{"id":5863,"date":"2025-02-25T15:26:08","date_gmt":"2025-02-25T15:26:08","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5863"},"modified":"2025-02-25T15:41:22","modified_gmt":"2025-02-25T15:41:22","slug":"pervert","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5863","title":{"rendered":"Pervert"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd g\u00e6r sl\u00f3 \u00e9g or\u00f0inu h\u00e9r a\u00f0 ofan upp \u00e1 T\u00edmarit.is (einhverjir myndu segja a\u00f0 erindi mitt hafi veri\u00f0 vi\u00f0skiptalegs e\u00f0lis) og rakst \u00e1 <a href=\"https:\/\/timarit.is\/page\/2804585\">grein eftir Gu\u00f0r\u00fanu Helgad\u00f3ttur \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0viljanum, 2. desember 1964,<\/a> sem heitir \u201eNokkur or\u00f0 um g\u00f3\u00f0a b\u00f3k og vondar b\u00e6kur\u201c. Einsog v\u00e6nta m\u00e1tti af Gu\u00f0r\u00fanu var \u00feetta t\u00e6pitungulaus grein. Hefst h\u00fan \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan segist hafa n\u00fdlesi\u00f0 b\u00f3k Hannesar P\u00e9turssonar um Steingr\u00edm Thorsteinsson, sem h\u00fan hafi hrifist mj\u00f6g af. Svo heldur h\u00fan \u00e1fram:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir a\u00f0 \u00e9g las \u00feessa b\u00f3k, hefur s\u00fa hugsun or\u00f0i\u00f0 \u00e6 \u00e1leitnari vi\u00f0 mig, hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki mikil blessun menningu okkar [&#8230;] ef f\u00e6rri b\u00e6kur k\u00e6mu \u00fat \u00e1 \u00cdslandi en n\u00fa gerist. V\u00e6ri \u00fea\u00f0 ekki st\u00f3rkostlegur menningarauki, ef b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fa \u00cdslendinga dr\u00e6gist saman um helming, en \u00fe\u00e6r b\u00e6kur sem \u00fat v\u00e6ri gefnar, hef\u00f0u eitthvert menningarlegt gildi? \u00dea\u00f0 er ekki vafi \u00e1 \u00fev\u00ed, a\u00f0 b\u00f3kafl\u00f3\u00f0 \u00fea\u00f0, sem n\u00fa \u00e6\u00f0ir yfir \u00fej\u00f3\u00f0ina, er a\u00f0 ey\u00f0ileggja allan lestur \u00ed landinu. [&#8230;] Vi\u00f0 hr\u00f3sum okkur af m\u00f6rgu, og m.a. af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um heimsins mesta b\u00f3ka\u00fej\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 getur satt veri\u00f0, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g viti \u00fea\u00f0 ekki me\u00f0 vissu, a\u00f0 meira s\u00e9 gefi\u00f0 \u00fat af b\u00f3kum \u00e1 \u00cdslandi mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0at\u00f6lu en \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum, en hitt er jafnv\u00edst, a\u00f0 \u00fea\u00f0 er meira gefi\u00f0 \u00fat af \u00f3merkilegu rusli \u00e1 \u00cdslandi en annars sta\u00f0ar. Og \u00fev\u00ed mi\u00f0ur er raunin s\u00fa, a\u00f0 g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur t\u00fdnast og gleymast \u00ed \u00f6llu ruslinu. Getur hver ma\u00f0ur gert s\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00f3mak a\u00f0 l\u00edta yfir \u201ej\u00f3la\u201c-b\u00f3kalistann \u00ed \u00e1r. Er n\u00fa svo komi\u00f0, a\u00f0 svo vir\u00f0ist sem hver s\u00e1, sem l\u00e6tur fl\u00e6\u00f0a \u00far penna s\u00ednum, komi \u00fev\u00ed \u00e1 