{"id":6396,"date":"2026-04-30T16:45:48","date_gmt":"2026-04-30T16:45:48","guid":{"rendered":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6396"},"modified":"2026-06-07T13:29:00","modified_gmt":"2026-06-07T13:29:00","slug":"tidindi-ulysses","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6396","title":{"rendered":"T\u00ed\u00f0indi + \u00dalysses"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa ver\u00f0a sag\u00f0ar fr\u00e9ttir. <\/p>\n\n\n\n<ol class=\"wp-block-list\">\n<li><em>Fimm lj\u00f3\u00f0<\/em> hlaut tilnefningu til Ma\u00edstj\u00f6rnunnar \u2013\u00a0\u00e1samt <em>F\u00e9lagslandi<\/em> eftir V\u00f6lu Hauksd\u00f3ttur, <em>M\u00f6ru kemur \u00ed heims\u00f3kn<\/em> eftir Nat\u00f6sju S, <em>Postul\u00edni<\/em> eftir Sunnu D\u00eds, <em>Fyrir v\u00edsindin<\/em> eftir \u00d6nnu R\u00f3s og <em>\u00deyngsta frumefninu<\/em> eftir J\u00f3n Kalman. <\/li>\n\n\n\n<li>\u00c9g komst ekki \u00e1 ath\u00f6fnina en \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur upplestur \u00ed n\u00e6stu viku sem \u00e9g h\u00e9lt a\u00f0 k\u00e6mist ekki \u00e1, en svo var m\u00e9r gert lj\u00f3st a\u00f0 flugfari\u00f0 yr\u00f0i greitt, og \u00e9g m\u00e6ti \u00fev\u00ed. \u00deetta ver\u00f0ur \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0arb\u00f3khl\u00f6\u00f0unni mi\u00f0vikudaginn 6. ma\u00ed kl. 11.30. <\/li>\n\n\n\n<li>\u00dalyssesfer\u00f0in er komin aftur \u00e1 dagskr\u00e1. Og \u00e9g er farinn a\u00f0 tala um \u00dalysses \u00e1 \u00edslensku. Joyce notar v\u00edsvitandi lat\u00ednuheiti \u00d3dysseifs, \u00dalysses, \u00e1 b\u00f3k s\u00edna og \u00ed langflestum \u00fe\u00fd\u00f0ingum hafa menn reynt a\u00f0 halda \u00feessu \u2013\u00a0Ulises, Uliks, Ulysse, Ulisse, Uliss o.s.frv. <\/li>\n<\/ol>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">***<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"672\" height=\"924\" src=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/Capture-decran-2026-04-30-a-16.44.09.png\" alt=\"\" class=\"wp-image-6397\" srcset=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/Capture-decran-2026-04-30-a-16.44.09.png 672w, https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/wp-content\/uploads\/2026\/04\/Capture-decran-2026-04-30-a-16.44.09-218x300.png 218w\" sizes=\"auto, (max-width: 672px) 100vw, 672px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dalyssesfer\u00f0in hefst 10. j\u00fan\u00ed. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 vera einn fyrstu dagana og f\u00e1 svo einhvern selskap a\u00f0eins s\u00ed\u00f0ar. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00ferj\u00e1 daga \u00ed Dyflinni og fara \u00e1 alls konar vi\u00f0bur\u00f0i \u2013\u00a0taka svo tvo daga \u00ed Belfast, sem er ekki tengt Joyce, en \u00e9g f\u00f3r \u00feanga\u00f0 \u00ed m\u00edna fyrstu utanlandsfer\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1995 (\u00e1\u00f0ur en \u201ethe troubles\u201c lauk) og langar a\u00f0 litast a\u00f0eins um fyrst \u00e9g er \u00ed n\u00e1grenninu. Fimmt\u00e1nda j\u00fan\u00ed kem \u00e9g aftur til Dyflinnar, 16. j\u00fan\u00ed er Bloomsdagur \u2013\u00a0\u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e9g b\u00f3ka\u00f0 (\u00e1samt Lomma) \u00ed Bloomsday breakfast, me\u00f0 steiktum n\u00fdrum og \u00f6llu saman. 