Það hefur mikið verið rætt um landfyllingu neðan við Fjarðarstræti á Ísafirði síðasta misserið. Sonur minn og fleiri fóru meira að segja og söfnuðu undirskriftum gegn landfyllingunni, sem tekur yfir stóra fjöru, þar sem börn leika sér á góðviðrisdögum. Þessi fjara myndaðist reyndar við aðra landfyllingu – var miklu nær landi áður en það var fyllt upp í og ný fjara birtist á um áratug. En það er sama, þau þekkja enga aðra fjöru (það var samt svolítið skrítið að sjá sumt fullorðnara fólk tala um að það hefði „alist upp í þessari fjöru“ – sem var alls ekki til fyrren þau voru vel stálpuð). Þegar ég var unglingur átti einn af mínum bestu vinum heima við Fjarðarstræti. Hann var með sérinngang í herbergið sitt í kjallara aftantil og þar var fjaran nokkurn veginn beint við dyrnar. Þegar það var stormasamt var ófært inn til hans einkaleiðina. Um það leyti sem fyrri landfyllingin kom var talað um að færa veginn þarna niðurfyrir – Fjarðarstræti er þröng og asnaleg gata. Ég veit ekki hversu alvarlegar þær hugleiðingar voru en ég man eftir að hafa frétt af þeim þannig að það „bara stæði til“. Þá bjó ég sjálfur við götuna og hugnaðist lítið að skipta út sjávargjálfrinu við svefnherbergisgluggann minn fyrir umferðargný. Svo kom ekkert nema bersvæði og göngustígur, sem er nú sennilega meira nýttur en fjaran – sjálfur skokka ég hann oft í viku þá mánuði sem veðrið hrekur mig ekki inn. Mér skilst að það sé fólk innan kerfisins – bæjarstjórn og bjúrókratar – sem klæjar mjög að fá þarna nýtt byggingarland „á besta stað“. En að sama skapi eru íbúar sem nú búa við útsýni beint út á Snæfjallaströndina ekki par ánægðir – enda búa þeir nú á besta stað og þann stað á að taka af þeim og planta þeim við götu inni í miðjum bæ. Sérstaklega er þetta einmitt ágætur staður frá því síðustu grjótgarðar og landfyllingar komu því það gengur ekki lengur jafn mikið af sjó á land eða inn í kjallara – en útsýnið er enn til staðar og nálægðin við náttúruundrin næstum söm. Eyri í Skutulsfirði er í dag eiginlega ekkert nema landfyllingar og það hefur staðið styr um þær flestar. Enda var Eyrin gjarnan kölluð Tangi fremur en Eyri – Hagalín kallaði Ísafjörð alltaf Tangakaupstað. Mér skilst það sé einhver smá spotti eftir af orginalfjöru niðri í Neðstakaupstað en annars sé allt uppfyllingar – stór hluti af ætluðu „byggingarlandi“ á Eyrinni stendur síðan á gömlu ruslahaugunum, sem þarf sennilega að rudda upp við tækifæri, en guð veit hvað finnst þar undir. Það, ásamt skólpmenguninni sem safnast fyrir ár frá ári á pollinum, er sennilega nærtækasta lókal umhverfiskatastrófan á 21. öldinni. Ef ekkert verður að gert (sem er nú mjög sennilegt, ef reynslan segir manni eitthvað, ekkert er uppáhaldsiðja mannsins). Ég ætti kannski líka að telja með díoxínhörmungina úr Funa hér í upphafi aldar auðvitað. Jú og svo líst mér nú lítið á samþjöppun í laxeldinu – það er ekki ávísun á neitt nema þjösnagang þegar auðvaldið byrjar að þétta raðirnar. Sjálfur veit ég ekki með frekari landfyllingar neðan við Fjarðarstræti. Ég er svona frekar á móti þessu en þegar æsingur vissra bæjarbúa mætti mótþróaröskuninni minni var ég á tímabili farinn að verja hana miklu meira en ég kærði mig um – ég þurfti að beita mig handafli til að bakka. En það var erfitt að heyra rökin með henni, fyrir hávaðanum í þeim sem fluttu rökin gegn henni (og hreinlega ýkjum). En ég er nú samt á móti henni – kannski ekki brennandi heitur, en myndi greiða gegn. Ég held að landfyllingin sé óþarfi og mér sýnist að hún kosti miklu meira en lagt var upp með (fyrst átti hún að vera svo gott sem ókeypis, vegna nýtingar á jarðvegi annars staðar að). Og þótt fjaran komi aftur hverfur hún samt heilli kynslóð. Síðan sé ég ekki betur en það sé í raun hægt að byggja helling á þeirri landfyllingu sem nú þegar stendur – útsýnisþegum Fjarðarstrætis til gremju, vissulega. Svo mætti líka rífa skítakofana gegnt Faktorshúsinu og byggja eitthvað fallegt þar. Mestar áhyggjur hef ég samt af því að það verði byggt eitthvað ljótt. Það komi landfylling og röð af bensínstöðvum og kannski ein ljót blokk með dýrum íbúðum. En vandamálið er varla – enn sem komið er – að það sé hvergi hægt að byggja. Og þá er bara óþarfi að vera að eyða almannafé í það eitt að skaprauna íbúum.
