{"id":6124,"date":"2025-06-11T22:15:05","date_gmt":"2025-06-11T22:15:05","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6124"},"modified":"2025-06-11T22:15:05","modified_gmt":"2025-06-11T22:15:05","slug":"menningarvikan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6124","title":{"rendered":"Menningarvikan"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00e9kk senda b\u00f3k \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku. H\u00fan heitir P\u00e1fagaukagar\u00f0urinn og er eftir h\u00f6fund sem kallar sig \u201eAk\u00f6rn\u201c. H\u00fan vir\u00f0ist hafa veri\u00f0 send eitthva\u00f0 a\u00f0eins hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 og svo s\u00e1 \u00e9g \u00e1 Facebook a\u00f0 b\u00f3kab\u00fa\u00f0in Sk\u00e1lda hefur fengi\u00f0 eitt eintak sem \u00e1 a\u00f0 selja \u00e1 30 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur \u2013 h\u00fan birtist bara \u00fear og \u00feetta var sett sem skilyr\u00f0i. \u00c1g\u00f3\u00f0inn fer til b\u00fa\u00f0arinnar. \u00c9g er b\u00fainn a\u00f0 lesa \u00feessa b\u00f3k \u2013\u00a0h\u00fan er ekki nema 100 s\u00ed\u00f0ur \u2013 og h\u00fan er miki\u00f0 afbrag\u00f0. Svol\u00edti\u00f0 einsog ef Cesar Aira myndi vinna me\u00f0 Yrsu a\u00f0 James Bond mynd. E\u00f0a ef Yrsa myndi skrifa handrit a\u00f0 James Bond mynd sem Cesar Aira v\u00e6ri l\u00e1tinn skrifa upp eftir minni. E\u00f0a jafnvel \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 myndina. Honum v\u00e6ri bara gert a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r \u00feetta: Hvernig myndi James Bond mynd vera ef Yrsa skrifa\u00f0i hana. Me\u00f0 cli-fi \u00feema. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mitt eintak er ekki til s\u00f6lu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3lastj\u00f3ri fyrir austan nota\u00f0i gervigreindina til a\u00f0 skrifa fyrir sig \u00fatskriftarr\u00e6\u00f0una. Gervigreindin fann fyrir hana lj\u00f3\u00f0 \u2013\u00a0greip sennilega \u00fea\u00f0 sem hendi var n\u00e6st, sem var nafn digitalsk\u00e1ldsins J\u00f3ns Arnar Lo\u00f0mfjar\u00f0ar og einhver random l\u00edna um a\u00f0 vera n\u00e6s. \u00deetta minnti mig \u00e1 \u00feegar forsetinn vitna\u00f0i \u00ed lokal\u00ednur Sumardagsins eftir Mary Oliver og sneri eiginlega merkingu \u00feeirra \u00e1 hvolf \u2013\u00a0sem f\u00f3lk gerir reyndar, \u00feessar l\u00ednur eru \u00ed tilvitnanab\u00f3kum \u2013 \u201eSeg\u00f0u m\u00e9r, hva\u00f0 \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 gera \/ vi\u00f0 \u00feitt eina, villta og ver\u00f0m\u00e6ta l\u00edf\u201c \u2013 og f\u00f3lk tekur \u00feeim sem \u201ehvatningu\u201c \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r s\u00e9u \u00fea\u00f0 auglj\u00f3slega ekki \u00ed samhenginu. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 fara \u00ed tilvitnanab\u00e6kurnar fer f\u00f3lk n\u00fana bara til gervigreindarinnar. \u00c9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 er neitt verra. En m\u00e9r finnst mj\u00f6g fyndi\u00f0 a\u00f0 sk\u00f3lastj\u00f3ri vi\u00f0hafi vinnubr\u00f6g\u00f0 sem myndu kosta nemendur fall (sem er ekki a\u00f0 \u201enota\u201c gervigreindina \u2013\u00a0heldur a\u00f0 treysta henni blint og l\u00e1ta hana gabba sig). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars ver\u00f0ur \u00feetta vonandi til \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk lesi lj\u00f3\u00f0in hans Lomma. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lavika. \u00cd dag er 11. j\u00fan\u00ed, s\u00ed\u00f0asti dagur N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lanna \u2013 dagur 7. \u00dea\u00f0 er lengsti dagurinn \u00ed b\u00f3kinni \u2013\u00a0honum er meira a\u00f0 segja skipt \u00ed tvennt. \u00cd \u00e1r eru li\u00f0in akk\u00farat 100 \u00e1r fr\u00e1 sumrinu 1925. Af \u00fev\u00ed tilefni f\u00f3r \u00e9g upp \u00e1 Glei\u00f0arhjalla \u00ed g\u00e6r. Sennilega \u00ed fj\u00f3r\u00f0a skipti\u00f0 \u00e1 \u00e6vinni \u2013\u00a0\u00ed eitt skipti\u00f0 f\u00f3r \u00e9g reyndar ekki alveg alla lei\u00f0 upp, lenti \u00ed \u00f3g\u00f6ngum \u00ed \u00eds og skr\u00f6ngla\u00f0ist aftur ni\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er l\u00edka \u00ed eina skipti\u00f0 sem \u00e9g hef ekki fari\u00f0 einn. \u00de\u00e1 var \u00e9g \u00ed menntask\u00f3la. \u00cd n\u00e6sta skipti \u00fear \u00e1 eftir f\u00f3r \u00e9g \u00e1 strigask\u00f3num beint eftir vinnu \u00ed grunnsk\u00f3lanum \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 var l\u00edka \u00ed snj\u00f3 en \u00ed \u00fea\u00f0 skipti\u00f0 komst \u00e9g upp og settist ni\u00f0ur \u00ed klakann og skrifa\u00f0i br\u00e9f. Og gekk svo aftur ni\u00f0ur. N\u00e6st var l\u00edklega 2013, a\u00f0 sumri til, loksins. \u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fara me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 skrifa N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lin en fyrst sleit \u00e9g \u00ed m\u00e9r krossband og svo eyddi \u00e9g heilu sumri me\u00f0 sl\u00e6man h\u00e6lspora og svo var b\u00f3kin bara komin \u00fat. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef alltaf lent \u00ed \u00f3g\u00f6ngum \u00e1 lei\u00f0inni \u00fearna upp, ef mig misminnir ekki. \u00cd g\u00e6r var \u00e9g kominn h\u00e1lfa lei\u00f0ina upp bratt moldarbar\u00f0\/grj\u00f3tur\u00f0 \u00feegar \u00e9g uppg\u00f6tva\u00f0i a\u00f0 \u00e9g var hvorki me\u00f0 f\u00f3tst\u00f6\u00f0u n\u00e9 grip neinssta\u00f0ar. \u00c9g ofanda\u00f0i svol\u00edti\u00f0 \u00feegar \u00e9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 ef \u00e9g f\u00e6ri a\u00f0 renna af sta\u00f0 myndi \u00e9g sennilega ekki stoppa neitt strax \u2013 og minnti mig svo \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 vitlausasta sem \u00e9g g\u00e6ti gert v\u00e6ri a\u00f0 panikka. Stika\u00f0i s\u00ed\u00f0an varlega ni\u00f0ur aftur og f\u00f3r upp \u00ed st\u00f3rgr\u00fdtinu \u2013\u00a0sem er langskynsamlegast. \u00c9g haf\u00f0i d\u00e1litlar \u00e1hyggjur af ni\u00f0urlei\u00f0inni en rata\u00f0i miklu betri lei\u00f0 \u00fe\u00e1. Svo s\u00e9r ma\u00f0ur l\u00edka betur til \u00feegar ma\u00f0ur fer ni\u00f0ur. Einhvern veginn er ma\u00f0ur alltaf h\u00e1lfblindur a\u00f0 kl\u00f6ngrast upp svona brattar brekkur. \u00cd eitt skipti\u00f0 f\u00f3r \u00e9g upp vitlausa ur\u00f0 sem lei\u00f0ir a\u00f0 \u00f3kleifu bjargi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feetta var gaman og f\u00f3lk sem fer oftar en \u00e9g ratar l\u00e9ttari lei\u00f0ir. \u00c9g las a\u00f0eins \u00far b\u00f3kinni og setti \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0la en a\u00f0altilgangurinn var a\u00f0 taka upp sm\u00e1 kynningarmyndband fyrir s\u00e6nska b\u00f3kasafnsver\u00f0i. \u00datgefandinn ba\u00f0 mig um \u00feetta. Hann er mikill vinur minn og \u00e9g geri allt sem hann bi\u00f0ur mig um. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef l\u00edti\u00f0 lesi\u00f0 \u00ed vikunni. Anna\u00f0 en P\u00e1fagaukagar\u00f0inn. Nadja f\u00f3r til Frakklands \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku og \u00e9g hef veri\u00f0 a\u00f0 vesenast alls konar. \u00cd dag bar \u00e9g \u00e1 pallinn og gar\u00f0h\u00fasg\u00f6gnin. \u00c1 helginni reif \u00e9g upp \u00f3gurlegt hlass af kerfli, felldi eitt tr\u00e9 og hj\u00f3 \u00feri\u00f0jung af greinum annars. Gar\u00f0urinn er allur annar \u00e1 eftir. Svo hef \u00e9g veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 vinna en \u00fea\u00f0 er svol\u00edti\u00f0 erfitt. \u00c9g fer \u00ed sumarfr\u00ed \u00ed n\u00e6stu viku og \u00e9g veit \u00e9g n\u00e6 ekki a\u00f0 kl\u00e1ra \u00fea\u00f0 sem \u00e9g er a\u00f0 reyna a\u00f0 gera og einhvern veginn ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 alveg til a\u00f0 stoppa mig af. \u00c9g sest samt ni\u00f0ur og reyni. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitthva\u00f0 hef \u00e9g \u00fe\u00f3 veri\u00f0 a\u00f0 l\u00edta \u00ed K\u00fdkl\u00f3pinn \u2013\u00a0sem er n\u00e6sti kafli Ulysses. Og horfa \u00e1 b\u00ed\u00f3myndir. F\u00f3r \u00e1 n\u00fdju Wes Anderson myndina \u00ed fyrrakv\u00f6ld \u2013\u00a0The Phoenician Scheme \u2013\u00a0einsog me\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu, Asteroid City, \u00fe\u00e1 hefur henni v\u00edst ekkert veri\u00f0 alltof vel teki\u00f0 en b\u00e1\u00f0ar \u00fe\u00f3ttu m\u00e9r afbrag\u00f0. Ekki veit \u00e9g hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem f\u00f3lk er ekki a\u00f0 sj\u00e1. En eitthva\u00f0 er \u00fea\u00f0. Kannski finnst f\u00f3lki bara a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 skilja alla hluti \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 finnst m\u00e9r ekki. M\u00e9r getur alveg \u00fe\u00f3tt gaman a\u00f0 lesa aftur og horfa aftur og skilja meira. En \u00fea\u00f0 truflar mig ekki neitt \u00fe\u00f3tt eitthva\u00f0 s\u00e9 bara \u00f3skiljanlegt. \u00deannig er \u00fea\u00f0 l\u00edka \u00ed l\u00edfinu. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g margt sem \u00e9g skil ekki. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd g\u00e6rkv\u00f6ldi horf\u00f0i \u00e9g \u00e1 American Beauty og spur\u00f0i sj\u00e1lfan mig hvort Kevin Spacey hef\u00f0i veri\u00f0 svona g\u00f3\u00f0ur \u00ed \u00f6llu sem hann ger\u00f0i. E\u00f0a hvort m\u00e9r \u00fe\u00e6tti hann bara svona svakalegur af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er auka-spenna \u00ed kringum hann \u00fat af skand\u00f6lum einkal\u00edfsins. Einsog eitthva\u00f0 undarlegt krydd. Hann er allavega alveg rosalegur \u00ed \u00feessari mynd. Ma\u00f0ur hefur \u00ed senn enga og alla sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 honum \u2013\u00a0allt \u00ed botni og allt \u00e1 botninum, d\u00e1samlegi aumingi, frj\u00e1lsi sj\u00e1lfhverfusj\u00faklingur, hvata\u00fer\u00e6ll \u00far b\u00f6ndum, skemmtilegasti og lei\u00f0inlegasti ma\u00f0urinn \u00ed \u00f6llum samkv\u00e6mum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo af \u00fev\u00ed \u00e9g var ekki kominn me\u00f0 n\u00f3g af mi\u00f0aldra k\u00f6rlum sem \u00fer\u00e1 menntask\u00f3lastelpur sem \u00fer\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti horf\u00f0i \u00e9g 25th hour. \u00dear er s\u00e1 \u00fer\u00e1\u00f0ur reyndar ekki \u00ed f\u00f3kus \u2013\u00a0Anna Paquin a\u00f0 reyna vi\u00f0 \u00f3-til-misviljugan Philip Seymour Hoffmann bara hli\u00f0arspor \u00ed s\u00f6gunni um eiturlyfjasalann sem er \u00e1 lei\u00f0inni \u00ed fangelsi. \u00dea\u00f0 eru til margar kvikmyndir sem fjalla um eiturlyfjasala sem enda \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 eiturlyfjasalinn n\u00e6st. Og \u00fea\u00f0 er til hellingur af myndum sem gerast \u00ed fangelsi. En \u00fea\u00f0 eru f\u00e1ar sem gerast \u00ed bilinu \u00fearna \u00e1 milli \u2013 fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann n\u00e6st og er d\u00e6mdur og \u00fear til hann fer inn.  \u00deetta er svona kve\u00f0jumynd \u2013\u00a0ma\u00f0ur a\u00f0 yfirgefa l\u00edf sitt. Og kannski er hli\u00f0arspori\u00f0 me\u00f0 \u00d6nnu og PSH \u00f6nnur lei\u00f0 til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna okkur hversu l\u00edti\u00f0 skilur a\u00f0 feigan og \u00f3feigan \u2013\u00a0ef hann l\u00e6tur freistast g\u00e6ti hann glata\u00f0 \u00f6llu einsog vinur hans. \u00deri\u00f0ji vinurinn er svo hlutabr\u00e9fasali sem manni finnst eiginlega alveg jafn miki\u00f0 ey\u00f0ileggingarafl \u2013\u00a0en hann er l\u00edka s\u00e1 sem d\u00e6mir eiturlyfjasalann har\u00f0ast. \u00dear er l\u00edka \u00e1hugaver\u00f0 speglun.  <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r \u00e1 fr\u00e1b\u00e6ra djasst\u00f3nleika \u00ed H\u00f6mrum \u00e1 sunnudag. Bassaleikarinn Sigmar \u00de\u00f3r Matth\u00edasson f\u00f3r \u00fear fyrir sveit sem innih\u00e9lt Inga Bjarna Sk\u00falason \u00e1 p\u00edan\u00f3, Hauk Gr\u00f6ndal \u00e1 klarinett, Magn\u00fas Tryggvason Eliasen \u00e1 trommur og \u00c1sgeir \u00c1sgeirsson \u00e1 oud. \u00c9g keypti pl\u00f6tu og s\u00e1 eftir \u00fev\u00ed einu a\u00f0 hafa ekki keypt tv\u00e6r en \u00e9g var b\u00fainn a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a tveimur me\u00f0 m\u00e9r og \u00feetta var a\u00f0 ver\u00f0a svol\u00edti\u00f0 d\u00fdrt. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enn eitt \u00e1ri\u00f0 missti \u00e9g af Skjaldborg. Sennilega hef\u00f0i \u00e9g fari\u00f0 a.m.k. einn dag ef Nadja hef\u00f0i fari\u00f0 fyrir helgi \u2013\u00a0en h\u00fan f\u00f3r \u00e1 laugardag og hef\u00f0i ekki komist me\u00f0 m\u00e9r og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 glata\u00f0 a\u00f0 fara fr\u00e1 henni. Hvernig \u00e6tli fari annars fyrir Bl\u00fas milli fjalls og fj\u00f6ru \u2013 \u00fea\u00f0 er h\u00e1t\u00ed\u00f0 sem \u00e9g hef heldur aldrei komist \u00e1. Ma\u00f0urinn \u00e1 bakvi\u00f0 hana h\u00e9t Palli \u2013\u00a0Spursari sem \u00e9g f\u00f3r \u00ed nokkrar f\u00f3tboltafer\u00f0ir me\u00f0, \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0 pabbi vorum enn a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00e1 okkur \u00ed London af og til \u2013\u00a0og hann var\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddur um daginn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri Har\u00f0ar er l\u00edka l\u00e1tinn. Orri var mikill \u00f6\u00f0lingur einsog \u00e9g held a\u00f0 allir sem hann \u00feekktu geti bori\u00f0 vitni um. Og hafi gert, b\u00e6\u00f0i s\u00ed\u00f0ustu daga og \u00feennan t\u00edma sem hann hefur veri\u00f0 veikur. \u00c9g \u00feekkti Orra mest \u00far fjarl\u00e6g\u00f0. Hann ba\u00f0 mig a\u00f0 lesa yfir fyrir sig b\u00e6kur \u2013\u00a0fyrst Alkasamf\u00e9lagi\u00f0 og svo sk\u00e1lds\u00f6gurnar tv\u00e6r, Stundarfr\u00f3 og Endurfundi. M\u00e9r fannst hann allta\u00f0\u00fev\u00ed roskinn \u00fe\u00e1 \u2013 eldri ma\u00f0ur a\u00f0 s\u00f6\u00f0la um. Hann var 36 \u00e1ra \u00feegar Alkasamf\u00e9lagi\u00f0 kom \u00fat, ekki nema 6 \u00e1rum eldri en \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo hitti \u00e9g hann stundum \u00e1 f\u00f6rnum vegi. Fyrst fullan og svo edr\u00fa og svo aftur fullan og loks bara edr\u00fa \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. \u00deegar \u00e9g gaf \u00fat lag \u00ed tengslum vi\u00f0 Frankensleiki f\u00e9kk \u00e9g hann til a\u00f0 mastera \u00fea\u00f0 fyrir mig \u2013\u00a0sem hann ger\u00f0i \u00e1n \u00feess a\u00f0 rukka kr\u00f3nu fyrir, vel a\u00f0 merkja, bara vessg\u00fa g\u00f3\u00f0i vin, takk fyrir og g\u00fadd l\u00f6kk.  <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd s\u00f6mu viku f\u00f3ru Sly Stone og Brian Wilson. \u00deeir voru svo sem komnir \u00e1 t\u00edma \u2013\u00a0\u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1rum eldri en Orri. En \u00fea\u00f0 m\u00e1 minnast \u00feeirra fyrir \u00fev\u00ed.  <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00e9kk senda b\u00f3k \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku. H\u00fan heitir P\u00e1fagaukagar\u00f0urinn og er eftir h\u00f6fund sem kallar sig \u201eAk\u00f6rn\u201c. H\u00fan vir\u00f0ist hafa veri\u00f0 send eitthva\u00f0 a\u00f0eins hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 og svo s\u00e1 \u00e9g \u00e1 Facebook a\u00f0 b\u00f3kab\u00fa\u00f0in Sk\u00e1lda hefur fengi\u00f0 eitt eintak sem \u00e1 a\u00f0 selja \u00e1 30 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur \u2013 h\u00fan birtist bara \u00fear og &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6124\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Menningarvikan<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6124","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6124","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6124"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6124\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6125,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6124\/revisions\/6125"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6124"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6124"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6124"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}