{"id":5950,"date":"2025-04-12T23:47:04","date_gmt":"2025-04-12T23:47:04","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950"},"modified":"2025-05-12T15:25:10","modified_gmt":"2025-05-12T15:25:10","slug":"hades-undirheimarnir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950","title":{"rendered":"Hades: Undirheimarnir"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"768\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/IMG_0598-1024x768.jpeg\" alt=\"\" class=\"wp-image-5953\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/IMG_0598-1024x768.jpeg 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/IMG_0598-300x225.jpeg 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/IMG_0598-768x576.jpeg 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/IMG_0598.jpeg 1280w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00dearna \u00ed vinstra horni uppi er Glasnevin kirkjugar\u00f0ur. Bloom stendur einn. <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En er eg haf\u00f0i be\u00f0izt fyrir og heiti\u00f0 \u00e1 draugas\u00e6ginn, t\u00f3k eg kindurnar og skar \u00fe\u00e6r \u00e1 h\u00e1ls ofan \u00ed gr\u00f6fina svo d\u00f6kkur dreyrinn rann; flykktust \u00fe\u00e1 a\u00f0 vofur hinna dau\u00f0u drauga ne\u00f0an \u00far Myrkheimi: \u00f3gefnar meyjar og frumvaxta sveinar, raunam\u00e6dd gamalmenni, og ungar st\u00falkur, hugs\u00e1rar af n\u00fdfengnum harmi: margir vopnbitnir menn, vegnir me\u00f0 eirslegnum spj\u00f3tum, og b\u00e1ru bl\u00f3\u00f0storkin vopn; \u00feeir komu flokkum saman \u00far sinni \u00e1tt hverr, og flykktust a\u00f0 gr\u00f6finni me\u00f0 geysimiklum gn\u00fd; greip mig \u00fe\u00e1 bleikur \u00f3tti.<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote has-text-align-right is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00dar 11. \u00fe\u00e6tti \u00d3dysseifskvi\u00f0u<\/em><\/p>\n<\/blockquote>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd kvi\u00f0u H\u00f3mers fer \u00d3dysseifur til undirheima \u2013&nbsp;e\u00f0a s\u00e6rir \u00fe\u00e1 eiginlega fram \u2013&nbsp;og f\u00e6r \u00fear a\u00f0 vita hvernig s\u00e9 best a\u00f0 komast heim til \u00cd\u00fe\u00f6ku og a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00f3f\u00f6rum hans hinga\u00f0 til s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 P\u00f3seidon s\u00e9 a\u00f0 refsa honum fyrir a\u00f0 hafa blinda\u00f0 son hans, k\u00fdkl\u00f3pann P\u00f3lyfemus. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deema\u00f0 \u00ed kaflanum hj\u00e1 Joyce er einsog gefur a\u00f0 skilja dau\u00f0inn. Vi\u00f0 h\u00f6fum vita\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fyrsta kafla a\u00f0 Leopold Bloom er \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed jar\u00f0arf\u00f6r Paddys Dignam klukkan 11. Kaflinn hefst \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bloom \u2013 sem er n\u00fdkominn \u00far tyrkneska ba\u00f0h\u00fasinu \u2013&nbsp;og vinir hans, Jack Power, Martin Cunningham og Simon Dedalus, st\u00edga upp \u00ed hestvagn sem mun flytja \u00fe\u00e1 \u00fevert yfir b\u00e6inn upp \u00ed Glasnevin kirkjugar\u00f0, \u00fear sem Dignam ver\u00f0ur jar\u00f0sunginn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lesendur Joyce \u00feekkja alla \u00feessa menn. Simon er au\u00f0vita\u00f0 pabbi Stephens \u2013&nbsp;sterkg\u00e1fa\u00f0ur, \u00edron\u00edskur, skemmtilegur en d\u00f3mhar\u00f0ur og hr\u00e6\u00f0ileg fyllibytta sem er flestum \u00ed l\u00edfi s\u00ednu til \u00f3\u00feurftar. Hann hefur veri\u00f0 nefndur fyrr \u00ed b\u00f3kinni og kemur l\u00edka fyrir \u00ed <em>Portrait of the Artist as a Young Man<\/em>. Power og Cunningham koma fyrir \u00ed sm\u00e1s\u00f6gunni <em>Grace<\/em> \u00far <em>Dubliners<\/em>. \u00dear reyna \u00feeir, \u00e1samt M&#8217;Coy \u00far s\u00ed\u00f0asta kafla, a\u00f0 f\u00e1 Tom Kernan til \u00feess h\u00e6tta a\u00f0 drekka. Vi\u00f0 vitum af fr\u00e1s\u00f6gu M&#8217;Coy \u00ed s\u00ed\u00f0asta kafla a\u00f0 Tom Kernan er \u00e1 bender \u2013 svo \u00feetta plan hefur ekki tekist sem skyldi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Okkur ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an flj\u00f3tt lj\u00f3st \u00e1 t\u00f3ni samr\u00e6\u00f0anna \u00ed vagninum a\u00f0 \u00fe\u00f3tt mennirnir fj\u00f3rir s\u00e9u vinir \u00fe\u00e1 er Bloom utanveltu. Hinir \u00fer\u00edr eru meiri vinir \u2013&nbsp;Bloom er bara \u201eme\u00f0\u201c. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vagninn fer\u00f0ast yfir fj\u00f3rar \u00e1r \u2013&nbsp;e\u00f0a tv\u00e6r \u00e1r og tv\u00f6 s\u00edki \u2013 einsog \u00fea\u00f0 eru fj\u00f3rar \u00e1r \u00ed Hades. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem gerist er a\u00f0 g\u00f6mul kona g\u00e6gist \u00fat um gluggatj\u00f6ld \u00e1 \u00fe\u00e1 sorgarkl\u00e6ddu f\u00e9lagana \u00ed vagninum \u2013 \u201eNefi\u00f0 hv\u00edtflatt \u00e1 r\u00fa\u00f0unni\u201c \u2013&nbsp;og Bloom hugsar a\u00f0 \u00fe\u00e6r (konur, v\u00e6ntanlega) s\u00e9u l\u00edklega \u201eglad to see us go we give them such trouble coming\u201c. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 lei\u00f0inni sj\u00e1 \u00feeir Stephen sem er \u00e1 lei\u00f0inni ni\u00f0ur \u00e1 Sandymount strand \u2013&nbsp;\u00fear sem hann d\u00f3lar \u00ed \u00feri\u00f0ja kafla (\u00e1 \u00feessum sta\u00f0 \u00ed b\u00f3kinni renna s\u00f6gur \u00feeirra saman \u00ed t\u00edma). Klukkan er r\u00e9tt t\u00e6plega ellefu a\u00f0 morgni. Bloom kemur auga \u00e1 Stephen og nefnir \u00fea\u00f0 vi\u00f0 f\u00e9laga s\u00edna og Simon spyr hvort \u201elubbinn hann Mulligan\u201c hafi veri\u00f0 me\u00f0 syni hans \u00ed f\u00f6r \u2013&nbsp;og rantar s\u00ed\u00f0an yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 Stephen umgangist mikinn \u201etrantaral\u00fd\u00f0\u201c og kallar Mulligan samansauma\u00f0an falskan dj\u00f6fuls fant. \u201eI&#8217;ll tickle his catastrophe, believe you me\u201c \u00fe\u00fd\u00f0ir SAM skemmtilega sem \u201eSanni\u00f0i til, \u00e9g skal dusta \u00e1 honum drundinn.\u201c \u00deetta eru b\u00e6\u00f0i sv\u00edvir\u00f0ingar sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 hafa \u00e1 hra\u00f0bergi h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anna\u00f0 \u00feema \u00ed kaflanum er vel a\u00f0 merkja hr\u00e6sni \u2013&nbsp;Simon er alger lubbi og landey\u00f0a sj\u00e1lfur og \u00e1 l\u00edti\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 d\u00e6ma a\u00f0ra. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stephen er vel a\u00f0 merkja l\u00edka svartkl\u00e6ddur \u2013&nbsp;kl\u00e6ddur sorginni \u2013&nbsp;einsog mennirnir \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed jar\u00f0arf\u00f6rina. En Stephen er svartkl\u00e6ddur til lengri t\u00edma \u2013 \u00ed \u00e1r minnir mig \u2013&nbsp;\u00fev\u00ed hann syrgir m\u00f3\u00f0ur s\u00edna. Stephen og Bloom eru sem sagt b\u00e1\u00f0ir \u00ed sorgarkl\u00e6\u00f0na\u00f0i alla b\u00f3kina og b\u00e1\u00f0ir lyklalausir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Rei\u00f0ikast Simons ver\u00f0ur til \u00feess a\u00f0 Bloom fer a\u00f0 hugsa um sinn eigin son og hvernig \u00fea\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 eiga hann 11 \u00e1ra gamlan \u00ed Etonb\u00faningi. \u201eMy son. Me in his eyes. Strange feeling it would be.\u201c Og svo fer hann a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 hvernig hann kom undir. \u00de\u00e1 haf\u00f0i Molly sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 gluggann og fylgst me\u00f0 hundum e\u00f0la sig og kalla\u00f0 \u00e1 Leopold. \u201eGive us a touch, Poldy. God I&#8217;m dying for it.\u201c \u00dea\u00f0 er alveg lj\u00f3st a\u00f0 Bloom telur \u00feetta ekki hafa veri\u00f0 fyrirmyndargetna\u00f0 og hann tekur \u00fea\u00f0 samt alfari\u00f0 \u00e1 sig a\u00f0 sonur \u00feeirra hafi d\u00e1i\u00f0 (\u201eIf it\u2019s healthy it\u2019s from the mother. If not from the man.\u201c)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir spjalla um hverjir komi \u00ed jar\u00f0arf\u00f6rina. Martin Cunningham spyr hvort \u00feeir hafi lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0u Dan Dawson&#8217;s \u00ed bla\u00f0inu \u2013&nbsp;Bloom segir nei og tekur upp bla\u00f0i\u00f0 en er sagt a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00feetta s\u00ed\u00f0ar (r\u00e6\u00f0an kemur aftur upp \u00ed n\u00e6sta kafla). Hann skannar \u00feess \u00ed sta\u00f0 d\u00e1nartilkynningarnar. Svo l\u00e6tur hann hugann reika og augnabliki eftir a\u00f0 honum ver\u00f0ur hugsa\u00f0 til Mollyar og Blaze Boylan (\u201eHe&#8217;s coming in the afternoon. Her songs.