{"id":6185,"date":"2025-08-17T18:18:33","date_gmt":"2025-08-17T18:18:33","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6185"},"modified":"2025-08-17T18:39:23","modified_gmt":"2025-08-17T18:39:23","slug":"sadlat-a-sikiley-uxi-1904","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6185","title":{"rendered":"S\u00e1\u00f0l\u00e1t \u00e1 Sikiley: Uxi 1904"},"content":{"rendered":"\n<div class=\"wp-block-group\"><div class=\"wp-block-group__inner-container is-layout-constrained wp-block-group-is-layout-constrained\">\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"884\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01-1024x884.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6187\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01-1024x884.png 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01-300x259.png 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01-768x663.png 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01-1536x1326.png 1536w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/Screenshot-2025-08-17-at-17.19.01.png 1654w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00deessir frj\u00f3semisuxar \u00e1ttu s\u00e9r einskis ills von.  Brot \u00far mynd eftir Palazzo Poggi (1556). <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mark me now. In woman\u2019s womb word is made flesh but in the spirit of the maker all flesh that passes becomes the word that shall not pass away. This is the postcreation.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-right has-small-font-size wp-block-paragraph\">Stephen Dedalus \u00ed Oxen of the Sun<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Oxen of the Sun<\/em> er s\u00e1 kafli Ulysses sem almennt er \u00e1litinn erfi\u00f0astur aflestrar. Hann gerist \u00e1 ellefta t\u00edmanum \u00feennan s\u00f6gufr\u00e6ga dag \u2013 16. j\u00fan\u00ed, 1904 \u2013 \u00e1 f\u00e6\u00f0ingarheimilinu vi\u00f0 Holles str\u00e6ti. \u00cd H\u00f3merskvi\u00f0u koma \u00d3dysseifur og menn hans a\u00f0 eyju s\u00f3lgu\u00f0sins Hel\u00edosar, \u00der\u00ednaksey, sem m\u00e9r er sagt a\u00f0 s\u00e9 sama og Sikiley. Kirka og T\u00edresius hafa \u00fe\u00e1 b\u00e6\u00f0i vara\u00f0 \u00d3dysseif vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga nokku\u00f0 vi\u00f0 b\u00fapeninginn \u00e1 eyjunni, sama hversu mikil svengd s\u00e6ki a\u00f0 \u00feeim, og alls ekki uxana, sem s\u00e9u helg frj\u00f3semist\u00e1kn. Best s\u00e9 raunar a\u00f0 for\u00f0ast eyjuna me\u00f0 \u00f6llu. \u00deeir enda n\u00fa \u00fear samt og \u00d3dysseifur tekur or\u00f0 af s\u00ednum m\u00f6nnum a\u00f0 \u00feeir l\u00e1ti skepnurnar \u00ed fri\u00f0i \u00e1\u00f0ur en hann fer sj\u00e1lfur \u00ed lei\u00f0angur lengra upp \u00e1 land og sofnar \u00fear. Ef \u00fea\u00f0 er einhver regla \u00ed svona m\u00fdt\u00f3l\u00f3g\u00edskum sk\u00e1ldskap \u00f3fr\u00e1v\u00edkjanlegri en allar hinar \u00f3fr\u00e1v\u00edkjanlegu reglurnar \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 reglan um a\u00f0 s\u00e9 b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vara vi\u00f0 einhverju ver\u00f0i \u00fea\u00f0 auglj\u00f3slega a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0. Mennirnir \u00e9ta uxana \u2013 saurga frj\u00f3semist\u00e1knin. \u00d3dysseifur vaknar, kemur aftur, trompast, \u00feeir reyna a\u00f0 fl\u00fdja en Seifur skellir \u00ed svo hressilega br\u00e6lu, \u00ferumur og eldingar, a\u00f0 \u00d3dysseifur kemst einn l\u00edfs af, l\u00edkt og Kirka hefur sp\u00e1\u00f0 fyrir um. En h\u00fan sag\u00f0i l\u00edka, sem r\u00e6tist, a\u00f0 ver\u00f0i nautin ekki l\u00e1tin \u00ed fri\u00f0i ver\u00f0i heimf\u00f6r hans erfi\u00f0 og t\u00edmafrek. H\u00f3mer rekur n\u00e6st \u00e1 land hj\u00e1 Kalyps\u00f3 