Ég synti sextíu og þrjár ferðir í sundhöll Guðjóns Samúelssonar í kvöld. Laugin er nánast á dyraþrepinu hjá mér. Fallegasta sundhöll landsins. Og að sögn með þeim stystu. Hún er sextán metrar á lengd og sextíu og þrjár ferðir því það næsta sem maður kemst því að synda einn kílómetra, ef maður vill ekki stoppa á miðri leið. Í sjálfu sér gæti maður líka synt sextíu og tvær ferðir en þá væri maður undir kílómetranum – jafn langt undir og maður fer annars yfir – og það er erfiðara að muna töluna sextíu og tveir. Sextíu og þrír er jafn margar ferðir og það eru þingmenn í landinu. Því gleymir maður ekki svo glatt, sérstaklega ekki þegar það er svona stutt til kosningar. *** Ég fór síðan í sánu. Rakaði mig. Fór aftur í sánu. Að venju var ég eini nakti maðurinn í sánunni. Mér gengur ekkert að venja sveitunga mína af þessu sundfatarugli – opna bréfið sem ég skrifaði vegna baðfatasturlunar þessarar er horfið af internetinu, út af því að bb.is endurnýjaði sig (og gamli.bb.is virðist ekki virka lengur) en það má lesa um þetta í endursögn Morgunblaðsins (ef maður man ekki neitt, það man auðvitað enginn neitt lengur, en þetta var stórmál og komst meira að segja í útlenska fjölmiðla). *** En ég er nú sosum ekki að bögga fólk með þessu heldur. Sánan er heilagur staður – ekki staður fyrir bögg. Og það böggar mig enginn að ég skuli vera á rassinum. *** Ég get ekki gert upp við mig hvað ég á að kjósa. VG, Pírata eða Samfylkingu, annað kemur tæpast til greina. Ég átta mig ekki á því hvernig landið liggur í kjördæminu, hverjir eru tæpastir – það getur skipt máli – en svo er maður óttalega hræddur við að atkvæðið manns verði síðan til þess að einhver bavíani annars staðar af landinu fari á þing. *** Mér finnst ég vita miklu minna um hvar flokkarnir standa en ég vildi. Mér finnst ég fá mjög lítið af konkret svörum. Mikið af við viljum styrkja/efla/styðja allt sem er gott og skera upp stríðsör gegn því sem er slæmt. Og allir eru meira og minna sammála um hvað sé gott og hvað sé slæmt. Hægriflokkarnir sverja af sér einka(vina)væðingu og lofa einkaframtaki. Vinstriflokkarnir sverja af sér skattpíningu fátæklinga og lofa allri velferðinni sem enginn stóð skil á síðast. Bjarni Ben segist ætla að setja milljarðatugi í bankakerfið. Sennilega er hann að tala um að selja það – ég las ekki fréttina samt, sá bara fyrirsögnina. *** Ég respektera auðvitað íhugunina – ég beinlínis vinn við að íhuga, í einhverjum skilningi. Og vinstrimenn eru íhugarar – þeir vilja skoða málin, ræða þau, taka til greina alla núansana. Ég fíla það. En svo sakna ég þess samt að það sé dúerar. Hægrimenn eru dúerar, þeir bara setja lög og gera hluti – storma áfram. Eina vandamálið er að þeir gera frekar vonlausa hluti. Þeir framkvæma hægristefnu, sem er glötuð og mun á endanum gera jörðina óbyggilega. Ég væri til í smá vinstri dúera. Mér sýnist þeir ekki í boði. Og kannski myndi ég bara skíta í mig af pirringi ef þannig fólk kæmist til valda – gersamlega æfur yfir allri vitleysunni sem það myndi framkvæma. *** En ég er alveg frekar sínískur í pólitík. Sem þýðir ekki neitt. Fram fram fylking. Vaki vaki vaskir menn. *** En hvaða spurningar eru það sem ég myndi vilja fá hrein og klár svör við – svona dúerasvör? *** Ég gæti spurt um bókaskattinn – en það virðast allir sammála um að fella hann niður og hvers vegna ætti ég þá að spyrja um það? Ég gæti spurt kannski í staðinn hvernig í ósköpunum þeir hafa haldið hingað til að þetta væri góð hugmynd? Eða hvað hafi orðið þess valdandi að þeir skiptu um skoðun. *** Kannski væri ágætt að fá einhvern orðavaðal um byggðamálin. Og fáein loforð. Ég á ekki við að það ætti að lofa tiltekinni vegagerð um Teigsskóg – en kannski loforð um að þetta yrði leyst á kjörtímabilinu. Ekki „vonandi finnst ásættanleg“ ble ble heldur bara „við fixum þetta. Byrjum að vinna að því á fyrsta degi og svo fixum við það.