{"id":6295,"date":"2025-12-18T17:26:00","date_gmt":"2025-12-18T17:26:00","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6295"},"modified":"2025-12-18T17:26:00","modified_gmt":"2025-12-18T17:26:00","slug":"fyrirmyndarfjordur","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6295","title":{"rendered":"Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"900\" height=\"670\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/hafnarstraeti-copy.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6296\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/hafnarstraeti-copy.jpg 900w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/hafnarstraeti-copy-300x223.jpg 300w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/hafnarstraeti-copy-768x572.jpg 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 900px) 100vw, 900px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"has-text-align-left has-small-font-size wp-block-paragraph\">\u00cd fyrsta skipti sem \u00e9g kom til \u00cdsafjar\u00f0ar, steig \u00fat \u00far flugv\u00e9linni og horf\u00f0i \u00ed kringum mig, l\u00f6mdu fj\u00f6llin mig \u00ed hausinn og spur\u00f0u: Hvar \u00ed helv\u00edtinu hefur\u00f0u eiginlega veri\u00f0? \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig strax \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i einhvern t\u00edmann a\u00f0 skrifa um \u00feennan sta\u00f0&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-right has-small-font-size wp-block-paragraph\">\u2013&nbsp;J\u00f3n Kalman Stef\u00e1nsson, <em>Fr\u00e9ttabla\u00f0inu<\/em>, 15. desember, 2007.&nbsp;<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einu sinni fyrir margt l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0an h\u00e9t \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap bara \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur \u2013&nbsp;\u00cdsafjar\u00f0ar<em>dj\u00fapin<\/em> voru fir\u00f0irnir inn af honum, Sk\u00f6tufj\u00f6r\u00f0ur, Hestfj\u00f6r\u00f0ur, og svo framvegis. \u00c1 endanum sneru \u00f6rnefnavilltir kortager\u00f0armenn \u00feessu \u00e1 haus og \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur var\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap en \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur innsti fj\u00f6r\u00f0ur \u00feessa dj\u00faps. \u00deegar danskir kaupmenn t\u00f3ku s\u00ed\u00f0an a\u00f0 stunda verslun fr\u00e1 Eyri \u00ed Skutulsfir\u00f0i, ysta fir\u00f0inum, kenndu \u00feeir verslun s\u00edna vi\u00f0 dj\u00fapi\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0skiptavinir \u00feeirra bjuggu, og k\u00f6llu\u00f0u <em>\u00cdsafjar\u00f0arverslun<\/em>. \u00cd fyrstu var bygg\u00f0in sem mynda\u00f0ist \u00ed kringum \u00feessa verslun k\u00f6llu\u00f0 Eyri \u00ed Skutulsfir\u00f0i en \u00e1 endanum haf\u00f0i \u201e\u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur\u201c yfirh\u00f6ndina. \u00cdsafjar\u00f0arnafni\u00f0 breiddi sig n\u00e6st \u2013 einsog v\u00edrus \u2013 yfir n\u00e1grannasveitirnar til vesturs \u00feegar \u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdsla var myndu\u00f0, sem s\u00ed\u00f0ar var skipt upp \u00ed Nor\u00f0ur-\u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslu og Vestur-\u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslu. S\u00fa s\u00ed\u00f0arnefnda innih\u00e9lt engan \u00cdsafj\u00f6r\u00f0&nbsp;\u2013 hvorki kaupsta\u00f0inn n\u00e9 fj\u00f6r\u00f0inn og l\u00e1 ekki heldur vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap. S\u00ed\u00f0ar var\u00f0 svo \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6r til vi\u00f0 sameiningu sumra sveitarf\u00e9laganna \u00far \u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslum. \u00cd dag er enginn sta\u00f0ur fr\u00e1 innanver\u00f0u \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fapi nor\u00f0ur a\u00f0 Reykjarfir\u00f0i \u00e1 Hornstr\u00f6ndum, vestur a\u00f0 Lokinh\u00f6mrum og inn a\u00f0 Dynjanda, sem hefur ekki veri\u00f0 kenndur vi\u00f0 \u00feetta nafn.