{"id":5984,"date":"2025-04-24T14:29:58","date_gmt":"2025-04-24T14:29:58","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5984"},"modified":"2025-04-24T14:34:10","modified_gmt":"2025-04-24T14:34:10","slug":"eolus-motvindar-frelsis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5984","title":{"rendered":"E\u00f3lus: M\u00f3tvindar frelsis"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"768\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/ulyssespusl-1024x768.jpeg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6005\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/ulyssespusl-1024x768.jpeg 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/ulyssespusl-300x225.jpeg 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/ulyssespusl-768x576.jpeg 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/ulyssespusl.jpeg 1200w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">H\u00e9r er \u00fdmislegt a\u00f0 gerast. \u00dea\u00f0 glittir \u00ed k\u00fdkl\u00f3p. S\u00edtr\u00f3nus\u00e1pan hv\u00edlir \u00ed lundi. F\u00f3lki\u00f0 vi\u00f0 vitann er Molly og Leopold \u00e1 s\u00ednu fyrsta stefnum\u00f3ti l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur. Samuel Beckett stendur uppi \u00e1 h\u00fasi. \u00dear beint fyrir ofan eru skrifstofur Freeman&#8217;s Journal og Evening Telegraph. Molly hv\u00edlir \u00ed r\u00fami s\u00ednu og Bloom tekur til morgunmatinn. S\u00e9ra Conmee er \u00e1 stj\u00e1i. B\u00f3kin The Sweets of Sin stendur opin. \u00cd vinstra horninu ni\u00f0ri eru Flann O&#8217;Brien og fleiri rith\u00f6fundar \u00e1 fr\u00e6gri fer\u00f0 um s\u00f6gusl\u00f3\u00f0ir Ulysses sem enda\u00f0i \u00e1 einhverjum afar visk\u00edlegnum villig\u00f6tum. \u00de\u00e1 er \u00feetta Bloom \u00fearna undir bl\u00f3minu st\u00f3ra me\u00f0 br\u00e9fi\u00f0 fr\u00e1 M\u00f6rthu \u00ed h\u00f6ndunum.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g segi ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 erfi\u00f0asta vi\u00f0 Aeolus s\u00e9 a\u00f0 stafsetja heiti\u00f0 \u00e1 kaflanum r\u00e9tt en \u00fea\u00f0 er allavega \u00e1 topp fimm listanum. Ef marka m\u00e1 \u00e1rangur minn (\u00e9g k\u00edki alltaf og lei\u00f0r\u00e9tti en vir\u00f0ist ekki geta gert \u00feetta r\u00e9tt \u00ed fyrsta skipti). Enda hefur Sveinbj\u00f6rn \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 kalla manninn bara E\u00f3lus. Hipp\u00f3tesson. \u00c1stvin hinna \u00f3dau\u00f0legu gu\u00f0a. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd kvi\u00f0u H\u00f3mers segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed er \u00d3dysseifur hittir vindgu\u00f0inn E\u00f3lus. E\u00f3lus gefur \u00d3dysseifi poka fullan af m\u00f3tvindi sem \u00fe\u00e1 hindrar hann ekki \u00e1 heimlei\u00f0inni \u2013\u00a0og sendir g\u00f3\u00f0an vestanvind \u00e1 eftir honum. \u00deetta er vel a\u00f0 merkja flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 Tr\u00f3justr\u00ed\u00f0inu l\u00b4\u00fdkur, r\u00e9tt eftir a\u00f0 \u00d3dysseifur sleppur fr\u00e1 k\u00fdkl\u00f3pnum P\u00f3lyfemusi. Me\u00f0 hj\u00e1lp hagst\u00e6\u00f0ra vinda s\u00e6kist fer\u00f0in vel og \u00feegar \u00cd\u00feaka er \u00ed sj\u00f3nm\u00e1li \u00e1kve\u00f0ur \u00d3dysseifur \u2013\u00a0illu heilli fyrir sig en g\u00f3\u00f0u heilli fyrir sad\u00edska lesendur \u00e6vint\u00fdra \u2013 a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r bara ogguponsu l\u00far. \u00c1 me\u00f0an l\u00farnum stendur k\u00edkja skipverjar \u00ed pokann, af \u00fev\u00ed \u00feeir telja a\u00f0 \u00fear megi finna fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0, me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum a\u00f0 m\u00f3tvindarnir sleppa \u00fat og skipi\u00f0 feykist alla lei\u00f0 aftur til baka. E\u00f3lus finnst \u00feetta ekki fyndi\u00f0 \u2013 \u201ego\u00f0agremi veldur \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00fe\u00fa ert hinga\u00f0 kominn\u201c \u2013\u00a0og neitar a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00d3dysseifi frekar. Enn eru sj\u00f6 \u00e1r \u00ed a\u00f0 \u00d3dysseifur komist heim.  <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6gusvi\u00f0 E\u00f3lusarkafla Joyce eru skrifstofur The Freeman&#8217;s Journal og The Evening Telegraph \u2013\u00a0morgunbla\u00f0i\u00f0 og s\u00ed\u00f0degisbla\u00f0i\u00f0 deila kont\u00f3r. Vindur er a\u00f0alhreyfiafl og h\u00f6fu\u00f0myndl\u00edking kaflans. Vindurinn feykir f\u00f3lki inn og \u00fat \u00far herbergjum. \u00dea\u00f0 er stanslaus umgangur og erfitt a\u00f0 fylgjast me\u00f0 hverjir eru inni \u00e1 svi\u00f0inu. F\u00f3lki\u00f0 sem \u00feeytist fram og til baka bl\u00e6s l\u00edka \u00fat \u00far s\u00e9r heilum \u00f3sk\u00f6pum af heitu lofti og gaspri og \u00fea\u00f0 eru gjarnan fleiri en ein samr\u00e6\u00f0a a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0 samt\u00edmis. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom er hins vegar bl\u00e1si\u00f0 \u00e1fram af launa\u00fe\u00f6rfinni \u2013\u00a0augl\u00fdsingasalan er greinilega illa launa\u00f0 sk\u00edtadjobb og hann r\u00e6\u00f0ur litlu og enginn ber minnstu vir\u00f0ingu fyrir honum. En \u00fea\u00f0 eru \u00feannig st\u00f6rf sem feykja manni af mestum krafti, st\u00f6rfin sem ma\u00f0ur hefur ekki efni \u00e1 a\u00f0 missa. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ulysses er \u00ed eina af s\u00ednum fj\u00f6lm\u00f6rgu r\u00f6ndum saga um framfarir og n\u00fat\u00edma. Og \u00fea\u00f0 hvernig n\u00fat\u00edminn tekur vi\u00f0 af fort\u00ed\u00f0inni, breytir venjum og hef\u00f0um og hugsunarh\u00e6tti. Og h\u00fan bo\u00f0ar framt\u00ed\u00f0ina sem mun gera \u00fea\u00f0 sama vi\u00f0 n\u00fat\u00edmann og hann ger\u00f0i vi\u00f0 fort\u00ed\u00f0ina. Valta yfir hann. \u00dea\u00f0 eru f\u00e1ir h\u00f6fundar \u00e1 \u00feessum t\u00edma \u2013\u00a01914-1922 \u2013\u00a0sem skrifa af sama \u00e1huga fyrir t\u00e6knin\u00fdjungum og Joyce. Einsog vi\u00f0 s\u00e1um \u00ed s\u00ed\u00f0asta kafla er a\u00f0als\u00f6guhetjan, Leopold Bloom, t.d. \u00e1hugama\u00f0ur um v\u00e9lv\u00e6\u00f0ingu dau\u00f0ans \u2013\u00a0og sennilega einl\u00e6gur \u00ed \u00feeim \u00e1huga \u00fe\u00f3tt Joyce s\u00e9 kannski p\u00ednu a\u00f0 gera gys l\u00edka. H\u00e9r \u00f6rlar hins vegar fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Bloom d\u00e1ist ekki bara a\u00f0 t\u00e6kninni heldur fyrirl\u00edti e\u00f0a \u00f3ttist hana l\u00edka. \u00cd prentsmi\u00f0junni kemur til d\u00e6mis \u00feessi kafli:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Machines. Smash a man to atoms if they got him caught. Rule the world today. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rsk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar b\u00e6tir hann vi\u00f0 \u00feessari l\u00fdsingu \u00e1 v\u00e9lunum:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">The machines clanked in threefour time. Thump, thump, thump. Now if he got paralysed there and no one knew how to stop them they&#8217;d clank on and on the same, print it over and over and up and back. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tveimur bla\u00f0s\u00ed\u00f0um s\u00ed\u00f0ar koma prentv\u00e9larnar enn eina fer\u00f0ina inn og \u00fe\u00e1 er einsog Bloom s\u00e9 farinn a\u00f0 skilja \u00fe\u00e6r. