Lagið um Frankensleiki

Í nótt kom fyrsti jólasveinninn til byggða – sem samkvæmt kanónu Frankensleikis er þá fóturinn á Stekkjarstaur (með líkamshluta bræðra sinna saumaða við sig). Hafði uppvakningurinn með sér tónsmíð þá er hlýða má á með því að smella á spilunarhnappinn hér að neðan. Lagið er væntanlegt á allar helstu tónlistarveitur sem og á öldur ljósvakans. Lag, texti og hljóðfæraleikur: Eiríkur Örn Norðdahl Nema gítarsóló: Frankensleikir Mastering: Orri Harðarson FRANKENSLEIKIR Á himni grær jólasnjór fellur tær á frosna jörð. Rauður skór í glugga býr von er á jóladrauginum. Í kaldri gröf hvílir karl bíður eftir kvöldinu er skríða fær úr kistunni og fylla alla skó af gulli og gersemum. Frankenslei-ei-ei-eikir (já það er ég) Frankenslei-ei-ei-eikir (enginn venjulegur jólasveinn) Frankenslei-ei-ei-eikir (á leið til byggða) Kemur í kvöld (gleðileg jól) Heima í bæ byltir sér stúlka kær á sænginni. Andvaka og óróleg bíður eftir jólagrafargestinum. Upp úr moldinni teygir sig rotin hönd og alblóðug saumað hold sárum prýtt. Nú runnið er upp jólakvöld. Frankenslei-ei-ei-eikir (já hvað heldur þú?) Frankenslei-ei-ei-eikir (halló bátar halló skip) Frankenslei-ei-ei-eikir (nú kemur karlinn) Kemur í kvöld! Frankenslei-ei-ei-eikir (hver annar?) Frankenslei-ei-ei-eikir (jólajólajólajóla) Frankenslei-ei-ei-eikir (guð, hvað ég hlakka til) Kemur í kvöld Óhugnaður, horbjóður uppvakinn og algóður Gjafmildur og hugljúfur er hann afturgenginn eða kannski æðisgenginn Frankenslei-ei-ei-eikir (jólin bara á næsta leiti) Frankenslei-ei-ei-eikir (eitthvað í alla skó) Frankenslei-ei-ei-eikir (bæði hægri og vinstri!) Kemur í kvöld Frankenslei-ei-ei-eikir (má ég taka gítarsóló) F rankenslei-ei-ei-eikir Frankenslei-ei-ei-eikir Kemur í kvöld Frankenslei-ei-ei-eikir (langbesta þjónustan) F rankenslei-ei-ei-eikir (þrettán daga í röð) Frankenslei-ei-ei-eikir (allt fyrir börnin ) Kemur í kvöld (gleðileg jól)