Einlægur Önd komin í búðir!

Nýjasta skáldsagan mín, Einlægur Önd, er komin í allar helstu bókabúðir. Þá er hægt að kaupa hljóðbók og rafbók á heimasíðu Forlagsins. Hér er líka hljóðdæmi úr upphafi bókar, fyrir forvitna. Frá útgefanda: Í skáldsögunni Einlægur Önd leikur Eiríkur Örn Norðdahl sér á mörkum skáldskapar og veruleika í umfjöllun um útskúfun, refsingu og fyrirgefningu. Launfyndin skáldsaga um rithöfundinn Eirík Örn, sem hefur brennt allar brýr að baki sér, og sögu hans um Felix Ibaka frá Arbítreu, þar sem fólk refsar hvert öðru með múrsteinaburði. Eiríkur Örn Norðdal hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bækur sínar, hér heima og erlendis, sem jafnan eru nýstárlegar og ögrandi.

Troll: „Un chef-d’œuvre“

Norddhal nous livre ici un roman explosif, drôlement cruel et cruellement poignant, sur les excès idéologiques des sociétés contemporaines, sur la volatilité anonyme des réseaux sociaux et sur les absurdités morales qui imprègnent nos sphères les plus intimes. L’auteur est un franc-tireur qui semble tirer à l’aveugle sur la foule, mais qui qui vise entre les yeux des contradictions et de l’hypocrisie sociale du xxie siècle. Un chef-d’œuvre qui n’épargne rien ni personne. Nordique Zone Livre sur Troll .

Critique de Troll dans Bulles de Culture

L’auteur Eirikur Örn Norddahl, né en 1978, fait partie des jeunes écrivains qui n’ont peur de rien. Son style de déploie avec une grande fluidité mais c’est surtout son imagination qui nous emmène. Chaque détail semble en amener d’autres pour dessiner en fin de compte un univers cohérent. Lire ici .

Interview dans LaPresse

Avec Troll , l’Islandais Eiríkur Örn Norðdahl a créé un roman audacieux mettant en scène un antihéros hors du commun. Un individu provocateur qui possède sa propre identité de genre et dont l’existence est conditionnée par le nombre de réactions qu’il suscite sur les réseaux sociaux. Nous avons voulu parler à l’auteur d’identité et de réseaux sociaux à une époque où tout semble permis, sans pour autant être accepté. Une interview récente dans LaPresse.ca .