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sllt. Almost human the way it sllt call to attention. Doing its level best to speak. That door too sllt creaking, asking to be shut. Everything speaks in its own way. Sllt.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta \u201esllt\u201c hlj\u00f3\u00f0 hlj\u00f3ti a\u00f0 vera skur\u00f0arv\u00e9l. Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. \u00cd fj\u00f3r\u00f0a kafla b\u00f3karinnar, \u00feegar vi\u00f0 hittum Bloom, \u00e1 hann \u00ed samskiptum fyrst vi\u00f0 k\u00f6ttinn sinn sem mj\u00e1lmar og svo vi\u00f0 Molly, sem muldrar or\u00f0aleysur \u2013\u00a0og alltaf skilur Bloom \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 hann er sagt \u00fe\u00f3tt or\u00f0in s\u00e9 ekki a\u00f0 finna \u00ed or\u00f0ab\u00f3kum. H\u00e9r er undirstriku\u00f0 mennska Blooms og \u00fe\u00f6rf hans fyrir tengsl, fyrir a\u00f0 skilja heiminn \u2013 en l\u00edka l\u00fdst \u00e1kve\u00f0inni kenningu um lestur: Kannski er ekki h\u00e6gt a\u00f0 lesa (Ulysses\/neitt) nema ma\u00f0ur treysti eigin inns\u00e6i til a\u00f0 t\u00falka uppl\u00fdsingarnar sem ma\u00f0ur f\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Yfirgengilegur textaveruleiki aldam\u00f3tanna 1900 tr\u00f6llr\u00ed\u00f0ur au\u00f0vita\u00f0 b\u00f3kinni. \u00dea\u00f0 var ekki a\u00f0 dagbl\u00f6\u00f0 og augl\u00fdsingar v\u00e6ru n\u00fdm\u00e6li, \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ru \u00feau mj\u00f6g g\u00f6mul heldur, heldur a\u00f0 \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt fleirum til bo\u00f0a a\u00f0 skrifa, lesa og augl\u00fdsa. \u00dat um allt er texti. \u00c1 \u00f6llum veggjum eru tilkynningar og augl\u00fdsingar og skilti og Bloom les \u00fea\u00f0 allt.\u00a0Bloom er svo au\u00f0vita\u00f0 sj\u00e1lfur augl\u00fdsingasali (millig\u00f6nguma\u00f0ur milli augl\u00fdsenda og Freeman&#8217;s Journal, sem gefur \u00fat The Evening Telegraph \u2013\u00a0hleypur \u00e1 milli og semur um birtingu og vinnur fyrir pr\u00f3sentur). Og sem sl\u00edkur hefur hann einl\u00e6gan \u00e1huga \u00e1 texta og framsetningu. Hann gengur auk \u00feess um me\u00f0 uppr\u00falla\u00f0 dagbla\u00f0 undir hendinni alla b\u00f3kina \u2013 og \u00fea\u00f0 er yfirleitt kalla\u00f0 \u201enewspaper baton\u201c og \u00e1 einum sta\u00f0 \u201efreeman baton\u201c og \u00fea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega ekki \u00f3viljandi \u2013\u00a0baton er b\u00e6\u00f0i t\u00f3nsproti, s\u00e1 sem \u00ed hann heldur s\u00b4t\u00fdrir verkinu, og barefli e\u00f0a kylfa. Textinn lei\u00f0beinir, st\u00fdrir og mei\u00f0ir jafnvel. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stephen \u2013\u00a0sem sn\u00fdr aftur \u00ed E\u00f3lus \u2013 er menntama\u00f0ur og sk\u00e1ld og sem sl\u00edkur upptekinn af annars konar textagreiningu.\u00a0Hann \u00edhugar Arist\u00f3teles og Boehme og Shakespeare \u2013\u00a0og raunar er hann \u00ed hinum fr\u00e6gu upphafsor\u00f0um Pr\u00f3teusar um \u201ethe ineluctable modality of the visible\u201c \u2013\u00a0(\u201e\u00f3umfl\u00fdjanlegan h\u00e1tt \u00feess sem er s\u00fdnilegt\u201c)  \u2013 a\u00f0 reyna a\u00f0 komast handan hins sj\u00e1anlega \u00fat \u00ed einhvers konar \u201ehreina hugsun\u201c \u2013\u00a0hugsun um hugsun, hugsun um heimspeki og listir. E\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta a\u00f0 sj\u00e1 s\u00fdnileikann \u00ed hinu s\u00fdnilega \u2013\u00a0sj\u00e1 sig sj\u00e1. \u00dea\u00f0 er \u00f6fugt vi\u00f0 Bloom sem ba\u00f0ar sig \u00ed hinu sj\u00e1anlega \u2013\u00a0starir jafn hispurslaust \u00e1 augl\u00fdsingar sem