“ *** Svo mætti alveg lofa líka að leggja meira fé í rannsóknir á fiskeldi. Lofa lögum um eignarhald. O.s.frv. *** Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu. Ég myndi helst vilja að einhver segði að það þyrfti að draga hana til baka. Kannski í þrepum – en sem sagt að heilsugæsla sé bara á forræði hins opinbera. Og hugsanlega fleira – ég reikna ekki með að fá mörg jákvæð svör – en a.m.k. grunnþjónustan. *** Fjárfesting í landsneti. Byggja upp flutningskerfi raforku. Svara því bara skýrt og greinilega hvernig megi hringtengja Vestfirði – ef ekki er hægt að gera það án þess að virkja (t.d. Hvalá) þá þarf það einfaldlega að liggja fyrir. Það þarf plan – og ef það er ekki til plan þarf að setja plan um hvenær planið á að vera tilbúið. Deddlæn. Ef ég redda þessu ekki fyrir næsta haust segi ég af mér og einhver annar fær að vera forsætisráðherra. Þannig plan. *** Hvað fleira skiptir mig máli? Háskólastarfsemi – og í guðanna bænum ekki bara á höfuðborgarsvæðinu. Ég get ekki ímyndað mér neitt verra en að kjósa óvart einhvern búra sem vill loka háskólasetrum úti á landi og þjappa öllu saman í einhvern ofurskóla á melunum (er ekki HÍ á „melunum“ – mér finnst ég allavega hljóma mjög reykvíkingslega þegar ég segi „melarnir“, ég sem rata ekki yfir Ingólfstorg án Google Maps). *** Fella niður komugjöld á spítala. Hækka persónuafslátt og stuðla að launajöfnuði milli stétta. Niðurgreiða innanlandsflug (þjóðnýta Flugleiði). Halda áfram að styrkja innviði samgöngukerfisins. Leggja niður æfingaflug í borginni áður en Reykvíkingar missa vitið og stinga rýtingi í hjartað í Vatnsmýrinni. Burt með kvótakerfið – binda kvóta við tiltekin svæði á miðunum á tilteknum tímum (einsog stendur er bara gefinn út einn kvóti fyrir hverja fisktegund á alla landhelgina – fiskurinn er svo sópaður upp á 2-3 stöðum í kringum landið, sem er einsog það væri gefin út veiðileyfi á lax og svo sætu allir í kringum sömu 2-3 hylina). *** En guð hvað maður verður leiður af að hugsa um þetta. Getur ekki einhver troðið upp í mig chilikjúklingi svo ég lifi leiðindin af?
Author: Eiríkur Örn Norðdahl
Untitled
Kæri Snæbjörn. Ég gleymdi víst alltaf að þakka fyrir blómin. Sennilega komu þau bara svona flatt upp á mig. Ég eyddi deginum í að dást að þeim og bresta út með: „Nei, sko! Ha ha!“ Blómin (takk fyrir þau!) komu líka alveg á réttum tíma, svo að segja, ekki alveg að tilefnislausu – þótt ekki hefði minn maður unnið nóbelinn (ég hélt með Sjón, lét berast með í æsingnum og er að lesa Codexinn – það er svakaleg bók) – því svo vildi til að rétt í þann mund sem mér barst þessi blómvöndur, já og okkur fjölskyldunni, þá fékk ég sem sagt þau skilaboð að franski útgefandinn Editions Metailie, hefði ákveðið að kaupa réttinn á skáldsögunni Gæsku – en þau hafa áður gefið út Heimsku og Illsku og bara gengið nokkuð vel. Ég var þess vegna þá þegar „festiv“ – í hátíðarskapi – og má segja að ég hafi verið að bíða eftir að einhver sendi mér blómvönd. Þetta gast þú auðvitað ekki vitað – og þó, þú hefur náttúrulega verið lengi í bókaútgáfu og kannski sér maður þetta bara fyrir þegar maður er „eldri en tvævetur“ í bransanum. Fyrir þetta fæ ég auðvitað böns af monní og útlit fyrir að ég eigi einmitt efni á blómum eitthvað fram eftir vetri. Húrra, yo! Um kvöldið áttum við Nadja síðan svokallað „deitkvöld“ – ótengt réttindasölunni, þetta var ákveðið áður – en þá borðum við seint eftir að börnin eru farin í háttinn og Nadja má ekki vinna, annars vinnur hún flest kvöld, enda í 67% stöðu sem menntaskólakennari og það er miklu meira en flestir þola. Ég gerði spænskt tapas, meira og