{"id":6381,"date":"2026-03-25T23:34:53","date_gmt":"2026-03-25T23:34:53","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6381"},"modified":"2026-03-26T00:05:46","modified_gmt":"2026-03-26T00:05:46","slug":"ferdin-lokaskyrsla","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6381","title":{"rendered":"Fer\u00f0in \u2013\u00a0lokask\u00fdrsla"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"770\" height=\"948\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.33.02.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6383\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.33.02.png 770w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.33.02-244x300.png 244w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.33.02-768x946.png 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 770px) 100vw, 770px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00cd Zagreb eru kirkjur af s\u00e6borgkyni. <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 vera vo\u00f0a duglegur vi\u00f0 a\u00f0 dokumentera Goranovo prolje\u0107e \u2013 lj\u00f3\u00f0ah\u00e1t\u00ed\u00f0ina Vor Gorans, sem kennd er vi\u00f0 lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ldi\u00f0 og and\u00f3fsmanninn Ivan Goran Kovacic. En um lei\u00f0 og sj\u00e1lf h\u00e1t\u00ed\u00f0in h\u00f3fst og \u00e9g hitti hin sk\u00e1ldin gafst fjarska l\u00edtill t\u00edmi til annars en a\u00f0 sinna henni, h\u00e1t\u00ed\u00f0inni og n\u00fdjum og g\u00f6mlum vinum. \u00c9g hitti \u00fearna g\u00f3\u00f0kunningja einsog Jenny Tunedal og kynntist betur f\u00f3lki sem \u00e9g haf\u00f0i hitt \u00e1\u00f0ur, einsog Ainu Villanger, Monicu Aasprong, Svetl\u00f6nu Carstean og S\u00f6ru Hallstr\u00f6m (sem var m.a.s. me\u00f0 \u00e1 fyrsta N\u00fdhilt\u00farnum 2003), og hitti svo \u00ed fyrsta sinn st\u00f3ran h\u00f3p sk\u00e1lda fr\u00e1 Sl\u00f3ven\u00edu, Kr\u00f3at\u00edu, Maked\u00f3n\u00edu, Danm\u00f6rku, S\u00e1pmi, Bandar\u00edkjunum, Haiti, Ungverjalandi og P\u00f3llandi. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri ekki or\u00f0um auki\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 me\u00f0 okkur \u00f6llum hafi tekist nokkrir k\u00e6rleikar \u00fear sem vi\u00f0 s\u00e1tum saman n\u00e1nast sleitulaust \u00ed \u00ferj\u00e1 s\u00f3larhringa \u2013&nbsp;keyr\u00f0um um Kr\u00f3at\u00edu, l\u00e1sum upp og r\u00e6ddum allt milli himins og jar\u00f0ar.  \u00c9g vil ekki hlj\u00f3ma einsog einhver vanviti en stemningin var g\u00f6ldrum l\u00edkust. \u00c9g held \u00e9g telji \u00feetta f\u00f3lk \u00f3hr\u00e6ddur til vina minna h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1, l\u00edka \u00fe\u00e1 sem \u00e9g var a\u00f0 hitta \u00ed fyrsta sinn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0al \u00feess sem ger\u00f0ist \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni var a\u00f0 veitt voru ver\u00f0laun \u2013&nbsp;Krans Gorans \u2013&nbsp;sem f\u00e9llu \u00ed skaut hins \u00e1ttr\u00e6\u00f0a Milko Valents. Hann var me\u00f0 okkur fyrstu dagana, p\u00f6ddufullur og afar skrautlegur \u00ed \u00f6llu tilliti, meig yfirleitt bara \u00fear sem hann st\u00f3\u00f0, var kl\u00e6ddur einsog tv\u00edtugur hipphoppari og f\u00f3r mj\u00f6g \u00ed taugarnar \u00e1 \u00f6llum sem skildu kr\u00f3at\u00edsku \u2013 vi\u00f0 okkur hin sag\u00f0i hann mest \u201ehello, baby\u201c og \u201ewow!\u201c Eftir a\u00f0 b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 afhenda honum kransinn \u00ed f\u00e6\u00f0ingarb\u00e6 Gorans, Lukovdol, var honum keyrt aftur til Zagreb \u2013 enda varla m\u00f6nnum sinnandi, einsog heitir. N\u00fa \u00e1\u00f0an rak \u00e9g svo augun \u00ed <a href=\"https:\/\/www-vecernji-hr.translate.goog\/kultura\/goranov-vijenac-oduzet-pjesniku-koji-je-opjevao-silovanje-maloljetnice-a-u-intervjuima-brani-pedofiliju-1945802?