{"id":5092,"date":"2024-04-17T17:05:54","date_gmt":"2024-04-17T17:05:54","guid":{"rendered":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092"},"modified":"2025-04-24T14:34:10","modified_gmt":"2025-04-24T14:34:10","slug":"ad-fedra-fodur-sinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092","title":{"rendered":"A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 eru tvenns konar rith\u00f6fundar \u00ed heiminum. \u00deeir sem \u00feykjast vera skr\u00edtnari en \u00feeir eru og \u00feeir sem \u00feykjast vera venjulegri en \u00feeir eru. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ulysses myndin fr\u00e1 1967 me\u00f0 Milo O&#8217;Shea, Maurice Ro\u00ebves og Barb\u00f6ru Jefford er miki\u00f0 fyrirtak \u2013\u00a0eiginlega alveg d\u00e1samleg. \u00dea\u00f0 er reyndar vel hugsanlegt a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feurfi a\u00f0 hafa lesi\u00f0 b\u00f3kina til \u00feess a\u00f0 nj\u00f3ta hennar \u2013\u00a0og kl\u00e1mi\u00f0 er allt skori\u00f0 \u00fat e\u00f0a strauml\u00ednulaga\u00f0, einsog vi\u00f0 er a\u00f0 b\u00faast, en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u00ed anda b\u00f3karinnar a\u00f0 halda \u00fev\u00ed, leyfa Bloom bara a\u00f0 r\u00fanka s\u00e9r \u00ed fullri reisn og Nighttown fantas\u00edunum a\u00f0 spora \u00fat \u00ed argasta kl\u00e1m. En hafa allt hitt samt eins. En \u00fea\u00f0 hef\u00f0i l\u00edka veri\u00f0 meiri \u00e1skorun. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g horf\u00f0i l\u00edka \u00e1 Heddu Gabler eftir Ibsen \u2013\u00a0uppf\u00e6rslu a\u00f0laga\u00f0a fyrir sj\u00f3nvarp me\u00f0 Ingrid Bergman \u00ed a\u00f0alhlutverki. \u00c9g hef aldrei kynnt m\u00e9r Ibsen neitt og geri \u00fea\u00f0 bara af \u00fev\u00ed Joyce (sem \u00e9g er me\u00f0 \u00e1 heilanum \u00feessa dagana, einsog einhver kann a\u00f0 hafa teki\u00f0 eftir) d\u00fdrka\u00f0i hann \u2013\u00a0l\u00e6r\u00f0i meira a\u00f0 segja norsku til \u00feess a\u00f0 geta skrifa\u00f0 honum br\u00e9f \u00e1 s\u00ednu eigin m\u00e1li \u2013\u00a0til \u00feess a\u00f0 tilkynna honum a\u00f0 hann g\u00e6ti \u00f3hr\u00e6ddur fari\u00f0 a\u00f0 deyja, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri kominn arftaki, hann myndi sj\u00e1 um b\u00f3kmenntirnar h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1. Joyce var \u00fe\u00e1 19 \u00e1ra og haf\u00f0i n\u00fdveri\u00f0 skrifa\u00f0 afar lofsamlegan leikd\u00f3m um eitt af verkum Ibsens og Ibsen haf\u00f0i litist svo \u00e1 textann a\u00f0 hann skrifa\u00f0i ritstj\u00f3ranum og lofa\u00f0i leikd\u00f3marann. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En sem sagt. Hedda Gabler? M\u00e9r fannst \u00feetta n\u00fa heldur \u00feunnt. \u00cd sj\u00e1lfu s\u00e9r var uppsetningin ekki g\u00f3\u00f0 en \u00feetta plott er l\u00edka alveg f\u00e1r\u00e1nlega dramat\u00edskt \u2013\u00a0\u00f3gurlegar p\u00f3seringar yfir g\u00e1fum g\u00e1fumenna og vi\u00f0kv\u00e6mum tilfinningum borgarast\u00e9ttarinnar. M\u00e9r fannst verst hva\u00f0 \u00fea\u00f0 voru f\u00e1ir sem endu\u00f0u \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 fremja sj\u00e1lfsmor\u00f0 og voru \u00fea\u00f0 engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00f3nokkrir. \u00d3\u00feolandi f\u00f3lk. Og l\u00e9legur texti. Eftir a\u00f0 hafa horft \u00e1 alla Hamlettanna um daginn me\u00f0 leikurum \u00e1 \u00f6llum aldri \u2013\u00a0og eftir umr\u00e6\u00f0u sem \u00e9g hef reki\u00f0 mig \u00e1 um aldur a\u00f0alleikarans \u00ed \u201enetflix-ser\u00edu augnabliksins\u201c, Ripley \u2013\u00a0\u00fe\u00e1 fannst m\u00e9r l\u00edka \u00e1hugavert a\u00f0 sj\u00e1 Ingrid Bergman leika konu sem \u00e1tti svo auglj\u00f3slega a\u00f0 vera miklu yngri. \u00c9g sl\u00f3 \u00fev\u00ed upp \u00e1\u00f0an og Hedda var skrifu\u00f0 29 \u00e1ra en Ingrid l\u00e9k hana 48 \u00e1ra. \u00dea\u00f0 var reyndar ekki jafn truflandi og a\u00f0 sj\u00e1 41 \u00e1rs Laurence Olivier