\u201c) s\u00e9r Cunningham Boylan og reynir a\u00f0 heilsa honum en f\u00e6r ekkert svar. (\u201eJust that moment I was thinking.} <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Herra Bloom sko\u00f0a\u00f0i neglurnar \u00e1 vinstri hendi s\u00e9r, s\u00ed\u00f0an \u00feeirri h\u00e6gri. Neglurnar, j\u00e1. Er eitthva\u00f0 meira \u00ed hann spunni\u00f0 sem \u00feeir h\u00fan s\u00e9r? Hrifning. Versti ma\u00f0ur \u00ed Dyflinni. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom dvelur aldrei lengi vi\u00f0 \u00feessar hugsanir um Boylan og Molly. Ekki einu sinni \u00fe\u00f3tt f\u00e9lagar hans fari \u00ed framhaldinu a\u00f0 spyrja hann \u00fat \u00ed s\u00f6ngfer\u00f0alagi\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um lei\u00f0 og \u00feeir aka framhj\u00e1 styttunni af \u00fej\u00f3\u00f0ernissinnanum sir John Gray sj\u00e1 \u00feeir mann sem er l\u00fdst svo: \u201eH\u00e1vaxinn svartskeggja\u00f0ur ma\u00f0ur h\u00f6kti kengboginn vi\u00f0 staf sinn.\u201c Okkur skilst flj\u00f3tt a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 gy\u00f0ingur og okurl\u00e1nari a\u00f0 nafni Reuben J. Dodd og hafa f\u00e9lagarnir um hann lj\u00f3t or\u00f0 en segja l\u00edka a\u00f0 \u00feeir hafi allir einhvern t\u00edma \u00feurft a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r til hans e\u00f0a \u201eWell, nearly all of us\u201c, segir Martin Cunningham. Bloom er au\u00f0vita\u00f0 gy\u00f0ingur og \u00feeir telja greinilega a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0i a\u00f0 hann s\u00e9 ekki l\u00edklegur til a\u00f0 ver\u00f0a f\u00f3rnarl\u00f6mb f\u00e9laga sinna. \u00dearna undirstrika \u00feeir hressilega a\u00f0 Bloom er ekki einn \u00feeirra. Kaldh\u00e6\u00f0nin er svo reyndar l\u00edka a\u00f0 Reuben J. Dodd var raunverulegur ma\u00f0ur og alls ekki gy\u00f0ingur \u00fe\u00f3tt margir h\u00e9ldu \u00fea\u00f0. Bloom byrjar \u00e1kafur a\u00f0 segja sl\u00fa\u00f0urs\u00f6gu um Reuben og son hans \u2013&nbsp;sem hafi veri\u00f0 \u00ed kvennavandr\u00e6\u00f0um og hafi \u00e1tt a\u00f0 flytja til Manar \u2013 en hinir eru alltaf a\u00f0 gr\u00edpa fram \u00ed og \u00e1 endanum tekur Martin Cunningham a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 kl\u00e1ra s\u00f6guna, sem er \u00feannig a\u00f0 str\u00e1kurinn reyndi a\u00f0 drekkja s\u00e9r \u00e1 lei\u00f0inni en b\u00e1tsma\u00f0urinn bjarga\u00f0i honum og f\u00e9kk eina fl\u00f3r\u00ednu a\u00f0 launum (sem \u00feykir sm\u00e1narlegt). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jack Power notar t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 til \u00feess a\u00f0 ford\u00e6ma sj\u00e1lfsmor\u00f0 \u2013&nbsp;engin sm\u00e1n s\u00e9 meiri. Cunningham maldar \u00ed m\u00f3inn og talar um t\u00edmabundna ge\u00f0bilun og ma\u00f0ur ver\u00f0i a\u00f0 l\u00edta \u00e1 \u00feetta af sam\u00fa\u00f0. Bloom \u00e6tlar a\u00f0 segja eitthva\u00f0 en h\u00e6ttir vi\u00f0. Hann hugsar vel til Cunninghams og nefnir a\u00f0 hann eigi \u00ed svol\u00edti\u00f0 erfi\u00f0u hj\u00f3nabandi \u2013 konan hans er \u00e1fengissj\u00faklingur sem hefur \u00ed sexgang selt undan \u00feeim h\u00fasg\u00f6gnin til \u00feess a\u00f0 fj\u00e1rmagna drykkju s\u00edna, en alltaf kaupir hann n\u00fd \u201e\u00dea\u00f0 g\u00e6ti fengi\u00f0 steinhjarta til a\u00f0 br\u00e1\u00f0na.\u201c <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd s\u00ed\u00f0asta kafla komumst vi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 pabbi Blooms er d\u00e1inn og \u00fea\u00f0 var vo\u00f0alegt og \u201ekannski honum fyrir bestu\u201c. N\u00fa \u00e1ttum vi\u00f0 okkur \u00e1 \u00fev\u00ed \u2013&nbsp;\u00ed hugsunum Blooms \u2013 a\u00f0 hann framdi sj\u00e1lfsmor\u00f0 \u2013&nbsp;drakk eitur \u00e1 h\u00f3telherbergi. Og skildi eftir br\u00e9f til sonar s\u00edns. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vagninn tefst d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00feegar \u00feeir m\u00e6ta nautgripahj\u00f6r\u00f0 sem er \u00e1 lei\u00f0 til sl\u00e1trunar. Bloom spyr hvers vegna borgin s\u00e9 ekki me\u00f0 sporvagna til \u00feess a\u00f0 flytja svona nautgripi ni\u00f0ur a\u00f0 h\u00f6fn. Cunningham tekur undir. \u00de\u00e1 b\u00e6tir Bloom um betur og stingur upp \u00e1 \u00fatfararsporv\u00f6gnum til a\u00f0 flytja syrgjendur \u00ed kirkjugar\u00f0inn (og nefnir a\u00f0 \u00feannig s\u00e9 \u00ed M\u00edlan\u00f3). Power l\u00fdst ekkert \u00e1 \u00fea\u00f0 en hinir eru heldur j\u00e1kv\u00e6\u00f0ari og Cunningham segir a\u00f0 \u00fe\u00e1 myndu ekki gerast atvik einsog einu sinni \u00feegar l\u00edkvagni hvolfdi og kistan \u201eskopra\u00f0i\u201c \u00fat \u00e1 g\u00f6tuna. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa byrjar Bloom aftur a\u00f0 hugsa. \u00cdmyndar s\u00e9r a\u00f0 vagninn me\u00f0 Dignam velti. Spyr sig hvort l\u00edkum geti bl\u00e6tt. \u00cdhugar a\u00f0 fara a\u00f0 heims\u00e6kja Mill\u00fd \u00ed Mullingar. En afr\u00e6\u00f0ur svo a\u00f0 l\u00e1ta \u00fea\u00f0 vera: \u201eShe mightn&#8217;t like me to come that way without letting her know. Must be careful about women. Catch them once with their pants down. Never forgive you after. Fifteen.\u201c Millikaflinn \u00fearna um konur me\u00f0 buxurnar \u00e1 h\u00e6lunum \u00e1 auglj\u00f3slega l\u00edka vi\u00f0 um Molly. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6st koma \u00feeir a\u00f0 sta\u00f0 \u00fear sem frami\u00f0 var mor\u00f0 og r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 \u2013&nbsp;mor\u00f0inginn var sekur en s\u00fdkna\u00f0ur. Bloom veltir fyrir s\u00e9r hrifningu f\u00f3lks \u00e1 svona l\u00f6gu\u00f0u. \u201eMenn eru s\u00f3lgnir \u00ed a\u00f0 lesa um \u00fea\u00f0. Mannsh\u00f6fu\u00f0 finnst \u00ed gar\u00f0. H\u00fan var kl\u00e6dd \u00ed. Hvernig h\u00fan var\u00f0 vi\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum. S\u00ed\u00f0asti gl\u00e6purinn. Vopni\u00f0 sem beitt var. Mor\u00f0inginn gengur enn laus. V\u00edsbendingar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt sem er vert a\u00f0 nefna: Bloom er alltaf me\u00f0 s\u00e1puna sem hann keypti handa Molly \u00ed vasanum. Stundum truflar h\u00fan hann \u2013&nbsp;hann hefur seti\u00f0 \u00e1 henni alla fer\u00f0ina. N\u00fa koma \u00feeir \u00ed kirkjugar\u00f0inn og hann notar t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 til \u00feess a\u00f0 flytja hana \u00ed brj\u00f3stvasann. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom finnst jar\u00f0arf\u00f6rin l\u00edtil. Martin Cunningham segir Power fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e9r hafi dau\u00f0brug\u00f0i\u00f0 \u00feegar hann f\u00f3r a\u00f0 tala um sj\u00e1lfsmor\u00f0 fyrir framan Bloom \u2013&nbsp;\u00fea\u00f0 kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Power haf\u00f0i ekki hugmynd um sj\u00e1lfsmor\u00f0 f\u00f6\u00f0ur hans. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6st fara \u00feeir a\u00f0 r\u00e6\u00f0a l\u00edftryggingu Dignams og barnafj\u00f6ldann sem hann skilur eftir sig. Cunningham \u00e6tlar a\u00f0 safna peningum fyrir b\u00f6rnin og Bloom gefur duglega \u00ed sj\u00f3\u00f0inn. John Henry Menton, vinnuveitandi Dignams, hefur skr\u00e1\u00f0 sig fyrir pundi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9ra Coffey les yfir l\u00edkinu (\u201eI knew his name was like a coffin. <em>Domine-namine<\/em>.\u201c Bloom veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvers vegna presturinn s\u00e9 svona \u00feaninn, einsog hann s\u00e9 fullur af gasi, og a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ti a\u00f0 vera allt fullt af gasi og eiturgufum \u00e1 svona sta\u00f0. \u201eDown in the vaults of saint Werburgh&#8217;s lovely old organ hundred and fifty they have to bore a hole in the coffins sometimes to let out the bad gas and burn it it. Out it rushes: blue. One whiff of that and you&#8217;re a goner.\u201c Dau\u00f0inn: Br\u00e1\u00f0drepandi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom finnst annars l\u00edti\u00f0 til Coffey koma. Finnst \u00feetta allt frekar andlaust og lei\u00f0inlegt og vir\u00f0ist ekki alveg skilja hvernig nokkur ma\u00f0ur nennir \u00feessu eil\u00edfa kirkjuhjakki. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 einum sta\u00f0 nefnir Simon a\u00f0 \u201eh\u00fan\u201c s\u00e9 grafin \u00fearna \u2013&nbsp;konan hans, heitin, m\u00f3\u00f0ir Stephens \u2013 og \u00e1 \u00f6\u00f0rum nefnir Bloom a\u00f0 hann eigi reit \u00fearna, \u00fear sem foreldrar hans hv\u00edla, og sonurinn Rudy sem d\u00f3 ellefu daga gamall. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">John Henry Menton spyr hver Bloom s\u00e9 og Ned Lambert svarar \u00fev\u00ed og \u00feeir vir\u00f0ast samm\u00e1la um a\u00f0 Molly s\u00e9 alltof \u201efinelooking woman\u201c fyrir hann. Menton segist hafa lent upp \u00e1 kant vi\u00f0 Bloom einu sinni \u00ed keiluspili. B\u00e6tir svo um betur gagnvart Bloom og kallar hann \u201ehalanegra\u201c.