kvenmannsleggi \u2013\u00a0og er alltaf me\u00f0 hugann vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem er fyrir framan nefi\u00f0 \u00e1 honum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Erindi Stephens \u00ed E\u00f3lus er a\u00f0 koma til skila a\u00f0sendri grein fr\u00e1 yfirmanni s\u00ednum, hr. Deasy, um gin- og klaufaveiki. Ekki s\u00ednum eigin skrifum, sem \u00fe\u00f3 er gengi\u00f0 eftir. Hins vegar reif sk\u00e1ldi\u00f0 sm\u00e1 rifrildi af papp\u00edrnum sem greinin er skrifu\u00f0 \u00e1 \u2013\u00a0\u00ed Pr\u00f3teusarkaflanum \u2013\u00a0og orti \u00e1 \u00fea\u00f0 lj\u00f3\u00f0 sem hann rifjar upp h\u00e9r \u00feegar ritstj\u00f3rinn spyr hvers vegna br\u00e9fi\u00f0 s\u00e9 rifi\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">On swift sail flaming<br>From storm and south<br>He comes, pale vampire,<br>Mouth to my mouth. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f3kin sj\u00e1lf vekur l\u00edka s\u00edfellt meiri athygli \u00e1 sj\u00e1lfri s\u00e9r eftir \u00fev\u00ed sem l\u00ed\u00f0ur \u00e1 hana. Fyrst me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 beita \u00f3venjulegum fr\u00e1sagnara\u00f0fer\u00f0um sem leyfa Joyce a\u00f0 dvelja vi\u00f0 og st\u00f6kkva inn \u00ed jafnvel sm\u00e1v\u00e6gilegustu hugsanir s\u00f6gupers\u00f3na sinna \u2013\u00a0sem ver\u00f0a \u00fear me\u00f0 texti \u2013 og svo s\u00ed\u00f0ar me\u00f0 auglj\u00f3sari a\u00f0fer\u00f0um. \u00deetta ver\u00f0ur fyrst daglj\u00f3st jafnvel fimm \u00e1ra b\u00f6rnum \u00ed E\u00f3lus \u00fear sem fr\u00e1s\u00f6gninni er skipt upp \u00ed fr\u00e9ttir me\u00f0 fyrirs\u00f6gnum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u201eLost Causes Noble Marquess Mentioned\u201c og \u201eOnly Once More That Soap\u201c sem standa reyndar \u00ed misauglj\u00f3su samhengi vi\u00f0 textann. Textann g\u00e6ti ma\u00f0ur alveg lesi\u00f0 \u00e1n \u00feeirra einsog hvern annan kafla \u00ed \u00feessari b\u00f3k \u2013\u00a0og raunar b\u00e6tti Joyce fyrirs\u00f6gnunum bara vi\u00f0 \u00ed pr\u00f3f\u00f6rk til \u00feess a\u00f0 undirstrika text\u00faal\u00edteti\u00f0 og b\u00faa mann undir n\u00e6stu st\u00f6kk \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1tt. Og au\u00f0vita\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er vi\u00f0eigandi fyrir s\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0. Dagbla\u00f0aheiminn. Heim framt\u00ed\u00f0arinnar: augl\u00fdsinga og prentlista. Bla\u00f0askrif og augl\u00fdsingar eru st\u00f6\u00f0ugt r\u00e6dd, h\u00e1va\u00f0inn \u00ed prentsmi\u00f0junni og gaspri\u00f0 \u00ed bla\u00f0am\u00f6nnunum eru alltumlykjandi. Og \u00e1 einum sta\u00f0 d\u00e1ist Bloom l\u00edka a\u00f0 \u00fev\u00ed hvernig setjararnir geta ra\u00f0a\u00f0 upp st\u00f6funum aftur \u00e1 bak \u2013 mangiD kcirtaP \u2013 ef b\u00f3kin hef\u00f0i veri\u00f0 prentu\u00f0 \u00ed dag hef\u00f0i Joyce sennilega l\u00e1ti\u00f0 spegla stafina l\u00edka.<\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"923\" height=\"1000\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/image.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6003\" style=\"width:315px;height:auto\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/image.png 923w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/image-277x300.png 277w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/image-768x832.png 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 923px) 100vw, 923px\" \/><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00e9lagar Blooms \u00far jar\u00f0arf\u00f6rinni eru farnir \u00e1 p\u00f6bbinn en Bloom hefur ekki efni \u00e1 a\u00f0 