id““:““6vt20″“

Ég er farinn að halda að sumarið sé loksins komið til Svíþjóðar. Það hefur að vísu látið sjá sig nokkrum sinnum áður, en óðar flúið aftur til heitu landanna – en nú er það áreiðanlega komið til að vera. Það eru 23 gráður og sól og blíða. Á fimmtudag voru 6 gráður og rok og rigning og alveg svívirðilega kalt á alla mælikvarða. Þann dag kláruðu krakkarnir veturinn í tónlistarskólanum og léku á mannlausum lokatónleikum – við erum enn að bíða eftir að fá að sjá upptökurnar. Þau voru bæði búin að vera mjög dugleg að æfa sig – ekki síst Aino sem kom seint inn í tónlistarskólann eftir að þau sendu út boð um að það vantaði bassaleikara. Hún þurfti auk þess – af sömu sökum – að leika í tveimur hljómsveitum, alls fjögur lög, sem við höfum æft stíft hérna heima síðustu vikur. Í tilefni af því fórum við út að borða á veitingastað að þeirra vali og þau fengu smá gjafir, sem töldust líka síðbúnar sumargjafir (Aram fékk bók um Iron Maiden og burstakjuða; Aino fékk Grease-plötu og stilli-fetil fyrir bassann). Ég var með plön um að hlaupa maraþon í lok júlí. En síðasta sunnudag tókst mér að meiða á mér kálfann og nú veit ég ekki hvernig fer. Hef ekkert hlaupið alla vikuna en er að verða góður í kálfanum held ég. Sem er skjótari bati en ég mátti reikna með. Upprunalega planið var reyndar að hlaupa hálf-maraþon og kannski sný ég mér bara aftur til þess – en það er hálf súrt samt. Ég lék við að taka upp hljóðbókina að Illsku um daginn og hún er komin inn á Storytel. Nú er ég að lesa Gæsku – sem ég hef ekki lesið síðan hún kom út 2009. Ég hef ekki haft ástæðu til að endurlesa bækur mínar nema þegar þær séu að koma út í þýðingu á tungumáli sem ég skil – Gæska hefur bara komið út á frönsku og það hefur lítið upp á sig að ég lesi hana á því máli. En þetta er nú samt gaman. Skemmtilega framandi einhvern veginn – ég skrifaði hana mestmegnis 2006-2008. Þegar ég byrjaði á henni var ég einhleypur blaðamaður á Ísafirði og þegar hún kom út var ég giftur, átti barn og búinn að segja upp dagvinnunni. Fékk einhver smá listamannalaun en var líka bara ofsalega blankur. Gæska fékk mjög góða dóma víðast hvar – en auðvitað situr fastast í mér neikvæði dómurinn í Kiljunni og annað sem misfórst í tengslum við útgáfuna. Dómurinn var líka alveg voðalegur, a.m.k. í minningunni – hún var dæmd í kippu með Paradísarborginni eftir Óttar Martin Norðfjörð og einsog ég man þetta sátu þau Kolbrún, Páll og Egill bara í hring og hlógu að því hvað þetta væri allt ótrúlega lélegt. Á tímabili var bókin líka „uppseld hjá útgefanda“ – vegna þess að upplagið hafði allt verið sent á einu bretti upp í Smáralind í misgripum fyrir einhvern Arnald. Ég bjó úti í Finnlandi en kom heim yfir jólin. Aram var nýfæddur og ég hafði einhvern veginn engan tíma til að sinna þessu – man varla til þess að hafa lesið upp úr henni. Forlagið skipulagði einhvers konar útgáfuhóf í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18. Ég held við höfum verið svona fjögur í því boði, að Nödju og Aram meðtöldum. Þegar ég kom vestur komu þrír ólíkir bóksalar að mér – og hafa aldrei verið fleiri bóksalar á Ísafirði – til þess að kvarta undan því að það hefði ekkert gengið að panta bókina. Ég man ekki hvort hún var þá enn „uppseld hjá útgefanda“ – minnir að það hafi verið einhverjar aðrar ástæður í það skiptið. Til að bæta gráu ofan á svart fannst sumum vinum mínum hún heldur alls ekki góð – eða allavega að það væru of mikil læti í henni (það eru mjög mikil læti í henni) og hún væri kannski svolítið sínísk (hún er svolítið sínísk). Hún seldist ekki neitt og vakti enga sérstaka athygli þótt hún fengi margar stjörnur í öllum dagblöðunum. Hún hefur samt eitthvað mallast út í gegnum árin og fékk líka fullt af stjörnum í Frakklandi og á nokkra eldheita aðdáendur sem láta vita af sér – en hún fer líka ægilega í taugarnar á þeim sem ekki fíla hana. Sem klagar sosum ekkert upp á mig þegar það er ekki í sjónvarpinu. Mér finnst það eiginlega bara mjög skiljanlegt. En hún á samt að vera svona. *** Plata vikunnar er Gran’ mas I’ve Never Had með þeim Precious Bryant og Algia Mae Hinton. Ég heyrði í Precious Bryant í blúsþætti Cerys Matthews á BBC og pantaði plötuna eiginlega strax – fékk Algiu Mae í kaupbæti. Precious er fædd 1942 í Georgíu í Bandaríkjunum og leikur Piedmont blús. Hún tók upp fyrstu lögin sín 1967 en náði ekki máli að neinu marki fyrren um 20 árum seinna – og lék þá meðal annars á Newport Folk festivalinu og túraði eitthvað um Evrópu. Algia Mae Hinton er nokkuð eldri, fædd 1929 í Norður-Karolínu. Hún lærði á gítar 9 ára gömul – Piedmont blús, af móður sinni – en tók ekki upp tónlist fyrren seint á fullorðinsaldri – sennilega ekki fyrren upp úr fimmtugu, ef mér skjátlast ekki. Platan er gefin út af Moi J’Connais Records, sem er að ég held svissneskt plötufyrirtæki, og ég held að platan hafi verið gefin út 2012 – í öllu falli er Precious enn á lífi þegar hún kemur út, en hún dó 2013. Algia lifði til 2018. Annað eiginlega veit ég ekki um hana – nema að hún heillar mig. Einsog venjulega set ég frekar inn tónleikaupptökur – en það ætti að vera hægt að finna þetta á Spotify (eða panta sér plötuna einhvers staðar – ég fann mína í gegnum discogs). Ég finn enga góða tónleikaupptöku með Algiu lagi sem er á plötunni – en þetta er fyrsta lagið og ansi gott. Hér er svo einhver random blús – úr einhverju partíi. Alan Lomax tók þetta upp 1983. Það eru líka myndbönd af Algiu Mae úr þessu partíi að dansa buck dance með gítarinn og spila á hann fyrir aftan bak og með alls konar stæla. Mjög skemmtilegt.

id““:““a8tpg““

Sándið á Let There Be Rock er kannski flatara en á fyrstu tveimur plötum AC/DC. Kannski, segi ég, því það voru svolítið mikil læti í gymminu – ég hlustaði á plötuna (einsog tvær fyrstu) á hlaupabrettinu. En þetta hlaupabretti var ekki í rólegheitunum í Stúdíó Dan heldur einhverri teknórækt í Wembley í London. Sama hvað olli – hún náði ekki sömu heljartökum á mér og High Voltage og Dirty Deeds. *** Sem er furðulegt. Því lagasmíðarnar eru ansi góðar. Dog Eat Dog, titillagið, Hell Ain’t a Bad Place to Be, Problem Child (sem birtist hér aftur) og hið stórfenglega – og sennilega dálítið siðferðislega vafasama – Whole Lotta Rosie (sem fjallar um tasmaníska konu í talsverðri yfirvigt sem mun hafa forfært Bon Scott kvöld eitt í Melbourne – og hlaut afar góða einkunn fyrir hvílubrögð) eru fyrsta flokks. *** Problem Child birtist aftur á Let There Be Rock – í örlítið styttri útgáfu, en ég get ekki heyrt það hafi mörgu verið breytt annars. Þetta er áreiðanlega nákvæmlega sama hljóðblöndun annars. Sem ýtir stoðum undir þá kenningu að þótt hávaðinn í teknóinu hafi ekki heyrst í gegnum tónlistina þá hafi hann farið illa með sándið. *** AC/DC dönsuðu annars alltaf á siðferðislegu línunni og voru kannski ekkert ásættanlegri þarna um miðjan áttunda áratuginn. Maður sér oft fyrir sér að umræðan hafi ekki verið jafn óvægin og eitthvað, en þetta eru auðvitað árin sem Tipper Gore og félagar eru að koma sér í stellingar til að ritskoða tónlist – nokkrum árum síðar kemur Parental Advisory miðinn og Walmart hættir að selja tónlist sem er svo merkt, allir fara að blípa dónaskapinn og úr verður þessi skringilega ameríska úrkynjun þar sem er bannað að segja shit en samhengi skiptir engu. *** Fyrir utan trommarann Phil Rudd voru þetta samt allt frekar góðir drengir, vel að merkja. Ekki síst Angus greyið – sá andsetni – sem hefur varla smakkað áfengi um ævina, giftist æskuástinni fyrir hundrað árum, og er þekktur fyrir að láta sig bara hverfa þegar hann gengur af sviðinu. Hangir heima hjá sér og spilar á gítar, all by his lonesome. *** Bon var auðvitað fyllibytta og hinir flestir frekar blautir, en sennilega ekkert meira en flestir tónlistarmenn – og alls ekki þannig að þeir hafi stært sig af því eða gert einhver lifandis ósköp úr því (einsog t.d. Guns). Malcolm hætti að drekka fyrir löngu samt. Phil var til alls konar vandræða, fyrst og fremst smávægilegra, og var rekinn úr sveitinni – fyrst í áratug og svo aftur um daginn. Brian er annálaður tedrykkjumaður og rólyndisfýr. *** Titillag plötunnar fjallar um tilurð rokksins – það er sköpunarsaga þar sem til leiks mæta hvíti maðurinn og svarti maðurinn. Sá hvíti kemur með „schmaltz“ (óþarfa væmni) að borðinu og sá svarti leggur til blúsinn. Sennilega mætti leggja það þannig út að Bon sé að segja að rokktónlist fjalli um sársauka – sársauki svartra sé réttmætur en sársauki hvítra kannski fyrst og fremst sjálfsvorkunn. En það væri líka óþarflega pólitískur lestur. Sennilega vakti ekkert fyrir honum annað en að benda á staðreyndirnar. Hvít tónlist var seif og leiðinleg og hún var að drepa ungt hvítt fólk úr leiðindum. Og þá kom blúsinn og með honum búggí og djass og rokk og ról. *** Overdose og Bad Boy Boogie eru óeftirminnilegar lagasmíðar – og Go Down er undir getu þótt viðlagið sé fínt. Það besta og versta við AC/DC er að þeir skuli alltaf fylgja skriðþunganum í eigin listsköpun – það gerir það að verkum að þeir miðla aldrei málum eða eltast við tískustrauma og það veitir tónlist þeirra ákveðna þyngd. En það gerir það líka að verkum að stundum fara þeir bara að þramma, framleiða til þess að framleiða, af alþekktu vinnusiðferði (Angus vaknaði alltaf sex á morgnana til að semja – og þeir sömdu yfirleitt á meðan að þeir túruðu, stoppuðu svo stutt til að taka upp, þoldu ekki dútl, og voru svo aftur farnir út að túra). Og þá er útkoman ekki alltaf jafn spennandi. *** Vaknaði, segi ég, einsog hljómsveitin sé hætt. En hún er einsog Bjarni Ben, þessi hljómsveit, hún stendur allt af sér. En þeir hægðu nú eitthvað ferðina – eða tóku sér langar pásur milli langra túra – þegar þeir voru farnir að þéna almennilega á þessu. *** En þetta er samt platan með Whole Lotta Rosie. Það verður aldrei af henni tekið. Og nei, ég veit ekkert hvort þetta er fallegt eða ljótt – þetta er algert brjálæði af löngun, hlutgervingu, fordómum, kærleika og hamslausum losta. Og sennilega er það bæði fallegt og ljótt og hugsanlega er það allt í lagi. *** *** Þetta er líka fínt lag til að staldra við og bera saman söngvarana. Ég ætla ekkert að segja um það í bili – annað en að Axl og Bon eru eiginlega líkari týpur en Bon og Brian. Og þetta er eitt af þeim lögum – segir mér Wikipedia – sem þeir notuðu í áheyrnarprufurnar fyrir Brian. *** *** Þetta er svo ekki frá því að Axl tók við í AC/DC heldur frá því þegar Angus kom og spilaði með Guns á Coachella – eftir að tilkynnt hafði verið að Axl myndi hlaupa í skarðið fyrir hinn heyrnarlausa Brian. Live-upptökurnar af Axl með AC/DC eru svo miklu síðri. *** *** Axl er gamall AC/DC aðdáandi – sennilega fáir tónlistarmenn í meiri metum hjá honum, ef frá eru taldir Elton John og Freddy Mercury – og Guns spiluðu Whole Lotta Rosie iðulega live í gamla daga. Hér er að lokum upptaka frá gullöldinni. *** #ACDC

