{"id":5869,"date":"2025-02-26T16:48:26","date_gmt":"2025-02-26T16:48:26","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5869"},"modified":"2025-02-26T16:52:30","modified_gmt":"2025-02-26T16:52:30","slug":"slatrun-arsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5869","title":{"rendered":"Sl\u00e1trun \u00e1rsins"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 eru veitt ver\u00f0laun fyrir sl\u00e1trun \u00e1rsins. \u00c5rets s\u00e5gning. S\u00e1 b\u00f3kmenntagagnr\u00fdnandi sem \u00feykir hafa gengi\u00f0 hreinlegast til verks, svo a\u00f0 segja, f\u00e6r ver\u00f0laun. Gyllta s\u00f6g, skilst m\u00e9r. \u00cd Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 sl\u00e1tra gagnr\u00fdnendur ekki heldur saga. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 \u00feessum ver\u00f0launum stendur hla\u00f0varpi\u00f0 G\u00e4stabudet \u2013\u00a0\u00fe\u00e6r Mikaela Blomquist og Lyra Ekstr\u00f6m \u2013\u00a0en me\u00f0 \u00feeim \u00ed d\u00f3mnefnd situr rith\u00f6fundurinn Agri Isma\u00efl. Ver\u00f0launin voru fyrst veitt \u00ed fyrra. \u00de\u00e1 f\u00e9kk Anders Mortensen ver\u00f0launin fyrir <a href=\"https:\/\/tidskriftenrespons.se\/artikel\/raljant-om-ekelofs-liv-och-verk\/\">s\u00f6gun s\u00edna \u00e1 \u00e6vis\u00f6gu Jespers H\u00f6gstr\u00f6m um sk\u00e1ldi\u00f0 Gunnar Ekel\u00f6f<\/a>. Vel a\u00f0 merkja mun Mortensen \u00feessi sj\u00e1lfur vera me\u00f0 b\u00f3k \u00ed sm\u00ed\u00f0um um Ekel\u00f6f. \u00cd \u00e1r var \u00fea\u00f0 svo Gunilla Kindstrand sem f\u00e9kk ver\u00f0launin fyrir s\u00edna s\u00f6gun \u00e1 sj\u00e1lfs\u00e6vis\u00f6gulegri sk\u00e1lds\u00f6gu\/ritger\u00f0 Daniels Sj\u00f6lin, F\u00e4ltsk\u00e4rsv. S\u00fa fjallar me\u00f0al annars um misnotkun sem h\u00f6fundur\/s\u00f6guma\u00f0ur\/b\u00e1\u00f0ir ver\u00f0ur fyrir sem barn \u2013\u00a0af hendi annars barns (sem b\u00e6\u00f0i eru \u00e1 forsk\u00f3laaldri, ef m\u00e9r skj\u00e1tlast ekki). \u00c9g hef ekki lesi\u00f0 \u00fe\u00e1 gagnr\u00fdni \u2013 h\u00fan er handan gjaldm\u00fars \u2013\u00a0og ekki heldur b\u00f3kina svo sennilega \u00e6tti \u00e9g ekki a\u00f0 hafa m\u00f6rg or\u00f0 um hana. Auk \u00feess kannast \u00e9g l\u00edtillega vi\u00f0 Sj\u00f6lin sem \u00e9g kann vel vi\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef lesi\u00f0 eftir hann finnst m\u00e9r gott. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til ver\u00f0launanna var stofna\u00f0 til \u00feess a\u00f0 auka \u00e1 umr\u00e6\u00f0una og Daniel t\u00f3k \u00fev\u00ed bo\u00f0i og hefur me\u00f0al annars gagnr\u00fdnt a\u00f0 svo vir\u00f0ist sem a\u00f0standendur G\u00e4stabudet hla\u00f0varpsins lesi ekki b\u00e6kurnar sem eru til umfj\u00f6llunar, heldur bara gagnr\u00fdnina \u2013\u00a0og \u00feetta vill hann meina (\u00ed <a href=\"https:\/\/www.expressen.se\/kultur\/sexuella-overgrepp-gor--journalisterna-nervosa\/\">grein \u00ed Expressen<\/a>) a\u00f0 s\u00e9 almennt mein \u00ed s\u00e6nskri b\u00f3kmenntaumr\u00e6\u00f0u og v\u00edsar s\u00e9rstaklega til greinar sem Blomquist birti \u00ed okt\u00f3ber \u00fear sem h\u00fan bi\u00f0ur um <a href=\"https:\/\/www.gp.se\/kultur\/kulturkronika\/jag-langtar-efter-en-vardelos-litteratur.dd0c70b9-aad9-4d7b-a5cc-0ac76e4bf2fa\">\u201ev\u00e4rdel\u00f6s litteratur\u201c<\/a> \u2013\u00a0altso