{"id":5038,"date":"2016-02-21T15:06:00","date_gmt":"2016-02-21T15:06:00","guid":{"rendered":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5038"},"modified":"2016-02-21T15:06:00","modified_gmt":"2016-02-21T15:06:00","slug":"ur-leikskra-illsku","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5038","title":{"rendered":"\u00dar leikskr\u00e1 Illsku"},"content":{"rendered":"<p>Sonur fyrsta forseta hins \u00edslenska l\u00fd\u00f0veldis var me\u00f0limur \u00ed SS og starfa\u00f0i sem \u00e1r\u00f3\u00f0ursmeistari hj\u00e1 nasistum. Afi minn \u2013 h\u00e1lf\u00fe\u00fdskur\/h\u00e1lf\u00edsfirskur \u2013 var ekki or\u00f0inn sautj\u00e1n \u00e1ra \u00feegar hann var skr\u00e1\u00f0ur \u00ed sama flokk, af taugaveikla\u00f0ri \u00edsfirskri m\u00f3\u00f0ur sinni sem haf\u00f0i veri\u00f0 tj\u00e1\u00f0 a\u00f0 ef hann gengi \u00ed SS yr\u00f0i hann ekki sendur til R\u00fasslands (hann var sendur til R\u00fasslands). Fa\u00f0ir eins \u00e1stk\u00e6rasta f\u00f3tboltamanns \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u2013 Evald Mikson \u2013 var hugsanlega gerandi \u00ed fj\u00f6ldamor\u00f0um \u00e1 gy\u00f0ingum \u00ed Eistlandi, \u00fea\u00f0 f\u00e9kkst aldrei rannsaka\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir kr\u00f6fur Simon Wiesenthal stofnunarinnar \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi. Ein fyrsta b\u00f3kin sem ritu\u00f0 var um helf\u00f6rina var reynslusaga \u00cdslendings. St\u00e6rstu innflytjenda\u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 \u00cdslandi \u2013 P\u00f3lverjar og Lith\u00e1ar \u2013 eru me\u00f0al helstu f\u00f3rnarlamba helfararinnar. St\u00f3ri br\u00f3\u00f0ir fyrrverandi fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra var me\u00f0al forystumanna \u00edslenskra nasista og fj\u00f6ldinn allur af \u00f6\u00f0rum valdamiklum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir str\u00ed\u00f0 og alveg fram \u00e1 okkar daga hafa veri\u00f0 vi\u00f0ri\u00f0nir hreyfingar sem stefna leynt og lj\u00f3st a\u00f0 nokkurs konar kyn\u00fe\u00e1ttahreinsunum \u2013 og\/e\u00f0a hafa sj\u00e1lfir haft uppi umm\u00e6li sem \u00e6tla m\u00e1 a\u00f0 spretti \u00far sl\u00edkum jar\u00f0vegi.  Vi\u00f0 erum eyland en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur hluti af heiminum. Nazistan er alls sta\u00f0ar.   * * * \u00cdtalski gy\u00f0ingurinn, rith\u00f6fundurinn og helfarareftirlifandinn Primo Levi sag\u00f0i einhvern t\u00edma a\u00f0 okkur \u2013 mannkyni \u2013 b\u00e6ri helg skylda til \u00feess a\u00f0 skilja ekki helf\u00f6rina, n\u00e9 gera til \u00feess neina tilraun, \u00fev\u00ed sl\u00edkum skilningi g\u00e6ti fylgt nokkurs konar mennskunhryllingsins. \u00dea\u00f0 sem er mennskt er e\u00f0lilegt og n\u00e1tt\u00farulegt, og \u00fea\u00f0 sem er e\u00f0lilegt og n\u00e1tt\u00farulegt er hugsanlega \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt \u2013 en helfarir mega aldrei ver\u00f0a n\u00e1tt\u00farulega \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegar. Vi\u00f0 megum aldrei s\u00e6ttast vi\u00f0 tilvist \u00feeirra.  * * * Manninum finnst hann alltaf vera l\u00edtill og m\u00e1ttlaus. Angelu Merkel finnst h\u00fan l\u00edtil, Sigmundi Dav\u00ed\u00f0 finnst hann vera l\u00edtill, m\u00e9r finnst \u00e9g vera l\u00edtill, meira a\u00f0 segja K\u00e1ra Stef\u00e1nssyni finnst hann vera l\u00edtill. \u00d6llum finnst \u00feeir vera litlir, nema kannski Aino, d\u00f3ttur minni, sem finnst h\u00fan vera mj\u00f6g st\u00f3r \u2013 en \u00fea\u00f0 er misskilningur, h\u00fan er einmitt mj\u00f6g l\u00edtil. En vi\u00f0 hin, vi\u00f0 erum ekki l\u00edtil, vi\u00f0 erum st\u00f3r og eigum okkur enga afs\u00f6kun.  * * * \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0 stemning \u00ed kringum nasistaflokkinn. Og \u00fea\u00f0 voru d\u00e1l\u00edti\u00f0 s\u00e9rstakar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00fearna \u00e1 \u00feri\u00f0ja og fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ratugnum. Upplausn og kreppa og \u00fea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 taka \u00ed tauminn. Kannski ekki svona harkalega, \u00feegar ma\u00f0ur hugsar \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0, en \u00fea\u00f0 er gott a\u00f0 vera vitur eftir\u00e1 og ekki n\u00f3g a\u00f0 vilja vel, ma\u00f0ur \u00fearf l\u00edka a\u00f0 vera rei\u00f0ub\u00fainn til \u00feess a\u00f0 taka erfi\u00f0u \u00e1kvar\u00f0anirnar, d\u00edla vi\u00f0 realpolitik. Ver\u00f6ldin er ekki bara mann\u00fa\u00f0 og gotter\u00ed.  * * * Eyjarskeggjum finnst \u00feeir vera afskekktir. \u00cdsland er grj\u00f3t \u00ed hafinu og meira a\u00f0 segja okkur sem b\u00faum h\u00e9rna finnst vi\u00f0 stundum standa utan vi\u00f0 mannkynss\u00f6guna, \u00ed \u00e6vint\u00fdralandinu sem vi\u00f0 leikum ofan \u00ed t\u00faristana \u2013 \u00e1lfar og hulduf\u00f3lk \u2013 frekar en \u00ed henni mi\u00f0ri. P\u00ednul\u00edtil og \u00f3merkileg.  * * * Primo Levi lag\u00f0i \u2013 hva\u00f0 sem \u00feessum or\u00f0um hans um skilninginn l\u00ed\u00f0ur \u2013 br\u00f3\u00f0urpart \u00e6vi sinnar \u00ed a\u00f0 hugsa um helf\u00f6rina og hugsanlega var \u00fea\u00f0 h\u00fan sem rei\u00f0 honum \u00e1 endanum a\u00f0 fullu. Eftir sj\u00e1lfsmor\u00f0i\u00f0 1987 sag\u00f0i n\u00f3belsver\u00f0launahafinn Elie Wiesel \u2013 sem einnig lif\u00f0i af \u00fatr\u00fdmingarb\u00fa\u00f0ir nasista \u2013 a\u00f0 Primo hef\u00f0i d\u00e1i\u00f0 \u00ed Auschwitz, fj\u00f6rut\u00edu \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar.  * * * \u00de\u00f3rbergur var einsog fr\u00e6gt er \u00e1k\u00e6r\u00f0ur fyrir a\u00f0 kalla Hitler sadista og bl\u00f3\u00f0hund \u2013 \u00e1ri\u00f0 1934, \u00e1tta \u00e1rum \u00e1\u00f0ur en hin eiginlega helf\u00f6r var vottu\u00f0 og stimplu\u00f0 \u00e1 Wannsee r\u00e1\u00f0stefnunni. Hitler var varla b\u00fainn a\u00f0 missa barnatennurnar \u00feegar \u00fea\u00f0 var lj\u00f3st \u00ed hva\u00f0 stefndi.  \u00c1ri \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i Steinn Steinarr \u00e1samt tveimur \u00f6\u00f0rum veri\u00f0 \u00e1k\u00e6r\u00f0ur fyrir a\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur nasistaf\u00e1na \u00e1 Siglufir\u00f0i.  