_x_tr_sl=auto&amp;_x_tr_tl=en&amp;_x_tr_hl=en&amp;_x_tr_pto=wapp\">fr\u00b4\u00e9ttir<\/a> \u00feess efnis a\u00f0 hann hef\u00f0i veri\u00f0 sviptur kransinum eftir a\u00f0 \u00ed lj\u00f3s komu einhver umm\u00e6li hans um ped\u00f3f\u00edliu, sem hann er v\u00edst ekki alveg m\u00f3tfallinn. Hin ver\u00f0laun h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar, sem eru \u00e6tlu\u00f0 byrjendum, f\u00e9llu \u00ed skaut K\u00f6rlu Kostadinovski, sem er auk \u00feess a\u00f0 vera lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld hinsegin akt\u00edfisti, og f\u00e9llu \u00feau \u00ed \u00f6llu betri jar\u00f0veg. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 kom \u00fat b\u00f3k eftir mig tengd h\u00e1t\u00ed\u00f0inni \u2013&nbsp;me\u00f0 v\u00f6ldum lj\u00f3\u00f0um \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Dariu Lazic. \u00dea\u00f0 var ekki l\u00edti\u00f0 skemmtilegt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 lokakv\u00f6ldinu l\u00e9k svo t\u00f3nlistarkonan Iva Bobanovic \u2013 \u00e9g veit ekki hvort \u00feetta myndband h\u00e9rna a\u00f0 ne\u00f0an gerir henni r\u00e9ttl\u00e1t skil, en tilfinning allra vi\u00f0staddra var eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 h\u00e9r f\u00e6ri t\u00f3nlist sem v\u00e6ri fram\u00farskarandi \u00e1 einhvern m\u00e1ta sem ma\u00f0ur yr\u00f0i ekki vitni a\u00f0 \u00e1 hverjum degi. Einsog a\u00f0 sj\u00e1 Bob Dylan 1963, hugsa\u00f0i ma\u00f0ur, en kannski var \u00fea\u00f0 l\u00edka vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan leit l\u00edka svol\u00edti\u00f0 \u00fat einsog Bob, \u00ed le\u00f0urjakka og gallabuxum me\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 \u00fat \u00ed lofti\u00f0 (h\u00fan er minna l\u00edk honum \u00ed \u00feessu myndbandi).  <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Kantautorski kutak_4.epizoda - Iva Bobanovi\u0107\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/97mdn1ElRuM?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimfer\u00f0in var svol\u00edti\u00f0 svakaleg. \u00c9g lufsa\u00f0ist \u00f3\u00fearflega seint heim \u00far lokapart\u00edinu \u2013 en hver veit svo sem hva\u00f0 er \u00fearft \u00ed \u00feeim efnum, ekki skorti gle\u00f0ina allavega \u2013 vi\u00f0 komum upp \u00e1 h\u00f3tel klukkan fj\u00f6gur og fimm okkar hittumst svo aftur \u00ed lobb\u00edinu klukkan sex. Vi\u00f0 vorum b\u00fain a\u00f0 panta Bolt-b\u00edl en hann hrings\u00f3la\u00f0i bara eitthva\u00f0 \u00ed kringum okkur og l\u00e9t sig svo hverfa (kannski vegna \u00feess a\u00f0 hann \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var ekki me\u00f0 pl\u00e1ss fyrir fimm far\u00feega \u2013 sem var \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um panta\u00f0). Vi\u00f0 k\u00f6stu\u00f0um okkur \u00ed tvo leigub\u00edla \u2013 sem reyndust kosta mj\u00f6g mish\u00e1a upph\u00e6\u00f0 (og \u00e9g lenti \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 grei\u00f0a \u00feann d\u00fdrasta). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrri flugv\u00e9lin, sem flaug fr\u00e1 Zagreb til Amsterdam, var h\u00e1lfger\u00f0 sard\u00ednud\u00f3s. M\u00e9r l\u00ed\u00f0ur aldrei s\u00e9rstaklega vel \u00ed flugv\u00e9lum en \u00feessi var \u00f3venju sm\u00e1ger\u00f0 \u2013 en m\u00e9r t\u00f3kst n\u00fa samt a\u00f0 loka augunum a\u00f0eins. \u00cd Amsterdam reyndist takkas\u00edminn minn batter\u00edislaus og Schipholneti\u00f0 \u00f3virkt \u2013 \u00e9g margreyndi \u00ed alls kyns t\u00e6kjum \u00e1\u00f0ur en \u00e9g gaf mig og setti SIM-korti\u00f0 yfir \u00ed snjalls\u00edmann, me\u00f0al annars til \u00feess a\u00f0 geta athuga\u00f0 me\u00f0 ve\u00f0ur \u00e1 \u00cdslandi, be\u00f0i\u00f0 um aukas\u00f3larhring til \u00feess a\u00f0 skila Lestarpistli vikunnar (sem \u00e9g t\u00f3k upp \u00e1\u00f0an og sendi), panta h\u00f3telherbergi \u00e1 Hraunsnefi (fyrst \u00e9g k\u00e6mist ekki heim vegna ve\u00f0urs) og l\u00e1ta N\u00f6dju vita. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd seinni flugv\u00e9linni lenti \u00e9g \u2013&nbsp;sem er svo ofvaxinn \u00e1 langveginn \u2013 vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 manni sem var mj\u00f6g ofvaxinn \u00e1 brei\u00f0veginn. Einn flug\u00fej\u00f3nanna s\u00e1 aumur \u00e1 m\u00e9r og flutti mig a\u00f0 ney\u00f0ar\u00fatgangi, sem var v\u00e6gast sagt vel \u00feegi\u00f0, og b\u00e6tti m\u00e9r nokku\u00f0 upp a\u00f0 \u00feegar matarvagninn kom til m\u00edn reyndist hann t\u00f3mur a\u00f0 fr\u00e1t\u00f6ldu nammi og gosi. \u00c9g horf\u00f0i \u00e1 Many Saints of Newark&nbsp;\u2013 myndina um \u00e6sku Tonys Sopranos \u2013 me\u00f0 engu hlj\u00f3\u00f0i. H\u00fan var ekki n\u00f3gu g\u00f3\u00f0, a.m.k. ekki svona hlj\u00f3\u00f0laus.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g haf\u00f0i gist \u00e1 h\u00f3teli uppi \u00e1 \u00c1sbr\u00fa \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r \u00fat \u2013&nbsp;og haf\u00f0i \u00fe\u00e1 vel a\u00f0 merkja komi\u00f0 til borgarinnar degi snemma vegna \u00f3f\u00e6r\u00f0ar. \u00deegar \u00e9g bei\u00f0 eftir t\u00f6skunni minni \u00ed Keflav\u00edk var \u00e9g eiginlega alveg viss um a\u00f0 h\u00fan k\u00e6mi ekki, af \u00feeirri \u00e1st\u00e6\u00f0u einni a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i asnast til \u00feess a\u00f0 skilja b\u00edllykilinn eftir \u00ed henni. Og var talsvert l\u00e9tt \u00feegar h\u00fan birtist. \u00c9g bar\u00f0ist \u00ed gegnum st\u00f3rhr\u00ed\u00f0ina og fann m\u00e9r leigub\u00edl \u00e1 vegum ind\u00e6ls r\u00famensks manns \u2013 sem var a\u00f0 hlusta \u00e1 vi\u00f0tal vi\u00f0 norska konu \u00e1 Lindinni, h\u00fan tala\u00f0i \u00e1 norsku en ma\u00f0ur \u00fe\u00fdddi jafn \u00f3\u00f0um \u00fea\u00f0 sem h\u00fan sag\u00f0i, en varla hefur \u00feetta veri\u00f0 skemmtilegt fyrir leigub\u00edlstj\u00f3rann sem tala\u00f0i hvorki \u00edslensku n\u00e9 norsku (en hefur l\u00edklega anna\u00f0 hvort veri\u00f0 \u00ed svona g\u00f3\u00f0u sambandi\u00f0 vi\u00f0 drottinn e\u00f0a a\u00f0 reyna a\u00f0 l\u00e6ra \u00edslensku og ekki \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var mestmegnis norska). Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0, eftir um fimm m\u00edn\u00fatna akstur keyr\u00f0i aumingjans r\u00fameninn aftan \u00e1 einhvern sm\u00e1b\u00edl \u00ed kafaldinu \u2013&nbsp;og \u00fear s\u00e1tum vi\u00f0 fastir \u00ed svona \u00ferj\u00fa korter, me\u00f0an \u00e9g bei\u00f0 eftir n\u00fdjum leigub\u00edl og hann var a\u00f0 vesenast me\u00f0 l\u00f6greglu og sj\u00fakrali\u00f0um og konunni \u00ed sm\u00e1b\u00edlnum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Konan sem keyr\u00f0i mig upp \u00e1 \u00c1sbr\u00fa sag\u00f0ist ekki viss um a\u00f0 \u00e9g k\u00e6mist alla lei\u00f0 a\u00f0 Hraunsnefi, sem liggur n\u00e1l\u00e6gt Bifr\u00f6st. \u00c9g er n\u00fa mj\u00f6g vanur \u00fev\u00ed a\u00f0 keyra \u00ed alls kyns k\u00f3fi og lofa\u00f0i \u00fev\u00ed bara a\u00f0 fara varlega. Svo \u00e9g lag\u00f0i bara \u00ed hann. \u00dea\u00f0 var svona heldur blint \u00e1 Reykjanesbrautinni en sk\u00e1na\u00f0i \u00feegar til borgarinnar kom, versna\u00f0i svo aftur eftir a\u00f0 komi\u00f0 var \u00ed gegnum Mosfellsb\u00e6. \u00dear l\u00e6kka\u00f0i \u00e9g hra\u00f0ann og setti \u00e1 hazardlj\u00f3sin. A\u00f0st\u00e6\u00f0ur voru \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert spes en \u00e9g hef \u00fe\u00f3 s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 talsvert svartara uppi \u00e1 hei\u00f0um og haf\u00f0i minni \u00e1hyggjur af sj\u00e1lfum m\u00e9r en b\u00edlunum \u00ed kringum mig (sem \u00e9g haf\u00f0i mismikla tr\u00fa \u00e1). \u00deegar kom a\u00f0 