b\u00f3kmenntir sem hafa ekkert gildi, eru ekki bar\u00e1ttut\u00f3l e\u00f0a s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ileg \u00fatr\u00e1s, \u00ed sta\u00f0 b\u00f3ka einsog F\u00e4ltsk\u00e4rsv og fleiri. \u00de\u00e1 spyr h\u00fan sig hvers vegna engin setji spurningamerki vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hvort 4-5 \u00e1ra gamalt barn s\u00e9 einu sinni f\u00e6rt um kynfer\u00f0isofbeldi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En j\u00e1. Almennt mein, segir Sj\u00f6lin. Hann segir \u00e1litsgjafa eftir \u00e1litsgjafa m\u00e6ta fullyr\u00f0ingagla\u00f0an \u00e1 v\u00edgv\u00f6llinn til a\u00f0 segja sk\u00e1lds\u00f6gur\/ fagb\u00e6kur\/ lj\u00f3\u00f0ab\u00e6kur vera rusl, meira og minna, en r\u00e1\u00f0i svo ekki vi\u00f0 a\u00f0 benda \u00e1 eitt einasta d\u00e6mi (anna\u00f0 en Gu\u00f0r\u00fan Helgad\u00f3ttir \u00ed pistlinum sem vitna\u00f0 var til \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 vill til a\u00f0 s\u00e6nsk b\u00f3kmenntafj\u00f6lmi\u00f0lun ver\u00f0launar upphr\u00f3panir \u2013\u00a0og oft ver\u00f0ur \u00far \u00fev\u00ed heilmiki\u00f0 og skemmtilegt h\u00fallumh\u00e6 svo menningarumfj\u00f6llunin endar \u00e1 fors\u00ed\u00f0um. \u00c9g man t.d. eftir umfj\u00f6llun um n\u00fdjar Dante\u00fe\u00fd\u00f0ingar sem voru margsinnis \u00e1 fors\u00ed\u00f0u anna\u00f0 hvort Expressen e\u00f0a Aftonbladet. Ef ma\u00f0ur vill vera fullyr\u00f0ingagla\u00f0ur er lei\u00f0in inn \u00ed kastlj\u00f3s menningars\u00ed\u00f0nanna grei\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mikaela Blomquist svara\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 Sj\u00f6lin og sag\u00f0i \u00fea\u00f0 alls ekki satt a\u00f0 h\u00fan l\u00e6si ekki b\u00e6kurnar sem h\u00fan fjalla\u00f0i um \u2013\u00a0h\u00fan hef\u00f0i bara alls ekki veri\u00f0 a\u00f0 fjalla um b\u00f3kina hans heldur \u00fea\u00f0 tilfinninga\u00ferungna tungutak sem var nota\u00f0 til a\u00f0 l\u00fdsa henni. \u00c9g held a\u00f0 \u00fear s\u00e9u \u00feau Daniel ekki \u00f3samm\u00e1la um neina eiginlega sta\u00f0reynd \u2013\u00a0Daniel finnst b\u00f3k s\u00edn vera til umfj\u00f6llunar \u00feegar gagnr\u00fdni um hana er til umfj\u00f6llunar, en Mikaelu finnst \u00fea\u00f0 ekki. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit ekki hvort \u201e\u00e5rets s\u00e5gning\u201c \u00e1 s\u00e9r fyrirmynd \u00ed breskum ver\u00f0launum sem k\u00f6llu\u00f0ust \u201ehatchet job of the year\u201c  \u2013\u00a0\u00e1 ensku er hvorki saga\u00f0 n\u00e9 sl\u00e1tra\u00f0, heldur unni\u00f0 me\u00f0 \u00f6xi. A\u00f0 \u00feessum ver\u00f0launum st\u00f3\u00f0 s\u00ed\u00f0an Omnivore. Hva\u00f0 sem fyrirmyndum l\u00ed\u00f0ur tala \u00fe\u00e6r st\u00f6llur \u00ed G\u00e4stabudet meira um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 upphefja vitr\u00e6na b\u00f3kmenntaumr\u00e6\u00f0u en a\u00f0 \u00fe\u00e6r fagni eigin \u00fe\u00f3r\u00f0argle\u00f0i \u2013\u00a0al\u00e6turnar me\u00f0 axirnar voru agress\u00edfari og vildu \u201ehvassa, fyndna og heift\u00fa\u00f0uga texta\u201c (s\u00fa tegund af kvikindislegri gagnr\u00fdni er au\u00f0vita\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0arsport \u00ed Bretlandi, m\u00f6rgum til ama en \u00f6\u00f0rum til