{"id":6358,"date":"2026-03-14T22:14:53","date_gmt":"2026-03-14T22:14:53","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6358"},"modified":"2026-03-14T22:37:41","modified_gmt":"2026-03-14T22:37:41","slug":"hvad-i-oskopunum-er-fronsk-kvikmyndagerd","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6358","title":{"rendered":"Hva\u00f0 \u00ed \u00f3sk\u00f6punum er fr\u00f6nsk kvikmyndager\u00f0?"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"760\" height=\"412\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/arton1630.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6359\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/arton1630.jpg 760w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/arton1630-300x163.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 760px) 100vw, 760px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 sem m\u00e9r \u00feykir einna merkilegast vi\u00f0 franska menningu \u2013 sem \u00e9g \u00feekki vel a\u00f0 merkja betur \u00ed gegnum b\u00f3kmenntir en b\u00ed\u00f3myndir \u2013\u00a0er s\u00fa gegnumgangandi \u00f3sk um a\u00f0 listin s\u00e9 tekin alvarlega. A\u00f0 \u00fe\u00f3tt listin geti b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 f\u00f6gur og skemmtileg \u00fe\u00e1 liggi vir\u00f0i hennar \u00ed einhverju \u00f6\u00f0ru en a\u00f0 vera skraut e\u00f0a skemmtun. \u00deessu fylgir reyndar l\u00edka \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00feol e\u00f0a \u00feolinm\u00e6\u00f0i \u2013 fyrir skrauti, skemmtun og f\u00edflal\u00e1tum, en l\u00edka lj\u00f3tleika, g\u00e1fumennsku, jafnvel lei\u00f0indum \u2013\u00a0sem \u00e9g b\u00fd ekki alltaf yfir sj\u00e1lfur.\u00a0\u00dea\u00f0 sem sl\u00e6r mig sem uppskr\u00fafu\u00f0 v\u00e6mni e\u00f0a tilger\u00f0 getur fr\u00f6nskum vini m\u00ednum \u00fe\u00f3tt d\u00e6mi um hamslausa \u00e6gifegur\u00f0.\u00a0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En fr\u00f6nsk kvikmyndager\u00f0 er varla f\u00f3lgin \u00ed \u00feessu einu \u2013&nbsp;a\u00f0 taka listina alvarlega? Er h\u00fan ekki l\u00edka spurning um einhvern t\u00f3n, einhver litbrig\u00f0i, einhverja s\u00e9rstaka fagurfr\u00e6\u00f0i? \u00c9g hef mj\u00f6g tiltekna hugmynd um hva\u00f0 einkenni franska kvikmyndager\u00f0, \u00fe\u00f3tt s\u00fa hugmynd s\u00e9 alveg \u00e1rei\u00f0anlega bygg\u00f0 \u00e1 \u00e1kve\u00f0num klisjum og m\u00e9r finnist ekki endilega au\u00f0velt a\u00f0 koma henni \u00ed or\u00f0 \u2013&nbsp;\u00ed \u00f6llu falli finnst m\u00e9r eiginlega allt sem \u00e9g tel mig geta fullyrt um hana l\u00edka orka tv\u00edm\u00e6lis. \u00de\u00e1 skiptir m\u00e1li a\u00f0 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugum hefur kvikmyndager\u00f0 \u2013 einsog a\u00f0rar listgreinar \u2013&nbsp;or\u00f0i\u00f0 s\u00edfellt al\u00fej\u00f3\u00f0legri b\u00e6\u00f0i \u00ed framlei\u00f0slu og fagurfr\u00e6\u00f0i, svo \u00e6tli ma\u00f0ur a\u00f0 finna einhver tiltekin einkenni \u00fe\u00e1 getur legi\u00f0 dj\u00fapt \u00e1 \u00feeim, nema ma\u00f0ur leiti aftur \u00ed t\u00edmann. Hugmyndir m\u00ednar um franska kvikmyndager\u00f0 eru \u00e1rei\u00f0anlega m\u00f3ta\u00f0ar fyrst og fremst af s\u00ed\u00f0ustu fj\u00f3rum \u00e1ratugum s\u00ed\u00f0ustu aldar \u2013 fr\u00e1 1960 fram undir aldam\u00f3t.