Category: Uncategorized
Æruleysisbænin
Þetta orð dúkkaði upp í huga mér í morgun. En hvernig væri æruleysisbænin? Væri hún kannski bara áþekk æðruleysisbæninni? Eða verður hún til á skrifstofum almannatengslaráðgjafa? Guð gefi mér styrk til að troða allar dræsurnar í svaðið, æruleysi til að vera alveg sama og vit til að lifa það allt saman af? Kannski væri hún auðmjúkari – guð gef mér styrk til að bæta ráð mitt, æðruleysi til að játa syndir mínar og vit til að lifa það allt saman af. Annars lærði ég í dag að tíu árum eftir að fyrsta bifreiðin kom til Ísafjarðar (1924) og sex árum eftir að fyrsti flugfarþeginn (Þórbergur Þórðarson) kom til Ísafjarðar kom fyrsti tómaturinn til Ísafjarðar. 1934. Og þótti hreint ekki ómerkilegri en Þórbergur Þórðarson fljúgandi. Það er dæmalaust hvað maður kemst yfir að lesa þegar maður hangir ekki á Facebook og Twitter og Instagram og YouTube og Vísi og DV og Stundinni og MBL alla daga jafnt. Ég man að ég las einhvern tíma í viðtali við Árna Bergmann, hið annálaða gáfumenni, að fólk sem teldi sig aldrei finna tíma til að lesa ætti að prófa að slökkva á sjónvarpinu af og til (þetta var fyrir FB – þar sem Árni er/var reyndar vinur minn). Ég á örfáar síður eftir í Landið handan landsins eftir Guðmund Daníelsson og annað eins í Að lesa ský – ljóðaþýðingum Magnúsar Sigurðssonar, sveitunga míns, og eru það þá níunda og tíunda bókin sem ég klára frá áramótum. Samt er ég heilmikið búinn að horfa á sjónvarp og spila á gítar líka og fara í búð og gera mat og leika við börnin mín og vinna fullan vinnudag alla virka daga (og m.a.s. smá á helginni líka).
Blúsbloggið: Árslisti, færsla 2 af 3
Jæja. Þá er komið að sætum 6-11 á árslista blúsbloggsins yfir bestu plötur ársins 2021. (Ég bætti við einu sæti til að ná inn öllum sem ég vildi hafa með – þetta má maður þegar maður er sinn eigin ritstjóri). 11. sæti: Steve Cropper – Fire it Up Steve Cropper er gítarleikarinn og lagasmiðurinn á bakvið ótal tryllta ofsasmelli – frá Sittin’ at the Dock of the Bay, Soul Man, Knock on Wood, Green Onions og In the Midnight Hour. Hann er áttræður og þetta er önnur sólóplatan hans og sú fyrsta í 53 ár. Hann er með frábært band sér við hlið, æðislega lúðrasveit og bærilegasta söngvara – sem stenst nú reyndar ekki samanburð við Otis Redding eða Wilson Pickett, en það gera nú sosum ekki margir heldur. Stíllinn er gamaldags og Cropper hefur engu gleymt og engu breytt. Besta lagið er instrumental-lag sem er skipt upp í tvo kafla sem hefja og ljúka plötunni – en birtist líka óskipt sem aukalag. Klassískt Cropper-grúv. Ég veit ekki hvort það er mikils að vænta af Croppernum úr þessu – hann fer nú sennilega bara að taka því rólega – en þetta er líka mjög virðulegt lokalag á glæsilegum ferli. 10. sæti: Robert Finley – Sharecropper’s Son Robert Finley virkar einsog hann ætti að vera eldri en Cropper en er nú samt nokkuð yngri – fæddur 1954. Hann hefur lengi verið að gutla í músík en aðallega heima hjá sér – var smiður lengst af en missti víst sjónina og fór upp úr því að einbeita sér meira að músíkinni. Hann hefur átt góðu að gengi að fagna frá því hann gaf út sína fyrstu plötu 2015 – komst svo fljótlega í samband við Dan Auerbach úr Black Keys og hafa þeir talsvert unnið saman síðustu ár. Auerbach pródúserar þessa plötu og það heyrist. 