sl\u00e6past, hann \u00fearf a\u00f0 sinna vinnunni. Hann er me\u00f0 hugmynd a\u00f0 augl\u00fdsingu fyrir te- og v\u00ednsalann Alexander Keyes sem felur \u00ed s\u00e9r a\u00f0 endurn\u00fdta gamla augl\u00fdsingu \u00far \u00f6\u00f0ru bla\u00f0i, tvo lykla \u00ed kross innan \u00ed hring. Sams konar merki mun hafa veri\u00f0 nota\u00f0 af \u00feeim sem studdu \u00edrska heimastj\u00f3rn. Og Bloom segir vi\u00f0 yfirmann sinn, Nannetti, a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 da\u00f0ur vi\u00f0 sl\u00edka p\u00f3lit\u00edk \u2013 sem er \u00feeim greinilega \u00f6llum a\u00f0 skapi. En <em>heimastj\u00f3rn<\/em> \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00e1rei\u00f0anlega eitthva\u00f0 fleira fyrir kokk\u00e1lnum og \u00e1starbr\u00e9faskrifaranum en bara sj\u00e1lfstj\u00f3rn \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Og tveir lyklar \u00ed b\u00f3k um tvo lyklalausa menn \u2013\u00a0Stephen og Bloom fara b\u00e1\u00f0ir a\u00f0 heiman lyklalausir \u2013 er n\u00fa kannski ekki fl\u00f3knasta t\u00e1kni\u00f0 \u00ed lj\u00f3\u00f0r\u00e1\u00f0ningab\u00f3kinni. Nannetti sam\u00feykkir augl\u00fdsinguna ef Keyes f\u00e6st til a\u00f0 kaupa \u00feriggja m\u00e1na\u00f0a endurn\u00fdjun. Bloom r\u00fdkur af sta\u00f0 til a\u00f0 athuga me\u00f0 \u00fea\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Augnabliki s\u00ed\u00f0ar tekur Bloom upp vasakl\u00fatinn og finnur lykt af s\u00edtr\u00f3nus\u00e1punni sem hann keypti fyrir Molly \u2013&nbsp;rifjar upp spurningu M\u00f6rthu um hva\u00f0a ilmvatn kona hans notar \u2013 \u00edhugar \u00ed \u00f6rskotsstund a\u00f0 gera s\u00e9r upp afs\u00f6kun fyrir a\u00f0 l\u00edta vi\u00f0 heima, \u00fear sem Molly b\u00ed\u00f0ur Boylans, en h\u00e6ttir jafn har\u00f0an vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00e1 H\u00f3mer fer\u00f0ast \u00d3dysseifur og f\u00e9lagar um langa lei\u00f0 \u2013 fram og til baka. \u00dea\u00f0 fer hins vegar enginn mj\u00f6g langt \u00ed Joyce \u00fev\u00ed enda \u00fe\u00f3tt litlu megi muna a\u00f0 Bloom fari til Ballsbridge (sem er d\u00e1l\u00edti\u00f0 fer\u00f0alag) til \u00feess a\u00f0 semja vi\u00f0 Alexander Keyes hj\u00e1 House of Keyes \u00fe\u00e1 \u00e1kve\u00f0ur hann \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu a\u00f0 hringja og kemst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Keyes er staddur handan vi\u00f0 horni\u00f0 \u00e1 uppbo\u00f0sh\u00fasi. Hann r\u00fdkur \u00feanga\u00f0 en vi\u00f0 erum skilin eftir \u00e1 skrifstofunni \u00e1 me\u00f0an. Hinir horfa \u00e1 eftir honum \u00fat um gluggann \u00fear sem str\u00e1kast\u00f3\u00f0 gerir gys a\u00f0 honum og hermir eftir g\u00f6ngulaginu. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2013 L\u00edti\u00f0 bara \u00e1 str\u00e1kskr\u00edpi\u00f0 \u00fearna sem \u00e6pir og skr\u00e6kir fyrir aftan hann, sag\u00f0i Lenehan, og \u00fe\u00e9r f\u00e1i\u00f0 hl\u00e1turskrampa. \u00c6 hamingjan sanna, hermir meira\u00f0segja eftir ilsignu g\u00f6ngulaginu og \u00f6llu heila klabbinu. S\u00e1 kann loddarabr\u00f6g\u00f0in. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 skrifstofunum er einsog \u00e1\u00f0ur segir st\u00f6\u00f0ugur umgangur. Simon Dedalus er \u00fearna en fer flj\u00f3tlega \u00e1 barinn. Lenehan \u2013 fremur vonlaus t\u00fdpa sem er \u00ed a\u00f0alhlutverki \u00ed Two Gallants \u00far Dubliners \u2013\u00a0reynir a\u00f0 segja or\u00f0agr\u00edn en gengur illa a\u00f0 koma \u00fev\u00ed til skila og svo reynist \u00fea\u00f0 ekkert mj\u00f6g fyndi\u00f0. Hynes er a\u00f0 skila af s\u00e9r greininni um jar\u00f0arf\u00f6r Paddys Dignam. Ritstj\u00f3rinn, Myles