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En kannski er besta lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 byrja a\u00f0 svara spurningu af \u00feessu tagi a\u00f0 sn\u00faa henni fyrst \u00e1 haus og spyrja: <em>hva\u00f0 er fr\u00f6nsk kvikmyndager\u00f0 ekki<\/em>? Vegna r\u00e1\u00f0andi st\u00f6\u00f0u amer\u00edskrar kvikmyndager\u00f0ar \u00ed vitund okkar&nbsp;\u00fe\u00e1 er ekki endilega vitlaus vinnukenning a\u00f0 byrja bara \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 fr\u00f6nsk kvikmynd s\u00e9 kvikmynd sem leyfi s\u00e9r a\u00f0 segja s\u00f6gu eftir \u00f6\u00f0rum reglum en \u00feeim sem eru skrifa\u00f0ar \u00e1 stj\u00f3rnarfundum Warner Bros, Walt Disney og Netflix. Og af \u00fev\u00ed lei\u00f0ir l\u00edka, sem g\u00e6ti veri\u00f0 umdeilt, a\u00f0 franskar kvikmyndir sem fylgja \u00feessum reglum \u2013&nbsp;m\u00e9r dettur \u00ed hug a\u00f0 nefna <em>Sous la Seine \u2013<\/em> <em>Undir Signu,<\/em> kvikmynd sem sver sig \u00ed \u00e6tt vi\u00f0 <em>Jaws<\/em> og fjallar um h\u00e1karl sem sleppur laus \u00ed Signu \u2013&nbsp;s\u00e9u alls ekki franskar kvikmyndir heldur amer\u00edskar kvikmyndir \u00e1 fr\u00f6nsku.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6sta \u00ferep \u00ed vi\u00f0leitni okkar til \u00feess a\u00f0 svara \u00feessari \u00f3m\u00f6gulegu spurningu g\u00e6ti \u00fe\u00e1 veri\u00f0 a\u00f0 leyfa s\u00e9r einfaldlega a\u00f0 hafa or\u00f0 \u00e1 klisjunum. Og segja, nei, fullyr\u00f0a, \u00fat \u00ed lofti\u00f0 af \u00f6llum s\u00ednum inns\u00e6isdrifna alh\u00e6fingam\u00e6tti:&nbsp;<em>Franskar kvikmyndir eru h\u00e6gar og sundurlausar, kynhv\u00f6tin dr\u00fdpur af \u00f6llu, allt er d\u00e1l\u00edti\u00f0 sk\u00edtugt og d\u00e1l\u00edti\u00f0 kaot\u00edskt og pers\u00f3nurnar \u00ed \u00feeim hafa st\u00f3rar tilfinningar og tala anna\u00f0 hvort miki\u00f0 og hratt e\u00f0a \u00feegja lengi og af miklum merkingar\u00feunga.&nbsp;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir sumu af \u00feessu m\u00e1 sannarlega f\u00e6ra \u00e1g\u00e6tis r\u00f6k. S\u00f6gupers\u00f3nur \u00ed fr\u00f6nskum kvikmyndum tala yfirleitt ekki fyrst og fremst \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 hj\u00e1lpa plottinu a\u00f0 \u00fer\u00f3ast e\u00f0a koma uppl\u00fdsingum \u00e1 framf\u00e6ri \u2013&nbsp;einsog \u00fe\u00e6r gera \u00ed amer\u00edskum kvikmyndum&nbsp;\u2013&nbsp;heldur til \u00feess a\u00f0 veita okkur einhverja inns\u00fdn \u00ed pers\u00f3nuleika sinn og a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, jafnvel a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 \u00fea\u00f0 vinni gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00fdsa