createdTimestamp““:““2024-05-14T11:49:40.883Z““

Það er skrítið að ætla að skrifa um bækur sem ég kláraði í Svíþjóð, myndir sem ég sá þar eða eitthvað sem ég gerði á Ísafirði í síðustu viku – úr þessum víggirta kristalskastala hérna í San Pedro Sula, paradísargarðinum Panorama. Sá heimur er horfinn. Það er ekki mánudagur heldur, ég missti af mánudeginum í einhverjum ferðalagsstormi. Við lögðum af stað frá Västerås snemma morguns á mánudegi, vörðum deginum í París og flugum svo til Mexíkó um nóttina. Lentum þar skömmu fyrir fjögur að staðartíma og flugum áfram til San Pedro Sula klukkan níu. Vorum komin í hús upp úr hádegi og eyddum deginum í gær úti við sundlaug, mókandi ringluð af flugþreytu. Þess utan hef ég lítið lesið. Ég er ekki týpan til að koma miklu í verk í flugvélum eða á flugvöllum – ekki einu sinni þegar ég er einn á ferð, hvað þá með börnin í för. Líkaminn fer allur á hold (líkami= hold – lol!) og ég bara bíð þess að vera lentur. Það hefur alveg komið fyrir að ég lesi mikið eða jafnvel skrifi mikið í flugvélum en það er mjög sjaldgæft. En skýrslu skrifar maður samt. Það fyrsta á listanum yfir menningarupplifanir er uppskeruhátíð Fab Lab á Heimabyggð þriðjudaginn fyrir viku. Ég mætti þangað með Endemi, tók lítið spunalag með Dodda (á píanó) og sýndi fólki gripinn. Þar var fólk með alls konar sem það hafði gert að hluta eða öllu leyti í Fab Lab. Dan vinur minn, Iowamaður, mætti með cornhole-brautina sína, Denni – trúbadúr og bóksali – með heimasmíðuðu fiðluna sína, þarna var strákur frá 3X-stál með spíral sem á að koma í staðinn fyrir færiband í laxvinnslu (og hefur það fram yfir færibandið að laxinn er í vatni allan tímann og betra að stýra ástandi hans í vinnslunni), hressir tölvunördar með heimasmíðaða gamaldags spilakassa (með pac man og tetris og fleiru) og svo framvegis og svo framvegis. Þetta var mjög gaman – hefði kannski mátt vera formlegri uppsetning, að allir segðu frá sínu fyrir allan hópinn og ættu tíu mínútur á mann, eða svo, frekar en að maður þvældist bara á milli. Cornhole-brautin hans Dan, sem er frábær, féll t.d. aðeins milli skips og bryggju af því hún var úti á gangstétt (og við öll inni að drekka bjór). En Fab Lab er snilld og ég er með á dagskrá að fara aftur í haust og smíða annan gítar. *** Við slógum saman kvikmyndaklúbbi barnanna og kvikmyndaklúbbi fullorðna fólksins og horfðum á listræna óameríska barnamynd – Ferfættan kastala Haurus eftir japanska leikstjórann Hayayo Miyazaki. Myndin fjallar um unga konu, Soffíu, sem rekst á konu sem gengur undir heitinu Eyðinornin – sú breytir þeirri ungu í gamla kellingu. Soffía flýr út í sveit í leit að lækningu og þar rekst hún á ferfættan lifandi kastala og íbúa hans – Kalsífer (sem er eldurinn sem gefur húsinu kraft og stýrir því), Mike (sem er drengur) og galdrakarlinn Hauru – og fær vinnu við þrif, enda kastalinn mjög skítugur. Á þessum tíma geisar mikið stríð í þessum heimi – tilgangslaust og grimmilegt, háð fyrir ómerkilegan pólitískan ávinning og á sér augljósa samsvörun í Íraksstríðinu, sem leikstjórinn var mjög mótfallinn. Hauru er lykilmaður í að stöðva þetta stríð – hann breytir sér í fugl á hverju kvöldi og fer og truflar báða aðila stríðsins, en þessi hamskipti eru að ríða honum að fullu. Allt fer þetta auðvitað vel á endanum. Sagan er skemmtilega flókin og margbreytileg af barnamynd að vera. Það er ekki að boðskapurinn sé flókinn – þetta er óður gegn stríði, fyrir lífi, gegn aldursfordómum, fyrir krafti kvenna, krafti fórna, fyrir galdri og gegn tækni – en hún leyfir sér margar persónur og marga söguþræði sem þvælast hver fyrir öðrum. Teikningarnar eru allt frá því að vera fremur hversdagslegar yfir í að vera sturlaðar – allar senur með hinum ferfætta kastala eru stórfenglegar, minna á Terry Gilliam og Dali. Hún mæltist líka mjög vel fyrir hjá öllum sem á horfðu. *** Á föstudagskvöldið horfðum við Aram og frændur hans, Simon og Jocke, á Thor: Ragnarök. Hún var fín. Meiri húmor en í mörgum af Marvelmyndunum; aulalegur en vinalegur. Ég er ekki viss um að ég nenni að rifja upp söguþráðinn eða að ég muni hann nógu vel til þess. Hel – sem í myndinni er dóttir Óðins, ekki Loka – ætlar að sigra heiminn en bræður hennar, Þór og Loki, sigra hana með því að setja af stað Ragnarök (sem eyða bara Ásgarði – og hann endurfæðist ekki, a.m.k. ekki í sömu mynd og ekki í þessari (bíó) mynd). Einmitt já, HÖSKULDARVIÐVÖRUN! Er það of seint? Sjónvarpið hans mágs míns, Jocke, er með ægilega háskerpu sem gerir allt einhvern veginn of raunverulegt til að virðast raunverulegt. Þetta truflaði mig mikið. Ég mun aldrei skilja þá stefnu í kvikmynda- og viðtækjagerð að meiri skerpa sé alltaf betri. Þetta er einsog að mixa tónlist og framleiða hljómflutningstæki út frá þeirri forsendu að meira treble sé alltaf betra. Maður endar bara með illt í eyrunum. *** Ég las Kompu eftir Sigrúnu Pálsdóttur eftir að hafa séð Stefán Pálsson rifja hana upp á Facebook. HÉR VERÐA HÖSKULDAR/SPOILERAR. Það var mikið talað um það á sínum tíma að þetta væri fyrsta skáldsaga Sigrúnar og  þar með ótrúlega góð. Sem var bæði fyndið og svolítið patróníserandi. Sigrún hafði – 2016 – gefið út að minnsta kosti tvær stórar bækur. Önnur (það best ég veit) er púra sagnfræði og hin eitthvert millibilsstig. Og þar með einhvern veginn fáránlegt að tala um hana einsog byrjanda, jafnt þótt það sé með jákvæðum formerkjum. Svona einsog ef Bubbi Morthens hefði fengið nýræktarstyrk til að gefa út fyrstu ljóðabókina sína. Eða næstum því. Hvað um það – Kompa er frábær bók og hefði verið það hvort sem Sigrún hefði verið tvítugur nýgræðingur eða sjötugur reynslubolti. Hún fjallar um konu sem hefur eytt mörgum árum í að skrifa 600 blaðsíðna ritgerð þegar hún kemst að því að forsendur ritgerðarinnar (að tiltekinn myndlistarmaður fyrr á öldum hafi verið kona) standast ekki nánari skoðun. Við tekur hálfgert hrun veruleikans – stór hluti bókarinnar er einsog hálfgert fyllerí, maður nær tökum á glefsum, missir sjónar á því sem er að gerast, nær því aftur, flettir fram og til baka, ringlast, nær stjórninni og svo framvegis. Konan veit ekki hvað hún á að gera, hvað henni á að finnast, hvernig henni á að líða og svo framvegis, og lesandinn er svolítið í svipuðum sporum. Þetta gæti reyndar haft svolítið með að gera það hvernig lesandi ég er og hvernig bók þetta er (nei, er það?!) Það er lengst af mjög óljóst í hverju misskilningur konunnar er fólgin og þegar maður – ég – veit ekki eitthvað svo miðlægt í bók þá fer maður að lesa mjög hratt. Þá kviknar á glæpasagnalesandanum sem vill bara finna vísbendingarnar sínar. Textinn í bókinni er hins vegar Proustískari en svo að maður græði mikið á því – hana hefði sennilega mátt stytta um þriðjung bara með því að fjarlægja fatalýsingar (sem ég er ekki að mæla með). Þannig rekast á í henni tvö mótsagnakennd eðli – hægi ljóðræni lesturinn og hraði akkorðslesturinn. Ég var alltaf að ryðjast áfram, hægja á mér, bakka, ryðjast svo aftur áfram bara til að hægja á mér aftur. Og þannig fram á enda. Ég er síðan með kenningu um endann sem ég veit ekkert hvort að er alveg út í hött – hún gæti verið það. Þessum ósköpum lýkur á því að konan sálgar sér. Mamma hennar finnur síðuna sem konan reif úr handritinu – síðuna sem inniheldur upplýsingarnar um að listamaðurinn hafi verið karl, þær sem setja konuna svo algerlega af sporinu að hún endar í gröfinni. Þar kemur fram að listamaðurinn hafi verið kallaður í herinn – og það sé disgraise (skrifað svo). Hún fær sams konar áfall og dóttirin og hendir síðunni í ruslið. Síðar sækir hún hana aftur, skoðar hana nánar – síðan er eitthvað skemmd (nú man ég ekki hvort það var eftir ruslafötuna eða eitthvað annað – ég skildi bókina eftir í Svíþjóð og er á hálum ís). Í öllu falli eru sumir stafirnir máðir og alveg hægt að skilja disgraise sem disguise og setninguna þar með svo að hún myndi þurfa að dulbúa sig til að fara í herinn. Og þar með er hún kona. Ef ég hef skilið það sem ég las um bókina rétt er almennt gengið út frá því að hér eigi sér stað fölsun. En það kemur, það best ég veit, aldrei almennilega fram hvað sé satt þarna – hvort hafi raunverulega staðið disguise eða disgraise  – við sjáum aldrei setninguna fyrren stafirnir eru orðnir máðir – og þar með algerlega opið fyrir það að konan hafi sjálf mislesið síðuna og sálgað sér fyrir misskilning. Hana plaga efasemdir – og niðurrifsmaður – alla bókina. Ég held ekki að misskilningur eða mistök hafi drepið þessa konu heldur yfirgengilegur sjálfsefinn. Ég var næstum búinn að lesa bókina strax aftur til að staðfesta kenninguna (einsog það væri hægt), af því las hana líka í næstum jafn mikilli móðu og konan er í sjálf, en svo langaði mig að skilja hana eftir – við erum að drukkna í farangri – og lét það eftir mér. *** Mér finnst einsog ég sé að gleyma einhverju. En sennilega er það ekki neitt. Ég hef horft svolítið á sjónvarp, sem ég sleppi hérna (af því það er svo mikið talað um sjónvarp hvort eð er og þetta er víst nógu langt). Já, ég ætlaði að segja eitthvað um ferðalagið. Landarýni. Nei, ég nenni því ekki að svo stöddu. *** Gítarleikari vikunnar er Corey Harris. Mig langar svolítið í svona gítar einsog hann er með. Þetta er Alvarez Artist parlor gítar. En mér sýnist borin von að ég geti fengið hann hérna, einsog ég var að ímynda mér. Hljóðfærabúðirnar hérna eru eitthvað fátæklegri en ég hafði ímyndað mér og erfiðara að panta hingað hljóðfæri og sennilega verð ég að sætta mig bara við hvaða parlor-gítar sem ég get fundið. En Corey Harris er mjög skemmtilegur. Ég hef svolítið verið að velta því fyrir mér hvort gítarinn sé ekki orðinn períóðuhljóðfæri – svona einsog lútan – verkfæri sem er fyrst og fremst ætlað að vekja fram tónlist ákveðins tímabils. Í tilfelli stálstrengjagítarsins, rafmagns- eða kassa-, er það auðvitað 20. öldin. Corey er að spila á öðrum enda hennar tónlist sem var samin á hinum endanum. Kannski var blues-revival hreyfingin í kringum Stones í byrjun sjöunda áratugarins – sem var lykilatriði í þróun rokktónlistar – fyrsta skipti sem gítarinn varð þetta períóðuverkfæri. Ég er vel að merkja ekki að meina að þetta sé allt eitthvað ómerkilegt. Mér finnst Corey Harris frábær og gítarinn elska ég umfram önnur hljóðfæri.

