{"id":6300,"date":"2025-12-30T09:59:25","date_gmt":"2025-12-30T09:59:25","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6300"},"modified":"2025-12-30T09:59:25","modified_gmt":"2025-12-30T09:59:25","slug":"2025","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6300","title":{"rendered":"2025"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6ru landsmenn. N\u00e6r og fj\u00e6r. Til sj\u00e1var og sveita.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g h\u00f3f \u00e1ri\u00f0 \u00ed Bangkok. H\u00e9lt upp \u00e1 \u00e1ram\u00f3t me\u00f0 s\u00e6nsk-k\u00ednversku tengdafj\u00f6lskyldunni \u00ed h\u00e1h\u00fdsinu \u00fear sem \u00feau b\u00faa. Svona \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar er \u00fea\u00f0 eftirminnilegasta vi\u00f0 T\u00e6land hlaupat\u00fararnir \u00ed Benchakitti Park og langir, langir g\u00f6ngut\u00farar um borgina \u2013 svokalla\u00f0 flanner\u00ed, sem borgin b\u00fd\u00f0ur annars ekki upp \u00e1, \u00feetta er flanner\u00ed \u00fati \u00e1 g\u00f6tu \u00ed mi\u00f0ri umfer\u00f0inni h\u00f3standi upp \u00far s\u00e9r eldsneytisgufum og kj\u00f6tbrasi. En \u00fea\u00f0 er gaman a\u00f0 ganga um og stara \u00e1 f\u00f3lk og hluti. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var varla kominn heim \u00feegar minn gamli vinur, \u00c1sgeir H., tilkynnti okkur um yfirvofandi dau\u00f0a sinn og bau\u00f0 \u00ed kve\u00f0jupart\u00ed. Hann d\u00f3 svo n\u00b4\u00f3ttina fyrir part\u00ed. \u00c9g var einhvers sta\u00f0ar inni \u00ed \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fapi \u00feegar s\u00edminn hringdi og \u00e9g f\u00e9kk fr\u00e9ttirnar \u2013&nbsp;\u00e9g var a\u00f0 reyna a\u00f0 muna \u00fea\u00f0 \u00ed g\u00e6r hver hef\u00f0i hringt, en \u00e9g hef bara ekki hugmynd, \u00fea\u00f0 hvarf ofan \u00ed einhverja h\u00edt. Part\u00edi\u00f0 h\u00e9lt samt s\u00ednu striki og \u00e9g l\u00edka \u2013&nbsp;\u00e1 lei\u00f0inni til Akureyrar keyr\u00f0i \u00e9g fram \u00e1 stranda\u00f0an hval. St\u00e6r\u00f0ar skepnu. \u00dea\u00f0 var enn snemma morguns og \u00e9g hef sennilega veri\u00f0 fyrstur \u201e\u00e1 vettvang\u201c \u2013&nbsp;\u00e9g f\u00f3r \u00fat og velti fyrir m\u00e9r hvort \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 hringja \u00ed einhvern, tilkynna eitthva\u00f0, en ger\u00f0i \u00e1 endanum ekki anna\u00f0 en a\u00f0 v\u00e6flast \u00ed kringum \u00feennan dau\u00f0a hval \u00ed svona 40 m\u00edn\u00fatur. \u00deetta var \u00e1rei\u00f0anlega s\u00farreal\u00edskasta upplifun \u00e1rsins \u2013 m\u00e9r fannst \u00feetta ofan \u00ed allt saman svo klisjukennt, einsog sena \u00far illa skrifa\u00f0ri b\u00ed\u00f3mynd, ma\u00f0ur fer a\u00f0 kve\u00f0ja vin sinn sem liggur fyrir dau\u00f0anum og keyrir fram \u00e1 dau\u00f0an hval \u00e1 lei\u00f0inni. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"692\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-1024x692.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6305\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-1024x692.png 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-300x203.png 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-768x519.png 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-1536x1038.png 1536w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.31.11-2048x1384.png 2048w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1sgeir var annar tveggja me\u00f0lima N\u00fdhils sem l\u00e9tust \u00e1 \u00e1rinu. \u00cd \u00e1rslok d\u00f3 B\u00f6\u00f0var Yngvi Jakobsson, Oberdada von Brutal. \u00c9g haf\u00f0i fyrir l\u00f6ngu missti samband vi\u00f0 B\u00f6dda sem haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed \u00f3g\u00e6fu lengi \u2013\u00a0\u00e1 N\u00fdhil\u00e1runum haf\u00f0i hann yfir s\u00e9r Burroughs-\u00e1ru og \u00fea\u00f0 f\u00f3r miklum s\u00f6gum af reynslu hans af hinum \u00fdmsu efnum. Hann var hins vegar til \u00feess a\u00f0 gera heill \u00e1 \u00feessum \u00e1rum \u2013 b\u00e6\u00f0i \u00feegar vi\u00f0 t\u00faru\u00f0um landi\u00f0 og \u00feegar vi\u00f0 bjuggum \u00e1 sama t\u00edma \u00ed Helsinki \u2013\u00a0a\u00f0 minnsta kosti mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti eftir a\u00f0 ver\u00f0a. \u00c9g s\u00e1 B\u00f6dda fyrst \u00ed Hemma Gunn \u2013\u00a0\u00fe\u00e1 var hann barn og kom \u00ed \u00fe\u00e1ttinn til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna sinn undraver\u00f0a h\u00e6fileika, a\u00f0 geta tala\u00f0 aftur\u00e1bak. \u00dea\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 henda \u00ed hann heilu setningunum sem hann endurt\u00f3k s\u00ed\u00f0an aftur\u00e1bak. \u00c1 N\u00fdhil\u00e1runum s\u00f6ng hann gjarnan eitthva\u00f0 aftur\u00e1bak \u2013\u00a0mj\u00f6g oft \u00d6xar vi\u00f0 \u00e1na og kannski stundum vi\u00f0 undirleik D\u00f3ra \u00e1 D\u00f3r\u00f3f\u00f3ninn. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/raxodivana.mp3\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa sk\u00f6mmu fyrir j\u00f3l lenti \u00e9g \u00e1 tilraunat\u00f3nleikum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00fear sem d\u00f6nsk listakona s\u00f6ng nokkur l\u00f6g aftur\u00e1bak, t\u00f3k \u00feau upp og spila\u00f0i \u00feau svo \u00e1fram. H\u00fan sag\u00f0ist l\u00edka hafa veri\u00f0 svona barn, sem tala\u00f0i aftur\u00e1bak, og \u00e9g var fur\u00f0u snortinn og langa\u00f0i a\u00f0 fara og segja henni fr\u00e1 B\u00f6dda en ger\u00f0i \u00fea\u00f0 aldrei. Ma\u00f0ur ver\u00f0ur svo feiminn \u00feegar ma\u00f0ur er snortinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd febr\u00faar var tilkynnt a\u00f0 N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lin hef\u00f0u fengi\u00f0 tilnefningu til B\u00f3kmenntaver\u00f0launa Nor\u00f0urlandar\u00e1\u00f0s. \u00deegar s\u00fa tilkynning berst er ma\u00f0ur sj\u00e1lfur b\u00fainn a\u00f0 vita \u00feetta \u00ed r\u00famlega \u00e1r. N\u00fana er einhver sem kl\u00e6jar \u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 monta sig \u00ed febr\u00faar \u2013 og \u00fer\u00e1ir a\u00f0 vinna n\u00e6sta haust. \u00c9g vann ekki \u00feessi ver\u00f0laun og fann ekki heldur fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau hef\u00f0u auki\u00f0 \u00e1huga \u00e1 b\u00f3kinni, sem er v\u00edst yfirl\u00fdstur tilgangur ver\u00f0launanna.\u00a0\u00dea\u00f0 var l\u00f6ngu \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 h\u00fan k\u00e6mi \u00fat \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og a\u00f0 \u00e9g fylgdi henni eftir \u00fear, h\u00fan kom hvergi annars sta\u00f0ar \u00fat og m\u00e9r var ekkert anna\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 og ef fr\u00e1 er talin grein \u00ed Morgenbladet \u00ed Noregi var\u00f0 \u00e9g ekki var vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri svo miki\u00f0 sem nefnd \u00e1 nafn. \u00deetta var sj\u00f3narmun sk\u00e1rra \u00feegar \u00e9g var tilnefndur fyrir Illsku \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u2013\u00a0\u00fe\u00e1 f\u00e9kk \u00e9g eitt bo\u00f0 til Helsinki og \u00fe\u00e1 var vo\u00f0a f\u00edn ver\u00f0launaath\u00f6fn \u00ed Stokkh\u00f3lmi, \u00fear sem ma\u00f0ur f\u00e9kk a\u00f0 hitta f\u00f3lk og gista \u00e1 f\u00ednu h\u00f3teli me\u00f0 konunni sinni og bor\u00f0a g\u00f3\u00f0an mat \u00ed g\u00f3\u00f0u yfirl\u00e6ti og fagna me\u00f0 \u00feeim sem unnu. \u00cd \u00feetta skipti\u00f0 f\u00e9kk \u00e9g k\u00f3p\u00edpeist t\u00f6lvup\u00f3st.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar tilkynnt var um ver\u00f0launin var \u00e9g hins vegar netlaus \u00fati \u00ed sveit. \u00c9g vissi sem sagt bara a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i ekki fengi\u00f0 \u00feau, en ekki hver hef\u00f0i fengi\u00f0 \u00feau, og hlusta\u00f0i forvitinn \u00e1 fr\u00e9ttir \u00ed \u00fatvarpi (sem \u00b4\u00e9g ger\u00f0i reyndar allan t\u00edmann). \u00dea\u00f0 kom tilkynning \u00ed \u00f6llum fr\u00e9ttat\u00edmum og var r\u00e6tt \u00ed svo til \u00f6llum \u00fatvarps\u00fe\u00e1ttum\u00a0\u2013 V\u00edkingur Hei\u00f0ar haf\u00f0i fengi\u00f0 t\u00f3nlistarver\u00f0launin \u2013 en aldrei sagt stakt or\u00f0 um b\u00f3kmenntirnar e\u00f0a a\u00f0ra flokka sem \u00cdslendingar unnu ekki. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 standast freistinguna a\u00f0 hringja \u00ed einhvern og spyrja og leyfa \u00fev\u00ed bara a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast hven\u00e6r ma\u00f0ur sem hlustar \u00e1 alla fr\u00e9ttat\u00edma og flesta menningar\u00fe\u00e6tti \u00ed r\u00edkis\u00fatvarpinu fengi \u00feessar uppl\u00fdsingar. \u00dea\u00f0 var li\u00f0in n\u00e6rri vika \u00feegar \u00fea\u00f0 kom fram \u00ed Bara b\u00f3kum \u00ed vi\u00f0tali vi\u00f0 M\u00f3hei\u00f0i Geirlaugsd\u00f3ttur a\u00f0 Vonbj\u00f8rt Vang hef\u00f0i fengi\u00f0 \u00feau. Og \u00fe\u00e1 gladdi mig einl\u00e6glega a\u00f0 \u00feau hef\u00f0u fari\u00f0 til F\u00e6reyja \u2013\u00a0\u00fe\u00f3tt \u00e9g v\u00e6ri au\u00f0vita\u00f0 enn\u00fe\u00e1 taps\u00e1r, \u00e9g er bara ekki merkilegri en \u00fea\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f3kmenntagiggin \u00ed \u00e1r voru nokkur. Fimm lj\u00f3\u00f0 kom \u00fat \u00ed febr\u00faar og \u00e9g h\u00e9lt \u00fatg\u00e1fuh\u00f3f \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed 12 t\u00f3num \u00ed Reykjav\u00edk, las upp hj\u00e1 Skri\u00f0u \u00e1 Patreksfir\u00f0i og m\u00e6tti \u00e1 Lj\u00f3\u00f0 &amp; vini \u00ed Mengi. B\u00f3kmenntah\u00e1t\u00ed\u00f0 Flateyrar f\u00f3r fram \u00ed fyrsta sinn \u2013\u00a0veg og vanda af henni hefur sk\u00e1ldi\u00f0 Helen Cova. \u00dear spj\u00f6llu\u00f0um vi\u00f0 Sj\u00f3n \u00e1 svi\u00f0i. \u00c9g haf\u00f0i be\u00f0ist undan \u00fev\u00ed a\u00f0 st\u00fdra umr\u00e6\u00f0um en l\u00fdst mig annars viljugan til a\u00f0 leggja h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3g og Helen stakk upp \u00e1 \u00feessu vi\u00f0 mig. Sj\u00f3n er s\u00ed\u00f0an svo gener\u00f6s a\u00f0 \u00feetta enda\u00f0i mest \u00e1 a\u00f0 vera spjall um N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lin \u2013\u00a0\u00fe\u00f3tt \u00e9g reyndi a\u00f0 koma hans b\u00f3kum a\u00f0 l\u00edka \u2013\u00a0og um b\u00f3kmenntaskrif almennt. \u00dea\u00f0 var gaman og eftirminnilegt og \u00e9g las l\u00edka a\u00f0eins \u00far Fimm lj\u00f3\u00f0um. \u00c9g las l\u00edka \u00far henni \u00e1 vi\u00f0bur\u00f0i \u00fear sem Vestfjar\u00f0astofa tilkynnti um styrki, m\u00e6tti \u00e1 menningarh\u00e1t\u00ed\u00f0ina Haustgildi \u00e1 Stokkseyri \u2013\u00a0sem gamall n\u00fdhilvinur, P\u00e9tur M\u00e1r Gu\u00f0mundsson, st\u00f3\u00f0 fyrir \u2013\u00a0og las svo upp \u00ed V\u00ed\u00f0sj\u00e1 undir lok \u00e1rs. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0asta sumar \u2013 e\u00f0a vor kannski? \u2013 f\u00f3r \u00e9g me\u00f0 h\u00f3p f\u00f3lks \u00ed fer\u00f0 um s\u00f6gusvi\u00f0 N\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1lanna og Br\u00faarinnar yfir Tangag\u00f6tu. \u00dea\u00f0 var \u00ed fyrsta skipti sem \u00e9g geri nokku\u00f0 \u00fev\u00ed l\u00edkt \u00a0\u2013 a.m.k. gegn grei\u00f0slu, og ekki bara af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ve\u00f0ur \u00e1 m\u00e9r \u2013\u00a0og gekk held \u00e9g \u00e1g\u00e6tlega. \u00c9g f\u00e9kk l\u00edka til m\u00edn h\u00f3p af d\u00f6num heim \u00ed stofu og tala\u00f0i &#8230; blandinav\u00edska er ekki alveg r\u00e9tta or\u00f0i\u00f0, \u00fev\u00ed \u00feetta voru bara danska og s\u00e6nska \u00ed einhverjum graut. En mest um lj\u00f3\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r \u00e1 B\u00f3kamessuna \u00ed Gautaborg. Og svo nokkrum vikum s\u00ed\u00f0ar \u00ed l\u00edtinn t\u00far \u2013\u00a0Stokkh\u00f3lm, Gautaborg, Malm\u00f6 og Lund. \u00dea\u00f0an h\u00e9lt \u00e9g \u00e1lei\u00f0is til P\u00f3llands. T\u00f3k b\u00e1tinn fr\u00e1 Karlskrona til Gdynia, sem var eftirminnileg fer\u00f0, og t\u00f3k svo \u00fe\u00e1tt \u00ed menningarh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Gdansk og las upp \u00ed sendir\u00e1\u00f0inu \u00ed Varsj\u00e1. Einsog venjulega var \u00feetta upp og ofan \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 voru 1500 manns \u00e1 Bokens dag \u00ed Malm\u00f6 en m\u00e6ttu bara tveir \u00ed sendir\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed Varsj\u00e1 (menningarfulltr\u00fainn haf\u00f0i sagt upp \u00feremur vikum fyrr, Sendiherrann var \u00ed Hv\u00edta-R\u00fasslandi, a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur hans \u00ed \u00dakra\u00ednu, en ritarinn sem t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r fullvissa\u00f0i mig um a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 ger\u00f0ur \u201eevent \u00e1 Facebook\u201c.) Einsog venjulega var f\u00f3lki\u00f0 skemmtilegast \u2013\u00a0\u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00e9g miki\u00f0 af vinum sem m\u00e9r \u00feykir gaman a\u00f0 hitta og \u00ed P\u00f3llandi kynntist \u00e9g \u00fe\u00fd\u00f0andanum m\u00ednum, Jacek Godek, sem er mikill \u00f6ndvegisma\u00f0ur, sem og \u00fatgefandanum m\u00ednum hj\u00e1 Marpress, Fabian. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta var l\u00edka t\u00f3nlistar\u00e1r. \u00c9g lenti \u00ed fyrsta sinn \u00e1 v\u00ednyl. L\u00e9k \u00e1 bassa \u00ed f\u00e1einum l\u00f6gum \u00e1 pl\u00f6tunni <em>\u00c1 floti<\/em> me\u00f0 Gosa. H\u00e9r erum vi\u00f0 fyrir r\u00famlega \u00e1ri \u00e1 R\u00daV:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<iframe loading=\"lazy\" title=\"GOSI - Ekki spurning - St\u00fad\u00ed\u00f3 R\u00daV\" width=\"660\" height=\"371\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/NUm_PJ2E8H8?