{"id":6389,"date":"2026-04-26T20:07:41","date_gmt":"2026-04-26T20:07:41","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6389"},"modified":"2026-04-26T20:23:51","modified_gmt":"2026-04-26T20:23:51","slug":"hvad-er-thetta-inger","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6389","title":{"rendered":"Hva\u00f0 er \u00feetta Inger?"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"848\" height=\"500\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/inger.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-6390\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/inger.jpg 848w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/inger-300x177.jpg 300w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/inger-768x453.jpg 768w\" sizes=\"auto, (max-width: 848px) 100vw, 848px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef ekki \u00fe\u00fdtt m\u00f6rg heil lj\u00f3\u00f0as\u00f6fn um \u00e6vina. \u00c1ri\u00f0 2000 byrja\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a valin lj\u00f3\u00f0 eftir Allen Ginsberg \u2013\u00a0og gekk svo me\u00f0 hana fr\u00e1 Her\u00f3dusi til P\u00edlatusar \u00ed sj\u00f6 \u00e1r. \u00dea\u00f0 enda\u00f0i \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 Ginsberg f\u00f3rum saman inn \u00e1 M\u00b4\u00e1l og menningu undir verndarv\u00e6ng Silju A\u00f0alsteinsd\u00f3ttur, sem gaf \u00fat Ma\u00edkonunginn. Launin m\u00edn voru svo sem ekki beysin, einhver p\u00ednul\u00edtil \u00fe\u00fd\u00f0ingarstyrkur sem f\u00e9kkst \u2013\u00a0\u00e9g giska \u00e1 100 \u00fe\u00fasund kall (\u00ed 2007 kr\u00f3num) \u2013\u00a0allavega \u00ed engu samr\u00e6mi vi\u00f0 verki\u00f0. Sem er regla en ekki undantekning \u00feegar lj\u00f3\u00f0 eru annars vegar. Svo fyrir um \u00e1ratug \u00fe\u00fdddi \u00e9g tv\u00e6r b\u00e6kur \u00ed beit, annars vegar Erf\u00f0askr\u00e1 v\u00e9lst\u00falkunnar eftir Idu Linde og svo Hv\u00edtsv\u00edtu eftir Athenu Farrokhzad. Erf\u00f0askr\u00e1in kom \u00fat hj\u00e1 Me\u00f0g\u00f6ngulj\u00f3\u00f0um og \u00e9g man hreinlega ekki hvort \u00e9g f\u00e9kk nokku\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 \u2013\u00a0kannski var \u00fea\u00f0 einhver 25 \u00fe\u00fasund kr\u00f3na styrkur e\u00f0a \u00e1l\u00edka. Og einhver eint\u00f6k f\u00e9kk \u00e9g. Hv\u00edtsv\u00edta f\u00e9kkst \u00fatgefin me\u00f0 fiffer\u00edi \u2013 vi\u00f0 s\u00f6mdum um pr\u00f3sentur sem vi\u00f0 Athena skiptum me\u00f0 okkur. \u00c9g held \u00e9g hafi enda\u00f0 me\u00f0 32 \u00fe\u00fasund kr\u00f3nur \u00ed vasanum fyrir \u00fea\u00f0 verk. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um langt skei\u00f0 var \u00e9g me\u00f0 tv\u00e6r lj\u00f3\u00f0ab\u00f3kar\u00fe\u00fd\u00f0ingar \u00e1 dagskr\u00e1nni\u00a0\u2013 taldi \u00fe\u00e6r gjarnan me\u00f0 \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 s\u00e6kja um listamannalaun til d\u00e6mis. Annars vegar valin lj\u00f3\u00f0 eftir Gertrude Stein og hins vegar Alfabet eftir Inger Christensen \u2013\u00a0sem er eitt h\u00f6fu\u00f0verka evr\u00f3pskrar lj\u00f3\u00f0listar \u00e1 20. \u00f6ld (svona b\u00f3k sem er til \u00ed nokkrum \u00fe\u00fd\u00f0ingum \u00e1 \u00f6llum helstu m\u00e1lum). Af og til hef \u00e9g \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a