sem heldur honum f\u00f6ngnum \u00ed sj\u00f6 \u00e1r. <\/p>\n<\/div><\/div>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af og til \u00ed gegnum s\u00f6guna hinga\u00f0 til h\u00f6fum vi\u00f0 fengi\u00f0 fr\u00e9ttir af Minu Purefoy sem er \u00e1 f\u00e6\u00f0ingarheimilinu a\u00f0 eiga sitt t\u00f3lfta barn og hefur veri\u00f0 \u00b4i hr\u00ed\u00f0um \u00ed \u00ferj\u00e1 s\u00f3larhringa. H\u00fan er fj\u00f6lskylduvinur Bloom hj\u00f3nanna og \u00feanga\u00f0 hefur Leopold Bloom \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda til \u00feess a\u00f0 l\u00edta til me\u00f0 henni&nbsp;\u2013 \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 hvergi sagt berum or\u00f0um m\u00e1 samt geta s\u00e9r \u00feess til a\u00f0 hann s\u00e9 n\u00fa a\u00f0allega a\u00f0 fara \u00feanga\u00f0 af \u00fev\u00ed hann kv\u00ed\u00f0ir \u00fev\u00ed a\u00f0 fara heim (\u00fear sem Molly hefur n\u00fdlega legi\u00f0 me\u00f0 Blazes Boylan). \u00deegar \u00feanga\u00f0 kemur hittir hann fyrst hj\u00fakrunarkonu, fyrrum n\u00e1granna sinn, sem heitir Callan. H\u00fan segir honum a\u00f0 f\u00e6\u00f0ing fr\u00fa Purefoy s\u00e9 a\u00f0 reynast s\u00fa allra erfi\u00f0asta sem h\u00fan hefur or\u00f0i\u00f0 vitni a\u00f0. \u00de\u00e1 kemur l\u00edka fram a\u00f0 kunningi \u00feeirra, l\u00e6knir einn, hafi l\u00e1tist \u00far magakrabba (b\u00f3kstaflega \u201ebellycrab\u201c), a\u00f0 s\u00ed\u00f0ast \u00feegar \u00feau Bloom hafi hist hafi Bloom l\u00e1\u00f0st a\u00f0 heilsa og a\u00f0 \u00e1 bi\u00f0stofunni s\u00e9 talsvert af m\u00f6nnum vi\u00f0 sk\u00e1l.&nbsp;\u00dear reynast vera komnir \u00feeir Stephen Dedalus og Lenehan auk h\u00f3ps l\u00e6knanema, Dixon, Madden, Lynch, Crotthers og Punch Costello.&nbsp;Buck Mulligan mun vera \u00e1 lei\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa spyr ma\u00f0ur sig hvers vegna menn s\u00e9u \u00e1 fyller\u00edi \u00e1 f\u00e6\u00f0ingarheimili. Svari\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0: af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er banna\u00f0. Af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er jafn banna\u00f0 og a\u00f0 bor\u00f0a helga uxa. Stephen, Lenehan og l\u00e6knanemarnir eru \u00fearna til \u00feess a\u00f0 saurga helgi frj\u00f3seminnar. Og tekst \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega \u2013&nbsp;\u00feeir eru or\u00f0nir vel vi\u00f0 sk\u00e1l og hafa enda drukki\u00f0 lengi, \u00feegar h\u00e9r er komi\u00f0 s\u00f6gu, og eru \u00feess utan s\u00edns t\u00edma \u00cdrar, yfirl\u00fdsingagla\u00f0ir og hrokafullir og erfi\u00f0ir og oft mj\u00f6g skemmtilegir l\u00edka. Bloom hins vegar, einsog s\u00e1 vitri Odysseifur sem hann er, laumar alltaf bj\u00f3rnum sem honum er skenkt yfir \u00ed n\u00e6sta glas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megni\u00f0 af kaflanum er s\u00ed\u00f0an l\u00fdsing \u00e1 samr\u00e6\u00f0um \u00feessara manna, \u00fear sem margt ber \u00e1 g\u00f3ma en ekki s\u00edst frj\u00f3semism\u00e1l&nbsp;\u2013 getna\u00f0arvarnir og si\u00f0fer\u00f0isspurningar tengdar barnsf\u00e6\u00f0ingum, einsog hvort eigi a\u00f0 bjarga m\u00f3\u00f0ur e\u00f0a barni ef ekki er h\u00e6gt a\u00f0 bjarga b\u00e1\u00f0um (reglan \u00ed ka\u00fe\u00f3lsku \u00cdrlandi er a\u00f0 bjarga barninu en piltarnir eru samm\u00e1la um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 rangt og heldur \u00e6tti a\u00f0 bjarga m\u00f3\u00f0ur), um vanhelgun l\u00edfsins me\u00f0 s\u00f3un s\u00e6\u00f0is (sj\u00e1lfsfr\u00f3un, kippingum e\u00f0a \u00f6\u00f0ru), hvernig megi uppfylla j\u00f6r\u00f0ina (Buck b\u00fd\u00f0st til \u00feess a\u00f0 setja \u00e1 f\u00f3t s\u00e9rstaka stofnun sem hafi \u00feann eina tilgang a\u00f0 sty\u00f0ja hann \u00ed a\u00f0 