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bla\u00f0ama\u00f0urinn Hynes segir brandara um mann sem kom fullur \u00ed kirkjugar\u00f0inn a\u00f0 leita a\u00f0 lei\u00f0i vinar s\u00edns og kvarta\u00f0i svo undan \u00fev\u00ed a\u00f0 jes\u00fal\u00edkneski\u00f0 vi\u00f0 lei\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri alls ekkert l\u00edkt honum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom hugsar m\u00e1lin einsog honum er vant \u2013 hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0. Hugsar um augl\u00fdsinguna fyrir Keyes sem hann \u00fearf a\u00f0 selja. Molly vir\u00f0ist hafa trufla\u00f0 hann \u00feegar hann var a\u00f0 skrifa heimilisfangi\u00f0 \u00e1 svarbr\u00e9fi\u00f0 til M\u00f6rthu. Hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r \u00ed \u201eunga ekkju\u201c \u00e1 \u00feessum sta\u00f0. \u201e\u00c1stir innanum legsteina\u201c. \u201eIn the midst of death we are in life.\u201c Svo fer hann a\u00f0 \u00edhuga hvort ekki v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 spara pl\u00e1ss me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 grafa f\u00f3lk uppr\u00e9tt. Og hvort l\u00edkin s\u00e9u ekki g\u00f3\u00f0ur \u00e1bur\u00f0ur \u2013&nbsp;grasagar\u00f0ur borgarinnar er r\u00e9tt hj\u00e1. Einhver hefur sagt honum a\u00f0 valm\u00fai vaxi vel \u00ed k\u00ednverskum grafreitum og s\u00e1 valm\u00fai ver\u00f0i besta \u00f3p\u00edumi\u00f0. En \u00fea\u00f0 s\u00e9 au\u00f0vita\u00f0 miki\u00f0 af m\u00f6\u00f0kum \u00ed j\u00f6r\u00f0inni. Hugsar um grafarana \u00ed Hamlet (\u00fea\u00f0 ku vera stytta af fr\u00e6gum \u00edrskum leikara \u00ed gar\u00f0inum, kl\u00e6ddum upp einsog Hamlet). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fe\u00e1 er komi\u00f0 a\u00f0 kallinum  \u00ed Macintosh frakkanum. Regnfrakka hefur SAM \u00fea\u00f0 \u00ed fyrstu \u2013&nbsp;sem \u00fea\u00f0 kannski er \u2013&nbsp;en allavega hefur nafni\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ingu. Bloom s\u00e9r hann \u00e1lengdar og veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hver \u00feetta s\u00e9. Hann kemur svo aftur og aftur fyrir \u00ed b\u00f3kinni \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00e9 nokkurn t\u00edma svara\u00f0 hver hann s\u00e9 e\u00f0a neinn eigi (eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g man best) nokkur samskipti vi\u00f0 hann. Sumir segja a\u00f0 \u00feetta eigi a\u00f0 vera vofan af f\u00f6\u00f0ur Bloom \u2013&nbsp;einsog vofa f\u00f6\u00f0ur Hamlets ofs\u00e6kir hann \u2013&nbsp;a\u00f0rir a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 Joyce sj\u00e1lfur (hann var \u00e1 kreiki \u00ed Dublin \u00feennan dag, 16. j\u00fan\u00ed, 1904, \u00feetta er dagurinn sem hann f\u00f3r \u00e1 fyrsta stefnum\u00f3ti\u00f0 me\u00f0 eiginkonu sinni Noru Barnacle). \u00dev\u00ed ver\u00f0ur aldrei svara\u00f0 en g\u00e1tan er \u00fearna. Og Bloom telur \u201ebera hausana\u201c (karlana) og kemst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru t\u00f3lf, \u00ferett\u00e1n me\u00f0 Macintosh-manninum: \u201eTala dau\u00f0ans.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ofan \u00ed gripasporvagna fyrir naut til sl\u00e1trunar og \u00fatfararsporvagna til a\u00f0 flytja l\u00edkin \u00ed kirkjugar\u00f0inn \u00fear sem \u00feau \u00e6tti helst a\u00f0 grafa uppr\u00e9tt veltir Bloom \u00fev\u00ed n\u00fa fyrir s\u00e9r hvort ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 strauml\u00ednulaga \u00feetta ferli enn frekar:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Aumingja Dignam! Hinsta hv\u00edla hans \u00ed j\u00f6r\u00f0inni \u00ed \u00feessum kassa. \u00deegar hugsa\u00f0 er til \u00feeirra allra vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 vera hreinasta s\u00f3un \u00e1 tr\u00e9. Allt sundurnaga\u00f0. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti finna upp fallegar l\u00edkb\u00f6rur me\u00f0 rennibraut og fellihur\u00f0 svo h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 skurra \u00feeim ni\u00f0ur. J\u00e1, en \u00fe\u00e1 kynnu menn a\u00f0 heimta hver s\u00edna eigin rennihur\u00f0. \u00deeir eru svo sm\u00e1munasamir.