Tilvitnun vikunnar

I don’t know where I am but wherever it is that I am I have to get out of here pronto!
Fyrsta setningin í Myron eftir Gore Vidal.

Untitled

Ljóðaritstjórar The Nation báðust á dögunum afsökunar fyrir að hafa birt ljóð sem er skrifað á „svörtu talmáli“ – einsog það er kallað – af hvítum manni. Ljóðið, sem er ágætt en ekkert meistaraverk, sleppir sögnum („you a girl“) og beygir þær „vitlaust“ („they is“) en annars er í sjálfu sér lítið að sjá – málfarið er ekki beinlínis revolúsjónerandi. Þá kemur orðið „crippled“ fyrir. Ritstjórarnir – og skáldið raunar líka – báðust innilega afsökunar á að hafa sært viðkomandi „communities“ (fatlaða og litaða, held ég, en kannski áttu þau líka við fleiri) og sögðust myndu endurskoða starfshætti sína og sig sjálf í framtíðinni. Kona nokkur, Grace Schulman, 83 ára ljóðskáld sem gegndi þessari sömu stöðu í 35 ár, en lét af störfum fyrir rúmum áratug, skrifaði þá opið bréf og sagði nokkurn veginn að ritstjórarnir væru hryggjarlausir aumingjar og heimur sem ekki stæði vörð um skáldskapinn ætti hann ekki skilið og myndi fljótt úrkynjast og verða eigin fáfræði að bráð. *** Hér eru auðvitað milljón snertipunktar. Hvað er til dæmis svart talmál og er það bara talað af svörtum – er það menningarnám þegar það er talað af hvítum og er einfaldlega hægt að gera ráð fyrir því í ljóði að ljóðmælandi sé svartur ef hann notar tiltekinn orðaforða, tiltekið slangur? Er gengið út frá því að ljóðmælandi sé hvítur að herma eftir svörtum eða má hvítt ljóðskáld ekki skrifa svartan ljóðmælanda? Að hversu miklu leyti er ídentítet bundið í tungumál? Ég held að meira og minna 90% af öllu amerísku slangri eigi uppruna sinn í svörtu talmáli – og kannski er raunverulegasti rasisminn í þessu sá að kalla slangur sem einkennist af málvillum „svart talmál“ einsog svart fólk sé allt eins menntað og allt með sama bakgrunn, allt úr sama hverfinu, frá sama landinu. Hvítt talmál er þá bara enska drottningarinnar. Allur götudíalekt er í stöðugri og snarpri þróun og er yfirleitt bara talaður af einni og einni kynslóð í einu, en smitast innan kynslóða og yfir kynþáttalínur og jafnvel stéttalínur – enda hafa unglingar í Bandaríkjunum verið aldir upp á hipphopp tónlist nú í að verða fjörutíu ár. *** Talar Króli svartan díalekt – eða var það Biggi Sævars? Talar Obama svart talmál við börnin sín? Svara þau Michelle á svörtu talmáli? *** Sem þýðir ekki að díalekt sé ekki merkingarbær, vel að merkja. Það bara flækir málin. Við lesum ýmislegt úr orðavali í textum og stærsta vandamálið í því öllu saman er að við skulum lesa núllstillinguna – slangur og skrautlausa málið undantekningalítið sem hvítt sísheteró millistéttar og karlkyns. *** En til þess að flækja málin enn frekar er ekki hægt að ætlast til þess að höfundur – ljóðskáld eða leikskáld eða skáldsagnahöfundur – skrifi bara persónur sem eiga sama bakgrunn og hann, hán eða hún sjálf(t)(ur). Bæði vegna þess að þar með höfnum við grundvallarforsendu alls skáldskapar, og að mínu persónulega mati sjálfrar mennskunnar, samlíðuninni – lífið er gersamlega tilgangslaust ef við erum orðin svo miklir einstaklingar að við getum ekki lengur leyft okkur að setja okkur í spor hvors annars, leika hvert annað, verða hvert annað í hugarfluginu, með öllum kostum og kenjum, þá erum við ekki bara einstaklingar heldur eyjur – og vegna þess að þá yrðu bókmenntirnar fáránlega einsleitar. Allar mínar