s\u00e6\u00f0a konur). Og svo framvegis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekkert af \u00feessu gerir kaflann s\u00e9rstaklega erfi\u00f0an. \u00dea\u00f0 er anna\u00f0. Honum er skipt upp \u00ed \u00ferj\u00e1t\u00eduogtvo par\u00f3d\u00edska \u00fe\u00e6tti \u2013&nbsp;\u00ed n\u00edu skei\u00f0um \u2013 sem hver hefur sinn eigin st\u00edl \u2013 og er fer\u00f0ast \u00ed gegnum t\u00edmann \u00far r\u00f3mverskum b\u00e6nak\u00f6llum \u00ed gegnum enska b\u00f3kmenntas\u00f6gu fram til Ulysses og leysist svo upp \u00ed kaot\u00edskt fyller\u00edssr\u00f6fl. \u00deessir \u00fe\u00e6ttir eru miserfi\u00f0ir aflestrar&nbsp;en allir sn\u00fanir. S\u00e1 fyrsti er bara stutt kall: Deshil Holles Eamus \u2013 \u00ed \u00fer\u00edgang. Fyrsta or\u00f0i\u00f0 er \u00far gel\u00edsku, anna\u00f0 \u00far ensku og \u00feri\u00f0ja lat\u00ednu \u2013&nbsp;<em>h\u00f6ldum n\u00fa r\u00e9ttlei\u00f0is \u00e1 Holles<\/em> (f\u00e6\u00f0ingarheimili\u00f0). \u00de\u00e1 kemur aftur \u00fer\u00edkall \u2013&nbsp;\u00e1kall til f\u00e6\u00f0ingarl\u00e6knisins (sem heitir Horne): Send us bright one, light one, Horhorne, quickening and wombfruit. Og loks \u00feri\u00f0ja \u00fer\u00edkalli\u00f0 \u2013&nbsp;svo kalla\u00f0 \u201egender reveal\u201c e\u00f0a kynjaveisla: Hoopsa, boyaboy, hoopsa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear \u00e1 eftir taka vi\u00f0 tveir kaflar sem m\u00e9r skilst \u00e1 m\u00e9r fr\u00f3\u00f0ari m\u00f6nnum a\u00f0 beri \u00feess merki a\u00f0 hafa veri\u00f0 samdir \u00e1 lat\u00ednu og svo hr\u00e1\u00fe\u00fdddir \u00e1 ensku&nbsp;\u00e1n tillits til beyginga \u2013 svona l\u00e9kum vi\u00f0 okkur stundum me\u00f0 \u00feegar fyrstu \u00fe\u00fd\u00f0ingarv\u00e9larnar voru a\u00f0 birtast upp \u00far aldam\u00f3tum, a\u00f0 afmynda texta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6ra hann v\u00e9lr\u00e6nt fr\u00e1 einu tungum\u00e1li yfir \u00e1 anna\u00f0. \u00dea\u00f0 er ekki hlaupi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 merkingu \u00ed \u00feessar tv\u00e6r l\u00f6ngu m\u00e1lsgreinar en innihaldi\u00f0 er eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 v\u00edsindin s\u00e9u st\u00f3rfengleg og ekki s\u00edst gel\u00edsk v\u00edsindi og \u00feau au\u00f0gi \u00fej\u00f3\u00f0l\u00edfi\u00f0 og f\u00e6\u00f0ingar s\u00e9u fr\u00e1b\u00e6rar og v\u00edsindin hafi gert \u00fe\u00e6r au\u00f0veldari og standi v\u00f6r\u00f0 um l\u00edfi\u00f0. \u00c1fram \u00cdrland, \u00e1fram v\u00edsindi, \u00e1fram barneignir. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 \u00feri\u00f0ju s\u00ed\u00f0u birtist okkur svo skiljanlegri texti en svol\u00edti\u00f0 ofstu\u00f0la\u00f0ur \u2013&nbsp;\u201eBefore born babe bliss had\u201c og flj\u00f3tlega sj\u00e1lfur Bloom:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Some man that wayfaring was stood by housedoor at night\u2019s oncoming. Of Israel\u2019s folk was that man that on earth wandering far had fared. Stark ruth of man his errand that him lone led till that house.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta mun vera \u00ed anda enska rith\u00f6fundarins <a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/\u00c6lfric_of_Eynsham\">Elfr\u00edks<\/a> fr\u00e1 11. \u00f6ld. \u00deessi st\u00edll fylgir okkur \u00ed gegnum fundinn vi\u00f0 Callan hj\u00fakrunarkonu sem er nefndur h\u00e9r a\u00f0 ofan. \u00de\u00e1 er skipt yfir \u00ed mi\u00f0ensku (middle english) og svo fer\u00f0as\u00f6gust\u00edl mi\u00f0alda, art\u00farskan \u00e6vint\u00fdrast\u00edl, sagnakr\u00f3nikust\u00edl El\u00edsabetart\u00edmans, milt\u00f3nsku, Bunyan, 17. aldar dagb\u00f3karst\u00edl, Defoe og Swift og svo gamlan dagbla\u00f0ast\u00edl \u2013 og svo framvegis, de Quincy