{"id":6347,"date":"2026-03-06T12:01:17","date_gmt":"2026-03-06T12:01:17","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6347"},"modified":"2026-03-06T17:03:45","modified_gmt":"2026-03-06T17:03:45","slug":"penelopa-skegg-konunnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6347","title":{"rendered":"Penel\u00f3pa: Skegg konunnar"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"600\" height=\"411\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/e8de85def6838881460f050804a1b404.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6352\" style=\"aspect-ratio:1.4599095160247881;width:691px;height:auto\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/e8de85def6838881460f050804a1b404.jpg 600w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/e8de85def6838881460f050804a1b404-300x206.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 600px) 100vw, 600px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Barbara Jefford \u00ed hlutverki Mollyar Bloom \u00ed Ulysses kvikmynd Joseph Strick fr\u00e1 \u00e1rinu 1967. <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Penel\u00f3pu\u00fe\u00e1ttur Ulysses er ekki nema \u00e1tta setningar, sem eru a\u00f0 v\u00edsu hver um sig \u00e1 bilinu 3-7 s\u00ed\u00f0ur. Og fyrir utan \u00feessa \u00e1tta punkta eru engin greinarmerki \u00ed kaflanum, ekki einu sinni \u00farfellingamerki \u2013&nbsp;svo ma\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 r\u00e1\u00f0a af samhenginu hvort a\u00f0 \u201ewell\u201c s\u00e9 \u201ewe&#8217;ll\u201c e\u00f0a bara \u201ewell\u201c og svo framvegis. \u00deetta er talsvert minna m\u00e1l en margur g\u00e6ti \u00e6tla\u00f0 og fl\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed setningunum mestmegnis gott og au\u00f0skili\u00f0, s\u00e9rstaklega ef mi\u00f0a\u00f0 er vi\u00f0 margt sem \u00e1 undan er gengi\u00f0 \u00ed \u00feessari g\u00f3\u00f0u b\u00f3k. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00e1 H\u00f3mer hefur Penel\u00f3pa eiginkona \u00d3dysseifs be\u00f0i\u00f0 manns s\u00edns \u00ed heil tuttugu \u00e1r.\u00a0Tr\u00f3justr\u00ed\u00f0i\u00f0 t\u00f3k t\u00edu, \u00fe\u00e1 byrju\u00f0u hinir eiginmennirnir a\u00f0 t\u00ednast heim \u2013\u00a0til g\u00f3\u00f0s og ills, einhverjir sem \u00feetta lesa hafa \u00e1rei\u00f0anlega s\u00e9\u00f0 \u00d3resteiu \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu, og vita hvernig f\u00f3r fyrir Agamemnoni, sem n\u00e1\u00f0i heim strax \u00ed str\u00ed\u00f0slok \u2013\u00a0 og svo hafa raunir hans teki\u00f0 t\u00edu til vi\u00f0b\u00f3tar. \u00dear af f\u00f3ru \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed fr\u00e6gustu \u00e6vint\u00fdrin \u2013\u00a0fer\u00f0ina til Hadesar og vinda E\u00f3lusar og P\u00f3l\u00fdfemus og \u00fea\u00f0 allt saman \u2013\u00a0en sj\u00f6 \u00e1r til vi\u00f0b\u00f3tar var hann fastur hj\u00e1 Kalyps\u00f3. Allan \u00feennan t\u00edma hefur Penel\u00f3pa veri\u00f0 umsetin af vonbi\u00f0lum, eitt hundra\u00f0 talsins, sem bi\u00f0u \u00feess a\u00f0 h\u00fan vi\u00f0urkenndi loks fyrir sj\u00e1lfri s\u00e9r og \u00f6\u00f0rum a\u00f0 \u00d3dysseifur v\u00e6ri d\u00e1inn og t\u00e6ki s\u00e9r n\u00fdjan mann. \u00c1 me\u00f0an \u00feeir bi\u00f0u hafa \u00feeir stytt s\u00e9r stundir vi\u00f0 svallveisluhald \u00e1 hennar kostna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til \u00feess a\u00f0 komast undan \u00feessum hj\u00faskaparm\u00e1lum segir Penel\u00f3pa hjarta sitt \u201evanmagna af s\u00f6knu\u00f0i\u201c eftir \u00d3dysseifi og b\u00e6tir \u00fev\u00ed svo vi\u00f0 a\u00f0 einhver gu\u00f0anna hafi be\u00f0i\u00f0 hana a\u00f0 vefa n\u00e1kl\u00e6\u00f0i handa Laertesi, f\u00f6\u00f0ur \u00d3dysseifs \u2013&nbsp;sem er a\u00f0 v\u00edsu enn \u00e1 l\u00edfi en sennilega voru \u00feessi n\u00e1kl\u00e6\u00f0i svo miki\u00f0 verk a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 byrja \u00e1 \u00feeim einhverju \u00e1\u00f0ur en menn hrukku upp af. Lofar h\u00fan \u00fev\u00ed a\u00f0 giftast \u00feegar verkinu er loki\u00f0. Svo vefar h\u00fan \u00e1 daginn en rekur upp kl\u00e6\u00f0i\u00f0 um n\u00e6tur, enda kl\u00f3k einsog ma\u00f0ur hennar (sem er fr\u00e6gastur fyrir a\u00f0 hafa fundi\u00f0 upp tr\u00f3juhestinn). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir nokkur \u00e1r af n\u00e1kl\u00e6\u00f0isblekkingum klagar ein af \u00feernunum hana \u00ed vonbi\u00f0lana, sem sitja svo um hana \u00fear sem h\u00fan er a\u00f0 rekja upp vefinn og krefjast \u00feess a\u00f0 h\u00fan lj\u00faki vi\u00f0 verki\u00f0 og velji s\u00e9r s\u00ed\u00f0an mann hi\u00f0 snarasta. \u00dea\u00f0 er vi\u00f0 \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem Penel\u00f3pa finnur upp \u00e1 \u00ferautinni me\u00f0 <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6318\">bogann og axaraugun sem sagt var fr\u00e1 \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu<\/a>. \u00dea\u00f0 endar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 A\u00feena sendir Penel\u00f3pu \u00ed b\u00f3li\u00f0 og \u00d3dysseifur einn kl\u00e1rar \u00ferautina \u2013\u00a0kl\u00e6ddur einsog betlari \u2013\u00a0og sl\u00e1trar svo b\u00e6\u00f0i vonbi\u00f0lum og amb\u00e1ttum \u00e1n nokkurrar miskunnar, \u00e1\u00f0ur en \u00feau Penel\u00f3pa lifa hamingjus\u00f6m til \u00e6viloka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En a\u00f0 Joyce. \u00deetta eru upphafsor\u00f0 kaflans. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Yes because he never did a thing like that before as ask to get his breakfast in bed with a couple of eggs since the&nbsp;<em>City Arms<\/em>&nbsp;hotel when he used to be pretending to be laid up with a sick voice doing his highness to make himself interesting&nbsp;<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bloom hefur veri\u00f0 a\u00f0 heiman fr\u00e1 \u00fev\u00ed um morguninn. \u00dea\u00f0 er komin mi\u00f0 n\u00f3tt og Moll\u00fd  liggur og sefur. Sj\u00e1lfsagt hefur h\u00fan eitthva\u00f0 fari\u00f0 fram \u00far yfir daginn en vi\u00f0 heyrum ekkert um \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 vitum bara a\u00f0 Bloom veit a\u00f0 h\u00fan \u00e1tti von \u00e1 Blazes Boylan klukkan 16 og a\u00f0 \u00feau h\u00f6f\u00f0u \u00ed huga a\u00f0 sv\u00edvir\u00f0a hj\u00f3nas\u00e6ngina. Vi\u00f0 sj\u00e1um leiftur af \u00feessum fundi h\u00e9r og \u00fear yfir daginn en \u00e9g held \u00fea\u00f0 s\u00e9 alveg \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 \u00feau leiftur s\u00e9u a\u00f0 gerast \u00ed h\u00f6f\u00f0inu \u00e1 Bloom, sem hugsar miki\u00f0 til Mollyar.&nbsp;\u00c1 fer\u00f0um s\u00ednum um Dublin kaupir hann fyrir hana n\u00fdja er\u00f3t\u00edska sk\u00e1lds\u00f6gu (The Sweets of Sin) og s\u00e1pustykki (v\u00e6ntanlega til \u00feess a\u00f0 \u00fer\u00edfa af s\u00e9r syndina). Og hugsar \u2013&nbsp;enda er Ulysses b\u00f3k hugsanna. Hann rifjar upp \u00ed brotum br\u00f3\u00f0urpart l\u00edfs \u00feeirra saman. Fyrsta stefnum\u00f3t \u00feeirra \u00ed Howth og k\u00fatveltur \u00ed r\u00f3slynginu. Uppeldi Mill\u00fdjar, sem er a\u00f0 ver\u00f0a fullor\u00f0in. Getna\u00f0 og f\u00e6\u00f0ingu Rudys sem svo deyr 11 daga gamall og sorgina \u2013 og getuleysi\u00f0 \u2013&nbsp;sem hefur voma\u00f0 yfir \u00f6llu \u00feeirra hj\u00f3nal\u00edfi s\u00ed\u00f0an. En Moll\u00fd sj\u00e1lfa h\u00f6fum vi\u00f0 ekki hitt nema \u00fearna \u00ed augnablik um morguninn \u00feegar Bloom f\u00e6rir henni morgunver\u00f0 \u00ed r\u00fami\u00f0, auk br\u00e9fs fr\u00e1 Blazes Boylan um yfirvofandi fund (sem Moll\u00fd segir a\u00f0 s\u00e9 til \u00feess a\u00f0 skipuleggja s\u00f6ngfer\u00f0alag sem \u00feau eru a\u00f0 fara \u00ed). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00far \u00fev\u00ed er h\u00e9r b\u00e6tt svo um munar. \u00deessar \u00e1tta ofurl\u00f6ngu setningar eru einr\u00e6\u00f0a Moll\u00fdar, sem hefur vakna\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 Bloom skr\u00ed\u00f0ur upp \u00ed litla r\u00fami\u00f0 \u00feeirra \u2013\u00a0\u00feau liggja hvort \u00ed s\u00edna \u00e1ttina svo h\u00fan er me\u00f0 t\u00e6rnar \u00e1 honum vi\u00f0 andliti\u00f0. Ekki samt svo a\u00f0 h\u00fan tali upph\u00e1tt heldur eru \u00feetta hugsanir andvaka manneskju \u2013\u00a0sem \u00fatsk\u00fdrir l\u00f6ngu setningarnar og greinarmerkjaleysi\u00f0,. Kaflinn byrjar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Moll\u00fd er a\u00f0 hugsa um mj\u00f6g \u00f3venjulega bei\u00f0ni Blooms \u00e1\u00f0ur en hann sofna\u00f0i, a\u00f0 hann f\u00e1i morgunver\u00f0 \u00ed r\u00fami\u00f0 (yfirleitt er \u00fea\u00f0 hann sem f\u00e6rir henni morgunver\u00f0 \u00ed r\u00fami\u00f0). H\u00fan veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort h\u00fan \u00e6tli a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0 \u00feessu. Svo sm\u00e1m saman fara hugsanirnar \u00e1 flug og rata v\u00ed\u00f0a. H\u00fan fer a\u00f0 hugsa um mannkosti Blooms og finnst hann \u00e1g\u00e6tur, er sannf\u00e6r\u00f0 um a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 a\u00f0 sofa hj\u00e1 einhverri konu yfir daginn, og vir\u00f0ist vita um br\u00e9faskipti hans vi\u00f0 M\u00f6rthu. Svo rifjar h\u00fan upp s\u00ed\u00f0asta skipti sem hann f\u00e9kk \u00fea\u00f0 yfir rassinn \u00e1 henni \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 var sama dag og Boylan t\u00f3k fast \u00ed h\u00f6nd hennar \u2013\u00a0sem segir okkur a\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feau hafi ekki \u201efullnusta\u00f0\u201c kynl\u00edf, samkv\u00e6mt \u00feeirra eigin m\u00e6likv\u00f6r\u00f0um, fr\u00e1 \u00fev\u00ed Rudy d\u00f3 \u00fe\u00e1 hafa \u00feau n\u00fa samt stunda\u00f0 kynl\u00edf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo f\u00e1um vi\u00f0 sta\u00f0fest allt um \u00e1starfundina vi\u00f0 Blazes Boylan og \u201ethat tremendous big red brute of a thing he has\u201c, st\u00e6rri en nokku\u00f0 sem h\u00fan hefur \u00e1\u00f0ur noti\u00f0 \u2013 og fulln\u00e6gingarnar ver\u00f0a svo margar fyrir rest a\u00f0 Moll\u00fd spyr sig hvort ma\u00f0urinn hlj\u00f3ti ekki a\u00f0 hafa innbyrt ostrur \u00e1\u00f0ur en hann kom \u00ed heims\u00f3kn (fyrir yngri lesendur m\u00e1 nefna a\u00f0 ostrur \u00e1t f\u00f3lk \u00e1\u00f0ur en Viagra var fundi\u00f0 upp). Svo hugsar h\u00fan um a\u00f0ra elskhuga s\u00edna \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina \u2013&nbsp;allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed h\u00fan var fyrst kysst \u00e1 G\u00edbraltar 14 \u00e1ra, og runka\u00f0i svo vini s\u00ednum \u2013&nbsp;og ber \u00fe\u00e1 saman vi\u00f0 Bloom. H\u00fan hugsar l\u00edka um Stephen, sem Bloom sag\u00f0i henni fr\u00e1 \u00e1\u00f0ur en hann sofna\u00f0i, og veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort hann s\u00e9 of ungur fyrir hana \u2013 giskar \u00e1 a\u00f0 hann s\u00e9 23-24 og \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00fa alveg innan marka (h\u00fan er 33 \u00e1ra og hann er 22 \u2013&nbsp;skv. reglunni h\u00e1lfur manns eigin aldur pl\u00fas sj\u00f6, er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 33\/2+7=23,5). H\u00fan \u00edmyndar s\u00e9r a\u00f0 hann hlj\u00f3ti a\u00f0 vera hreinl\u00e1tari en mennirnir sem h\u00fan er v\u00f6n og hugsar hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6ti ekki veri\u00f0 gaman a\u00f0 totta hann og gleypa \u2013&nbsp;en h\u00fan veit ekki a\u00f0 Stephen er vatnsf\u00e6linn og hefur ekki \u00fevegi\u00f0 s\u00e9r s\u00ed\u00f0an \u00ed okt\u00f3ber \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur (Ulysses gerist 16. j\u00fan\u00ed, 1904). Stephen vill ekki einu sinni \u00fevo s\u00e9r um hendurnar \u00feegar Bloom b\u00fd\u00f0ur honum \u00fea\u00f0. En svo hugsar Moll\u00fd l\u00edka a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti kannski ekki a\u00f0 leyfa s\u00e9r a\u00f0 gleypa enda s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 konur f\u00e1i yfirvaraskegg. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r m\u00e1 geta \u00feess \u00ed framhj\u00e1hlaupi a\u00f0 D.H. Lawrence sem sj\u00e1lfur lenti \u00ed talsver\u00f0um vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 s\u00edna laf\u00f0i Chatterley \u2013&nbsp;af hendi s\u00f6mu ritsko\u00f0unarafla og b\u00f6nnu\u00f0u Ulysses \u2013 haf\u00f0i hugsa\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1g\u00e6tis konu sem h\u00e1lfgert m\u00f3teitur vi\u00f0 hinni \u201ehro\u00f0alegu\u201c Moll\u00fd Bloom, og skrifa\u00f0i \u00ed br\u00e9fi til konu sinnar Friedu:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[lokakafli Ulysses] is the dirtiest, most indecent, obscene thing ever written. Yes it is, Frieda. It is filthy. . . . This Ulysses muck is more disgusting than Casanova. I must show that it can be done without muck.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elskhugi Laf\u00f0i Chatterley hefur au\u00f0vita\u00f0 svipa\u00f0 upplegg og Ulysses \u2013&nbsp;eiginkona getulauss manns uppg\u00f6tvar a\u00f0 h\u00fan getur ekki lifa\u00f0 e\u00f0a elska\u00f0 \u00e1n kynl\u00edfs og finnur s\u00e9r elskhuga \u2013&nbsp;\u00fe\u00f3tt ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00e9 \u00f6nnur, hj\u00e1 Lawrence er ma\u00f0ur skilinn eftir \u00ed von frekar en vissu um a\u00f0 elskhugarnir n\u00e1i saman (\u00fe\u00f3tt eiginma\u00f0ur hennar vilji ekki veita henni skilna\u00f0). \u00deennan bo\u00f0skap kalla\u00f0i Joyce \u201e\u00e1r\u00f3\u00f0ur fyrir \u00fev\u00ed, sem alls sta\u00f0ar nema \u00ed heimalandi DH Lawrence, flytur allan sinn \u00e1r\u00f3\u00f0ur \u00e1 eigin sp\u00fdtur.\u201c Bloom og Molly hins vegar finna s\u00e9r lei\u00f0ir til \u00feess a\u00f0 lifa \u00ed og me\u00f0 s\u00e1rsauka s\u00ednum og sorg, getuleysi og vanm\u00e6tti, \u00ed gegnum eitthva\u00f0 sem er sennilega skyldara s\u00e1tt en fyrirgefningu \u2013&nbsp;eitthva\u00f0 svona \u201es\u00e5dan er livet, er \u00fea\u00f0 ekki merkilegt?\u201c, sem er, liggur m\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 segja, einst\u00e6tt \u00ed heimsb\u00f3kmenntunum. <\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright size-large is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"765\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-06-at-11.36.44-765x1024.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6351\" style=\"aspect-ratio:0.7470773927221008;width:288px;height:auto\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-06-at-11.36.44-765x1024.png 765w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-06-at-11.36.44-224x300.png 224w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-06-at-11.36.44-768x1028.png 768w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/Screenshot-2026-03-06-at-11.36.44.png 926w\" sizes=\"auto, (max-width: 765px) 100vw, 765px\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Einsog sj\u00e1 m\u00e1 \u00e1 \u00feessari fr\u00e6gu mynd af Marilyn Monroe \u2013&nbsp;og d\u00e6ma m\u00e1 af svip hennar \u2013&nbsp;\u00fe\u00e1 er h\u00fan a\u00f0 lesa einr\u00e6\u00f0u Moll\u00fdar. <\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars hafa fr\u00e6\u00f0imenn tekist \u00e1 um \u00fea\u00f0 allar g\u00f6tur fr\u00e1 \u00fev\u00ed b\u00f3kin kom \u00fat hvort Penel\u00f3pukaflinn s\u00e9 kyn\u00f3rar kyn\u00f3\u00f0s manns um kvenhugann e\u00f0a pr\u00f3t\u00f3-fem\u00edn\u00edskur \u00f3\u00f0ur til hinnar kynfer\u00f0islega frelsu\u00f0u konu. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 anna\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 \u00fatiloka hitt, e\u00f0a a\u00f0 \u00fea\u00f0 geri l\u00fdsinguna \u00f3tr\u00faver\u00f0ugri,  en myndi sj\u00e1lfur leggja \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0urnar sem textinn l\u00fdsir \u2013\u00a0vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9\u00f0 hvernig Joyce d\u00edlar vi\u00f0 \u00f3ra og innra l\u00edf fyrr \u00ed b\u00f3kinni, og vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9\u00f0 hvernig hann d\u00edlar vi\u00f0 hinar \u00fdmsu v\u00edmur, gle\u00f0i, v\u00edns og greddu \u2013\u00a0og h\u00e9r birtist okkur kona \u00ed svefnrofunum. \u00dea\u00f0 eru m\u00f6rg l\u00f6g af frelsi og \u00e1nau\u00f0 \u00ed hugsunum okkar \u2013\u00a0m\u00f6rg l\u00f6g af b\u00e6lingu \u2013\u00a0og h\u00fan er au\u00f0vita\u00f0 minnst (en \u00fe\u00f3 til sta\u00f0ar) \u00feegar vi\u00f0 erum a\u00f0 tala vi\u00f0 okkur sj\u00e1lf \u00ed hlj\u00f3\u00f0i. \u00deegar svefnrofin b\u00e6tast vi\u00f0 erum vi\u00f0 alveg \u00e1 barmi draumal\u00edfsins \u00fear sem b\u00e6lingin hverfur, a.m.k. \u00fev\u00ed sem n\u00e6st (og \u00fe\u00e1 er vert a\u00f0 nefna a\u00f0 n\u00e6sta b\u00f3k, Finnegans Wake, \u00e1tti a\u00f0 vera sams konar kortlagning \u00e1 undirme\u00f0vitundinni og Ulysses er \u00e1 me\u00f0vitundinni \u2013\u00a0\u00ed Penel\u00f3pu erum vi\u00f0 kannski komin \u00e1 \u00fer\u00f6skuldinn).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir alls kyns hugsanir hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 \u2013&nbsp;um G\u00edbraltar (\u00fear sem h\u00fan \u00f3lst upp), fegur\u00f0 manna og kvenna, hvort sv\u00ednasteikin sem h\u00fan \u00e1t um daginn hafi veri\u00f0 skemmd, o.s.frv. \u2013&nbsp;fer h\u00fan aftur a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r bei\u00f0ni Blooms um morgunver\u00f0 \u00ed r\u00fami\u00f0. Og finnst n\u00fa \u00feetta meira en l\u00edti\u00f0 borginmannleg krafa. Alger frekja. Svo fer h\u00fan a\u00f0 hugsa um k\u00f6ttinn og Mill\u00fd og loks um Dedalus (sj\u00e1 \u00feetta a\u00f0 ofan). Og nefnir a\u00f0 h\u00fan er byrju\u00f0 \u00e1 t\u00far og s\u00e9 \u00fev\u00ed ekki \u00f3l\u00e9tt eftir Boylan. H\u00fan fer a\u00f0 hugsa um kvensj\u00fakd\u00f3mal\u00e6kna og reynslu s\u00edna af \u00feeim. A\u00f0 allir karlar s\u00e9u svikulir. Aftur um morgunver\u00f0inn hans Blooms og tilraunir hans til a\u00f0 veita henni munnm\u00f6k, sem henni \u00fe\u00f3ttu ekki tilkomumiklar. H\u00fan veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hva\u00f0a konu hann hafi sofi\u00f0 hj\u00e1 um daginn \u2013 sennilega v\u00e6ndiskonu hugsar h\u00fan, varla Josie Breen (fyrrum k\u00e6rustu Blooms, sem hann rakst \u00e1 um daginn) \u00fev\u00ed h\u00fan s\u00e9 gift og \u00fev\u00ed hef\u00f0i hann aldrei \u00feora\u00f0. N\u00e6st hugsar h\u00fan um vini hans (og finnst mismiki\u00f0 til \u00feeirra koma) og rifjar upp \u00feau skipti sem h\u00fan hitti Stephen sem barn og a\u00f0 h\u00fan hafi s\u00e9\u00f0 komu hans inn \u00ed l\u00edf \u00feeirra fyrir \u00ed tarotspilunum s\u00ednum um morguninn. Hana langar a\u00f0 t\u00e6la Stephen og \u00e6tlar a\u00f0 l\u00e6ra fullt af lj\u00f3\u00f0um til a\u00f0 ganga \u00ed augun \u00e1 honum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kaflinn byrjar \u00e1 or\u00f0inu \u201eyes\u201c en s\u00ed\u00f0asta setningin byrjar \u00e1 or\u00f0inu \u201eno\u201c. <\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">no thats no way for him has he no manners nor no refinement nor no nothing in his nature slapping us behind like that on my bottom because I didnt call him Hugh the ignoramus that doesnt know poetry from a cabbage<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hugh er sem sagt \u201eBlazes\u201c Boylan. Hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur b\u00f3lfimi hans og