minna upp úr sjálfum mér. Kartöflueggjaköku, bakaða sveppi fyllta með geitaosti (úr costco!) og heimatilbúnu grænkálspestói, tannstöngla með ólífum (costco), manchego-osti (costco) og kirsuberjatómötum (nettó), súrdeigsbruschettu með karamellíseruðum lauk og geitaosti (costco) annars vegar og mozzarella (costco) og basiliku (bónus) hins vegar. Ég man ekki hvort það var eitthvað fleira þarna. Þetta var allavega mjög gott og ég sem sagt raðaði tapasinu í kringum blómvöndinn en þurfti svo að færa hann aðeins til hliðar, enda er hann svo stór að við sáum ekki hvort annað – og það er ekki alveg hægt á „deitkvöldi“, ekki einu sinni þótt vöndurinn sé fagur. Í dag var svo síðbúin afmælisveisla fyrir krónprinsinn, Aram Nóa Norðdahl Widell – hann varð átta ára þann 3. september síðastliðinn – og vöndurinn var aftur í hávegum, á miðju langborðinu. Börnin fengu pylsur – grænmetis, merguez, vínar og beikon (allt úr Nettó) – rækjusalat og heimalagaðar súrar gúrkur, auk annars hefðbundins tillbehör á íslenskum pylsubar (gleymdi reyndar að kaupa remúlaði – sem hefði samt passað vel við vöndinn, bæði einhvern veginn danskt). Í eftirrétt var einhvers konar marensparadís – Nadja tók þetta að sér og ég sá ekki betur en að auk marens væri í þessu vanilluís, jarðarber, bláber og súkkulaðisósa. Þá var hægt að hræra út í það rjóma, hann stóð bara á borðinu – prinsinn vill ekki rjóma sjálfur, nefnilega. Við þetta tækifæri breiddum við svolítið úr vendinum svo stilkarnir standa langt út á borðsendana einsog spjót – hann er ekki síður tígulegur þannig. Vonandi hafið þið fjölskyldan það gott í Espergærde. Kær kveðja að vestan,
Eiríkur og fjölskylda PS. Ég taldi upp allan þennan mat ekki síst vegna þess að ég þykist vita að þú sért matmaður, einsog ég reyndar líka, en svo er auðvitað alls ekkert víst að þér finnist þá sjálfkrafa gaman að lesa upptalningar á mat. Ef svo er ekki biðst ég bara forláts og vona að þú hafir skemmt þér betur yfir þeim hlutum þessa bréfs sem ekki snúast um mat, nema í besta lagi óbeint, svo sem eftirskriftinni.
Untitled
Má ég opna? spurði konan mín. Á sænsku. Får jag öppna. Og mynd. Okkur höfðu borist blóm. *** *** Ha, já, ha? Svaraði ég. Hvað er þetta? Já opnaðu bara. *** *** Satt og rétt.
Untitled
Hér er allt að gerast. Íslendingar eru sviknir um nóbelsverðlaun á hverjum degi. Að minnsta kosti þessa vikuna. *** Nema Snæbjörn. Það liggur við að maður ætti að senda honum blóm. En hann á sennilega fyrir sínum eigin blómum. *** Ég kláraði leikritið – Hans Blævi – í gær og sendi á Óskabörn ógæfunnar sem ætla að setja þetta upp. Sennilega á ég reyndar eftir að breyta helling – kannski ekki í strúktúr en það þarf að stytta hér og þar og árétta hitt og þetta, reikna ég með – en þau eru allavega komin með eitthvað í hendurnar til þess að lesa saman. *** Svona alveg án þess að taka afstöðu til Brexit eða Katalóníu eða uppgjörstilraunarinnar í Grikklandi um árið þá er áhugavert að sjá hversu kerfið er orðið gott í að standa vörð um sjálft sig – um status quoið. Sem sagt kapítalíska kerfið. Niðurstaðan frammi fyrir öllum stórum breytingum er: Ef þið ruggið bátnum tekur við óstöðvandi Mad Max kaos og svo svelta þeir í hel sem ekki gerast útlagar eða eru drepnir af útlögum áður en þeir ná að svelta í hel. Einsog þeir sögðu í Star Trek: We are the Borg, resistence is futile. *** Ég var mjög hrifinn af Never Let Me Go. Svo það sé bara sagt – hvað sem stendur hér fyrir neðan sat hún í mér, ég kvabba líka. Ég skrifaði þetta um hana þegar ég las hana (á blogg sem er horfið – þetta er eiginlega færsla á horfnu bloggi um færslu á öðru horfnu bloggi og svo hverfur þetta blogg): *** Apríl – 2008 Í gærkvöldi kláraði ég Slepptu mér aldrei eftir Kazuo Ishiguro. Á sínum