Hvalfjar\u00f0arg\u00f6ngum reyndust \u00feau loku\u00f0 vegna b\u00edlslyss. \u00c9g veit ekki hva\u00f0 \u00e9g sat \u00fear lengi \u00ed b\u00edlnum \u2013 eitthva\u00f0 r\u00famlega h\u00e1lft\u00edma grunar mig. \u00de\u00e1 birtist sj\u00fakrab\u00edll \u00e1 \u00feeytispani \u00fat og svo opnu\u00f0ust g\u00f6ngin aftur. A\u00f0st\u00e6\u00f0ur hinumegin vi\u00f0 voru svipa\u00f0ar \u2013\u00a0fj\u00fak og frekar blint. \u00c9g las a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e1lka en \u00e9g fann \u00fea\u00f0 ekki miki\u00f0 sj\u00e1lfur. N\u00e9 heldur fannst m\u00e9r \u00e1takanlega hvasst og ekkert \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem var b\u00fai\u00f0 a\u00f0 lofa. \u00dea\u00f0 var helst a\u00f0 lausamj\u00f6llin byrg\u00f0i manni s\u00fdn. Flj\u00f3tlega eftir Lax\u00e1rbakka h\u00e6g\u00f0i svo mj\u00f6g \u00e1 umfer\u00f0inni sem stoppa\u00f0i svo alveg. T\u00f3k aftur af sta\u00f0 \u00ed augnablik. Stoppa\u00f0i. Mjaka\u00f0ist og stoppa\u00f0i svo fyrir fullt og allt. Einmitt \u00fear sem h\u00fan stoppa\u00f0i fyrir rest var b\u00edll fastur \u00fati \u00ed kanti \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0u greinilega nokkrir fari\u00f0 \u00fat af h\u00e9r og \u00fear \u2013\u00a0og \u00fer\u00edr menn a\u00f0 reyna a\u00f0 losa hann, sem haf\u00f0ist fyrir rest. Hann kom s\u00e9r fyrir fyrir framan mig en sneri svo vi\u00f0 sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar og h\u00e9lt aftur su\u00f0ur. Einn og einn stakk s\u00e9r svo \u00fat \u00far r\u00f6\u00f0inni og hvarf \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt. \u00c9g leit \u00e1 fr\u00e9ttir og \u00fear st\u00f3\u00f0 a\u00f0 v\u00f6rub\u00edll \u00fevera\u00f0i veginn einhvers sta\u00f0ar undir Hafnarfjalli. Fyrir rest \u2013 l\u00edklega upp \u00far n\u00edu \u2013\u00a0kom bj\u00f6rgunarsveitarma\u00f0ur og tilkynnti m\u00e9r a\u00f0 vegurinn yr\u00f0i sennilega loka\u00f0ur \u00ed a\u00f0 minnsta kosti fj\u00f3ra klukkut\u00edma \u00ed vi\u00f0b\u00f3t.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g sneri vi\u00f0 og keyr\u00f0i \u00fat \u00e1 Lax\u00e1rbakka. \u00dear voru bj\u00f6rgunarsveitarmenn a\u00f0 koma fyrir einhvers konar ney\u00f0armi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u2013 sumt af f\u00f3lkinu \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 gista, a\u00f0rir bara a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u2013&nbsp;og af umm\u00e6lum f\u00f3lks a\u00f0 d\u00e6ma var \u00e1standi\u00f0 kannski ekki einsog \u00fea\u00f0 var vegna f\u00e6r\u00f0arinnar (sem \u00e9g upplif\u00f0i aldrei sem hr\u00e6\u00f0ilega, \u00fe\u00f3tt h\u00fan v\u00e6ri sl\u00e6m) heldur vegna \u00feess a\u00f0 of miki\u00f0 af f\u00f3lki var of illa b\u00fai\u00f0 og of \u00f3vant \u00fev\u00ed a\u00f0 keyra vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. \u00dea\u00f0 segir sig eiginlega sj\u00e1lft a\u00f0 \u00feeir sem fara af sta\u00f0 \u00ed svona ve\u00f0ri eru anna\u00f0 hvort b\u00e6\u00f0i vanir og vel b\u00fanir \u2013&nbsp;e\u00f0a bara f\u00e1bj\u00e1nar. Og \u00fea\u00f0 \u00fearf ekkert \u00e6gilega marga f\u00e1bj\u00e1na til \u00feess a\u00f0 stoppa umfer\u00f0ina. Mig gruna\u00f0i a\u00f0 megni\u00f0 af \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem haf\u00f0i ekki \u00feolinm\u00e6\u00f0i til \u00feess a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00feegar umfer\u00f0in var stopp v\u00e6ri n\u00fa sj\u00e1lft \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 hin komumst ekki lei\u00f0arinnar (enda skal \u00e9g alveg fullyr\u00f0a, af mikill reynslu af akstri vi\u00f0 vondar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem kemur manni \u00ed gegnum \u00fe\u00e6r er \u00feolinm\u00e6\u00f0i \u2013&nbsp;a\u00f0 nenna a\u00f0 keyra n\u00f3gu h\u00e6gt, e\u00f0a sitja af s\u00e9r hr\u00ed\u00f0 \u00ed augnablik frekar en a\u00f0 ry\u00f0jast bara \u00e1fram). <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"711\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10-1024x711.