Þrír dagar í Dyflinni

Heilinn á mér er orðinn mjúkur af viðstöðulausu innstreymi. Ég er ekki viss um að ég sé enn að meðtaka veröldina. Lek einhvern veginn áfram einsog í móki og vona að ég vinni úr þessu síðar. Að þetta festist einhvers staðar til úrvinnslu. Reyndar svaf ég líka lítið í nótt – sem er mjög furðulegt eftir fáránlega aktífan gærdag. Og fyrradag. Og svo var ég líka mjög aktífur í dag þótt ég hefði ekkert sofið. Akkúrat núna sit ég í lest á leiðinni til Belfast. Sem mér skilst á fréttum að logi í óeirðum en mig grunar að það sé mest eitt horn í einhverju úthverfi. Yfirleitt er það þannig. Belfast verður meira hangs en Dyflinni. Upprifjun á einhverjum æskuminningum.

Tvö leikrit? Einn kabarett? Eða hvað maður kallar það – fyrirlestur, söngur, dada-læti, livestreymi frá umboðsmanni Franks Zappa heitins (sem er mikill Finnegans Wake maður). Ljóðasöngur á gönguferð. Söguganga. Epískar bókabúðarferðir – keypti ekkert á Rare Book Fair endaði var þar fátt undir þúsund evrum. Tíu kílómetra hlaupatúr frá heimili Paddy Dignam’s heitins á Newbridge Avenue – sömu leið og hestvagninn fer í Hadesarþætti, í gegnum Irishtown og Ringsend framhjá Boland’s mills og hinum fj´órum ám Hadesar, Styx (Dodder), Akkerón (Grand Canal), Kókytos (Liffey) og Flegeþon (Royal Canal), upp í gegnum miðbæinn og Broadstone að Glasnevin kirkjugarði. Þar sem hinir dauðu búa. Þar litaðist ég um og hljóp svo heim á hótel.

Eccles stræti 7, Martello-turn, Barney Kiernan, Sweny’s, James Joyce Centre, Finn’s Hotel, Mulligan’s, Liffey – og haugur af öðrum smærri stöðum einsog hótelinu úr The Dead, húsi frú Mooney í The Boarding House og pósthúsinu í Lestrygonians.

Nú tek ég helgina í Belfast og svo koma strákarnir (Ingi og Lommi) á mánudag og þá hefst gamanið fyrir alvöru. Ég á eftir að fara aftur á aðalstaðina – ég stoppaði varla í turninum til dæmis nema til að sjá leikritið (Telemakkusarþáttur), þurfti að drífa mig til að ná á Bewley’s niðri í bæ til að sjá annað (Kýklópaþátt). Bæði æðislegt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *