Pönkrokk, þú ert stóri vælukjóinn minn – AllenGinsberg Ég ætla að klaga þig í heyrnarlausa mömmu mína!
Skelltu þér á gólfið
og éttu bleyjur ömmu þinnar, trommur,
hvaða djöfuls læti viltu byltingu?
Viltu heimsendi? Springa í tætlur með dínamíthljóðum?
Þetta hreyfir ekki við mér, Hærra, Grimmar!
Ríddu mér í rassgatið! Tottaðu mig! Fáðu það í eyrun á mér!
Mig langar í alla þessa bleiku kviðarnafla!
Lofaðu að þú skulir myrða mig í ræsinu með Fullnægingum!
Ég vil kaupa miða í næturklúbbinn þinn, mig langar að vera handtekinn!
Fimmtugur vil ég fara! Með svipur og keðjur og leður!
Rassskelltu mig! Kysstu á mér augað! Tottaðu mig útumallt
frá Mabuhay-görðum til CBGB’s landshorna á milli
Toppi til táar Gemmér rafmagnsgítarinn nakinn,
Pönk forseti, slafraðu alríkislögreglunni oní gríðarstóran trantinn á þér. Mabuhay-görðum, maí 1977. Úr Maíkonungurinn