plottinu. Og \u00fear komum vi\u00f0 einmitt a\u00f0 fyrsta s\u00fdnid\u00e6minu. \u00cd kvikmynd Jean-Lucs Godard, <em>\u00c0 bout de souffle<\/em>, leikur Jean-Paul Belmondo mann a\u00f0 nafni Michel. \u00cd byrjun myndarinnar drepur Michel mann, \u00ed h\u00e1lfger\u00f0u framhj\u00e1hlaupi, og bla\u00f0rar s\u00ed\u00f0an vi\u00f0st\u00f6\u00f0ul\u00edti\u00f0 um sj\u00e1lfan sig og s\u00edn mj\u00f6g svo yfirbor\u00f0skenndu hug\u00f0arefni myndina \u00e1 enda, me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum a\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur er af og til minntur \u00e1 a\u00f0 hann drap mann og er \u00e1 fl\u00f3tta kemur \u00fea\u00f0 manni eiginlega alltaf jafn miki\u00f0 \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Belmondo criticize Swedish women in \u00c0 bout de souffle (1959)\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/nBr5-0EYkKA?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6guhetjur franskra kvikmynda eru i\u00f0ulega f\u00f3lk einsog Michel, f\u00f3lk sem er a\u00f0 reyna a\u00f0 lifa af sj\u00e1lft sig \u2013 \u00fe\u00e6r eru n\u00e6r aldrei me\u00f0 \u00f6rl\u00f6gin \u00ed eigin h\u00f6ndum \u2013&nbsp;ekki hetjur, hvorki af \u00e6tt Rockys n\u00e9 Erinar Brockovich \u2013 ekki f\u00f3lk sem sigrast \u00e1 \u00f6rl\u00f6gum s\u00ednum heldur f\u00f3lk sem ver\u00f0ur a\u00f0 lifa vi\u00f0 \u00feau, f\u00f3lk hvers brestir eru s\u00f6gunni jafn mikilv\u00e6gir og kostir \u00feeirra, og f\u00f3lk hverra s\u00f6gulok eru oftar en ekki \u00f3fyrirsj\u00e1anleg \u2013&nbsp;kannski breytist allt \u00ed l\u00edfi \u00feess, kannski ekkert, kannski deyr \u00fea\u00f0 upp \u00far \u00feurru, jafnvel \u00ed mi\u00f0ri mynd, og kannski gengur \u00fea\u00f0 bara ni\u00f0ur g\u00f6tuna og hverfur, \u00e1n \u00feess a\u00f0 leyst hafi veri\u00f0 \u00far neinu. Ef ma\u00f0ur vill a\u00f0 s\u00f6gur f\u00e1i alltaf sk\u00fdran endi er sem sagt betra a\u00f0 horfa bara \u00e1 amer\u00edskar kvikmyndir \u2013&nbsp;\u00e1 fr\u00f6nsku, ef ma\u00f0ur vill, e\u00f0a d\u00f6nsku e\u00f0a \u00edslensku e\u00f0a einhverju \u00f6\u00f0ru m\u00e1li, \u00fe\u00e6r eru, einsog \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i, \u00fat um allt n\u00faor\u00f0i\u00f0.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En vi\u00f0 \u00feetta, a\u00f0 leyfa s\u00e9r a\u00f0 sinna \u00f6\u00f0ru en plottinu myndast l\u00edka r\u00fdmi fyrir senur sem geta or\u00f0i\u00f0 einsog l\u00edtil myndlistarverk \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r \u2013 \u00fea\u00f0 m\u00e1 t.d. benda \u00e1 senuna sem vi\u00f0 vorum a\u00f0 horfa \u00e1, sem gerist \u00f6ll \u00ed \u00feessu svefnherbergi og tekur b\u00f3kstaflega yfir \u00feri\u00f0jung myndarinnar. Og myndin fjallar einsog \u00e9g sag\u00f0i, um mann sem er \u00e1 fl\u00f3tta undan l\u00f6gunum \u2013 en ey\u00f0ir t\u00e6pum h\u00e1lft\u00edma uppi \u00ed r\u00fami me\u00f0 k\u00e6rustunni sinni ber a\u00f0 ofan a\u00f0 bera saman s\u00e6nskar og franskar stelpur.