Hið dýra mótþróaröskunarhótelherbergi

Stærstu tíðindin í lífi mínu eru þau að Einlægur Önd kom í búðir á þriðjudag. Það var og er afar gleðilegt. Ég held reyndar að hún sé strax svo gott sem uppseld í Bókhlöðunni á Ísafirði en það er bara af því það bárust óþarflega fá eintök. Það hefur nákvæmlega ekkert spurst af viðtökum hennar úti í samfélaginu og ég er – eðlilega – viðþolslaus af óþreyju. Og verð fram til 10. desember, þegar ég ætla að halda útgáfuhófið mitt og lýsa jólabókaflóðinu lokið (fyrir mína parta). Ég er búinn að bóka Dokkuna – þar sem litli bróðir minn bruggar besta bjór landsins – en veit annars ekkert hvað ég ætla að gera. Nema lesa eitthvað smáræði og árita bækur. Mig langar kannski að vera með einhverja músík en veit ekki hvort ég á þá að vasast í því sjálfur að spila eða fá bara einhvern til að gera það fyrir mig. Ég mikla oft fyrir mér hvað verði mikið að gera í jólabókaflóðinu á meðan mestur tími (og orka) fer í að hafa áhyggjur af því að maður ætti að vera að gera eitthvað. Plögga sér. Og fær ekki vinnufrið fyrir áhyggjunum. Það er eitthvað smotterí á dagskránni. Ég las upp úr henni fyrst fyrir félag eldri borgara á Ísafirði í síðustu viku. Svo er ráðstefna hér á helginni þar sem ég les aftur og tala örlítið um hana. Þá er ég bókaður í upplestur á Höfn í Hornafirði seint í nóvember og á Opna bók á Ísafirði. Ég ætla suður í kynningarferð. Hún hangir saman við ferð á ljóðahátíð í Slóvakíu – ég stoppa á bakaleiðinni og losna þá við kostnaðinn af öðrum Reykjavíkurleggnum. Ég sótti um ferðastyrk til RSÍ en fékk synjun – sennilega eru þessir ferðastyrkir bara ætlaðir til utanlandsferða. Það er bókstaflega ekkert sem gerir ráð fyrir því að maður búi utan höfuðborgarsvæðisins. Bókmenntasjóður er líka með ferðastyrki en umsóknardagsetningar ganga ekki upp fyrir jólabókaflóðið, sýnist mér. Og ég held þeir séu líka bara fyrir utanlandsferðum. Og áreiðanlega ekki gistingu, sem er stærsti kostnaðarliðurinn. Ég gæti auðvitað gist á tíu sófum og í álíka mörgum gestaherbergjum en mig langar að vera út af fyrir mig – vil heldur heimsækja fólk bara og fá að fara „heim“ síðan og henda fötunum mínum á gólfið og svona. Það er einhver mótþróaröskun. Ég bókaði herbergi á hóteli með sérbaðherbergi, morgunverð og aðgang að líkamsrækt – en það er eiginlega of dýrt og ég get afbókað fram til 11. nóvember. Sjáum til. Mér finnst tilhugsunin svo leiðinleg. Það segir að vísu sína sögu að þegar ég fer til Hafnar í Hornafirði fæ ég greiddar ferðir – fjögur flug – gistingu, uppihald og laun. Þegar ég fer til Slóvakíu fæ ég ekki bara ferðina og gistinguna og laun heldur líka gistingu í Reykjavík á leiðinni út. Það er alveg sama hvert ég fer til að stunda vinnuna mína – það er alltaf einhver annar með það á fjárlögunum að ég þurfi að borða, ferðast og sofa einhvers staðar. Nema ég sé að fara til Reykjavíkur sem sagt. Það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að höfuðborgin hafi budget á við burgeisana á Höfn í Hornafirði. En ég var víst líka að blogga um þetta síðast. Helvítis peningar. Og helvítis peningavæl. Ég er annars bara frekar peppaður fyrir flóðinu. Búinn að lesa Hauk Ingvars og Fríðu Ísberg og þau eru bæði með dásamlegar bækur. Kominn 8% inn í doðrant Guðna Elíssonar, sem skemmtir mér hingað til ágætlega – en tekst einhvern veginn líka að vera bæði gamaldags og ungæðislegur. Vanþroska og ofþroska. Og ég skil ekki dómgreindarleysið að láta beiskju sína í garð Hermanns Stefánssonar, sem mér sýnist að eigi að vera hinn ægilegi HMS Hermann, stjórna svona bókinni (Hermann fetti einhvern tíma fingur út í það að allir í bókmenntafræðinni í Háskólanum væru venslaðir – þar starfa m.a. Guðni og kona hans). En bókin er skemmtileg þegar hún er ekki þreytandi. Það verður annars ekki tíundað nógu oft – og ég hef aldrei nefnt það hingað til – að ég vil nýta vikuna mína í Reykjavík sem allra best. Ef mér tekst að bóka mig nógu andskoti þétt get ég kannski réttlætt fyrir sjálfum mér þessa formúgu sem ég eyði í hótelherbergið. Ég verð í Reykjavík a.m.k. 14.-19. nóvember og ef þú ert formaður húsfélags sem ætlar að vera með upplestrakvöld á þessum tíma eða þáttastjórnandi í sjónvarpi eða útvarpi eða með poddkast um bókmenntir eða í skemmtinefnd átthagafélags eða starfsmaður árshátíðarnefndar stórfyrirtækis eða blaðamaður á Skírni eða DV eða Mannlífi eða bara tilbúinn til þess að breiða út um mig eitthvað gott slúður sem vekur athygli á bókinni minni þá er um að gera að hafa samband. eon@norddahl.org – ég er við tölvupósthólfið allan sólarhringinn. 100% einlægni lofað.

„Un auteur dynamiteur et subversif qu’il est indispensable de lire“

Un challenge pas si facile, mais que l’auteur gagne totalement avec un magnifique humour noir et un fort sens de l’absurde. Sans oublier un emploi de l’écriture inclusive, permettant de pourfendre les hypocrisies sociales de notre siècle. Être un troll n’est pas une vie. Un peu comme le réel et la légende. Le réel d’internet et la légende des trolls, créatures géantes inhumaines, mais à l’image de l’homme. Norddahl, briseur de tabous, passeurs de frontières est une des belles surprises de la rentrée littéraire, un auteur dynamiteur et subversif qu’il est indispensable de lire Danactu Resistance sur Troll.