tíma pönkaðist ég eitthvað á fólki (Bjarti) fyrir að slá upp kommentinu “A masterpiece of craftsmanship”, sem hent var á lofti um þessa bók þegar hún kom út. Ég skrifaði um þetta á gamla bloggið mitt, Bjartur brást við (enda eldheitur Ishiguro maður) og loks dró nafniminn Guðmundsson mig inn í Víðsjá til að ræða sótthreinsaðar bókmenntir – sem ég vildi bera saman við sótthita bókmenntir Dostójevskís. Bloggið er löngu horfið, sem og úbbartsviðtalið, en á heimasíðu Bjarts segir m.a.: “Eiríkur segir: “Ég hef það á tilfinningunni að sótthreinsaðar bókmenntir séu að verða vinsælli og vinsælli – “A masterpiece of craftsmanship” segir í dómi um nýjustu bók Ishiguro. “Send a copy to the Swedish Academy” – handbragðið nýtur svo mikillar virðingar að menn hugsa til þess með hjartað í buxunum að bækur þeirra verði óvart prentaðar með einni einustu bögu. En það gerist ekki, því eftir yfirlestra frá 40 manns, situr ekki einn einasti agnúi eftir. Sem er að einhverju leyti miður, því agnúar eru þrátt fyrir allt snertifletir.” Æ! Þvílíkt endemis rugl. Eru mannanna verk svo fullkomin að það þurfi að hafa áhyggjur af því?” Nú er ég sumsé búinn að lesa bókina. Hún var fín, eins og ég vissi sosum, en óttalega sívílíseruð. Prótagónisti Ishiguros, Kathy, er voðalega meinlaus, og hugsun bókarinnar þar af leiðandi einhvern veginn, já, kannski er sótthreinsuð orðið sem ég er að leita að. Uppbygging og texti, meina ég. Það er margt í bókinni magnað, og margt sem hreyfir við manni – einna helst hversu allir í sögunni eru sáttir við örlög sín, hvernig veröldin er. Það er ógnvekjandi, því það er líka algerlega satt. Við lifum eins og hlýðnir hundar, og beitum svipunni óhikað á okkur sjálf. Eitt atriði við bókina var þó verulega þreytandi, en það var stílbragð nokkuð sem jafnan er beitt til að gera sögur lífrænar, gera þær slíkar að útlit sé fyrir að einhver sé að segja stóra kaotíska sögu og hún sé ekki línuleg, passi ekki inn í ramma frásagnarinnar. Kazuo Ishiguro var alltaf að segja frá því sem var alveg að fara að gerast, því sem var á næstu grösum. Ég held það liggi við að allir kaflarnir séu þannig uppbyggðir – minnst er á hlut/atvik sem koma mun við sögu, og hvernig hluturinn/atvikið hafði áhrif á persónur bókarinnar og aðstæður þeirra, áður en sagt er frá því hver hluturinn/atvikið er. Ég er ekki með bókina með mér, og get því ekki tekið dæmi, nema skáldað (ég er minnislaus með afbrigðum, ef ég skyldi aldrei hafa minnst á það): “Ég veit ekki hvenær Gunnar hætti að haga sér illa, en það hafði kannski eitthvað að gera með bréfið sem hann fékk þá um haustið. Hann hafði verið óstýrilátur allt sumarið, en fréttirnar sem bárust með bréfinu virtust breyta skapferli hans, á einhvern hátt.” Ble ble. Seint og um síðir fær maður svo að vita að í bréfinu var Gunnari sagt að hann hafi verið ættleiddur, hann eigi tvíburabróður en foreldrar hans hafi látist í flugslysi. Þetta er ágætis stílbragð, ekkert undan því að kvarta – fjarska fágað og sívíliserað, lávarðaútgáfan af cliffhangernum. En það mætti alveg fara sparlegar með það mín vegna, að minnsta kosti í einni bók.
Untitled
Costco mun ekki fylla í gatið á sálum okkar. Ekki heldur Facebook eða snjallsímar. Kannski mun ekkert fylla í gatið á sálum okkar. Gapandi holuna. Það verður þá bara að hafa það. *** Það er miðvikudagur – hin endanlega sönnun þess að vikan hefst ekki á mánudegi, einsog félagslegir fílístear halda fram, heldur sunnudegi. *** Ég hugsaði um það í morgun hvað mér þykir vænt um menningarlega fílísteann í sjálfum mér. *** Svo gleymdi ég að klára blogg dagsins. Dag bloggsins. Ég man ekkert hvað ég var að hugsa um þarna í morgun þegar ég skrifaði ofangreint. Eitthvað um fílístea, held ég, menningarlega og félagslega.
