Meinlætúar, dagur 7

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 89,9 kg (85 kg)

Hitastig: 36,1 °C (?)

Máltíðir: 2,5 (2,5)

Millimálseiningar: 2 (1)

Hlaup: 0 km (5 km)

Jóga: 0 mín (15 mín)

Íhugun: 0 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.476 kcal (1800 kcal)

Salt: 1.443 mg (2000 mg)

Kolvetni: 128 g (200 g)

Fita: 66 g (50 g)

Prótein: 78 g (150 g)

Sykur: 42 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 290 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1.846 kcal (2.200 kcal)

Skref: 2.990 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  51 (60):

Hraðasti púls: 119

Hægasti púls: 50

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 98,1 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 09.00 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 00.30  (00.00)

Skrifuð orð: 0 (500)

Eyddar krónur: 3.232 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 74 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 48 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 61 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 5

Meinlætúar, dagur 6

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 90,4 kg (85 kg)

Hitastig: 36,3 °C (?)

Máltíðir: 2,5 (2,5)

Millimálseiningar: 0 (1)

Hlaup: 0 km (5 km)

Jóga: 55 mín (15 mín)

Íhugun: 2 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.184 kcal (1800 kcal)

Salt: 1.356 mg (2000 mg)

Kolvetni: 168 g (200 g)

Fita: 40 g (50 g)

Prótein: 69 g (150 g)

Sykur: 42 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 576 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1.954 kcal (2.200 kcal)

Skref: 2.885 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  53 (60):

Hraðasti púls: 122

Hægasti púls: 50

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 98,3 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 10.26 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 01.21  (00.00)

Skrifuð orð: 0 (500)

Eyddar krónur: 1.297 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 50 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 52 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 57 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 4

Meinlætúar, dagur 5

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 90,4 kg (85 kg)

Hitastig: 36,0 °C (?)

Máltíðir: 2,5 (2,5)

Millimálseiningar: 1  (1)

Hlaup: 5 km (5 km)

Jóga: 0 mín (15 mín)

Íhugun: 0 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.227 kcal (1800 kcal)

Salt: 2.780 mg (2000 mg)

Kolvetni: 152 g (200 g)

Fita: 43 g (50 g)

Prótein: 59 g (150 g)

Sykur: 11 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 839 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1,993 kcal (2.200 kcal)

Skref: 9.032 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  53 (60):

Hraðasti púls: 167

Hægasti púls: 51

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 98,4 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 07.00 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 22.00  (00.00)

Skrifuð orð: 1.135 (500)

Eyddar krónur: 3.234 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 44 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 82 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 230 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 4

Meinlætúar, dagur 4

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 90,4 kg (85 kg)

Hitastig: 36,3 °C (?)

Máltíðir: 2,5 (2,5)

Millimálseiningar: 1  (1)

Hlaup: 5 km (5 km)

Jóga: 0 mín (15 mín)

Íhugun: 12 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.497 kcal (1800 kcal)

Salt: 3.235 mg (2000 mg)

Kolvetni: 196 g (200 g)

Fita: 52 g (50 g)

Prótein: 63 g (150 g)

Sykur: 11 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 787 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1.875 kcal (2.200 kcal)

Skref: 9.187 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  50 (60):

Hraðasti púls: 179

Hægasti púls: 48

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 98,5 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 07.00 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 00.47  (00.00)

Skrifuð orð: ~ 1000 (500)

Eyddar krónur: 0 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 100 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 82 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 62 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 8

Meinlætúar, dagur 3

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 90,9 kg (85 kg)

Hitastig: 36,1 °C (?)