createdTimestamp““:““2024-05-23T03:12:39.675Z““

Per vinur minn spurði mig á dögunum hvort ég væri enn að skrifa „fréttir frá Svíþjóð“. Ég sagði að botninn væri kannski svolítið að detta úr þessu. Þegar við komum fyrst í vor vorum við til þess að gera nýbúin með fyrstu bylgju á Íslandi og það var forvitnilegt að setja sig inn í það hvernig Svíar hafa hugsað (og ekki hugsað) sín covid-viðbrögð í upphafi annarrar bylgju og bera það saman við það hvernig Íslendingar hafa hugsað (og ekki hugsað) sín covid-viðbrögð. En maður heldur ekki áfram að bera saman sömu hlutina endalaust, samanburðinum hlýtur einhvern tíma að þurfa að ljúka? Mér þykja viðbrögð Svía skiljanlegri eftir ríflega hálfs árs veru hérna. Þeir hafa gætt sín á því að búa ekki svo um hnútana að hér ríki ógnarástand. Akkúrat í augnablikinu virkar óeðlið í hina áttina – ofsafengin viðbrögð við nokkrum smitum á Íslandi og ofsafengin reiðin sem blossar upp í kjölfarið. Helvítis skítar út um allt, fólk sem þvoði sér ekki um hendur, gekk ekki með grímu, útlendingar sem sáu sér hag í því að kaupa dýra flugmiða, dýra hótelgistingu og dýr PCR-próf til að sækja sér atvinnuleysisbætur á Íslandi, helst oft í viku – í sem stystu máli: drulluháleistar út um allt. Maður getur kallað það skiljanleg vonbrigði og eðlilega gremju og holla gagnrýni og hvað sem maður vill – en þetta er samt svolítið stjórnlaus hræðsla stundum og fólk slær frá sér í allar áttir. Ég sá meira að segja fyrrverandi þingmann halda því fram fullum fetum að búið væri að rekja öll smit til einnar verkakonu af pólskum uppruna sem átti að hafa farið í (fullkomlega óþarfa) helgarferð til heimalandsins, með þarlendu flugfélagi sem væri miskunnarlaust að bjóða þangað niðurgreiddar ferðir (sennilega í þeim tilgangi einum að dreifa smiti). Það vantaði bara að hann útvegaði heimilisfang konunnar og kveikti í kyndlunum fyrir skrílinn. Mér finnst líka og hefur alltaf fundist að hugmyndir um að loka landamærunum meira og minna um ófyrirsjáanlega framtíð séu álíka nötts og lockdown til langtíma. Kannski vegna þess að ég tilheyri einni af þessum fjölskyldum sem eru með fót í fleiru en einu landi. Ég skil vel að það sé mikilvægt að komast í sund og ræktina og þurfa ekki að vinna heima – en það er líka mikilvægt fyrir ex-pata/innflytjendur að geta hitt fjölskylduna sína, hitt menninguna sína, talað tungumálið sitt o.s.frv. Ef ástandið væri ekki einsog það er væri ég áreiðanlega búinn að taka skottúr til Íslands. Ég veit að það var þungt fyrir Nödju að geta ekki skotist til Svíþjóðar í vor – því það er einmitt svona ástand sem kallar fram langanir eftir því að vera með sínum „nærustu og kærustu“, ef maður mögulega getur. Ég veit annars ekki hvort Svíar eru almennt léttari en Íslendingar í þessu. Stundum finnst mér þeir bara almennt kærulausari. Ég talaði nýlega við mann (ekki Per, vel að merkja) sem sagðist vera að íhuga að sleppa því að bólusetja sig. Hraustur maður, ekkert að honum – hann langaði bara ekki að þurfa að díla við mögulegar afleiðingar eða beiskjuna. EF það skyldi reynast eitthvað að. Þetta snerist ekki um Astra Zeneca eða eitthvað annað. Sennilega bergmálar hérna narkólepsían sem kom upp hjá fáeinum einstaklingum eftir svínaflensubólusetninguna 2009. Okkur er mjög gjarnt að upplifa stakar sögur einsog þær væru lýsandi fyrir veruleika allra. Að hafi einhver lent í einhverju hljóti allir að vera í hættu. Sem er auðvitað satt – maður er t.d. alltaf í einhverri hættu með að vera rændur úti á götu, tölfræðilegu líkindin eru til staðar. En ef maður ætlar að vera hræddur við það er maður farinn að hræðast allt – maður getur líka orðið fyrir eldingu, dottið í bað, fengið heilablóðfall. Það er mjög hættulegt á internetöld þar sem maður getur í einu vetfangi lesið sögur um 400 manns sem urðu fyrir eldingu bara í vikunni og ályktað að hér sé um faraldur að ræða – eldingastríð – án þess að taka tillit til þess hvað jörðin er stór og fólkið margt. Fyrir utan svo hitt að tölfræðilegu líkindin af því að fara illa út covid – jafnvel fyrir hraustan ungan mann – eru talsvert meiri en að maður fari illa út úr bólusetningu. En það þarf ekki að vera í ökkla eða eyra. Manni er hollast að vera ekki værukær gagnvart vírusnum – en maður má ekki heldur láta hann gersamlega taka sig á tauginni. Ég átti minn fyrsta vinafund í marga mánuði á dögunum – við áðurnefndan Per – annars hef ég ekki hitt fólk (í eigin persónu) nema fjölskyldu Nödju síðan í október. Þetta Svíþjóðarár hefur farið að mörgu leyti öðruvísi en það átti að fara. Ég hafði séð ýmsa kosti við að vera hérna og eitthvað af því hefur staðist þótt flest hafi látið á sér standa vegna aðstæðnanna. Ég hef t.d. haft bærilegan vinnufrið, virðist mér, í öllu falli kláraði ég tvær bækur og hef sinnt alls konar öðru. Svo einhver eru afköstin og ég lofa að ég kastaði ekkert til hendinni. Kostirnir – það sem ég hlakkaði til – var hins vegar t.d. að geta farið á tónleika. Það eru blúsklúbbar í Stokkhólmi og stórar hljómsveitir spila þar mikið. Eric Bibb á sænska konu og á heima þar. Við gáfum Aram Iron Maiden miða í afmælisgjöf – þeir tónleikar eiga að vera í júlí en verða varla. Mér tókst að fara á eina skítsæmilega blústónleika í september en annars hefur náttúrulega ekkert gerst – því þótt hér sé ekki lockdown þá er ekki einsog fólk vaði bara um villt og hósti hvert á annað. Það eru takmarkanir inn í búðir og allt lokað á kvöldin og leikhúsin og bíóin og allt það lokað. Annað var nálægð við alþjóðaflugvöll. Einn stærsti gallinn við að búa á Ísafirði er að þurfa alltaf að keyra til Keflavíkur (eða Seyðisfjarðar) til að komast úr landi. Á venjulegu ári ferðast ég mikið og það er umtalsvert auðveldara að skjótast héðan á Arlanda – varla klukkustundarakstur. Það er meira að segja alþjóðaflugvöllur hérna í bænum – umdeildur aðallega vegna þess að það er taprekstur á honum, getur ekki keppt við Arlanda, sennilega verður honum lokað – og hann er litla tíu mínútna strætóferð í burtu. Svo höfðum við á prjónunum að kynnast fólki og svona, einsog maður gerir. Vorum meira að segja með fólk í sigtinu til að bjóða í mat. En í þessu ástandi er fólk lítið að hittast og svo til enginn er að opna á ný samskipti. Ef fólk hittir einhvern þá hittir það aldavini sína, eðlilega, og nýfluttir – sem þess utan eru ekki komnir til að vera – mæta mjög miklum afgangi. Og þannig mætti halda áfram. Ég hafði hugsað mér að komast á gítarnámskeið eða gítarsmíðanámskeið eða jafnvel söngnámskeið – og þótt ýmislegt af þessu hefði verið tæknilega mögulegt var ekkert af því æskilegt og þar við sat og situr. Við hjónin erum hins vegar að fara til Stokkhólms í dag. Fengum hótelgistingu í jólagjöf og ætlum að nýta okkur gjafakortið. Búin að bóka borð á veitingahúsi – þau eru opin til hálfníu – og ætlum að gera okkur glaðan dag. Og veitir ekki af – ég hef verið afar þungur síðustu vikur, þótt ég sé bærilegur í dag og í gær. *** Plata vikunnar er Final Sessions 1963-4 með Sonny Boy Williamson. Sonny Boy var munnhörpuleikari, fæddur 1912, og lést ári eftir að þessum upptökum lauk, 52 ára – en leit út einsog hann væri áttræður að minnsta kosti og hafði gert lengi.  Hann hét Aleck „Rice“ Miller þegar hann fæddist og tók upp þetta nafn eftir öðrum blúsmunnhörpuleikara, John Lee Curtis Williamson, sem var tveimur árum yngri en reis til frægðar á undan Rice. Eru þeir stundum kallaðir Sonny Boy Williamson I (John Lee) og Sonny Boy Williamson II (Rice Miller) til aðgreiningar. Sá fyrrnefndi er aðeins minni fígúra í munnhörpuheiminum en sá síðarnefndi – en það munar ekki mjög miklu og þeir þykja báðir miklir frumkvöðlar í stíl og tækni án þess að ég þekki mikið hvernig munnharpan virkar. Sjálfur sagði Rice að hann hefði tekið upp þetta nafn á undan John Lee – sem virkar undarlega í ljósi þess að Rice hét alls ekki Williamson að eftirnafni – og flestum þótti þetta víst frekar lélegt af honum. En hann var tónlistarséní fyrir því. Platan er tekin upp í tvennu lagi. Fyrra sessjónið er tekið upp „in Europe“ einsog stendur aftan á umslaginu, síðla árs 1963, en það síðara í Chicago í ágúst 1964. Svo virðist sem í Evrópu hafi hvorki verið lönd, borgir né dagatal. Í Chicago var hins vegar ekkert manntal og því veit enginn hver lék á trommur og bassa á þeirri hlið plötunnar. Annars er þetta ofsalegur mannskapur. Í Evrópu er Matt Guitar Murphy á gítar – sem margir kannast sennilega við úr Blues Brothers myndinni,  en lék líka með Howlin Wolf, Memphis Slim og fleirum, og er næstfrægasti blúsgítarleikari Chicago-blússins á eftir Buddy Guy, sem leikur einmitt í Ameríkulögunum. Lafaeytte Leake leikur á píanó í Ameríku – en sennilega er enginn honum fremri nema ef vera skyldi þá Otis Spann sem leikur í Evrópulögunum. Þar er svo Willie Dixon sjálfur á bassa og Billy Stepney á trommur. Öll lögin eru frábær og flutningurinn óaðfinnanlegur. Þetta er einfaldlega meistaraverk. Það eru tvær útgáfur af Mattie is My Wife, ótrúlega flott og einföld útgáfa af Robert Johnson laginu Kind-Hearted Woman – en eftirlætið mitt er sennilega langdregin útgáfa af gospelslagaranum Milky White Way. Ég vissi það ekki þegar ég byrjaði að skrifa þetta en platan er ekki á Spotify og ekkert laganna af henni er á YouTube. Så det så, einsog maður segir – ég hef ekkert upp á að bjóða. Nema kannski þetta live-myndband af Sonny Boy að spila allt önnur lög með allt annarri hljómsveit í sænska sjónvarpinu.

