Eiríkur Örn Norðdahl (f. 1978) er rithöfundur, ljóðskáld og þýðandi. Verk hans hafa komið út á fjölda tungumála. Fyrir Illsku (2012) hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Bókin var auk þess tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Médicis-verðlaunanna. Náttúrulögmálin (2023) hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fimm ljóð, áttunda ljóðabók hans, kom út árið 2025. Hún hlaut tilnefningu til Maístjörnunnar árið 2026. Eiríkur var einn af stofnendum skáldahópsins Nýhils. Hann hefur einnig fengist við hljóðaljóð, myndljóð og myndbandsljóð. Myndbandsljóð hans Höpöhöpö Böks hlaut sérstaka viðurkenningu á Zebra Poetry Film Festival árið 2010. Meðal þýðinga hans eru verk eftir Allen Ginsberg, Jonathan Lethem og Athenu Farrokhzad. Hann hlaut Íslensku þýðingarverðlaunin árið 2008 fyrir Móðurlausa Brooklyn. Þýðing hans á alfabet eftir Inger Christensen er væntanleg frá Skriðu 2027.