9. The Blues Album – Joanna Shaw Taylor Blúsplatan heitir hún ekki vegna þess að JST hafi ekki verið að spila blús fram að þessu, heldur vegna þess að hér eru ekkert nema koverlög – kannski ekki þekktustu lögin en samt gegnheilir og þvottekta klassíkerar. Þetta er mikil gítarhetjuplata en Joanna er líka með fallega rödd ofan í gítarhæfileikana (sem er nú því miður ekki alltaf raunin). Lagið sem ég vel hérna af plötunni er gamalt lag með Bettye Lavette og verður nú sennilega aldrei gert betur. En fjári vel gert er þetta samt. Mér verður reyndar illt af að horfa á sólóið í myndbandinu (það hefur greinilega ekki verið til nein taka af Joönnu að spila það svo það er bara notað „eitthvað“). Joe Bonamassa – JoBo sjálfur – og Josh Smith pródúsera (einsog reyndar líka plötu hinnar Joönnunar, Joönnu Connor, sem var nefnd í síðustu færslu). 8. Delta Kream – The Black Keys The Black Keys eru sjálfsagt langþekktasta sveitin á þessum lista. Þetta er önnur koverlagaplata, með áherslu á svokallaðan „hill country“ blús, ekki síst Junior Kimbrough. Titillagið er reyndar einn af stærstu smellum John Lee Hooker en útgáfan er líkari útgáfu Kimbroughs. Þarna eru svo lög eftir RL Burnside, Big Joe Turner og Mississippi Fred McDowell. 7. sæti: Heavy Load Blues með Gov’t Mule Gov’t Mule er eins konar afsprengi hinnar frægu sveitar Allman bræðra. Þetta er ein af þessum sveitum sem er ekkert að flækja hlutina mikið fyrir sér – snýst um að finna sér grúv og setjast svo rækilega í það. Enn ein koverlagaplatan – meðal bestu laganna eru Snatch it back and hold it eftir Junior Wells, Ain’t no love in the heart of the city sem Bobby Blue Bland gerði frægt og þetta hérna, Make It Rain eftir Tom Waits af Real Gone. 6. sæti: Nowhere Sounds Lovely – Cristina Vane Cristina var líka á listanum í fyrra með plötuna Old Played New sem innihélt alls kyns deltablúskover. Hér er hún með sína fyrstu breiðskífu af frumsömdum lögum – það eru alls kyns þjóðlagaáhrif hérna, írskir og hillbilly straumar, og lög einsog Dreamboy eru (í þeim útsetningum sem birtast á plötunni) bara frekar grípandi poppslagarar. Síðasti skammtur kemur svo á næsta fimmtudag.
Einkamál
Eitt það allra snúnasta við að hætta á samfélagsmiðlum er að forðast þá tilfinningu að maður sé alltíeinu svo miklu betri og merkilegri en þeir sem fastir eru í þessum billegu hrævareldum korporatfasismans. Ég er að vísu ekki einu sinni búinn að slökkva á reikningunum mínum. Ég er hreint ekki viss um að ég sé búinn að skrá mig út, hvað þá annað. Ég hef bara ekki opnað síðurnar. En ég er orðinn mjög hofmóðugur samt, á þessum tíu dögum sem eru liðnir. Finnst ég óspilltur, einhvern veginn. Í gær fékk ég loksins moggann. Laugardags- og sunnudags í einu. Það er, einsog ég hef sjálfsagt nefnt, mjög langt síðan ég las nokkuð dagblöð og mér brá talsvert að uppgötva hvað helgarblöðin eru þunn. Það er nánast ekkert í þessu. Meira að segja barnablaðið er eiginlega ekkert nema ein krossgáta, nokkrar myndir eftir börn og auglýsing (mjög classy að hafa auglýsingu inni í barnablaðinu). Efnið er í sjálfu sér ágætt – það var t.d. grein um Betty White og viðtal við Hauk Ingvarsson um Faulknerbókina. Í sunnudagsmogganum var hins vegar engin stjörnuspá og því þurfti ég að láta mér stjörnuspá laugardagsins að góðu heita. Þar kom fram að dagurinn minn yrði „frábær“ og var mælt með því að ég færi í göngutúr. Þetta las ég auðvitað ekki fyrren í morgun og þá var of seint að fara í göngutúr síðasta laugardag, svo þá hef ég bara farið í heimsókn til foreldra minna í staðinn. Eða … þá mun ég hafa … nei … þá myndi ég hefði … hvaða tíð passar eiginlega fyrir að maður