Crawford (sem \u00e1 eftir a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 sta\u00f0festa augl\u00fdsingas\u00f6lu Blooms) er \u00fearna, sem og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingurinn J. J. O&#8217;Molloy. Og fleiri og fleiri. \u00dea\u00f0 er rifist um \u00cdrland og R\u00f3m (\u201eSalerna- og holr\u00e6sasmi\u00f0ir ver\u00f0a aldrei andlegir fe\u00f0ur okkar\u201c) og Grikkland og Egyptaland og \u00cdsrael \u2013\u00a0og allt m\u00e1 lesa sem komment um \u00cdrland og Bretland \u2013 og miki\u00f0 gaman hent a\u00f0 r\u00e6\u00f0unni hans Dans Dawson sem var nefnd \u00ed Hadesarkaflanum. \u00c6tli \u00feetta s\u00e9 ekki \u00fea\u00f0 \u00f3\u00feolandi st\u00edlbrag\u00f0 sem \u00de\u00f3rbergur kalla\u00f0i \u201euppskafningu\u201c? E\u00f0a var \u00fea\u00f0 eitthva\u00f0 s\u00e9rt\u00e6kara \u2013\u00a0\u00ed \u00f6llu falli m\u00e6tti \u00fea\u00f0 alveg heita uppskafning m\u00edn vegna:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">E\u00f0a vir\u00f0i\u00f0 aftur fyrir ykkur bug\u00f0ur ni\u00f0andi l\u00e6kjarspr\u00e6nu \u00fearsem h\u00fan hjalar \u00e1lengdar, \u00fe\u00f3tt h\u00fan deili vi\u00f0 gr\u00fdtta \u00fevergir\u00f0inga, \u00e1 lei\u00f0 sinni til hinna \u00fafnu vatna \u00ed bl\u00e1u r\u00edki P\u00f3s\u00eddons, hlykkjast milli mosavaxinna bakka, k\u00e6ld af mildum andvara, og er l\u00fdst upp af d\u00fdrlegu s\u00f3lskini e\u00f0a l\u00ed\u00f0ur undir skugga sem varpa\u00f0 er yfir dj\u00faphugulan barm hennar hvelfdu laufskr\u00fa\u00f0i sk\u00f3garrisanna. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fleiri textar eru r\u00e6ddir \u2013\u00a0me\u00f0al annars bla\u00f0agreinar eftir mann sem heitir Ignatius Gallaher (\u00far Little Cloud \u00ed Dubliners) sem menn eru afar \u00e1n\u00e6g\u00f0ir me\u00f0 og A.E. (\u00fee\u00f3s\u00f3fistann sem h\u00e9t r\u00e9ttu nafni George William Russell), sem hefur nefnt Stephen \u00ed einhverju vi\u00f0tali, J. J. O&#8217;Molloy vitnar \u00ed Seymour Bushe (\u201eeinhver hn\u00f6kralausasta m\u00e1lsgrein sem \u00e9g held \u00e9g hafi nokkurn t\u00edmann hlusta\u00f0 \u00e1\u201c) og Stephen kemst vi\u00f0 og ro\u00f0nar (\u201e\u00feare\u00f0 bl\u00f3\u00f0 hans heilla\u00f0ist af \u00feokka m\u00e1ls og l\u00e1tbrag\u00f0s\u201c) og MacHugh vitnar \u00ed John F. Taylor, texta sem f\u00e6r Stephen til a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r \u00ed augnablik hvort hann \u00e6tti a\u00f0 gerast bla\u00f0ama\u00f0ur \u2013\u00a0en hafnar \u00fev\u00ed svo. Man \u00fe\u00e1 a\u00f0 hann \u00e1 pening (hann f\u00e9kk \u00fatborga\u00f0 hj\u00e1 hr. Deasy \u00ed Nestorkaflanum) og spyr hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki \u00e1st\u00e6\u00f0a til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra fundarh\u00f6ldin \u00fat \u00e1 n\u00e6sta p\u00f6bb. \u00deeirri upp\u00e1stungu er teki\u00f0 me\u00f0 afbrig\u00f0um vel.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stephen segir s\u00ed\u00f0an undarlega d\u00e6mis\u00f6gu um tv\u00e6r \u00edrskar vestumeyjar sem klifra upp \u00ed Nelsons\u00faluna og \u00e9ta \u00fear pl\u00f3mur og skyrpa steinunum yfir grindverki\u00f0. A\u00f0spur\u00f0ur segist hann kalla d\u00e6mis\u00f6guna \u201ePalest\u00edna s\u00e9\u00f0 fr\u00e1 Pisgah <em>e\u00f0a<\/em> D\u00e6misagan um pl\u00f3murnar\u201c. S\u00f6guna m\u00e1 sennilega t\u00falka \u00ed lj\u00f3si textabrotsins eftir Taylor \u00fear sem \u00cdrum var l\u00edkt vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn sem neitu\u00f0u a\u00f0 gangast undir stj\u00f3rn Egypta. Nelson, sem stendur \u00e1 s\u00falunni, er breski flotaforinginn Horatio Nelson. \u00deessi mikilfenglega og risast\u00f3ra s\u00fala var mj\u00f6g umdeild me\u00f0al \u00cdra og var \u00e1 endanum sprengd af IRA \u00e1ri\u00f0 1966 \u2013\u00a0og \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gera enga tilraun til \u00feess a\u00f0 laga hana e\u00f0a endurreisa. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2013 En d\u00f6mur m\u00ednar og herrar, hef\u00f0i M\u00f3se hinn ungi lagt eyrun vi\u00f0 og fallist \u00e1 \u00feessa l\u00edfss\u00fdn, hef\u00f0i hann beygt h\u00f6fu\u00f0 sitt og beygt vilja sinn og beygt anda sinn fyrir \u00feessari drambs\u00f6mu \u00e1minningu, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i hann aldrei leitt \u00fatvalda \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna burt \u00far h\u00fasi \u00e1nau\u00f0arinnar n\u00e9 fylgt sk\u00fdst\u00f3lpanum \u00e1 daginn. Hann hef\u00f0i aldrei tala\u00f0 vi\u00f0 hinn Eil\u00edfa me\u00f0al eldinga \u00e1 S\u00edna\u00edfjalli n\u00e9 nokkurnt\u00edma komi\u00f0 ni\u00f0ur me\u00f0 birtu innbl\u00e1sturs geislandi af \u00e1sj\u00f3nu sinni og t\u00f6flur l\u00f6gm\u00e1lsins \u00ed fangi s\u00e9r, meitla\u00f0ar \u00e1 tungu \u00fatlagans.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed m\u00e1 svo halda til haga a\u00f0 \u00fe\u00f3tt Joyce s\u00e9 \u00ed \u00feessum kafla frekar hallur undir sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttu \u00cdra \u00fe\u00e1 gerir hann mj\u00f6g hressilega upp sakirnar vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0rembuna sem henni fylgir s\u00ed\u00f0ar \u00ed b\u00f3kinni. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 lei\u00f0inni \u00fat rekast f\u00e9lagarnir \u00e1 Bloom sem er a\u00f0 koma aftur af fundi s\u00ednum me\u00f0 Keyes. Bloom segir Crawford a\u00f0 Keyes s\u00e9 til \u00ed tveggja m\u00e1na\u00f0a endurn\u00fdjun \u00e1 augl\u00fdsingunni og hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00f3g \u2013\u00a0en Crawford segir honum a\u00f0 Keyes megi sleikja \u00e1 s\u00e9r rassinn. Bloom fattar a\u00f0 Crawford er a\u00f0 fara \u00e1 barinn og \u00fea\u00f0 ver\u00f0i kannski ekki au\u00f0velt a\u00f0 hindra \u00fe\u00e1 f\u00f6r til \u00feess a\u00f0 kl\u00e1ra augl\u00fdsingas\u00f6luna. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allir \u00e1 lei\u00f0 \u00ed sollinn. Lei\u00f0a hver annan. Lenehan me\u00f0 siglingakaskeiti\u00f0 \u00fearna fyrir handan a\u00f0 sn\u00edkja. Alltaf sama smja\u00f0ri\u00f0. \u00c6tli Dedalusdrengurinn eigi uppt\u00f6kin a\u00f0 \u00feessu. [&#8230;] Hir\u00f0ulaus piltungur.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom b\u00fd\u00f0st til a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 vinna \u00ed augl\u00fdsingunni en Crawford endurtekur bara skilabo\u00f0in um rassinn \u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c6tli bla\u00f0amannat\u00fdpurnar \u00e1 lei\u00f0inni \u00e1 barinn s\u00e9u \u00fe\u00e1 ekki skipverjarnir a\u00f0 opna pokann og Bloom \u00d3dysseifur sem tekst ekki a\u00f0 komast \u00e1 \u00e1fangasta\u00f0, sem a\u00f0 \u00feessu sinni var a\u00f0 selja \u00feessa augl\u00fdsingu. Og hva\u00f0 var augl\u00fdsingin? Tveir lyklar \u00ed kross innan \u00ed hring: merki fyrir sj\u00e1lfst\u00e6tt \u00cdrland. Og drykkjuskapurinn \u00ed kjaft\u00f6skunum var m\u00f3tvindurinn \u00ed pokanum \u2013\u00a0\u00e9g held \u00fea\u00f0 s\u00e9 alveg lj\u00f3st a\u00f0 \u00fe\u00f3tt Joyce hafi sj\u00e1lfur veri\u00f0 frekar g\u00f3\u00f0gla\u00f0ur ma\u00f0ur leit hann \u00e1 \u00e1fengisb\u00f6li\u00f0 sem mikinn dragb\u00edt \u00e1 \u00cdrum. En lyklarnir eru l\u00edka