20. j\u00fan\u00ed fer \u00e9g heim. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 dagskr\u00e1nni er a\u00f0 koma vi\u00f0 \u00e1 \u00f6llum helstu s\u00f6gust\u00f6\u00f0um, Martelloturni, Glasnevin kirkjugar\u00f0i, Swenys ap\u00f3tekinu, Howth h\u00f6f\u00f0a, Sandymount str\u00f6ndinni, Nighttown (Monto), National Library og National Gallery og Eccles str\u00e6ti 7. \u00c9g \u00e6tla l\u00edka \u00e1 The Museum of Literature og hef b\u00f3ka\u00f0 mig \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0ir og vi\u00f0bur\u00f0i \u2013 me\u00f0al annars einn dada kabarett og tvo leik\u00fe\u00e6tti in situ, einsog vi\u00f0 Joycelesandi g\u00e1fumennin segjum, \u00fe.e.a.s. \u00e1 sta\u00f0num (upphaf b\u00f3karinnar \u00ed Martelloturni og K\u00fdkl\u00f3pa\u00fe\u00e1tt \u2013 reyndar bara \u00e1 einhverri kr\u00e1 \u2013\u00a0Barney Kiernan h\u00fasi\u00f0 er enn til en kr\u00e1in ekki). Og svo eitt sj\u00f3 \u00ed leikh\u00fasi. \u00c9g hef \u00e1tta daga \u00ed Dyflinni og tvo \u00ed Belfast og Dyflinnardagskr\u00e1in er \u00feegar or\u00f0in svo \u00fe\u00e9tt a\u00f0 \u00e9g er farinn a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af a\u00f0 missa af einhverju vegna t\u00edmaskorts. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g misreikna\u00f0i mig a\u00f0eins \u00ed \u00e1\u00e6tlanarger\u00f0inni \u00fev\u00ed a\u00f0 Bloomsday Festival \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 11.-16. j\u00fan\u00ed og ef \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 gera \u00feetta n\u00fana f\u00e6ri \u00e9g heldur til Belfast eftir \u00fea\u00f0 en a\u00f0 vera a\u00f0 yfirgefa b\u00e6inn \u00ed mi\u00f0ju festivali. 17.-20. er minna um sj\u00f3 \u2013\u00a0en \u00fe\u00e1 l\u00edka meira n\u00e6\u00f0i til a\u00f0 uppg\u00f6tva hluti \u00e1 eigin forsendum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vegna \u00feess a\u00f0 Joyce er aftur \u00e1 dagskr\u00e1 er \u00e9g l\u00edka aftur farinn a\u00f0 mata mig mest megnis \u00e1 Joyceb\u00f3kmenntum. \u00c9g las <em>Joyce: Ett Portr\u00e4tt<\/em> (\u00ed s\u00e6nskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu, sem sagt) eftir sk\u00e1ldi\u00f0 Ednu O&#8217;Brien. \u00deetta er l\u00fdr\u00edskt og skapandi hj\u00e1 Ednu \u00feegar \u00fea\u00f0 er best en ver\u00f0ur l\u00edka \u00e1 k\u00f6flum svol\u00edti\u00f0 einsog stikkor\u00f0a\u00fatg\u00e1fa af \u00feykku Ellman-\u00e6vis\u00f6gunni (sem \u00e9g var a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00ed b\u00edlnum um svipa\u00f0 leyti og \u00e9g las \u00feessa, og sem \u00e9g hef lesi\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u2013\u00a0h\u00fan