bækur myndu fjalla um hóp af ísfirskum rithöfundum með hatta sem töluðu saman um sjálfa sig. Sem væri auðvitað mjög skemmtilegt, en bara fyrir mig. *** Rithöfundur sem getur ekki sett sig í spor annarra er ekki góður rithöfundur og rithöfundur sem reynir það ekki er huglaus rithöfundur og vondur. En í þessari meðlíðunartilraun erum við auðvitað líka að sjá okkur sjálf – sjá aðra í okkur og okkur í öðrum. Maður kemst ekki út úr sjálfum sér og það er hin stóra sorg mannsins að takast aldrei að renna saman við aðra – við alheiminn, við nirguna brahma, eða bara sína nánustu ástvini. En sá sem aldrei reynir glatar bæði sjálfum sér og heiminum. *** Og samt er ídentítet höfundar ekki heldur aukaatriði. Það skiptir máli að JT Leroy var ekki hiv-smituð trans vændiskona, að Ern Malley var tilbúningur tveggja íhaldsmanna sem ortu ljóð sín sem diss á módernismann, að Forrest Carter sem skrifaði Uppvöxt Litla-Trés var líka rasíski ræðuskrifarinn Asa Carter og að Anonymus var Jóhannes úr Kötlum. Það lýsir upp lestur verkanna og breytir samhengi þeirra – en það ógildir þau ekki, það trompar ekki verkin sjálf og það sem í þeim stendur. Höfundurinn dó aldrei, einsog Barthes hélt fram – og verkið deyr ekki heldur hvað sem samtíminn rembist og djöflast á öld sem virðist ekkert skilja eða vilja nema einmitt þennan blessaða höfund, sjálfið (það virðist skipta minna máli hvað er sagt en hver segir það). Og ljóðaritstjórar The Nation munu vonandi hafa ævarandi skömm fyrir aumingjaskapinn enda eru þeir með þessu beinlínis að ganga af bókmenntunum dauðum. Það væri óskandi að PEN gæti tekið afstöðu gegn þessu maóíska krabbameini. Þetta er ekki gott og þetta versnar ár frá ári og það græðir enginn neitt á þessu nema fasistarnir. *** Og það er óhugnanlegt að sjá fyrir sér að ritstjórarnir og/eða skáldið geri þetta ekki sjálfviljug heldur vegna þess að það er betra að beygja sig í duftið en að debatera, taka slaginn – einu sinni í fimm mínútur. Öll PR fyrirtæki ráðleggja skjólstæðingum sínum enda að biðjast bara umyrðalaust afsökunar, alveg sama hver sannleikurinn er, hver prinsippin eru eða hvað átti sér stað. Allur debatt er slæmur fyrir vörumerkið og ef þú ætlar að eiga starfsferil – vera ljóðskáld eða ritstjóri – þá þarftu að standa vörð um vörumerkið fyrst og fremst. *** Kannski skiptu þau bara um skoðun. En þá eru þau líka ólæs og vanhæf og ættu að segja af sér. Þetta ljóð er engin kjarnorkuvísindi, ef þau skildu það ekki nógu vel til að standa með því (eða hafna því frá upphafi) þá liggja hæfileikar þeirra sennilega annars staðar í tilverunni en í bókmenntum og listum. Það eru ábyggilega einhverjar stöður lausar í írönsku siðalöggunni, PMCR Tipper Gore eða kúbönsku byltingarafstöðustofnuninni . Eða þú veist, bara kvikmyndaeftirlitinu. *** Annars er allt bærilegt hér nema síðsumarþunglyndið og þessi óþolandi hiti. Ég flýg til Íslands á fimmtudag og keyri heim á laugardag. Ég er smám saman að trappa mig upp í að fara að lifa lífinu upp á nýtt. Það verður kannski kalt á Íslandi – eða næsta örugglega – en ég hlakka samt til. Ég hef ekki verið í sama rúminu nema örfáa daga í röð síðan í júní – og þá var ég einn í þrjár vikur – og ég held að geðheilsa mín myndi ekki þola meira af þessu. *** Kápumyndin sem birtist hér hægra megin (frá mér séð – og raunar þér líka, þegar ég spái í það) er röng. Svona verður kápan á Hans Blævi ekki. En hún verður í þessa áttina.