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 l\u00e9kum svo l\u00edka \u00e1 \u00fatg\u00e1fut\u00f3nleikum \u00ed Edinborgarh\u00fasinu og komum fram \u00e1 Aldrei f\u00f3r \u00e9g su\u00f0ur. \u00dear las \u00e9g l\u00edka lj\u00f3\u00f0 me\u00f0 vinum m\u00ednum \u00ed Reykjav\u00edk! sem er eitthva\u00f0 sem \u00e9g \u00e1tti upprunalega a\u00f0 gera \u00e1 s\u00f6mu h\u00e1t\u00ed\u00f0 2005 \u2013\u00a0en dagskr\u00e1in ri\u00f0la\u00f0ist eitthva\u00f0 og \u00feegar \u00e9g var kalla\u00f0ur upp \u00e1 svi\u00f0 var \u00e9g bara fullur \u00e1 Langa Manga a\u00f0 hugsa um eitthva\u00f0 allt anna\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd okt\u00f3ber kom Laugardagshjarta\u00f0 saman \u00ed anna\u00f0 sinn til \u00feess a\u00f0 flytja dagskr\u00e1 til hei\u00f0urs Tom Waits. \u00dea\u00f0 var a\u00f0 minnsta kosti jafn gaman og \u00ed fyrra skipti\u00f0 \u2013\u00a0og \u00ed hl\u00e9inu var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 me\u00f0 handauppr\u00e9ttingu a\u00f0 taka Dylan n\u00e6st. \u00c6fingar fyrir \u00fea\u00f0 eru vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hefjast og salurinn er b\u00f3ka\u00f0ur 28. febr\u00faar. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g lag\u00f0i fyrir allan s\u00ed\u00f0asta vetur og keypti m\u00e9r kontrabassa \u00ed vor. Nadja og Sigga G\u00edsla komu keyrandi me\u00f0 hann a\u00f0 sunnan \u00ed mars. S\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e1 hef \u00e9g varla snert \u00f6nnur hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri og alls ekki \u00e1n \u00feess a\u00f0 bi\u00f0ja kontrabassann afs\u00f6kunar \u00e1 eftir. \u00deegar \u00e9g f\u00e9kk svo \u00ed byrjun desember svar \u00far listamannalaunasj\u00f3\u00f0i upp \u00e1 25% launasker\u00f0ingu \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri seldi \u00e9g reyndar st\u00e6rstan hluta hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ra og gr\u00e6jusafnsins \u2013 sem var sk\u00edtt en \u00fea\u00f0 koma betri dagar s\u00ed\u00f0ar me\u00f0 s\u00f3l \u00ed hei\u00f0i og \u00fea\u00f0 allt saman. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd september h\u00e9lt Aram \u00far landi til a\u00f0 stunda n\u00e1m vi\u00f0 t\u00f3nlistarmenntask\u00f3la \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 var s\u00e1rt a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 eftir honum \u00fe\u00f3tt plani\u00f0 v\u00e6ri bara a\u00f0 hann f\u00e6ri \u00ed \u00e1r. Hann hefur n\u00fa gert okkur lj\u00f3st a\u00f0 hann vilji vera \u00f6ll \u00ferj\u00fa \u00e1rin sem er au\u00f0vita\u00f0 mj\u00f6g erfitt (fyrir mig, ekki hann) en ekki ver\u00f0ur heldur vel s\u00e9\u00f0 hvernig h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 neita honum um \u00fea\u00f0. Ekki \u00feannig a\u00f0 hann fyrirgefi manni, allavega \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 v\u00e6ri alveg h\u00e6gt a\u00f0 l\u00e6sa hann inni. A\u00f0 loknum menntask\u00f3la fer svo f\u00f3lk yfirleitt \u00ed h\u00e1sk\u00f3la og \u00fea\u00f0 gerir enginn h\u00e9r. Feels like the end of an era. M\u00e9r skilst a\u00f0 lj\u00f3\u00f0ab\u00f3kin hennar V\u00f3nbjartar Vang fjalli um \u00fea\u00f0 a\u00f0 missa ungling yfir \u00ed fullor\u00f0ins\u00e1rin \u2013 \u00e9g var a\u00f0 vona a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti nokkur \u00e1r eftir me\u00f0 honum en ma\u00f0ur hefur miklu minna yfir l\u00edfinu a\u00f0 segja en ma\u00f0ur heldur. \u00c9g \u00fearf allavega alveg \u00e1rei\u00f0anlega a\u00f0 lesa \u00feessa lj\u00f3\u00f0ab\u00f3k, sem m\u00e9r skilst a\u00f0 M\u00f3hei\u00f0ur s\u00e9 a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a (einu sinni kunni \u00e9g reyndar \u00e1g\u00e6ta f\u00e6reysku, \u00feegar \u00e9g vann \u00ed T\u00f3rshavnar Skipasmi\u00f0ju og drakk \u00e1 M\u00edmi). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r \u00ed fyrsta sinn \u00e1 f\u00f3tboltaleik hj\u00e1 Vestra \u00ed vor \u2013 og \u00fea\u00f0 var \u00ed Vestmannaeyjum. \u00dear bundumst vi\u00f0 Siggi og Gunni vinir m\u00ednir l\u00edka \u00e1kve\u00f0num hlaupabr\u00e6\u00f0ralagsb\u00f6ndum. \u00c9g fylgdist s\u00ed\u00f0an vel me\u00f0 boltanum, m\u00e6tti \u00e1 flesta leiki h\u00e9r heima og einn \u00fatileik til, og fylgdi Vestra \u00feannig til sigurs \u00ed Mj\u00f3lkurbikarnum og ni\u00f0ur \u00far Bestu deild \u00ed 1. deild. \u00c1 n\u00e6sta t\u00edmabili ver\u00f0ur li\u00f0i\u00f0 sem sagt me\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pukeppninni en ekki me\u00f0 \u00ed efstu deild \u00ed heimalandinu \u2013 \u00e9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 er einsd\u00e6mi, en \u00fea\u00f0 er varla algengt. It was the best of times, it was the worst of times. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 lei\u00f0inni heim fr\u00e1 Vestmannaeyjum keyr\u00f0i \u00e9g \u00e1 g\u00e6s. \u00deetta var \u00e1 Bar\u00f0astr\u00f6ndinni einhvers sta\u00f0ar. \u00dea\u00f0 var r\u00f6kkva\u00f0. \u00c9g kom yfir blindh\u00e6\u00f0 og s\u00e1 \u00ferj\u00e1r g\u00e6sir \u00e1 malbikinu, bremsa\u00f0i einsog var \u00f3h\u00e6tt \u2013\u00a0allar nema ein komust n\u00f3gu h\u00e1tt til a\u00f0 sleppa undan b\u00edlnum. Framr\u00fa\u00f0an f\u00f3r \u00ed mask. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00fat a\u00f0 leita a\u00f0 g\u00e6sinni en h\u00fan var horfin. Daginn sem \u00e9g kom heim opna\u00f0i \u00e9g n\u00fdtt blogg Arnd\u00edsar \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttur \u2013 og las \u00fear n\u00fdja f\u00e6rslu\u00a0<a href=\"https:\/\/thorarinsdottir.substack.com\/p\/gsin-i-framruunni\">sem fjalla\u00f0i um fr\u00e9tt fr\u00e1 \u00e1rinu 2007 um mann sem haf\u00f0i fengi\u00f0 g\u00e6s \u00ed framr\u00fa\u00f0una<\/a>. \u00dea\u00f0 var ekki alveg jafn skr\u00edti\u00f0 og a\u00f0 keyra fram \u00e1 dau\u00f0a hvalinn en \u00fea\u00f0 var alveg svol\u00edti\u00f0 skr\u00edti\u00f0 samt. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"762\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.45.32-1024x762.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6307\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.45.32-1024x762.png 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.45.32-300x223.png 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.45.32-768x572.png 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-09.45.32.png 1400w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hlj\u00f3p meira \u00e1 \u00e1rinu en nokkurn t\u00edma fyrr um \u00e6vina. Fyrir r\u00famlega \u00e1ri s\u00ed\u00f0an f\u00f3rum vi\u00f0 Nadja \u00ed Bangkok Midnight Marathon (og hlupum 10k). S\u00ed\u00f0asta sumar f\u00f3r \u00e9g svo \u00ed Vesturg\u00f6tuna. Og \u00ed okt\u00f3ber hlupum vi\u00f0 fullt mara\u00feon \u2013\u00a03-l\u00e4nder mara\u00feoni\u00f0 sem fer \u00ed gegnum Sviss, Austurr\u00edki og \u00de\u00fdskaland. Slagor\u00f0i\u00f0 er vel a\u00f0 merkja \u201eno borders\u201c \u2013\u00a0sem er \u00f3l\u00edkt vinalegra en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i geta\u00f0 veri\u00f0 (t.d. \u201eDer Anschluss\u201c). \u00deessum hlaupum fylgdu l\u00edka \u00ferotlausar \u00e6fingar \u2013\u00a0\u00e9g hlj\u00f3p upp um \u00f6ll fj\u00f6ll og firnindi h\u00e9r heima, upp \u00e1 sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0i og til Bolungarv\u00edkur, og alls sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar \u00fear sem \u00e9g kom. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta var mj\u00f6g \u00e1n\u00e6gjulegt og \u00e9g vona a\u00f0 \u00e9g geti l\u00edka hlaupi\u00f0 eitthva\u00f0 \u00e1 n\u00fdja \u00e1rinu \u2013\u00a0a.m.k. fari\u00f0 Vesturg\u00f6tuna aftur, \u00fe\u00f3tt ekki ver\u00f0i neitt \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g fari til Frakklands a\u00f0 hlaupa n\u00e6sta haust me\u00f0 Sigga og Gunna, einsog til st\u00f3\u00f0. \u00c9g var me\u00f0 \u00ferj\u00e1r utanlandsfer\u00f0ir \u00e1 planinu \u2013 sem var \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r alltaf mj\u00f6g metna\u00f0arfullt og \u00f3l\u00edklegt til \u00feess a\u00f0 ganga upp \u2013\u00a0og slaufa\u00f0i \u00feeim \u00f6llum \u00feegar launani\u00f0ursta\u00f0an barst. En j\u00e1, s\u00f3l \u00ed hei\u00f0i og \u00fea\u00f0 allt saman. Verst er l\u00edklega a\u00f0 komast ekki \u00ed Ulyssesfer\u00f0ina til Dublin (anna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0) en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 bara skemmtilegra \u00feegar ma\u00f0ur loksins kemst. Einhvern t\u00edma hl\u00fdtur \u00feessi starfi a\u00f0 skila manni einhverjum peningum. Og Bloomsdegi getur ma\u00f0ur fagna\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i l\u00edka \u2013\u00a0einsog vi\u00f0 Ingi Bj\u00f6rn s\u00fdndum fram \u00e1 \u00ed Tangag\u00f6tunni \u00feann 16. j\u00fan\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"695\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-1024x695.