id““:““d5jer““

Skrítnasta plötuumslagið. *** *** Ég skil ekki alveg hvað markaðsmaðurinn á bakvið þetta var að spá. En þetta venst mjög vel og verður bara frekar töff þegar á líður. *** Powerage hefur á sér orð fyrir að vera Bon-plata. Það kemur til af allavega tvennu. Í fyrsta lagi eru það textarnir – Bon yrkir hreinan og þjáðan verkalýðsblús og hann er aldrei betri. AC/DC eru hvítt hyski í konungdæmi hennar hátignar, fulltrúar utangarðsmanna – hinna fullu, gröðu, kjánalegu, kátu – og þeir gefa engan afslátt. Þetta er maður með skilaboð sem yrkir einsog hálfstífur TS Eliot eftir kvartpott af Jack Daniels. *** I know that it’s evil

I know that it’s gotta be

I know I ain’t doing much

Doing nothing means a lot to me

Living on a shoestring

A fifty cent millionaire

Open to charity

Rock ‘n’ roll welfare

Sitting in my Cadillac

Listening to my radio

Suzy baby get on in

Tell me where she wanna go

I’m living in a nightmare

She’s looking like a wet dream

I got myself a Cadillac

But I can’t afford the gasoline

I got holes in my shoes

And I’m way overdue

Down payment blues *** Á þessum tíma lifðu þeir hátt en áttu enga peninga. Þeir voru á viðstöðulausum túr um heiminn og peningarnir fóru allir í það – alltaf þegar þeir komu heim voru þeir blankir og þurftu að leggja af stað aftur. Og fannst það svo sem ekki leiðinlegt. Down Payment Blues er þannig sjálfstætt framhald af Ain’t no fun (waiting around to be a millionaire) af Dirty Deeds. *** I ain’t done nothing wrong / I’m just having fun syngur Bon í Riff Raff. Það er rosalega beisik – ef Bon væri nýaldarmaður að kjarna sig yrði þetta mantran hans. *** Og Bon átti vel að merkja aldrei eftir að verða milljónamæringur og hann átti aldrei fyrir bensíninu á kadiljákinn. AC/DC fóru ekki að skapa neinar formúgur fyrren eftir að hann [SPOILER ALERT!!!!] dó. *** En hafi nokkur maður skemmt sér jafn vel og Bon Scott skal ég hundur heita. *** Powerage er líka fyrsta platan sem Cliff Williams spilar á – bassaleikarinn, sem sagt. Og síðasta platan sem þeir gáfu út á meðan ég var enn ófæddur (hún kemur út 5. maí en ég fæðist rétt tæpum tveimur mánuðum síðar). **** Powerage er líka eftirlætis AC/DC plata Keiths Richards, sem hefur ábyggilega merkingu fyrir einhverjum (ég er voða lítill stónskall). Og útskýringin er í sjálfu sér voða einföld – gítarinn á plötunni er stónslegur. Youngbræðurnir hafa aldrei verið jafn Keithskotnir. Hlustið bara á þetta: *** *** Og þá komum við að annarri ástæðunni fyrir því að þetta er Bonplata: Það fer miklu minna fyrir Angusi. Nú er litli maðurinn í skólabúningnum einhver plássfrekasti gítarleikari sögunnar – á eftir Jimmy og Slash (ég tel ekki með gítarleikara sem fronta bönd sjálfir eða koma fram undir eigin nafni) – og þess vegna fer ekki beinlínis lítið fyrir honum á Powerage. En talsvert minna. Bitið í sándinu er aðeins minna og hann (og/eða Malcolm) eru meira í því að fylla upp í fyrir Bon með óuppáþrengjandi skrauti – og Bon nýtir plássið í botn. Hann tekur meira að segja Robert Plant óp í Kicked in the Teeth! *** *** Powerage er ein allra besta AC/DC platan, en hún er það þrátt fyrir að hún sé hvergi nærri besta gítarplata AC/DC, sem þó er mjög gítardrifin hljómsveit. En þá vill reyndar til að meira að segja á slæmum degi er Angus miklu betri gítarleikari en rest og rusl. Og langtum betri en Keith, sem er ekkert nema lúkkið. *** Það er ein undantekning á þessu með gítarleikinn. Og eiginlega er einsog hún sé forsendan fyrir öllum hinum rólegheitunum. Maður fær það nefnilega svolítið á tilfinninguna að Youngbræður hafi einfaldlega sett allt púðrið í sömu sprengjuna. Og þvílík ósköp. Þessi live-útgáfa er svakaleg. *** *** Sjáiði líka dýrið! Það rennur gerræðisleg rokksturlun um æðar þessa manns.  Sjáiði þetta! #ACDC