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Arnr\u00fan fr\u00e1 Felli kallar b\u00e6inn <em>Sandfj\u00f6r\u00f0<\/em>. R\u00fanar Helgi Vignisson kallar hann <em>Pl\u00e1ss<\/em> og J\u00f3n Kalman Stef\u00e1nsson <em>Pl\u00e1ssi\u00f0<\/em> me\u00f0 greini. B\u00f6\u00f0var fr\u00e1 Hn\u00edfsdal talar um <em>Eyrarkaupsta\u00f0 \u00ed Eyrarfir\u00f0i<\/em> \u00ed s\u00ednum drengjab\u00f3kum. S\u00f6gur Gu\u00f0mundar G. Hagal\u00edn gerast \u00ed og \u00ed kringum <em>Tangakaupsta\u00f0<\/em>. <em>Hansd\u00e6tur <\/em>eftir Benn\u00fd Sif \u00cdsleifsd\u00f3ttur gerist \u00ed <em>Arnarfir\u00f0i<\/em>. <em>Kv\u00f3teyri<\/em> Reynis Traustasonar er \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. <em>Svi\u00f0insv\u00edk<\/em> og <em>\u00d3seyri<\/em> Halld\u00f3rs Laxness eru \u00ed senn kunnuglegar og langt undan. En \u00ed <em>Gr\u00edsafir\u00f0i<\/em> eftir L\u00f3u Hl\u00edn Hj\u00e1lmt\u00fdsd\u00f3ttir heitir b\u00e6rinn samt bara <em>\u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lm\u00f6rg sk\u00e1ldverk sem eiga st\u00f3r-\u00cdsafjar\u00f0arsv\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 s\u00f6gusvi\u00f0i gerast s\u00ed\u00f0an bara \u00ed \u00f3tilteknu \u201e\u00feorpi \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um\u201c e\u00f0a \u201eb\u00e6 fyrir vestan\u201c \u2013 sem minnir oft \u00e1 einhvern tiltekinn sta\u00f0 og stundum tvo-\u00ferj\u00e1. Gr\u00f3flega tali\u00f0 er skipt um heiti \u00ed \u00feri\u00f0ja hverju sk\u00e1ldverki og mikilv\u00e6gustu \u00f6rnefni l\u00e1tin \u00f3nefnd \u00ed \u00f6\u00f0rum \u00feri\u00f0jungi \u2013&nbsp;\u00ed s\u00ed\u00f0asta \u00feri\u00f0jungi eru kaupsta\u00f0ir nefndir s\u00ednum r\u00e9ttu n\u00f6fnum.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r k\u00f6llum vi\u00f0 hann Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0. \u00de\u00e6r s\u00f6gur sem gerast \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i eru s\u00f6gur af samspili kyrr\u00f0ar og \u00f3gnar. Eina stundina er ekkert a\u00f0 gera og \u00fe\u00e1 n\u00e6stu aftakave\u00f0ur, \u00fea\u00f0 fellur snj\u00f3fl\u00f3\u00f0 og ferst skip.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er aftur ekkert a\u00f0 gera, eins langt og auga\u00f0 eygir.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feannig koll af kolli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur tilheyrir fort\u00ed\u00f0inni,&nbsp;ekki s\u00ed\u00f0ur \u00feegar sagan gerist \u00ed samt\u00edmanum. \u00dear sko\u00f0um vi\u00f0 hver vi\u00f0 vorum. F\u00f3lk sl\u00fa\u00f0rar um framhj\u00e1h\u00f6ld og sm\u00e1k\u00f3ngap\u00f3lit\u00edk, \u00feiggur upp\u00e1hellt kaffi fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urlegri konu sem gengur um me\u00f0 svuntu og skenkir \u00ed fanta. Kaffi\u00f0 keypti \u00fea\u00f0 \u00ed til \u00feess ger\u00f0u kaupf\u00e9lagi, \u00feanga\u00f0 sem \u00fea\u00f0 gekk \u00ed g\u00famm\u00edst\u00edgv\u00e9lum \u00ed lopapeysu og gamalli \u00falpu. \u00c1 lei\u00f0inni f\u00f3r \u00fea\u00f0 framhj\u00e1 frystih\u00fasi og svo st\u00f3ru einb\u00fdlish\u00fasi sem tilheyrir eldri manni sem \u00e1 b\u00f3kstaflega allt \u00ed b\u00e6num, l\u00edka f\u00f3lki\u00f0. N\u00e6st m\u00e6tti \u00fea\u00f0 manni sem var a\u00f0 verka h\u00e1karl og a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1tti \u00fea\u00f0 or\u00f0askipti vi\u00f0 l\u00edfslei\u00f0a unglingsst\u00falku sem afgreiddi \u00fea\u00f0 um kaffi\u00f0 (Braga). St\u00falkan er \u00f3l\u00e9tt og \u00fea\u00f0 er eitthva\u00f0 vesen me\u00f0 pabbann \u2013&nbsp;kannski \u00e1 hann k\u00e6rustu, kannski er hann giftur, kannski er hann farinn, kannski eru \u00feau skyld og kannski var barni\u00f0 ekki geti\u00f0 me\u00f0 sam\u00feykki. Anna\u00f0 foreldri st\u00falkunnar er me\u00f0virkt og hitt er fyllibytta. \u00deau eru b\u00e6\u00f0i b\u00e6ld. Allir vinna \u00ed slorinu e\u00f0a einhverri grunn\u00fej\u00f3nustu nema einn a\u00f0komuma\u00f0ur sem \u00e1 samt \u00e6ttir a\u00f0 rekja til b\u00e6jarins. Hann er kominn til a\u00f0 reyna a\u00f0 finna sig.