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6302\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-1024x695.png 1024w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-300x204.png 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-768x522.png 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-1536x1043.png 1536w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2025\/12\/Capture-decran-2025-12-30-a-08.41.49-2048x1391.png 2048w\" sizes=\"auto, (max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00e1 alveg halda \u00fev\u00ed til haga l\u00edka a\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 Nadja f\u00f3rum \u00ed hlaupi\u00f0 st\u00f6ldru\u00f0um vi\u00f0 vi\u00f0 \u00ed Zurich og \u00fear f\u00f3r \u00e9g \u00ed d\u00e1litla Joyce p\u00edlagr\u00edmsfer\u00f0 \u2013\u00a0f\u00f3r a\u00f0 gr\u00f6finni og svona. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g er samt f\u00fall a\u00f0 vera blankur. M\u00e9r finnst \u00e9g of gamall til a\u00f0 vera blankur og m\u00e9r finnst m\u00e9r ganga of vel til a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 blankur og \u00e9g v\u00e6nti \u00feess varla a\u00f0 m\u00e9r gangi nokkurn t\u00edma betur heldur, svo \u00e6tli \u00e9g ver\u00f0i \u00fe\u00e1 ekki bara alltaf blankur. \u00deetta er as good as it gets. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g s\u00f3tti l\u00edka um residens\u00edu \u00e1 \u00f3nefndum sta\u00f0 langt \u00ed burtu, sem \u00e1 eftir a\u00f0 koma \u00ed lj\u00f3s hvort \u00e9g f\u00e6 \u2013\u00a0og \u00e9g er bo\u00f0inn til Zagreb \u00ed vor og nor\u00f0ur Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar \u00ed sumar. Svo \u00fea\u00f0 er ekki einsog \u00e9g ver\u00f0i bara heima hj\u00e1 m\u00e9r. Einsog m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 n\u00fa reyndar l\u00edka \u00e1g\u00e6tt. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var duglegur a\u00f0 sinna h\u00fasinu \u00ed sumar. M\u00e1la\u00f0i h\u00e1lft h\u00fas og \u00f6ll grindverk og t\u00f3k til \u00ed gar\u00f0inum og sm\u00ed\u00f0a\u00f0i utan um grilli\u00f0. Aram hj\u00e1lpa\u00f0i til \u00feegar hann var ekki a\u00f0 vinna \u00e1 Tj\u00f6ruh\u00fasinu. Vi\u00f0 skutumst l\u00edka til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar til \u00feess a\u00f0 fagna J\u00f3nsmessu og sj\u00e1 Green Day og Weezer \u00ed Stokkh\u00f3lmi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g s\u00e1 talsvert af eftirminnilegum myndum \u2013\u00a0One Battle After Another, Bugonia og Sisu: The Reckoning standa upp \u00far. Mickey 17 og The Phoenician Scheme l\u00edka (\u00f6fugt vi\u00f0 flesta finnst m\u00e9r Wes Anderson ver\u00f0a betri og betri). Einhver lifandis \u00f3sk\u00f6p horf\u00f0i \u00e9g l\u00edka \u00e1 Netflix-ser\u00edur, sem \u00e9g \u00fearf n\u00fa a\u00f0 fara a\u00f0 n\u00f3tera hj\u00e1 m\u00e9r svo \u00e9g gleymi \u00feeim ekki strax \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 eina sem \u00e9g man er Stranger Things, sem \u00e9g endurhorf\u00f0i \u00e1 \u00e1 haustt\u00farnum, og finnst eiginlega fr\u00e1b\u00e6rt og betra \u00ed endurhorfi en frumhorfi. S\u00e9rstaklega fj\u00f3r\u00f0a vert\u00ed\u00f0. \u00dea\u00f0 er l\u00edka talsvert afrek a\u00f0 fara svona vel me\u00f0 v\u00edsanir og nostalg\u00edu \u2013\u00a0ma\u00f0ur er a\u00f0 ver\u00f0a mj\u00f6g \u00fereyttur \u00e1 \u00f3d\u00fdrum nostalg\u00edulausnum, \u00e9g er oft byrja\u00f0ur a\u00f0 ranghvolfa augunum strax og \u00e9g heyri lag sem \u00e9g \u00feekki. En \u00feetta er vefna\u00f0ur, metna\u00f0arfullur og merkingar\u00ferunginn \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 lesa \u00ed allt. \u00c9g haf\u00f0i talsver\u00f0ar \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 fimmta vert\u00ed\u00f0 f\u00e6ri \u00ed skolpi\u00f0 \u00fat af l\u00f6ngu hl\u00e9i en \u00fe\u00e6r reyndust \u00f3\u00fearfar \u2013 \u00feau hafa reyndar enn\u00fe\u00e1 einn \u00fe\u00e1tt til \u00feess a\u00f0 kl\u00fa\u00f0ra \u00feessu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eina anna\u00f0 sem \u00e9g man \u00ed bili er Black Rabbit \u2013\u00a0h\u00fan var l\u00edka mj\u00f6g g\u00f3\u00f0. \u00c9g veit ekki lengur hva\u00f0 m\u00e9r fannst um Adolescence \u2013 gott st\u00f6ff en l\u00edka eitthva\u00f0 off. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og lesi\u00f0? Ulysses, mest, og handb\u00e6kurnar um Ulysses. \u00c9g byrja\u00f0i \u00e1 Goodreads fyrir nokkrum \u00e1rum eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 grein um a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri svo miklu sni\u00f0ugra en Facebook \u2013 \u00e9g er ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 s\u00fa s\u00e9 raunin en held \u00e1fram a\u00f0 \u201elogga\u201c b\u00e6kur, ofan \u00ed heimilisb\u00f3khaldi\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 skrifum \u00f6ll ni\u00f0ur \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum lesi\u00f0. \u00c9g veit ekkert hvers vegna en n\u00fa stemmir \u00feetta ekki \u2013 \u00e9g er greinilega ekki n\u00f3gu samviskusamur. Goodreads telur 50 b\u00e6kur en lestrardagb\u00f3kin \u00ed Tangag\u00f6tunni segir a\u00f0 \u00e9g hafi loki\u00f0 vi\u00f0 64 b\u00e6kur (\u00e9g er l\u00edka a\u00f0 kl\u00e1ra Dune, sem \u00e9g hef ekki lesi\u00f0 \u00ed 20 \u00e1r, svo \u00e6tli \u00fe\u00e6r ver\u00f0i ekki 65). Annars er \u201eb\u00f3k\u201c f\u00b4\u00e1r\u00e1nlegasta m\u00e6lieining sem \u00e9g \u00feekki. Ulysses er ekki skr\u00e1\u00f0 kl\u00e1ru\u00f0 \u2013\u00a0n\u00e9 heldur handb\u00e6kurnar \u2013 vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g er ekki kominn \u00fat \u00e1 enda \u00ed \u00e1r (en h\u00fan er skr\u00e1\u00f0 2024, vel a\u00f0 merkja, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 las \u00e9g hana fyrst). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g setti m\u00e9r eitthva\u00f0 markmi\u00f0 \u00ed byrjun \u00e1rs um a\u00f0 lesa \u00e1 \u00b4\u00f3l\u00edkum tungum\u00e1lum og a\u00f0 taka fyrir lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld \u00ed hverjum m\u00e1nu\u00f0i. \u00c9g st\u00f3\u00f0 ekki vi\u00f0 \u00feetta. T\u00f3k a\u00f0 v\u00edsu Gyr\u00f0i, Appollinaire og Lindu Vilhj\u00e1lms \u2013 en h\u00e6tti svo markvissum h\u00f6fundalestri. Og las ekkert \u00e1 \u00fe\u00fdsku, d\u00f6nsku e\u00f0a norsku \u2013\u00a0og miklu minna \u00e1 fr\u00f6nsku en \u00e9g \u00e6tla\u00f0i. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirminnilegast: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrstu lj\u00f3\u00f0ab\u00e6kur Gyr\u00f0is, endur\u00fatgefnar af Dimmu, eru fullkomlega d\u00e1samlegar. \u00c9g haf\u00f0i ekki sko\u00f0a\u00f0 \u00feessar b\u00e6kur s\u00ed\u00f0an \u00e9g var unglingur \u2013\u00a0en skrifa\u00f0ist einhvern t\u00edma \u00e1 vi\u00f0 Gyr\u00f0i, fyrir t\u00e6plega 20 \u00e1rum, um a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 endur\u00fatgefa \u00feetta, a\u00f0allega af \u00fev\u00ed \u00e9g \u00e1tti \u00fe\u00e6r ekki. Og las \u00fe\u00e6r n\u00fa og fann ekki bara Gyr\u00f0i \u00fearna heldur l\u00edka sj\u00e1lfan mig \u2013 sk\u00e1ldi\u00f0 sem mig langa\u00f0i a\u00f0 vera \u00feegar \u00e9g var \u00e1 \u00fer\u00edtugsaldri. Og sk\u00e1ldi\u00f0 sem alla \u00e6tti a\u00f0 langa a\u00f0 vera (og \u00f6ll sk\u00e1ld \u00e6ttu helst a\u00f0 vera \u00e1 \u00fer\u00edtugsaldri, vel a\u00f0 merkja). \u00c9g \u00feekki engar lj\u00f3\u00f0ab\u00e6kur \u00e1 \u00edslensku sem \u00e9g kann betur a\u00f0 meta en \u00feessar. Svarthv\u00edt axlab\u00f6nd. Tv\u00edbreitt svigr\u00fam. Einskonar h\u00f6fu\u00f0 lausn. Bakvi\u00f0 Mar\u00edugleri\u00f0 og Blindfugl\/Svartflug. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ulysses. Enn\u00fe\u00e1 og sennilega alltaf h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1. \u00c9g v\u00edsa bara \u00ed <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?cat=8\">f\u00e6rslurnar<\/a>. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi upptalning \u00e1 ekki bara a\u00f0 vera klass\u00edk, en \u00e9g endurlas l\u00edka Lolitu \u00e1 \u00e1rinu. Og s\u00e1 hana enn eina fer\u00f0ina me\u00f0 n\u00fdjum augum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sta\u00f0reyndirnar. \u00c9g las hana \u00ed handriti r\u00famlega \u00e1ri fyrir \u00fatg\u00e1fu og leist ekkert \u00e1 hana. Haukur M\u00e1r er einn minn allrabesti vinur til n\u00e6rri \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra og \u00e9g \u00e6tla\u00f0i varla a\u00f0 \u00feora a\u00f0 lesa \u00fatgefnu b\u00f3kina \u00feegar hann gaf m\u00e9r hana \u2013 \u00fev\u00ed \u00e9g g\u00e6ti \u00feaga\u00f0 yfir \u00fev\u00ed vi\u00f0 ykkur ef m\u00e9r \u00fe\u00e6tti h\u00fan ekki g\u00f3\u00f0, en \u00e9g hef\u00f0i ekki geta\u00f0 \u00feaga\u00f0 yfir \u00fev\u00ed vi\u00f0 hann. \u00de\u00e6r \u00e1hyggjur voru svo allar \u00f3\u00fearfi. \u00deegar \u00e9g lag\u00f0i hana fr\u00e1 m\u00e9r var m\u00edn fyrsta hugsun a\u00f0 sennilega v\u00e6ru Sta\u00f0reyndirnar jafnvel betri en Tugth\u00fasi\u00f0 \u2013\u00a0\u00e9g veit ekki hvort \u00e9g stend vi\u00f0 \u00fea\u00f0, en b\u00e6kur geta l\u00edka veri\u00f0 ansi rosalegar \u00e1n \u00feess a\u00f0 