indentation““:0}}

The french speaking magazine LaPresse interviewed me recently about my novel Hans Blær – Troll, in french, just out from Editions Métailié. I answered in English, since my French is not up to snuff. If you wish to read the interview in French , as it was published (edited for brevity), you can find it here – otherwise, my answers in English are here below.
a) Why did you choose to create this character that refuses traditional gender representation ? One of the major focuses of my work has always been the formation of identity – how we are who we are and who we are allowed to be. Agnes (and others) in Illska has her „foreignness“ pushed on her; Áki and Leníta in Heimska have their egos bloated by constant attention/surveillance etc. In Troll I wished to examine what happens when someone dons an identity people disaprove of. Most identities that are marginal or offensive to someone are maintained by building groups and alliances – by creating an „Us against the world“ mentality, so that the participants feel they are fighting the good fight (sometimes – as in the cases of trans people – that is true; in other cases, such as nazi-trolls, it is not – but the feeling within the group is similar). What I wanted to give Hans Blær was an almost irreconcilable identity – two extremes, where one would almost attack the others – and the only way to do that was to give them an intense desire to not fit into society, to be an outlier, a punk with an oppositional disorder, a trans -gressor, to never ever fit into any group, hated by the ultra-right for being trans and hated by the trans for being ultra-right. And thereby, in some strangely contorted way, free – an absolute individual. b) In French, there is a specific pronoun to refer to people who identify as non binary ; in English, it’s they/them/theirs. What is used in Icelandic ? The most common one is „hán“ – but there are a few others floating around. Hán is the one used in the book (but Hans Blær being Hans Blær they conjugate it in their own peculiar way). 2. Hans Blaer is a person who does and thinks and acts as they wish, but there are consequences to these actions, one of them being that the police, among others, is looking for them (even though the police is not the one that scares Hans the most, maybe!)… How much liberty do you think we have in our so-called free-world where it appears that anyone can say whatever they want? We have more power to express ourselves than ever before in history. Anyone with a cheap smart phone and a twitter account can say whatever they want – and has the possibility to go viral. At the same time we are faced with the impossibility of cutting through the noise. If you’ve ever tried reading (different texts) aloud with many other people in the same room you will know the bird-cliff effect – where eventually the only person you hear is yourself, everything else is just noise. This is what social media is. A bird cliff. We are also faced with different possibilities of outrage and social cancellation or even prosecution and – in dictarships – prison or death. If we leave the dictarships aside – as to a certain extent different rules apply there – these are not societies that breed serious or difficult thinking. They refrain from the uncomfortable and breed simple soundbytes, black and white slogans etc. I think there is a general feeling in Europe today of polarization, or the formation of many different insular group-identities, much along the same lines as in the United States, where people are mostly speaking to their own in-groups, their peers, and have little understanding or tolerance for the peculiarities or characteristics of people in other groups. 3. Do you think that social media are dangerous in a way that they can provide an audience to just about anybody, even people who can create toxic debates? I think we’ve always had the audience – and the same toxic discourse has been going on. But it has happened in private. The difference with social media is that a large portion of our private lives are now no longer private – they are a performance intended for others (and as such, maybe always magnified). This can and does infuriate, for good reason. Our private voices – or the voices in our in-group – have always contained much malignance for other groups, both in jest and in seriousness. Not to detract from the toxicity of speaking ill of others, toxic discourse (along the lines of „all men are bastards“/ „all women are whores“) has also been a conduit for general frustration. We can become more polite, more inhibited in our expression, but that in itself will not rid us of the frustrations that triggered the vulgarities. As for social media, in particular, of course it is dangerous. But so is the ocean, so is childbirth – and so is literature. We need to be much more willing to deal with the danger of being alive and to look at eachother unflinchingly and with compassion. 4. Each one of your novels is audacious and provocative in its own way ; what do you think the role of literature should be in general and in 2021? I don’t think I can – or should – speak for literature in general. I can participate in this great project of world literature like a rain drop participates in the rain and try to think of my own flight through the atmosphere and where I wish to land and make a splash. I am continuing on my path – giving my heart to the stories that I see around me, and trying to understand the nature of identity and groups, of love and selfishness, fear and rage. I have a new novel coming out in Iceland in the fall, about the writer Eiríkur Örn, who is a dishonourable and cancelled writer in Reykjavík. It is a not an autobiography, though it may sound like it, it’s a fictionalisation of the repercussions of publishing Hans Blær and becoming a transgressor – of sorts – where it (predictably) offended the right, which doesn’t want to see trans identities, and angered the left, that didn’t want a cishetero white male author writing about trans identities, especially not transgressive ones. So the identity in this novel – up on the chopping block – is my own.

createdTimestamp““:““2024-05-24T11:23:15.245Z““

Páskalaugardagur. Ég tek umræðuna á Íslandi nærri mér. Og stöðuna. Ég hafði oft á orði síðasta vor að við þyrftum að gæta okkar – það væri mjög stutt í að við færum að líta á útlendinga (eða aðra hópa) sem skítuga smitbera, og dýrka hið hreina Ísland (eða hugmyndina um hið hreina Ísland). Það er ekki ný saga heldur gömul – og sama hvort það eru gyðingar eða sígaunar eða bara utanbæjarmenn. Akureyringar kunna að þvo sér um hendurnar og smita ekki en það gildir auðvitað ekki um Húsvíkinga sem skíta þar sem þeir éta og hósta í lófann áður en þeir heilsa fólki með handabandi. Og svo er það auðvitað niðurstaðan – gerðist ekki á einni nóttu en við erum búin að tala okkur upp í það. Og satt að segja held ég að fólk óttist orðið meira að einhver af „hinum“ komi af stað smiti svo sundlaugarnar loki, frekar en að það óttist að einhver deyi – ástandið er farið að fæða sjálft sig, einn óttinn drífur annan. Þeir sem vilja komast í ræktina vilja að fólk fari ekki á barinn og þeir sem vilja fara á barinn vilja að fólk sleppi ræktinni. Og tortryggnin er alger. Næg til að yfirvöld læsi fólk inni svo það brjóti ekki lög. Harðar aðgerðir, einsog þeir sem eru í framkvæmd núna með þessi sóttkvíarhótel – og mér þykir brjóta í bága við þau grundvallarmannréttindi að manni sé ekki refsað fyrir þá glæpi sem maður gæti framið heldur þá sem maður sannarlega hefur framið – gera auðvitað gagn. Það er ekki vandamálið. Hvort þær gera nógu mikið gagn – það er enn mikið af fólki að koma frá öruggum löndum og þess utan er möguleiki að komast í gegnum skimanir og sóttkví og smita samt, það eru áreiðanlega einstaklingar á undanþágu frá sóttkví (t.d. vegna annarra veikinda – eða börn ein á ferð) og þegar einn einasti er kominn inn getur hann hóstað á heilan fótboltavöll og sett samfélagið á hliðina – er svo önnur spurning. Og ef maður treystir ekki fólki til að fara sjálft í sóttkví hvers vegna treystir maður því þá fyrir að vera koma beint frá einhverju öruggu landi? Lögreglan gaf í skyn að hún léti fólk sýna sér myndir úr símanum til að sjá hvar það hefði verið. Sem er auðvitað líka snargalið. Svo er aftur spurning hvaða kostnað hinar hörðu aðgerðir hafa í för með sér umfram það gagn sem þær gera. Óttinn er hungruð skepna og hún verður aldrei mett svo vel sé. Það er ábyrgðarhluti að leyfa henni að leiða samfélagið. En sem sagt. Þegar ég var að hugsa þetta síðasta vor hafði ég ekki alveg gert mér grein fyrir því að þetta gæti náð til mín, svona prívat og persónulega. Samt var löngu ákveðið að við tækjum ár í Svíþjóð. Ég hafði bara ekki hugsað út í það. Ég var og er hlynntur sóttkvíarreglum og hefði ekki talið eftir mér að sitja tvær vikur í sóttkví – hef tekið það upp stoltur í samræðum að á Íslandi sé bara fimm daga sóttkví og fólk testað tvisvar. Hið fullkomna fyrirkomulag í erfiðum aðstæðum. En ég vona að ég muni ekki láta það yfir mig ganga að vera læstur inni fyrir að geta hugsanlega orðið sekur um glæp. Það er undarleg tilfinning því raunmunurinn er auðvitað ekkert ofsalegur – ég hafði séð fyrir mér að leigja sumarbústað og hanga þar. Og hugsanlega jafnvel fara á hótel – sérstaklega ef ég þyrfti einn í sóttkví. Nadja er bólusett og ég veit ekki hvort hún eða börnin þurfa að fara í sóttkví. Ég veit ekki hvað það þýðir fyrir okkur, sem þó munum ferðast saman ef þess er nokkur kostur. Eða hvað það muni þýða. Ég hef hins vegar ekki nema takmarkaða trú á því að reglur verði rýmkaðar eða hysterían minnka á næstu mánuðum – mér finnst þvert á móti að nú þegar loksins birtir til sé fólk farið að æsa sig upp sem aldrei fyrr, og krefjist harðari og harðari aðgerða. Það hafa aldrei verið jafn strangar reglur á Íslandi og núna. Sem meikar bara ekkert sens. En ég sem sagt tel það ekki eftir mér að sitja á gluggalausu hótelherbergi í fimm daga sjálfur – ég er mjög góður í þannig hangsi og hef litla þörf fyrir útivist. Been there, done that. En það þyrfti sennilega eitthvað meira til þess að ég legði það á börnin mín. Hins vegar geri ég það ekki undir neinum kringumstæðum ef ég fæ ekki að gera það sjálfviljugur. Ef það er ekki glæpur að ferðast er óásættanlegt að fólki sé refsað fyrir það. Það er bara ekki flóknara en það. Þórólfur segir í viðtali að „ekki komi til greina að breyta þessu fyrirkomulagi“ – og í sjálfu sér áhugavert að hann talar einsog hann ráði þessu sjálfur, frekar en að hann sé ráðgjafi stjórnvalda sem þurfa þess utan að halda stjórnarskrá og alþjóðasáttmála, sem er alls ekkert víst að bakki upp svona aðgerðir. En ef í ljós kemur að fyrirkomulagið er löglegt og því verður ekki breytt finnst mér líklegra en ekki að ég reyna að finna út úr því hvort ég geti ekki verið áfram í Svíþjóð a.m.k. þar til íslenska ríkið fer aftur að virða lágmarks mannréttindi. Svíar hafa verið kolgeggjaðir í sínum covid-viðbrögðum – en þeir eru kannski búnir að taka út mestu klikkunina. Það hlýtur líka að koma að því þessu neyðarástandi verði aflýst á Íslandi – ef það er ekki komið með haustinu þá næsta vetur. En ég lít sennilega svo á að hið klosslokaða Ísland sem fólk kallar eftir sé þá klosslokað fyrir mér líka. Ég hef engan áhuga á neinum undanþágum í því. Mér finnst þetta bölvanleg tilhugsun – ég hef verið með mikla heimþrá alveg síðan við komum. Ég er mjög heimakær maður, sakna vina minna og fjölskyldu og er elskur að dótinu mínu sem varð eftir.  En kannski maður hugsi þá bara um Svíþjóðardvölina sem framlengda sóttkví – og líti svo á að það sé bara alls ekki eðlilegt að maður ferðist á milli landa, jafnt þótt maður eigi rætur og heimili annars staðar. Sennilega telja flestir sem sitja í sóttkvíarfangelsinu í Þórunnartúni að þeir hafi ekki minna réttmætar ástæður til þess að ferðast á milli landa en ég. *** Ég er hjá tengdafólki mínu í Rejmyre en plötusafnið á Ísafirði, svo það verður ekki eiginleg plata vikunnar. Hins vegar er hérna lag sem var gefið út á 78 snúninga hljómplötu árið 1927 (sem ég á ekki í mínu safni). Lagið er hálft á hvorri hlið enda tæplega sex mínútur og bara pláss fyrir þrjár á hverri hlið. Það er Washington Philips sem leikur á einhvers konar sítar og syngur – gospel-blúsinn Denomination Blues. Þetta er töfrandi sánd – og nístandi krítík á kirkjuna.

