{"id":5853,"date":"2025-02-10T17:15:52","date_gmt":"2025-02-10T17:15:52","guid":{"rendered":"http:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5853"},"modified":"2025-02-10T17:24:31","modified_gmt":"2025-02-10T17:24:31","slug":"fullkomlega-othekkur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5853","title":{"rendered":"Fullkomlega \u00f3\u00feekkur"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r \u00e1 Dylanmyndina \u00ed g\u00e6r. \u00c9g hef engan heyrt kalla \u00feessa mynd s\u00ednu r\u00e9tta nafni og \u00e9g \u00e6tla ekkert a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 upp. Dylanmyndin er f\u00ednt heiti. Svona \u00e6visagnamyndir eru n\u00e1tt\u00farulega alltaf \u00ed a\u00f0ra r\u00f6ndina mj\u00f6g \u00fevinga\u00f0 drasl. Og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fev\u00ed verra sem ma\u00f0ur veit meira sj\u00e1lfur um s\u00f6guefni\u00f0. \u00c9g er ekki mj\u00f6g versera\u00f0ur \u00ed Dylan sj\u00e1lfum en \u00e1g\u00e6tlega versera\u00f0ur \u00ed atbur\u00f0unum \u00e1 Newport 1965 og eftirl\u00e6tis t\u00f3nlistarsagnfr\u00e6\u00f0ingurinn minn, Elijah Wald, skrifa\u00f0i b\u00f3kina sem Dylanmyndin er \u201ebygg\u00f0 \u00e1\u201c. Sem \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 ekki full af rangf\u00e6rslum sem er alls ekki a\u00f0 finna \u00ed b\u00f3kinni. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir kannski \u00ed mesta lagi a\u00f0 \u00feessar rangf\u00e6rslur eru allar viljandi. \u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 fara a\u00f0 \u00feylja \u00fe\u00e6r h\u00e9rna upp nema til a\u00f0 segja a\u00f0 skipuleggjendur voru hvorki m\u00f3tfallnir rafmagna\u00f0ri t\u00f3nlist, rokkt\u00f3nlist n\u00e9 frumsaminni t\u00f3nlist. Dylan leit ekki svo \u00e1 sj\u00e1lfur a\u00f0 hann v\u00e6ri a\u00f0 spila folk-t\u00f3nlist nema \u00e1 fyrstu pl\u00f6tunni \u2013 sem var miklu meiri bl\u00fasplata en frumsamda efni\u00f0 \u00e1 kassag\u00edtarspl\u00f6tunum, \u00feetta sing-a-long d\u00f3t sem hann f\u00e9kk sj\u00e1lfur flj\u00f3tt vi\u00f0bj\u00f3\u00f0 \u00e1 \u2013\u00a0af \u00fev\u00ed Dylan \u00e1leit ekki frumsamin l\u00f6g vera folk-t\u00f3nlist. Hann var nefnilega l\u00edka p\u00faristi. \u201eHow many times must I say I am not a folk-singer before the people stop saying he&#8217;s not a folk singer\u201c sag\u00f0i Dylan \u2013\u00a0nokkru \u00e1\u00f0ur en hann ger\u00f0ist elektr\u00edskur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pete Seeger var almennt mi\u00f0ur s\u00edn yfir dv\u00ednandi vins\u00e6ldum folk-t\u00f3nlistar me\u00f0al annars vegna \u00feess a\u00f0 hann s\u00e1 hana sem sameinandi afl en s\u00e1 rokkt\u00f3nlist sem sundrandi afl \u2013\u00a0folk-t\u00f3nlist v\u00e6ri t\u00f3nlist samkenndar og rokkt\u00f3nlist t\u00f3nlist einstaklingshyggju. Og haf\u00f0i \u00e1 r\u00e9ttu a\u00f0 standa, hva\u00f0 sem manni svo finnst um rokk og folk. A\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00f6g\u00f0u h\u00e9lt hann l\u00edka upp \u00e1 \u00fdmsa rokkt\u00f3nlist. En hann s\u00e1 \u00ed Dylan \u2013 einsog er greinilegt \u00ed myndinni \u2013\u00a0mann sem g\u00e6ti komi\u00f0 folk-t\u00f3nlist \u00e1 h\u00e6sta stall, og haf\u00f0i kannski gert \u00fea\u00f0 \u00ed nokkur misseri. Hann var fjarska s\u00e1r yfir \u00feessu. Wald hefur bent \u00e1 a\u00f0 \u00ed raun hafi enginn skipt um sko\u00f0un \u00e1 Bob Dylan eftir Newport 1965 en hins vegar hafi \u00edmynd Seegers umturnast. Fyrir Newport var var hann byltingarsinna\u00f0ur hipster-afi (hann var jafngamall m\u00e9r 1965) sem haf\u00f0i \u00f6gra\u00f0 McCarthy nefndinni, l\u00e1ti\u00f0 svartlista sig \u00far \u00f6llum helstu mi\u00f0lum, og sameina\u00f0 \u00f3tr\u00falegan fj\u00f6lda f\u00f3lks a\u00f0 baki r\u00e9ttindabar\u00e1ttunni \u00ed su\u00f0urr\u00edkjunum me\u00f0 t\u00f3nlist sinni og hugsj\u00f3num. Hann var mj\u00fakur og lj\u00fafur og sta\u00f0fastur prinsippma\u00f0ur sem naut vir\u00f0ingar og a\u00f0d\u00e1unar jafnt ungra sem aldinna. Eftir Newport var hann \u00f3tr\u00falega hall\u00e6rislegur og \u00edhaldssamur l\u00fa\u00f0a-afi, kyn\u00feokkalaus h\u00e1lfsk\u00f6ll\u00f3ttur s\u00f6ngapi sem \u00e1tti a\u00f0 hafa vilja\u00f0 h\u00f6ggva \u00e1 kaplana \u00ed Newport me\u00f0 \u00f6xi (s\u00fa saga er sennilega komin til af tv\u00f6f\u00f6ldum misskilningi \u2013\u00a0\u00feegar Dylan kom af svi\u00f0inu eftir elektr\u00edska setti\u00f0 gekk hann \u00ed burtu \u00e1 sama t\u00edma og Dylan, einhver spur\u00f0i: hvert er hann a\u00f0 fara? og einhver svara\u00f0i: he went to get his axe. He verandi Dylan og axe verandi slangur fyrir g\u00edtar \u2013\u00a0Dylan var a\u00f0 s\u00e6kja kassag\u00edtarinn til a\u00f0 kl\u00e1ra setti\u00f0, Seeger r\u00f6lti bara \u00ed burtu vegna \u00feess a\u00f0 hann var \u00f3s\u00e1ttur og vildi ekki tala vi\u00f0 Dylan). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Alan Lomax var \u2013\u00a0einsog er nefnt \u00ed framhj\u00e1hlaupi \u00ed myndinni \u2013\u00a0fyrst og fremst \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 a\u00f0 The Paul Butterfield Blues Band fengi a\u00f0 spila \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni. Ekki vegna \u00feess a\u00f0 hann v\u00e6ri folk-p\u00faristi heldur vegna \u00feess a\u00f0 PBBB voru hv\u00edtir. Lomax var \u00e1 kafi \u00ed Chicago Blues \u2013\u00a0sem h\u00e1v\u00e6r og rafmagna\u00f0ur \u2013\u00a0og b\u00e6\u00f0i Muddy Waters og Howlin&#8217; Wolf h\u00f6f\u00f0u spila\u00f0 \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni \u00e1\u00f0ur. H\u00e1v\u00e6r og rafm\u00f6gnu\u00f0 sett (Muddy reyndar l\u00edka m\u00e6tt me\u00f0 kassag\u00edtarinn einu sinni, en \u00fea\u00f0 var til a\u00f0 hei\u00f0ra Son House, n\u00fdl\u00e1tinn). Honum fannst \u00feetta vera menningarn\u00e1m af verstu ger\u00f0. Hann vildi f\u00e1 Buddy Guy. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess skal samt geta a\u00f0 The Paul Butterfield Blues Band voru eins \u00e1\u00feent\u00edskir og hv\u00edtt bl\u00fasband gat veri\u00f0 \u00e1 \u00feessum \u00e1rum \u2013\u00a0\u00feeir h\u00f6f\u00f0u lifa\u00f0 \u00e1 sv\u00f6rtu kl\u00fabbunum \u00ed Chicago \u00e1rum saman og nutu \u00fear vir\u00f0ingar. \u00deeir voru ekki Stones. G\u00edtarleikarinn \u00ed PBBB var Mike Bloomfield\u2013\u00a0og einsog kom fram \u00ed myndinni er \u00fea\u00f0 til Mike Bloomfield sem Dylan s\u00e6kir \u00feegar hann vill f\u00e1 alv\u00f6ru g\u00edtarleikara. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">PBBB spilu\u00f0u kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1 undan Dylan og Lomax gaf \u00feeim v\u00edst fremur d\u00f3nalega kynningu \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 hefur \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki var\u00f0veist hva\u00f0 hann sag\u00f0i n\u00e1kv\u00e6mlega en \u00fea\u00f0 var n\u00f3g til \u00feess a\u00f0 umbo\u00f0sma\u00f0ur \u00feeirra, Albert Grossmann, sem var l\u00edka umbo\u00f0sma\u00f0ur Dylans, hj\u00f3la\u00f0i \u00ed hann og \u00feeir sl\u00f3gust. \u00cd myndinni gerist \u00feetta \u00e1 t\u00f3nleikum Dylans. \u00dea\u00f0 er svo \u00fat af \u00feessu sem Dylan \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 spila elektr\u00edskt sett sj\u00e1lfur \u2013\u00a0hann st\u00edgur inn \u00ed annarra manna rifrildi til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna PBBB stu\u00f0ning (og til \u00feess a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed havar\u00edinu). \u00dea\u00f0 var ekki einsog \u00ed myndinni a\u00f0 skipuleggjendurna hef\u00f0i gruna\u00f0 \u00feetta og \u00fea\u00f0an af s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 Pete Seeger hafi vaki\u00f0 hann \u00feunnan klukkan sj\u00f6 a\u00f0 morgni til a\u00f0 bi\u00f0ja hann a\u00f0 gera \u00feetta ekki. Dylan var b\u00fainn a\u00f0 taka upp rafmagna\u00f0 efni og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 t\u00fara \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ar um sumari\u00f0. En hann kom til Newport \u00e1n hlj\u00f3msveitar. \u00dea\u00f0 vildi til a\u00f0 nokkrir me\u00f0limir Paul Butterfield Blues Band h\u00f6f\u00f0u leiki\u00f0 me\u00f0 honum inn \u00e1 pl\u00f6tu og hann h\u00f3a\u00f0i \u00ed \u00fe\u00e1 \u00f3forvarendis \u2013 \u00e6f\u00f0i \u00e1 sta\u00f0num me\u00f0 litlum fyrirvara og m\u00e6tti me\u00f0 fremur illa \u00e6ft rokkband \u00e1 svi\u00f0i\u00f0. Og l\u00e9t skr\u00fafa allt \u00ed botn (sem var \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0i Pete Seeger \u00f3\u00f0an \u2013 e\u00f0a allavega \u00f3\u00f0ari). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lagi\u00f0 sem hann spila\u00f0i var au\u00f0vita\u00f0 Maggie&#8217;s Farm \u2013 sem er endurunni\u00f0 gamalt bl\u00faslag (og \u00fear me\u00f0 folk) og s\u00f3s\u00edal\u00edskur \u00f3\u00f0ur (\u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 fjalli au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka um \u00fer\u00e6ld\u00f3m rokkstj\u00f6rnunnar Dylans, v\u00e6ntingarnar sem hann vildi ekki standa undir). Me\u00f0 \u00feessu steig hann inn \u00ed ofsave\u00f0ri\u00f0 og t\u00f3k afst\u00f6\u00f0u me\u00f0 Stones og Animals og PBBB og B\u00edtlunum gegn Newport f\u00f3lkinu, sem fannst \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feegar vera a\u00f0 drukkna \u2013 og kannski l\u00edka gegn Buddy Guy og sv\u00f6rtu Chicago-bl\u00fasurunum sem Lomax taldi sig vera \u00ed forsvari fyrir. En Dylan t\u00f3k ekki afst\u00f6\u00f0u gegn folk-t\u00f3nlist (a.m.k. ekki bl\u00fast\u00f3nlist) og ekki gegn m\u00f3tm\u00e6lat\u00f3nlist heldur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00e6tti spyrja sig, einsog Wald hefur gert, hvort hann hef\u00f0i valdi\u00f0 jafn miklu fja\u00f0rafoki ef hann hef\u00f0i byrja\u00f0 \u00e1 ak\u00fast\u00edska settinu og svo kynnt n\u00fdja st\u00f6ffi\u00f0 s\u00e9r \u2013\u00a0me\u00f0 d\u00e1l\u00edtilli au\u00f0m\u00fdkt, h\u00e9r er soldi\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi st\u00f6ff, n\u00fdtt og n\u00fdm\u00f3\u00f0ins, vonandi f\u00edli\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fea\u00f0. E\u00f0a