{"id":6103,"date":"2025-05-27T14:37:37","date_gmt":"2025-05-27T14:37:37","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6103"},"modified":"2025-05-27T14:43:08","modified_gmt":"2025-05-27T14:43:08","slug":"biskup-og-bylting-og-ljod","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6103","title":{"rendered":"Biskup og bylting og lj\u00f3\u00f0"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Biskup \u00cdslands er a\u00f0 koma til \u00cdsafjar\u00f0ar. \u00cd n\u00e6stu viku ver\u00f0a li\u00f0in hundra\u00f0 \u00e1r fr\u00e1 atbur\u00f0um N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lanna. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00feess vegna. Og kem ekki n\u00e1l\u00e6gt fjallinu fyrren h\u00fan er farin. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g er enginn flokksma\u00f0ur. Gekk \u00far vinstri-gr\u00e6num \u00fat af me\u00f0fer\u00f0 stj\u00f3rnvalda \u2013 \u00ed skj\u00f3li flokksins \u2013\u00a0\u00e1 h\u00e6lisleitendum og gekk \u00ed s\u00f3s\u00edalistaflokkinn eftir a\u00f0 hafa l\u00fdst \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 \u00e9g myndi aldrei aftur ganga \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1laflokk. Gekk svo \u00far s\u00f3s\u00edalistaflokknum \u00feegar h\u00e6sthafendur \u00fear voru farnir a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 nau\u00f0ungarvistun f\u00f3lks \u00ed s\u00f3ttkv\u00ed. En sam\u00fa\u00f0 m\u00edn er auglj\u00f3slega vinstramegin \u00ed tilverunni \u2013\u00a0\u00fear sem hjarta\u00f0 sl\u00e6r \u2013\u00a0og \u00e9g vildi helst a\u00f0 h\u00e9r v\u00e6ri starfh\u00e6fur flokkur vinstramegin vi\u00f0 Samfylkinguna. Sem er ekki. VG f\u00f3r til andskotans vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan sinnti ekki grasr\u00f3tinni og var of dugleg vi\u00f0 a\u00f0 \u201eaxla \u00e1byrg\u00f0\u201c \u00ed borgaralegu stj\u00f3rnm\u00e1lalandslagi en s\u00f3s\u00edalistaflokkurinn impl\u00f3dera\u00f0i vegna innri \u00e1taka. Og mikilmennskubrj\u00e1l\u00e6\u00f0is sj\u00e1lfskipa\u00f0ra lei\u00f0toga sem virtust farnir a\u00f0 m\u00e1ta sig vi\u00f0 styttur framt\u00ed\u00f0ar. B\u00e1\u00f0ir flokkarnir eru \u201eenn\u00fe\u00e1 til\u201c en varla samt. \u00deeir eru \u00ed senn autt spjald og vel \u00fatfyllt \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 veit enginn hvernig \u00feeir koma til me\u00f0 a\u00f0 l\u00edta \u00fat e\u00f0a fyrir hva\u00f0 \u00feeir munu standa n\u00e6st en \u00feeir dragnast me\u00f0 f\u00e1r\u00e1nlega fort\u00ed\u00f0 og illafm\u00e1anlega stimpla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tilfinning m\u00edn er s\u00fa a\u00f0 \u00feegar hallarbyltingar eru framdar \u00ed st\u00f6ndugri stj\u00f3rnm\u00e1laflokkum \u00fe\u00e1 s\u00e9 oftast talsver\u00f0 orka l\u00f6g\u00f0 \u00ed a\u00f0 halda m\u00f6nnum g\u00f3\u00f0um \u00feegar \u00e1t\u00f6kin eru yfirsta\u00f0in. A\u00f0 bera vopn \u00e1 kl\u00e6\u00f0in. Finna hinum sigru\u00f0u hlutverk \u2013&nbsp;\u00feeir sem f\u00e1 ekki a\u00f0 vera skipstj\u00f3rar ver\u00f0i st\u00fdrimenn. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 hverjum frontmanni fylgja margir kj\u00f3sendur sem fara \u00ed burtu. Fylgjendur. Og fylgjendurnir eru flokksstarfi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 hefur flokkurinn sem sl\u00edkur l\u00edka \u00e1byrgst \u00fe\u00e1 sem hafa veri\u00f0 \u00ed forsvari og\u00a0tr\u00faver\u00f0ugleiki flokksins \u00ed framt\u00ed\u00f0 st\u00fdrist af tr\u00faver\u00f0ugleika hans \u00ed fort\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 er meira a\u00f0 segja \u00feannig a\u00f0 tr\u00faver\u00f0ugleiki n\u00fdrra hreyfinga r\u00f3tt\u00e6kra s\u00f3s\u00edalista er \u00e1tomat\u00edskt \u00ed h\u00e6ttu strax fr\u00e1 byrjun \u2013\u00a0\u00fat af \u00f6llum hinum r\u00f3tt\u00e6ku s\u00f3s\u00edalistahreyfingunum sem hafa klofna\u00f0 \u00ed heift og frekju.  Ef stj\u00f3rnm\u00e1laflokkur l\u00fdsir \u00fev\u00ed allt\u00edeinu yfir a\u00f0 margir frambj\u00f3\u00f0endur \u00far n\u00fdafst\u00f6\u00f0num kosningum s\u00e9u \u00ed raun og veru algerir afglapar \u2013\u00a0og alls ekki \u00fe\u00e6r byltingarhetjur sem flokkurinn kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e1,\u00a0\u00fe\u00e1* er kj\u00f3sandi \u00fati \u00ed b\u00e6 \u00f3l\u00edklegur til a\u00f0 leggja traust sitt \u00e1 n\u00e6sta holl af andlitum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(\u00derj\u00fa \u201e\u00fe\u00e1\u201c \u00ed r\u00f6\u00f0. \u00dea\u00f0 er fyrir svona til\u00ferif sem ma\u00f0ur f\u00e6r listamannalaun).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 er heldur ekki gott fyrir tr\u00faver\u00f0ugleika n\u00fdrra valdhafa a\u00f0 \u00feeir frambj\u00f3\u00f0endur sem er bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda \u00e1fram \u2013&nbsp;jafnvel kalla\u00f0ir \u00f3skora\u00f0ir lei\u00f0togar \u2013 ranghvolfi bara augunum og gangi \u00ed burtu. \u00dea\u00f0 l\u00edtur svol\u00edti\u00f0 \u00fat einsog f\u00f3lk tali ekkert saman og hafi enga tilfinningu hvert fyrir \u00f6\u00f0ru. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhvers sta\u00f0ar kemur l\u00edka a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00b4\u00f3gu margir s\u00e9u flognir \u00ed veg til \u00feess a\u00f0 vafasamt s\u00e9 a\u00f0 kalla \u00feetta sama flokkinn. Ef 400 heimdellingar ganga \u00ed s\u00f3s\u00edalistaflokkinn og bola n\u00fdju valdh\u00f6funum \u00fat samkv\u00e6mt reglum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isins \u00e1 n\u00e6sta a\u00f0alfundi \u2013&nbsp;til \u00feess a\u00f0 hir\u00f0a styrkinn \u2013&nbsp;er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 enn\u00fe\u00e1 s\u00f3s\u00edalistaflokkurinn? \u00dea\u00f0 er allavega ekki \u00fea\u00f0 sem f\u00f3lk kaus \u2013&nbsp;og \u00fea\u00f0 eru atkv\u00e6\u00f0in sem skila \u00feessum styrk. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er heldur ekki gott fyrir tr\u00faver\u00f0ugleika f\u00f3lks sem hefur \u201ebetri vinnubr\u00f6g\u00f0\u201c a\u00f0 slagor\u00f0i a\u00f0 helmingur \u00feeirra sem hafi unni\u00f0 me\u00f0 \u00feeim finnist vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00feeirra bera mark ofr\u00edkis og frekju. Og er \u00fe\u00e1 alveg sama hvort ma\u00f0ur heitir Gunnar Sm\u00e1ri e\u00f0a Karl H\u00e9\u00f0inn e\u00f0a S\u00f3lveig Anna (e\u00f0a hvort manni finnst allir a\u00f0rir ge\u00f0veikir a\u00f0 sj\u00e1 ekki r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00ed vinnubr\u00f6g\u00f0unum). G\u00f3\u00f0 og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isleg vinnubr\u00f6g\u00f0 fela \u00ed s\u00e9r \u00e1kve\u00f0na vir\u00f0ingu fyrir sko\u00f0unum \u00feeirra sem ma\u00f0ur vinnur me\u00f0, l\u00edka \u00feegar \u00fe\u00e6r fara ekki alveg saman vi\u00f0 manns eigin sko\u00f0anir \u2013\u00a0ef n\u00fdjum valdh\u00f6fum s\u00f3s\u00edalistaflokksins v\u00e6ri annt um a\u00f0 s\u00fdna sl\u00edka vir\u00f0ingu hef\u00f0u \u00feau gert \u00fea\u00f0 frekar en a\u00f0 stefna a\u00f0 hreinni valdat\u00f6ku og ey\u00f0a svo n\u00e6stu d\u00f6gum \u00ed \u00e1framhaldandi sk\u00e6rur og brigsl. S\u00f6k s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir sem bola\u00f0 var burt tali beiskum r\u00f3mi \u2013\u00a0en eiginlega er beiskjan og frekjan verri hinumegin. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g undarlegt a\u00f0 f\u00e1 frekjukast yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa fengi\u00f0 allt sem ma\u00f0ur \u00f3ska\u00f0i s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo er \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 \u00ed huga l\u00edka a\u00f0 ef ma\u00f0ur \u00e6tlar a\u00f0 klj\u00fafa stj\u00f3rnm\u00e1laflokk&nbsp;er betra a\u00f0 bitinn s\u00e9 n\u00f3gu st\u00f3r til \u00feess a\u00f0 \u00feola a\u00f0 fara \u00ed tvennt. \u00dea\u00f0 getur alveg veri\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a til \u00feess a\u00f0 fremja hallarbyltingar \u2013&nbsp;\u00fe\u00e6r eru \u00e1rei\u00f0anlega oft br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegar \u2013&nbsp;en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 vera einhver h\u00f6ll eftir \u00feegar \u00fe\u00e6r eru afsta\u00f0nar. A\u00f0 klj\u00fafa 3% flokk \u00ed her\u00f0ar ni\u00f0ur \u00fat af reglum um \u00fea\u00f0 hvernig er kosi\u00f0 \u00ed nefndir og \u00e1herslum um \u00fea\u00f0 hvort betra s\u00e9 a\u00f0 ey\u00f0a sj\u00f3\u00f0um flokksins \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lun e\u00f0a f\u00e9lagsfundi \u2013&nbsp;no es bueno. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kanad\u00edska lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ldi\u00f0 Paul Dutton l\u00e9st \u00ed morgun \u2013&nbsp;r\u00edflega \u00e1ttr\u00e6\u00f0ur. Dutton er go\u00f0s\u00f6gn \u00ed fram\u00farstefnulj\u00f3\u00f0aheiminum.&nbsp;Hann var me\u00f0al annars me\u00f0limur \u00ed hlj\u00f3\u00f0lj\u00f3\u00f0asveitinni The Four Horsemen, \u00e1samt bpNichol, Steve McCaffery og Rafael Barreto-Rivera. Og gaf \u00fat fj\u00f6ldann allan af tilraunab\u00f3kmenntum, b\u00e6\u00f0i pr\u00f3sa og lj\u00f3\u00f0um. Hann var l\u00edka einn af \u00feessum m\u00f6nnum sem insp\u00edreru\u00f0u margar kynsl\u00b4\u00f3\u00f0ir me\u00f0 (kvabbgjarnri) hl\u00fdju sinni, h\u00famor og einur\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einsog einhverjir kannski muna \u00e1tti \u00e9g m\u00e9r einu sinni svol\u00edtinn feril sem hlj\u00f3\u00f0lj\u00f3\u00f0ask\u00e1ld og fer\u00f0a\u00f0ist miki\u00f0 til \u00feess a\u00f0 koma fram h\u00e9r og \u00fear. \u00deegar Aram N\u00f3i var l\u00edtill og spur\u00f0ur vi\u00f0 hva\u00f0 pabbi hans ynni sag\u00f0i hann \u201epabbi \u00f6skrar \u00e1 f\u00f3lk\u201c og \u00fea\u00f0 var ekki alveg \u00far lausu lofti gripi\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nema hva\u00f0. \u00c1ri\u00f0 2007 var m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0 \u00e1 Scream-h\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00ed Toronto \u2013&nbsp;\u00fear sem var n\u00fa almennt ekkert miki\u00f0 \u00f6skra\u00f0, \u00feetta var bara lj\u00f3\u00f0ah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00f3tt h\u00fan h\u00e9ti \u00feessu nafni \u2013&nbsp;\u00e1 vi\u00f0bur\u00f0 sem Angela Rawlings skipulag\u00f0i. \u00dear var hef\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 para