id““:““cj2vb““

Þetta eru nokkrir dyggir félagar í Norður Kóreska landhernum. Fáir dátar eru jafn agaðir eða búa yfir jafn tígulegri og fágaðri göngutækni. Margir þeirra eru vel að merkja ekki þeir heldur þær. Þau, þeir, þær handleika líka talsverðan sprengikraft, einsog sjá má á myndinni. *** Þetta er hins vegar tasmaníudjöfullinn. Hann er óagaður og býr yfir litlum þokka (en dálitlum sjarma samt) – hann er miklu nær því að vera einhvers konar náttúruafl. Það er hægt að nota hann sem vopn – einsog hermennina hér að ofan – en það er ekki hægt að ætlast til þess að hann þrammi í takt. *** Angus Young er í senn norður kóreskur hermaður og tasmaníudjöfull. Hann er fær um brjálæðislega agaðan og teknískt fullkominn gítarleik – en stundum er honum einfaldlega sigað á tónlistina með ekkert nema botnlaust kaosið sér til handargagns. Lykilriffið í Thunderstruck, opnunarlagi Razors Edge, er dæmi um hið fyrrnefnda. Þar má segja að hann krosspikki á einum streng (sem er mótsögn, vel að merkja) af dæmalausri fingrafimi. Hann plokkar hverja nótu – engin pull-off og engin hammer-ons. Laglínan er eitt af mörgum dæmum um kántríáhrif í lagasmíðum sveitarinnar. Undir þessu leikur Malcolm bróðir hans einhvern fallegasta einshljómsrytma frá því Bo Diddley samdi lagið um sjálfan sig um árið. *** Það er ótrúlega gaman að horfa bara á þá hreyfa sig. Malcolm dúar allur, Cliff púlsar, Angus snýst í hringi og þýtur um einsog það sé kviknað í honum og Brian belgir sig á meðan hinn nýráðni Chris Slade hamrar trommurnar af miklum móð. Þegar lagið er búið er Cliff líka alveg móður. Það eru fáar sveitir sem jafn rækilega breytast í tónlistina sem hún spilar – renna saman við hana. *** Chris trommar reyndar aftur fyrir hljómsveitina í dag – tók við af fyllibyttunni og dópistanum Phil Rudd þegar hann í annað sinn lagði líf sitt í rúst í hittifyrra. Og Chris er ekkert síðri en Phil (annað en Simon Wright sem spilaði megnið af níunda áratugnum og gat ekki trommað rokk frekar en Mathías Hemstock, einsog þeir eru nú ágætir í annað). *** Razors Edge er augljóst kombakk fyrir sveitina sem hefur ekki haldið tempói – ekki náð að kjarna sig sem skyldi – frá Back in Black. Líkt og fyrir Back in Black hefur hér orðið stór breyting í söngmálum – þótt ekki hafi verið skipt um söngvara er þetta í annað sinn í sögu sveitarinnar sem skipt er um textahöfund. Fyrst tók Brian auðvitað við af Bon en hér taka bræðurnir við af Brian – sem er hreinlega settur af. Þetta kom bæði til af því að hann er ekki góður textasmiður, oft hreinlega mjög vandræðalega lélegur, en líka af því Brian stóð í miðjum skilnaði – og raunar fær maður á tilfinninguna að sá skilnaður sé kjarninn í textanum við Moneytalks. The claim is on you
The sights are on me
So what do you do
That’s guaranteed
Hey little girl, you want it all
The furs, the diamonds, the painting on the wall
Come on, come on, love me for the money
Come on, come on, listen to the moneytalk *** Hann kærði sig víst heldur ekkert um að taka aftur við textakeflinu. Sagðist guðs lifandi feginn að vera hættur að þurfa að gera sig að fífli. *** Hvað sem því líður er áhugavert að veita því athygli að líkt og Back in Black hefst á vísun í þrumuveðrið – „I’m rolling thunder, pouring rain/  I’m coming on like a hurricane“ – sem myndlíking fyrir endurfæðinguna, rafurmagnið sem blæs þrótti í þennan Frankenstein riðstraums og jafnstraums, sjálfan lífgjafann – þá byrjar