00f0ir&nbsp;\u2013 \u00fe\u00e1 f\u00e9kk \u00e9g m\u00e9r risa pad thai, enda ver\u00f0 \u00e9g oft feykilega svangur af langhlaupum. Eftir Vesturg\u00f6tuna voru pr\u00f3teindrykkir og steinefnadrykkir og \u00e1rei\u00f0anlega snakk og eitthva\u00f0. \u00c9g gekk \u00ed \u00e1tt a\u00f0 tj\u00f6ldunum og \u00fear var eiginlega ekkert nema k\u00f3k og saltstangir. Svo bei\u00f0 \u00e9g eftir N\u00f6dju sem kom \u00ed mark 12 m\u00edn\u00fatum \u00e1 eftir m\u00e9r. Vi\u00f0 vorum b\u00e6\u00f0i frekar ringlu\u00f0 af \u00fereytu og f\u00e6turnir alveg b\u00fanir. F\u00f3rum \u00fat af leikvanginum og gengum \u00ed gegnum veitingatj\u00f6ldin og leitu\u00f0um a\u00f0 trukkunum me\u00f0 fatapokana. \u00deegar \u00feeir fundust \u2013&nbsp;eftir talsver\u00f0a leit \u2013&nbsp;f\u00f3r Nadja \u00ed sturtu en \u00e9g l\u00e9t duga a\u00f0 skipta \u00ed \u00feurran bol og f\u00f3r og settist \u00ed eitt veitingatjaldi\u00f0. \u00dear var ekki hollustunni fyrir a\u00f0 fara \u2013&nbsp;og eitthva\u00f0 mj\u00f6g \u00fe\u00fdskt vi\u00f0 \u00feetta allt saman, sveitta feitabollukarla \u00ed mara\u00feongallanum a\u00f0 tro\u00f0a \u00ed sig kart\u00f6flumj\u00f6lsborgurum og pommes me\u00f0 bj\u00f3r og breg\u00f0a s\u00e9r af og til \u00fat \u00ed s\u00edg\u00f3. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nadja var fur\u00f0ulegt nokk ekkert sv\u00f6ng svo vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 halda bara aftur heim \u00e1 h\u00f3tel. Vi\u00f0 r\u00e1kumst \u00e1 tv\u00e6r s\u00e6nskar vinkonur, eldriborgara, sem h\u00f6f\u00f0u hlaupi\u00f0 m\u00f6rg mara\u00feon \u2013&nbsp;me\u00f0al annars uppstr\u00edla\u00f0ar sem strumpar \u00ed Li\u00e8ge \u2013&nbsp;og spj\u00f6llu\u00f0um vi\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1 lei\u00f0inni \u00fat \u00e1 brautarst\u00f6\u00f0. \u00de\u00e6r voru mj\u00f6g skemmtilegar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 h\u00f3telinu \u00fereif \u00e9g mig loks og svo f\u00f3rum vi\u00f0 og fundum okkur pizzeriu \u00ed gamla b\u00e6num \u2013&nbsp;leigub\u00edllinn f\u00f3r fyrst me\u00f0 okkur \u00e1 h\u00f3tel \u00fear sem yfirma\u00f0ur leigub\u00edlafyrirt\u00e6kisins haf\u00f0i skili\u00f0 eftir korti\u00f0 hennar N\u00f6dju. Mann langa\u00f0i eiginlega a\u00f0 vera me\u00f0 medal\u00eduna \u00e1 s\u00e9r, ekki bara til a\u00f0 grobba sig heldur l\u00edka svo a\u00f0 f\u00f3lk skildi hvers vegna ma\u00f0ur gekk einsog ma\u00f0ur v\u00e6ri me\u00f0 glerbrot \u00ed sk\u00f3num. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1nudagurinn var l\u00edka erfi\u00f0ur fyrir f\u00e6turna. \u00c9g fann vel a\u00f0 merkja ekki miki\u00f0 fyrir 30k hlaupinu \u00ed sumar daginn eftir og hef ekki fengi\u00f0 svona miklar har\u00f0sperrur \u00e1\u00f0ur. \u00deetta er st\u00e6rra st\u00f6kk en ma\u00f0ur heldur \u2013&nbsp;\u00f6nnur skepna. En \u00fea\u00f0 er ekki m\u00e6lt me\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0ur \u00e6fi lengri vegalengdir en 30k vegna mei\u00f0slah\u00e6ttu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deennan dag \u00feurftum vi\u00f0 l\u00edka a\u00f0 koma okkur til Zurich og a\u00f0 gamalli venju var \u00e9g ekki me\u00f0 t\u00f6sku heldur st\u00f3ra bakpokann. Sem var kannski ekkert mj\u00f6g skemmtilegt \u00e1 \u00fereyttum