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stundum er \u00feetta f\u00e1breytileg ver\u00f6ld sem \u00feolir illa e\u00f0lilegan fj\u00f6lbreytileika mannl\u00edfsins; og stundum fj\u00f6lskr\u00fa\u00f0ugt athvarf undan einsleitni borgarinnar. Kynsegin f\u00f3lk hrekst \u00e1 brott undan ford\u00f3mum \u00ed <em>Sterk<\/em> eftir Margr\u00e9ti Tryggvad\u00f3ttur \u00e1 me\u00f0an allir heimsins kynlegu kvistir vir\u00f0ast koma saman \u00ed <em>Stj\u00f3rnlausri lukku<\/em> Au\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur. F\u00f3lk h\u00fdsir \u00f3kunnuga strandagl\u00f3pa umyr\u00f0alaust \u00ed <em>G\u00f3\u00f0um \u00cdslendingum<\/em> Huldars Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0, ver\u00f6ldin er endalaust \u00e6vint\u00fdri \u00e1star og or\u00f0a \u2013&nbsp;einsog \u00ed <em>1983 <\/em>eftir Eir\u00edk Gu\u00f0mundsson \u2013 en a\u00f0 sama skapi er \u00feetta ver\u00f6ld \u00fear sem allir sem \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 teljast m\u00e1lsmetandi geta ekki \u00ferifist nema \u00ed huganum. Allir me\u00f0 v\u00e6ngi stefna burt. F\u00f3lki\u00f0 \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i er leiksoppar trag\u00edskra \u00f6rlaga sinna og undir slork\u00f3ngana sett \u2013&nbsp;fr\u00e1 <em>Grj\u00f3ti og gr\u00f3\u00f0ri<\/em> \u00d3skars A\u00f0alsteins a\u00f0 <em>Engu slori<\/em> R\u00fanars Helga a\u00f0 <em>Brimh\u00f3lum<\/em> Gu\u00f0na El\u00edssonar. \u00cd \u00feeim tveim fyrstnefndu missa verkakonur f\u00f3stur \u00ed kj\u00f6lfar mikillar vinnu \u2013&nbsp;\u00ed \u00feeirri s\u00ed\u00f0ustu hrekur kv\u00f3taslekti\u00f0 verkakonu til sj\u00e1lfsv\u00edgs. Bygg\u00f0in ver\u00f0ur l\u00edka eins konar metaf\u00f3ra fyrir kr\u00edsur einstaklingana sem me\u00f0 henni dvelja, einsog \u00ed <em>Dj\u00fapinu <\/em>eftir Benn\u00fdju Sif \u00cdsleifsd\u00f3ttur, <em>Stj\u00f3rnlausri lukku<\/em> Au\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur e\u00f0a <em>Eftirb\u00e1t<\/em> R\u00fanars Helga Vignissonar<em>. <\/em>Ve\u00f0ri\u00f0 er gjarnan \u00f3bl\u00edtt \u2013&nbsp;ef \u00fea\u00f0 er ekki beinl\u00ednis a\u00f0 murka \u00far f\u00f3lkinu l\u00edft\u00f3runa einsog \u00ed Vestfjar\u00f0a\u00fer\u00edleik J\u00f3ns Kalmans Stef\u00e1nssonar \u00fe\u00e1 m\u00e1 \u00ed \u00f6llu falli b\u00faast vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk ver\u00f0i ve\u00f0urteppt, einsog k\u00e6rasti a\u00f0als\u00f6guhetjunnar \u00ed <em>Vetrars\u00f3l<\/em> Au\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur, \u00fea\u00f0 ver\u00f0i innlyksa \u00ed \u00f3bygg\u00f0um einsog \u00ed <em>\u00c9g man \u00feig<\/em> eftir Yrsu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur, \u00fea\u00f0 berjist yfir \u00f3moka\u00f0ar hei\u00f0ar \u00e1 Chevrolet Chevelle einsog H\u00f6r\u00f0ur Stef\u00e1ns M\u00e1na \u00ed <em>Feig\u00f0 \u2013 <\/em>sem hefur b\u00e6\u00f0i lifa\u00f0 af sj\u00e1varh\u00e1ska og snj\u00f3fl\u00f3\u00f0 \u2013 e\u00f0a \u00fea\u00f0 sitji fast \u00ed brekku \u00ed vetrarh\u00e1lku \u00e1 \u00f3negldum Volvo Lapplander einsog Huldar Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 \u00ed s\u00ednum <em>G\u00f3\u00f0u \u00cdslendingum. <\/em>Fyrsta n\u00fat\u00edmalega sk\u00e1ldverki\u00f0 sem fjallar um sv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u2013&nbsp;sem reyndar gerist a\u00f0 mestu n\u00e6r Lokinh\u00f6mrum, heimkynnum sk\u00e1ldsins Gu\u00f0mundar G. Hagal\u00edn \u2013&nbsp;er fr\u00e1 \u00e1rinu 1925 og heitir einmitt <em>Ve\u00f0ur \u00f6ll v\u00e1lynd. <\/em>Og \u00e1 100 \u00e1rum hefur ve\u00f0ri\u00f0 ekkert sk\u00e1na\u00f0. Hvorki \u00ed fj\u00f6r\u00f0unum, s\u00e1lunum e\u00f0a b\u00f3kunum. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0spur\u00f0 hvers vegna \u00feau skipti \u00fat \u00f6rnefnum svara sk\u00e1ldin gjarnan eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e6ki s\u00e9r innbl\u00e1stur \u00ed \u00feorp og b\u00e6i, fj\u00f6ll, f\u00f3lk og fj\u00f6rur, vilji \u00feau l\u00edka vera frj\u00e1ls undan a\u00f0finnslum heimamanna e\u00f0a annarra sem kunnugir eru sta\u00f0h\u00e1ttum \u2013 svo a\u00f0 lesendur festist ekki \u00ed samanbur\u00f0i raunveruleika og sk\u00e1ldskapar, sem geri varla anna\u00f0 en a\u00f0 trufla s\u00f6guna. \u00de\u00e1 er alkunna a\u00f0 sk\u00e1ldskapurinn kviknar helst \u00e1 einhverjum undarlegum sta\u00f0 mitt \u00e1 milli hins sanna og hins logna \u2013 er alltaf hvorugt og b\u00e6\u00f0i \u00ed senn \u2013 og \u00fear geta \u00feorp sem eru <em>til<\/em> en \u00e1 sama t\u00edma <em>ekki-til<\/em> komi\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0ar \u00fearfir.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&nbsp;\u00cd vi\u00f0tali \u00ed DV \u00e1ri\u00f0 1999 segir J\u00f3n Kalman Stef\u00e1nsson (um s\u00f6guheim sinn \u00ed D\u00f6lunum): \u201e[Hann] \u00e1 s\u00e9r au\u00f0vita\u00f0 \u00e1kve\u00f0na fyrirmynd og kallast \u00e1 vi\u00f0 \u00fdmislegt \u00ed fort\u00ed\u00f0 minni en \u00fev\u00ed er sem betur fer oft \u00feannig fari\u00f0 a\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur horfir til fort\u00ed\u00f0ar getur veri\u00f0 erfitt a\u00f0 greina \u00e1 milli raunverulegra atbur\u00f0a og \u00edmynda\u00f0ra. \u00c6tli \u00f3vissan \u00fearna \u00e1 milli s\u00e9 ekki oft uppspretta sk\u00e1ldskapar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1lda\u00f0ir kaupsta\u00f0ir eru (auglj\u00f3slega) ekki s\u00e9r\u00edslenskt fyrirb\u00e6ri og \u00fea\u00f0 er heldur engin regla a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u sm\u00e1b\u00e6ir. Gotham, Springfield, Hogsmeade, Castle Rock, Andab\u00e6r, Cabot Cove og Middlemarch \u2013 listinn er endalaus og stundum tilheyra \u00feeir sk\u00e1ldu\u00f0um l\u00f6ndum \u00ed sk\u00e1ldu\u00f0um heims\u00e1lfum \u00e1 sk\u00e1ldu\u00f0um pl\u00e1netum \u00ed sk\u00e1ldu\u00f0um s\u00f3lkerfum.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Wikipediu er eftirt\u00f6ldu haldi\u00f0 fram um tilgang sk\u00e1lda\u00f0ra borga:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote has-small-font-size is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1lda\u00f0ar borgir l\u00edkja oft af \u00e1settu r\u00e1\u00f0i eftir raunverulegum st\u00f6\u00f0um, skopst\u00e6la \u00fe\u00e1 e\u00f0a standa sem t\u00e1kn fyrir \u00fe\u00e1, e\u00f0a s\u00fdna af \u00feeim \u00fat\u00f3p\u00edska e\u00f0a dyst\u00f3p\u00edska mynd sem innlegg \u00ed samr\u00e6\u00f0u. N\u00f6fn \u00feessara borga s\u00fdna stundum sk\u00fdrt hva\u00f0a borg er h\u00f6f\u00f0 a\u00f0 fyrirmynd, til d\u00e6mis er Las Venturas, \u00far t\u00f6lvuleiknum Grand Theft Auto, bygg\u00f0 \u00e1 Las Vegas, og \u00ed leiknum m\u00e1 sj\u00e1 m\u00f6rg \u00feekkt kennileiti borgarinnar, \u00fear me\u00f0 talin spilav\u00edti. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota sk\u00e1lda\u00f0a kaupsta\u00f0i \u00ed sta\u00f0 raunverulegra auka h\u00f6fundar umtalsvert frelsi\u00f0 sem \u00feeir hafa til \u00feess a\u00f0 beita sk\u00f6punarg\u00e1fu sinni \u00e1 s\u00f6gupers\u00f3nur, atbur\u00f0i og umhverfi \u00e1 me\u00f0an \u00feeir nj\u00f3ta \u00feess \u00e1 sama t\u00edma a\u00f0 geta fari\u00f0 me\u00f0 lesendur \u00e1 kunnuglega sta\u00f0i sem \u00feeir bera kennsl \u00e1. Sk\u00e1ldu\u00f0 borg frelsar h\u00f6fundinn undan klyfjum raunverulegrar mannkynss\u00f6gu, stj\u00f3rnm\u00e1la og menningar, og gefur s\u00f6gu\u00fer\u00e6\u00f0inum meira svigr\u00fam, auk \u00feess sem h\u00fan kemur \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00ed textanum felist \u00f3fr\u00e6ging \u00e1 raunverulegu f\u00f3lki e\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsh\u00f3pum.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fe\u00e1 spyr ma\u00f0ur sig hvort s\u00f6gurnar sem sag\u00f0ar eru um sl\u00edka fyrirmyndarsta\u00f0i s\u00e9u ekki bundnar s\u00f6mu l\u00f6gm\u00e1lum og annar sk\u00e1ldskapur \u2013&nbsp;eru \u00fe\u00e6r ekki rauns\u00e6isb\u00f3kmenntir, jafnvel \u00feegar \u00fe\u00e6r eru \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti? Er \u201e\u00feorpi\u00f0\u201c bara myndl\u00edking fyrir st\u00e6rra samf\u00e9lag og \u00fear me\u00f0 ekki lengur markt\u00e6kt sem l\u00fdsing \u00e1 sj\u00e1lfu s\u00e9r \u2013&nbsp;ekki lengur \u00feorp sem \u00fearf a\u00f0 vera \u00feorpi l\u00edkt? Hvers e\u00f0lis eru \u00fe\u00e6r myndir sem m\u00e1la\u00f0ar eru upp af \u00edb\u00faum og a\u00f0st\u00e6\u00f0um? Hva\u00f0a m\u00e1li skipta \u201emist\u00f6k\u201c og \u201erangf\u00e6rslur\u201c \u00feegar \u00feorpi\u00f0 er ekki lengur \u00fea\u00f0 sj\u00e1lft? Er hugsanlegt a\u00f0 n\u00fdju n\u00f6fnin og nafnleysi\u00f0 s\u00e9u \u2013 e\u00f0a geti veri\u00f0 \u2013&nbsp;fjarvistars\u00f6nnun fyrir fullyr\u00f0ingum um \u00edb\u00faa sem enginn k\u00e6rir sig um a\u00f0 standa skil \u00e1? Ber h\u00f6fundinum a\u00f0 g\u00e6ta s\u00edn a\u00f0 nota ekki sk\u00e1ldskapinn til \u00feess a\u00f0 einfalda, reka \u00e1r\u00f3\u00f0ur, ex\u00f3t\u00edsera e\u00f0a m\u00e1la upp ford\u00f3ma s\u00edna sem heilagan sannleik \u2013 e\u00f0a er sk\u00e1lda\u00f0a borgin einmitt verkf\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 varpa sl\u00edkum alh\u00e6fingum fram svo \u00fe\u00e6r megi grannsko\u00f0a, \u00edskalt og \u00e1n tilfinningasemi? Verkf\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 segja \u00f3\u00fe\u00e6gilega hluti upph\u00e1tt \u2013&nbsp;me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 rista upp pakkninguna, henda henni og sn\u00faa s\u00e9r beint a\u00f0 innihaldinu? Er yfir h\u00f6fu\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 segja \u00e6vint\u00fdri e\u00f0a ep\u00edska s\u00f6gu \u2013 e\u00f0a nokkra s\u00f6gu \u2013 \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fdkja hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a og hi\u00f0 vonda?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski er l\u00edka \u00e1st\u00e6\u00f0a til \u00feess a\u00f0 spyrja sig hvort h\u00f6fundar vilji me\u00f0 \u00feessu \u00ed senn <em>\u00e9ta k\u00f6kuna og eiga hana til g\u00f3\u00f0a<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En ef okkur er \u00fe\u00e1 a\u00f0 einhverju marki lj\u00f3s tilgangurinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota raunverulegan sta\u00f0 sem fyrirmynd a\u00f0 \u00edmyndu\u00f0um sta\u00f0 \u2013&nbsp;hi\u00f0 r\u00f3tfasta frelsi, hi\u00f0 stab\u00edla flug, kraftur \u00feversagnarinnar \u2013&nbsp;hver er \u00fe\u00e1 tilgangurinn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 <em>fela<\/em> \u00f6rnefnin? Hann skarast auglj\u00f3slega a\u00f0 einhverju leyti vi\u00f0 tilganginn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faa til n\u00fdtt nafn en hefur \u00e1 s\u00e9r annan bl\u00e6.