Thunderstruck (augljóslega) á sama máta, þar sem þruman er ákölluð í taktföstum og þungum regndansi. Thunder! Thunder! *** Það er líka áhugavert að harðgiftu gítarleikararnir Young & Young – sem nú eru þess utan báðir skrjáfaþurrir, eftir að Malcolm kom úr meðferð – semja eiginlega bara texta um fyllerí og uppáferðir. Sem er sennilega það sem áheyrendur þeirra vildu heyra. *** Angus er ekki alltaf besti sólógítarleikarinn – sólóin á plötunum er flest kompóneruð en hann eltir þau aldrei nema að hluta á tónleikum, sleppir sér frekar lausum og gerir … bara eitthvað, sýnist mér. Það er ekkert orð sem lýsir þessu betur en dýrslegt, eins klisjulegt og það nú er (sérstaklega þegar ég er búinn að segja það svona tuttugu sinnum). En auðvitað fer þetta líka eftir því hvað maður kallar „besti“ – hvað er best. Það er enginn gítarleikari, fyrr eða síðar, sem hefur spilað af jafn miklum sprengikrafti – og það eru fáir sem hitta mig jafn rækilega í hjartastað. Eða þú veist, hittir mig í loðinn og ljótan punginn.  Hér er eitt besta dæmið af Razors Edge (allra, allra bestu dæmin eru samt af live upptökum frá áttunda áratugnum – nánast hverri sem er – og sólóið í titillaginu er líka helsturlað, það er hér aðeins neðar). *** There’s fightin’ on the left
And marching on the right
Don’t look up in the sky
You’re gonna die of fright
Here comes the razor’s edge
You’re livin’ on the edge
Don’t know wrong from right
They’re breathin’ down you’re neck
You’re runnin’ out of lives
Here comes the razor’s edge *** Razors Edge er einn af bestu textum AC/DC frá upphafi – sem er ekki lítið sagt, því þótt Brian hafi ekki samið góðan texta í heilan áratug þegar hér er komið sögu þá er Back in Black mikið ljóðverk og sjöundi áratugurinn með Bon í fararbroddi náttúrulega dásemd. En það er eitthvað við þessa myndlíkingu hér – um rakvélarblaðið sem ég sé fyrir mér að maður eigi von á af himnum ofan, einsog guð ætli að sléttraka jarðkringluna. Lagið er líka með einhverjum austrænum áhrifum – það er talsvert mikið af svona smá snerti af hinu og þessu í lögum AC/DC, eiginlega alveg frá upphafi (t.d. sekkjapípurnar í It’s a Long Way to the Top) og verður meira á næstu plötum – köntrí, búgí, blús og rokk segir sig sjálft, en lírukassamúsík, þjóðlög og alls kyns heimstónlist koma meira á óvart. *** „Versti“ texti plötunnar kemur svo strax á eftir Razors Edge, einsog til að kolefnisjafna ljóðrænuna í Razors Edge (þeim finnst ekkert mjög auðvelt að taka sig alvarlega). Lagið Mistress for Christmas fjallar um núverandi forseta Bandaríkjanna og kvensemi hans. Í einhverjum skilningi er hann auðvitað alveg frábær, og lýsandi fyrir Donald, en líður líka fyrir hvað lagið sjálft er mikið jingle. I like female form, in minimum dress
Money to spend with a capital “S”
Get a date with the woman in red
Wanna be in heaven with three in a bed
He got it, I want it
They got it, I can’t have it
But I want it, but it don’t matter
She got it and I can’t get it
I want a mistress for Christmas *** Við fyrstu hlustun þótti mér sem seinni hluti plötunnar – b-hliðin – væri of latur, lögin hefðu mætt afgangi. En eftir því sem að ég rifjaði hann betur upp því betri finnst mér hann. Are You Ready, auðvitað, Got You By the Balls, Good Bye and Good Riddance to Bad Luck – þetta eru allt massalög þótt þau séu ekki Thunderstruck eða Razors Edge. Og boðar helvíti gott fyrir gjöfulan tíunda áratuginn. *** Og svo er hún kláruð á þessum strangheiðarlega blússrokkslagara – þetta gæti verið Mugisonlag. #ACDC