l\u00edka Jack Spicer og svo \u00e1 \u00e9g \u00fev\u00edl\u00edkt fjall af \u00fe\u00fd\u00f0ingum sem hafa anna\u00f0 hvort ekki birst e\u00f0a birst \u00ed t\u00edma- og vefritum e\u00f0a birst \u00ed lj\u00f3\u00f0a\u00fe\u00fd\u00f0ingasafninu 131.839 sl\u00f6g me\u00f0 bilum \u2013\u00a0a\u00f0 taldi yfir \u00fe\u00fasund s\u00ed\u00f0ur \u00feegar \u00e9g sko\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ast. En a\u00f0 v\u00edsu var \u00e9g einhvern t\u00edma b\u00fainn a\u00f0 skera \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed svona 200 s\u00ed\u00f0na best-of, \u00feegar \u00e9g hug\u00f0ist koma \u00fev\u00ed \u00fat \u2013\u00a0en \u00fea\u00f0 stranda\u00f0i bara \u00e1 \u00e1hugaleysi allra um \u00feetta og kannski orkuleysi m\u00ednu l\u00edka. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">131.839 sl\u00f6g me\u00f0 bilum er b\u00f3k sem kom \u00fat 2007, e\u00f0a um \u00fea\u00f0 leyti, og innih\u00e9lt fj\u00f6ldann allan af \u00fe\u00fd\u00f0ingum \u00e1 fram\u00farstefnulj\u00f3\u00f0um (a\u00f0allega) \u2013 h\u00fan var gefin \u00fat af Ntamo \u00ed Finnlandi, sem er print-on-demand forlag, og \u00fea\u00f0 er ekki einu sinni til eintak af henni \u00e1 Landsb\u00f3kasafninu. Kostna\u00f0urinn vi\u00f0 a\u00f0 koma henni \u00ed s\u00f6lu \u00e1 \u00cdslandi reyndist m\u00e9r ofvi\u00f0a. En einhverjir hafa sj\u00e1lfsagt panta\u00f0 s\u00e9r hana fr\u00e1 Finnlandi (\u00fear sem h\u00fan er <a href=\"https:\/\/www.ntamo.net\/product\/43\/131839-slog-me-bilum-2007-ritstj---eirkur-orn-nordahl\">enn til<\/a>). \u00c9g held \u00e9g eigi eitt eintak sj\u00e1lfur \u2013\u00a0einhver keypti \u00e9g og gaf og \u00e9g kom alveg garantera\u00f0 \u00fat \u00ed st\u00f3rum m\u00ednus fr\u00e1 \u00feeirri \u00fatg\u00e1fu (s\u00e9rstaklega ef liti\u00f0 er til \u00feess a\u00f0 \u00e1 \u00feessum t\u00edma lif\u00f0i \u00e9g mestmegnis \u00e1 loftinu). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri \u00e1kva\u00f0 \u00e9g svo a\u00f0 h\u00e6tta \u00feessu slugsi me\u00f0 Inger \u2013 sem \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a 2009, fyrstu erindin birtust \u00ed Af steypu, nokkur \u00ed vi\u00f0b\u00f3t \u00e1 Starafugli einhvern t\u00edma \u2013\u00a0fyrst <a href=\"https:\/\/starafugl.norddahl.org\/2018\/ur-stafrofinu-eftir-inger-christensen\/\">2018<\/a> og svo <a href=\"https:\/\/starafugl.norddahl.org\/2019\/stafrof\/\">2019<\/a> \u2013 sennilega eitthva\u00f0 \u00e1 T\u00edu \u00fe\u00fasund tregaw\u00f6ttum \u00fear \u00e1\u00f0ur. \u00deetta var ekki \u00e1hlaupaverk \u2013\u00a0byrjunin er frekar beisikk en \u00feegar ma\u00f0ur er kominn yfir fyrsta \u00feri\u00f0jung ver\u00f0ur r\u00f3\u00f0urinn s\u00edfellt \u00feyngri. En \u00feetta er l\u00edka rosaleg b\u00f3k. Texti sem vellur og s\u00fd\u00f0ur og dansar og sv\u00edfur og kannski umfram allt anna\u00f0 gr\u00e6r. Alfabet er b\u00f3k um str\u00ed\u00f0 og n\u00e1tt\u00faru og \u00fe\u00e1 vi\u00f0st\u00f6\u00f0ulausu \u00f3gn sem okkur stafar af sj\u00e1lfum okkur \u2013\u00a0en l\u00edka b\u00f3k um allt sem er til, allt sem bl\u00f3mstrar, allt sem vi\u00f0 getum fundi\u00f0 lyktina af og snert. B\u00f3k sem talar vi\u00f0 heim sem stendur alltaf b\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00f6ndinni og \u00e1 barmi sj\u00e1lfsey\u00f0ileggingar.  