f\u00f3tum. \u00cd Zurich f\u00f3rum vi\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00ed nudd, sem var mj\u00f6g n\u00e6s. \u00deri\u00f0judagurinn var svo talsvert sk\u00e1rri og n\u00fa er \u00e9g or\u00f0inn frekar e\u00f0lilegur \u2013&nbsp;fyrir utan a\u00f0 \u00e9g \u00feurfti skyndilega langan l\u00far um mi\u00f0jan dag. Bara krassa\u00f0i algerlega. Kannski finnst einhverjum \u00fea\u00f0 skr\u00edti\u00f0 en m\u00e9r finnst gaman a\u00f0 taka svona eftir l\u00edkama m\u00ednum \u2013 og hugsa um \u00fea\u00f0 hvernig hann bregst vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i \u00e1laginu og \u00fev\u00ed hvernig er fari\u00f0 me\u00f0 hann fyrir og eftir. Og \u00e9g fer \u00e1rei\u00f0anlega aftur \u00ed mara\u00feon einhvern daginn \u2013&nbsp;\u00fe\u00f3tt Nadja segist ekki \u00e6tla \u00ed meira en h\u00e1lft \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e9g vini sem eru spenntir fyrir heilu, t.d. fyrir v\u00ednsm\u00f6kkunarmara\u00feoninu \u00ed M\u00e9doc. Sj\u00e1lfum finnst m\u00e9r l\u00edka Loch Ness mara\u00feoni\u00f0 spennandi og Berl\u00ednarmara\u00feoni\u00f0 og m\u00e9r finnst spennandi tilhugsun a\u00f0 fara \u00ed eitthvert amer\u00edskt hlaup l\u00edka. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fe\u00e6r p\u00e6lingar b\u00ed\u00f0a betri t\u00edma. N\u00fa er \u00e9g a\u00f0eins a\u00f0 r\u00e1fa um s\u00f6gusl\u00b4\u00f3\u00f0ir James Joyce \u00ed Zurich \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 ver\u00f0ur l\u00edka sk\u00fdrsla um \u00fea\u00f0 \u2013&nbsp;fer heim \u00e1 f\u00f6studag og vi\u00f0 tekur intens\u00edf skrift\u00f6rn \u00ed b\u00fasta\u00f0. Svo eru meiri b\u00f3kakynningar \u00ed \u00fatl\u00f6ndum. En \u00e9g ver\u00f0 svo sem me\u00f0 sk\u00f3na me\u00f0 m\u00e9r. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 \u00fer\u00edtugasta k\u00edl\u00f3metra h\u00e6tti hlauparinn \u00e1 undan m\u00e9r a\u00f0 hlaupa, gekk \u00fat \u00ed kant, beyg\u00f0i sig yfir r\u00e6si og \u00e6ldi r\u00famm\u00e1li s\u00ednu \u00ed orkudrykkjum og gelum. Fram a\u00f0 \u00fev\u00ed haf\u00f0i \u00e9g aldrei \u00e1 m\u00ednum \u00ferett\u00e1n \u00e1ra hlaupaferli upplifa\u00f0 a\u00f0 vera \u00f3m\u00f3tt \u00e1 hlaupum, sem er v\u00edst algeng hli\u00f0arverkun langhlaupa \u2013&nbsp;jafnvel \u00feannig a\u00f0 el\u00edtuhlauparar telji \u00fea\u00f0 &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6242\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00derj\u00fa l\u00f6nd, tveir f\u00e6tur, fj\u00f6rut\u00eduogtveir k\u00edl\u00f3metrar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":6249,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6242","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6242","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6242"}],"version-history":[{"count":14,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6242\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6267,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6242\/revisions\/6267"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/6249"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6242"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6242"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6242"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}