Máltíðir: 3 (2,5)

Millimálseiningar: 1  (1)

Hlaup: 0 km (5 km)

Jóga: 10 mín (15 mín)

Íhugun: 0 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.539 kcal (1800 kcal)

Salt: 1.100 mg (2000 mg)

Kolvetni: 205 g (200 g)

Fita: 66 g (50 g)

Prótein: 66 g (150 g)

Sykur: 38 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 652 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1.684 kcal (2.200 kcal)

Skref: 2.967 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  50 (60):

Hraðasti púls: 184

Hægasti púls: 48

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 99,5 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 07.30 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 00.42  (00.00)

Skrifuð orð: 902 (500)

Eyddar krónur: 8.027 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 30 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 62 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 66 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 5

Meinlætúar, dagur 2

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 93,5 kg (85 kg)

Hitastig: 35,8 °C (?)

Máltíðir: 2,5 (2,5)

Millimálseiningar: 1  (1)

Hlaup: 5 km (5 km)

Jóga: 10 mín (15 mín)

Íhugun: 0 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  1.400 kcal (1800 kcal)

Salt: 1.699 mg (2000 mg)

Kolvetni: 95 g (200 g)

Fita: 46 g (50 g)

Prótein: 108 g (150 g)

Sykur: 18 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 898 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 2.071 kcal (2.200 kcal)

Skref: 9.353 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  55 (60):

Hraðasti púls: 173

Hægasti púls: 44

Áfengiseiningar: 0 (0)

Tóbakseiningar: 0 (0)

Mittismál: 100,9 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 07.30 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 00.37  (00.00)

Skrifuð orð: 928 (500)

Eyddar krónur: 4.075 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: 72 (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 68 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 29 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 5

Meinlætúar, dagur 1

Aldur: 39 (39)

Hæð: 198 cm (198 cm)

Þyngd: 93,3 kg (85 kg)

Hitastig: 36,6 °C (?)

Máltíðir: 2 (2,5)

Millimálseiningar: 0  (1)

Hlaup: 0 km (5 km)

Jóga: 30 mín (15 mín)

Íhugun: 0 mín (5 mín)

Innbyrtar hitaeininingar:  2.097 kcal (1800 kcal)

Salt: 3.267 mg (2000 mg)

Kolvetni: 178 g (200 g)

Fita: 113 g (50 g)

Prótein: 91 g (150 g)

Sykur: 13 g (0 g)

Hitaeiningum brennt með umframhreyfingu: 685 kcal (650 kcal)

Hitaeiningum brennt í hvíld: 1.881 kcal (2.200 kcal)

Skref: 7.470 (10.000)

Meðalhjartsláttur í hvíld  59 (60):

Hraðasti púls: 117

Hægasti púls: 38

Áfengiseiningar: 10 (0)

Tóbakseiningar: 8 (0)

Mittismál: 101 cm (90 cm)

Vaknað í morgun kl.: 11.28 (07.30)

Sofnað í gær kl.: 06.18  (24.00)

Skrifuð orð: 0 (500)

Eyddar krónur: 126.950 kr (2.000 kr).

Lesnar fagurbókmenntablaðsíður: (30)

Lesnar annars konar blaðsíður: 0 (30)