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd sm\u00e1stund hefur hann svo \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 grafa Dignam lifandi. Og stingur upp \u00e1 lausn \u00e1 \u00fev\u00ed l\u00edka:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 \u00e6ttu a\u00f0 vera l\u00f6g um a\u00f0 hjarta\u00f0 s\u00e9 gegnumstungi\u00f0 til \u00f6ryggis e\u00f0a h\u00f6f\u00f0 s\u00e9 rafmagnsbjalla e\u00f0a s\u00edmi \u00ed kistunni og einhvers konar loftrenna \u00far segld\u00fak.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bla\u00f0ama\u00f0urinn Hynes kemur og man greinilega ekki hva\u00f0 Bloom heitir \u2013&nbsp;en spyr bara um fornafni\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 b\u00e6\u00f0i. Bloom bi\u00f0ur hann a\u00f0 skrifa l\u00edka ni\u00f0ur nafn M&#8217;Coys, einsog hann var be\u00f0inn um \u00ed s\u00ed\u00f0asta kafla. Hynes spyr hvort hann viti hver \u00feetta s\u00e9 \u00fearna ma\u00f0urinn \u00ed &#8230; \u201ethe Macintosh?\u201c spyr Bloom og Hynes, vi\u00f0utan, svarar: \u201eM&#8217;Intosh. \u00c9g veit ekki hver hann er. Heitir hann \u00fea\u00f0?\u201c \u00deegar Bloom svarar er Hynes horfinn \u00e1 braut. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er moka\u00f0 \u00ed gr\u00f6fina. Syrgjendur halda sinn veg. F\u00e9lagarnir r\u00f6lta yfir a\u00f0 gr\u00f6f \u201eLei\u00f0togans\u201c \u2013&nbsp;Charles Stewart Parnell. S\u00e1 kemur \u00edtreka\u00f0 fyrir \u00ed Ulysses og raunar hinum \u00b4b\u00f3kunum l\u00edka. Hann var eins konar frelsishetja sem miklar vonir voru bundnar vi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en hann lenti \u00ed slaufun fyrir a\u00f0 vera \u00ed tygjum vi\u00f0 gifta konu (\u00ed strangka\u00fe\u00f3lsku landi). Hann missti \u00e6runa en gafst ekki alveg upp en lag\u00f0i svo hart a\u00f0 s\u00e9r \u00ed n\u00e6stu kosningabar\u00e1ttu a\u00f0 hann veiktist \u2013&nbsp;st\u00f3\u00f0 \u00fati \u00ed rigningunni of lengi \u2013&nbsp;f\u00e9kk lungnab\u00f3lgu og drapst. Hann er einhvern veginn \u00ed senn p\u00edslarvottur frelsisbyltingarinnar og allar hennar brostnu vonir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Herra Power segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eSumir segja a\u00f0 hann s\u00e9 alls ekki \u00ed gr\u00f6finni. A\u00f0 kistan hafi veri\u00f0 fyllt grj\u00f3ti. A\u00f0 hann birtist aftur einn g\u00f3\u00f0an ve\u00f0urdag.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hynes segir a\u00f0 svo ver\u00f0i ekki. \u201eFri\u00f0ur s\u00e9 me\u00f0 dufti hans.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom byrjar aftur a\u00f0 velta v\u00f6ngum. Hugsar me\u00f0al annars um a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 taka upp raddir hinna l\u00e1tnu svo ma\u00f0ur gleymi \u00feeim ekki. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir mat \u00e1 sunnud\u00f6gum. Leggja veslings gamla langafa \u00e1 f\u00f3ninn. Kraahraark! Hall\u00f3hall\u00f3hall, enhva\u00f0\u00fea\u00f0ergaman kraark virkilegaman hall\u00f3hall\u00f3 \u00e9ger\u00f3g kop\u00fesj. Minnir mann \u00e1 r\u00f6ddina einsog lj\u00f3smyndin minnir mann \u00e1 andliti\u00f0.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd lok kaflans sn\u00fdr Bloom s\u00e9r a\u00f0 Menton til \u00feess a\u00f0 segja honum a\u00f0 hann s\u00e9 me\u00f0 beyglu \u00ed hattinum. \u201eJohn Henry Menton star\u00f0i \u00e1 hann stutta stund \u00e1n \u00feess a\u00f0 hr\u00e6ra legg e\u00f0a li\u00f0.\u201c \u00dea\u00f0 er ekki fyrren Martin Cunningham bendir honum \u00e1 beygluna a\u00f0 hann r\u00e9ttir hana og \u00feakkar (Martin) fyrir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eHerra Bloom var daufur \u00ed d\u00e1lkinn og dr\u00f3st nokkur skref aftur\u00far til a\u00f0 heyra ekki um hva\u00f0 \u00feeir voru a\u00f0 tala.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo ganga \u00feeir a\u00f0 hli\u00f0inu og yfirgefa Hades. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af \u00f6llum k\u00f6flum Ulysses er Hades s\u00e1 sem \u00e1 s\u00e9r flestar beinar samsvaranir \u00ed kvi\u00f0u H\u00f3mers. Og \u00feetta er l\u00edka fyrsti kaflinn sem Joyce byrja\u00f0i a\u00f0 plotta \u2013&nbsp;upprunalega \u00e1tti \u00feetta a\u00f0 vera sm\u00e1saga um kokk\u00e1la\u00f0an gy\u00f0ing sem fer \u00ed jar\u00f0arf\u00f6r og \u00fea\u00f0an me\u00f0 vinum s\u00ednum \u00e1 kr\u00e1 \u00fear sem gert er l\u00edti\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 alv\u00f6ru \u00cdri (seinni hlutinn kemur s\u00ed\u00f0ar). Og hef\u00f0i \u00fe\u00e1 l\u00edklega enda\u00f0 \u00ed <em>Dubliners<\/em>. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dignam er Elpinor, str\u00ed\u00f0sma\u00f0ur \u00d3dysseifs sem datt fullur \u00ed sj\u00f3inn og drukkna\u00f0i (\u00fea\u00f0 er tala\u00f0 um a\u00f0 hjarta\u00f0 hafi drepi\u00f0 Dignam en af \u00edtreku\u00f0um v\u00edsbendingum \u00ed gegnum b\u00f3kina m\u00e1 fullyr\u00f0a a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem hafi drepi\u00f0 hjarta\u00f0 hafi veri\u00f0 brenniv\u00ednsdrykkja). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Cunningham er S\u00fdsifos \u2013 s\u00e1 sem veltir steininum \u00edtreka\u00f0 upp fjalli\u00f0 til \u00feess a\u00f0 endurtaka leikinn s\u00ed\u00f0ar. Konan hans, fyllibyttan, er brekkan og h\u00fasg\u00f6gnin eru steinninn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1rnar eru fj\u00f3rar, einsog \u00e1\u00f0ur segir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reuben, sem gaf b\u00e1tsmanninum fl\u00f3r\u00ednu \u2013&nbsp;b\u00e1tsma\u00f0urinn er Karon (sem \u00feiggur mynt til a\u00f0 flytja menn yfir Styx \u2013&nbsp;s\u00fa mynt er gjarnan l\u00f6g\u00f0 \u00e1 augu hinna l\u00e1tnu). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9ra Coffey er hundurinn Cerberus \u2013&nbsp;honum er l\u00fdst sem hundslegum. Og \u00fea\u00f0 er bara fyrir hans or\u00f0\/blessun sem ma\u00f0ur f\u00e6r a\u00f0 fara yfir \u00ed r\u00edki hinna dau\u00f0u. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">John O&#8217;Connell \u2013&nbsp;raunverulegur ma\u00f0ur \u2013&nbsp;er umsj\u00f3narma\u00f0ur kirkjugar\u00f0sins og sj\u00e1lfur Hades, undirheimak\u00f3ngur. Hades er giftur frj\u00f3semisgy\u00f0ju og kona O&#8217;Connells hefur bori\u00f0 honum \u00e1tta b\u00f6rn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Parnell er Agamemnon \u2013&nbsp;hj\u00faskaparbrot kostu\u00f0u hann l\u00edfi\u00f0 (Agamemnon er reyndar myrtur af eiginkonu sinni og elskhuga hennar). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Menton er Ajax sem neita\u00f0i a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00d3dysseif \u00fat af einhverjum g\u00f6mlum sm\u00e1munum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo framvegis. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 f\u00e6rumst s\u00edfellt n\u00e6r Bloom, sem er einhvern veginn alltaf \u00ed senn \u00fejaka\u00f0ur en samt a\u00f0 axla byr\u00f0ina. Hann er \u00e6gilega breyskur og mannlegur og \u00fea\u00f0 er alveg l\u00edfsins \u00f3m\u00f6gulegt anna\u00f0 en a\u00f0 finna til me\u00f0 honum. Honum finnst a\u00f0 hann hafi stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 dau\u00f0a sonar s\u00edns. Konan hans er a\u00f0 fara a\u00f0 halda framhj\u00e1 honum. D\u00f3ttir hans, sem hann er n\u00e1inn, er a\u00f0 fjarl\u00e6gjast og fullor\u00f0nast. Vinir hans eru l\u00e9legir vinir. Hann er gy\u00f0ingur og \u00cdrar hafa upp til h\u00f3pa ford\u00f3ma gagnvart gy\u00f0ingum. Og hann er gy\u00f0ingur en samt kristinn og \u00e1 ekkert samneyti vi\u00f0 a\u00f0ra gy\u00f0inga (\u00ed sl\u00e1turh\u00fasinu um morguninn \u00e6tlar hann eitthva\u00f0 a\u00f0 fara a\u00f0 tala vi\u00f0 sl\u00e1trarann, sem er gy\u00f0ingur, en l\u00e6tur \u00fea\u00f0 svo vera \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu). Og finnst tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00f6ll h\u00e1lfgert h\u00famb\u00fakk \u2013\u00a0en samt stundum vinalegt h\u00famb\u00fakk. Borgin \u00ed kringum hann er \u00fej\u00f6ku\u00f0 af \u00e1fengiss\u00fdki og f\u00e1t\u00e6kt en hann hefur ekki einu sinni vit \u00e1 a\u00f0 drekka \u00fea\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r. Og einsog honum finnst \u00feetta allt erfitt sligar \u00fea\u00f0 hann ekki \u2013 \u00fea\u00f0 sigrar hann ekki \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er einsog hann andvarpi svol\u00edti\u00f0, sj\u00e1i lj\u00f3su hli\u00f0arnar, d\u00f6kku hli\u00f0arnar, skr\u00edtnu hli\u00f0arnar, og taki svo anna\u00f0 skref, haldi \u00e1fram. Honum \u00feykir auglj\u00f3slega v\u00e6nna um f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kringum hann en f\u00f3lkinu \u00feykir um hann