createdTimestamp““:““2024-05-23T02:46:56.526Z““

Ég hef lítið lesið síðustu daga – eða lesið hægt, bók um sögu blússins sem ég er hvergi nærri búinn með – en mikið horft og ekkert dokumenterað. Það eru margir póstar sem þarf að segja frá og ég ætti að gæta mín á að segja ekki of mikið um hvern og einn. Svo er reyndar líka merkilegt hvað þetta er fljótt að hverfa úr minninu. *** De kommer att drunkna i sina mödrars tårar eftir Johannes Anyuru. Hún fjallar um konu úr hliðarveruleika sem rankar við sér í miðri hryðjuverkaaðgerð. Í veruleikanum sem hún á heima í átti þessi aðgerð sér líka stað, þótt hún tæki ekki þátt í henni, og varð til þess að fasistar tóku völdin og múslimar urðu kúgaður og pyntaður minnihlutahópur með svipuðum aðferðum og í helförinni og/eða abu ghraib. Konan lifir aðgerðina af og endar á hæli og rithöfundur – Johannes Anyuru sjálfur? – fer reglulega og ræðir við hana um hennar sýn á lífið. Þetta er í senn sci-fi og harðkjarna raunsæi – sósíal-realísk bók sem samt einblínir á sálarlífið. Mjög góð og meðmælist innilega. Eini gallinn, fyrir mig, var einhver asnalegur kjánahrollur yfir vissum elementum í hliðarveruleikanum. Hann var því betri sem hann var realískari en eitthvað hallærislegur þegar farið var að tala um „sensogram“ (sem er Facebook með bara texta) og annað álíka dót í hliðarveruleikanum. Fullkominn óþarfi – passar ágætlega í annars konar bækur en reif mann alltaf upp úr þessari, svona einsog maður væri annað veifið staddur í einhverju Andrésblaði. *** Kláraði lokaseríuna í Orange is the new black kvöldið áður en við áttum að fara frá Hondúras (við lentum í afar dýrum vandræðum og lögðum ekki af stað heim fyrren degi seinna en við ætluðum). Eftirminnilegasta senan fyrir mig verður alltaf sú þegar Blanca ákveður að elta manninn sinn, sem hefur verið vísað úr landi, og flýgur til San Pedro Sula: Hvað ertu að gera hér, í morðhöfuðborg heimsins, þegar þú gætir verið hvar sem er annars staðar? spyr Diablo. Fyrir ástina, svarar Blanca. Ég átti hins vegar völ á því að taka ástina með mér frá San Pedro Sula og er mjög þakklátur fyrir það. Lokaserían var langdregin og það gerðist ekkert nýtt eða áhugavert í henni. Það var talsvert verið að strjúka súper-aðdáendunum og væmnast yfir því að þetta væri búið – sem var ábyggilega gott fyrir þá sem voru djúpt sokknir en minna fyrir okkur hin sem vorum farin að missa áhugann. Mér finnst líka bara almennt fleiri og fleiri svona seríur lenda í vandræðum með söguþráðinn – þetta er allt byggt í kringum einhverra narratífuhúkka og þegar þeim sleppir áttar maður sig á því að persónurnar eru, í allri sinni djúpu baksögu, voðalega keimlíkar – eða a.m.k. einsog þær hafi allar orðið til í sama think-tankinu sem mannað var fólki með mjög keimlíkan og þröngan bakgrunn (kannski ólíkan húðlit og kynhneigð en útskrifað úr sömu skólunum, með sömu gráðurnar) hafandi lesið sömu bækurnar). Áhugaverðast í lokaseríunni var útúrdúrinn – fangabúðir hælisleitenda og flóttamanna – en virkaði eiginlega bara fyrir þá karaktera sem við vorum búin að kynnast. Egypska kynfæralimlesta lesbían sem þaut inn í líf okkar og hvarf svo aftur markaði lítil spor í tilfinningalíf mitt – eða svona, bara einsog lítil frétt í blaði hefði gert. Mjög sorglegt en ég náði ekki að kynnast henni að ráði og kannski sérstaklega ekki vegna þess að höfundar reyndu