Hinga\u00f0 komu Gy\u00f0ingar sem s\u00f3ttu um h\u00e6li \u2013 m\u00e6ttu sj\u00e1lfsagt vegabr\u00e9fslausir me\u00f0 skr\u00edtin h\u00f6fu\u00f0f\u00f6t, kunnu enga \u00edslensku og neitu\u00f0u a\u00f0 bor\u00f0a sv\u00ednakj\u00f6t einsog almindelige mennesker \u2013 og voru \u201esendir heim til s\u00edn\u201c, e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta til Danmerkur (sem hefur hugsanlega, merkilegt nokk, veri\u00f0 sk\u00e1rra \u00fe\u00e1 en n\u00fa), eftir \u00farskur\u00f0 fr\u00e1 k\u00e6runefnd \u00fatlendingam\u00e1la sem sta\u00f0festir \u00fear me\u00f0 upprunalega \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00datlendingastofnunar \u2026 e\u00f0a nei, annars, \u00fea\u00f0 ferli kom til s\u00ed\u00f0ar.  Nazistan er nefnilega alls sta\u00f0ar. Og alltaf.  * * *  Ef eitthvert \u201eokkar\u201c var \u00e1 s\u00ednum t\u00edma nasisti \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 jafnan \u00fatsk\u00fdrt \u00feannig \u2013 eftir\u00e1 \u2013 a\u00f0 \u00ed raun og veru hef\u00f0i vi\u00f0komandi bara veri\u00f0 svo miki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti komm\u00fanistum, og lent \u00feannig alveg \u00f3vart \u00ed skilyr\u00f0islausum stu\u00f0ningi vi\u00f0 Adolf Hitler, frekar en a\u00f0 hann e\u00f0a h\u00fan hef\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 \u00feeirri yfirvegu\u00f0u p\u00f3lit\u00edsku sko\u00f0un a\u00f0 tro\u00f0a b\u00e6ri millj\u00f3num manns \u00ed gasklefa til a\u00f0 hreinsa Evr\u00f3pu af kyn\u00fe\u00e1tta\u00f3v\u00e6runni.  \u00deetta er au\u00f0vita\u00f0 tab\u00fa n\u00fana. \u00dea\u00f0 myndi enginn bj\u00f3\u00f0a sig fram me\u00f0 sl\u00edkt \u00e1 stefnuskr\u00e1nni. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri bilun! En \u00feetta voru a\u00f0rir t\u00edmar.  Dj\u00f3k.  * * * Kannski vaknar ma\u00f0ur einn daginn me\u00f0 burstaskegg \u00ed le\u00f0urst\u00edgv\u00e9lum. En ma\u00f0ur s\u00e9r \u00fea\u00f0 ekki gerast, st\u00edgur ekki skyndilega yfir einhverja l\u00ednu og b\u00famm er or\u00f0inn nasisti. En \u00fea\u00f0 gerist samt. Daglega. Skref fyrir skref. Sumir ver\u00f0a miklir og einl\u00e6gir nasistar, a\u00f0rir ver\u00f0a meiri diet-nasistar og enn a\u00f0rir \u2013 flestir \u2013 ver\u00f0a svona jamm-og-j\u00e6jandi nasistar. Svona \u00fea\u00f0-er-\u00fev\u00ed-mi\u00f0ur-ekkert-vi\u00f0-\u00feessu-a\u00f0-geranasistar. Sorr\u00ed.  Svo eru nokkrir sem ver\u00f0a s\u00f3s\u00edalistar. \u00deeir skiptast \u00ed tvo flokka, \u00fe\u00e1 sem eru varla sk\u00f6mminni sk\u00e1rri og hina sem ver\u00f0a flj\u00f3tlega skotnir.  * * * En \u00fea\u00f0 er ekki sama a\u00f0 skrifa og skilja. Primo Levi ger\u00f0i sj\u00e1lfur greinarmun \u00fear \u00e1 og sag\u00f0i a\u00f0 \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 skilja b\u00e6ri okkur skylda til a\u00f0 vita og hugsa um helf\u00f6rina, a\u00f0 m\u00e6ta henni \u2013 einmitt vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan ger\u00f0ist og vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti gerst aftur (\u00fev\u00ed m\u00e6tti jafnvel halda fram a\u00f0 h\u00fan hafi gerst aftur, s\u00e9 a\u00f0 gerast aftur, e\u00f0a a\u00f0 gagnvart t.d. roma-f\u00f3lki hafi henni aldrei beinl\u00ednis loki\u00f0).  * * * Nasisminn er hugsa\u00f0ur \u00ed hreinum l\u00ednum \u2013 \u00fevers og kruss um samf\u00e9lagi\u00f0, \u00fe\u00fa ert anna\u00f0 hvort me\u00f0 t\u00farb\u00f6nu\u00f0um terroristum \u00ed li\u00f0i e\u00f0a \u00fe\u00fa ert hlynntur \u00fev\u00ed a\u00f0 lyf ver\u00f0i ni\u00f0urgreidd ofan \u00ed f\u00e1rsj\u00fakar \u00f6mmur og \u00f6ryrkja. Allt er hreint, sk\u00fdrt og einfalt.  * * * Og au\u00f0vita\u00f0 erum vi\u00f0 ekki s\u00ed\u00f0ur mannkynssagan en a\u00f0rir. Skri\u00f0\u00feungi hennar. Og Hitler bau\u00f0 sig ekki fram me\u00f0 \u00fev\u00ed foror\u00f0i a\u00f0 hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 \u00fatr\u00fdma f\u00f3lki \u2013 ekki frekar en Marine Le Pen e\u00f0a Jimmie \u00c5kesson \u2013 \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 sj\u00e1um \u00fe\u00e1 tendensa berlega hj\u00e1 honum baks\u00fdnisspeglinum (og fleiri hef\u00f0u \u00e1tt a\u00f0 koma auga \u00e1 fyrr). Hann bau\u00f0 sig fram me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 gera samf\u00e9lagi\u00f0 fallegra og betra \u2013 hann vildi bara a\u00f0 f\u00f3lk hef\u00f0i t\u00e6kif\u00e6ri til \u00feess a\u00f0 lifa manns\u00e6mandi l\u00edfi. Sumt f\u00f3lk. Hans f\u00f3lk. Heimamenn. Hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i.  * * * \u00deegar \u00e9g skrifa\u00f0i b\u00f3kina \u2013 sem t\u00f3k fj\u00f6gur \u00e1r \u2013 fannst m\u00e9r \u00e1standi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt versna. Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ardem\u00f3kratar komust \u00e1 \u00feing, Sannir Finnar st\u00e6kku\u00f0u, sem og Le Front National og Dansk Folkeparti, Fidesz n\u00e1\u00f0i v\u00f6ldum, Breivik sl\u00e1tra\u00f0i f\u00f3lki (og Nor\u00f0menn notu\u00f0u t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 til a\u00f0 minna heimsbygg\u00f0ina vi\u00f0st\u00f6\u00f0ulaust \u00e1 hva\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru miklu betri en a\u00f0rir) og svo framvegis og svo framvegis. \u00c9g sat vi\u00f0 og skrifa\u00f0i \u00ed mismiklu \u00f3r\u00e1\u00f0i og einhverri tilfinningu fyrir nau\u00f0syn \u2013 fannst \u00ed senn a\u00f0 b\u00f3kin yr\u00f0i \u00f3lesanlegur haugur af sturlu\u00f0u r\u00f6fli og \u00fea\u00f0 myndi gera \u00fat af vi\u00f0 mig a\u00f0 skrifa hann.  * * * Ef vi\u00f0 viljum standa gegn hinu fas\u00edska valdi \u2013 og skri\u00f0\u00feunga \u00feess \u2013 ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 leyfa okkur a\u00f0 hafna sk\u00fdrum dr\u00e1ttum. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 gera okkar fremsta til \u00feess a\u00f0 hugsa ekki einsog nasistar. A\u00f0 m\u00e6ta ekki hinu fas\u00edska valdi me\u00f0 \u00f6\u00f0ru eins; \u00e6tla okkur ekki a\u00f0 reka \u00fat myrkri\u00f0 me\u00f0 meira myrkri. Og \u00fea\u00f0 \u2013 \u00fea\u00f0 er miklu meiri vinna og fyrirh\u00f6fn en ma\u00f0ur g\u00e6ti \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r. \u00dea\u00f0 krefst \u00feess af okkur a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um linnulaust f\u00f3lk, me\u00f0 allri \u00feeirri mann\u00fa\u00f0 og \u00edhugun sem \u00ed \u00fev\u00ed felst.  * * * \u00c9g haf\u00f0i \u00feess utan og \u00e1 hinn b\u00f3ginn \u2013 \u00ed \u00f6llum m\u00ednum stj\u00f3rnlausa h\u00e9g\u00f3ma \u2013 brennandi \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 von br\u00e1\u00f0ar myndi b\u00f3lan springa, n\u00fdjabrumi\u00f0 fara af nasismanum, og \u00e9g sitja eftir me\u00f0 \u00farelt verk. Sem v\u00e6ri au\u00f0vita\u00f0 gott fyrir heiminn, en ekki jafn gott fyrir mig. Eftir fj\u00f6gurra \u00e1ra sl\u00edtandi \u00fer\u00e6ld\u00f3m.  * * * \u00cd \u00e1r eru li\u00f0in fj\u00f6gur \u00e1r fr\u00e1 \u00fatg\u00e1fu \u2013 \u00e1tta s\u00ed\u00f0an \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 skrifa. Gr\u00edmukl\u00e6ddir menn fara um Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og l\u00faskra \u00e1 innflytjendum. Um alla Evr\u00f3pu bera nasistar eld a\u00f0 fl\u00f3ttamannah\u00e6lum. Fasistar skj\u00f3ta bla\u00f0amenn, t\u00f3nleikagesti. Vi\u00f0 hin st\u00f6ndum \u00ed eldl\u00ednunni milli hv\u00edtra fasista og salaf\u00edskra, hvort sem er \u00ed Par\u00eds, Raqqa e\u00f0a Rio, og deyjum upp \u00ed opi\u00f0 ge\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00feeim \u00e1 me\u00f0an stj\u00f3rnm\u00e1lamenn svipta okkur s\u00edfellt fleiri l\u00fd\u00f0r\u00e9ttindum og fyrirskipa frekari loft\u00e1r\u00e1sir, meira ofbeldi, sem gerir sitt (til\u00e6tla\u00f0a?) gagn og upp \u00far \u00f6skunni r\u00edsa enn fleiri fasistar.  Einsog f\u00f6nixar.   H\u00farra.  * * * A\u00f0 skilja helf\u00f6rina er a\u00f0 \u00fev\u00ed leytinu til samb\u00e6rilegt \u00fev\u00ed a\u00f0 leggjast me\u00f0 d\u00fdrum a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einsog a\u00f0 nau\u00f0ga hinu mannlega upp \u00e1 hi\u00f0 d\u00fdrslega. Si\u00f0menning skilningsins \u00e1 ekkert erindi vi\u00f0 barbar\u00ed hins \u00f3skiljanlega.       Birtist fyrst \u00ed leikskr\u00e1 Illsku, sem er n\u00fa \u00e1 svi\u00f0inu \u00ed Borgarleikh\u00fasinu \u00e1 vegum \u00d3skabarna \u00f3g\u00e6funnar. \u00d6rf\u00e1ir mi\u00f0ar lausir .<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sonur fyrsta forseta hins \u00edslenska l\u00fd\u00f0veldis var me\u00f0limur \u00ed SS og starfa\u00f0i sem \u00e1r\u00f3\u00f0ursmeistari hj\u00e1 nasistum. Afi minn \u2013 h\u00e1lf\u00fe\u00fdskur\/h\u00e1lf\u00edsfirskur \u2013 var ekki or\u00f0inn sautj\u00e1n \u00e1ra \u00feegar hann var skr\u00e1\u00f0ur \u00ed sama flokk, af taugaveikla\u00f0ri \u00edsfirskri m\u00f3\u00f0ur sinni sem haf\u00f0i veri\u00f0 tj\u00e1\u00f0 a\u00f0 ef hann gengi \u00ed SS yr\u00f0i hann ekki sendur til R\u00fasslands (hann &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5038\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00dar leikskr\u00e1 Illsku<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-5038","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5038","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5038"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5038\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5038"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5038"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5038"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}