hvernig hef\u00f0i fari\u00f0 ef hann hef\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00feetta me\u00f0 einhverjum fyrirvara og m\u00e6tt me\u00f0 s\u00e6milega \u00fe\u00e9tt band. En hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki og hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 viljandi. Kannski vildi hann bara vekja tilfinningar \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er sagt a\u00f0 \u00ed menntask\u00f3la hafi f\u00f3lk oft p\u00faa\u00f0 \u00e1 hann \u00feegar hann s\u00f6ng og hann n\u00e1nast n\u00e6rst \u00e1 \u00fev\u00ed \u2013\u00a0og kannski vildi hann svipta f\u00f3lk forr\u00e6\u00f0i yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 hann v\u00e6ri, hva\u00f0 hann \u00e6tti a\u00f0 vera. Og kannski b\u00e6\u00f0i \u00ed senn og margt fleira. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars var myndin \u00e1g\u00e6t sem sl\u00edk. S\u00e9rstaklega var leikurinn g\u00f3\u00f0ur. En \u00fea\u00f0 er alltaf samt svol\u00edti\u00f0 einsog a\u00f0 reyna a\u00f0 tro\u00f0a b\u00farhval \u00ed pollagalla a\u00f0 segja svona \u00e6vis\u00f6gu. \u00dea\u00f0 er of miki\u00f0 af efni, of miki\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 sn\u00ed\u00f0a, of miki\u00f0 sem \u00fearf a\u00f0 sleppa og einfalda. Og \u00feegar vinnan er \u00f6ll unnin l\u00edtur afur\u00f0in bara \u00fat einsog bl\u00f6bber \u00ed pollagalla, sami bl\u00f6bber og s\u00ed\u00f0ast, sama sagan um gener\u00edskan snilling sem \u00fej\u00e1ist fyrir list s\u00edna (\u00fer\u00b4\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa noti\u00f0 d\u00e6malausrar velgengni), s\u00fdnir af s\u00e9r eigingirni og \u00e1 erfitt me\u00f0 tengsl. \u00dea\u00f0 var kannski \u00e1hugaver\u00f0ast \u2013\u00a0og gegn klisjunni \u2013\u00a0a\u00f0 kvikmyndager\u00f0armennirnir skuli hafa k\u00f6tta\u00f0 svona snyrtilega framhj\u00e1 eiturlyfjaneyslu og \u00f3reglu, sem birtist manni a\u00f0allega sem fullir \u00f6skubakkar og t\u00f3mar fl\u00f6skur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samt f\u00edn mynd sko. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r \u00e1 Dylanmyndina \u00ed g\u00e6r. \u00c9g hef engan heyrt kalla \u00feessa mynd s\u00ednu r\u00e9tta nafni og \u00e9g \u00e6tla ekkert a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 upp. Dylanmyndin er f\u00ednt heiti. Svona \u00e6visagnamyndir eru n\u00e1tt\u00farulega alltaf \u00ed a\u00f0ra r\u00f6ndina mj\u00f6g \u00fevinga\u00f0 drasl. Og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fev\u00ed verra sem ma\u00f0ur veit meira sj\u00e1lfur um s\u00f6guefni\u00f0. \u00c9g er ekki mj\u00f6g &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5853\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Fullkomlega \u00f3\u00feekkur<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-5853","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5853","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5853"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5853\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5858,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5853\/revisions\/5858"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5853"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5853"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5853"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}