Og \u00feetta \u201ekerfislj\u00f3\u00f0\u201c einsog \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0 \u2013\u00a0lj\u00f3\u00f0 af tagi sem er \u00edslenskri lj\u00f3\u00f0list framandi, n\u00fd jurt \u2013 fram\u00farstefna ort inn \u00ed mynstur b\u00e6\u00f0i stafr\u00f3fsins og fibonacci-rununar. Alfabet er meistaraverk Inger \u2013\u00a0sem er mesta lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld sem nor\u00f0url\u00f6ndin hafa \u00e1tt, a\u00f0 ekki nokkrum fr\u00e1t\u00f6ldum \u2013\u00a0\u00fe\u00f3tt manni s\u00e9 alveg \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 halda l\u00edka upp \u00e1 Det og Sommerfugledalen. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g komst \u00e1 enda \u00ed febr\u00faar og sendi fyrst fyrirspurn \u00e1 forlagi\u00f0 til \u00feess a\u00f0 spyrjast fyrir um \u00e1huga og var be\u00f0inn um handrit, sem \u00e9g sendi, og svo bei\u00f0 \u00e9g \u00ed tvo m\u00e1nu\u00f0i. Ni\u00f0ursta\u00f0an kom fyrir helgi. \u00deetta borgar sig ekki. Sem er au\u00f0vita\u00f0 sorglegt en l\u00edka ni\u00f0ursta\u00f0a sem \u00e9g hef\u00f0i geta\u00f0 nefnt \u00e1\u00f0ur en nokkrir \u00fatreikningar \u00e1ttu s\u00e9r sta\u00f0 \u2013\u00a0lj\u00f3\u00f0list borgar sig ekki. \u00dea\u00f0 er ekki \u00feess vegna sem nokkur stundar hana \u2013\u00a0ma\u00f0ur hvorki skrifar hana, gefur \u00fat, n\u00e9 les vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 borgi sig. Ekki \u00ed cold hard cash. Lj\u00f3\u00f0list er \u00e1batasamur hallarekstur \u00ed sama skilningi og raft\u00e6kjaframlei\u00f0sla er gr\u00f3\u00f0abransi sem skilur eftir sig svi\u00f0na j\u00f6r\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. \u00c9g \u00fearf a\u00f0 taka einhver \u00f6nnur skref til \u00feess a\u00f0 gefa \u00feetta \u00fat. Skrifa fleiri \u00fatgefendum \u2013\u00a0sem \u00e9g hef ekki gert \u00ed n\u00e6rri 20 \u00e1r \u2013\u00a0og leita h\u00f3fanna. Einhver stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g myndi safna \u00e1skrifendum til \u00feess a\u00f0 gera verkefni\u00f0 meira a\u00f0la\u00f0andi fyrir hvern \u00feann sem tekur a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 gefa b\u00f3kina \u00fat. \u00dea\u00f0 er \u00f3vitlaust (og raunar margir \u00feegar l\u00fdst sig viljuga til \u00feess a\u00f0 kaupa b\u00f3kina \u00fatkomna). \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 styrki fyrir \u00fe\u00fd\u00f0endalaununum. \u00dea\u00f0 er kannski h\u00e6gt a\u00f0 \u201es\u00f3a\u201c \u00fev\u00ed f\u00e9 \u00ed prentkostna\u00f0 \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er h\u00e6gt falast eftir \u00f3keypis ritstj\u00f3rn. Og svo framvegis. Sennilega \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 allt saman samt a\u00f0 \u00e9g ver\u00f0i a\u00f0 fresta sk\u00e1lds\u00f6gunni minni um \u00e1r me\u00f0an \u00e9g vinn \u00ed \u00feessu \u2013\u00a0en h\u00fan m\u00e1 \u00e1rei\u00f0anlega vi\u00f0 \u00fev\u00ed, \u00fea\u00f0 er ekki heimsendir. Ekki einsog \u00e9g s\u00e9 kominn me\u00f0 vilyr\u00f0i e\u00f0a samning e\u00f0a nokkurn skapa\u00f0an hlut heldur. Varla a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 kominn me\u00f0 punkt. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feetta er samt allt eitthva\u00f0 sorglegt l\u00edka og inn \u00e1 mill \u00feess sem mig langar a\u00f0 st\u00f6kkva \u00e1 f\u00e6tur til \u00feess a\u00f0 berjast fyrir b\u00f3kinni me\u00f0 kjafti og kl\u00f3m langar mig l\u00edka bara til a\u00f0 kasta \u00e1rum fyrir bor\u00f0 \u2013\u00a0muldrandi vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig, \u00ed beiskju ef ekki heift, a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekkert a\u00f0 ver\u00f0a eftir af \u201eb\u00f3kmenntum\u201c \u00ed \u00feessu b\u00f3kal\u00edfi, sem sn\u00faist bara um a\u00f0 prenta merkingarlausa stafi \u00ed samkeppni vi\u00f0 merkingarleysu alnetsins \u00ed von um a\u00f0 einhver lesi \u00fe\u00e1 \u2013\u00a0af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 s\u00e9 betra a\u00f0 lesa eitthva\u00f0 en ekkert. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00e1lfs m\u00edn vegna langar mig n\u00fa meira a\u00f0 falla bar\u00e1ttumegin fram \u00far r\u00faminu \u00e1 morgnana \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er \u00edvi\u00f0 gle\u00f0ilegra, svona fyrir s\u00e1lina, en helv\u00edtis uppgj\u00f6fin. Og fyrst \u00e9g gat gengi\u00f0 me\u00f0 Ginsberg milli forlaga \u00ed 7 \u00e1r get \u00e9g kannski gengi\u00f0 \u00ed einhver \u00e1r me\u00f0 Inger l\u00edka. En \u00e9g hef l\u00edka lengi veri\u00f0 \u00feeirrar tr\u00faar a\u00f0 vi\u00f0ri ma\u00f0ur ekki f\u00fdluna \u00ed s\u00e9r s\u00e9 l\u00edklegt a\u00f0 h\u00fan grafi um sig og \u00fdldi \u00ed manni holdi\u00f0. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ps. Einsog s\u00e9st \u00e1 titlinum \u00e6tla\u00f0i \u00e9g bara a\u00f0 skrifa nokkur or\u00f0 um Inger Christensen. En \u00feau ur\u00f0u ekki m\u00f6rg. \u00c6tli \u00e9g spari \u00feau ekki fyrir form\u00e1lann me\u00f0an \u00e9g er a\u00f0 r\u00e1\u00f0a r\u00e1\u00f0um m\u00ednum um framt\u00ed\u00f0ina. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef ekki \u00fe\u00fdtt m\u00f6rg heil lj\u00f3\u00f0as\u00f6fn um \u00e6vina. \u00c1ri\u00f0 2000 byrja\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a valin lj\u00f3\u00f0 eftir Allen Ginsberg \u2013\u00a0og gekk svo me\u00f0 hana fr\u00e1 Her\u00f3dusi til P\u00edlatusar \u00ed sj\u00f6 \u00e1r. \u00dea\u00f0 enda\u00f0i \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 Ginsberg f\u00f3rum saman inn \u00e1 M\u00b4\u00e1l og menningu undir verndarv\u00e6ng Silju A\u00f0alsteinsd\u00f3ttur, sem gaf \u00fat Ma\u00edkonunginn. Launin m\u00edn &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6389\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hva\u00f0 er \u00feetta Inger?<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-6389","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6389","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6389"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6389\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6395,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6389\/revisions\/6395"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6389"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6389"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6389"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}