re\u00f0urst\u00e6r\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feykir henni alls ekki mj\u00f6g v\u00e6nt um hann, n\u00e9 hefur h\u00fan \u00e1 honum nokku\u00f0 s\u00e9rstakt d\u00e1l\u00e6ti sem mannveru \u2013 hann f\u00e6r mj\u00f6g neikv\u00e6\u00f0an samanbur\u00f0 vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i Bloom og Stephen. H\u00fan veltir fyrir s\u00e9r \u00feeirri \u00e1n\u00e6gju sem karlmenn hafi af a\u00f0 horfa \u00e1 kvenl\u00edkamann og \u00f6fundast \u00fat \u00ed hana \u2013\u00a0h\u00fan hefur ekki s\u00f6mu \u00e1n\u00e6gju af l\u00edk\u00f6mum \u00feeirra. H\u00fan pirrar sig \u00e1 a\u00f0 Bloom hafi kysst hana \u00e1 rassinn (\u00e1\u00f0ur en hann f\u00f3r a\u00f0 sofa \u2013\u00a0honum til varnar er svol\u00edti\u00f0 langt a\u00f0 andlitinu \u00feegar ma\u00f0ur sefur svona til f\u00f3ta). Hugsar a\u00f0 ver\u00f6ldin v\u00e6ri n\u00fa betri ef konur r\u00e9\u00f0u \u00f6llu. \u00d6fundar Bloom af a\u00f0 eiga vini og telur a\u00f0 h\u00fan eigi sj\u00e1lf engar vinkonur \u00fev\u00ed konur s\u00e9u \u00f3ttalegar t\u00edkur. Svo \u00e1kve\u00f0ur h\u00fan a\u00f0 l\u00e1ta eftir Bloom a\u00f0 f\u00e6ra honum morgunver\u00f0 en a\u00f0 sama skapi muni h\u00fan ekki \u00fer\u00edfa s\u00e6\u00f0i Boylans \u00far r\u00faminu (\u00fear sem \u00fea\u00f0 er greinilega enn). Svo fer h\u00fan a\u00f0 hugsa um b\u00f3nor\u00f0 Blooms, \u00ed Howth, og \u00fea\u00f0 blandast minningum hennar um fyrsta kossinn \u00ed G\u00edbraltar, og \u00ed s\u00ed\u00f0ustu l\u00ednunum birtist or\u00f0i\u00f0 yes aftur og aftur og b\u00f3kinni l\u00fdkur svona:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">and then I asked him with my eyes to ask again yes and then he asked me would I yes to say yes my mountain flower and first I put my arms around him yes and drew him down to me so he could feel my breasts all perfume yes and his heart was going like mad and yes I said yes I will Yes.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fe\u00e1 er h\u00fan b\u00fain. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einsog \u00e9g hef sj\u00e1lfsagt margnefnt h\u00e9rna \u2013\u00a0\u00edtreka\u00f0 og endur\u00edtreka\u00f0 \u2013\u00a0\u00fe\u00e1 ver\u00f0ur ekkert \u00far Ulyssesfer\u00f0inni til Dyflinnar \u00ed \u00e1r. Vonandi \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri, ef fj\u00e1rr\u00e1\u00f0 leyfa. Upprunalega hugmyndin var a\u00f0 h\u00fan yr\u00f0i punkturinn aftan vi\u00f0 \u00feessa yfirfer\u00f0 \u2013\u00a0sem er \u00feri\u00f0ja til fj\u00f3r\u00f0a til fimmta yfirfer\u00f0 m\u00edn \u00e1 b\u00f3kinni eftir \u00fev\u00ed hvernig ma\u00f0ur telur \u2013\u00a0og \u00fev\u00ed er alveg einhver gremja e\u00f0a sorg \u00fev\u00ed samfara. A\u00f0 kl\u00e1ra \u00e1n \u00feess a\u00f0 kl\u00e1ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Finnst m\u00e9r \u00e9g hafa yfirs\u00fdn yfir Ulysses? Varla. Einsog \u00e9g nefni l\u00edka mj\u00f6g gjarnan er \u00e9g afar minnislaus sem er til talsver\u00f0ra trafala vi\u00f0 lestur svona b\u00f3kar \u2013 \u00fea\u00f0 er enn\u00fe\u00e1 mj\u00f6g algengt a\u00f0 \u00e9g skilji ekkert hva\u00f0 s\u00e9 \u00ed gangi. En m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 l\u00edka bara allt\u00edlagi. \u00dea\u00f0 kemur alls ekki \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00e9g nj\u00f3ti lestursins. Stundum finnst m\u00e9r setningarnar bara fallegar og stundum koma lei\u00f0inlegir kaflar sem bara flj\u00f3ta framhj\u00e1 einhvern veginn \u2013\u00a0Ulysses er ekki fullkomin b\u00f3k og ekki b\u00f3k sem reynir a\u00f0 vera fullkomin. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e1 s\u00f6kkvir h\u00fan t\u00f6nnunum \u00ed annmarka s\u00edna frekar en a\u00f0 for\u00f0ast \u00fe\u00e1 \u2013\u00a0h\u00fan er mj\u00f6g eftirl\u00e1t vi\u00f0 duttlunga h\u00f6fundarins og leggur alls konar mise\u00f0lilegar kr\u00f6fur \u00e1 lesendur s\u00edna og launar ekki alltaf erfi\u00f0i\u00f0 einsog skyldi, \u00fe\u00b4\u00f3tt h\u00fan geri \u00fea\u00f0 oft. Eitt er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 gerist eiginlega ekki neitt \u00ed b\u00f3kinni\u2013\u00a0og samt allt. St\u00e6rsta \u00b4\u00e1skorunin vi\u00f0 a\u00f0 fara svona \u00ed gegnum s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0inn er a\u00f0 velja \u00fat hva\u00f0 skipti m\u00e1li \u2013\u00a0hugsanir flj\u00f3ta hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 og atbur\u00f0um er l\u00fdst me\u00f0 alls kyns fantast\u00edskum a\u00f0fer\u00f0um \u2013\u00a0hva\u00f0 var eiginlega a\u00f0 gerast? Og hva\u00f0 af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem var e\u00f0a var ekki a\u00f0 gerast \u2013 e\u00f0a af \u00fev\u00ed sem einhver var a\u00f0 hugsa \u2013\u00a0er markver\u00f0ara en hitt? Hvar eru h\u00e1punktarnir? Hva\u00f0 \u00fearf a\u00f0 taka fram svo ma\u00f0ur \u00e1tti sig \u00e1 framvindunni, skilji pers\u00f3nurnar, geti r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feemu og mynstur? Hva\u00f0 af \u00f6llum extra-literat\u00farnum \u2013\u00a0Hamlet, H\u00f3mer, Dante \u2013\u00a0\u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 \u00feekkja? Hva\u00f0 af s\u00f6gu \u00cdrlands? S\u00f6gu enskra og \u00edrskra b\u00f3kmennta? Hvar skipta speglanirnar m\u00e1li? Hva\u00f0 me\u00f0 tengslin vi\u00f0 Dubliners og Portrait of the artist as a young man \u2013\u00a0e\u00f0a jafnvel Finnegans Wake? \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 halda svona \u00e1fram endalaust a\u00f0 sp\u00e1 \u00ed flestum b\u00f3kum en Ulysses beinl\u00ednis bi\u00f0ur mann a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 \u2013 \u00f6grar manni a\u00f0 gera \u00fea\u00f0, me\u00f0al annars me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera me\u00f0vita\u00f0 \u00ferekraun \u00ed lestri. V\u00edst skal \u00e9g skilja \u00feig, helv\u00edtis beini\u00f0 \u00feitt! svarar ma\u00f0ur \u00ferj\u00f3skur. Af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er leikurinn. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ulysses er b\u00f3k tenginga og h\u00fan lj\u00f3mar \u00ed hvert sinn sem ma\u00f0ur tengir eitthva\u00f0 saman \u2013&nbsp;hvort sem \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt tengt e\u00f0a rangt, \u00fea\u00f0 er ekki a\u00f0alatri\u00f0i. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka einsog Joyce hafi tengt hana vi\u00f0 allt \u2013&nbsp;alla s\u00edna \u00feekkingu, allar s\u00ednar tilfinningar \u2013&nbsp;og a\u00f0 eina lei\u00f0in til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 \u00f6llum tengingunum v\u00e6ri a\u00f0 hafa veri\u00f0 Joyce sj\u00e1lfur, helst \u00e1 \u00f6llum stigum \u00feess a\u00f0 skrifa Ulysses \u00ed einu. Sem ma\u00f0ur getur ekki. En ma\u00f0ur \u00fearf heldur ekki a\u00f0 n\u00e1 \u00f6llum tengingunum og kannski er \u00fea\u00f0 l\u00edka hluti af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201el\u00e6ra a\u00f0 lesa\u201c Ulysses (ekki \u00fea\u00f0 \u00e9g hafi nokkurn t\u00edma lesi\u00f0 b\u00f3k sem \u00e9g hafi skili\u00f0 til fulls, e\u00f0a einu sinni skrifa\u00f0 b\u00f3k sem \u00e9g hafi skili\u00f0 til fulls) \u2013&nbsp;\u00feessi s\u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 svamla bara \u00ed hafinu. Og nj\u00f3ta \u00feessarar st\u00f3rfenglegu inns\u00fdnar \u00ed mennskuna, sem felst \u00ed kynnum vi\u00f0 Bloom, Molly og Stephen. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00feakka samfylgdina \u00feeim sem nenntu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifskvi\u00f0u \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far pr\u00f3sa\u00fe\u00fd\u00f0ingu Sveinbj\u00f6rns Egilssonar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">Ef vitna\u00f0 er til \u00d3dysseifs \u00e1 \u00edslensku er \u00fea\u00f0 \u00far \u00fe\u00fd\u00f0ingu Sigur\u00f0ar A. Magn\u00fassonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Yfirfer\u00f0in<\/strong>&nbsp;<strong>2025<\/strong>:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5920\">Ulysses: Lestrardagb\u00f3k, 1. hluti<\/a>&nbsp;<br>(Telemakkos, Nestor og Pr\u00f3teus \u00e1 hundava\u00f0i).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5924\">Ulysses: Kalyps\u00f3<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5933\">L\u00f3tus\u00e6turnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5950\">Hades: Undirheimarnir<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5984\">E\u00f3lus: M\u00b4\u00f3tvindar frelsis<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6036\">Lestryg\u00f3nar: A\u00f0 \u00e9ta \u00e1 sig gat<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6060\">Skylla og Karybd\u00eds: Je est une autre<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6077\">Villhamrar og Skellibj\u00f6rg<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6110\">S\u00edrenur, v\u00e6l og reykur: Dyflinni syngur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6150\">Auga sj\u00e1andans: \u00dej\u00f3\u00f0remba og heift<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6166\">Nekt og fr\u00f3: N\u00e1sika \u00e1 str\u00f6ndinni<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6185\">S\u00e1\u00f0l\u00e1t \u00e1 Sikiley: Uxi 1904<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6216\">Kirkub\u00f6llur klingir<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6283\">Evmeus: Heim af djamminu<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6318\">\u00cd\u00feaka: S\u00f3l sl\u00e6r silfri \u00e1 voga<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\">* * *&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Eldri bloggf\u00e6rslur um Ulysses:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5594\">Gerty MacDowell, Silv\u00eda N\u00f3tt og list par\u00f3d\u00edunnar<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5845\">Hi\u00f0 samhengislega l\u00edf<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5721\">Torlestur<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5167\">V\u00f6lundarh\u00fas Rorschachs<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5092\">A\u00f0 fe\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur sinn<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center has-small-font-size wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=5426\">Svarts\u00fdni og blinda<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Penel\u00f3pu\u00fe\u00e1ttur Ulysses er ekki nema \u00e1tta setningar, sem eru a\u00f0 v\u00edsu hver um sig \u00e1 bilinu 3-7 s\u00ed\u00f0ur. Og fyrir utan \u00feessa \u00e1tta punkta eru engin greinarmerki \u00ed kaflanum, ekki einu sinni \u00farfellingamerki \u2013&nbsp;svo ma\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 r\u00e1\u00f0a af samhenginu hvort a\u00f0 \u201ewell\u201c s\u00e9 \u201ewe&#8217;ll\u201c e\u00f0a bara \u201ewell\u201c og svo framvegis. \u00deetta er talsvert minna &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6347\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Penel\u00f3pa: Skegg konunnar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-6347","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6347","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6347"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6347\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6356,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6347\/revisions\/6356"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6347"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6347"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6347"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}