id““:““5j16a““

*** Í dag eru liðin 30 ár frá því Appetite for Destruction kom út. Síðan þá hefur fátt verið gert af viti. *** Því fögnuðu Gunsliðar með tónleikum á Appollo í New York í gær. Það var hægt að hlusta á þá í streymi en engir miðar voru seldir – bara boðsmiðar. *** Í dag förum við Aram líka til Berlínar. Í augnablikinu er ég að leggja lokahönd á þýðingu á texta eftir vinkonu mína Maju Lee Langvad, sem er gestur á bókmenntahátíð í Reykjavík í haust. Aram er að spila nýja Zeldaleikinn í Nintendotölvu frænda síns. Það hefur ansi margt breyst frá því ég spilaði gamla Zeldu leikinn – sem kom einmitt út ÁRI ÁÐUR en Appetite. *** Ég sá að útgefandi nokkur í Danmörku var að velta því fyrir sér hvers vegna rithöfundar ferðuðust svona mikið á hátíðir og þvíumlíkt og tók það til mín, enda ferðast ég frekar mikið. Við þessari spurningu útgefandans eru tvö svör. *** Annars vegar er ekki endilega leiðinlegt að ferðast – til dæmis á bókmenntahátíðir í skandinavískum útnárum – því staðirnir geta verið áhugaverðir sem og fólkið sem maður hittir þar. Ef ég hefði ekki þegið boð á Nordic Summer hátíðina í Jurbarkas sumarið 2008 hefði Illska sennilega orðið allt öðruvísi bók. *** Hins vegar borga útgefendur afar illa, einsog þeim danska hlýtur að vera ljóst – það er lítið upp úr þessu að hafa nema fyrir Rowlingana. Ég hef talsvert af tekjum mínum af upplestrum og þátttöku í bókamessum og bókmenntahátíðum. Og mig munar satt best að segja um hvern tíkall. *** Frá Västerås er það að frétta að rúmenska konan sem betlar fyrir utan Råby Centrum er farin að selja bláber. Ég man aldrei hvað hún heitir og er of feiminn til að eiga í miklum samskiptum við hana en Nadja hefur svolítið kynnst henni og hún man alltaf eftir okkur þegar við komum. Sennilega er þetta fimmta eða sjötta sumarið sem hún kemur. Hún er jafnaldri okkar og á þrjú börn í Rúmeníu sem hún skilur eftir. Þetta er bölvað helvítis líf og hún virkar ansi þreytt þótt hún sé líka glaðvær. *** Leiðinlegast er að sjá þegar fólk fer að þrátta við hana eða útskýra fyrir henni yfirlætislega hvernig hún gæti komið lífi sínu á rétt ról – einsog hún hafi aldrei velt því fyrir sér sjálf. Svíar geta verið alveg rosalegir útskýrendur. Um daginn stóð yfir henni einhver kelling í ábyggilega hálftíma, með fingur á lofti. Ég hugsa að hún hafi meint vel. *** Við keyptum auðvitað bláber til að hafa með morgunjógúrtinni. Þau voru góð. Kannski ekki jafn stórfengleg og Costcoberin, sem ég heyri svo vel af látið, en vel frambærileg engu að síður.