og Dickens, Edmund Burke, Charles Lamb og fleiri koma vi\u00f0 s\u00f6gu sem st\u00edlfyrirmyndir. Hverjum n\u00fdjum st\u00edl fylgja ekki bara n\u00fd or\u00f0, or\u00f0ar\u00f6\u00f0 og myndm\u00e1l heldur sveiflast raunveruleikinn l\u00edka til a\u00f0 einhverju leyti. \u00cd mi\u00f0enskunni ver\u00f0ur sp\u00edtalinn til d\u00e6mis kastali og l\u00e6knanemarnir \u201elearning knights\u201c (sem er hugtak sem SAM \u00fe\u00fd\u00f0ir einfaldlega sem \u201eknapi\u201c \u2013\u00a0Erik Anderson \u00ed n\u00fdlegri s\u00e6nskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu hefur \u00fea\u00f0 \u201el\u00e4rosven\u201c) \u2013\u00a0og \u00feegar Bloom og Dixon hittast rifjar Bloom upp \u00feegar hann \u00feurfti n\u00fdlega a\u00f0 leita s\u00e9r a\u00f0sto\u00f0ar vi\u00f0 illv\u00edgri b\u00fdflugnastungu, sem hefur komi\u00f0 fram \u00e1\u00f0ur. En af \u00fev\u00ed \u00feetta er \u00fe\u00e1 \u00ed fer\u00f0as\u00f6gust\u00edl mi\u00f0alda ver\u00f0ur b\u00fdflugnastungan a\u00f0 holundars\u00e1ri eftir \u00e6gilegan dreka. Og \u00feessi riddari l\u00e6rd\u00f3msins, Dixon, redda\u00f0i honum sem sagt g\u00f3\u00f0u smyrsli vi\u00f0 drekastungum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst frekar erfitt a\u00f0 fara a\u00f0 telja upp allt sem kemur vi\u00f0 s\u00f6gu \u00ed kaflanum \u2013\u00a0ekki beinl\u00ednis vegna torl\u00e6sisins, \u00e9g er l\u00edka me\u00f0 handb\u00e6kur sem \u00feylja \u00feetta allt upp, heldur vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g veit ekki alveg hva\u00f0a tilgangi \u00fea\u00f0 myndi \u00fej\u00f3na og \u00fea\u00f0 yr\u00f0i flj\u00f3tt jafn langt og kaflinn sj\u00e1lfur. Oxen of the Sun er allur skrifa\u00f0ur af feykimikilli \u00ed\u00fer\u00f3tt\u00a0\u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er svona sem rith\u00f6fundar flexa \u00ed speglum, og ekkert flex hef \u00e9g lesi\u00f0 sem stenst samanbur\u00f0 vi\u00f0 \u00feetta \u2013 og hann er ekki lei\u00f0inlegur aflestrar \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 erfi\u00f0ur, eiginlega \u00fever\u00f6fugt, \u00e9g er ekki viss um a\u00f0 hann v\u00e6ri mj\u00f6g skemmtilegur ef hann v\u00e6ri ekki svona erfi\u00f0ur. Ma\u00f0ur \u00e1 \u00ed allt \u00f6\u00f0ruv\u00edsi sambandi vi\u00f0 erfi\u00f0an texta \u2013 eitt af \u00fev\u00ed sem gerir hann erfi\u00f0an eru reyndar st\u00edlskiptin sj\u00e1lf, ma\u00f0ur t\u00fdnir alltaf \u00fer\u00e6\u00f0inum strax og t\u00f3nninn breytist (og oft \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem hefur gerst). \u00dea\u00f0 er einsog ma\u00f0ur s\u00e9 a\u00f0 reyna a\u00f0 t\u00falka textann me\u00f0 verkf\u00e6rum sem \u00fareltust fyrir fimm setningum s\u00ed\u00f0an. Svo setur ma\u00f0ur sig \u00ed n\u00fdjar stellingar og byrjar aftur \u00fear sem \u00fer\u00e1\u00f0urinn slitna\u00f0i. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem ver\u00f0ur a\u00f0 taka fram? Fe\u00f0runar\u00feema\u00f0 er \u00edtreka\u00f0 en ver\u00f0ur l\u00edka m\u00e6\u00f0runar\u00feema \u00feegar frelsarinn kemur til tals \u2013&nbsp;\u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt Mar\u00eda hafi auglj\u00f3slega vita\u00f0 a\u00f0 h\u00fan f\u00e6ddi Jes\u00fa \u00fe\u00e1 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 spyrja (segir Stephen) hvort h\u00fan hafi vita\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri Kristur, af \u00fev\u00ed ef hann er Kristur er hann l\u00edka hluti \u00fer\u00edeins Gu\u00f0s og \u00fear me\u00f0 einnig skapari himins og jar\u00f0ar og \u00fear me\u00f0 hefur Mar\u00eda afreka\u00f0 a\u00f0 skapa \u00fea\u00f0 sem skapa\u00f0i hana (Stephan sag\u00f0i eitthva\u00f0 svipa\u00f0 um Shakespeare, a\u00f0 hann v\u00e6ri \u201efather of all his race\u201c). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Talsver\u00f0u p\u00fa\u00f0ri er eytt \u00ed frj\u00f3semisumr\u00e6\u00f0ur, upp\u00e1fer\u00f0as\u00f6gur og \u00fev\u00eduml\u00edkt og misjafnt eftir st\u00edlnum hvar \u00e1herslan liggur\u00a0\u00fev\u00ed me\u00f0 st\u00edlunum birtist l\u00edka \u00e1kve\u00f0in d\u00fdnam\u00edk \u00ed si\u00f0fer\u00f0i. Sumum st\u00edlum fylgir gr\u00f3fur h\u00famor en \u00f6\u00f0rum si\u00f0fer\u00f0isleg vi\u00f0kv\u00e6mni og harka \u2013 e\u00f0a jafnvel svona helg vi\u00f0kv\u00e6mni, a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi ekki spilla s\u00e6\u00f0i og svo framvegis. \u00deannig fylgir st\u00edlskiptunum rof sem hentar illa svona l\u00ednulegri fr\u00e1s\u00f6gn af kv\u00f6ldsumbli \u2013\u00a0s\u00f6gupers\u00f3nur skipta um ham \u2013\u00a0en l\u00fdsa kannski d\u00edalekt\u00edskum breytingum \u00ed hinni s\u00f6gunni sem er veri\u00f0 a\u00f0 segja, sem er saga enskrar tungu fram \u00e1 daga Joyce (og \u00fear me\u00f0 saga \u00feess sem skrifa\u00f0 er, sem hl\u00fdtur a\u00f0 markerast af \u00fev\u00ed si\u00f0fer\u00f0i sem ma\u00f0ur vill framfylgja). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g tek \u00feetta l\u00edka a.m.k. h\u00e1lfvegis til baka \u2013 kannski hentar \u00feessi st\u00edl\u00f3r\u00f3leiki l\u00edka \u00e1g\u00e6tlega l\u00ednulegu fr\u00e1s\u00f6gninni\u00a0\u2013 h\u00fan l\u00fdsir \u00fe\u00e1 algerum og \u00edst\u00f6\u00f0ulausum ruglud\u00f6llum vel vi\u00f0 sk\u00e1l. Sem \u00feeir eru. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hinu h\u00f3merska samhengi m\u00e1 halda \u00fev\u00ed til haga a\u00f0 \u00fe\u00f3tt Stephen og f\u00e9l\u00f6gum s\u00e9 h\u00e9r uppstillt sem hinum bersyndugu og vanhelgandi me\u00f0rei\u00f0arsveinum Odysseifs og Bloom sem hinum vitra og hei\u00f0vir\u00f0a manni, \u00fe\u00e1 er okkar g\u00f3\u00f0i Bloom au\u00f0vita\u00f0 n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 r\u00fanka s\u00e9r \u00ed buxurnar fyrir framan st\u00e1lpa\u00f0an ungling (sj\u00e1 s\u00ed\u00f0asta kafla \u2013\u00a0Gerty er 18 \u00e1ra, Bloom 38). En hann hagar s\u00e9r vel \u00e1 f\u00e6\u00f0ingarheimilinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Buck Mulligan birtist hefur hann me\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r mann sem heitir Bannon.\u00a0S\u00e1 fer strax a\u00f0 segja s\u00f6gur af Milly (d\u00f3ttur Bloom-hj\u00f3nanna) og inn \u00ed \u00fe\u00e6r blandast r\u00e1\u00f0leggingar um hvernig s\u00e9 best a\u00f0 \u00fatvega s\u00e9r verjur og \u00fea\u00f0 m\u00e1 \u00edmynda s\u00e9r af \u00feeim a\u00f0 Bannon \u00e6tli s\u00e9r eitthva\u00f0 me\u00f0 Milly (hann veit \u2013 sennilega \u2013 ekki a\u00f0 Bloom er pabbi hennar e\u00f0a a\u00f0 Milly er, einsog vi\u00f0 vitum, a\u00f0 gera s\u00e9r d\u00e6lt vi\u00f0 annan mann). Rudy, sonur \u00feeirra hj\u00f3na, kemur l\u00edka vi\u00f0 s\u00f6gu \u00feegar Bloom hugsar um jar\u00f0arf\u00f6r hans og sorg Mollyar. \u00c9g held \u00e9g fari me\u00f0 r\u00e9tt m\u00e1l \u00feegar \u00e9g segi a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 l\u00edti\u00f0 e\u00f0a hreinlega ekkert um Blazes Boylan og Molly \u00ed \u00feessum kafla. Sem er ekki einsd\u00e6mi en sjaldg\u00e6ft \u00ed \u00feeim k\u00f6flum \u00fear sem \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 er dvali\u00f0 vi\u00f0 hugsanir Blooms (\u00ed \u00feessum kafla er samt ekkert vitundarfl\u00e6\u00f0i, \u00fe\u00f3tt kaflinn s\u00e9 kaot\u00edskur, og \u00fev\u00ed kannski ekki sama a\u00f0gengi a\u00f0 d\u00fdpstu hugsunum Blooms e\u00f0a annarra).