og kannski l\u00ed\u00f0ur honum betur \u00feess vegna \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 fyllir hann a.m.k. ekki beiskju. Hann n\u00fdtur k\u00e6rleikans og sennilega er \u00fea\u00f0 k\u00e6rleikinn sem bjargar honum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom f\u00e6r hins vegar engar v\u00edsbendingar um \u00fea\u00f0 \u00ed heimi hinna dau\u00f0u um \u00fea\u00f0 hvernig hann eigi a\u00f0 komast heim, n\u00e9 heldur f\u00e6r hann neinar uppl\u00fdsingar um \u00fea\u00f0 hvers vegna allt gangi \u00e1 afturf\u00f3tunum hj\u00e1 honum. \u00dea\u00f0 er ekkert sams\u00e6ri, enginn P\u00f3seidon sem hefur lagt \u00e1 hann b\u00f6lvun. \u00c9g held \u00e9g taki samt undir me\u00f0 bloggaranum \u201eKelly\u201c \u00e1 Blooms&amp;Barnacles sem skilur kaflann svona:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">The rituals on offer to soothe the grief of losing a friend are of no use to Bloom because <a href=\"https:\/\/www.bloomsandbarnacles.com\/blog\/decoding-bloom-the-opiate-of-the-mass\" target=\"_blank\" rel=\"noreferrer noopener\">he doesn\u2019t believe in their powe<\/a>r &#8211; they\u2019re simply a bunch of nominedomines. He doesn\u2019t have intimate connections with his fellow mourners to lean on for support. Even poor Paddy seems like an acquaintance at best. Odysseus traveled to the underworld to learn his fate from the seer Tiresias, but Bloom leaves Glasnevin with no such illumination. He re-emerges, instead, with the knowledge of pain of the living world and his place within it. He is not engulfed in supernatural horror or a fear of hell. He does the most life-affirming thing that he can: he goes on living.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifskvi\u00f0u \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far pr\u00f3sa\u00fe\u00fd\u00f0ingu Sveinbj\u00f6rns Egilssonar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifs \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigur\u00f0ar A. Magn\u00fassonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Yfirfer\u00f0in<\/strong> <strong>2025<\/strong>:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5920\">Ulysses: Lestrardagb\u00f3k, 1. hluti<\/a> (Telemakkos, Nestor og Pr\u00f3teus \u00e1 hundava\u00f0i \u2013 ver\u00f0ur gert betur s\u00ed\u00f0ar).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5924\">Ulysses: Kalyps\u00f3<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5933\">L\u00f3tus\u00e6turnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Eldri bloggf\u00e6rslur um Ulysses:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594\">Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar<\/a> <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5845\">Hi\u00f0 samhengislega l\u00edf<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5721\">Torlestur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5167\">V\u00f6lundarh\u00fas Rorschachs<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092\">A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5426\">Svarts\u00fdni og blinda<br><\/a><br><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd kvi\u00f0u H\u00f3mers fer \u00d3dysseifur til undirheima \u2013&nbsp;e\u00f0a s\u00e6rir \u00fe\u00e1 eiginlega fram \u2013&nbsp;og f\u00e6r \u00fear a\u00f0 vita hvernig s\u00e9 best a\u00f0 komast heim til \u00cd\u00fe\u00f6ku og a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00f3f\u00f6rum hans hinga\u00f0 til s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 P\u00f3seidon s\u00e9 a\u00f0 refsa honum fyrir a\u00f0 hafa blinda\u00f0 son hans, k\u00fdkl\u00f3pann P\u00f3lyfemus. \u00deema\u00f0 \u00ed kaflanum hj\u00e1 Joyce er &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hades: Undirheimarnir<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-5950","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5950","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5950"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5950\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6067,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5950\/revisions\/6067"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5950"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5950"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5950"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}