almennan marka\u00f0. Er ekki kominn t\u00edmi til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va \u00feessi \u00f3sk\u00f6p? Svo langt hefur \u00f3sv\u00edfni \u00feessara h\u00f6funda gengi\u00f0, a\u00f0 h\u00fasm\u00e6\u00f0ur b\u00e6jarins setjast ni\u00f0ur, rissa upp hundru\u00f0 bla\u00f0s\u00ed\u00f0na af \u00f3merkilegu og heimskulegu \u00feva\u00f0ri og l\u00fdsa \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0an yfir \u00ed vi\u00f0t\u00f6lum vi\u00f0 bla\u00f0amenn, a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafi vanta\u00f0 peninga fyrir eldh\u00fasinnr\u00e9ttingu. Og \u00feetta vill b\u00f3ka\u00fej\u00f3\u00f0in lesa. Til \u00feess a\u00f0 enginn \u00feurfi h\u00e9r a\u00f0 geta \u00ed ey\u00f0urnar, \u00e1 \u00e9g h\u00e9r vi\u00f0 b\u00e6kur Ingibjargar J\u00f3nsd\u00f3ttur, og \u00feetta mega einnig taka til s\u00edn Magnea fr\u00e1 Kleifum, Gu\u00f0r\u00fan A. J\u00f3nsd\u00f3ttir og fleiri sl\u00edkir h\u00f6fundar. \u00de\u00e1 m\u00e6tti og minnast \u00e1 \u00e6visagnaskrifin um menn, sem f\u00e1tt eitt hafa gert s\u00e9r til \u00e1g\u00e6tis anna\u00f0 en a\u00f0 sanka a\u00f0 s\u00e9r f\u00e9, j\u00e1, jafnvel s\u00fdna atorku vi\u00f0 a\u00f0 drekka brenniv\u00edn (J\u00f3n Krist\u00f3fer) og jafnvel selja \u00fea\u00f0. Verst er, a\u00f0 h\u00f6fundar, sem \u00e1\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u skrifa\u00f0 eitthva\u00f0 einhvers vir\u00f0i, hafa lagt sig ni\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 semja sl\u00edk verk, anna\u00f0hvort af andlegu gjald\u00feroti e\u00f0a peningaskorti. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinin er lengri. Og or\u00f0i\u00f0 \u201epervert\u201c kemur ekki fyrir strax \u2013 \u00fea\u00f0 birtist ekki fyrren Gu\u00f0r\u00fan fer a\u00f0 bi\u00f0ja um betur skrifa\u00f0 kl\u00e1m. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Verandi \u00e1hugama\u00f0ur um hispursleysi fannst m\u00e9r \u00feetta skemmtilegt aflestrar \u2013\u00a0\u00fe\u00f3tt \u00e9g \u00feekki ekki h\u00f6fundana sem Gu\u00f0r\u00fanu er svo uppsiga\u00f0 vi\u00f0. Stutt innlit \u00e1 sk\u00e1ld.is segir m\u00e9r a\u00f0 Magnea hafi \u00fearna bara skrifa\u00f0 tv\u00e6r b\u00e6kur og a\u00f0 Ingibj\u00f6rg J\u00f3nsd\u00f3ttir hafi veri\u00f0 me\u00f0 fyrstu h\u00f6fundum til a\u00f0 skrifa v\u00edsindask\u00e1ldskap \u2013\u00a0en b\u00e1\u00f0ar vir\u00f0ast \u00fe\u00e6r fyrst og fremst hafa fengist vi\u00f0 \u00e1stars\u00f6gur fram til \u00feessa. Ingibj\u00f6rg segist \u00ed vi\u00f0tali \u00ed F\u00e1lkanum sama \u00e1r alls ekki vera rith\u00f6fundur. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Rith\u00f6fundar skrifa g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur, sem \u00feeir ganga me\u00f0 t\u00edmunum saman, en \u00fea\u00f0 geri \u00e9g ekki. \u00c9g skrifa heldur ekki g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur. \u00c9g skrifa b\u00e6kur sem f\u00f3lki\u00f0 styttir s\u00e9r stundir vi\u00f0 a\u00f0 lesa, og \u00fea\u00f0 kaupir \u00fe\u00e6r. Hvers vegna veit \u00e9g ekki, en \u00fea\u00f0 er ekki vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u vel skrifa\u00f0ar. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekki veit \u00e9g hva\u00f0 J\u00f3n Krist\u00f3fer skrifa\u00f0i \u2013\u00a0um hann skrifa\u00f0i <a href=\"https:\/\/www.guitarparty.com\/songs\/jon-kristofer\/\">Steinn Steinarr fr\u00e6gt lj\u00f3\u00f0<\/a> \u2013\u00a0en \u00fea\u00f0 er erfitt a\u00f0 grafast fyrir um hitt af \u00fev\u00ed hann h\u00e9t ekki J\u00f3n Krist\u00f3fer (og ekki Kadett heldur) heldur J\u00f3n Sigur\u00f0sson og Leitir kannast ekki vi\u00f0 neinar b\u00e6kur eftir J\u00f3n Sigur\u00f0sson f\u00e6ddan 1912. Og \u00e1 sk\u00e1ld.is er einungis haldin skr\u00e1 yfir konur sem hafa skrifa\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 vill til a\u00f0 \u00ed \u00feessum sama \u00dej\u00f3\u00f0vilja er greinarst\u00fafur um b\u00f3ks\u00f6lu \u00ed borginni og bla\u00f0ama\u00f0ur hringir \u00ed nokkrar b\u00f3kaverslanir til \u00feess a\u00f0 spyrja hva\u00f0 s\u00e9 s\u00f6luh\u00e6st og kemst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u201etv\u00edstirni\u00f0\u201c Gu\u00f0r\u00fan fr\u00e1 Lundi, me\u00f0 b\u00f3kina Hvikul er konu\u00e1st, og Thorolf Smith, sem haf\u00f0i \u00fe\u00e1 gefi\u00f0 \u00fat b\u00f3k um John F. Kennedy. \u00de\u00e1 mun l\u00edka vins\u00e6l b\u00f3k sem er skrifu\u00f0 upp \u00far sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1ttunum The Untouchables \u2013\u00a0en \u00feeir eru a\u00f0 gera allt vitlaust \u00ed kanasj\u00f3nvarpinu. \u00deessar b\u00e6kur nefnir Gu\u00f0r\u00fan vel a\u00f0 merkja ekki. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er \u00e1hugaver\u00f0 hugmynd sem \u00e9g heyri alltaf af og til a\u00f0 \u00edslenskum b\u00f3kmenntum f\u00e6ri betur a\u00f0 \u00b4\u00fat k\u00e6mu f\u00e6rri b\u00e6kur. M\u00e9r finnst nota bene l\u00edklegt a\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1964 hafi komi\u00f0 \u00fat miklu f\u00e6rri b\u00e6kur en \u00e1ri\u00f0 2024. Og m\u00e9r finnst l\u00edklegt a\u00f0 f\u00f3lk hafi lesi\u00f0 meira. \u00cd dag er samt miklu algengara vi\u00f0horf a\u00f0 fleiri titlar myndu auka lestur \u2013\u00a0s\u00e9rstaklega \u00feegar liti\u00f0 er til barnab\u00f3ka. B\u00e6kur eiga a\u00f0 h\u00f6f\u00f0a til \u00f3l\u00edkra einstaklinga og \u00e1 \u00f6ld einstaklingshyggjunnar erum vi\u00f0 \u00f6ll svo \u00f3l\u00edk a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feyrfti kannski einn titil \u00b4a mann. E\u00f0a fimmt\u00edu \u00e1 mann \u00e1 \u00e1ri svo ma\u00f0ur ver\u00f0i aldrei uppiskroppa. \u00deetta g\u00e6ti gervigreindin \u00e1rei\u00f0anlega gert. Kl\u00e6\u00f0skerasni\u00f0nar b\u00e6kur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar f\u00f3lk bi\u00f0ur um f\u00e6rri b\u00e6kur er \u00fea\u00f0 gjarnan \u00e1kall til \u00fatgefenda\u00a0og \u00ed einhverjum skilningi \u00e1kall um a\u00f0 ritstj\u00f3rum s\u00e9 hl\u00edft vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ritst\u00fdra 40 b\u00f3kum \u00e1 \u00e1ri (e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem \u00feeir er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 afkasta). A\u00f0 hver b\u00f3k ver\u00f0i alv\u00f6ru pr\u00f3jekt og \u00f6llu kosta\u00f0 til a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i eins fullkomin og frekast er unnt \u2013\u00a0frekar en a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 bara jafn fullkomin og vi\u00f0 h\u00f6fum t\u00edma og fj\u00e1rr\u00e1\u00f0 til a\u00f0 \u00feessu sinni. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er au\u00f0vita\u00f0 auglj\u00f3st af str\u00fakt\u00farnum \u00ed kringum listamannalaunin a\u00f0 h\u00f6fundar eru ver\u00f0launa\u00f0ir fyrir a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 framlei\u00f0a. Marka\u00f0urinn \u2013 b\u00e6\u00f0i mets\u00f6lumarka\u00f0urinn og s\u00e1 sem grei\u00f0ir fyrst og fremst \u00fat \u00ed menningarau\u00f0magni \u2013  gleymir h\u00f6fundum \u00e1 augnabliki, jar\u00f0setur b\u00e6kurnar hverja \u00e1 f\u00e6tur annarri allt j\u00f3lab\u00f3kafl\u00f3\u00f0i\u00f0 og ur\u00f0ar svo restina \u00ed kyrr\u00feey \u00ed jan\u00faar. Gleymdur h\u00f6fundur f\u00e6r ekki listamannalaun og getur f\u00e1tt anna\u00f0 gert til a\u00f0 minna \u00e1 sig en a\u00f0 p\u00f3sta einhverju deilanlegu (frekar en umdeilanlegu) \u00e1 Facebook. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En au\u00f0vita\u00f0 er ekkert sem segir a\u00f0 b\u00e6kur batni alltaf vi\u00f0 meiri vinnslut\u00edma \u2013 \u00fe\u00e6r geta allt eins versna\u00f0, or\u00f0i\u00f0 kreistnar e\u00f0a tilger\u00f0arlegar og b\u00f3lgna\u00f0 \u00fat e\u00f0a veri\u00f0 skornar \u00f3h\u00f3flega ni\u00f0ur. E\u00f0a a\u00f0 h\u00f6fundar sem gefi \u00fat eina b\u00f3k \u00e1 \u00e1ratug skili betra verki en \u00feeir sem rusla \u00fat einni \u00a0\u2013 e\u00f0a tveimur! \u2013\u00a0\u00e1 \u00e1ri. \u00deetta er bara alls konar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hins vegar bergm\u00e1la gjarnan \u00ed m\u00e9r hugmyndir Wills Self um a\u00f0 sk\u00e1ldsagan hafi d\u00e1i\u00f0 \u00feegar f\u00f3lk h\u00e6tti a\u00f0 snobba fyrir henni \u2013\u00a0\u00feegar h\u00fan h\u00e6tti a\u00f0 vera heil\u00f6g og var\u00f0 einsog hver \u00f6nnur neysluvara, hvert anna\u00f0 smj\u00f6rl\u00edki. A\u00f0 mikilv\u00e6gi hennar hafi l\u00edka veri\u00f0 performat\u00edft \u2013\u00a0h\u00fan hafi skipt m\u00e1li vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 leyf\u00f0um henni a\u00f0 skipta m\u00e1li. Og a\u00f0 h\u00fan hafi einungis \u201ed\u00e1i\u00f0\u201c \u00fat\u00e1vi\u00f0 \u2013 og\u00a0or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 s\u00e9rh\u00e6fu hobb\u00edi frekar en einhverju sem \u00e1tti almennt erindi. Hann \u00e1tti sums\u00e9 ekki vi\u00f0 a\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gur 21. aldarinnar v\u00e6ru verri b\u00e6kur, bara a\u00f0 \u00fe\u00e6r hef\u00f0u l\u00edti\u00f0 erindi \u2013 og \u00e1 21. \u00f6ldinni l\u00e6si enginn eldri b\u00e6kur heldur. Self or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 einhvern veginn \u00feannig a\u00f0 \u00feegar f\u00f3lk sem vildi telja sig yfir me\u00f0algreind v\u00e6ri h\u00e6tt a\u00f0 lj\u00faga \u00fev\u00ed til