lyklarnir sem Dedalus og Bloom vantar \u2013\u00a0\u00feeir eru b\u00e1\u00f0ir b\u00f3kstaflega lyklalausir og metaf\u00f3r\u00edskt heimilislausir menn, annar landlaus gy\u00f0ingur sem er hafna\u00f0 af \u00fej\u00f3\u00f0 sinni \u00cdrum (og sennilega gy\u00f0ingum l\u00edka), hinn sk\u00e1ld \u00e1 lei\u00f0inni a\u00f0 yfirgefa \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna, halda \u00fat \u00ed heim \u2013\u00a0og heimastj\u00f3rn einsog \u00e1\u00f0ur segir eitthva\u00f0 fleira fyrir kokk\u00e1lnum Bloom en bara sj\u00e1lfstj\u00f3rn \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. E\u00f0a fyrir Stephen, sem b\u00fdr me\u00f0 hinum yfirgangssama Mulligan og er me\u00f0 hinn yfirl\u00e1tssama Haines sem gest. Dedalus og Bloom eru heimastj\u00f3rnarlausir menn \u00ed fleiri skilningi en einum (e\u00f0a tveimur). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifskvi\u00f0u \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far pr\u00f3sa\u00fe\u00fd\u00f0ingu Sveinbj\u00f6rns Egilssonar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifs \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigur\u00f0ar A. Magn\u00fassonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">* * * <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Yfirfer\u00f0in<\/strong>&nbsp;<strong>2025<\/strong>:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5920\">Ulysses: Lestrardagb\u00f3k, 1. hluti<\/a>&nbsp;(Telemakkos, Nestor og Pr\u00f3teus \u00e1 hundava\u00f0i \u2013 ver\u00f0ur gert betur s\u00ed\u00f0ar).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5924\">Ulysses: Kalyps\u00f3<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5933\">L\u00f3tus\u00e6turnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950\">Hades: Undirheimarnir<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Eldri bloggf\u00e6rslur um Ulysses:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594\">Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5845\">Hi\u00f0 samhengislega l\u00edf<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5721\">Torlestur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5167\">V\u00f6lundarh\u00fas Rorschachs<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092\">A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5426\">Svarts\u00fdni og blinda<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g segi ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 erfi\u00f0asta vi\u00f0 Aeolus s\u00e9 a\u00f0 stafsetja heiti\u00f0 \u00e1 kaflanum r\u00e9tt en \u00fea\u00f0 er allavega \u00e1 topp fimm listanum. Ef marka m\u00e1 \u00e1rangur minn (\u00e9g k\u00edki alltaf og lei\u00f0r\u00e9tti en vir\u00f0ist ekki geta gert \u00feetta r\u00e9tt \u00ed fyrsta skipti). Enda hefur Sveinbj\u00f6rn \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 kalla manninn bara E\u00f3lus. Hipp\u00f3tesson. \u00c1stvin hinna &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5984\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">E\u00f3lus: M\u00f3tvindar frelsis<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-5984","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5984","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5984"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5984\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6009,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5984\/revisions\/6009"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5984"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5984"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5984"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}