Tilvitnun vikunnar

Jag förstod inte vad en kvinna är
och när man försökte tala om det för mig
blev jag intresserat av nåt annat
som att röra hela handflatan
över ett skrovligt favoritträd
eller tänka på lejon och onanera
eller läsa om galaxer far far away
Jag gjorde mig nåt slags kvinna att bo i
med mycket hjälp från släkt och vänner
en dag lämnade jag henne
låste henne omsorgsfullt
gick ut i skogen
Sitter under trädet mycket vilsen
hänger speglar i det för att nån ska se mig
Speglarna är gjorda av vulkaniskt glas
först utbrottet sen
se sig själv och själv bli sedd
Tryck gilla på spegeln
Nino Mick – úr bókinni Tjugofemtusen kilometer nervtrådar

Untitled

Einsog hefur ekki farið framhjá þjóðinni, þótt ég hafi gleymt að kveðja, hef ég verið í sumarfríi. Hér hafa bara birst lög og tilvitnanir í júlí enda er það allt stillt langt fram í tímann og kostar mig því enga fyrirhöfn þar sem ég ligg með tærnar í sandinum, sötra bjór og leik við börnin mín. Ég hef reynt að fylgjast sem allra minnst með internetinu á þessum tíma, afeitra sálina eftir þær fremur intensífu djúpstörur sem lokaskeið bókarinnar krafðist en það hefur gengið bölvanlega, ef satt skal segja. Internetið lætur ekki að sér hæða. Ég er að vísu ekki á Facebook og ekki með neinar nothæfar bakdyr til þess að fylgjast með þar, sem er sannarlega talsverður léttir, en ég er með twitter-aðgang Starafugls og svo les ég hverja einustu frétt sem er skrifuð á íslensku og talsvert af fréttum á sænsku og ensku. Mikið af íslensku fréttunum fjalla um það sem gerist á Facebook. *** Það hefur hvarflað að mér upp á síðkastið hvort fréttirnar séu kannski verstar – næringarsnauðastar – og ekki bara þær sem fjalla um það sem gerist á Facebook. Eitt af því sem ég gerði í fríinu var að lesa viðtalsbók við Tom Waits og eftir það langaði mig helst að lesa í ryðbletti á bílum. Sennilega verður lítið úr því en það er hins vegar alveg í myndinni að ég taki mér ákafari internetpásur í haust þegar ég get leyft mér það – í augnablikinu þarf ég að vera í sambandi við fólkið sem leigir og fær lánað húsið mitt á Ísafirði og get ekki bara slökkt og þá er maður meira einsog alkinn sem er að reyna að verða að minnsta kosti ekki ofurölvi innanum fólk en sá sem er á snúrunni. Ég er hérna til að sinna skyldustörfum. *** Svo er spurning um að reyna að hafa húmor fyrir þessu öllu saman – skapa nauðsynlegan distans til að lifa andköfin af. Það er ekki alveg einfalt því húmor fylgir alltaf svo mikil grimmd. Ég hlæ alveg svolítið innan í mér við að fylgjast með Twitter fara á hliðina fyrst í baráttunni gegn notkun plaströra á veitingastöðum og síðan vegna þess að plaströr reynast nauðsynleg hjálpartæki fyrir fatlaða, sem stendur slysahætta af fjölnotarörum (og þá eru þeir sem eru á móti rörum líka á móti fötluðum og þeir sem eru með rörum hata umhverfið). Það er eitthvað sprenghlægilegt við fjaðrafokið sem slíkt – rétt einsog það er gaman að trúbadorinn Biggi Sævars (svartur) sé að debatera opinberlega við Króla (hvítan) um blackface. Það er gaman vegna þess að þetta er allt svo vandræðalegt og klaufalegt – hóphneykslan er kannski oft gagnleg, oft nauðsynleg, en hún er líka frámunalega grunn. *** Og sem sagt, svo vill maður ekki hlæja og ekki játa á sig flissið opinberlega (þið látið einsog ég hafi ekkert sagt) vegna þess að maður vill ekki styðja hversdagsrasisma, vill ekki taka þátt í landsbyggðarfyrirlitningu, finnst mikilvægt að dregið verði úr plastnotkun og það verði gert án þess að fatlaðir beri af því mesta þungan. Og þegar maður hlær ekki, leyfir sér ekki þessa grimmd heldur situr á henni – bælir hana niður, bókstaflega – þá fær maður samviskubit gagnvart sjálfum sér, einsog maður sé að svíkja sig. Maður segir aldrei neitt nema þá sjaldan mann langar að taka undir eitthvað. *** Kannski er það versta við „pólitísku réttsýnina“ hversu einfaldur skilningur hennar á húmor er – á hlutverki húmors – því skilningur okkar á hlutverki húmors er yfirleitt mjög náinn skilningi okkar á hlutverki lista yfirleitt. Ef afstaða okkar til húmors er dogmatísk er afstaða okkar til lista dogmatísk og þá er afstaða okkar til heimsins dogmatísk. *** Listin er ekki góður vettvangur fyrir móralska einfeldni. Hún er vont pólitískt verkfæri vegna þess að sá sem sinnir henni af nokkrum heiðarleik ræður ekki alveg hver verður fyrir henni eða hver getur fært sér hana í nyt. Góð list getur af þessum sökum vel verið brennsli á bál illmenna. Og hefur oft verið það – frá Knut Hamsun til Ozzy Osbourne, frá Salo til Eminem. Hún göfgar eitthvað annað en baráttu hins góða gegn hinu illa – þótt dæmi séu um að hún geri einmitt það (t.d. Star Wars, Atlas Shrugged og 1984). *** List sem hefur enga snertipunkta við „pólitík“ hefur svo enga snertipunkta við heiminn. Hún er bara misvelgert dútl – svona einsog maður krotar í bók meðan maður talar í landlínusíma. *** Ég á eftir að hlusta á lagið þar sem rappað er um bitches – það var annar skandall. Skáldið Kött Grá Pje skrifaði á Twitter í vikunni eitthvað um að kannski væri tími rappsins bara liðinn og kominn tími á meiri drullu, meira pönk. Það var presenterað í fjölmiðlum sem gagnrýni á lagið, á orðanotkunina, og kannski var það hugsað þannig en það sló mig samt hvað væri skrítið að biðja um skítugra pönk einsog það væri þá ekki jafn tillitslaust og rappið – og hvort KGP væri þá að biðja um „hreinni skít“, skítinn án essensins, svona skít sem maður getur pósað með en sem maður verður ekki skítugur af að snerta. *** Ég byrjaði annars mánuðinn á að eiga afmæli og fékk nýjan gítar í afmælisgjöf – kolbikasvartan Gibson SG sem heitir „Gálknið“. *** Og þá hló þingheimur.