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar <em>s\u00f6gupers\u00f3nur<\/em> eru annars vegar er nafnleysi til marks um einhvers konar sj\u00e1lfsmyndarkr\u00edsu vi\u00f0komandi karakters og \u00feykir skapa dyst\u00f3p\u00edska og\/e\u00f0a lj\u00f3\u00f0r\u00e6na stemningu. \u00de\u00e1 ber a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00f3tt nafnlausa s\u00f6gupers\u00f3nan s\u00e9 e\u00f0li m\u00e1lsins samkv\u00e6mt \u201edularfull\u201c \u00feegar h\u00fan er \u00ed f\u00f3kus \u2013&nbsp;\u00feegar h\u00fan er a\u00f0alatri\u00f0i \u2013&nbsp;\u00fe\u00e1 hefur h\u00fan fyrst og fremst <em>prakt\u00edskan<\/em> tilgang \u00feegar h\u00fan er aukaatri\u00f0i. S\u00e1 sem kemur me\u00f0 p\u00f3stinn getur vel bara heiti\u00f0 \u201ep\u00f3sturinn\u201c, s\u00e1 sem setur f\u00f3lk \u00ed gips \u201el\u00e6knirinn\u201c og svo framvegis, en nafnleysi \u00feess sem fer\u00f0ast um \u00ed kastlj\u00f3si s\u00f6gunnar er merkingarb\u00e6rara. \u00dea\u00f0 a\u00f0 h\u00e1n heiti ekkert getur veri\u00f0 til marks um a\u00f0 h\u00e1n vilji dyljast, a\u00f0 h\u00e1n viti ekki hver h\u00e1n er e\u00f0a vilji vera, a\u00f0 h\u00e1n lifi \u00ed heimi sem ber ekki kennsl \u00e1 h\u00e1n e\u00f0a s\u00e9 svo mikill sveimhugi \u2013 einsog b\u00f6rn oft eru \u2013&nbsp;a\u00f0 h\u00e1n gleymi einfaldlega a\u00f0 kynna sig.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sta\u00f0ir \u00ed b\u00f3kmenntum eru oftast n\u00e6r b\u00e6\u00f0i \u00ed og \u00far f\u00f3kus \u2013&nbsp;\u00feeir umlykja s\u00f6gupers\u00f3nur s\u00ednar \u00f6llum stundum en eru ekki endilega gerendur e\u00f0a s\u00f6guhetjur (\u00fe\u00f3tt \u00feeir geti veri\u00f0 \u00fea\u00f0). \u00deannig eru nafnlausir sta\u00f0ir b\u00e6\u00f0i hlutlausir og merkingar\u00ferungnir, og ekki s\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00f3tt fyrirmyndin (e\u00f0a fyrirmyndirnar) s\u00e9 auglj\u00f3s. \u00cd \u00feeim tilvikum fylgir sta\u00f0num l\u00edka \u00e1kve\u00f0in saga \u2013&nbsp;hann ver\u00f0ur <em>sta\u00f0-gengill<\/em> fyrir annan sta\u00f0, hvers saga ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 almenn og \u00ed einhverjum skilningi sameiginleg \u00f6\u00f0rum \u00e1l\u00edka st\u00f6\u00f0um. \u00cd \u00edslenskum b\u00f3kmenntum er \u00feetta fyrst og fremst \u201esj\u00e1var\u00feorpi\u00f0\u201c \u2013&nbsp;enda f\u00e1um \u00f6\u00f0rum b\u00e6jartegundum til a\u00f0 dreifa, b\u00e6ir af \u00f6\u00f0ru tagi verandi of f\u00e1ir til a\u00f0 mynda mengi.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og kannski er nafnlausi sm\u00e1b\u00e6rinn einmitt gjarnan allt \u00ed senn:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Dyst\u00f3p\u00edskur<\/strong>&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur \u00fer\u00f3un systurb\u00e6ja hans \u00ed raunveruleikanum er Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur yfirleitt&nbsp;\u00e1 hverfandi hveli \u2013 ef ekki hreinlega feigur. Fyrirt\u00e6kin fara \u00e1 hausinn og \u00f6nnur koma ekki \u00ed sta\u00f0inn. F\u00f3lki\u00f0 flytur burt en enginn kemur \u00ed sta\u00f0inn. Stundum \u00feurrkast hann einfaldlega \u00fat \u00ed n\u00e1tt\u00faruhamf\u00f6rum og \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 aldrei sagt berum or\u00f0um veit lesandinn a\u00f0 \u00feessi b\u00e6r ver\u00f0ur aldrei endurreistur. Ef a\u00f0als\u00f6guhetjan sker&nbsp;\u00e1&nbsp; tengslin vi\u00f0 b\u00e6inn (og \u00fear me\u00f0 \u00fer\u00fagandi fort\u00ed\u00f0 s\u00edna), sem h\u00fan gerir gjarnan, losnar h\u00fan \u00fear me\u00f0 undan \u00feeim \u00f6rl\u00f6gum a\u00f0 hverfa me\u00f0 honum. H\u00fan eignast framt\u00ed\u00f0. <em>The end<\/em>.