hefði í fortíðinni farið að ráðleggingum spádóms um framtíðina ef blaðið hefði bara borist manni í tæka tíð? Þegar ég kom á skrifstofuna í morgun gluggaði ég síðan í Morgunblaðið frá 9. marz (svo) 1985. Þann dag fylgdi Morgunblaðinu sérstakt aukablað um Guðmund G. Hagalín (ég kláraði Kristrúnu í Hamravík – í fyrsta sinn – í gær) og eru þar margir sem minnast hans, meðal annars Guðmundur Daníelsson, Indriði G. Þorsteinsson og Sigurður Pálsson (f.h. RSÍ). Bara karlmenn, hjó ég eftir. Hvað um það – ekki veit ég hvort Halldóri Laxness var boðið að frumskrifa eitthvað í blaðið eða hvort þetta var fyrsta val ritstjórans, en þar birtist líka stuttur en skemmtilegur kafli úr Sjömeistarasögu hans þar sem HKL reifar samband sitt við hinn mikla Hagalín. Þar birtast brot úr tveimur „kvæðum“, sem Halldór nefnir svo, en ekki er nefndur höfundur – stíllinn á tilskrifinu er þannig að manni á sjálfsagt að skiljast að þetta hafi Halldór ort sjálfur. Mér fannst annað þeirra allavega nógu skemmtilegt að skrifa það hjá mér. Í húsinu númer 3 við Mjóstræti
maður nokkur var sleginn í rot;
það var heiðursmaðurinn Ólafur Hvanndal
brautryðjandi í myndmótagerð.
Kært var fyrir lögreglunni málið
en að vanda hún svæfði það svo rótt
með þeim formála sem þar er vant að hafa
að hér væri einkamál á ferðinni Hitt kvæðið er í sama stíl og fjallaði um hest sem drapst úr skitu og varð fólki sorgardauði.
Blúsbloggið: Árslisti, færsla 1 af 3
Ég hef ekkert sinnt blúsblogginu síðan ég gerði árslistann í fyrra . Eða svona. Ég skipti því út fyrir plötu vikunnar hér á tímabili. En það hafa ekki verið neina eiginlegar blúsbloggsfærslur síðan í desember 2019. Ég keypti mér tvær plötur af þeim lista – Rawer than Raw með Bobby Rush og Cypress Grove með Jimmy Duck Holmes. Ég reyndi líka að útvega mér Blackbirds með Bettye Lavette en það tókst víst aldrei. Auk þeirra hef ég mest hlustað á El Dorado með Marcus King – en líka eina plötu sem komst ekki á listann en gerði það næstum því, var á langalistanum, en það er Sweet Little Black Spider and Other Songs from the Trenches of the Blues með Franck L. Goldwasser, Kid Anderson og June Core. Lagið Jimmy Bell með Watermelon Slim fær líka gjarnan að heyrast en síður annað af plötunni – og koverlagaplata Cristinu Vane líka. Annað hef ég varla hlustað á. Það er oft erfitt að sjá fyrir hvað lifir með manni þegar plöturnar eru nýlegar. Goldwasser og kó unnu mikið á en annað dofnaði. Í ár ætla ég að hafa þetta í þremur færslum. Í dag ætla ég að færa til bókar þær plötur sem komust ekki inn á topp tíu listann en mér fannst samt allrar athygli verðar. Og ég er ekki hættur að hlusta á neina þeirra. Plöturnar eru eru, í engri sérstakri röð: Long Time Comin’ með Paul Cowley Þetta er sjálfsútgefin plata með kassagítarleikara frá Birmingham. Það er heilmikill sjarmi þarna og mig grunar að hann vinni á – en ég er bara ekki búinn að hlusta nóg á hana til að vera viss. 4801 South Indiana Avenue með Joönnu Connor Joanna Connor er slide-gítar drottningin. Útgáfa hennar af Walkin’ Blues varð viral hér um árið – með smitstuðul á við ómíkrón í öskrandi áramótapartíi. Hún gefur alltaf allt og á endanum er það sennilega ástæðan fyrir því að ég hef hana ekki með. Þetta er þrusustöff – ofsaleg rödd og nístandi gítar – en það vantar dýnamíkina. Eða kannski ræður hún bara ekki við að gæða ljúfu tónana sama lífi. En djöfull er hún samt góð þegar hún er góð. 662 með Christone „Kingfish“ Ingram Ég hef meiri smekk fyrir Kingfish en margir. Þetta er fremur poppað og hann er af gítarhetjuskólanum. Fæddur í Clarksdale – og þá hefur maður annars konar tilkall til blússins en venjulegt fólk. Einsog Joanna ræður hann yfir þessum nístandi gítartón sem sundrar í mér hjartanu, en hann hefur líka meiri dýnamík og er jafnvígur á ljúfari tóna. Pródúseringin á þessu ber þess hins vegar merki að þetta er meikplata – það hefur einhver rándýr Nashvillepródúsent fengið það hlutverk að stýra þessu inn á vinsældarlistana. Paint the Roses (Live in Concert) með Larkin Poe og Nu Deco Ensemble Ég er alltaf á báðum áttum með Larkin Poe. Þær eru eiginlega alltaf aðeins of fullkomnar. Mér finnst meira gaman að hlusta á þær live en í stúdíóupptökum – þær fá einsog Kingfish alltaf einhverja Nashvilletýpu til að sjúga lífið úr lögunum. En meira að segja þessi live-plata hefði mátt vera aðeins hrárri. Fyrsta lagið (þetta hér að ofan) er best. Binga með Samba Touré Samba Touré er afróblúsari frá Malí af Ali Farka Touré skólanum (en þeir eru ekkert skyldir, eftir því sem ég get grafið upp – Samba túraði samt með Ali einhvern tíma og er álitinn hans helsti arftaki, tók kannski bara upp nafnið, ég hreinlega veit það ekki). Ég er ekki skólaður í afróblús en mér finnst skemmtilegt að láta þetta renna – þjóðfélagsgagnrýnin fer svo yfir ofan höfuð og neðan af því ég kann ekki málið. Sambalama byggir á Whole Lotta Love riffinu frá Led Zeppelin. Sem er óvenju vel til fundið menningarnám. Afrique Victime með Mdou Moctar Annar afróblúsari. Moctar er berbi – nánar tiltekið Túaregi – búsettur í Níger. Þessi plata hefur fengið frábæra dóma út um allt. Ég kynntist henni og Binga nánast samtímis og þær kepptu svolítið um athygli mína, sem var ósanngjarnt – því þær eru ansi ólíkar þótt þær séu báðar afróblús (enda sungnar á ólíkum tungumálum, leiknar á ólík hljóðfæri o.s.frv. þótt þær eigi ýmislegt sameiginlegt og hljóðheimurinn sé skyldur). Ég hef ekkert sinnt blúsblogginu síðan ég gerði árslistann í fyrra. Eða svona. Ég skipti því útr plötu vikunnar hér á tímabili. En það hafa ekki verið neina eiginlegar blúsbloggsfærslur síðan í desember 2019. Ég keypti mér tvær plötur af þeim lista – Rawer than Raw með Bobby Rush og Cypress Grove með Jimmy Duck Holmes. Ég reyndi líka að útvega mér Blackbirds með Bettye Lavette en það tókst víst aldrei. Auk þeirra hef ég mest hlustað á El Dorado með Marcus King – en líka eina plötu sem komst ekki á listann en gerði það næstum því, var á langalistanum, en það er Sweet Little Black Spider and Other Songs from the Trenches of the Blues með Franck L. Goldwasser, Kid Anderson og June Core. Lagið Jimmy Bell með Watermelon Slim fær líka gjarnan að heyrast en síður annað af plötunni – og koverlagaplata Cristinu Vane líka. Annað hef ég varla hlustað á. Það er oft erfitt að sjá fyrir hvað lifir með manni þegar plöturnar eru nýlegar. Goldwasser og kó unnu mikið á en annað dofnaði. jhih jhi jh j
Sófa só gúdd
Ég ímynda mér að þið hafið margt betra við tíma ykkar að gera en að hlusta á raunir mínar við að finna nýjan mogga – jafnvel „mogga dagsins“ – og hlífi ykkur því við þeim ævintýrum mínum í dag. Nægir að nefna að ég hef enn ekki komist yfir nýjan mogga og er búinn að lesa þann síðasta (4. jan.) í drep. Það berst margt annað til Ísafjarðar, þótt mogginn komi ekki. Til dæmis fékk ég lítið fjöltengi frá Elko í fyrradag, sama dag og stjórnarformaður móðurfélags Elko sagði af sér vegna ásakana um kynferðisofbeldi í heitum