a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i lesi\u00f0 klass\u00edkina og \u00fea\u00f0 sem var helst \u00e1 d\u00f6finni  \u2013 e\u00f0a a\u00f0 l\u00e1gmarki a\u00f0 \u00fea\u00f0 st\u00e6\u00f0i til \u2013 og fari\u00f0 a\u00f0 yppta bara \u00f6xlum og segja \u201e\u00e9g les n\u00fa alltof l\u00edti\u00f0\u201c \u2013 hafi slagurinn veri\u00f0 tapa\u00f0ur. Kannski lj\u00fagum vi\u00f0 \u00f6\u00f0ru \u00ed dag af \u00fev\u00ed okkur finnst a\u00f0rir hlutir skipta m\u00e1li. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 sem pistill Gu\u00f0r\u00fanar segir m\u00e9r \u2013\u00a0alveg burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 g\u00e6\u00f0um e\u00f0a g\u00e6\u00f0aleysi \u00feeirra b\u00f3ka sem h\u00fan \u00fath\u00fa\u00f0ar \u2013\u00a0er a\u00f0 b\u00e6kur skiptu m\u00e1li. Ekki bara hana sj\u00e1lfa heldur samf\u00e9lagi\u00f0. Henni finnst samf\u00e9lagi\u00f0 vonlaust ef g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur nj\u00f3ta ekki sannm\u00e6lis og finna lesendur, og henni finnst \u00fea\u00f0 enn vonlausara ef vondar b\u00e6kur ver\u00f0a r\u00e1\u00f0andi \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0um landsmanna. Sj\u00e1lfsagt hefur rignt yfir hana athugasemdum um \u00f3\u00fearfa grimmd og kvenfyrirlitningu (\u00e0 la \u201ekonur eru konum verstar\u201c) og ford\u00f3ma gagnvart \u00e1stars\u00f6gugrein b\u00f3kmenntanna \u2013 \u00ed athugasemdakerfi \u00dej\u00f3\u00f0viljans, ef ekki \u00e1 g\u00f6tum \u00fati, \u00e9g reikna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk hafi veri\u00f0 jafn vi\u00f0kv\u00e6mt \u00e1ri\u00f0 1964 \u2013 en h\u00fan hefur l\u00e1ti\u00f0 sig hafa \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed henni \u00fe\u00f3tti \u00feetta skipta m\u00e1li. Og \u00fea\u00f0, umfram allt anna\u00f0, er eftirbreytni vert. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r sl\u00f3 \u00e9g or\u00f0inu h\u00e9r a\u00f0 ofan upp \u00e1 T\u00edmarit.is (einhverjir myndu segja a\u00f0 erindi mitt hafi veri\u00f0 vi\u00f0skiptalegs e\u00f0lis) og rakst \u00e1 grein eftir Gu\u00f0r\u00fanu Helgad\u00f3ttur \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0viljanum, 2. desember 1964, sem heitir \u201eNokkur or\u00f0 um g\u00f3\u00f0a b\u00f3k og vondar b\u00e6kur\u201c. Einsog v\u00e6nta m\u00e1tti af Gu\u00f0r\u00fanu var \u00feetta t\u00e6pitungulaus grein. Hefst h\u00fan \u00e1 &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5863\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Pervert<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-5863","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5863","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5863"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5863\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5868,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5863\/revisions\/5868"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5863"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5863"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5863"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}