{"id":5594,"date":"2024-03-19T14:44:44","date_gmt":"2024-03-19T14:44:44","guid":{"rendered":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594"},"modified":"2025-04-24T14:34:10","modified_gmt":"2025-04-24T14:34:10","slug":"gerty-macdowell-silvia-nott-og-list-parodiunnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594","title":{"rendered":"Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g l\u00e1 andvaka \u00ed n\u00f3tt og f\u00f3r a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r e\u00f0li par\u00f3d\u00edunnar \u2013\u00a0upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa annars vegar rifja\u00f0 upp Silv\u00edu N\u00f3tt me\u00f0 kr\u00f6kkunum og hins vegar verandi b\u00fainn me\u00f0 (\u00fea\u00f0sem\u00e9ghelda\u00f0s\u00e9u) par\u00f3d\u00edskustu kaflar Ulysses , Cyclops, Nausicaa og Oxen of the Sun. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 flestir \u00feekki til Silv\u00edu en \u00e9g skal fara stuttlega yfir \u00feessa kafla. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Cyclops gerist \u00e1 barnum Barney Kiernan&#8217;s. S\u00f6guma\u00f0ur er nafnleysingi sem talar \u00ed fyrstu pers\u00f3nu (\u201eI\u201c ver\u00f0ur \u201eeye\u201c \u2013\u00a0auga k\u00fdkl\u00f3psins) og kjarninn \u00ed kaflanum eru samr\u00e6\u00f0ur manna \u00e1 bar, ekki s\u00edst Leopolds Bloom, a\u00f0als\u00f6guhetju Ulysses, og manns sem er kalla\u00f0ur \u201ethe citizen\u201c og er s\u00edns t\u00edma \u00edrskur trumpisti \u2013\u00a0gy\u00f0ingahatari og \u00fej\u00f3\u00f0remba. Umr\u00e6\u00f0uefni\u00f0 er \u00cdrlands gagn og nau\u00f0synjar \u2013\u00a0\u00edrsk menning, \u00edrskar \u00ed\u00fer\u00f3ttir, innflytjendur (og hverjir s\u00e9u innflytjendur) und so weiter. Fyrstupers\u00f3nufr\u00e1s\u00f6gnin er s\u00ed\u00f0an brotin upp af alls kyns millik\u00f6flum \u00ed \u00f3l\u00edkum og afar \u00fdktum st\u00edlum \u2013 t.d. er the citizen fyrst l\u00fdst svona: <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">The figure seated on a large boulder at the foot of a round tower was that of a broadshouldered deepchested stronglimbed frankeyed redhaired freelyfreckled shaggybearded widemouthed largenosed longheaded deepvoiced barekneed brawnyhanded hairylegged ruddyfaced sinewyarmed hero. From shoulder to shoulder he measured several ells and his rocklike mountainous knees were covered, as was likewise the rest of his body wherever visible, with a strong growth of tawny prickly hair in hue and toughness similar to the mountain gorse (Ulex Europeus) <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta heldur reyndar \u00e1fram lengi. Alls eru \u00feessi framm\u00edgrip \u00ed kaflanum r\u00edflega \u00ferj\u00e1t\u00edu talsins og vel flest ef ekki \u00f6ll \u00ed einhvers konar hetjusagnast\u00edl. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6sti kafli, Nausicaa, er sj\u00e1lfsfr\u00f3unarkaflinn fr\u00e6gi. \u00de\u00e1 erum vi\u00f0 st\u00f6dd \u00e1 Sandymount Strand og sagan er aftur \u00ed \u00feri\u00f0ju pers\u00f3nu. Fyrri hluta kaflans sj\u00e1um vi\u00f0 atbur\u00f0i fr\u00e1 sj\u00f3narhorni ungrar st\u00falku, Gerty MacDowell, sem s\u00e9r Leopold Bloom \u00e1lengdar og gerir s\u00e9r um hann \u00fdmsar r\u00f3mant\u00edskar hugmyndir. Kaflinn n\u00e6r h\u00e1marki s\u00ednu \u00feegar h\u00fan hefur beygt sig fram svo hann sj\u00e1i vel upp um pilsi\u00f0 \u00e1 henni me\u00f0an hann fr\u00f3ar s\u00e9r og f\u00e6r fulln\u00e6gingu \u00e1 sama t\u00edma og flugeldas\u00fdning hefst ni\u00f0ri \u00ed b\u00e6. Eftir fulln\u00e6gingu f\u00f6rum vi\u00f0 aftur inn \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 Bloom. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allan t\u00edmann sem vi\u00f0 erum \u00ed h\u00f6f\u00f0inu \u00e1 Gerty MacDowell er st\u00edll b\u00f3karinnar par\u00f3d\u00eda af \u00e1stars\u00f6gum 19. aldar \u2013\u00a0h\u00fdperr\u00f3mant\u00edskur og afar upptekinn af allri \u00e1s\u00fdnd hluta. Ef the citizen minnir n\u00fat\u00edmamann \u00e1 \u00e6stan trumpista minnir Gerty mann \u00e1 \u00e1hrifavald \u00e1 instagram. St\u00edllinn er tilger\u00f0arlegur og \u00fdtir jafnvel a\u00f0 einhverju leyti undir \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 ma\u00f0ur s\u00e9 alls ekki \u00ed h\u00f6f\u00f0inu \u00e1 Gerty sj\u00e1lfri, heldur s\u00e9 \u00feetta fantas\u00eda Blooms um hugsanir Gertys. \u00dea\u00f0 \u00fearf ekki a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 \u00feannig \u2013 \u00fea\u00f0 er l\u00edka \u00e1hugaver\u00f0ur lestur a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 sitt eigi\u00f0 vi\u00f0fang, hin frj\u00e1lsa unga kona \u00ed ka\u00fe\u00f3lsku landi, og \u00fear me\u00f0 l\u00fdsing \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig ma\u00f0ur k\u00fagar aldrei \u00edmyndunarafli\u00f0 \u2013\u00a0en m\u00e9r finnst sannarlega opi\u00f0 fyrir hitt l\u00edka. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Loks er \u00fea\u00f0 Oxen of the Sun, sem m\u00e9r skilst a\u00f0 s\u00e9 almennt \u00e1litinn erfi\u00f0asti kafli b\u00f3karinnar. S\u00e1 kafli gerist \u00e1 Holles Street f\u00e6\u00f0ingarsp\u00edtalanum \u00fear sem h\u00f3pur fullra karlmanna situr frammi \u00e1 einhvers konar bi\u00f0stofu og b\u00ed\u00f0ur \u00feess a\u00f0 fr\u00fa Purefoy eignist barn sitt \u2013\u00a0en h\u00fan hefur veri\u00f0 \u00ed hr\u00ed\u00f0um \u00ed \u00ferj\u00e1 s\u00f3larhringa. Kaflinn byrjar sannarlega ekki mj\u00f6g \u00e1rennilega \u2013\u00a0byrjar \u00e1 hei\u00f0num \u00feulum og fer svo beint \u00fat \u00ed langan texta sem er sennilega fyrst skrifa\u00f0ur \u00e1 lat\u00ednu og svo mj\u00f6g-hr\u00e1\u00fe\u00fdddur yfir \u00e1 ensku, \u00e1n beyginga. Svo tekur hver st\u00edllinn vi\u00f0 \u00e1 f\u00e6tum \u00f6\u00f0rum \u2013\u00a0engilsaxneskur, mi\u00f0-enskur, art\u00farskur, miltonskur, swift\u00edskur, dickenskur og svo framvegis \u2013\u00a0og \u00e9g held \u00fea\u00f0 s\u00e9 r\u00e9tt a\u00f0 vi\u00f0 hvern st\u00edl f\u00e6rumst vi\u00f0 n\u00e6r n\u00fat\u00edma Joyce. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einsog \u00ed framm\u00edgripunum Cyclops r\u00e6\u00f0ur st\u00edllinn l\u00edka gjarnan \u00fev\u00ed hva\u00f0 er sagt \u2013\u00a0svona er til d\u00e6mis sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bloom hafi f\u00e1einum d\u00f6gum \u00e1\u00f0ur komi\u00f0 \u00e1 sp\u00edtalann til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta l\u00edta \u00e1 b\u00fdflugnastungu: <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">And the traveller Leopold was couth to him sithen it had happed that they had had ado each with other in the house of misericord where this learningknight lay by cause the traveller Leopold came there to be healed for he was sore wounded in his breast by a spear wherewith a horrible and dreadful dragon was smitten him for which he did do make a salve of volatile salt and chrism as much as he might suffice. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta mun vera \u00ed st\u00edl fer\u00f0asagna fr\u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum. Allar bera \u00feessar par\u00f3d\u00edur merki dj\u00faprar \u00e1str\u00ed\u00f0u Joyce fyrir tungum\u00e1linu \u2013\u00a0en \u00fea\u00f0 er \u00e1hugavert a\u00f0 stundum er gengi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 par\u00f3d\u00edurnar s\u00e9u h\u00e1\u00f0 og stundum a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u tignun, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g sj\u00e1i \u00e1 \u00fev\u00ed nokkurn mun annan en a\u00f0 sumt \u00feykir f\u00ednt og sumt ekki (og kannski deildi Joyce \u00feeim smekk s\u00edns t\u00edma \u2013\u00a0en \u00feess s\u00e9r ekki endilega sta\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed hvernig hann skrifar). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">*** <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa man \u00e9g au\u00f0vita\u00f0 ekki hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem h\u00e9lt fyrir m\u00e9r v\u00f6ku \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 var einhver algerlega snilldarlegur samanbur\u00f0ur vi\u00f0 par\u00f3d\u00edur n\u00fat\u00edmans. \u00dea\u00f0 eina sem \u00e9g man var a\u00f0 \u00e9g hugsa\u00f0i talsvert um st\u00edlinn \u00e1 s\u00f6gu Gerty. \u00deegar \u00e9g las hann \u00fe\u00f3tti m\u00e9r ekki endilega v\u00edst a\u00f0 Joyce v\u00e6ri a\u00f0 par\u00f3d\u00edsera hann, frekar en bara s\u00f6kkva t\u00f6nnunum \u00ed hann \u2013 einsog hann gerir svo v\u00ed\u00f0a \u00ed b\u00f3kinni, sem er au\u00f0vita\u00f0 \u00ed og me\u00f0 \u00e1star\u00f3\u00f0ur til enskrar tungu. Textinn er heldur ekkert v\u00e6mnari e\u00f0a \u201ehall\u00e6rislegri\u201c endilega en margt af \u00fev\u00ed sem \u00feykir gott og gilt \u00ed fagurb\u00f3kmenntunum 21. aldarinnar.\u00a0Og \u00feegar \u00e9g las s\u00ed\u00f0an ritger\u00f0ina sem fylgir kaflanum \u00ed b\u00f3kinni minni, eftir Vicki Mahaffay, gladdi \u00fea\u00f0 mig a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 h\u00fan t\u00f3k \u00ed sama streng og sag\u00f0i raunar kominn t\u00edmi til a\u00f0 hv\u00edla \u00feann lestur a\u00f0 h\u00e9r v\u00e6ri Joyce a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast (frekar en annars sta\u00f0ar) og benti \u00e1 r\u00e6tur or\u00f0sins par\u00f3d\u00eda, sem er \u201epara\u201c (\u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja \u201eme\u00f0\u201c e\u00f0a \u201etil hli\u00f0ar vi\u00f0\u201c) og oide, sem er sama or\u00f0 og \u00f3\u00f0ur. A\u00f0 par\u00f3d\u00edsera er \u00feannig \u00ed grunninn \u201ea\u00f0 syngja me\u00f0\u201c og \u00fearf ekki a\u00f0 fela \u00ed s\u00e9r h\u00e1\u00f0 (hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 svo h\u00e6gt a\u00f0 herma eftir einhverjum algerlega svi\u00f0alaust er \u00f6nnur spurning). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Silv\u00eda N\u00f3tt kom s\u00ed\u00f0an sem sagt til tals vi\u00f0 kv\u00f6ldver\u00f0arbor\u00f0i\u00f0 \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi og vi\u00f0 horf\u00f0um \u00e1 Til hamingju, \u00cdsland og \u00fea\u00f0 sl\u00f3 mig a\u00f0 h\u00fan h\u00f6f\u00f0a\u00f0i \u00e1 s\u00ednum t\u00edma au\u00f0vita\u00f0 \u00ed senn til f\u00f3lks (barna, ungra st\u00falkna) a.m.k. h\u00e1lf \u00f3\u00edr\u00f3n\u00edskt \u2013\u00a0sem bara k\u00fal gella \u2013 og til fullor\u00f0inna gagnkynhneig\u00f0ra karlmanna sem \u00f3\u00edr\u00f3n\u00edskt kynt\u00e1kn \u2013\u00a0en fyrst og fremst sem einhvers konar gagnr\u00fdni \u00e1 allt saman. Og au\u00f0vita\u00f0 er par\u00f3d\u00eda l\u00edka einhvers konar tignun, alveg sama hva\u00f0 ma\u00f0ur h\u00e6\u00f0ist. Sennilega er meira a\u00f0 segja au\u00f0veldara a\u00f0 svipta par\u00f3d\u00eduna h\u00e1\u00f0inu en tignuninni. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa, hva\u00f0 15 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar e\u00f0a svo, m\u00e1 segja a\u00f0 \u00feessi par\u00f3d\u00eda hafi sn\u00fai\u00f0 aftur sem einl\u00e6g tignun. Ef a\u00f0 LXS, \u00c6\u00f0i, Prettiboitjokk\u00f3 og allt \u00e1hrifavaldagengi\u00f0 \u00ed Instagram vikunnar hef\u00f0i stigi\u00f0 fram fyrir 15 \u00e1rum hef\u00f0um vi\u00f0 \u00e1rei\u00f0anlega flest skili\u00f0 \u00fea\u00f0 sem parod\u00edu, einsog vi\u00f0 skildum Silv\u00edu N\u00f3tt, Johnny Naz, Ali G e\u00f0a T\u00edskubloggarann sem par\u00f3d\u00edu. En vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 ekki \u2013 e\u00f0a, a.m.k. ekki sem h\u00e1\u00f0, en kannski sem sams\u00f6ng, eftirhermu, st\u00e6lingu? \u00dea\u00f0 er l\u00edka \u00e1hugavert a\u00f0 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 ef Silv\u00eda nota\u00f0i h\u00famor til \u00feess a\u00f0 afhj\u00fapa og sv\u00ed\u00f0a, draga l\u00ednu \u00ed sandinn og gagnr\u00fdna, \u00fe\u00e1 nota \u00e1hrifavaldarnir h\u00famor til \u00feess a\u00f0 brei\u00f0a yfir \u00e1kve\u00f0i\u00f0 innihaldsleysi. (\u00d6ll notu\u00f0u \u00feau svo h\u00famor sennilega fyrst og fremst til \u00feess a\u00f0 skemmta, enda er \u00fea\u00f0 ekki \u00f3merkilegasta hlutverk h\u00famors). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anna\u00f0 sem sl\u00f3 mig er a\u00f0 \u00feessi tegund par\u00f3d\u00edu \u2013\u00a0s\u00fa grimma, s\u00fa sem b\u00edtur \u2013 s\u00e9 tja &#8230; segjum a\u00f0 minnsta kosti \u00ed talsver\u00f0ri l\u00e6g\u00f0. Ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 vera syndugur \u00e1 allt annan h\u00e1tt \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er ekki n\u00f3g a\u00f0 vera yfirbor\u00f0skenndur e\u00f0a vitlaus e\u00f0a h\u00e9g\u00f3magjarn e\u00f0a efnishyggjusinna\u00f0ur til a\u00f0 eiga skili\u00f0 grimma par\u00f3d\u00edu (\u00fear sem ma\u00f0ur \u00feekkist), heldur \u00fearf almenningi \u2013 sem er uppista\u00f0an \u00ed \u201eg\u00f3\u00f0a f\u00f3lkinu\u201c \u2013 l\u00edka a\u00f0 finnast vi\u00f0komandi vondur. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 vera hafi\u00f0 yfir vafa a\u00f0 hann eigi \u00fea\u00f0 skili\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kannski erum vi\u00f0 l\u00edka komin ofan af heimspekilega svi\u00f0inu um h\u00fdp\u00f3\u00feet\u00edskar almennar syndir og ni\u00f0ur \u00ed eitthva\u00f0 meira konkret. Og pers\u00f3nulegra. Vi\u00f0 segjum kannski ekki lengur a\u00f0 h\u00e9g\u00f3mi, hroki, \u00f6fund, br\u00e6\u00f0i og \u00e1girnd s\u00e9u \u00e1m\u00e6lisver\u00f0ir eiginleikar \u2013\u00a0heldur a\u00f0 Siggi s\u00e9 f\u00e1viti. Sennilega er \u00fea\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 PBT er \u00ed spilun en ekki Megas. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fe\u00e1 er \u00e9g kominn a\u00f0eins \u00fat fyrir \u00feessa par\u00f3d\u00edup\u00e6lingu. Fyrst og fremst finnst m\u00e9r \u00ed raun hressandi a\u00f0 hugsa um par\u00f3d\u00eduna sem eitthva\u00f0 anna\u00f0 en h\u00e1\u00f0 \u2013\u00a0e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta a\u00f0 h\u00e1\u00f0i\u00f0 s\u00e9 aukahlutverk vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 sams\u00f6nginum. Og svo spurningin: er h\u00e6gt a\u00f0 b\u00faa til par\u00f3d\u00edu algerlega \u00e1n \u00feess a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 frummyndinni; og er h\u00e6gt a\u00f0 b\u00faa til par\u00f3d\u00edu algerlega \u00e1n \u00feess a\u00f0 tigna frummyndina?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g l\u00e1 andvaka \u00ed n\u00f3tt og f\u00f3r a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r e\u00f0li par\u00f3d\u00edunnar \u2013\u00a0upp \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa annars vegar rifja\u00f0 upp Silv\u00edu N\u00f3tt me\u00f0 kr\u00f6kkunum og hins vegar verandi b\u00fainn me\u00f0 (\u00fea\u00f0sem\u00e9ghelda\u00f0s\u00e9u) par\u00f3d\u00edskustu kaflar Ulysses , Cyclops, Nausicaa og Oxen of the Sun. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 flestir \u00feekki til Silv\u00edu en \u00e9g &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-5594","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5594","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5594"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5594\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5957,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5594\/revisions\/5957"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5594"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5594"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5594"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}