Einlægt í jólabókaflóðinu

Fyrstu eintök Einlægs Andar munu komin til landsins. Þau eru þá í Reykjavík, þangað sem bækur og aðrar innfluttar vörur koma fyrst, og ég hef ekki séð þau, af því ég er ekki í Reykjavík. Ég er á Ísafirði og hér er voðalega leiðinlegt veður. Þegar það er svona vont veður fæ ég næstum samviskubit gagnvart fjölskyldunni minni, því þótt ég þykist vita að þau vilji líka búa hérna er alveg augljóst að þau myndu ekki gera það nema af því að ég er héðan. Ef fjölskyldufaðir þessarar fjölskyldu væri t.d. spænskur en ekki íslenskur myndu þau kannski öll búa í Mijas á suður Spáni og það er ég viss um að þar er ekki svona leiðinlegt veður. Það er ekki heldur svona leiðinlegt veður í Svíþjóð – þar er fallegt, norrænt haust. Ég þarf að fara að gíra mig upp í jólabókaflóðið. Veit reyndar ekki alveg hvernig. Ég var eiginlega búinn að segja jólabókaflóðinu upp – ég spriklaði mig vitlausan þegar Hans Blær kom út, sem var dýrt og taugatrekkjandi, og var búinn að ákveða að ég nennti þessu ekki. Ég tók meðvitaða ákvörðun um að hafa Brúna yfir Tangagötuna ekki í flóðinu heldur gefa hana út snemma að vori til þess að vera að mestu laus við upplestra, ferðir og væntingar um umfjöllun. Ég hélt ekkert útgáfuhóf þegar hún kom út og las ekki upp úr henni opinberlega fyrren bara um daginn* – fljótlega eftir að eðlilegt hefði verið að halda útgáfuhóf byrjaði líka covid og þar með var útgáfufriðurinn fullkomnaður. Það var ágætt og ég er ekkert viss um að það hefði breytt neinu um viðtökur hennar – sem voru mjög góðar – þótt ég hefði dröslast um allar koppagrundir og fyllt samfélagsmiðla af skáldlegum hugleiðingum um bókina. Bækur eiga bara sín augnablik og stundum hitta þær á þau og stundum ekki. Þegar líður að útgáfu þarf ég yfirleitt að taka tvær stórar ákvarðanir. Sú fyrri og stærri er hvernig ég ætli að haga ferðum mínum til höfuðborgarinnar. Það er svo undarlegt að ef mér er boðið til Bonn, Barcelona eða Rio de Janeiro til að lesa upp þá fæ ég gistingu, uppihald, ferðir og laun. Ef mér er boðið til Seyðisfjarðar, Tálknafjarðar eða Stykkishólms fæ ég gistingu, uppihald, ferðir og (oftast) laun. En ef mér er boðið til Reykjavíkur er ætlast til þess að ég borgi undir mig sjálfur, skottist yfir heiðarnar í vetrargaddi eða splæsi á mig flugi, fari á hótel eða reddi mér gistingu inn á einhverjum, láti bjóða mér í mat eða næri mig á veitingastöðum og ég má bara heita mjög góður ef ég fæ einhver laun (og aldrei í lífinu þann hækkaða taxta sem RSÍ mælir með ef maður fer út fyrir heimabyggð). Og þá er alveg sama hvort ég er að lesa á vegum forlagsins míns eða rithöfundasambandsins – meira að segja Ísfirðingafélagið í Reykjavík var steinhissa þegar þau buðu mér að koma og lesa upp og áttuðu sig á að það gæti kostað eitthvað. Ástæðan er alltaf sú sama. Það er ekki gert ráð fyrir þessu – rithöfundar eiga heima í Reykjavík, eða nógu nálægt Reykjavík til að geta skotist. Það þýðir ekkert að segja mér að ef það er hægt að finna pening til þess að flytja inn ljóðskáld til Rio eða fljúga með hersingar af Reykvískum rithöfundum á austfirði og vestfirði eða bjóða erlendum höfundum í kynningarferðir til landsins, sé ekki hægt að finna slíka sjóði í Reykjavík. Þetta er bara vani og hefð – og niðurstaðan þegar fólk áttar sig á því að þetta er eiginlega ekki sanngjarnt verður bara sú að bjóða manni ekki. Ég gæti auðvitað sleppt því bara. En það yrði held ég ekki vinsælt uppi á forlagi og varla að mér þætti það forsvaranlegt sjálfum. Ég ætlast til þess að