{"id":6427,"date":"2026-05-28T14:04:20","date_gmt":"2026-05-28T14:04:20","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6427"},"modified":"2026-05-28T16:15:29","modified_gmt":"2026-05-28T16:15:29","slug":"utvarp-hladvarp-sjalfsvarp","status":"publish","type":"post","link":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6427","title":{"rendered":"\u00datvarp, hla\u00f0varp, sj\u00e1lfsvarp"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"720\" height=\"960\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/507798784_9960110774071019_3035878798731403457_n.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6437\" srcset=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/507798784_9960110774071019_3035878798731403457_n.jpg 720w, http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/507798784_9960110774071019_3035878798731403457_n-225x300.jpg 225w\" sizes=\"auto, (max-width: 720px) 100vw, 720px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Ritlistarkennari a\u00f0 st\u00f6rfum \u00ed Biskops Arn\u00f6.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">____________________<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r hefur l\u00e1\u00f0st a\u00f0 nefna h\u00e9rna a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r \u00e1 d\u00f6gunum \u00ed hla\u00f0varp. \u00c9g var fyrsti og so far eini gestur \u00feessa hla\u00f0varps. \u00c9g held a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 kannski \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sem \u00e9g m\u00e6ti \u00ed hla\u00f0varp. \u00c9g var einu sinni \u00ed vi\u00f0tali hj\u00e1 Sverri Norland \u00ed hla\u00f0varpi Forlagsins \u2013&nbsp;sem er eiginlega svindl, af \u00fev\u00ed Forlagi\u00f0 var l\u00edka a\u00f0 gefa \u00fat b\u00f3kina sem \u00e9g var a\u00f0 pl\u00f6gga. Svo f\u00f3r \u00e9g \u00ed \u00d6rnen och kr\u00e5kan um daginn til a\u00f0 tala um \u00edslenska lj\u00f3\u00f0list. Og n\u00fa \u00feetta. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir um \u00fea\u00f0 bil hundra\u00f0 \u00e1rum \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 vera me\u00f0 hla\u00f0varp \u2013&nbsp;sennilega \u00ed gegnum N\u00fdhils\u00ed\u00f0una, \u00feetta er \u00ed alv\u00f6ru fyrir svona 20 \u00e1rum \u2013&nbsp;og t\u00f3k tveggja t\u00edma vi\u00f0tal vi\u00f0 Hauk M\u00e1 Helgason, aldavin minn og f\u00f3stbr\u00f3\u00f0ur. \u00deetta var \u00e1\u00f0ur en nokkrum manni datt \u00ed hug a\u00f0 tveir t\u00edmar v\u00e6ri passleg lengd \u00e1 hla\u00f0varpsvi\u00f0tal, vel a\u00f0 merkja, og \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi enginn hlusta\u00f0 \u00e1 \u00feetta nema T\u00f3mas Ponzi, sem \u00e9g man a\u00f0 var mj\u00f6g \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 spjalli\u00f0. Gott a\u00f0 gle\u00f0ja hlustandann. N\u00fa, 20 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, endurgeldur Haukur M\u00e1r m\u00e9r grei\u00f0ann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a m\u00e9r \u00ed hla\u00f0varpi\u00f0 sitt. Sem er held \u00e9g bara \u00e1 YouTube, sem stendur, og er ekki tveir t\u00edmar heldur h\u00e1lft\u00edmi. Sem er talsvert passlegra. \u00c9g vona innilega a\u00f0 \u00feetta hla\u00f0varp ver\u00f0i langl\u00edfara en \u00fea\u00f0 sem \u00e9g starta\u00f0i vori\u00f0 2006.