Mínútur við sjónvarpsgláp: 90 mín (< 60 mín) Kaffibollar: 4

Untitled

Ég man ekkert hvað ég gerði í ár. Síðustu áramót vorum við í Helsinki. Krakkarnir fóru snemma að sofa og við Nadja skáluðum ein uppi á efstu hæð húss með dásamlegt útsýni, hausana út um þakgluggann og horfðum á náttúruhamfarir flugeldamengunarinnar eyðileggja allt sem er fagurt og gott í veröldinni. Húsráðendur höfðu flúið hvort í sína áttina – hún til Lapplands og hann í djammferð til Rússlands og nú eru þau skilin og allir anda léttar. *** Ég sveik öll áramótaheitin mín, sem gengu mestmegnis út á lestur og sparnað. Ég fór á Guns N Roses í Hämeenlinna á afmælinu mínu, það var mjög gaman, hápunktur á árinu. Ég lærði að spila fullt af AC/DC lögum á gítarinn minn og meira að segja nokkur sóló (Thunderstruck, Hells Bells, Shook Me All Night Long, Back in Black og eiginlega Touch too Much og Dirty Deeds líka). Og skrifaði auðvitað smotterí um hverja plötu hér á bloggið. Kom mér almennilega fyrir á skrifstofunni minni loksins, flutti inn ljóðabókasafnið og útvegaði mér lestrarstól og svona. *** Við Nadja fórum til San Francisco. Það var annar hápunktur. Ég fékk kokteilabakteríu. Við fórum á hafnaboltaleik og kynntumst hinum dásamlega Randy Weiss. Þrömmuðum um í rauðviðarskógunum. Átum einsog kóngafólk. Fórum á 150 ára gamlan blúsbar. Eyddum eftirmiðdegi í City Lights bókabúðinni. Fórum þúsund sinnum í Hop On Hop Off rútuna. Skoðuðum veggmyndir. Heimferðin var epískt rugl – ein striklota frá SF til Stokkhólms, þar sem við fengum börnin afhent, flugum til Keflavíkur og keyrðum vestur. Til að bæta gráu ofan á svart svaf ég ekkert í Ameríkufluginu – og Nadja er ekki með bílpróf. *** Við Aram fórum líka til Berlínar. Þriðji hápunktur. Héngum með Hauki Má og fórum í dýragarðinn og á Spiderman í bíó og borðuðum kebab. *** Ég þvældist líka nokkrar ferðir til Frakklands að venju og nokkrar til norðurlanda – meðal annars á bókamessuna í Gautaborg, þar sem nærvera nasista setti ansi „skemmtilegan“ brag á allt saman. Sem betur fer skíttöpuðu þeir ömurðarinnar lúserar. *** Óratorrek kom út í vor. Hún fékk litla krítík enda kom hún út utan vertíðar – ein sjálfboðarýni í DV frá Bryndísi Schram, en mjög jákvæð. Hins vegar endaði hún á tveimur árslistum – annars vegar nefndi Steinunn Inga í Víðsjá hana með áhugaverðari bókum ársins og Toggi Tryggva setti hana á topp 10% yfir það sem hann hafði lesið á árinu (og það les enginn meira en Toggi – bara 4 af 14 bókum voru íslenskar og þar af var ein þeirra Grettis Saga). Hún er líka seld til Danmerkur, Svíþjóðar og Grikklands og ég hef ágætis vonir um að hún komi út á ensku líka. Þar hjálpaði að ég átti talsvert mikið úr henni á hinum ýmsu tungumálum og gat því sýnt útgefendum sirka út á hvað þetta gengur. Það er svo langt síðan ég byrjaði á henni – ég hef þvælst með hana milli ljóðahátíða síðan svona 2013, sennilega. *** Illska kom líka út í Grikklandi og er komin á þriðju eða fjórðu prentun. Heimska kom út á frönsku í byrjun árs og hlaut Transfuge verðlaunin og afar lofsamlegar umsagnir, sérstaklega í Le Monde du Livre. Illska er seld áfram til Spánar, Bandaríkjanna/Bretlands og