þau auglýsi bókina og eyði tíma og pening í að koma henni til skila. Og ég fengi bara samviskubit gagnvart bókinni. Ef ég gat lagt það á mig að skrifa hana hlýt ég að geta lagt eitthvað á mig til þess að fá fólk til að lesa hana. Og þess vegna þarf ég alltaf að planleggja eina góða Reykjavíkurferð. Helst að komast í Kiljuna, hitta blaðamenn á kaffihúsum, láta taka af mér myndir, fara upp í útvarp, ná að lesa upp á bókakonfekti forlagsins og helst fleiri upplestrum. Á eins fáum dögum og ég get komið því við. Sem skapar önnur vandræði. Ég hef til dæmis verið bókaður í þrjú viðtöl uppi á RÚV sama daginn – eitt í sjónvarpi og tvö í útvarpi – sem skapaði meiriháttar óróa vegna þess að dagskipunin að ofan er þar að það séu ekki allir að tala við sama fólkið um sömu hlutina í sömu vikunni. Sem er í sjálfu sér skiljanlegt en það virðist heldur ekki vera rými fyrir starfsmenn til að vinna hlutina fram í tímann – að eiga viðtal á lager í nokkrar vikur – og þá stendur eftir möguleikinn fyrir mig að fara mörgum sinnum til Reykjavíkur. Sem er bara ekki í boði nema einhver ætli að borga fyrir mig flugfar fram og til baka (sem er reyndar standard í Svíþjóð – a.m.k. fyrir sjónvarpsviðtöl – en það er önnur veröld). Í ár ætla ég – einsog ég reyni stundum að gera – að láta þetta hanga saman við utanlandsferð. Mér er boðið til Slóvakíu um miðjan nóvember og þær ferðir fæ ég borgaðar. Ekki bara til Slóvakíu heldur líka frá Ísafirði til Reykjavíkur og til baka og hótel í Reykjavík eina nótt á hvorri leið. Þá vantar mig að brúa 4-5 nætur og reyna að skipuleggja dagana svo þeir nýtist sem best. Ég er þegar búinn að bóka mig í hljóðbókaupptökur á morgnana – það á að taka upp Hugsjónadrusluna – og mér stendur yfirleitt til boða að gista hjá nokkrum vinum og kunningjum, en ég á eftir að gera það upp við mig hvort ég vilji heldur splæsa í hótel. Það er dýrt – kostar a.m.k. þriðjung úr fyrirframgreiðslunni minni – en því fylgir líka annars konar hugarró. Hin ákvörðunin sem ég þarf að taka er um útgáfuhófið. Ég engist um af ákvörðunarkvölum. Hluti af mér langar alltaf að gera eitthvað brjálæðislega flókið skemmtikvöld – en hluti af mér vill bara slaka á og gera sem minnst. Mæta bara, fara kannski í spariföt, setja á mig hattinn, lesa eitthvað upp og árita bækur. Í ár hef ég ákveðið að hafa útgáfuhófið í restina. Eða þannig. Tíunda desember, er ég að hugsa um, og þá er þetta eiginlega búið – a.m.k. fyrir okkur sem búum ekki í Reykjavík og erum ekki í jólahlaðborðunum eða fyrirtækjaglöggum. Þá get ég lýst þátttöku minni í jólabókaflóðinu – sem ég hata ekki bara, þetta er líka skemmtilegt, en einmitt kannski helst til langt í báða enda – lokið. En fyrir utan dagsetninguna er ég ekki búinn að ákveða neitt. Kannski væri gaman að hafa einhverja músík líka. Ég hef víst nægan tíma til að spá í þessu. * Ég mundi alltíeinu að sennilega las ég einu sinni úr Brúnni fyrir einhvern gönguskíðahóp á Hótel Ísafirði. Þar voru eiginlega bara konur ef ég man rétt. Hinn upplesturinn úr henni var fyrir fullum sal af bókasafns- og upplýsingafræðingum í Edinborgarsalnum á dögunum. Það voru eiginlega líka bara konur.

Aftonbladet: Vrålande poet i finrummet

Att Eiríkur Örn Norðdahl idag räknas som en av de mest ansedda prosaförfattarna på Island var det nog inte många som hade kunnat tro i början av 00-talet. Då var han mest känd som en avantgardistisk poet och spoken word-artist, vars galna framträdanden påminde mer om punkkonserter än poesiuppläsningar: Ett nytt intervju i Aftonbladet .