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Eir\u00edkur \u00d6rn Nor\u00f0dahl \u00ed b\u00edl\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/BIWMh_KqACo?start=474&amp;feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef talsvert oftar veri\u00f0 \u00ed \u00fatvarpinu en hla\u00f0varpinu. \u00cd \u00fatv\u00f6rpum en hla\u00f0v\u00f6rpum. Kannski \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 meira svona establishment f\u00edg\u00fara en underground? Eiginlega er \u00e9g alltaf \u00ed sama \u00fatvarpinu. Stundum hvarflar a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 myndi enginn vita hver \u00e9g v\u00e6ri ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki fyrir R\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0. A\u00f0 v\u00edsu var m\u00e9r einu sinni bo\u00f0i\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=31xTMe_z8Ho\">spjall\u00fe\u00e1tt Loga Bergmanns<\/a> \u2013&nbsp;en \u00fea\u00f0 eru &#8230; 17 \u00e1r s\u00ed\u00f0an. J\u00fa og svo hef \u00e9g fari\u00f0 \u00e1 Samst\u00f6\u00f0ina au\u00f0vita\u00f0 \u2013&nbsp;er \u00fea\u00f0 kannski meira hla\u00f0varp en sj\u00f3nvarp? \u00c9g er ekki viss. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g hef sem sagt aldrei veri\u00f0 jafn miki\u00f0 \u00ed \u00fatvarpinu og \u00ed vetur \u2013&nbsp;vikulega f\u00e6 \u00e9g t\u00edu m\u00edn\u00fatur (sem eiga a\u00f0 vera t\u00e6par en eru fur\u00f0u oft r\u00famar) til \u00feess a\u00f0 tj\u00e1 hug minn um hva\u00f0eina sem m\u00e9r dettur \u00ed hug. \u00cd g\u00e6r fjalla\u00f0i \u00e9g um ritlistarfnykinn \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 er sjaldg\u00e6ft a\u00f0 \u00e9g vinni pistla upp \u00far blogglei\u00f0ingum m\u00ednum (sem eru ekki alltaf mj\u00f6g markvissar) en af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1tturinn \u00e1tti a\u00f0 vera um ritlist var \u00e9g be\u00f0inn um a\u00f0 gera \u00feetta svona og \u00e9g geri alltaf allt sem \u00e9g er be\u00f0inn um. Langi einhvern a\u00f0 skilja hver er munurinn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 blogga og a\u00f0 skrifa \u00fatvarpistil er h\u00e6gt a\u00f0 bera saman<a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6422\"> textann einsog hann birtist<\/a> h\u00e9r fyrr \u00ed vikunni og <a href=\"https:\/\/www.ruv.is\/utvarp\/spila\/lestin\/23619\/bj474e\">\u00feann sem f\u00f3r \u00ed lofti\u00f0 \u00ed g\u00e6r<\/a>. \u00d3st\u00fdril\u00e1tur texti annars vegar og editera\u00f0ur hins vegar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00ed\u00f0a \u00cdsberg og \u00de\u00f3rd\u00eds G\u00edslad\u00f3ttir voru \u00ed \u00fe\u00e6ttinum l\u00edka og r\u00e6ddu vi\u00f0 Kristj\u00e1n og L\u00f3u um s\u00edna s\u00fdn \u00e1 ritlistina sem fyrirb\u00e6ri og hvernig h\u00fan v\u00e6ri kannski \u00f3l\u00edk \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og \u00e1 \u00cdslandi og \u00ed Danm\u00f6rku. H\u00e9r \u00e1 heimilinu var \u00feetta or\u00f0i\u00f0 svona \u201eEir\u00edkur talar vi\u00f0 \u00fatvarpst\u00e6ki\u00f0 sitt og reynir a\u00f0 gr\u00edpa fram \u00ed\u201c d\u00e6mi. Sem er ekki sl\u00e6mt, heldur gott \u2013&nbsp;\u00e9g hef mest l\u00e1ti\u00f0 svona vi\u00f0 nafna minn heitinn Gu\u00f0mundsson, \u00feegar hann var \u00ed \u00fatvarpinu, og \u00feeir gerast ekki miki\u00f0 betri \u00fatvarpsmennirnir. Og \u00e9g var ekki \u00f3samm\u00e1la m\u00f6rgu sem var sagt \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 var meira a\u00f0 \u00e9g vildi b\u00e6ta einhverju vi\u00f0. Segja allt sem \u00e9g gleymdi a\u00f0 segja \u00ed pistlinum (og gat raunar alls ekki sagt \u2013 hann var 10 m\u00edn\u00fatur og 55 sek\u00fandur sem er vel yfir m\u00f6rkum). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar s\u00e6nska ritlistin barst \u00ed tal langa\u00f0i mig til d\u00e6mis a\u00f0 b\u00e6ta \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hef teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed n\u00fdlega a\u00f0 b\u00f3kmenntat\u00edmaritin eru \u00f6ll horfin \u00far Pressbyr\u00e5n. \u00dea\u00f0 er heilmikil t\u00edmaritahef\u00f0 \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u2013 t\u00edmaritaveggir \u00ed \u00f6llum sjoppum \u2013 og einu sinni gat ma\u00f0ur alltaf keypt Vi l\u00e4ser \u00ed Pressbyr\u00e5n \u00ed V\u00e4ster\u00e5s. \u00deetta er ekki mj\u00f6g \u00feungt b\u00f3kmenntat\u00edmarit, bara vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 mets\u00f6luh\u00f6funda og svona sm\u00e6lki \u2013&nbsp;mj\u00f6g stuttir ritd\u00f3mar og \u00e1bendingar. Skemmtilegt. Poppa\u00f0. En \u00fea\u00f0 er sem sagt horfi\u00f0. Og \u00ed sta\u00f0inn getur ma\u00f0ur alls sta\u00f0ar keypt t\u00edmariti\u00f0 <em>Skriva<\/em>. Sem fjallar, einsog \u00fei\u00f0 geti\u00f0 \u00edmynda\u00f0 ykkur, um \u00fea\u00f0 hvernig ma\u00f0ur skrifar b\u00e6kur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6kur um \u00fea\u00f0 hvernig ma\u00f0ur skrifar b\u00e6kur eru l\u00edka or\u00f0nar mj\u00f6g vins\u00e6lar \u2013 ekki s\u00edst hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur um \u00fea\u00f0 hvernig ma\u00f0ur skrifar b\u00e6kur \u2013&nbsp;sem og \u201evanity\u201c forl\u00f6g \u00fear sem f\u00f3lk grei\u00f0ir fyrir a\u00f0 l\u00e1ta drauminn r\u00e6tast \u2013&nbsp;borgar forlagi fyrir a\u00f0 gefa \u00fat b\u00f3kina s\u00edna og dreifa henni. \u00deetta er kalla\u00f0 \u201ehybrid\u201c forl\u00f6g \u2013&nbsp;d\u00e6mi um sl\u00edk eru Hoi, Vulkan, Visto og fleiri. \u00deau eru \u00f3l\u00edk sj\u00e1lfs\u00fatg\u00e1fu vel a\u00f0 merkja \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekkert DIY element. Ma\u00f0ur gerir ekkert sj\u00e1lfur heldur borgar fyrir \u00fej\u00f3nustu \u2013&nbsp;\u00feetta er minna einsog a\u00f0 stofna hlj\u00f3msveit og meira svona einsog ma\u00f0ur kaupir s\u00e9r r\u00e1nd\u00fdran rafmagnsg\u00edtar af \u00fev\u00ed mann langa\u00f0i alltaf a\u00f0 ver\u00f0a rokkstjarna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritlistarn\u00e1mskei\u00f0 \u2013&nbsp;og \u00fe\u00e1 er \u00e9g ekki a\u00f0 tala um rith\u00f6fundask\u00f3la \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Biskops Arn\u00f6 e\u00f0a Litter\u00e4r gestaltning \u2013&nbsp;heldur helgarn\u00e1mskei\u00f0, vikun\u00e1mskei\u00f0, netn\u00e1mskei\u00f0 og svo framvegis eru l\u00edka gr\u00ed\u00f0arlega vins\u00e6l. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta gerist vel a\u00f0 merkja \u00e1 sama t\u00edma og \u00e1huginn \u00e1 b\u00f3kmenntum \u2013&nbsp;s\u00e9rstaklega krefjandi fagurb\u00f3kmenntum, sem voru einhvern t\u00edma kjarninn \u00ed \u201eb\u00f3kmenntaheiminum\u201c \u2013&nbsp;fer minnkandi. \u00de\u00e1 skreppur l\u00edka saman \u00e1huginn \u00e1 \u00fe\u00fdddum fagurb\u00f3kmenntum \u2013&nbsp;s\u00e9rstaklega \u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00f3\u00feekktum h\u00f6fundum, h\u00f6fundum sem \u00fearf a\u00f0 kynna \u2013&nbsp;og hangir saman vi\u00f0 einhvern celebrity k\u00falt\u00far \u00ed kringum \u00fatg\u00e1fu, sem svo kristallast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6kur eftir f\u00f3lk sem er fr\u00e6gt (fyrir eitthva\u00f0 anna\u00f0 en b\u00f3kmenntir) nj\u00f3ta s\u00edfellt meiri vins\u00e6lda. \u00deetta er f\u00f3lk sem oft skrifar \u00ed n\u00e1nu samstarfi me\u00f0 ritstj\u00f3rum, enda byrjendur, e\u00f0a jafnvel l\u00e6tur vofur skrifa fyrir sig (ghost-write-a, heitir \u00fea\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur ber \u00fea\u00f0 fram). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk sem sagt langar meira a\u00f0 skrifa b\u00e6kur en a\u00f0 lesa b\u00e6kur \u2013&nbsp;sem \u00fea\u00f0 langar svo l\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlustar mest \u00e1 b\u00e6kur \u00ed sta\u00f0inn \u2013 og \u00fea\u00f0 langar meira a\u00f0 vera fr\u00e6gt og r\u00edkt en a\u00f0 b\u00faa til eitthva\u00f0 st\u00f3rfenglegt og breyta me\u00f0vitund heimsins e\u00f0a uppg\u00f6tva n\u00fdja fagurfr\u00e6\u00f0i. \u00deetta er au\u00f0vita\u00f0 h\u00fdperkapital\u00edska m\u00f3deli\u00f0 \u2013&nbsp;og kemur einsog anna\u00f0 \u00ed samt\u00edmanum beint fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einsog \u00de\u00f3rd\u00eds nefndi er allt \u00f6nnur stemning \u00ed kringum s\u00e6nska ritlistarsk\u00f3la en bandar\u00edska \u2013&nbsp;og hefur a\u00f0 gera me\u00f0 \u00f3l\u00edka hugmyndafr\u00e6\u00f0i og \u00f3l\u00edka s\u00fdn \u00e1 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 vera rith\u00f6fundur, hvernig hlutverki\u00f0 l\u00edti \u00fat, hva\u00f0a pers\u00f3nuleiki fylgi \u00fev\u00ed og hva\u00f0a fagurfr\u00e6\u00f0i. En sk\u00f3larnir eiga r\u00edkan \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 skilgreina, samr\u00e6ma og vi\u00f0halda r\u00edkjandi hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00b4a hverjum sta\u00f0 (og geta sannarlega l\u00edka \u00e1tt \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 endurskilgreina hana \u2013&nbsp;sem ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 r\u00edkjandi hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u2013&nbsp;\u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 vel a\u00f0 merkja alls ekki gefi\u00f0 a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lar stundi \u00feannig endurskilgreiningar).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feessu sambandi hugsa \u00e9g um kvikmyndabender sem \u00e9g f\u00f3r \u00e1 \u00feegar \u00e9g lauk vi\u00f0 Einl\u00e6gan \u00d6nd og \u00e1tti enn fj\u00f3ra daga eftir af residens\u00edunni minni \u00ed Visby og horf\u00f0i \u00e1 sennilega \u00ferj\u00e1t\u00edu myndir \u00ed beit um rith\u00f6funda \u2013&nbsp;allar kvikmyndir sem \u00e9g fann \u00fear sem rith\u00f6fundar voru \u00ed a\u00f0alhlutverki. Eitt af \u00fev\u00ed eftirminnilega var a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0 munurinn \u00e1 hugmyndinni um sk\u00e1ld vestan og austan megin vi\u00f0 atlantshafi\u00f0 var mikill. Bandar\u00edsku h\u00f6fundarnir voru allir eitthva\u00f0 svona einsog Michael Douglas \u00ed Wonderboys \u2013 ritlistarkennarar sem voru anna\u00f0 hvort a\u00f0 sl\u00e1 \u00ed gegn e\u00f0a d\u00e1l\u00edtil has-been \u2013&nbsp;en menn \u00ed h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagi me\u00f0 fasta vinnu (e\u00f0a a\u00f0 leita a\u00f0 henni), venjulegt f\u00f3lk sem \u00feurfti fyrst og fremst a\u00f0 bretta upp ermarnar og skrifa. Evr\u00f3psku h\u00f6fundarnir voru allir s\u00e9rvitringar sem f\u00f3rnu\u00f0u \u00f6llu \u2013 a\u00f0 me\u00f0taldri ge\u00f0heilsunni \u2013 fyrir fegur\u00f0ina. G\u00e1fa \u00feeirra var satan\u00edsk gu\u00f0sgj\u00f6f \u2013 fegur\u00f0in sad\u00edskur h\u00fasb\u00f3ndi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 vildi \u00e9g gera athugasemd vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem var kannski ekki sagt beinum or\u00f0um en m\u00e9r fannst \u00fdja\u00f0 allhressilega a\u00f0, sem er a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 meiri \u201eritlistarfnykur\u201c af sk\u00e1ldverkum kvenna og a\u00f0 \u201esnillingsm\u00f3del\u201c 20. aldarinnar eigi bara vi\u00f0 um karla \u2013 og \u00fear me\u00f0 sn\u00faist gagnr\u00fdni \u00e1 ritlistarm\u00f3deli\u00f0 um a\u00f0 gagnr\u00fdna a\u00f0 veruleiki samt\u00edmab\u00f3kmennta s\u00e9 kvenl\u00e6gari en hann var. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed fyrra hafna \u00e9g bara sem lesandi \u2013&nbsp;fr\u00e1 Ocean Vuong til Bens Lerner til Jonathan Franzen, \u00fear er alveg sami fnykur og Jhumpa Lahiri og Rachel Cusk. Og nei, \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 b\u00e6kur \u00feessa h\u00f6funda s\u00e9u drasl \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 er ekki \u00fea\u00f0 sem \u00e9g er a\u00f0 segja. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinu s\u00ed\u00f0arnefnda m\u00e6ti hafna einfaldlega me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 byrja a\u00f0 \u00feylja upp n\u00f6fn: Virginia Woolf, Marguerite Duras, Anne Carson, Mina Loy, Elsa von Freytag-Loringhoven, Djuna Barnes, Carson McCullers, Flannery O&#8217;Connor, Muriel Spark, Katarina Frostenson, Bodil Malmsten, Laura Riding, Marguerite Yourcenar, Hannah Arendt, Wizslava Szymborska, Chantal Akerman, Annie Ernaux, Herta M\u00fcller, Svetlana Aleksevitsj, Ingeborg Bachmann, Inger Christensen, Elfriede Jelinek, Karin Boye, Karen Blixen, Astrid Lindgren, Clarice Lispector, Susan Sontag, Joan Didion, Emily Dickinson, Sylvia Plath, Marina Tsvetajeva \u2013&nbsp;meira a\u00f0 segja Ayn Rand. Og nei, \u00e9g er ekki a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u allar snillingar \u00ed raun \u2013&nbsp;Ayn Rand! ha ha! \u2013&nbsp;en \u00fe\u00e6r passa vi\u00f0 hlutverki\u00f0 \u201esnillingur\u201c \u2013&nbsp;s\u00e9rvitrar me\u00f0 einstaka r\u00f6dd\/sj\u00f3narhorn\/g\u00e1fu sem \u00fe\u00e6r mi\u00f0lu\u00f0u ekki m\u00e1lum me\u00f0. Og j\u00e1, listinn g\u00e6ti veri\u00f0 miklu, miklu lengri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Breytingin er \u00e1rei\u00f0anlega fagurfr\u00e6\u00f0ilegs og hugmyndafr\u00e6\u00f0ilegs e\u00f0lis \u2013&nbsp;og samhli\u00f0a sams konar breytingum \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, vi\u00f0 lifum ekki lengur \u00e1 20. \u00f6ldinni og snillingshugmyndin er \u00farelt. En \u00fe\u00e6r breytingar \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu hafa meira a\u00f0 gera me\u00f0 neyslumynstur okkar \u2013&nbsp;og a\u00f0 allt er neysla, allt er marka\u00f0ur \u2013&nbsp;en \u00fea\u00f0 hvort a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru konur e\u00f0a karlar sem halda \u00e1 pennunum e\u00f0a kaupa b\u00e6kurnar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skrifi konur frekar \u00ed h\u00f3pum en karlar \u2013&nbsp;e\u00f0a editeri \u00ed h\u00f3pum \u2013 er \u00fea\u00f0 fyrst og fremst spurning um einhverja hef\u00f0, f\u00f3lk af tilteknu kyni a\u00f0 elta tilteknar sta\u00f0almyndir, herma eftir jafningjum s\u00ednum. R\u00e9tt einsog \u00fea\u00f0 er meiri hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 konur semji t\u00f3nlist einar en karlar \u00ed h\u00f3pum\/hlj\u00f3msveitum. \u00dea\u00f0 er f\u00e9lagsleg tilviljun \u2013 e\u00f0a svar vi\u00f0 tilteknum a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00e1 tilteknum sta\u00f0, sem breytast \u00feegar minnstu hlutum \u00ed j\u00f6fnunni er hnika\u00f0 til, frekar en spurning um eitthvert e\u00f0li. Og eitt er ekki endilega betra en hitt \u2013 \u00fea\u00f0 eru kostir og gallar vi\u00f0 a\u00f0 starfa saman a\u00f0 listaverkum og a\u00f0 vinna \u00feau einn; en \u00fea\u00f0 er varla h\u00e6gt a\u00f0 \u00e6tlast til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi enginn or\u00f0 \u00e1 einkennum hvors um sig, e\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 anna\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 taka vi\u00f0 af hinu og me\u00f0 \u00fev\u00ed glatist kannski eitthva\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 finnst m\u00e9r \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 \u00fea\u00f0 er b\u00e6\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 hafa