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En mig langar a\u00f0 taka l\u00edka d\u00e6mi \u00far annarri fr\u00e6gri Godard kvikmynd \u2013&nbsp;<em>Bande \u00e0 part<\/em> \u2013 mynd sem er \u00ed grunninn h\u00e1lfger\u00f0ur gl\u00e6pahasar en er ri\u00f0in saman af senum sem gera n\u00e6stum allar eitthva\u00f0 allt anna\u00f0 en a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00feessu margnefnda plotti. \u00deessari senu l\u00fdsti einn vinur minn, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed Godard, svo a\u00f0 h\u00e9r hef\u00f0i Godard hreinlega fundi\u00f0 upp \u00e6skuna.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Bande a part - the Louvre scene\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/J9i771qYngY?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0als\u00f6guhetjurnar \u00ferj\u00e1r eru sem sagt a\u00f0 fara a\u00f0 fremja r\u00e1n en \u00fea\u00f0 getur ekki fari\u00f0 fram fyrren um kv\u00f6ldi\u00f0. \u00deau \u00feurfa a\u00f0 drepa t\u00edmann og \u00e1kve\u00f0a a\u00f0 b\u00e6ta met bandar\u00edkjamannsins Jimmy Johnson og hlaupa hra\u00f0ar en hann \u00ed gegnum Louvre. \u00cd \u00feessu kristallast eitthva\u00f0 sem einkennir \u00e6skuna \u2013&nbsp;\u00fer\u00f3tturinn \u00ed \u00feessu hoppi og h\u00edi er eitt, \u00fea\u00f0 hvernig \u00feau skauta s\u00e9r eftir g\u00f3lfinu, h\u00f6nd \u00ed h\u00f6nd og brosandi \u00fat a\u00f0 eyrum, hvernig \u00feau eru ekki 15 \u00e1ra heldur sennilega a\u00f0 n\u00e1lgast \u00fer\u00edtugt, greddan \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 mennirnir tveir eru eiginlega b\u00e1\u00f0ir a\u00f0 eltast vi\u00f0 konuna sem heldur \u00feeim \u00e1 milli s\u00edn og gefur b\u00e1\u00f0um undir f\u00f3tinn, \u00fea\u00f0 hvernig \u00feau eru \u00f6ll drukkin af spennu vegna yfirvofandi gl\u00e6paverka en of k\u00fal til a\u00f0 s\u00fdna \u00fea\u00f0, og hvernig \u00feau skj\u00f3ta s\u00e9r undan v\u00f6r\u00f0unum sem reyna a\u00f0 hafa hendur \u00ed h\u00e1ri \u00feeirra, hvernig \u00feau hunsa gervalla listas\u00f6guna \u2013 \u00feau eru \u00e1 sj\u00e1lfu Louvre og \u00feau l\u00edta aldrei \u00ed kringum sig, eru fullkomlega \u00ed l\u00edk\u00f6mum s\u00ednum, og \u00fear me\u00f0 \u00f3me\u00f0vitu\u00f0 um s\u00f6gu heimsins, \u00f3me\u00f0vitu\u00f0 um neitt \u00feetta nema augnablik og sj\u00e1lf sig \u2013&nbsp;og svo ver\u00f0ur au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 nefna hreppar\u00edginn vi\u00f0 Bandar\u00edkin, sem mega alls ekki eiga \u00feetta met, \u00fea\u00f0 m\u00e1 enginn hunsa franska listas\u00f6gu jafn hratt og Frakkar sj\u00e1lfir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feessi kappleikur hefur ekkert me\u00f0 anna\u00f0 \u00ed myndinni a\u00f0 gera, \u00feannig laga\u00f0, \u00feau eru bara a\u00f0 drepa t\u00edmann vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau vilja ekki fremja r\u00e1ni\u00f0 strax \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 