er fr\u00e1b\u00e6r en rosalega miki\u00f0 \u201e\u00e6vis\u00f6gulega a\u00f0fer\u00f0in\u201c, \u00fe.e. barn s\u00edns t\u00edma, og au\u00f0vita\u00f0 exhaustive, \u00fe.e.a.s. tiltekur bara allt sem hann hefur fundi\u00f0, en \u00fea\u00f0 er l\u00edka \u00feannig sem \u00feannig b\u00e6kur eiga a\u00f0 virka). Edna er best \u00feegar h\u00fan er a\u00f0 l\u00fdsa afst\u00f6\u00f0u sinni til Joyce \u2013\u00a0l\u00edka \u00feegar h\u00fan skrifar \u00fea\u00f0 umdeildasta \u00ed b\u00f3kinni, \u00feegar h\u00fan fullyr\u00f0ir a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feurfi a\u00f0 vera skr\u00edmsli til a\u00f0 skapa eitthva\u00f0 af viti (kannski er h\u00fan a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta eitthva\u00f0 \u00ed eigin fari \u2013\u00a0Joyce var sj\u00e1lfhverfur og drykkfelldur en hann var ekki neitt skr\u00edmsli). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo las \u00e9g <em>\u00cd Dyflinni <\/em>aftur. N\u00fa \u00ed SAM \u00fe\u00fd\u00f0ingunni. Aftur er \u00feessi titill einhver tilraun til \u00feess a\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00fej\u00e1lt sem \u00fearf ekki a\u00f0 vera svona rosalega \u00fej\u00e1lt. <em>Dyflinnarb\u00faar<\/em> \u00e6tti h\u00fan a\u00f0 heita. \u00c1herslan \u00e1 a\u00f0 vera \u00e1 f\u00f3lkinu. Og \u00fea\u00f0 er margt athugavert vi\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0inguna anna\u00f0\u00a0\u2013\u00a0stundum skiptir SAM um or\u00f0 \u00ed mi\u00f0ju kafi, eftirrit ver\u00f0ur afrit og \u00e1l\u00edka \u2013\u00a0og or\u00f0alag hans er almennt s\u00e9rsinna, svo \u00e9g hugsa\u00f0i til skiptis a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri undarlegt a\u00f0 leyfa honum a\u00f0 komast upp me\u00f0 sumt af \u00feessu, en a\u00f0 sama skapi \u00f6funda\u00f0ist \u00e9g \u00fat \u00ed a\u00f0 m\u00e1lsni\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0anda fengi a\u00f0 halda s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er alltof r\u00edk tilhneiging til \u00feess a\u00f0 b\u00faa til eitthva\u00f0 sta\u00f0la\u00f0 m\u00e1lsni\u00f0 \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingum \u2013 eitthva\u00f0 sem er hvorki m\u00e1lsni\u00f0 h\u00f6fundar n\u00e9 \u00fe\u00fd\u00f0anda heldur svona mi\u00f0gildis-\u00edslenska. Jafnvel mi\u00f0gildis-reykv\u00edska. \u00c9g held vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 fara a\u00f0 sn\u00faa okkur \u00fat \u00far \u00fev\u00ed, jafnvel \u00fe\u00f3tt hlutir hlj\u00f3mi \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0ur \u201e\u00fej\u00e1lir\u201c \u00ed eyrum mi\u00f0gildis-\u00edslendinga. \u00deetta stendur bl\u00f3mgun tungum\u00e1lsins fyrir \u00ferifum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6gurnar eru alltaf jafn \u00f3tr\u00falegar. \u00c9g held a\u00f0 n\u00fa hafi <em>Arab\u00ed<\/em>, <em>Tveir kaval\u00e9rar<\/em> (Two Gallants), <em>Vandr\u00e6\u00f0alegt