Tilvitnun vikunnar

The history of the sexual vanguard in America was a long list of people who had been ridiculed, imprisoned, or subjected to violence. So it was annoying to hear the hubris of technologists, while knowing that gadgetry or convenience in telecommunication was the easy kind of futurism, the kind that attracted money. A real disruption or hack was a narration that did not make any sense to us the first time it was told, that would provoke too much repugnance to show in a cell phone ad.
Emily Witt – Future Sex

Tilvitnun vikunnar

Kalla mig inte transperson
Jag är en Transformer
“More than meets the eye.”
Ni kan kalla mig:
OPTIMUS PRIDE
Úr bókinni Ikon eftir Yolöndu Auroru Bohm Ramirez

Tilvitnun vikunnar

Inside this greater machine, things are not quite so cut and dried (or cut and pickled) as they have appeared in my experience. Each of us, in our own personal Factory, may believe we have stumbled down one corridor, and that our fate is sealed and certain (dream or nightmare, humdrum or bizarre, good or bad), but a word, a glance, a slip – anything can change that, alter it entirely, and our marble hall becomes a gutter, or our rat-maze a golden path. Our destination is the same in the end, but our journey – part chosen, part determined – is different for us all.
Iain Banks – The Wasp Factory

Tilvitnun vikunnar

„Ég bjóst við þessum móttökum“, sagði ófreskjan. „Allir hata þann sem á bágt, hversu mjög hljóta þeir þá ekki að hata mig, sem á meira bágt en allt annað sem lífsandann dregur! Jafnvel þú, skapari minn, fyrirlítur mig og vísar mér burt, þinni eigin sköpun, sem þú ert tengdur böndum sem aðeins losna við það að annar hvor okkar afmáist. Þú ætlar að drepa mig. Hvernig vogarðu þér að leika þannig með lífið? Gerðu skyldu þína við mig, og ég skal gera mína við þig og alla aðra. Ef þú gengur að mínum skilyrðum þá skal ég láta þig og aðra í friði, en ef þú neitar skal ég fylla vömb dauðans uns hann er mettur af blóði þeirra vina þinna sem enn eru á lífi.“
Frankenstein – Mary Wollstonecraft Shelley

Tilvitnun vikunnar

Ég sá eitt sinn sýn af gríðarmiklu landflæmi sem breiddist út marga kílómetra til sjóndeildarhringsins. Ég sveif hátt yfir og leit yfir landið úr lofti. Ég sá allt í kringum mig stóra lagskipta glerpíramída. Sumir voru litlir, stórir, sköruðust eða stóðu stakir en öllum svipaði til nýtísku skýjakljúfa. Þeir voru allir fullir af fólki sem leitaðist við að ná upp á efsta punkt á hverjum píramída. Eitthvað var þó yfir þeim punkti á sviði fyrir utan alla píramídana þar sem allt hitt kom saman. Þessi staðsetning veitti forréttindi því auga sem gat eða kaus ef til vill að svífa frjálst ofar öllum deilum eða átökum hinna og sem kaus að stjórna ekki neinum sérstökum hópi eða málstað en fara á hinn bóginn og á sama tíma út fyrir þetta allt. Þetta var athyglin sjálf, hrein og óheft, óbundin og vökul athygli sem beið eftir því að starfa þegar réttur tími og staður væri fundinn.
Jordan Peterson – Tólf lífsreglur, bls. 230-231