v\u00e6ri st\u00edlbrot \u2013&nbsp;vi\u00f0 \u00feurfum sj\u00e1lf, sem \u00e1horfendur, a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hvers vegna \u00feetta skipti m\u00e1li og hvernig \u00feetta tengist \u00f6\u00f0ru \u00ed myndinni. Svipa\u00f0 m\u00e1 segja um senu \u00fear sem pers\u00f3nurnar \u00ferj\u00e1r \u00e1kve\u00f0a \u00ed gamni a\u00f0 hafa m\u00edn\u00fatu \u00fe\u00f6gn \u2013&nbsp;en endast bara \u00ed 40 sek\u00fandur \u2013 e\u00f0a a\u00f0ra \u00fear sem \u00fe\u00e6r byrja skyndilega a\u00f0 dansa \u2013 \u00feetta eru senur sem spretta einsog upp \u00far engu og hafa engan \u201etilgang\u201c \u2013&nbsp;senur sem v\u00e6ru strax klipptar \u00fat ef fylgt v\u00e6ri hinni gullnu reglu amer\u00edskra handritsskrifa: \u201ekill your darlings\u201c.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumar \u00feessara mynda hafa svo au\u00f0vita\u00f0 ekkert eiginlegt plott \u2013&nbsp;eru vi\u00f0st\u00f6\u00f0ulaust uppbrot, bara sena eftir senu sem ver\u00f0ur a\u00f0 t\u00falka s\u00e9rstaklega. \u00c9g nefni bara Le Fant\u00f4me de la Libert\u00e9 eftir Bunuel, sem er \u00f3hugsandi sem amer\u00edsk mynd, kannski er amer\u00edskur s\u00farrealismi bara \u00f3hugsandi fr\u00e1 a til \u00f6 \u2013&nbsp;og s\u00fdni fr\u00e6ga senu af matarbo\u00f0i.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-4-3 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"The Phantom of Liberty - Luis Bu\u00f1uel - Dinner Scene\" width=\"660\" height=\"495\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/h1Mptgi23YE?start=121&#038;feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fe\u00e1 komum vi\u00f0 loks a\u00f0 \u00f6\u00f0rum mikilv\u00e6gum punkti \u2013&nbsp;\u00fear sem enn frekar ver\u00f0ur grafi\u00f0 undan \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef sagt til \u00feessa. Lengi vel var eftirl\u00e6tis franska kvikmyndin m\u00edn nefnilega finnsk. <em>La vie de boh\u00e8me<\/em> er tragik\u00f3med\u00eda eftir Aki Kaurism\u00e4ki sem fjallar um \u00ferj\u00e1 listamenn \u00ed Par\u00eds, franskan rith\u00f6fund, \u00edrskt t\u00f3nsk\u00e1ld og albanskan m\u00e1lara \u2013&nbsp;sem er auk \u00feess \u00f3l\u00f6glegur innflytjandi. \u00deessir menn, Marcel, Schaunard og Rodolfo eru hver \u00f6\u00f0rum f\u00e1t\u00e6kari, \u201elistr\u00e6nni\u201c og s\u00e9rvitrari. S\u00fa litla inns\u00fdn sem ma\u00f0ur f\u00e6r \u00ed list \u00feeirra ver\u00f0ur ekki til \u00feess a\u00f0 sannf\u00e6ra mann um a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 jafn st\u00f3rkostleg og \u00feeir telja sj\u00e1lfir \u2013 eiginlega vir\u00f0ast \u00feeir stunda listina frekar vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u d\u00e6mdir til \u00feess, en a\u00f0 \u00feeir hafi neina s\u00e9rstaka h\u00e6fileika. En \u00fea\u00f0 er samt \u2013&nbsp;innanum allt rugli\u00f0 \u2013 eitthva\u00f0 r\u00e9tt, og kannski franskt, vi\u00f0 f\u00edfldjarfa afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra til sk\u00f6punarinnar sem endurspeglast s\u00ed\u00f0an \u00ed f\u00edfldirfsku hins finnska leikstj\u00f3ra \u2013 a\u00f0 gera franska kvikmynd?