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6382\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10-1024x711.png 1024w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10-300x208.png 300w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10-768x533.png 768w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10-1536x1066.png 1536w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-25-at-23.31.10.png 1594w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Sta\u00f0an undir Hafnarfjalli \u00ed fyrrakv\u00f6ld. <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. \u00c1 Lax\u00e1rbakka voru bara laus fj\u00f6lskylduherbergi og fj\u00f6lskyldur a\u00f0 b\u00ed\u00f0a \u00ed r\u00f6\u00f0inni fyrir aftan mig svo \u00e9g l\u00e9t mig hafa \u00fea\u00f0 a\u00f0 keyra \u00ed b\u00e6inn \u2013&nbsp;kom vi\u00f0 \u00e1 Dominos og panta\u00f0i herbergi \u00e1 \u00f3d\u00fdrasta h\u00f3telinu sem \u00e9g fann \u00e1 booking.com. \u00deegar \u00feanga\u00f0 var komi\u00f0 \u2013 \u00e1 H\u00f3tel \u00d6sku \u2013&nbsp;kanna\u00f0ist \u00e9g vi\u00f0 mig og mundi a\u00f0 \u00feetta var sj\u00e1lf-t\u00e9kk-in h\u00f3tel. Til \u00feess a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u ofan \u00e1 svart h\u00f6f\u00f0u \u00feau svo ekki sent m\u00e9r neinn k\u00f3\u00f0a til \u00feess a\u00f0 komast inn heldur bara t\u00f6lvup\u00f3st \u00fear sem \u00e9g var krafinn um lj\u00f3smynd af passanum m\u00ednum og kreditkorti og \u00e9g uppl\u00fdstur um a\u00f0 \u00e9g fengi sendann k\u00f3\u00f0ann s\u00f3larhring \u00e1\u00f0ur en \u00e9g k\u00e6mi. \u00deegar \u00e9g gisti \u00fearna \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i l\u00e1sinn \u00e1 herberginu m\u00ednu h\u00e6tt a\u00f0 virka sem skyldi og \u00e9g \u00feurft a\u00f0 hringja til a\u00f0 f\u00e1 n\u00fdjan k\u00f3\u00f0a og \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00e9g l\u00edka \u00feurft a\u00f0 senda mynd af passanum. \u00c9g sendi strax t\u00f6lvup\u00f3st og minnti \u00e1 a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru me\u00f0 mynd af passanum m\u00ednum og reyndi svo a\u00f0 hringja. \u00cd \u00fer\u00edgang slitna\u00f0i \u2013&nbsp;\u00e9g er \u00fe\u00e1 vi\u00f0 dyrnar (\u00fear sem s\u00edman\u00fameri\u00f0 var skrifa\u00f0) me\u00f0 eina t\u00f6sku \u00e1 \u00f6xlinni, a\u00f0ra \u00e1 hj\u00f3lum, pizzakassa \u00ed h\u00f6ndunum og s\u00edma undir \u00f6xlinni \u00ed st\u00f3rhr\u00ed\u00f0. Og b\u00fainn a\u00f0 vera a\u00f0 fer\u00f0ast fr\u00e1 \u00fev\u00ed klukkan 5 a\u00f0 \u00edslenskum t\u00edma eftir tveggja t\u00edma svefn. Eftir \u00feri\u00f0ju hringinguna \u00edhuga\u00f0i \u00e9g a\u00f0 finna m\u00e9r bara n\u00fdtt h\u00f3telherbergi \u2013 og vera \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00ferj\u00fa \u00e1 leigu, \u00feessa d\u00fdru n\u00f3tt \u2013&nbsp;en \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 reyna einu sinni \u00ed vi\u00f0b\u00f3t. \u00deegar konan svara\u00f0i loksins \u00ed s\u00edmann var \u00e9g n\u00e6stum farinn a\u00f0 grenja, n\u00e6stum farinn a\u00f0 \u00f6skra \u2013&nbsp;h\u00fan lei\u00f0beindi m\u00e9r \u00ed nokkra hringi \u00ed kringum h\u00fasi\u00f0, a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist \u00f3viss um hvar h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 senda mig inn, og \u00feegar \u00e9g var loksins kominn inn virka\u00f0i ekki k\u00f3\u00f0inn, sem h\u00fan haf\u00f0i ekki virkja\u00f0, en h\u00fan virkja\u00f0i hann og \u00fe\u00e1 virka\u00f0i hann. \u00c9g \u00e1t h\u00e1lfa kalda pizzu og f\u00f3r a\u00f0 sofa \u2013&nbsp;l\u00e1 steindau\u00f0ur \u00ed t\u00edu t\u00edma. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um morguninn \u00e1t \u00e9g restina af k\u00f6ldu pizzunni, drakk nescaf\u00e9-dufti\u00f0 \u2013&nbsp;setti \u00fatg\u00e1fu af \u00feessari fer\u00f0as\u00f6gu \u00e1 facebook \u2013 og bruna\u00f0i svo \u00far b\u00e6num. Ve\u00f0ri\u00f0 var umtalsvert sk\u00e1rra. \u00c9g stoppa\u00f0i \u00ed Borgarnesi og fyllti \u00e1 tankinn, keypti meira kaffi og beikonpulsu. Keyr\u00f0i svo \u00ed B\u00fa\u00f0ardal \u00fear sem \u00e9g keypti enn meira kaffi og h\u00e9lt \u00e1fram. R\u00e9tt eftir B\u00fa\u00f0ardal kom \u00e9g aftan a\u00f0 einhverjum manni sem \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 gefa fram \u00far en fannst b\u00edllinn eitthva\u00f0 taka illa vi\u00f0 s\u00e9r og mundi \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er svok\u00f6llu\u00f0 Sportstilling \u00e1 honum, sem gerir hann liprari. B\u00edllinn minn er Outlander blendingur sem er a\u00f0 m\u00f6rgu leyti mj\u00f6g f\u00ednn \u2013&nbsp;flestu leyti \u2013 en hefur \u00feann hr\u00e6\u00f0ilega \u00f3kost a\u00f0 ef a\u00f0 rafmagnsk\u00fat\u00farinn \u00e1 honum kl\u00e1rast alveg birtast villubo\u00f0 \u00ed m\u00e6labor\u00f0inu \u2013&nbsp;Propulsion power reduced, og mynd af skjaldb\u00f6ku einsog til a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 manni&nbsp;\u2013 og hann missir eiginlega allan kraft, \u00ed brekkum fer hann \u00fe\u00e1 ekki upp fyrir 30 km\/klst. \u00deetta gerist fyrst og fremst ef ma\u00f0ur er a\u00f0 glanna upp brekkur \u00ed miklum kulda og \u00fea\u00f0 m\u00e1 au\u00f0veldlega koma \u00ed veg fyrir \u00feetta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa b\u00edlinn stilltan \u00feannig a\u00f0 hann spari rafmagni\u00f0. \u00c9g ger\u00f0i m\u00e9r ekki grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 sportstillingin v\u00e6ri svona rafmagnsfrek \u2013 n\u00e1nast undireins og \u00e9g \u00fdtti \u00e1 takkann hvarf \u00fea\u00f0 sem eftir var af rafmagninu \u00e1 tankinum og b\u00edllinn var\u00f0 m\u00e1ttlaus. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g lulla\u00f0i \u00e1 50 \u00e1 jafnsl\u00e9ttu fram a\u00f0 Laugum \u00ed S\u00e6lingsdal, \u00fear sem kemur l\u00edtil hei\u00f0i sem \u00e9g veit ekki hva\u00f0 heitir \u2013&nbsp;\u00fear \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0 og fara aftur \u00ed B\u00fa\u00f0ardal til a\u00f0 hla\u00f0a. Leist ekkert \u00e1 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 fara yfir \u00der\u00f6skulda \u00e1 kraftlausum b\u00edl. \u00c9g keyr\u00f0i \u00fat \u00ed kant og g\u00fagla\u00f0i hle\u00f0slust\u00f6\u00f0var \u00ed B\u00fa\u00f0ardal, lag\u00f0i svo af sta\u00f0 (svol\u00edti\u00f0 \u00f3viss hvort \u00e9g g\u00e6ti hla\u00f0i\u00f0 \u00fear \u2013&nbsp;lenti einhvern t\u00edma \u00ed vandr\u00e6\u00f0um \u00ed hle\u00f0slust\u00f6\u00f0 sem virka\u00f0i ekki) \u2013&nbsp;fannst b\u00edllinn allur liprari og sneri aftur vi\u00f0, til \u00feess eins a\u00f0 fara yfir litlu hei\u00f0ina \u00e1 30. L\u00e9t mig dreyma um a\u00f0 b\u00edllinn myndi hla\u00f0a eitthva\u00f0 inn \u00e1 sig \u00e1 ni\u00f0urlei\u00f0inni og \u00e9g g\u00e6ti \u00fe\u00e1 sett \u00e1 sparna\u00f0arstillinguna og keyrt upp \u00e1 \u00der\u00f6skulda einsog ma\u00f0ur. En \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist ekki. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 var mj\u00f6g lei\u00f0inlegt a\u00f0 keyra upp \u00e1 \u00der\u00f6skulda. Hei\u00f0in er um 20 km l\u00f6ng \u2013&nbsp;10 upp og 10 ni\u00f0ur \u2013 og \u00e9g vissi aldrei hva\u00f0 myndi gerast ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri allt\u00edeinu einhver snj\u00f3r. Hvort \u00e9g myndi bara festast. En \u00e9g mjaka\u00f0ist \u00feetta \u2013 \u00e9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 skilur nokkur hva\u00f0 30 km\/klst er hr\u00e6\u00f0ilega, hr\u00e6\u00f0ilega, hr\u00e6\u00f0ilega h\u00e6gt. E\u00f0a hvernig \u00fea\u00f0 er a\u00f0 keyra b\u00edl sem bara neitar a\u00f0 fara hra\u00f0ar. En \u00fea\u00f0 var mj\u00f6g blint \u00e1 hei\u00f0inni og kannski hef\u00f0i \u00e9g aldrei fari\u00f0 MIKLU hra\u00f0ar, en \u00e9g hef\u00f0i n\u00fa samt \u00feegi\u00f0 50 og a\u00f0 hafa m\u00f6guleikann \u00e1 sm\u00e1 afli. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En upp komst \u00e9g og \u00e1 lei\u00f0inni ni\u00f0ur safna\u00f0i \u00e9g meira a\u00f0 segja einu striki inn \u00e1 rafmagnstankinn. \u00deegar \u00e9g kom til H\u00f3lmav\u00edkur keyr\u00f0i \u00e9g beint a\u00f0 hle\u00f0slust\u00f6\u00f0inni. Hl\u00f3\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed appinu (SIM-korti\u00f0 enn \u00ed snjalls\u00edmanum \u2013 snjalls\u00edmalaus er \u00feetta ekki h\u00e6gt). Setti inn kreditkorti\u00f0 mitt \u2013&nbsp;l\u00e9t taka 6000 kr\u00f3nu tryggingagjald af \u00fev\u00ed \u2013 og starta\u00f0i hle\u00f0slunni. Sem starta\u00f0ist ekki. \u00c9g reyndi aftur. T\u00f3k b\u00edlinn \u00far sambandi og reyndi \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn. Hlj\u00f3p inn af \u00fev\u00ed \u00e9g var a\u00f0 m\u00edga \u00ed mig. Reyndi aftur. F\u00f3r \u00ed hanska af \u00fev\u00ed \u00e9g var or\u00f0inn mj\u00f6g loppinn (ve\u00f0ri\u00f0 var enn hr\u00e6\u00f0ilegt \u2013 og \u00e9g enn \u00ed skyrtu og jakka sem h\u00e6f\u00f0u betur ve\u00f0rinu \u00ed Zagreb). Setti inn hitt korti\u00f0 mitt, reyndi aftur. T\u00f3k b\u00edlinn \u00far sambandi og setti aftur \u00ed samband og reyndi aftur. Og gafst upp. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r vil \u00e9g bara koma \u00feeim skilabo\u00f0um \u00e1lei\u00f0is til hverrar \u00feeirrar s\u00e1larlausu manneskju sem setti upp \u00feetta rafhle\u00f0slus\u00fdstem a\u00f0 h\u00fan \u2013 e\u00f0a einhver \u2013&nbsp;\u00fatsk\u00fdri fyrir m\u00e9r hvers vegna \u00e9g \u00fearf app og allt \u00feetta vesen til \u00feess a\u00f0 kaupa rafmagn \u00feegar m\u00e9r n\u00e6gir a\u00f0 \u00fdta kreditkortinu m\u00ednu \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 n\u00e6stu bens\u00ednd\u00e6lu til a\u00f0 grei\u00f0a fyrir jar\u00f0aefnaeldsneyti. \u00deetta er ekki \u00ed fyrsta sinn sem \u00e9g lenti \u00ed \u00feessum appvandr\u00e6\u00f0um og ver\u00f0ur \u00e1rei\u00f0anlega ekki \u00ed \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta heldur. \u00deetta er \u00f3skiljanleg \u00fev\u00e6la. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 var einmitt \u00fea\u00f0 n\u00e6sta sem \u00e9g ger\u00f0i. Eftir kaffi og pylsu. A\u00f0 kaupa m\u00e9r bens\u00edn. Svo treysti \u00e9g \u00e1 litla striki\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i safna\u00f0 \u00e1 ni\u00f0urlei\u00f0inni af \u00der\u00f6skuldum og bruna\u00f0i svo \u00e1lei\u00f0is a\u00f0 \u00f3vini m\u00ednum Steingr\u00edmi \u2013 \u00fear sem \u00e9g hef \u00e6\u00f0i oft brotist yfir \u00ed hr\u00e6\u00f0ilegustu ve\u00f0rum, einu sinni fari\u00f0 \u00ed kollhn\u00eds \u00e1 Suzuki Swift, einu sinni leitt b\u00edlalest yfir \u00e1 s\u00f6mu s\u00fakku (sem var ein \u00ed hj\u00f6r\u00f0 margra miklu st\u00e6rri b\u00edla til a\u00f0 vera b\u00e6\u00f0i \u00e1 negldum og fj\u00f3rhj\u00f3ladrifin) og einu sinni seti\u00f0 fastur \u00ed fullkominni blindhr\u00ed\u00f0 me\u00f0 Aram \u00feriggja \u00e1ra \u00ed afturs\u00e6tinu. \u00dear var a\u00f0 venju versta f\u00e6r\u00f0in, en b\u00edllinn var h\u00e6ttur a\u00f0 vera me\u00f0 lei\u00f0indi og \u00e9g komst vandr\u00e6\u00f0alaust yfir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00cdsafir\u00f0i (fyrsta fir\u00f0inum \u00ed dj\u00fapinu, ekki b\u00e6num sem kemur ekki fyrren \u00ed Skutulsfir\u00f0i) var