toppa Tugth\u00fasi\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd n\u00fdjum \u00edslenskum b\u00f3kum var \u00feetta fyrst og fremst fr\u00e1b\u00e6rt lj\u00f3\u00f0a\u00e1r. Hvalbak, F\u00e9lagsland, Mara kemur \u00ed heims\u00f3kn, \u00deegar vi\u00f0 vorum hellisb\u00faar, Gakk, T\u00edmi til neins, \u00deyngsta frumefni\u00f0, Fyrir v\u00edsindin \u2013\u00a0\u00fe\u00e6r \u201eg\u00f3lfu\u00f0u\u201c mig allar. Veggju\u00f0u mig. Himinh\u00f6ndumt\u00f3ku mig. \u00c9g \u00e1 eftir a\u00f0 lesa Postul\u00edn, Draugamandar\u00ednur og L\u00e1ka r\u00edmur \u2013\u00a0en \u00fea\u00f0 stendur til og \u00e9g hef heyrt vel af \u00feeim l\u00e1ti\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nleikar. Sunna Gunnlaugs \u00ed Edinborg. Reykjav\u00edk! og The Diversion Sessions me\u00f0 Bob \u00far Pavement \u2013\u00a0og allur s\u00e1 vi\u00f0bur\u00f0ur me\u00f0 b\u00ed\u00f3s\u00fdningu og \u00f6llu. Sigmar Matth\u00edasson \u00e1samt hlj\u00f3msveit \u00ed h\u00f6mrum. Ch\u00f6gma \u00ed Edinborg. Ulla \u00ed Tj\u00f6ruh\u00fasinu. Spacestation \u00e1 H\u00fasinu. Osgood\/Blak\/Poulsen tr\u00ed\u00f3 \u00ed Edinborg. Allt \u00f6\u00f0ruv\u00edsi upplifun en l\u00edka geggja\u00f0 var a\u00f0 fara \u00e1 Green Day og Weezer me\u00f0 Aram. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hva\u00f0 blasir vi\u00f0 2026? \u00c9g er a\u00f0 berjast vi\u00f0 sk\u00e1lds\u00f6gu. Vonandi n\u00e6 \u00e9g \u00fat \u00e1 enda \u00e1 n\u00e6stu m\u00e1nu\u00f0um. Er l\u00edka a\u00f0 kl\u00e1ra \u00fe\u00fd\u00f0ingu og v\u00e6ntanlega ver\u00f0a \u00fe\u00e6r fleiri. \u00c9g hef gott af peningunum. \u00c9g \u00fearf a\u00f0 skrifa a.m.k. eina st\u00f3ra grein fyrir erlent t\u00edmarit. Mig langar a\u00f0 vera me\u00f0 \u00fatvarpspistla \u00e1 \u00e1rinu, en \u00e9g veit ekki hvort ma\u00f0ur getur bara panta\u00f0 \u00fea\u00f0 (og \u00e9g held \u00fea\u00f0 hafi \u00fev\u00ed mi\u00f0ur l\u00edtil \u00e1hrif \u00e1 fj\u00e1rhaginn). Langa\u00f0i jafnvel a\u00f0 starta bara hla\u00f0varpi en \u00fea\u00f0 \u00f3x m\u00e9r \u00ed augum og svo finnast m\u00e9r hla\u00f0v\u00f6rp eiginlega lei\u00f0inleg. \u00dea\u00f0 skr\u00edtna vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 minni laun er samt a\u00f0 eiginlega finnst manni \u00fe\u00e1 a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feurfi n\u00fa a\u00f0 vinna meira. Til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 einhvern t\u00edma aftur full laun. Annars hefur mig lengi langa\u00f0 \u00ed langt fr\u00b4\u00ed. Da\u00f0ra l\u00edka oft vi\u00f0 a\u00f0 segja \u00feetta bara gott, \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00e9g viti sj\u00e1lfur hversu mikil alvara er \u00e1 bakvi\u00f0 \u00fea\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst gaman a\u00f0 setja m\u00e9r \u00e1ram\u00f3taheit, jafnvel \u00fe\u00f3 \u00e9g standi ekki vi\u00f0 \u00feau \u2013 sem \u00e9g geri samt oftast. En n\u00fana dettur m\u00e9r bara ekkert \u00ed hug. \u00c9g \u00e6tla allavega ekki \u00ed fr\u00ed heldur a\u00f0 \u00fer\u00e6la m\u00e9r \u00fat og \u00e9g er ekki heldur h\u00e6ttur. Kannski kemur eitthva\u00f0 upp \u00ed hugann fyrir mi\u00f0n\u00e6tti anna\u00f0 kv\u00f6ld. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>K\u00e6ru landsmenn. N\u00e6r og fj\u00e6r. Til sj\u00e1var og sveita. \u00c9g h\u00f3f \u00e1ri\u00f0 \u00ed Bangkok. H\u00e9lt upp \u00e1 \u00e1ram\u00f3t me\u00f0 s\u00e6nsk-k\u00ednversku tengdafj\u00f6lskyldunni \u00ed h\u00e1h\u00fdsinu \u00fear sem \u00feau b\u00faa. Svona \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar er \u00fea\u00f0 eftirminnilegasta vi\u00f0 T\u00e6land hlaupat\u00fararnir \u00ed Benchakitti Park og langir, langir g\u00f6ngut\u00farar um borgina \u2013 svokalla\u00f0 flanner\u00ed, sem borgin b\u00fd\u00f0ur annars ekki upp \u00e1, &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6300\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">2025<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6300","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6300","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6300"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6300\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6308,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6300\/revisions\/6308"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6300"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6300"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6300"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}