&nbsp; \u00dev\u00ed hver gerir bara franska kvikmynd, nema vera franskur? Hvernig er \u00fea\u00f0 einu sinni h\u00e6gt? Ver\u00f0ur ma\u00f0ur ekki a\u00f0 vera franskur til \u00feess a\u00f0 gera franska kvikmynd?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 f\u00f3r \u00e1rei\u00f0anlega ekki framhj\u00e1 m\u00e9r \u00e1 s\u00ednum t\u00edma a\u00f0 Krysztof Kieslowski \u2013&nbsp;sem leikst\u00fdr\u00f0i \u00feeim fr\u00f6nsku myndum sem h\u00e6st f\u00f3ru \u00feegar \u00e9g var \u00ed menntask\u00f3la \u2013&nbsp;\u00feriggja lita tr\u00edl\u00f3g\u00edunni, sem kennd er vi\u00f0 sj\u00e1lfa litina \u00ed franska f\u00e1nanum \u2013&nbsp;v\u00e6ri p\u00f3lskur. Og \u00e9g vissi \u00e1rei\u00f0anlega a\u00f0 leikstj\u00f3rinn Luis Bunuel \u2013 sem ger\u00f0i t.d. Le Fant\u00f4me de la libert\u00e9, sem vi\u00f0 s\u00e1um \u00far h\u00e9r \u00e1\u00f0an \u2013 v\u00e6ri sp\u00e6nskur. S\u00ed\u00f0ar hef \u00e9g gert m\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Michael Haneke v\u00e6ri austurr\u00edkisma\u00f0ur \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 heyrist \u00e1 nafninu. Og \u00e9g hl\u00fdt eiginlega a\u00f0 hafa teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Chantal Akerman, leikstj\u00f3ri Jeanne Dielman \u2013&nbsp;sem gerist \u00ed Brussel&nbsp;\u2013 v\u00e6ri belgi, einsog raunar Agnes Varda. En \u00e9g haf\u00f0i alveg \u00e1rei\u00f0anlega ekki hugmynd um a\u00f0 gu\u00f0fa\u00f0ir franskrar kvikmyndager\u00f0ar, sj\u00e1lfur Jean-Luc Godard v\u00e6ri Svisslendingur \u2013&nbsp;\u00fe\u00f3tt hann v\u00e6ri reyndar alinn upp \u00ed Frakklandi. Og \u00e9g haf\u00f0i sannarlega aldrei \u00e1tta\u00f0 mig \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00feetta er algengt \u2013 hversu st\u00f3r hluti franskrar kvikmyndager\u00f0ar er \u00e1 vegum \u00fatlendinga.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er nefnilega eitthva\u00f0 vi\u00f0 franska kvikmyndager\u00f0 \u2013 l\u00edkt og raunar amer\u00edska \u2013&nbsp;sem b\u00e6\u00f0i s\u00fdgur \u00ed sig \u00e1hrif og gerir hlutina a\u00f0 s\u00ednum \u2013&nbsp;eitthva\u00f0 sem m\u00e6tti \u00ed senn kenna vi\u00f0 opin landam\u00e6ri og listr\u00e6na n\u00fdlendustefnu. \u00dea\u00f0 er ekki bara vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u00ed a\u00f0ra r\u00f6ndina st\u00edll e\u00f0a genre, sem allir geti \u00fe\u00e1 teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed, heldur l\u00edka vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan hefur alla t\u00ed\u00f0 \u00ferifist \u00ed d\u00fdnam\u00edk vi\u00f0 a\u00f0rar listir \u2013&nbsp;ekki bara \u00f6nnur listform, lj\u00f3\u00f0list og myndlist og leiklist og t\u00f3nlist \u2013 og leyft \u00feeim a\u00f0 vera s\u00fdnilegir hlutar innan verkanna, frekar en eitthva\u00f0 sem \u00feurfi a\u00f0 sam\u00fe\u00e6tta og l\u00e1ta hverfa inn \u00ed heildina \u2013 heldur l\u00edka listir og listamenn annarra \u00fej\u00f3\u00f0a, sem skilja eftir sig f\u00f3tspor og ummerki sem gr\u00f3a og bl\u00f3mstra innan \u00feess sem vi\u00f0 k\u00f6llum franska kvikmyndager\u00f0.