fari\u00f0 \u00ed ritlist og vera \u201esnillingur\u201c \u2013&nbsp;leika \u00fea\u00f0 hlutverk, vera \u00fea\u00f0 hlutverk, og setjast \u00e1 sk\u00f3labekk \u2013&nbsp;eitt \u00fatilokar ekki hitt; og a\u00f0 margt af \u00fev\u00ed sem \u00e9g kalla ritlistarfnyk hefur ekki me\u00f0 n\u00e1mi\u00f0 a\u00f0 gera eitt og s\u00e9r heldur hugmyndafr\u00e6\u00f0i b\u00f3kmenntastofnunarinnar \u00ed dag (og \u00fe\u00e1 stefnu sem h\u00fan er \u00e1) \u00ed heild sinni. \u00de\u00e1 hugmyndafr\u00e6\u00f0i a\u00f0 b\u00f3kmenntir s\u00e9u fyrst og fremst fag sem ma\u00f0ur l\u00e6ri \u2013 ma\u00f0ur l\u00e6ri a\u00f0 skrifa af til \u00feess ger\u00f0um fagmanni og beri \u00feau skrif s\u00ed\u00f0an undir fleiri fagmenn til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 s\u00edfellt faglegri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u, svona einsog ma\u00f0ur v\u00e6ri a\u00f0 byggja br\u00fa og vildi f\u00e1 margsta\u00f0fest bur\u00f0ar\u00feoli\u00f0.&nbsp;\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 m\u00f3tfallinn \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk \u201el\u00e6ri fagi\u00f0\u201c, heldur \u00e1herslunni sem er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 \u201er\u00e9tt handverk\u201c fram yfir margt anna\u00f0 og hvernig vi\u00f0 afskrifum oft hi\u00f0 \u00f3venjulega sem skort \u00e1 \u201er\u00e9ttu handverki\u201c og reynum a\u00f0 beina \u00f6llum inn \u00ed \u201er\u00e9tt handverk\u201c enda s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u201er\u00e9tt\u201c. (Og h\u00e9r get \u00e9g ekki lagt n\u00f3ga \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 konur eru alveg jafn l\u00edklegar til a\u00f0 standa handan r\u00e9tts handverks og karlar \u2013&nbsp;og stundum uppskera \u00fe\u00e6r meira a\u00f0 segja fyrir \u00fea\u00f0, sj\u00e1i\u00f0 bara \u00c1stu Fanneyju!).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00e1 halda \u00fev\u00ed til haga l\u00edka a\u00f0 s\u00fa tilhneiging a\u00f0 fj\u00f6lga \u00feeim sem eiga a\u00f0komu a\u00f0 listaverki er ekki bara \u00fer\u00f3un sem er a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed b\u00f3kmenntum heldur ekki s\u00ed\u00f0ur \u00ed t\u00f3nlist \u2013&nbsp;venjulegt popplag \u00e1 heimsmarka\u00f0i er sami\u00f0 af 30 manna nefnd. Sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6ttir skrifa\u00f0ir af \u00f3tal manns og \u00fer\u00f3a\u00f0ir af marka\u00f0snefndum eru l\u00edka normi\u00f0 en auteur-kvikmyndir \u00e1 undanhaldi og svo framvegis. Hinn h\u00fdperkapital\u00edski marka\u00f0ur \u00fer\u00e1ir andlit \u00e1 v\u00f6runa en a\u00f0 r\u00f6ddin s\u00e9 brei\u00f0\u00f3ma og almenn \u2013&nbsp;hann vill a\u00f0 Sabrina Carpenter og Harry Styles fronti v\u00f6runa (vissulega me\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 gener\u00edskri fegur\u00f0) en a\u00f0 r\u00f6ddin s\u00e9 einhvers konar m\u00e1lami\u00f0lun e\u00f0a mi\u00f0gildi \u2013&nbsp;l\u00e6gsti samnefnari er ekki r\u00e9tta hugtaki\u00f0 en ekki alveg rangt, form\u00falut\u00f3nmenntir er ekki alveg r\u00e9tt hugtaki\u00f0 heldur, en \u00feetta er allt \u00ed \u00e1ttina. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6419\">Malin Axelsson \u00e1 vi\u00f0 \u00feegar h\u00fan segir a\u00f0 ungir leikh\u00fasgestir s\u00e9u vel lesnir \u00ed h\u00e1\u00fer\u00f3a\u00f0ri sagnalist<\/a> af \u00fev\u00ed \u00feeir hafi horft svo miki\u00f0 \u00e1 Netflix (\u00fear sem sama sagan er s\u00f6g\u00f0 aftur og aftur og aftur og aftur \u2013&nbsp;og allar n\u00fdjar s\u00f6gur beyg\u00f0ar a\u00f0 marka\u00f0sm\u00f3delinu). Neyslum\u00f3deli\u00f0 gengur \u00fat \u00e1 magn \u2013&nbsp;en \u00fea\u00f0 er hentugast a\u00f0 