potti. Daginn eftir pantaði ég RCA-snúru frá sama fyrirtæki en get ekki borið fyrir mig að þá hafi ég ekki vitað af málinu. Sú snúra er reyndar ekki komin. Sem er bót í máli. Það allra stærsta til að berast hingað – að minnsta kosti á okkar vegum – var þessi sófi. Þetta er 80 rassa tryllitæki – jafn ljótur og gömlu sófarnir okkar voru fallegir, jafn praktískur og þægilegur og hinir voru ópraktískir. Þeir voru gamlir íslenskir sófar úr trésmiðjunni Víði sem ég þurfti að gera við einu sinni á ári. Mér fannst þeir alls ekkert óþægilegir en það fannst sumum öðrum og þegar annar þeirra brotnaði undan hoppandi sykurdrukknum börnum í áramótaveislu ákváðum við Nadja að nú væri komið gott – við myndum eyða aleigunni í nýjan þolgóðan og þægilegan sófa við fyrsta tækifæri. Ferlíkið kom í þremur einingum. Það þurfti að fara með hann inn af pallinum. Og þótt hann væri í svona fáum einingum var nú merkilega mikið moj að setja á hann fætur og festa hann saman. Það hafðist nú samt á endanum, rétt fyrir kvöldfréttirnar og voru þær nýttar til vígslu hans – enda er þetta þvottekta „sjónvarpssófi“. Með svona stóran sófa í húsinu finnst manni svo alltíeinu sjónvarpið vera orðið pínulítið. Þannig vindur smáborgaralífið upp á sig, eitt skref í einu.
Kærleikur alla daga
Ég sendi Aram Nóa tvisvar sinnum út í sjoppu eftir mogganum í gær en hann var aldrei kominn. Og hann var heldur ekki til þegar ég fór sjálfur í Nettó. Hafði ég þó líka augastað á miðvikudagsmogganum, sem var ekki til á miðvikudaginn þegar ég keypti þriðjudagsmoggann. Ekki veit ég hvernig fólk fer að. Alltaf með sömu stjörnuspána, dag eftir dag – að lesa bækur . Ég neyddist því til að lúslesa betur þær síður í mánudagsmogganum sem ég átti eftir. Þar uppgötvaði ég meðal annars að vinkona mín Fríða Ísberg hefði fengið Bjartsýnisverðlaun Forsetans. Sem ég vissi nú ekki einu sinni að væru til. Ég sá ekki betur en þetta væri milla – sem er nú 2/3 af bókmenntaverðlaununum sem Fríða fær ekki fyrir Merkingu (en kannski hluta af fyrir Olíu sem hún skrifaði í samyrkju með öðrum). Það held ég komi sér nú áreiðanlega vel í búið og er auðvitað mjög vel verðskuldað. Þótt ég hafi reyndar ekki hugmynd um fyrir hvað þessi verðlaun eru veitt, nú þegar ég hugsa út í það. Ekki er það fyrir bjartsýni – Fríða er nýbúin að gefa út hræðilega dystópíu. Ætli forsetinn sé ekki bara bjartsýnn á að Fríða eigi eftir að gera það gott? Það held ég flestir séu. Svo má reyndar spyrja sig hvort það væri ráð að veita líka svartsýnisverðlaun. Þau væru þá veitt einhverjum sem væri vís með að fara í hundana. Þá fengi þau til dæmis rithöfundur sem virtist á hraðri niðurleið – kannski við það að gefast upp – kannski útbrenndur? Eða bara eitthvað algerlega vonlaust keis sem væri að stíga fyrstu skrefin? Kannski frekar svona týpa sem er alveg á barmi þess að fara að sturta úr öllum skúffum skrifborðsins ofan í eitthvað vanity-prójekt í fallegu bókbandi. Það yrði svo að útfæra það hvort millan (því það yrði auðvitað líka að vera milla – nema það væri milla í skuld, viðkomandi fengi bara reikning?) færi í að koma skáldinu aftur á réttan skáldakjöl eða til þess að það hefði ráðrúm til að finna sér nýjan vettvang í lífinu. Gamli kvikindislegi Eiríkur hefði nú sagt að það væri samfélagslega ábyrgt að borga sumum höfundum fyrir að finna sér eitthvað annað að gera – en leiðir okkar hafa skilist, okkar kvikindisins, hér er ekkert nema kærleikur alla daga og ég sit því á strák mínum og segi ekkert.