gamans). Bresku ver\u00f0launin voru skamml\u00edf, einungis afhent \u00ferisvar sinnum \u00e1 \u00e1runum 2012 &#8211; 2014, og eitthva\u00f0 segir m\u00e9r a\u00f0 \u00feetta ver\u00f0i ekki miki\u00f0 langl\u00edfara pr\u00f3jekt \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst sj\u00e1lfum \u00e1hugavert a\u00f0 \u00e1 sama t\u00edma og G\u00e4stabudet ver\u00f0launar neikv\u00e6\u00f0a gagnr\u00fdni gera \u00fe\u00e6r s\u00e9r far um a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 \u00f3\u00fearflega (a\u00f0 \u00feeirra mati) j\u00e1kv\u00e6\u00f0ri gagnr\u00fdni. Kannski vegna \u00feess a\u00f0 sj\u00e1lfum finnst m\u00e9r volga gagnr\u00fdnin lei\u00f0inlegust \u2013 s\u00fa \u00e1str\u00ed\u00f0ulausa sem felur fagurfr\u00e6\u00f0i s\u00edna jafnvel \u00e1 bakvi\u00f0 uppger\u00f0arhlutleysi og ver sig \u00feannig fyrir \u00f6llum fagurfr\u00e6\u00f0ilegum debatt: \u00feetta er ekki fagurfr\u00e6\u00f0ilegt mat, \u00feetta er h\u00e1menntu\u00f0 \u00fattekt \u00e1 fakt\u00edskum eiginleikum. \u00c9g vil miklu heldur \u00f6fgarnar \u2013 og endilega a\u00f0 f\u00f3lk svari gagnr\u00fdni h\u00e1st\u00f6fum (ef ekki a\u00f0rir gagnr\u00fdnendur e\u00f0a almennir lesendur, \u00fe\u00e1 bara h\u00f6fundarnir sj\u00e1lfir). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feegar \u00e9g hugsa \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 gef \u00e9g sj\u00e1lfur n\u00e6stum \u00f6llum b\u00f3kum 3-4 stj\u00f6rnur \u00e1 Goodreads \u2013 og n\u00e1nast aldrei svara \u00e9g gagnr\u00fdnendum m\u00ednum \u2013\u00a0svo \u00e9g er kannski ekki sj\u00e1lfum m\u00e9r samkv\u00e6mur. En l\u00edklega er \u00e9g l\u00edka lunkinn vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 fyrir hva\u00f0 m\u00e9r finnist gaman a\u00f0 lesa \u2013\u00a0og ni\u00f0ursta\u00f0an v\u00e6ri \u00e1rei\u00f0anlega \u00f6nnur ef \u00e9g fengi eitthvert slembival \u00ed hendurnar. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 eru veitt ver\u00f0laun fyrir sl\u00e1trun \u00e1rsins. \u00c5rets s\u00e5gning. S\u00e1 b\u00f3kmenntagagnr\u00fdnandi sem \u00feykir hafa gengi\u00f0 hreinlegast til verks, svo a\u00f0 segja, f\u00e6r ver\u00f0laun. Gyllta s\u00f6g, skilst m\u00e9r. \u00cd Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 sl\u00e1tra gagnr\u00fdnendur ekki heldur saga. A\u00f0 \u00feessum ver\u00f0launum stendur hla\u00f0varpi\u00f0 G\u00e4stabudet \u2013\u00a0\u00fe\u00e6r Mikaela Blomquist og Lyra Ekstr\u00f6m \u2013\u00a0en me\u00f0 \u00feeim \u00ed d\u00f3mnefnd situr rith\u00f6fundurinn Agri &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5869\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Sl\u00e1trun \u00e1rsins<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-5869","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5869","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5869"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5869\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":5872,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5869\/revisions\/5872"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5869"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5869"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5869"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}