s\u00f6gunum svipi saman, a\u00f0 \u00e1 eftir Game of Thrones komi House of the Dragon og A Knight of Seven Kingdoms og helst l\u00edka Witcher og Vikings og svo framvegis. (Og reyndar m\u00e1 halda \u00fev\u00ed fram m\u00edn vegna a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 GoT f\u00f3r \u00ed skr\u00fafuna s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 \u00ed s\u00ed\u00f0ustu tveimur \u00fe\u00e1ttar\u00f6\u00f0unum var ekki lengur s\u00fdn h\u00f6fundarins til vi\u00f0mi\u00f0unar \u2013&nbsp;ekki b\u00fai\u00f0 a\u00f0 skrifa b\u00e6kurnar \u2013&nbsp;og nefndin einfaldlega l\u00e1tin st\u00fdra f\u00f6r, me\u00f0 fyrirsj\u00e1anlega \u00feunnildislegri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u). &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar n\u00f3gu margir koma a\u00f0 sama listaverkinu og f\u00e1 allir a\u00f0 taka \u00fat eitthva\u00f0 sem \u00feeim finnst glata\u00f0 ver\u00f0ur verki\u00f0 strauml\u00ednulaga\u00f0ra \u2013&nbsp;verki\u00f0 ver\u00f0ur meira \u201efyrir alla\u201c og minna afur\u00f0 tiltekinnar s\u00fdnar \u00e1 heiminn. Au\u00f0vita\u00f0 <em>\u00fearf<\/em> ed\u00edtering ekki a\u00f0 virka \u00feannig \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 hl\u00fd\u00f0ir enginn \u00f6llu sem hann er be\u00f0inn um a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u2013&nbsp;en \u00e9g \u00edmynda m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 beint samband milli \u00feess hversu marga ma\u00f0ur spyr \u201eer \u00feetta \u00ed lagi\u201c og \u201ehverju \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 breyta\u201c og \u00feess hversu \u00f6ruggur ma\u00f0ur s\u00e9 \u00ed sinni eigin s\u00fdn. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki endilega a\u00f0 ma\u00f0ur \u00e6tli a\u00f0 breyta \u00f6llu \u2013&nbsp;en ma\u00f0ur er sannarlega l\u00edklegri til \u00feess en ef ma\u00f0ur spyr ekki. Kosturinn vi\u00f0 f\u00f3lk sem \u00e1l\u00edtur sig snillinga \u2013&nbsp;me\u00f0 r\u00e9ttu og r\u00f6ngu \u2013&nbsp;er a\u00f0 \u00fea\u00f0 veit ekkert e\u00f0lilegra en a\u00f0 standa \u00ed f\u00e6turna. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g staldra\u00f0i l\u00edka vi\u00f0 st\u00e9ttarhugmyndina \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 var ekki fari\u00f0 mj\u00f6g dj\u00fapt \u00ed hana, sennilega var \u00feetta alveg \u00ed lok \u00fe\u00e1ttar sem h\u00fan kom upp. \u00dev\u00ed var allavega velt upp hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6tu ekki allir fari\u00f0 \u00ed ritlist \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 n\u00e1msl\u00e1n, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed bo\u00f0i. Og \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g vilja\u00f0 halda til haga \u2013&nbsp;og h\u00e9lt til haga, h\u00e9rna heima \u00ed eldh\u00fasi, vi\u00f0 \u00fatvarpst\u00e6ki\u00f0 mitt, \u00e9g veifa\u00f0i \u00e1rei\u00f0anlega pulsunni sem \u00e9g var a\u00f0 beikonvefja \u2013&nbsp;a\u00f0 st\u00e9ttir byrji ekki a\u00f0 virka upp \u00far tv\u00edtugu \u00feegar f\u00f3lk velur s\u00e9r h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1m. F\u00f3lki\u00f0 af st\u00e9ttunum sem fer ekki \u00ed ritlist (og hefur ekki r\u00f6dd) er f\u00f3lki\u00f0 sem kemur \u00fat \u00far grunnsk\u00f3lunum \u00e1n \u00feess a\u00f0 kunna a\u00f0 lesa. N\u00e1msl\u00e1n gera \u00fev\u00ed ekkert gagn af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 hefur ekki hloti\u00f0 atl\u00e6ti\u00f0 sem \u00fearf til \u00feess a\u00f0 geta l\u00e6rt. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u2013 og \u00e1 \u00feessum t\u00edmapunkti var \u00e9g meira byrja\u00f0ur a\u00f0 svara sj\u00e1lfum m\u00e9r, svarandi \u00fatvarpinu \u2013&nbsp;\u00fe\u00e1 skulum vi\u00f0 ekki gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 Yahya Hassan, heitinn, var \u00fatskrifa\u00f0ur \u00far hinum f\u00edna forfatterskole \u00ed Danm\u00f6rku. Og undantekningar b\u00e6\u00f0i sanna og afsanna reglur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00e1 l\u00edka minna sig \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 eldri konur s\u00e9u helstu menningarneytendur \u00feessa samf\u00e9lags er ekki eitthva\u00f0 sem \u201ebara gerist\u201c og sn\u00fdst sennilega ekki bara um a\u00f0 karlar hati listir \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 m\u00e1 alveg spyrja sig hvort komi fyrst h\u00e6nan og eggi\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed \u00f6llu saman og svari\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega fl\u00f3knara en \u201eh\u00e6nan\u201c e\u00f0a \u201eeggi\u00f0\u201c. Um daginn f\u00f3r \u00e9g \u00e1 tv\u00e6r t\u00f3nlistarkvikmyndir tvo daga \u00ed r\u00f6\u00f0 \u2013\u00a0fyrst \u00e1 Billie Eilish myndina og svo \u00e1 Iron Maiden myndina. \u00dea\u00f0 voru engar eldri konur \u00e1 \u00feessum myndum. Samf\u00e9lagi\u00f0 er \u00ed laginu einsog \u00fea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 m\u00f3tum \u00fea\u00f0 \u00feannig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski var \u00feetta allt og sumt sem \u00e9g sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fatvarpi\u00f0 \u00ed g\u00e6r. Nema \u00e9g hafi eitthva\u00f0 muldra\u00f0 l\u00edka um a\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi aldrei l\u00e6rt mikla ritlist \u2013\u00a0ef fr\u00e1 er talinn h\u00e1lfur vetur \u00ed H\u00cd upp \u00far aldam\u00f3tum, \u00fear sem m\u00e9r var kennt a\u00f0 segja \u201ehvort er\u201c en ekki \u201ehvort s\u00e9\u201c og a\u00f0 nota aldrei or\u00f0i\u00f0 \u201evar\u00f0andi\u201c \u00ed setningu e\u00f0a ne\u00f0anm\u00e1lsgreinar \u00ed sk\u00e1ldskap \u2013 \u00fe\u00e1 hef \u00e9g kennt ritlist b\u00e6\u00f0i atvinnum\u00f6nnum, unglingum og almennum borgurum, h\u00e9r og \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, vi\u00f0 litlar fr\u00e6\u00f0slumi\u00f0st\u00f6\u00f0var og merkilegar stofnanir einsog Biskops-Arn\u00f6. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>____________________ M\u00e9r hefur l\u00e1\u00f0st a\u00f0 nefna h\u00e9rna a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r \u00e1 d\u00f6gunum \u00ed hla\u00f0varp. \u00c9g var fyrsti og so far eini gestur \u00feessa hla\u00f0varps. \u00c9g held a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 kannski \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn sem \u00e9g m\u00e6ti \u00ed hla\u00f0varp. \u00c9g var einu sinni \u00ed vi\u00f0tali hj\u00e1 Sverri Norland \u00ed hla\u00f0varpi Forlagsins \u2013&nbsp;sem er eiginlega svindl, af &hellip; <a href=\"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6427\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00datvarp, hla\u00f0varp, sj\u00e1lfsvarp<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6427","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6427","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6427"}],"version-history":[{"count":7,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6427\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6440,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6427\/revisions\/6440"}],"wp:attachment":[{"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6427"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6427"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6427"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}