Sjálfshjálpardiskar
Ég fór aftur og keypti moggann í gær. Sennilega fengi ég mér áskrift ef hann bærist manni á morgnana en það er víst ekki. Mogginn sem ég keypti í gær, klukkan 16, var meira að segja mogginn frá því í fyrradag, sem var ekki til í fyrradag þegar ég keypti mánudagsmoggann. Það var margt áhugavert. Sérblað um heilsu. Það sló mig hvað allir voru rosalega jákvæðir. Einhvern veginn einsog heilsan væri fyrst og fremst spurning um viðhorf. Sem er kannski rétt, eins langt og það nær – altso þangað til maður verður fyrir erfiðari heilsubresti. En fyrir okkur meðalmennin skiptir sennilega mestu að vera ekki alltaf sívælandi yfir því sem ekkert er og kunna að fagna hinu. Meira að segja stjörnuspáin mín var á þennan veg. Þar stóð að það þýddi ekkert fyrir mig (krabba) að „liggja með hendur í skauti“ heldur þyrfti ég að „lesa bók eða hlusta á sjálfshjálpardisk“. Nú man ég ekki hvað niðurlagið var – hvort ég átti að gera þetta til að líða betur eða ná árangri í starfi eða hvort þetta var bara svona skilyrðislaust skylduboð, spurning um tilgang í sjálfum sér frekar en leið að markmiði. Það sló mig að svo virðist sem maður megi lesa hvernig bók sem er en bara hlusta á sjálfshjálpar disk. Þýðir ekki að hlusta á sjálfshjálparhlaðvarp eða einhverja skáldsögu á hljóðbók. Það er annað hvort sjálfshjálpardiskur eða einhver bók – hvaða bók sem er – eða þunglyndi og gjaldþrot. Ferillinn í rúst. Ég á því miður engan sjálfshjálpardisk. Ég á ekki einu sinni diskaspilara. Einhvers staðar á ég safn af Tom Waits diskum, Mugison diskum og Skúla mennska diskum – þá tvo fyrstnefndu hlusta ég bara á í gegnum Spotify núorðið og þann síðasta bara þegar hann kemur í heimsókn (hann hefur ekki sett lög sín á Spotify aðdáendum sínum til mikillar gremju). Ég veit ekki hvort neitt af þessu er sjálfshjálp. Sáluhjálp kannski, en það er ekki það sama. Since you’re gone
Deep inside it hurts
I’m just another sad guest
On this dark earth
I want to believe
In the mercy of the world again
Make it rain, make it rain! Lífið er sárt og það eina sem maður getur gert er að skrúfa frá rigningunni. En bækur á ég. Ég kláraði Eld eftir Guðmund Daníelsson í gær og er að dunda mér í gegnum Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur og gott ef mér líður ekki bara betur og næ meiri árangri í starfi en í fyrradag. Ég er ekki frá því.
Piparkökur
Á dögunum sat ég til borðs með fólki þar sem í boði var ein stolin vara og ein keypt. Sammæltist fólkið við þetta borð um að stolna varan væri ívið betri en sú keypta, öfugt við það sem segir í ævintýri Torbjörns Egner um Dýrin í Hálsaskógi. Þetta voru ekki piparkökur og kemur málinu ekki við hvað þetta var, þið verðið bara að reyna að ímynda ykkur það – þetta var einhver ægilegur lúxus og þetta fólk var ævintýralegur félagsskapur. Annars umgengst ég nú ekki mikið þjófa. Ég nefni þetta bara vegna þess að síðasta sólarhringinn hefur staðið bretti af sænskum Göteborgs piparkökum við innganginn að matvöruversluninni Nettó á Ísafirði. Þessar piparkökur eru ekki til sölu og maður getur heldur ekki stolið þeim. Þessar piparkökur eru nefnilega gefins. Sennilega hefur innkaupastjórinn gert innsláttarvillu í jólapöntunina og pantað kíló fyrir hverja teskeið af piparkökum sem til stóð að Ísfirðingar og nærsveitamenn myndu neyta yfir hátíðirnar. Og því fór sem fór. Ísfirðingar eru ekki þekktir af öðru en samstöðu, sérílagi þegar eitthvað mikið bjátar á. Við tökum höndum saman og við vinnum bug á yfirvofandi matarsóun. Við björgum þessum verðmætum. Heima hjá mér er til alltof mikið af (heimabökuðum) piparkökum. Ég gat hins vegar ekki látið mitt eftir liggja – þannig lýsir samstaða sér ekki – svo ég tók eitt box. Boxið geymi ég síðan bara í vinnunni, enda yrði ég sennilega kjöldreginn ef ég kæmi með það heim og bætti því við fjallið sem býður okkar að vinna á þar. Ég er búinn að borða þrjár.
Dagar fávisku og allsnægta
Í gær þegar ég vistaði bloggfærslu dagsins varð mér á að líta á bloggfærslu dagsins þar áður, þessari um að ég hefði skotið flugelda í smettið á mér fyrir dæmalausan fávitaskap, og áttaði mig snarlega á að fávitaskapurinn virðist ætla að fylgja mér langt inn í nýja árið. Mér tókst nefnilega einhvern veginn að eyða fyrstu 2-3 málsgreinunum í færslunni áður en ég póstaði. Og ég tók ekki einu sinni eftir því fyrren degi síðar. Færslan byrjar þannig in medias res einsog við köllum það „í bransanum“. Eða í miðju kafi sem sagt, einsog það er kallað annars staðar en í bransanum. Tölvuskerta lífið gengur annars ágætlega. Í morgun vaknaði ég hálfátta og lá í hálftíma og las Eld eftir Guðmund Daníelsson áður en ég setti á morgunfréttirnar og fór á fætur. Síðan leysti ég hálfa sudokuþraut í mogganum. Í gær hlustaði ég á Spegilinn. Ég hef fengið nokkra tölvupósta en alls ekki nein ósköp. Ég hef ekki rekið mig á neina svakalega veggi. Að vísu þurftum við að losna við tvo forláta sófa, úr Trésmiðjunni Víði, sem henta því miður ekki „nútímafólki“ (sem er í yfirvigt og leyfir börnum að leika í sófum), og það er hægara sagt en gert Facebooklaus (Nadja er ekki heldur á FB og hefur varla verið nema í mýflugumynd fyrir hundrað árum). Við hefðum getað hengt upp auglýsingu í Neista en það er hæpið að neinn hefði séð hana fyrren eftir dúk og disk. Svo við báðum bara mömmu að setja inn auglýsingu fyrir okkur á FB. Þeir ruku síðan út einsog gersemarnar sem þeir eru. Nýi sófinn, sem kemur sennilega í dag eða á morgun, er ótrúlega plebbalegur í samanburði. Rándýrt og risavaxið koddaskrímsli. En það eru allir, sérstaklega unga fólkið, mjög spenntir að fá hann samt. Aram reyndi svo að senda mér tölvupóst í fyrradag til að láta vita að hann ætlaði að vera í mat hjá vini sínum. Ég svaraði um hæl en hann sá aldrei svarið og kom á skrifstofuna til að segja mér það aftur. Aino fór líka óvænt heim með vinkonu sinni eftir sund en þá hafði mamman sent Nödju skilaboð (hún er með síma en mjög góð í að hunsa hann) sem uppgötvaðist of seint. Ég hugsa að ég hefði fengið þau skilaboð ef ég væri ekki búinn að slökkva á því öllu saman. Ég þarf að hafa aðeins meiri tíma fyrir mér ef ég vil hitta einhvern í hádeginu. Þýðir ekki að senda tölvupóst korter í tólf einsog maður gæti gert með SMS. Ég hef síðan skoðað uppskriftir í vinnunni og tekið með mér handskrifaða hráefnislista heim. Hugsanlega set ég þá bestu uppskriftirnar – og heimilisstandardana – í uppskriftabók sem við eigum en er mjög lítið notuð. Planið er síðan að vera duglegri að líta við í kaffi hjá fólki og svona. SMS-leysið er nú sennilega það af þessu sem mun láta undan fyrst. Það truflar fáa nema mig að ég lesi ekki vefmiðlana eða sé í sífelldu spjallforritablaðri og þótt það trufli heimilislífið aðeins að ég sé ekki á Facebook og Messenger þá er Nadja það ekki heldur. En það er óforsvaranlegt að vera alveg símalaus nema svona rétt kannski út janúar. Það sem ég nota enn, fyrir utan þetta blogg og tölvupóst, er streymi – Spotify, RÚV, BBC Radio og Netflix – myndavélin, rafrænu persónuskilríkin og svo heimildavinnugúgla ég heilmikið í vinnunni. Gúglið er reyndar komið yfir á DuckDuckGo. En þetta er mikið allsnægtalíf þótt það kalli á aðeins breytta (þægilegri) rútínu. Og það er meiri ró í kollinum á mér, þótt það sé auðvitað ekkert gefið að hún endist. Hún gæti líka bara verið komin til af tilbreytingunni.