f\u00f3lk saman \u00ed upplestrum og Angela para\u00f0i mig saman vi\u00f0 Paul&nbsp;og vi\u00f0 komum \u00fear saman fram. S\u00e1 vi\u00f0bur\u00f0ur t\u00f3kst svo vel a\u00f0 okkur var bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 koma aftur \u00e1ri\u00f0 eftir og endurtaka leikinn \u00e1 st\u00f3ra svi\u00f0inu \u2013&nbsp;en lokadagur Scream f\u00f3r alltaf fram \u00e1 Shakespeare svi\u00f0inu \u00ed High Park fyrir framan r\u00edflega \u00fe\u00fasund gesti sem s\u00e1tu og hlustu\u00f0u \u00e1 lj\u00f3\u00f0 og drukku v\u00edn fr\u00e1 \u00fev\u00ed um eftirmi\u00f0daginn og langt fram \u00ed myrkur. \u00dea\u00f0 var mj\u00f6g gaman og \u00f3tr\u00falegur hei\u00f0ur \u2013&nbsp;Paul var ein af hetjunum m\u00ednum, a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 lesa me\u00f0 honum var feykin\u00f3g en a\u00f0 vi\u00f0 n\u00e6\u00f0um svona vel saman og \u00fea\u00f0 gengi upp var hreinlega \u00f6lvandi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sterkasta minningin fr\u00e1 \u00feessu er samt ekki fr\u00e1 upp\u00e1komunum heldur \u00feegar vi\u00f0 eyddum h\u00e1lfum degi \u00ed a\u00f0 \u00e6fa saman \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0 Angelu, \u00fear sem \u00e9g gisti, \u00ed Kensington Market. Kensington Market er rosalega l\u00edflegt hverfi og \u00fea\u00f0 var stanslaust reggea-dub \u00e1 blasti hj\u00e1 rakaranum \u00e1 ne\u00f0ri h\u00e6\u00f0inni \u2013&nbsp;kryddmarka\u00f0ir og grillsta\u00f0ir fyrir utan me\u00f0 tilheyrandi ilmum og steikjandi hiti \u2013&nbsp;vi\u00f0 \u00fearna inni fyrir framan risast\u00f3ra og h\u00e1v\u00e6ra loftk\u00e6lingu a\u00f0 garga lj\u00f3\u00f0 hver \u00e1 annan og drekka vatn \u00ed l\u00edtrav\u00eds svo \u00fea\u00f0 li\u00f0i ekki yfir okkur. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mikilmenni er gengi\u00f0 \u2013 lengi lifi minniningin!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-4-3 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"Eir\u00edkur \u00d6rn Nor\u00f0dahl &amp; Paul Dutton\" width=\"660\" height=\"495\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/7ZfXalwK_UI?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Biskup \u00cdslands er a\u00f0 koma til \u00cdsafjar\u00f0ar. \u00cd n\u00e6stu viku ver\u00f0a li\u00f0in hundra\u00f0 \u00e1r fr\u00e1 atbur\u00f0um N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lanna. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00feess vegna. Og kem ekki n\u00e1l\u00e6gt fjallinu fyrren h\u00fan er farin. *** \u00c9g er enginn flokksma\u00f0ur. Gekk \u00far vinstri-gr\u00e6num \u00fat af me\u00f0fer\u00f0 stj\u00f3rnvalda \u2013 \u00ed skj\u00f3li flokksins \u2013\u00a0\u00e1 h\u00e6lisleitendum og gekk \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6103\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Biskup og bylting og lj\u00f3\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6103","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6103","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6103"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6103\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6108,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6103\/revisions\/6108"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6103"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6103"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6103"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}