Untitled
Ég missti alveg af ranti Braga Ólafssonar um bókadóm Braga Páls um ljóðabók Jónu Kristjönu – Skýjafar. Þar prýðir Bragi Ólafsson sig bókstaflega „hatri, blóði og hráum tilfinningum“ þegar hann segir að Bragi Páll eigi „þannig lagað“ ekkert betra skilið en meðferðina sem Willem Dafoe fær í myndbandinu við Cut the World með Antony and the Johnsons (hann er skorinn á háls í frekar brútal senu) fyrir að segja að ljóðskáld eigi að prýða sig „hatri, blóði og hráum tilfinningum“ (sem Braga Ólafs finnst „óendanlega hallærislegt). Ég missti af því sem sagt alveg þangað til Snæbjörn Arngrímsson fór að verja Braga. *** Ég sé reyndar núna að þeir félagar hafa birt færslur sínar samdægurs. Fyrir þremur dögum. Sem er eilífð á internetinu. Þetta er svipað og bók fari framhjá manni í fjörutíu ár. *** Bragi uppnefnir líka Starafugl – fer aðra leið en Einar Kárason sem talaði um „Sterafugl“ og talar þess í stað um „Stafaruglið“. Nú skil ég hvernig Samspillingunni og Sjálfgræðgisflokknum hlýtur að líða. *** Ég held – einsog ég hef þúsund sinnum nefnt – að það sé mjög mikilvægt fyrir menninguna að fólk segi skoðanir sínar á henni umbúðalaust. Ein helsta ástæðan fyrir ótta fólks við ljóðlistina hefur einmitt að gera með alla upphafninguna og tátiplið – fólki (sérstaklega utan innvígðu mennignarkreðsunnar) finnst að það geti ekki haft á henni rétta skoðun – allt sem er sagt um hana opinberlega er svo lært og yfirvegað, svo djúpt og svo rétt. *** Þessu tengt. Áðan fór ég í Lucky Records og keypti plötur. Þar afgreiddi mig Bob Cluness – held ég alveg áreiðanlega – sem er ekki síst þekktur fyrir ofsafengna afstöðu sína til tónlistar. Ég keypti af honum sex plötur – tvær AC/DC, tvær Tom Waits og tvær með Guns (Use Your Illusion I & II). Og það hvarflaði að mér að ég ætti að skammast mín fyrir þetta. Að minnsta kosti fyrir Gunsplöturnar. Sennilega er þetta svolítið einsog að láta einmitt Braga Pál afgreiða sig um Skýjafar og Ansjósur. En það er líka valdeflandi. Ég var alveg næstum því búinn að hvæsa á Bob að þetta væru víst góðar plötur þegar ég gekk út. Og ég veit ekki einu sinni hvort honum finnst þetta drasl. *** Eyddi nóttinni á hóteli á beisnum. Hótel Ásbrú. Gekk út á strætóstoppistöð í morgun í rokinu og hugsaði að Bandaríkjamenn hefðu nú varla getað valið sér ömurlegra bæjarstæði eða skipulagt bæinn verr. Stór hús, langt á milli, marflatt, viðstöðulaust rok og hvergi skjól. Ég hef aldrei áður vorkennt bandaríska hernum. En aumingjans, aumingjans bandaríski herinn.
Untitled
Ég er í þráttafríi fram á helgi. Þá fer ég til Gautaborgar að kljást við nasista sem ætla að herja á bókamessuna. Ekki er nóg með að tímaritið Nya Tider – sem er eins konar Breitbart – sé með bás á messunni heldur hafa stærstu nýnasistasamtök norðurlandanna, Nordiska Motståndsrörelsen, fengið gönguleyfi frá lögreglunni. Þau ætla að safnast saman fyrir utan bókamessuna. Þetta verður eitthvað. *** Haukur Már bjó til nýja grúppu á Facebook fyrir ný orð í íslensku. Ein af fyrstu tillögunum var gaslýsing – sem ég held að eigi við þegar maður lætur við fólk einsog upplifun þess af raunveruleikanum sé röng (ég kommentaði auðvitað að viðkomandi væri klikkaður að halda að „gaslýsing“ sé eitthvurt helvítis orð). En þetta orð, sem er í sjálfu sér ágætt, er dálítið PC-Gone-Mad viðkvæmt. Í gær las ég til dæmis grein þar sem því var haldið fram að þegar foreldrar tryðu ekki börnum sínum, þegar þau segðust vera södd, væru foreldrarnir að gaslýsa börnin. Sem er sennilega tæknilega rétt – en þá er líka ekki alltaf rangt að gaslýsa fólk. Upplifun barnanna