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 Callan hj\u00fakrunarkona kemur og s\u00e6kir Dixon og \u00feeir f\u00e1 a\u00f0 vita a\u00f0 fr\u00fa Purefoy s\u00e9 b\u00fain a\u00f0 eiga ver\u00f0ur Bloom skyndilega mj\u00f6g d\u00f3mhar\u00f0ur \u2013 s\u00e9rstaklega \u00ed gar\u00f0 Punch Costello, en \u00fe\u00e6r l\u00fdsingar g\u00e6tu allt eins \u00e1tt vi\u00f0 hina, ekki s\u00edst Stephen (og kannski r\u00edmar \u00feetta vi\u00f0 \u00e1hyggjur Simons Dedalusar, eiginlegs f\u00f6\u00f0urs Stephens, af f\u00e9lagsskapnum vi\u00f0 Buck, sem s\u00e9 a\u00f0 spilla Stephen). Svo kemur kafli \u00fear sem Buck gerir st\u00f3lpagr\u00edn a\u00f0 Haines (enska \u00edrlandsfetisjistanum sem b\u00fdr hj\u00e1 \u00feeim \u00ed Martello-turni).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Listin kemur af og til upp&nbsp;\u2013&nbsp;h\u00e9r sj\u00e1um vi\u00f0 sk\u00fdrast aftur \u00feann Stephen sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00far <em>The Portrait of the Artist as a Young Man<\/em>, ofsafengna hugsj\u00f3namanninn. Listin er \u00f6llu \u00e6\u00f0ri \u2013&nbsp;l\u00edkamleg frj\u00f3semi mannsins er bara til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0halda andlegri frj\u00f3semi hans. H\u00e9r ver\u00f0ur manni hugsa\u00f0 til \u00feess \u00f3\u00feols sem sumir (sumar?) hafa fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 listamenn e\u00f0a rith\u00f6fundar noti f\u00e6\u00f0ingar- og me\u00f0g\u00f6ngul\u00edkingar yfir sk\u00f6punarferli sitt \u2013 Stephen myndi kannski taka undir \u00far hinni \u00e1ttinni, f\u00e6\u00f0ingar og me\u00f0g\u00f6ngur s\u00e9u hreinlega ekki n\u00f3gu merkilegar til samanbur\u00f0ar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 skapa raunverulegt listaverk. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stephen og Bloom byrja h\u00e9r a\u00f0 draga sig saman og munu fylgjast a\u00f0 \u00ed n\u00e6stu k\u00f6flum, f\u00f6\u00f0urlaus sonur og sonarlaus fa\u00f0ir ver\u00f0a andlegir fe\u00f0gar, a\u00f0 minnsta kosti \u00fea\u00f0 sem eftir lifir n\u00e6tur. Bloom rifjar upp a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 Stephen \u00ed veislu \u00feegar hann var 4-5 \u00e1ra gamall og speglar hann \u00ed Rudy. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Bloom birtist \u00ed upphafi kaflans er \u00ferumuve\u00f0ur \u00ed a\u00f0sigi. \u00deegar \u00fea\u00f0 svo brestur \u00e1 \u2013&nbsp;me\u00f0 miklum mi\u00f0aldabrav\u00far \u00ed textanum \u2013 ver\u00f0ur Stephen dau\u00f0skelfdur og Bloom reynir a\u00f0 hughreysta hann, \u00e1n \u00e1rangurs. \u00dea\u00f0 er vel a\u00f0 merkja vita\u00f0 a\u00f0 Joyce \u00f3tta\u00f0ist f\u00e1tt einsog \u00ferumuve\u00f0ur. Og \u00ferumuve\u00f0ur er l\u00edka \u00fea\u00f0 sem granda\u00f0i m\u00f6nnum Odysseifs. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lok kaflans hr\u00f3par Stephen a\u00f0 \u00feeir skuli dr\u00edfa sig \u00e1 Burke&#8217;s \u2013 sem er p\u00f6bb (nema hva\u00f0). \u00deanga\u00f0 koma \u00feeir (me\u00f0 Bloom me\u00f0 s\u00e9r) t\u00edu m\u00edn\u00fatum fyrir lokun, panta tvo umganga og er svo sparka\u00f0 \u00fat. \u00dea\u00f0 kemur ekki fram hvort \u00feeir hafi n\u00e1\u00f0 a\u00f0 kl\u00e1ra drykkina, teki\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 s\u00e9r e\u00f0a hvort \u00e1fengi\u00f0 \u00e1 f\u00e6\u00f0ingarheimilinu hafi kl\u00e1rast en \u00fea\u00f0 g\u00e6ti l\u00edka veri\u00f0\u00a0a\u00f0 \u00feeir hafi fari\u00f0 \u00e1 p\u00f6bbinn \u00ed makaleit \u2013\u00a0ungt f\u00f3lk drekkur (e\u00f0a drakk) gjarnan \u00ed \u201eheimah\u00fasi\u201c eins lengi og \u00fea\u00f0 kemst upp me\u00f0, af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er d\u00fdrt \u00ed samanbur\u00f0i a\u00f0 drekka \u00e1 b\u00f6rum, og st\u00edmir svo \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu beint \u00ed korter-\u00ed-\u00ferj\u00fa