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Dularfullur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Fyrirmyndarfir\u00f0i eru fr\u00e9ttir sag\u00f0ar me\u00f0 hv\u00edskri yfir kaffibollum \u00fev\u00ed Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur brimar af leyndarm\u00e1lum. Undan gluggatj\u00f6ldunum g\u00e6gjast forvitnar kellingar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lj\u00f3\u00f0r\u00e6nn&nbsp;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur er umlukinn st\u00f3rbrotinni n\u00e1tt\u00faru og n\u00e1tt\u00faru\u00f6flum. \u00deeir sem eru ekki \u00f3m\u00e1lga af lei\u00f0indum eru talandi sk\u00e1ld.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00derunginn s\u00f6gu&nbsp;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd m\u00edkr\u00f3kosmos Fyrirmyndarfjar\u00f0ar speglum vi\u00f0 \u00f6fl, uppbyggingu og kr\u00edsur kap\u00edtal\u00edskra afla og st\u00e9ttabar\u00e1ttu \u2013&nbsp;kv\u00f3takerfi\u00f0 er undir, \u00fatger\u00f0in er undir, atgervisfl\u00f3tti 20. aldarinnar er undir, sj\u00e1lfsmyndarkr\u00edsur \u00fej\u00f3\u00f0arinnar eru undir.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Og prakt\u00edskur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur er passlega st\u00f3r og passlega fj\u00f6lbreyttur. Vi\u00f0 eina og s\u00f6mu g\u00f6tuna getur\u00f0u fundi\u00f0 st\u00f3rgr\u00f3sserinn og b\u00e6jarr\u00f3nann, erlenda verkamenn og \u00fatlenska draum\u00f3ramenn, kjarnafj\u00f6lskyldur og b\u00f3hem. \u00dea\u00f0 er stutt \u00e1 p\u00f3sth\u00fasi\u00f0, stutt \u00e1 b\u00e6jarskrifstofuna, stutt upp \u00e1 fjall og \u00fat \u00ed sj\u00f3. \u201eSm\u00e1b\u00e6rinn er vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegur s\u00f6guheimur\u201c, sag\u00f0i Sindri Freysson einu sinni \u00ed vi\u00f0tali (um <em>Augun \u00ed b\u00e6num<\/em>). \u201eOg \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 gera \u00e1kve\u00f0na st\u00fad\u00edu \u00e1 honum sem hefur miklu v\u00ed\u00f0ari sk\u00edrskotun \u00fat \u00ed st\u00e6rra \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00der\u00e1tt fyrir allar \u00feessar klisjur og endurtekningar er \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 \u00feau sk\u00e1ldverk sem gerast \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i (og n\u00e1grenni) eru a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti b\u00fdsna fj\u00f6lbreytt a\u00f0 efni og formi. Fr\u00e1 drengjas\u00f6gum B\u00f6\u00f0vars fr\u00e1 Hn\u00edfsdal a\u00f0 togaras\u00f6gum Eyvindar P. Eir\u00edkssonar og Njar\u00f0ar P. Njar\u00f0v\u00edk, fr\u00e1 krimmum \u00c1rna \u00de\u00f3rarinssonar, Yrsu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur og Stef\u00e1ns M\u00e1na a\u00f0 k\u00f3m\u00edskum sm\u00e1s\u00f6gum Arnr\u00fanar fr\u00e1 Felli, fr\u00e1 femin\u00edskum fr\u00e1sagnarb\u00f3kmenntum Benn\u00fdjar Sifjar \u00cdsleifsd\u00f3ttur a\u00f0 alleg\u00f3r\u00edum Gu\u00f0na El\u00edssonar og Reynis Traustasonar, fr\u00e1 trans \u00feroskas\u00f6gu Margr\u00e9tar Tryggvad\u00f3ttur a\u00f0 s\u00f3s\u00edalrealisma \u00d3skars A\u00f0alsteins, l\u00edkt og fr\u00e1 kvensk\u00f6rungamyndum Gu\u00f0mundar G. Hagal\u00edn a\u00f0 p\u00f3stm\u00f3dern\u00edskri auto-fiksj\u00f3n Huldars Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 er hva\u00f0 sem \u00f6\u00f0ru l\u00ed\u00f0ur langur vegur. \u00de\u00e1 er \u00fev\u00ed heldur alls ekki svo fari\u00f0 a\u00f0 \u201eutanb\u00e6jarmenn\u201c skrifi \u00e1 einn veg um sv\u00e6\u00f0i\u00f0 og \u201eheimamenn\u201c \u00e1 annan \u2013 \u00fe\u00f3tt kannski s\u00e9u kunnuglegu sm\u00e1atri\u00f0in fleiri hj\u00e1 \u00feeim sem \u00feekkja betur til.