minna á því hvenær þau eru södd er í öllu falli ekki í neinum tengslum við hinn fýsíska veruleika þeirra. *** Ég las annars óvenju mikið PC-Gone-Mad dæmi í gær. Ljóðabókaútgáfan BookThug í Kanada ætlar að skipta um nafn eftir að því var haldið fram að Thug væri of kynþáttahlaðið. Það væri sem sagt svokallað „racial slur“. Ekki ætla ég að rífast um málskilning við heimamenn, en jæja, já, alltílagi. *** Svo las ég líka grein um (mjög vinstrisinnaðan) háskólaprófessor sem gagnrýndi hugmyndir um að halda dag þar sem hvítir nemendur ættu að vera heima – til að vekja athygli á kynþáttamálum – og var svo til húðstrýktur af nemendum og svo skólastjórninni. Það var vægast sagt mjög spes lesning. *** Annars bara frekar rólegur. Fór í ræktina í morgun og hitti Rúnu. Hún segir að Öddi nenni ekki að koma með sér. Það sé svo langt að keyra úr Sluddunni. Og hlíðin er ekki skemmtileg og göngin sennilega númer 100 á listanum. Annars lokar Stúdíó Dan í febrúar og þá verða góð ráð dýr. Það hefur eitthvað verið talað um að bærinn blandi sér í málið og það verði komið upp aðstöðu uppi á Torfnesi. Ætli það strandi ekki á blankheitum einsog allt annað. Það er ekki einu sinni hægt að laga göturnar. (Helvítis göturnar, ég hata þessar götur). *** Svo er vandræðaástand að vera orðinn þreyttur á pólitík í upphafi vetrar þar sem verður gengið til kosninga tvisvar. Hið minnsta. Ég þyrfti eiginlega að komast í vetrarfrí til Kanarí. Hlaða batteríin. Því ekki kemst ég út á land. *** Ég eyddi gærkvöldinu í að fínpússa sólóin í Back in Black og Hells Bells. Þetta er allt að koma, einsog skáldið kvað. Ég verð lipur gítarleikari fyrir rest.
Untitled
Maður lifir í náttúrunni. Það er ekki nóg með að sólarlögin sprengi hjörtun í elskendum, kyrrðin slái á æsing hugsjúkustu brjálæðinga og skáldin yrki allt sem skiptir máli til vatnsfallanna. Það er ekki heldur nóg með að náttúran færi okkur fæðu til að seðja hungrið, fisk úr ólgandi hafinu, krækling úr spegilsléttum firðinum, grænmeti og ávexti beinlínis upp úr jörðinni og kjöt af beinum skepnanna. Við sleppum nefnilega aldrei úr náttúrunni. Náttúran er óaðskiljanlegur hluti af okkur – við erum ekki utan við náttúruna, ekki utan á henni, heldur í henni. Við erum náttúran. En maður lifir ekki bara í náttúrunni – maður deyr líka í náttúrunni. Hafið drekkir manni, fjöllin ryðjast yfir mann – þurrka út heilu byggðalögin – fellibyljir leggja samfélög í eyði, flóð sökkva borgum – og náttúran, mannleg náttúra, hefur oft og tíðum þær afleiðingar að við völdum hvert öðru, eða sjálfum okkur, óumræðanlegum skaða. Fólk drepur fólk og fólk drepur sjálft sig. Og lifi maður alla þá náttúru af – sem er tölfræðilega ósennilegt – svíkur mann loks bara líkaminn, náttúra holdsins, og maður hrynur niður og verður að eintómu dufti, jafn örugglega og ef hvað sem er annað hefði drepið mann. Maður lifir í náttúrunni, maður deyr í náttúrunni og þess á milli beislar maður náttúruna. Maður reisir segl upp í vindinn, lætur stjörnurnar teyma sig um hafið, steypir akkeri úr málmgrýti, smíðar skeifur á hestana, múl á hundana, leggur vegi meðfram fjörðum, brúar firðina, borar göt á fjöllin, sigrar háloftin og sigrar jafnvel sjálft holdið. Því náttúra mannsins er stór og afleiðingar hennar miklar og mikilfenglegar. Maður beislar náttúruna og maður eyðileggur náttúruna. Nýjustu tölur segja að eftir þrjátíu ár verði meira plast í hafinu en fiskur. Mér skilst að Reykvíkingar séu meira og minna að kafna í svifryksmengun af umferðinni. Fellibyljina sem riðið hafa yfir Karíbahafið upp á síðkastið er ekki hægt að skrá á reikning