createdTimestamp““:““2024-05-19T11:58:23.592Z““

Bók vikunnar var Meira eftir Hakan Gunday. Ég ætla að skrifa um hana fyrir Starafugl svo ég segi ekkert um hana sérstaklega hér, annað en að hún meðmælist hart. Hún hafði af mér hin stóru Prix Medici verðlaun í Frakklandi – ég var tilnefndur fyrir Illsku – og ég get bara eiginlega ekkert verið beiskur yfir því, þetta var bara mjög verðskuldað hjá Gunday. „Mikilvæg bók“, einsog maður segir. Allir ættu að lesa hana. *** Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness voru veitt í fyrsta sinn í síðustu viku. Reyndar voru önnur verðlaun sem hétu þessu sama nafni fyrir svona 15-20 árum. Þau voru veitt kannski tíu sinnum fyrir nafnlaus innsend handrit og ráku sig í strand. Bæði voru þau veitt höfundum sem voru ekki í in-crowdinu, sem var vandræðalegt – Eyvindur P. Eiríksson fékk þau eitt árið en fékk svo ekki einu sinni listamannalaun til að klára framhaldið – og svo spurðist út að einhver handrit sem unnu hefðu alls ekki verið send inn í keppnina heldur verið dregin upp úr skúffum útgefenda og höfundunum bara boðin verðlaunin. Af því innsendu handritin voru ekki nógu góð. Svo sögðu sumir að bækurnar væru bara alls ekki nógu góðar – eða að gæði þeirra væru almennt ekki nógu góð, þótt það væru góðar þarna á milli. Þau enduðu einhvern veginn alveg án nokkurs trúverðugleika. En þessi nýju HKL-verðlaun eru alþjóðleg og fyrsti verðlaunahafinn er Ian McEwan. Ég hef verið mishrifinn af bókum hans – ég var hrifinn af Saturday og Hnotskurn en minna af öðrum. Margir hafa orðið til að segja að það sé hálftilgangslaust að veita svona frægum höfundi enn ein verðlaunin. Þá hefur verið fundið að því að hann sé hvítur karl (classic aðfinnsla), að hann skrifi á ensku og hafi ekkert við peningana að gera. Aðrir hafa sagt að það sé taktískt að veita McEwan verðlaunin fyrstum svo þau hafi ákveðna þyngd, svo megi taka vogaðri ákvarðanir síðar. En þetta fer auðvitað allt eftir því hvaða tilgang verðlaunin eiga að hafa. Hvaða  prófíl maður vill handa þeim. Ég held það fari illa að veita McEwan verðlaunin ef maður ætlar ekki bara að hafa þetta einhvers konar heimsmeistarakeppni í sagnamennsku – að veita þau bara McEwan týpunum. Það þýðir ekki að verðlaunahafar þurfi allt að vera hvítir karlar frá Vesturlöndum en það þýðir að maður svíkur ekki ákveðna meinstrím fagurbókmenntir sem njóta metsölu, hafa fengist samþykktar af markaðnum – Margaret Atwood getur fengið þau, Chimamanda Ngozi Adichie, Hanif Kureishi, Junot Diaz eða Hilary Mantel kæmu öll til greina. En það myndi gerast sjaldan ef nokkurn tíma að höfundurinn væri manni óþekktur eða viðkomandi væri lítið sem ekkert þýddur eða að bókmenntirnar væru fagurfræðilega erfiðari – Jelinek-týpurnar gætu ekki fengið þetta. Verðlaun geta verið einföld meistarakeppni – þá er ekkert skrítið að sama fólkið vinni aftur og aftur. Öll slík hugsun er afleiðing elítisma og þá eru í alvöru ekki nema svona 10 verðugir höfundar í heiminum á hverjum gefnum tíma – ekki að það séu bara 10 höfundar sem skrifa frábærar bækur heldur eru bara 10 sem sameina að skrifa frábærar bækur og vera miðlægir í kastljósinu. Verðlaun geta líka verið hugsuð til þess að ýta fólki/verkum inn í þetta kastljós – það er oft hugsunin á bakvið nóbelsverðlaunin og þess vegna er svo mikil fýla þegar einhver einsog Bob Dylan fær þau, ekki vegna þess að hann sé ekki frábær heldur vegna þess að virkni verðlaunanna er þá ekki sú sem fólk býst við af þeim. Halldór Laxness fékk þetta bömp og með því fylgdi sæti í eilífðinni. Svo geta verðlaun verið menningarpólitísk í þeim skilningi að þau hampi ákveðinni fagurfræði umfram aðra. Þau gætu t.d. hampað einfaldri sagnalist eða margbrotinni, hampað ljóðrænum sögum eða raunsæjum stíl, hampað vísindaskáldskap, skáldskap kvenna, skáldskap minnihlutahópa, pólitískum skáldsögum eða framúrstefnuljóðum. Bókmenntaverðlaun HKL eiga að veitast höfundi sem stuðlar að endurnýjun sagnalistarinnar – en fyrir það fékk HKL nóbelinn á sínum tíma. Að velja Ian McEwan er að ryðja sér rúms á Bookersvæðinu. Metsölubókasvæðinu. Svo getur vel verið að það verði rokkað á milli popúlískari ákvarðana og vogaðri og þá er maður meira á Nóbelsverðlaunasvæðinu – en þótt þau séu löskuð er ansi mikið af plássinu á því svæði þegar tekið. Verðlaunaupphæðin – 2 milljónir – gefur nú líka til kynna að það eigi að taka þessu mátulega alvarlega. Sennilega er þetta vikukaup fyrir mann einsog McEwan. Dugar ekki til að kaupa sér nýjan bíl. Aðallega finnst mér þessi bestsellerismi leiðinlegur. Færri og færri titlar rata út úr bókabúðum – ekki bara færri og færri bækur, heldur taka metsölubækurnar yfir stærri og stærri hluta markaðarins, og þær gera það í krafti áherslu bókmenntaheimsins á að búa til hype í kringum sömu hlutina aftur og aftur. Hér er ekki bara við forlögin að sakast – þótt þau hafi meira vald til að spyrna á móti en flestir – heldur er þetta meinsemd sem nær miklu víðar. Verðlaun sem varpa ljósi á eitthvað nýtt frekar en að fagna því sama þúsundasta skiptið í röð væru viðnám við þessari þróun. *** Ég tók mig til og horfði á Square eftir Ruben Östlund í vikunni. Hún var mögnuð þótt hún hafi ekki verið jafn óþægileg og Play eða Turist (Force Majeure). Kannski var of miklu hrúgað í hana til þess – Play og Turist voru ísmeygilegri, hentu fram einni forsendu og létu mann svo dvelja í henni og kveljast lengi án þess að það gerðist neitt mikið meira. Square er meira tårta på tårta, einsog Svíarnir mínir segja, ofhlaðin – ástandið getur alltaf orðið aðeins skrítnara, aðeins óþægilegra. Mér finnst það ekki endilega verra en það skapar allt annað andrúmsloft og maður tekur hana öðruvísi inn þótt stíllinn og tónninn séu kunnugleg úr fyrri myndum Östlunds. Áhugaverðasti búturinn – eða einn af þeim áhugaverðari – sem hefði getað borið heila mynd í raun, er hlutinn með auglýsinguna sem listasafnið gerir. Listasafnið fær auglýsingastofu til að gera fyrir sig auglýsingu til að vekja athygli á myndlistarverki sem heitir The Square. The Square er einfaldlega ferningur á gólfi sem maður getur stigið inn í og þar eiga allir að njóta sömu réttinda og hafa sömu skyldur gagnvart hvert öðru. Auglýsingastofugosunum finnst þetta augljóslega frekar glötuð og tilgerðarleg hugmynd og segja erfitt að gera fólk spennt fyrir henni. Þeir búa svo til auglýsingu þar sem ung hvít ljóshærð stúlka, betlari, er sprengd í loft upp í miðjum reitnum. Stjórninni finnst þetta svolítið pólitískt vandræðalegt og „mycket problematiskt“ – en svo kemur stjórinn inn, aðalsöguhetja myndarinnar, og hann hefur eiginlega of mikið að gera og nennir ekki að láta stressa sig með þessu, lítur í fimm sekúndur á tillöguna og segir svo bara „jájá, frábært, einmitt það sem við vorum að spá“ og gengur á dyr. Svo auglýsingin er framleidd með samþykki stjórans, sem enginn þorir að andmæla. Einhverjum tíma síðar verður auglýsingin svo viral og stjórinn þarf að svara fyrir þessi ósköp. Á blaðamannafundi stendur upp brún kona með hreim og spyr hvort hann hafi enga samlíðan með betlurum, hvort hann sé bara samviskulaus, og hann umlar eitthvað, biðst afsökunar, þetta sé auðvitað ekki gott, hann ætli að segja af sér. Næst stendur upp blaðamaður – hvítur karl – og spyr hvort hann ætli bara að segja af sér, hvað hafi orðið um tjáningarfrelsið, skyldu safna til að standa með hinu erfiða þegar eitthvað svona smotterí getur orðið til þess að setja fólk alveg af sporinu. Og hann bara umlar og segir ekki neitt. Það sem slær mann er sannferðugleikinn á bakvið þennan skort á núönsum. Að maður geti ekki gengist við að eitthvað hafi verið mistök, maður hafi slegið feiltón, án þess að feiltónninn sé ófyrirgefanleg katastrófa. Öll svör verði vandræðalegt uml. Það er ekkert í stöðunni nema að segja af sér og hverfa inn í skuggana eða rísa á fætur með hnefa á lofti til að berja á … betlurum … og góða fólkinu í nafni málfrelsisins. Eða einmitt bara umla og deyja. Ég festist kannski líka í þessari senu vegna þess að ég var nýbúinn að rekast á nokkurra vikna gamalt mál femínistans Camille Paglia. Paglia – sem hefur á stundum talað um sig sem trans – var í viðtali neikvæð á það sem hún kallar trans-bylgju samtímans: I am highly skeptical about the current transgender wave, which I think has been produced by far more complicated psychological and sociological factors than current gender discourse allows. Þá hefur hún líka „talað niður“ metoo hreyfinguna og fleira. Afleiðing þessa var ákall um að hún yrði rekin úr stöðu sinni sem háskólaprófessor sem fleiri þúsund manns skrifuðu undir. Nú er ég ekki endilega sammála Paglia og raunar ekki alltaf alveg viss hvað hún er að fara. Hún er broddfluga í vestrænni menningu – hefur verið talin meðal stærstu menntamanna samtímans – og hefur gert sér far um að hafa óþægilegar, ögrandi skoðanir. Mörgum finnst það sennilega bara vera eitthvað edgelord-dæmi sem gangi út á að fá athygli – það er yfirleitt svarið – en ég held að samfélag sem á ekki fólk einsog Paglia, sem setur spurningarmerki jafnvel á viðkvæmustu stöðum, óttast ekki alltaf að hafa (sögulega?) á röngu að standa og skirrist ekki við að nefna nöfn eða gagnrýna þá sem standa henni annars nærri í fræðunum (það er erfitt að finna frægan femínista sem hún hefur ekki einhvern tíma gagnrýnt), ég held að þannig samfélag úrkynjist og verði einfeldningslegt og sannast sagna bara dálítið fasískt. Krafan um að fá að svara þessum spurningamerkjum – að fá að takast á við þau, fá plattform til þess að takast á við þau o.s.frv. er mjög eðlileg. Samfélag þar sem allir eru einsog Paglia er ekki heldur samfélag neinna hugmyndafræðilegra átaka heldur samfélag sams konar átomatona og þar sem enginn spyr neins. Það verður að vera díalógur og hann þarf að geta átt sér stað  án þess að það sé krafa um að allir séu sammála . Þetta er það sem krakkarnir á twitter kalla cancel culture – sem er hugtak sem maður sér næstum jafn oft í neitunarstaðhæfingum („það er ekki til neitt cancel culture“) og maður sér góða fólkið („there’s no such thing as PC and if there is it’s only correctly applied to nazis“).  Og sem betur fer tekst þetta ekki alltaf – þótt krafan um brottrekstur sé ekki gáfulegri fyrir vikið – Paglia hélt vinnunni, en það munaði litlu. *** Ég keypti mér stuttskífuna Bensínið er búið með Langa Sela og Skuggunum á vínyl. Þetta er auðvitað klassa rokkabillí og búgí og ekkert verið að finna upp hjólið – en þetta hittir mig alveg í hjartastað. Hingað til hef ég verið ákafastur yfir síðasta laginu, Salt & Pipar. „Ég nota salt og pipar  / (salt og pipar) / því þú ert bara alltof sæt“. Myndmálið í þessu er áhugavert. Hann notar salt og pipar því hún er alltof sæt. Þetta er auðvitað heterónormatíft – rokkabillí er það eiginlega alltaf,  ekki síst þegar það er drag einsog hjá John Waters. Ég hef einhvern tíma látið hafa eftir mér að ef ég er með ofurkraft sé það að geta getið mér til um hvar fólk staðsetur sig á kynjarófinu út frá því hvað það setur á diskinn sinn á morgunverðarhlaðborði. Þar koma salt og sæta einmitt mjög sterk til leiks – það er (alla jafna) maskúlín að taka beikon og pulsur, feminín að taka jógúrt, ávexti og sætabrauð. En líkt og í kynjakerfinu eru áhugaverðar undantekningar – það er t.d. maskúlín að hrúga á diskinn sinn bökuðum baunum í dísætri tómatsósu og það er feminín að taka þykkar sneiðar af söltum camembert. (Óþarfi er að taka fram að maskúlín/feminín eiginleikar dreifast svo ójafnt á fólk og eru ekki endilega í samræmi við önnur kyneinkenni, kyngervi eða kynvitund – og engir tveir bera sig eins að við hótelmorgunverðarhlaðborð). Karlmaður í leðurjakka með gel í hárinu notar salt og pipar og lokkaprúður kvenmaður í sixtískjól er augljóslega alltof sæt. Myndmálið er líka áhugavert út frá því að bæði sætan og seltan eru bragðbætir – að baki þeim er annar kjarni, hvort sem það er kjöt eða fiskur eða brauð eða annað. Manneskjan að baki er ekki endilega skrautið sem hún stráir yfir sig – en án þessa skrauts væri hún kannski bragðdauf. *** Kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta fórum við Aram Nói á Avengers: End Game. Það var stappfullt út úr dyrum í Ísafjarðarbíó, sem gerist nú ekki alveg nógu oft núorðið, og stemningin var æðisleg. Aram og besti vinur hans, Hálfdán, höfðu eytt deginum í að tússa hver á annan – hann var með „Marvel“ á bringunni, minnir að það hafi staðið „Power Stone“ á bakinu á honum, „Thor“ á annarri kinn og „Thanos“ á hinni og „VS.