stemninguna til \u00feess a\u00f0 eiga \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00f6rl\u00edtinn s\u00e9ns. Eitt sem sty\u00f0ur \u00fe\u00e1 kenningu m\u00edna a\u00f0 \u00e1fengi\u00f0 hafi runni\u00f0 \u00ed klofi\u00f0 \u00e1 ungvi\u00f0inu er a\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrsta sem \u00feeir gera \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 henda \u00feeim \u00fat \u00e1 g\u00f6tu er a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a a\u00f0 halda \u00ed rau\u00f0a hverfi\u00f0. Nighttown. \u00dear gerist n\u00e6sti kafli \u2013\u00a0Kirka \u2013\u00a0sem er laaaaaanglengsti kafli b\u00f3karinnar og ekki endilega au\u00f0lesinn heldur (en ef minni\u00f0 bregst m\u00e9r ekki er \u00feetta eitthva\u00f0 vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegra eftir \u00fea\u00f0).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g man mj\u00f6g vel \u00feegar Leevi Lehto heitinn, vinur minn, var a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a Oxen of the Sun \u00e1 finnsku og reyna a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir m\u00e9r hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri hella\u00f0 a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1 finnsku \u00ed st\u00edl sem \u00e6tti a\u00f0 eiga s\u00e9r samsv\u00f6run \u00ed t.d. 11. aldar ensku \u2013\u00a0og hvernig Leevi v\u00e6ri \u00feess \u00ed sta\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 eina sem honum fannst meika sens og l\u00e1ta s\u00f6guna \u00e1 bakvi\u00f0 s\u00f6guna \u00ed finnsku \u00fe\u00fd\u00f0ingunni sn\u00faast um s\u00f6gu finnskrar tungu en ekki enskrar, og \u00fe\u00fd\u00f0a \u00fe\u00e1 \u201ea\u00f0fer\u00f0ina\u201c sem sl\u00edka og leita d\u00e6ma \u00ed gamalli finnsku, til \u00feess a\u00f0 hafa til hli\u00f0sj\u00f3nar \u00ed sta\u00f0 ensku d\u00e6manna. \u00c9g man ekki hva\u00f0a d\u00e6mi hann t\u00f3k, \u00fe\u00f3tt hann hafi sagt m\u00e9r \u00fea\u00f0, og g\u00e6ti ekki flett \u00fev\u00ed upp \u00fev\u00ed \u00e9g kann ekki finnsku \u2013\u00a0en s\u00e1 st\u00f3ri munur er \u00e1 ensku og finnsku a\u00f0 finnskt ritm\u00e1l \u00e1 s\u00e9r enga eiginlega s\u00f6gu fyrir 16. \u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til gamans er h\u00e9r a\u00f0 lokum sm\u00e1 samanbur\u00f0ur \u00e1 frumtexta, \u00fe\u00fd\u00f0ingu SAM og \u00fe\u00fd\u00f0ingu Eriks Andersonar. \u00deetta er l\u00fdsing \u00e1 sard\u00ednum \u00ed d\u00f3s (sem eru \u00fearna \u00e1 bor\u00f0inu hj\u00e1 piltunum sem part\u00ednasl).<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">And there was a vat of silver that was moved by craft to open in the which lay strange fishes withouten heads though misbelieving men nie that this be possible thing without they see it natheless they are so. And these fishes lie in an oily water brought there from Portugal land because of the fatness that therein is like to the juices of the olivepress.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">JJ<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fear var skr\u00edn af silfri sem me\u00f0 t\u00f6frum opna\u00f0 var\u00f0 og \u00ed l\u00e1gu f\u00e1g\u00e6tir fiskar hauslausir \u00fe\u00f3svo efunargjarnir menn neiti a\u00f0 tr\u00faa a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 geti fyrren \u00feeir eigin augum sj\u00e1 a\u00f0 svo er \u00fev\u00ed fari\u00f0. Og fiskar \u00feessir liggja \u00ed ol\u00edubornum legi sem fluttur var \u00feanga\u00f0 \u00far landi Port\u00fagala og er svo feitur a\u00f0 honum m\u00e1 jafna til smj\u00f6rsins sem \u00far \u00f3l\u00edfupressum kemur. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">SAM<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Och ett silverne kar fanns som blott kunde \u00f6ppnas med f\u00f6rslagenhet i vilket d\u00e4r l\u00e5go m\u00e4rkeliga fiskar utan huvuden s\u00e5 att tvivlande m\u00e4n f\u00f6rneka att detta \u00e4r m\u00f6jligt om de ej f\u00e5 se det men icke desto mindre \u00e4r det s\u00e5. Och dessa fiskar ligga i ett oljigt vatten hitf\u00f6rt fr\u00e5n Portugallien f\u00f6r den fettnad som finns d\u00e4ri liksom olivpressens safter. <\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">EA<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifskvi\u00f0u \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far pr\u00f3sa\u00fe\u00fd\u00f0ingu Sveinbj\u00f6rns Egilssonar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifs \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigur\u00f0ar A. Magn\u00fassonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Yfirfer\u00f0in<\/strong>&nbsp;<strong>2025<\/strong>:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5920\">Ulysses: Lestrardagb\u00f3k, 1. hluti<\/a>&nbsp;(Telemakkos, Nestor og Pr\u00f3teus \u00e1 hundava\u00f0i \u2013 ver\u00f0ur gert betur s\u00ed\u00f0ar).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5924\">Ulysses: Kalyps\u00f3<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5933\">L\u00f3tus\u00e6turnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950\">Hades: Undirheimarnir<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5984\">E\u00f3lus: M\u00b4\u00f3tvindar frelsis<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6036\">Lestryg\u00f3nar: A\u00f0 \u00e9ta \u00e1 sig gat<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6060\">Skylla og Karybd\u00eds: Je est une autre<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6077\">Villhamrar og Skellibj\u00f6rg<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6110\">S\u00edrenur, v\u00e6l og reykur: Dyflinni syngur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6150\">Auga sj\u00e1andans: \u00dej\u00f3\u00f0remba og heift<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6166\">Nekt og fr\u00f3: N\u00e1sika \u00e1 str\u00f6ndinni<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Eldri bloggf\u00e6rslur um Ulysses:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594\">Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5845\">Hi\u00f0 samhengislega l\u00edf<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5721\">Torlestur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5167\">V\u00f6lundarh\u00fas Rorschachs<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092\">A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5426\">Svarts\u00fdni og blinda<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mark me now. In woman\u2019s womb word is made flesh but in the spirit of the maker all flesh that passes becomes the word that shall not pass away. This is the postcreation. Stephen Dedalus \u00ed Oxen of the Sun Oxen of the Sun er s\u00e1 kafli Ulysses sem almennt er \u00e1litinn erfi\u00f0astur aflestrar. Hann &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6185\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">S\u00e1\u00f0l\u00e1t \u00e1 Sikiley: Uxi 1904<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-6185","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6185","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6185"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6185\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6196,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6185\/revisions\/6196"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6185"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6185"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6185"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}