atvik<\/em> (h\u00e9t h\u00fan \u00fea\u00f0 ekki? \u00e9g er ekki me\u00f0 b\u00f3kina hj\u00e1 m\u00e9r \u2013 or\u00f0i\u00f0 var \u00e1rei\u00f0anlega \u201evandr\u00e6\u00f0alegt\u201c, en sagan heitir <em>A Painful Case<\/em> og \u00fea\u00f0 er ekkert vandr\u00e6\u00f0alegt vi\u00f0 a\u00f0 kona ver\u00f0i fyrir lest) og <em>N\u00e1\u00f0<\/em> <em>(Grace)<\/em> snert mig mest. Og m\u00e9r fundist skemmtilegt a\u00f0 dvelja vi\u00f0 \u00ed senunum sem \u201e\u00fej\u00f3na engum tilgangi\u201c \u2013 sem eru bara einsog m\u00e1lverk af sta\u00f0 og stemningu. \u00deessar s\u00f6gur eru stundum einsog a\u00f0 st\u00edga upp \u00ed sporvagn sem stoppar af og til \u2013\u00a0og \u00fe\u00e1 litast ma\u00f0ur bara um \u00e1\u00f0ur en sagan fer aftur af sta\u00f0. \u00deetta er kannski mest \u00e1berandi \u00ed Framli\u00f0num (The Dead \u2013 og n\u00fa er \u00e9g a\u00f0 bera \u00ed bakkafullan l\u00e6k af \u00fe\u00fd\u00f0ingargremju en \u00feessi saga hef\u00f0i bara m\u00e1tt heita Hinir dau\u00f0u). Og \u00feetta er s\u00e9rstaklega gaman \u00e1 \u00feessum Iowa Writer&#8217;s sk\u00f3la t\u00edmum \u00fear sem allar s\u00f6gur \u00feurfa a\u00f0 vera \u00e1 st\u00f6\u00f0ugri hreyfingu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Joyce i Sverige<\/em>. \u00deessa b\u00f3k fann \u00e9g hj\u00e1 b\u00f3ksala vi\u00f0 Fyris\u00e1 \u00ed Uppsala um daginn, \u00fear sem vi\u00f0 John Swedenmark vorum a\u00f0 sp\u00f3ka okkur fyrir vi\u00f0bur\u00f0 \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0. Svona b\u00f3kinista \u2013 einsog \u00ed Par\u00eds, me\u00f0 b\u00f3kakassa fulla af g\u00f3\u00f0g\u00e6ti. B\u00f3kin kom \u00fat \u00e1ri\u00f0 1986 og inniheldur ritsm\u00ed\u00f0ar eftir b\u00e6\u00f0i fr\u00e6\u00f0imenn og h\u00f6funda, b\u00e6\u00f0i fr\u00e6\u00f0ilegt efni og innbl\u00e1si\u00f0, og er skipt upp \u00ed \u00fe\u00e6tti \u2013\u00a0einn um \u00e1hrif Joyce \u00e1 s\u00e6nska h\u00f6funda, einn um \u00fe\u00fd\u00f0ingar \u00e1 Joyce, einn um \u00e1hrif s\u00e6nskrar menningar \u00e1 Joyce (Joyce var skandinavisti sem d\u00fdrka\u00f0i Ibsen, tala\u00f0i d\u00f6nsku og norsku \u2013\u00a0fyrsta \u00fe\u00fd\u00f0ing sem ger\u00f0 var \u00e1 verki eftir Joyce var \u00e1 s\u00e6nsku, <em>Dubliners<\/em>, og hann \u00f3f nafn \u00fe\u00fd\u00f0andans Ebbu Atterboom inn \u00ed Finnegans Wake, og menn hafa miki\u00f0 leita\u00f0 a\u00f0 br\u00e9faskriftum \u00feeirra Ebbu en ekki fundi\u00f0) og svo eftir\u00feankar um Joyce. \u00dea\u00f0 sl\u00f3 mig hva\u00f0 \u00feetta var allt h\u00famorslaust. \u00deeir sem verja Joyce og elska taka \u00fea\u00f0 hlutverk mj\u00f6g alvarlega og \u00feeir sem gagnr\u00fdna hann gagnr\u00fdna hann fyrir a\u00f0 vera \u00ed \u201et\u00f3magangi\u201c \u2013\u00a0endalausum og s\u00e1larlausum intelekt\u00faalisma. Sem er m\u00e9r \u00f3skiljanlegt \u2013\u00a0\u00fea\u00f0 er ekki til mennskari b\u00f3k en <em>\u00dalysses<\/em> og \u00fea\u00f0 er ekki til b\u00f3k sem