“ á enninu. Og svo fór hann bara ber að ofan í bíó. Ég píndi hann að vísu til að fara í jakka á leiðinni, sem kom sér vel því þótt það sé stutt ganga fyrir okkur þurftum við að standa úti í biðröð í svolítinn tíma. Inni í salnum lagði hann svo jakkann á hnén á sér og þá leit eiginlega út einsog hann væri bara alls ber með jakkann yfir því allra heilagasta. Myndin var sirka einsog við mátti búast. Ég hef sennilega séð megnið af þessum Marvelmyndum og þar af auðvitað undanfara þessarar, Infinity War. Þetta er svona öllu-tjaldað-til-dæmi og formúlan nánast svo grjóthörð og skriðþunginn í hinum myndunum nógu mikill til að þetta hefði aldrei getað klúðrast illa – eða verið neitt öðruvísi en nákvæmlega einsog það var. Hún var þrír tímar að lengd og það voru sprengingar og rómantík og þunglyndi og síendurtekinn sigur við ólíklegar aðstæður, kryddað með örlitlum vonbrigðum og svona hálftíma löngum ljúfsárum en hamingjusömum endalokum. Við feðgar fórum mjög glaðir heim. *** Sumardagurinn fyrsti var svo eins konar menningarreisa. Við fórum fjölskyldan inn í Holtahverfi í svimandi rjómablíðu til að spila cornhole og borða corn dogs hjá amerískri vinafjölskyldu okkar – ásamt fleiri vinum. Það var líka boðið upp á kryddaða kjúklingavængi, doglausar corn dogs með súrum gúrkum í staðinn, hummus og grænmeti og búrbon-límonaði og bjór. Þetta var eins konar æfingar-„tailgate“ fyrir aðra vinafjölskyldu sem er að fara að flytja til Bandaríkjanna í maí. *** Við börnin kláruðum að lesa Elías eftir Auði Haralds og Valdísi Óskarsdóttur. Hún fjallar um samnefndan dreng sem er að fara að flytja með fjölskyldu sinni til Kanada í tvö ár, svo pabbi hans geti smíðað brýr. Fjölskyldan sem ég nefndi hér að ofan, sem er að flytja til Arlington í Bandaríkjunum, er einmitt fjölskylda besta vinar Arams – Hálfdáns Ingólfs, sem tússaði sig með honum fyrir bíóið – og hún er að flytja í tvö ár svo mamma hans Hálfdáns geti búið til sárabindi úr fiskroði fyrir bandaríska hermenn. Og alla sem gætu þurft á slíku sárabindi að halda. Svo þetta var viðeigandi lestur fyrir okkur. Það er mjög gaman að lesa svona fjölskyldusögur með krökkunum. Bæði til að sjá það sem hefur breyst og það sem hefur alls ekki breyst. Fólkið í Sitji-guðs-þríleik Guðrúnar Helgadóttur er okkur mjög fjarri í tíma og aðbúnaði, með barnaskarann og peningaleysið og fjarverandi pabbann og sambúð með ömmu og afa, og fyllibyttum á öðru hverju heimili. En fólkið í Elías er allt í einhverju nútímastressi sem er kunnuglegt. Foreldrarnir gera alls konar plön og eiga í flóknum samskiptum við aðra – aðallega Möggu móðursystur í þessu tilviki, sem vill öllu ráða en er líka mjög hjálpleg – og Elías finnst bæði gaman að vera hluti af veröld fullorðna fólksins og að sleppa úr henni. Ég spurði Aram og Aino hvað væri mest ólíkt samtímanum í Elíasi og Aino sagði að foreldrarnir væru svo ruglaðir – sem mér fannst hughreystandi – og Aram bætti við að Elías þyrfti að passa foreldra sína svo mikið. Við Nadja hljótum að vera svona ofsalega stabíl eða góð í að fela hvað við erum klikkuð. Fyrst og fremst er Elías auðvitað sprenghlægileg bók, bæði fyrir börn og fullorðna. Lestrarfyrirkomulagið með börnunum á heimilinu er þannig að ég og Nadja lesum fyrir þau til skiptis og við lesum ólíkar bækur – Nadja á sænsku og ég á íslensku. Nadja les alltaf sitthvora bókina fyrir þau en hjá mér skiptumst við á að velja bækur og lesum eina í einu. Ég valdi Elías og ætla að halda áfram að velja Elías þegar kemur aftur að mér – það eru a.m.k. tvær bækur til viðbótar í flokknum. Aram valdi Flóttann mikla eftir Indriða Úlfsson, sem við fundum hjá ömmu og afa, og erum nýbyrjuð á. Aino, sem á að velja næst ætlar að taka myndskreyttar sögur úr Þúsund og einni nótt, sem hún fékk í afmælisgjöf. Þar sem við lesum ekki nema annað hvert kvöld – og tæplega það, það fellur alltaf eitthvað úr, stundum er annað þeirra að gista hjá vini og þá lesum við eitthvað annað en kaflabókina, og stundum er ég ekki heima o.s.frv. – þá tekur stundum sinn tíma að komast heilan hring. *** Föstudagsfjölskyldumyndin var Rise of the Guardians. Aino valdi að þessu sinni. Myndin fjallar um Jack Frost sem er eirðar- og tilgangslaus ofurvera í heimi þar sem börn trúa bara á Jólasveininn, Páskahérann, Herra Sandmann og Tannálfinn. Jack færir fólki vetur og stuð. Ljótikallinn sækir að þessum barnaguðum og ætlar að kreista gleðina úr hjörtum þeirra og eina von þeirra er hjá Jack Frost, sem kallinn í tunglinu útnefnir „varðmann“ ásamt áðurnefndum ofurverum (þótt enginn trúi á hann). Hún fór svolítið mikið innum eitt augað og útum hitt. Kannski var það vegna þess að ég var að byrja að verða lasinn – þá rennur allt saman fyrir mér. Ég get t.d. ekkert lesið þegar ég er með hita. Það var áhugavert að þótt ljótikallinn yrði aumkunarverður í endann þá var samt lífið murkað gersamlega úr honum – það var engin siðbót, engin fyrirgefning. Meira að segja Thanos fékk smá samúð – var tragískur. Ljótikallinn var bara vondur. Og ætti kannski ekki að koma á óvart. *** Kvikmyndaklúbbur fullorðna fólksins horfði í gær á Kona fer í stríð. Það var mitt val að þessu sinni og við vorum hvorugt búin að sjá hana. Kona fer í stríð var góð þegar hún var góð, sem var oft, en vandræðaleg þegar hún var það ekki og heilt yfir var myndmálið svolítið hingað og þangað fyrir mig. Annað en Square fannst mér hún ekki bera ofhleðslu – einsog hún vildi segja manni allegoríu en væri svo alltaf að berjast út úr henni líka. Svona einsog ef það væri hliðarsaga í Animal Farm að Snækollur væri líka að reyna að ættleiða. Það er einsog hún vilji vera of margar aðrar myndir í einu og nái ekki að sætta áhrifavalda sína. Eina stundina er það Kusturica en þá næstu er maður að horfa á Amelie og svo er maður að horfa á skandinavískt persónudrama um barnlausa konu sem vantar lífsfyllingu (barn!) og síðan pólitíska allegóríu. Einhvern veginn fannst mér vanta að hún blómstraði almennilega í eina áttina – sennilega hefði það bara getað verið í Kusturica áttina, það er eina formið sem getur borið hitt líka, að hún yrði sannanlega absúrdísk en daðraði ekki bara við það. Stundum var líka einsog það væri verið að löðrunga mann með myndmáli sem ég náði einhvern veginn aldrei að púsla saman. Halla (nafnið!) er á flótta undan lögreglunni, eftir að hafa fellt rafmagnsstaur (sem ég held reyndar að geri ekkert gagn) að álveri og felur sig fyrst undir álteppi fyrir hitamyndavélum og svo undir íslensku sauðskinni fyrir drónamyndavél. Þegar hún er á leiðinni til að gefa sig fram stoppar hún leigubílinn og fer út í hraun og gubbar á íslenska náttúru (skömmu áður blæðir henni líka í íslenska náttúru – einum dropa). Þar á eftir tekur hún myndina af stelpunni sem hún ætlar að ættleiða, rífur upp mosa (!!!) og treður ljósmyndinni – sem er kemískt sorp, vel að merkja, og brotnar ekki auðveldlega niður í náttúrunni – inn í mosann. Svo kallar hún sig „Fjallkonuna“ – og ég bara get ekki neitt sem heitir fjallkona. Í bandarísku endurgerðinni yrði hún þá skallaörninn. Það er bara ekki hægt. Forsætisráðherrann heitir Jón Hreggviðsson, hundurinn heitir Kona – og það er bara svo margt svona, verður algerlega ómeltanlegt í pólitískri allegoríu, en hefði verið áhugavert í Roy Anderson mynd eða hjá Buñuel, þar sem ekki er krafist sams konar stöðugrar rökmiðju. Í allegoríunni gerir maður ráð fyrir að púslið eigi að ganga upp – hér eru symbolísku púsluspilin meira einsog þau hafi orðið til á thinktank-fundi á auglýsingastofu eftir aðeins of marga kaffibolla. Mér fannst samt mjög gott touch að láta alla sem leika löggur í myndinni vera grínista – Ari Eldjárn, Helga Braga, Þorsteinn Guðmundsson og Dóri DNA leika löggurnar í myndinni. Svo er Jón Gnarr forsetinn og ég var ekki viss hvort það ætti að vera tenging við hina grínistana og hans hlutverk er öðruvísi en þeirra – það er meira grín í því. Kjarnapersónur myndarinnar – sérstaklega Halla og meintur frændi hennar, Halldóra Geirharðs og Jóhann Sigurðarson – voru annars mjög trúverðugar persónur, þótt þau væru problematísk, og afar vel leikin, einsog við er að búast. Grunnsagan er góð og breyskleikar aðalsöguhetjunnar eru áhugaverðir – að hún rjúki út í reiðikasti til að taka eitt tilgangslaust lokaáhlaup á stóriðjuna, og rammi það nánast einsog hún sé þá að fórna lífsfyllingu sinni (ættleiðingardótturinni sem býr í Úkraínu) án þess að taka nokkuð tillit til örlaga þeirrar væntanlegu dóttur eða systur sinnar eða annarra meðreiðarsveina. Hún er rosa merkileg hugsjónakona á sama tíma og hún virkar algerlega vafin upp í eigið egó – allt við þessa ættleiðingu rammast inn af hennar eigin þörfum. Stemningin í myndinni er á köflum mögnuð, það er flott tempó og hin tekníska leikstjórn er upp á tíu. Einsog venjulega á íslensk náttúra stórleik. Tónlistin er frábær – ég er enn að gera upp við mig hvort ég sé sammála Nödju um að hljómsveitin, sem birtist í mörgum senunum, hafi verið ofnotuð. Ég hefði sennilega ekki hugsað út í það ef hún hefði ekki nefnt það. En mér finnst líka mjög gaman að horfa á fólk spila á hljóðfæri. Ég spurði mig svolítið út í þessi úkraínsku þjóðlög – ég geri ráð fyrir að þetta séu úkraínsk þjóðlög. Einhvern tíma skrifaði ég eitthvað um útlendinga frá stórþjóðum sem koma til Íslands til þess að fá útrás fyrir þjóðrembu sem þeir geta ekki leyft sér heima fyrir. Vinstrisinnaður Bandaríkjamaður sem getur ekki heilsað fánanum kemur til Íslands til þess að falla í stafi frammi fyrir fjalli og fyllast Wagnerískum ofsa; sama gildir um Þjóðverja og Kanadamenn og fleiri. Þetta er svona nationalism by proxy. Mér fannst úkraínsku þjóðlögin – sungin af þremur „fjallkonum“ – vera svolítið þannig, einsog stand-in fyrir íslensk þjóðlög sem hefði verið tabú að hafa þarna. Aukapersónur myndarinnar – forsætisráðherra, konan á ættleiðingarskrifstofunni, spunameistarar í sjónvarpinu, leigubílstjóri í Keflavík og aðrir fulltrúar „samfélagsins“ voru hins vegar ótrúverðugar klisjur. Þegar leigubílstjórinn fór að tala um lattelepjandi listaspírur frussaði ég af kjánahrolli. Þegar forsætisráðherra er spurður um loftslagsáætlun ríkisstjórnarinnar og snýr sér út úr spurningunni með því að tala um alvarleika ofbeldis var ég mest hissa – það eru allir forsætisráðherrar með staðlað svar um „metnaðarfulla loftslagsáætlun sína“ og „mikilvægi þess að standa vörð um jörðina“, alveg burtséð frá því hversu mikil alvara er á bakvið slík svör. Forsætisráðherrar eru ekki svona lélegir í augljósasta spuna. Ræða forseta á Þingvöllum sló mig líka undarlega – var hann að bera saman aftökur á Þingvöllum forðum daga og aftökur kínverska ríkisins? Slíkt hefði verið diplomatískt stórslys – leikurinn snýst um að láta, einsog Vigdís gerði og var frægt, sem mannréttindi séu afstæð og kínverska stjórnin í raun mannúðleg. Að konfronta kínversk stjórnvöld svona, þótt það sé gert í rænuleysi, er miklu líkara þeim mótmælum sem Jón Gnarr – sem leikur hér forseta – gerði í raun og veru sem borgarstjóri, og í alls engu rænuleysi. Ég „lendi“ oft í því þegar ég hugsa og skrifa um íslenskar myndir að hljóma einsog mér hafi þótt þær verri en mér þótti þær. Þegar kreditlistinn rúllaði í gær og Nadja spurði mig hvað mér hefði þótt sagði ég „já, þetta var bara nokkuð gott“. Og þrátt fyrir allar þessar aðfinnslur þá var þetta bara nokkuð gott – setti heilasellurnar af stað og fékk mann til að hugsa. *** Gítarleikari vikunnar er enginn annar en Langi Seli sjálfur.