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mig langar \u00feess vegna \u00e1 a\u00f0 enda \u00feetta alltof langa erindi \u00e1 a\u00f0 s\u00fdna ykkur stutta senu \u00far \u00e1\u00f0urnefndri kvikmynd, <em>La vie de boh\u00e8me<\/em>, \u00fear sem albanska myndlistarmanninum Rodolfo, sem leikinn er af Matti Pellonp\u00e4\u00e4, hefur veri\u00f0 varpa\u00f0 \u00ed fangelsi fyrir \u00feann hr\u00e6\u00f0ilega gl\u00e6p a\u00f0 vera ekki me\u00f0 r\u00e9tta papp\u00edra \u2013&nbsp;en svo vill til a\u00f0 s\u00e1 gl\u00e6pur er l\u00edka \u00ed f\u00f3kus \u00ed b\u00ed\u00f3myndinni sem vi\u00f0 horfum \u00e1 h\u00e9r \u00e1 eftir <em>L&#8217;histoire de Souleyman<\/em>. \u00dea\u00f0 fylgir s\u00f6gunni a\u00f0 Rodolfo er n\u00fd\u00e1stfanginn af hinni fr\u00f6nsku Mimi \u2013 og stefnir n\u00fa \u00ed a\u00f0 honum ver\u00f0i v\u00edsa\u00f0 \u00far landi. Og \u00ed \u00feessari or\u00f0alausu senu, \u00fear sem Rodolfo situr einfaldlega \u00e1 g\u00f3lfinu me\u00f0 nokkrum fr\u00f6nskum vandr\u00e6\u00f0aunglingum, finnst m\u00e9r kjarnast eitthva\u00f0 sem er \u00ed senn eins franskt og \u00fea\u00f0 getur or\u00f0i\u00f0 \u2013&nbsp;en l\u00edka eins finnskt og m\u00e1 hugsa s\u00e9r.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"La vie de Boheme.wmv\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/yXKXa4HU7eY?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 sem m\u00e9r \u00feykir einna merkilegast vi\u00f0 franska menningu \u2013 sem \u00e9g \u00feekki vel a\u00f0 merkja betur \u00ed gegnum b\u00f3kmenntir en b\u00ed\u00f3myndir \u2013\u00a0er s\u00fa gegnumgangandi \u00f3sk um a\u00f0 listin s\u00e9 tekin alvarlega. A\u00f0 \u00fe\u00f3tt listin geti b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 f\u00f6gur og skemmtileg \u00fe\u00e1 liggi vir\u00f0i hennar \u00ed einhverju \u00f6\u00f0ru en a\u00f0 vera skraut e\u00f0a skemmtun. \u00deessu &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6358\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hva\u00f0 \u00ed \u00f3sk\u00f6punum er fr\u00f6nsk kvikmyndager\u00f0?<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6358","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6358","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6358"}],"version-history":[{"count":2,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6358\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6361,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6358\/revisions\/6361"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6358"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6358"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6358"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}