Króatíu. *** Ég flutti ávarp á borgarafundi á Ísafirði þar sem ég tíundaði allar mögulegar afleiðingar þess að fara illa með náttúruna – og taldi upp verstu manngerðu hamfarir sögunnar, því til áhersluauka – og fór auk þess fram á að sjálfsákvörðunarréttur Vestfirðinga yrði virtur. Því var tekið með kostum og kenjum. Ingi Freyr skrifaði grein í Stundina – sem ég hef enn ekki lesið, reyndar – um hvað ég væri skelfileg mannvera. Að mér skilst. Andri Snær varð brjálaður, en róaðist svo og við ræddum þetta í betra tómi síðar. Hér fyrir vestan var fólk að þakka mér fyrir í margar vikur. Einsog oft þegar maður „hittir í mark“ var það að hluta til byggt á misskilningi – maður hittir yfirleitt í mark vegna þess að fólk heyrir það sem það vill heyra eða það sem það heldur að maður sé að segja, frekar en að núansarnir komist til skila. Það sama á auðvitað við hinumegin víglínunnar – Andri Snær var byrjaður að skamma mig kvöldið áður en ég flutti ávarpið. Þetta er mótsögn bókmenntanna og mér finnst hún oft þungbær. En mér þótti vænt um að mega tala máli byggðarinnar hér fyrir vestan – hvað sem líður rómantískum staðhæfingum Reykvíkinga um hversu dásamlegt væri að búa í þjóðgarði. *** Öllum í fjölskyldunni heilsast vel. Aram er í þriðja bekk og allra hugljúfi. Aino sömuleiðis í leikskólanum, í foreldraviðtalinu var helst fundið að því að ég kæmi svo seint með hana – sem er satt, við höfum síðasta árið verið ansi dugleg við að taka því rólega á morgnana, í einhverju lúxuslífi. Stundum komum við ekki fyrren ellefu – hálftólf. Á því verður breyting nú eftir áramótin, ég er fara í intensífa törn í Hans Blævi. Bæði þarf ég að vinna mikið í leikritinu en ég þarf líka að klára eins mikið og ég get af skáldsögunni áður en leikritið verður frumsýnt 1. mars, svo að leikritið fari nú ekki að þrýsta um of á skáldsöguna – hún þarf að vera nógu burðug til að þola álagið. *** Nadja er sem fyrr á fullu við kennslu – oft langt fram á nótt, reyndar, og er þó ekki í fullu starfshlutfalli. Ekki skil ég hvernig þetta er reiknað. Þess utan er hún á gönguskíðum og kajak og bókaklúbb og saumaklúbb og alls konar kennarafélagslífi. *** Dálítið af fólki dó í ár. Nú síðast minn gamli samstarfsmaður á BB og þýskukennari í menntaskóla, Hlynur Þór Magnússon. Einsog mörgum þótti mér afar vænt um Hlyn þótt hann væri líka manna erfiðastur þegar sá gállinn var á honum. Hann svipti sig sjálfur lífinu og bannaði öllum að minnast sín – einsog hann vildi kenna heiminum um að hafa gleymt sér og hunsað sig og sennilega fyrirlitið sig líka. Sannleikurinn var auðvitað flóknari en svo. Fyrst og fremst var Hlynur mjög veikur. *** Helena svipti sig líka sjálf. Það var óvæntara og ekki síður sárt. Ég er enn orðlaus yfir því og verð það sennilega bara alltaf. *** Aðrir létust af öðrum orsökum. *** Felicia, systurdóttir Nödju, var í heimsókn hjá okkur í 6 vikur, ásamt 9 mánaða barni sínu, og nú er Simon bróðir Nödju hjá okkur. Auk þess komu Philip og Nina frá Finnlandi í haust. Það var slatti af ljóðskáldum í bænum á páskum – Lommi, Björk Þorgríms, Kött Grá Pje – og við skelltum í upplestur í Tjöruhúsinu. *** Er þetta ekki bara allt og sumt?