duttlungafullrar náttúru. Þar á maðurinn, græðgi stórfyrirtækja og fyrirhyggjuleysi samfélaga, hönd í bagga. Olían fuðrar upp í farartækjum svo uppskerur bresta vegna loftslagshlýnunar. Námur tæmast, búskapur breytist í villimennsku – og já, laxeldi hefur, þar sem hirðuleysi réði för, farið allharkalega af hjörunum. Og það viljum við ekki – það vill enginn skíta í deigið. Ef við ætlum að stunda hér sjókvíaeldi þurfum við að geta treyst því að regluverkið sé grjóthart. Búskap þarf alltaf að stunda af virðingu við náttúruna – það er ekki valkvætt. Maður eyðileggur náttúruna og maður eyðileggur þar með sjálfan sig – en eyðileggingin er mismikil. Með hverjum nýjum vegi hverfur ósnortið víðerni, með hverju nýju húsi gufa óbyggðirnar upp og sjást ekki aftur fyrren byggðin leggst í eyði og húsin fyllast draugum – og á eftir draugunum koma túristar. Við getum dregið úr vistspori okkar – lágmarkað þau áhrif sem við höfum á umhverfi okkar – en við getum ekki látið vistsporið hverfa. Allri tilveru fylgir bæði fórnarkostnaður og áhætta. Ef náttúran nyti einfaldlega vafans stæðum við aldrei á fætur, drægjum ekki andann fyrir áhyggjum af fiðrildaáhrifum andardráttarins. Náttúran nýtur ekki vafans nema að svo miklu leyti sem okkur er leyfilegt að telja okkur sjálf til hennar. Ég hygg að flestum hér inni – þeim sem ekki búa að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu, í öllu falli – finnist oft einsog það gildi önnur lögmál um þróun mannlífs í og í kringum smærri byggðir en á höfuðborgarsvæðinu, þar sem valdið hefur hreiðrað um sig. Í Garðabænum víla menn ekki fyrir sér að draga Ómar Ragnarsson argandi ofan af vinnuvélunum til að leggja veg, þar sem menn telja að vegur þurfi að liggja, en við Reykhóla er hægt að halda vegalagningu í gíslingu í meira en áratug fyrir nokkrar hríslur og einn sumarbústaðareiganda. Á suðvesturhorninu má holufylla og malbika hraunið langleiðina frá Hafnarfirði til Keflavíkur ef með því mætti flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Því í Vatnsmýrinni vill fólk víst búa. Það eru kannski fréttir fyrir suma, en fólk vill líka búa á Vestfjörðum. Og þetta er ballans. Það er alger óþarfi að láta einsog sú sé ekki raunin – svo klisjan um „sátt og samlyndi við náttúruna“ sé bara tuggin enn einu sinni, hún er sönn og við kærum okkur alls ekki um að leggja heimkynni okkar í rúst, einsog einhverjir virðast halda og við erum ekki einföld náttúrubörn sem glepjast af gylliboðum siðspilltra útlendinga og þarfnast þar með verndar siðaðra manna. En stundum er einsog hér rekist stöðugt á tvær ólíkar þjóðir – Vestfirðingar og þeir sem vilja hafa vit fyrir þeim. Spurningin um líf í Djúpinu er okkur ekki fræðilegs eðlis, ekki ljóðrænn harmsöngur um exótíska og deyjandi byggð, eða dystópísk dæmisaga fyrir börn, heldur kaldhamraður og hversdagslegur veruleiki. Og það er hvorki sátt né samlyndi í því fólgið að skilgreina heimkynni fólks sem friðland sem það megi ekki snerta, sem það megi ekki hafa lifibrauð sitt af – að byggðin verði að víkja fyrir óbyggðunum, því réttur óbyggðanna sé meiri. Það er ekki ballans. Það er ofbeldi. Eining lýðræðislegrar þjóðar byggir á samstöðu, sjálfsákvörðunarrétti og því að ákvarðanir séu teknar eins nærri þeim sem þær varða og frekast er kostur. Ef þeir sem vilja hafa vit fyrir okkur ætla einfaldlega að ákveða þetta fyrir okkar hönd, hafa af okkur sjálfsákvörðunarréttinn með yfirgangi, þá erum við ekki lengur þjóð. Sama hver niðurstaðan er. Þá er samkomulagið – um að við gætum hagsmuna hvers annars, við séum saman í þessum báti – einfaldlega brostið.