upphefur leikgle\u00f0ina meira en <em>Finnegans Wake<\/em>. M\u00e9r skilst l\u00edka a\u00f0 fyrsta \u00fe\u00fd\u00f0ingin \u00e1 <em>\u00dalysses<\/em> \u00e1 s\u00e6nsku \u2013 sem var unnin af finnlands-sv\u00edanum Thomas Warburton \u2013 s\u00e9 einmitt h\u00famorslaus, svo kannski hefur \u00fea\u00f0 eitthva\u00f0 me\u00f0 m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 gera, en b\u00f3kin var endur\u00fe\u00fddd fyrir nokkrum \u00e1rum af Erik Anderson, sem er allt anna\u00f0 en h\u00famorslaus (og hvers b\u00f3k, <em>Dag in och dag ut med en dag i Dublin<\/em>, \u00fear sem hann gerir grein fyrir \u00fe\u00fd\u00f0ingarstarfinu, er \u00ed p\u00f3stinum). <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Finnegans Wake<\/em>. \u00c9g er b\u00fainn me\u00f0 29 s\u00ed\u00f0ur (pl\u00fas form\u00e1la). 599 s\u00ed\u00f0ur eftir. \u00c9g veit ekki hvort \u00e9g endist hana alla. M\u00e9r er \u00fea\u00f0 til efs. \u00c9g er ekki einu sinni viss um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 b\u00f3k sem ma\u00f0ur eigi a\u00f0 lesa. Amer\u00edska konseptsk\u00e1ldi\u00f0 Kenneth Goldsmith tala\u00f0i um a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki a\u00f0 leita s\u00e9r a\u00f0 \u201ereadership\u201c heldur \u201ethinkership\u201c \u2013\u00a0ekki lesendum heldur hugsendum. A\u00f0 v\u00edsu dugir manni ekki konsepti\u00f0 eitt til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 sambandi vi\u00f0 <em>Finnegans Wake<\/em> \u2013\u00a0ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 lesa hana og sennilega gefa s\u00e9r svol\u00edtinn t\u00edma til a\u00f0 n\u00e1 \u00feessu sambandi, leyfa henni a\u00f0 steikja svol\u00edti\u00f0 \u00ed s\u00e9r heilann. Og \u00fe\u00e1 getur ma\u00f0ur v\u00e6ntanlega gripi\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed hana hven\u00e6r og hvar sem er og bara fari\u00f0 \u00ed les-t\u00far nokkrar s\u00ed\u00f0ur. Svona einsog ma\u00f0ur r\u00e1far um sk\u00f3g e\u00f0a upp \u00e1 fjall. \u00dea\u00f0 er konsepti\u00f0. \u00deetta er fr\u00eddagab\u00f3k. Og einsog fr\u00e6gt er \u00fe\u00e1 byrjar h\u00fan \u00ed mi\u00f0ri setningu \u2013\u00a0seinni hluta \u00feeirrar setningar sem endar b\u00f3kina \u2013\u00a0sem sty\u00f0ur \u00fe\u00e1 kenningu m\u00edna a\u00f0 ma\u00f0ur megi stinga s\u00e9r ofan \u00ed hana hvar sem er, h\u00fan hefur ekkert eiginlegt upphaf og engan endi, heldur gengur \u00ed hring.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">FW  er mj\u00f6g fyndin og frj\u00f3 en h\u00fan er au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka gersamlega \u00f3skiljanleg. Einhver sag\u00f0i a\u00f0 me\u00f0 <em>\u00dalysses<\/em> hef\u00f0i Joyce ekki bara hrundi\u00f0 af sta\u00f0 byltingu \u2013\u00a0einsog hver annar m\u00f3dernisti \u2013\u00a0heldur l\u00edka fullnusta\u00f0 hana. <em>\u00dalysses<\/em> \u00e1 fyrsta og s\u00ed\u00f0asta or\u00f0i\u00f0 \u00ed sinni eigin byltingu. Og hvert heldur ma\u00f0ur \u00fe\u00e1? Hvernig toppar ma\u00f0ur b\u00f3k sem tekur 100 \u00e1r a\u00f0 lesa svo vel s\u00e9? Me\u00f0 b\u00f3k sem tekur 1000 \u00e1r a\u00f0 lesa? \u00dea\u00f0 segir allavega s\u00edna s\u00f6gu a\u00f0 \u00e1 me\u00f0an Joyce er a\u00f0 skrifa FW er d\u00f3ttir hans Lucia, sem hann var mj\u00f6g n\u00e1inn, a\u00f0 missa viti\u00f0 \u2013\u00a0og Joyce telur a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00e9, andskotinn hafi \u00fea\u00f0, haldin snillig\u00e1funni hans. Hann hafi l\u00e1ti\u00f0 snillig\u00e1funa ganga \u00ed arf einsog hverja a\u00f0ra b\u00f6lvun \u2013\u00a0s\u00f6mu b\u00f6lvun\/snillig\u00e1fu og ger\u00f0i Joyce veikan og taugaveikla\u00f0an, sem kosta\u00f0i hann sj\u00f3nina og hreysti\u00f0 (hann var mj\u00f6g hraustur ungur ma\u00f0ur). Og \u00fea\u00f0 s\u00e9 snillig\u00e1fan sem s\u00e9 a\u00f0 drekkja Luciu \u2013\u00a0h\u00fan sem kalli fram ge\u00f0s\u00fdki \u00ed einum en Finnegans Wake \u00ed \u00f6\u00f0rum. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Auk \u00feess er \u00e9g byrja\u00f0ur \u00e1 Emily Wilson \u00fe\u00fd\u00f0ingunni \u00e1 <em>\u00d3dysseifskvi\u00f0u<\/em> (af hverju ekki bara \u201e\u00dalysseskvi\u00f0a\u201c, fyrst \u00fea\u00f0 m\u00e1 skipta \u00feessum n\u00f6fnum \u00fat eftir hentugleika!) Og er enn a\u00f0 hlusta \u00e1 Ellman \u00feegar \u00e9g hef t\u00e6kif\u00e6ri til \u2013\u00a0sem er ekki oft. J\u00e1 og \u00e9g keypti m\u00e9r n\u00fdjan \u00dalysses \u00ed risabroti me\u00f0 ofsalega fallegum myndum eftir Eduardo Arroyo. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa ver\u00f0a sag\u00f0ar fr\u00e9ttir. *** \u00dalyssesfer\u00f0in hefst 10. j\u00fan\u00ed. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 vera einn fyrstu dagana og f\u00e1 svo einhvern selskap a\u00f0eins s\u00ed\u00f0ar. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00ferj\u00e1 daga \u00ed Dyflinni og fara \u00e1 alls konar vi\u00f0bur\u00f0i \u2013\u00a0taka svo tvo daga \u00ed Belfast, sem er ekki tengt Joyce, en \u00e9g &hellip; <a href=\"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/?p=6396\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">T\u00ed\u00f0indi + \u00dalysses<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[8],"tags":[],"class_list":["post-6396","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ulysses"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6396","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6396"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6396\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":6398,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6396\/revisions\/6398"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6396"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6396"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/norddahl.org\/fjallabaksleidin\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6396"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}