leika \u00fer\u00edtugan Hamlet \u2013 sennilega af \u00fev\u00ed leikkonan sem l\u00e9k m\u00f6mmu hans var sj\u00e1lf ekki nema \u00fer\u00edtug. Tom Ripley \u00e1 vel a\u00f0 merkja a\u00f0 vera 25 \u00e1ra en er leikinn af 47 \u00e1ra manni. M\u00e9r finnst reyndar vandr\u00e6\u00f0alaust a\u00f0 aldra \u00feann karakter. Anna\u00f0 en me\u00f0 Heddu og Hamlet \u00fe\u00e1 er ekki \u00feessi unglingslegi van\u00feroski lykil\u00fe\u00e1ttur \u00ed pers\u00f3nuleika hans \u2013\u00a0\u00feeirri tegund van\u00feroska fylgir mikill kraftur og sjarmi \u00ed ungu fallegu f\u00f3lki, og hann getur gert a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00fea\u00f0 kemst upp me\u00f0 \u00fdmislegt sem \u00fea\u00f0 k\u00e6mist ekki upp me\u00f0 s\u00ed\u00f0ar (eftir einhvern tiltekinn aldur h\u00e6ttir f\u00f3lk a\u00f0 komast upp me\u00f0 a\u00f0 \u201elofa g\u00f3\u00f0u\u201c og\u00a0samf\u00e9lagi\u00f0 h\u00e6ttir a\u00f0 g\u00faddera hortugheitin \u00ed \u00feeim sem s\u00e6t). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svar: \u00dea\u00f0 \u00fearf sk\u00e1ld til a\u00f0 skipta um \/\/ lj\u00f3sar perur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g dragnast \u00ed gegnum m\u00farsteininn hans Richards Ellmans um Joyce. \u00deetta er feikna \u00e1hugavert og brj\u00e1l\u00e6\u00f0islega vel gert \u2013\u00a0en l\u00edka rosalega \u00edtarlegt og stundum ber t\u00falkunargle\u00f0in s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inginn ofurli\u00f0i. \u00c9g er a\u00f0 fara til Nap\u00f3li eftir tv\u00e6r vikur og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 endurlesa The Skin eftir Curzio Malaparte fyrir fer\u00f0ina og jafnvel frumlesa l\u00edka Gomorrah eftir Roberto Saviano en \u00fea\u00f0 er spurning hvort \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur nokku\u00f0 af \u00fev\u00ed. \u00c9g er l\u00edka a\u00f0 fara til Grikklands eftir viku og l\u00e6t duga a\u00f0 vera n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 lesa Odysseif! <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars f\u00f3r \u00e9g \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0 \u00ed A\u00feenu \u00ed fyrra og l\u00e9t m\u00e6la me\u00f0 fyrir mig The Flaw eftir Antonis Samarakis \u2013\u00a0sem er einsog Kafka hittir Chandler hittir &#8230;. segjum bara Schnitzler. Kannski fer \u00e9g \u00ed einhverja \u00e1l\u00edka me\u00f0m\u00e6lafer\u00f0 \u00ed Skopelos. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ellmann er auglj\u00f3slega \u2013 einsog \u00e6visagnah\u00f6fundar \u00feurfa \u00e1rei\u00f0anlega oftast a\u00f0 vera \u2013\u00a0frekar miki\u00f0 \u00ed \u201e\u00e6vis\u00f6gulegu a\u00f0fer\u00f0inni\u201c. Hann leitar fyrirmynda \u00ed l\u00edfi Joyce a\u00f0 \u00f6llu sem hann hefur skrifa\u00f0 og rekur hvernig \u00f3l\u00edkar pers\u00f3nur s\u00e9u samansettar \u00far t.d. pabba hans, honum sj\u00e1lfum, einhverjum vini o.s.frv. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Joyce skrifa\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 talsvert um \u201esj\u00e1lfan sig\u201c \u2013\u00a0s\u00e9rstaklega undir heitinu Stephen Dedalus \u2013\u00a0og svo er fr\u00e6gustu b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0iskrif hans sj\u00e1lfs r\u00e6\u00f0a Dedalusar um hver s\u00e9 fyrirmynd Hamlets, \u00fear sem fram kom a\u00f0 Shakespeare v\u00e6ri draugurinn, fa\u00f0ir Hamlets, og raunar sem skapari\/fa\u00f0ir draugsins l\u00edka afi Hamlets. En \u00fe\u00e1 ber au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 \u00fe\u00e1 r\u00e6\u00f0u flutti ekki Joyce (\u00fe\u00f3tt hann hafi sagt eitthva\u00f0 l\u00edkt sj\u00e1lfur) heldur sta\u00f0gengill hans Dedalus. Og vegna \u00feess a\u00f0 Joyce skrifa\u00f0i \u00feetta er l\u00edka freistandi a\u00f0 sko\u00f0a \u201ef\u00f6\u00f0urinn\u201c \u00ed Ulysses, Leopold Bloom, sem hinn eiginlega Joyce-sta\u00f0gengil b\u00f3karinnar \u2013 og \u00fea\u00f0 m\u00e1 sannarlega finna hellings miki\u00f0 af sj\u00e1lfs\u00e6vis\u00f6gulegum sm\u00e1atri\u00f0um til \u00feess a\u00f0 \u00fdta undir \u00fe\u00e1 kenningu (Joyce og Nora sv\u00e1fu til d\u00e6mis andf\u00e6tis einsog Leopold og Molly). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef Joyce er \u00fe\u00e1 Bloom er hann l\u00edka skapari\/fa\u00f0ir Blooms og \u00fear me\u00f0 afi Dedalusar! Sem er hann sj\u00e1lfur! Og svo er au\u00f0vita\u00f0 forvitnilegt a\u00f0 Leopold skuli ekki heita Ulysses \u2013\u00a0Stephen, sem sm\u00ed\u00f0ar s\u00e9r v\u00e6ngi og fl\u00fdgur burt fr\u00e1 Dublin, f\u00e6r a\u00f0 heita Dedalus. Hver er \u00fe\u00e1 Ulysses? <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og au\u00f0vita\u00f0 er \u00feetta me\u00f0al \u00feess sem Joyce dregur fram \u00ed lesendum s\u00ednum \u2013\u00a0l\u00f6ngun til \u00feess a\u00f0 uppg\u00f6tva einhverjar tengingar (sennilega er engin kenning um Joyce lengur n\u00fd, en \u00fea\u00f0 er gaman a\u00f0 hugsa sig fram til einhvers sem ma\u00f0ur vissi ekki sj\u00e1lfur um \u00e1\u00f0ur). Ellmann er sem sagt vorkunn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld, lj\u00f3\u00f0m\u00e6landi og pl\u00fas-x komu inn \u00e1 bar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Menningarstr\u00ed\u00f0in halda \u00e1fram. Einu sinni var Eurovision ein til tv\u00e6r kv\u00f6ldstundir yfir sj\u00f3nvarpinu. N\u00fa eru \u00f3tal undankeppnir, s\u00edmakosningar og s\u00edmakosningasvindl, blogg og youtuber\u00e1sir, s\u00e9rstakir sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6ttir um undankeppnirnar \u00ed \u00f6llum hinum l\u00f6ndunum og n\u00fa s\u00ed\u00f0ast si\u00f0fer\u00f0islegt sprengjusv\u00e6\u00f0i. Fokkins Eurovision. \u00dea\u00f0 er l\u00edka allt \u00e1 hvolfi \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00fat af n\u00fdjum l\u00f6gum um kynskr\u00e1ningu. L\u00e1gmarksaldur til \u00feess a\u00f0 s\u00e6kja um breytingu \u00e1 kynskr\u00e1ningu var \u00ed dag f\u00e6r\u00f0ur ni\u00f0ur \u00ed 16 \u00e1r \u2013 en foreldrar \u00feurfa samt a\u00f0 s\u00e6kja um. Hitt skiptir sennilega meiru a\u00f0 f\u00f3lk \u00fearf ekki lengur a\u00f0 vera me\u00f0 greindan kynama til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 breyta kynskr\u00e1ningu heldur \u00e1 n\u00fa a\u00f0 duga stutt l\u00e6knissko\u00f0un. L\u00f6gin \u00e1 \u00cdslandi eru vel a\u00f0 merkja \u00feannig a\u00f0 allir yfir 15 \u00e1ra aldri geta s\u00f3tt um breytta kynskr\u00e1ningu \u00e1n nokkurra hindrana og foreldrar barna undir 15 \u00e1ra geta s\u00f3tt um fyrir vi\u00f0komandi. \u00deeir sem eru yfir 18 \u00e1ra geta bara s\u00f3tt um breytta kynskr\u00e1ningu einu sinni. Einhvern t\u00edma voru Sv\u00edar n\u00fa mest l\u00edberal \u00ed \u00feessum efnum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 eru tvenns konar rith\u00f6fundar \u00ed heiminum. \u00deeir sem \u00feykjast vera skr\u00edtnari en \u00feeir eru og \u00feeir sem \u00feykjast vera venjulegri en \u00feeir eru. *** Ulysses myndin fr\u00e1 1967 me\u00f0 Milo O&#8217;Shea, Maurice Ro\u00ebves og Barb\u00f6ru Jefford er miki\u00f0 fyrirtak \u2013\u00a0eiginlega alveg d\u00e1samleg. \u00dea\u00f0 er reyndar vel hugsanlegt a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feurfi a\u00f0 hafa lesi\u00f0 b\u00f3kina &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-5092","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5092","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5092"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5092\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5965,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5092\/revisions\/5965"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5092"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5092"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5092"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}