Untitled

Ég lauk við bókina í hádeginu. Ekki alveg í fyrsta skiptið en hugsanlega í síðasta skiptið. Ég á að vísu enn von á einhverjum athugasemdum – en ég var búinn að ákveða að klára þetta endanlega meðan ég væri enn á fertugsaldri og því lýkur víst á sunnudag. Ég pakka saman hérna í Krems á föstudag og fer til Svíþjóðar á laugardag til að fagna afmælinu með fjölskyldunni. Þangað til veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera. Ég má víst ekki bara fara – hef skylduviðveru hérna, sem writer in residence út mánuðinn. Einhverjum tölvupóstum þarf ég að svara. Kannski er eitthvað að sjá hér í kring. Á morgun er Ísland-Króatía og á hinn er Svíþjóð-Mexíkó. Ég á enn eftir að fá mér vínarsnitsel – ætlaði að gera það áðan en fann ekki réttan stað svo ég frestaði því bara. Ég á líka eftir að fá mér sachertorte. Og hlaupa upp og niður Dóná – ég hef verið ansi duglegur við það. Ég er enn með slatta af bókum til að lesa – kláraði Wasp Factory eftir Iain Banks í gær (fimm stjörnu skáldverk – en ég veit ekki hvernig hún stenst samtímann) og er að dunda mér í gegnum The Man Who Invented Gender: Engaging the Ideas of John Money eftir Terry Goldie. Mjög áhugaverður maður hann John Money – hetja og skúrkur í senn, einsog ég kom inn á hér, og eftir David Reimer málið hafa allir reynt að hreinsa hendur sínar af honum, en það bara vill til að fingraför hans eru ansi víða og hann hafði mjög mikil áhrif á alla endurskoðun kyngervis á síðari hluta tuttugustu aldar. Meðal annars bara með því að vera þrár – og hafa stundum alveg rækilega á röngu að standa, en koma hugsunum og hugmyndum á hreyfingu. Ég byrjaði líka að horfa á Masters of Sex seríuna samhliða þessu. Það er óttalegt melódrama og einhvern veginn gengur þeim illa að kjarna nokkuð um vinnu Masters og Johnson – og mér skilst að einkalífið sé að miklu leyti tilbúningur. Rannsóknir þeirra og hugmyndir eru bara notaðar sem bakgrunnur fyrir hvert annað HBO-drama. Fínt sosum. Auk þess horfði ég á I Think That We Are Alone Now – sem er alveg botninn á tunnunni. Þetta er heimildamynd um tvo furðufugla – annar hverra vill til að er intersex – sem dásama einhverja eitíssöngkonu sem ég hafði aldrei heyrt minnst á og ímynda sér að líf sín verði fullkomin ef þau bara sannfæri hana um að byrja með sér. Þetta er ekki einu sinni sérstaklega áhugaverð innsýn í þráhyggju. Ma Vie en Rose, frönsk mynd frá 97, var nokkuð skárri. Hún fjallar um ungan strák sem vill vera stelpa og vandræðagang fjölskyldunnar í kringum það. Endirinn er svolítið skrítinn – einsog sé stefnt að hamingjusömum endalokum, og þau eiginlega orkestreruð, en svo eru þau svo half-assed eitthvað að maður dæsir bara. Ætla ekki að kjafta frá þeim samt. En annars líður myndin fyrir að vera svolítið millistéttar. Svo er ég reyndar búinn að horfa á alveg fáránlega mörg myndbönd um gítara – aðallega á vegum tveggja fígúra sem kalla sig Chappers and the Captain og vinna við að nörda yfir sig. Gítarinn minn varð eftir uppi á vegg á Ísafirði, sem voru ótrúlega stór mistök. Þetta kemur að einhverju leyti í staðinn fyrir gítarrúnkið en ekki nærri nógu mikið. En í nótt ætla ég allavega að sofa og á morgun ætla ég að fara út í morgunmat – sennilega á afrískan stað að fá mér shakshuku. Veriði blessuð.