Untitled
Á morgun er stór fundur í íþróttahúsinu á Torfnesi þar sem verður kannski ákveðið hvort hér megi lifa eða bara deyja. Ég á að halda ræðu og dró það stutta strá að mæla fyrir lífinu, með öllum sínum afleiðingum. Ég sem var aldrei einu sinni í Morfís. *** Og ligg annars sjálfur fyrir dauðanum. Einn heima með tvö börn, með sótthita uppi í rúmi og reyni að semja ræðu um lífið þegar mig langar mest bara að sofa. Nadja kemur ekki fyrren upp úr 21 í kvöld og þá fer ég sennilega beint á skrifstofuna til að klára þetta. Stundum er rithöfundalífið bara alveg einsog verkalýðsþrældómurinn. Nema þá lá ég oftar þunnur í rúminu og sjaldnar lasinn, en þetta er svipuð tilfinning og hér bíður maður þess bara að blásið verði í lúðurinn og maður þurfi að skella sér í skítagallann. *** Ég ætla ekki að tala neitt um Hvassahraun eða Gálgahraun en talsvert um samneyti mannsins við náttúruna, manninn í náttúrunni, manninn sem náttúru. Og sennilega verð ég háfleygur og þungstígur. En sem sagt já, hraunin. Það sló mig – eða mér var bent á, ég spurður, hvort það væri ekki skrítið að sama fólk (og nú ímyndar maður sér alltaf að þetta sé sama fólk, kannski er það alls ekki raunin, kannski eru þetta tveir gerólíkir hópar sem renna saman hér í suðursýninni) vilji allt til gera til að stoppa vegagerð um Gálgahraun og vilji flytja innanlandsflugvöll – og sennilega alþjóðaflugvöll líka – í Hvassahraun, sem sé ekki síður merkilegt og glæsilegt. Fyrir utan að það er auðvitað þúsund sinnum meira rask – flugvellir eru nefnilega mjög plássfrekir. *** Sé þetta rétt hjá mér er ástæðan auðvitað augljós: hagsmunir. Miðbæjarbúar hafa hagsmuni af því að losna við flugvöllinn úr Vatnsmýri (eða telja sig í öllu falli margir hafa það, kannski óþarfi að alhæfa). Því það er auðvitað rétt, hvað sem hver segir, að þegar rétt fólk hefur nóga hagsmuni af tilteknum aðgerðum er einfaldlega litið svo á að kostnaðurinn sé innan ásættanlegra marka. *** Sem var auðvitað líka raunin með Gálgahraun. Þar hafði réttara fólk enn meiri hagsmuni af einhverju öðru. Og fólkið sem vill/þarf að keyra um Teigsskóg er einfaldlega ekki nógu rétt eða nógu margt og því víkja hagsmunir þeirra alltaf – eða það er sett á pásu meðan rifrildinu er haldið áfram og fólkið sem þarf veginn fær að bíða. *** Annars er að minnsta kosti einn maður sem vill halda flugvellinum í Vatnsmýri og sleppa allri vegagerð um Gálgahraun. Ómar Ragnarsson er nefnilega ötull baráttumaður fyrir hvorutveggja. *** Einhvern tíma var nú líka barist hart gegn öllum frekari framkvæmdum í Vatnsmýrinni af umhverfisástæðum. Svo mýrin nyti vafans. En nú virðist það allt löngu gleymt – kannski kom eitthvað í ljós sem við vissum ekki. Mýrin einskis virði eftir allt saman. Og Tjörnin – var hún ekki líka í gamblinu? Annars man ég þetta ekki vel. *** En nú þarf ég að einbeita mér og skrifa þessa ræðu.
Untitled
Ég hef verið mjög þreyttur frá því ég kom til baka frá London. Og einhvern veginn smám saman verið að verða lasinn. Í dag lá ég í rúminu í allan dag – skaust rétt fram úr til að gefa Aram morgunmat og svo Aino skömmu síðar og fara með hana á leikskólann. (Nadja er í Reykjavík að ráðstefnast). *** Svo hef ég of mikið að gera. Það er alveg ljóst. Í sjálfu sér eru þetta allt hlutir sem ég gæti afgreitt á örskömmum tíma ef ég væri ekki eilíflega þreyttur. Ef mér tækist að einbeita mér almennilega í einsog gott augnablik. Ég kenni Facebook um en það er ekki Facebook. Þegar maður afvegaleiðist þá er það vegna þess að maður veit ekki hvert maður ætti annars að vera að fara. *** En það er samt erfitt. Að stara á skjáinn. Byrja á einhverjum kýtum. Hugsa upp snappíkomment til þess að involvera sig í einhvern þráð svo maður þurfi ekki að feisa tómlætið á skjánum. Bergmálið í huganum. Fuglabjargið í huganum. *** Og einmitt já. Hvort ætli maður sé tómur eða fullur þegar svona stendur á? Ég er hreinlega ekki viss. Eiginlega er það bæði í senn. Maður grípur í tómt þegar maður teygir sig eftir því sem vantar – en það er samt allt fullt af drasli alls staðar. Bara ekki rétta draslinu. Og svo rekst maður á gamlar ljósmyndir og afvegaleiðist. *** Búff. Soldið þannig vika.