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>* * *<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur er ranns\u00f3knastofa fyrir drauma landsmanna, \u00f3uppfyllta og\/e\u00f0a uppleysta. \u00cd honum eru s\u00e6r\u00f0ar fram lj\u00fafs\u00e1rar fort\u00ed\u00f0ir sem vir\u00f0ast til g\u00f3\u00f0s og ills hafa veri\u00f0 einfaldari og kraftmeiri en samt\u00edminn, einfaldari og kraftmeiri en nafnlaust fj\u00f6lmenni\u00f0, einfaldari og kraftmeiri en umfer\u00f0arteppur \u00e1 slabbs\u00f3sa hra\u00f0brautum \u00e1 lei\u00f0inni fr\u00e1 einu neyslumusteri til \u00feess n\u00e6sta, en l\u00edka grimmari og \u00fer\u00f6ngs\u00fdnni, forneskjulegri og veiklunda\u00f0ri. Fyrirmyndarfir\u00f0ingurinn gegnir hlutverki \u201ehins\u201c \u2013 l\u00edka fyrir okkur sem h\u00f6ldum stundum a\u00f0 vi\u00f0 b\u00faum \u00fear, a\u00f0 vi\u00f0 \u201es\u00e9um hann\u201c, en \u00fea\u00f0 er ekki \u00feannig \u2013&nbsp;<em>enginn er hann<\/em>. Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur undirstrikar bara \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 erum ekki. Hann er \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 <em>vorum<\/em> til \u00feess a\u00f0 getum <em>veri\u00f0<\/em> \u2013 hann er lj\u00f3tur \u00feegar vi\u00f0 viljum segjast or\u00f0in falleg, og fallegur \u00feegar vi\u00f0 viljum segjast or\u00f0in lj\u00f3t. Ef l\u00edf okkar eru \u00f3spennandi eru l\u00edfin \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i \u00e6sileg; ef l\u00edf okkar eru yfir\u00feyrmandi eru l\u00edfin \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i huggandi. B\u00e6ldu karlarnir og \u00f3fulln\u00e6g\u00f0u konurnar eru dormandi eldfj\u00f6llin sem vi\u00f0 vonum a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um, kjaftforar slord\u00edsirnar og upprennandi athafnask\u00e1ldin eru kraumandi eldfj\u00f6llin sem okkur dreymir um a\u00f0 ver\u00f0a, kv\u00f3tak\u00f3ngarnir frekjuleg sprengigosin sem vi\u00f0 viljum geta kve\u00f0i\u00f0 ni\u00f0ur. Hvort sem \u00fea\u00f0 tekst e\u00f0a ekki ver\u00f0ur l\u00edfi\u00f0 \u00ed Fyrirmyndarfir\u00f0i aldrei lei\u00f0inlegt \u2013&nbsp;nema inn \u00e1 milli og \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 h\u00e1skalega dreplei\u00f0inlegt. Og hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur ver\u00f0ur alltaf slegist \u00e1 n\u00e6sta balli, vi\u00f0 vitum \u00feetta, \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ri\u00f0i\u00f0 \u00e1 bak vi\u00f0 h\u00fas, kannski til skiptis en sennilega b\u00e6\u00f0i \u00ed einu. Og s\u00ed\u00f0an gerir aftakave\u00f0ur. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur ekki n\u00e6s en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur allavega eitthva\u00f0.&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd fyrsta skipti sem \u00e9g kom til \u00cdsafjar\u00f0ar, steig \u00fat \u00far flugv\u00e9linni og horf\u00f0i \u00ed kringum mig, l\u00f6mdu fj\u00f6llin mig \u00ed hausinn og spur\u00f0u: Hvar \u00ed helv\u00edtinu hefur\u00f0u eiginlega veri\u00f0? \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig strax \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i einhvern t\u00edmann a\u00f0 skrifa um \u00feennan sta\u00f0&nbsp; \u2013&nbsp;J\u00f3n Kalman Stef\u00e1nsson, Fr\u00e9ttabla\u00f0inu, 15. desember, 2007.&nbsp; * * &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6295\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Fyrirmyndarfj\u00f6r\u00f0ur<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6295","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6295","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6295"}],"version-history":[{"count":3,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6295\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6299,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6295\/revisions\/6299"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6295"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6295"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6295"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}