blint yst en \u00feegar innar var komi\u00f0 var\u00f0 skyggni\u00f0 mj\u00f6g gott og h\u00e9lst megni\u00f0 af lei\u00f0inni sem eftir var. \u00c9g var kominn heim klukkan sex. Heilsa\u00f0i upp \u00e1 Aino \u2013 vi\u00f0 vorum \u00e1 lei\u00f0inni \u00e1 R\u00f3me\u00f3 og J\u00fal\u00edu \u00ed uppf\u00e6rslu menntask\u00f3lans um kv\u00f6ldi\u00f0, \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 teki\u00f0 miki\u00f0 Shakespeare-b\u00ed\u00f3mynda fyller\u00ed; en Nadja var \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed kv\u00f6ldmatarbo\u00f0 \u00e1 vegum vinnunnar. Sau\u00f0 spagett\u00ed, \u00e1t og f\u00f3r \u00ed leikh\u00fas \u2013&nbsp;sem var \u00e6\u00f0i. Nadja kom heim r\u00e9tt \u00e1 eftir okkur og vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um \u00ed kannski 20 m\u00edn\u00fatur \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sofa \u2013 enda \u00feurfti \u00e9g a\u00f0 vakna klukkan sex \u00ed morgun til \u00feess a\u00f0 eiga s\u00e9ns \u00e1 a\u00f0 skrifa allan Lestarpistilinn \u00ed dag. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem \u00e9g og ger\u00f0i. \u00c9g vakna\u00f0i klukkan sex og var farinn \u00e1\u00f0ur en nokkur annar f\u00f3r \u00e1 f\u00e6tur. \u00cd h\u00e1deginu hringdi Nadja. \u00de\u00e6r Aino eiga flug til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar \u00e1 laugardaginn til a\u00f0 heims\u00e6kja Aram. Og sp\u00e1in er ekki alveg n\u00f3gu g\u00f3\u00f0. \u00c1 morgun er h\u00fan au\u00f0vita\u00f0 hand\u00f3n\u00fdt en \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 keyra su\u00f0ur \u00e1 f\u00f6studag og h\u00fan er bara ekki alveg n\u00f3gu g\u00f3\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur. Nadja r\u00e1\u00f0f\u00e6r\u00f0i sig vi\u00f0 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 fara bara \u00ed dag. \u00c9g kom heim, bar\u00f0i f\u00e1r\u00e1nlegt magn af \u00eds \u00far hj\u00f3lunum \u00e1 b\u00edlnum, pakka\u00f0i Komm\u00fanista\u00e1varpinu sem pabbi gaf m\u00e9r \u00feegar \u00e9g var \u00ed menntask\u00f3la fyrir Aram (sem var a\u00f0 ganga \u00ed Ung V\u00e4nster \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0) og ba\u00f0 Aino a\u00f0 koma \u00fev\u00ed til hans. Kvaddi m\u00e6\u00f0gurnar me\u00f0 kn\u00fasi. Kl\u00e1ra\u00f0i pistilinn minn h\u00e1lfheilalaus af \u00fereytu, f\u00f3r og f\u00e9kk m\u00e9r kebab og t\u00f3k hann svo upp \u00e1 skrifstofunni \u2013 svo \u00e9g geti sofi\u00f0 \u00fat \u00e1 morgun. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 vera vo\u00f0a duglegur vi\u00f0 a\u00f0 dokumentera Goranovo prolje\u0107e \u2013 lj\u00f3\u00f0ah\u00e1t\u00ed\u00f0ina Vor Gorans, sem kennd er vi\u00f0 lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ldi\u00f0 og and\u00f3fsmanninn Ivan Goran Kovacic. En um lei\u00f0 og sj\u00e1lf h\u00e1t\u00ed\u00f0in h\u00f3fst og \u00e9g hitti hin sk\u00e1ldin gafst fjarska l\u00edtill t\u00edmi til annars en a\u00f0 sinna henni, h\u00e1t\u00ed\u00f0inni og n\u00fdjum og g\u00f6mlum vinum. \u00c9g hitti &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6381\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Fer\u00f0in \u2013\u00a0lokask\u00fdrsla<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6381","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6381","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6381"}],"version-history":[{"count":3,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6381\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6386,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6381\/revisions\/6386"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6381"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6381"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6381"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}