Untitled

Sumir rithöfundar eru ofsóttir af sömu persónulegu ummælunum aftur og aftur. Ólafur Jóhann er t.d. viðstöðulaust í viðtali um „tvöfalt líf“ sitt sem Sonyforstjóri og rithöfundur. Auður Jónsdóttir fer mikið í viðtöl um meðvirkni. Steinar Bragi er „dulúðugur“ og „víðförull“. Og svo er aldrei minnst á Jón Örn Loðmfjörð öðruvísi en svo að einhver nefni að hann hafi nú verið mikið á internetinu (annað en allir aðrir síðustu 20 árin). *** Hún er annars orðin mjög hörð samkeppnin um það hver getur verið með jákvæðustu sýnina á íslenska ljóðlist. Þessi sjálfumgleði okkar hlýtur að enda með einhverri svaðalegri uppreisn.

Untitled

Fyrsti vinnudagur eftir jólafrí. Ég kann vel við að vera í vinnunni en suma daga þegar ég les það sem ég hef verið að skrifa hata ég það. Ég er alltof sínískur og stundum röfla ég bara viðstöðulaust og stundum einkennast frásagnir mínar af þindarlausri deyfð. Það er nú eitthvað annað en hjá honum Jónasi Reyni, sem ég hef verið að lesa í kvöld og er næstum búinn með – dæmalaust fljótlesið og fínt og uppáfyndingarsamt, einsog fleiri hafa bent á. Ég held ég hafi verið þessi María árum saman. Allt mjög kunnuglegt. Fór í reglulegar sólarhringsferðir til Reykjavíkur á þrítugsaldrinum – að vísu meira frá Ísafirði en Brighton, hvert ég hef aldrei komið, og ég átti sjaldan pening til að vera að drekka á börum og svona, eða spila í spilakössum, en það er sama. *** Ég kláraði ævisögu Önnu Kristjáns í gær og veit nú meira um skipsvélar en ég hélt að ég myndi nokkru sinni gera, og verð þó sennilega búinn að gleyma því öllu fyrir áramót. Hún segir frá ótrúlega mörgum samferðamönnum sínum en lítið frá fjölskyldu sinni – kannski er það sjómannstrámað, að kynnast skipsfélögum betur en börnunum sínum, og kannski eru persónulegar ástæður að baki – og það er furðu lítið líka um kynama hennar, sérstaklega framan af. Ég held að það hafi fáir gaman af vélasögunum, en það er kannski misskilningur. Skemmtilegust er bókin þegar húmor Önnu skín í gegn, en hún er bráðfyndin einsog allir vita sem hafa lesið bloggið hennar – en það er alltof mikill annálabragur á bókinni. *** *** Sá hluti sem snýr að kynama Önnu og baráttunnar fyrir kynleiðréttingu er langáhugaverðasti hluti bókarinnar, fyrir þá sem hafa aldrei lært vélstjórn, og hann er vel úr garði gerður þótt hann mætti vera miklu lengri. *** Ég er byrjaður að skipuleggja mikið meinlætisátak í janúar. Ætla að láta af öllum hobbíreykingum og áfengissulli, hætta að sofa fram eftir öllu og reyna að einbeita mér að vinnunni af meiri krafti. Mér gengur illa að ná utan um ákveðna hluta skáldsögunnar – leikritið (um sama efni) er auðvitað „nánast“ tilbúið, það er að fara í æfingar og þeim fylgir sennilega talsverð vinna við að stagbæta og kasta og endurskrifa. *** Það er líka svolítið mikið myrkur og ég hef ekki verið nógu mikið utandyra. *** Pantaði mér hægindastól á skrifstofuna og er að leggja á ráðin um að hækka skrifborðið um tíu sentimetra, svo það henti mér betur. Pantaði líka bækur aðallega í tveimur kategóríum: 1) Trönsur og 2) (Alt-right)-Tröll. Í einhverjum skilningi eru þetta ósamrýmanlegar kategóríur, sem koma þó saman í Hans Blævi, sem er transatröll, tröllatransa. Trönsur þola annars ekki tröll, og tröll þola ekki trönsur. En tröll elska kaos og trönsur valda kaosi í heimi sem frelsi þeirra og hugrekki ógnar. Í upphafi hélt ég að Hans Blær væri ekki transa „í alvörunni“ en nú þegar ég hef kynnst hánum betur veit ég að hán er jafn mikil transa og hán er tröll; hlutverkin bánsa hvort af öðru, blása hvort annað upp og tortíma hvort öðru, þetta er kjarninn í hvirfilbylnum, hlýja loftið sem mætir kalda loftinu og sendir strókinn af stað.