að tvíhenda henni ofan í kokið á mér. Annars fínt. Ég er að kvarta meira en þetta átti skilið. *** Good Place – 3. sería. Eftirlífskómedía sem er skemmtileg meðan ég horfi á hana – kannski bara af því allir eru svo myndarlegir – en ég man ekki alveg um hvað þetta var. Fallegt fólk held ég, sem er dautt. Ted Danson alltaf flottur. *** Kvikmyndin US virkaði ágætlega. Fín hrollvekja. Svolítið einsog það væri búið fullmikið búið að túlka merkingu hennar ofan í áhorfendur – táknsagan aðeins of augljós, ég hefði viljað vinna meira af vinnunni sjálfur og að merkingin væri svolítið óljósari. Merking myndlíkingarinnar er annars sirka: Byltingin er að koma og ríkt forréttindafólk verður skorið milli eyrnanna og heimurinn ferst og sennilega er byltingarfólkið skítugt og ljótt og vont og hættulegt (einsog raunar líka í Tímakistunni, sem við börnin erum að lesa – bæði verk sem virðast hálfvegis með byltingunni í liði en sjá hana líka sem stjórnlaust eyðileggingarafl). Þetta birtist okkur sem zombísaga með því tvisti að zombíarnir eru doppelgangerar. Ég hélt hún væri meira artí. Var í þannig stellingum. Annað hvort meira Guillermo del Toro eða Romero – en þetta var meira bara svona Single White Female. Gæti algerlega orðið einhvers konar klassík en pródúksjónin er samt mjög meinstrím og hefði mátt vera vogaðri. *** Gítarnörd elska John Mayer. Þetta hefur mér skilist á poddköstum og youtubemyndböndum. Hann er með besta sándið, tæknilega flottastur, spilar og syngur af ofsalegri tilfinningu. Svo er hann líka mjög sætur. Ég hef nokkrum sinnum reynt að gefa þessu séns en aldrei fattað neitt. Þegar Josh Scott (pedalahönnuður; JHS) nefndi svo á youtubinu sínu að Continuum með John Mayer, frá 2006, hefði breytt gítarheiminum ákvað ég að gefa þessu séns. Þetta er í sjálfu sér fínasta popp. En sennilega ekkert fyrir mig. Það virðist ekki mega gefa út tónlist nema ofpródúsera hana svolítið hressilega. Og þótt gítarleikurinn sé að sönnu góður fer bara frekar lítið fyrir honum – nema kannski í Bold as Love koverinu. Það sem mér finnst skemmtilegt í gítarleik – það sem kveikir í mér – er stjórnleysið og hávaðinn. Þegar skepnunni er hleypt á skeið og reiðmaðurinn gerir sitt besta til að halda aftur af henni – missa ekki sjónar á bítinu og reyna svona sirkabát, en ekki alveg, að halda sig innan hins melódíska slóða. Þetta gera Charley Patton og Son House, þetta gera Hendrix og Stevie Ray, þetta gera Django og Wes – meira að segja Steve Vai og Eddie Van Halen gera þetta. John Mayer reynir aldrei á þolmörk þessa nornakústar, hvorki í lagasmíðum né spilamennsku, heldur er hann svolítið einsog … hérna … sko. Þegar ég var barn og unglingur lék ég oft tölvuleiki. Einhvern tíma uppgötvaði ég síðan svokölluð cheat. Ef maður hélt niðri fimm ólíkum tökkum í 10 sekúndur og ýtti svo á tvo aðra fékk maður endalaus líf og varð ódrepandi og gat vaðið í gegnum öll borðin. John Mayer er svolítið svoleiðis. Rífur í sig tölvuleikinn einsog alger meistari – án þess að vera meistari, án þess að taka nokkra áhættu. Þetta er einsog leiðinlegustu hliðar Claptons, nema leiðinlegra. Wonderful Tonight á fínna kókaíni. *** Ég horfði á Antman. Hún var held ég fín. Mest til að drepa tímann í flugvél. Minnir að mér hafi þótt hún ágæt. *** Ég horfði líka á Captain Marvel. Ég man að mér fannst hún betri en Antman. En um hvað var hún aftur? Einmitt já, hún hélt hún væri geimvera en var mannvera (spoiler alert, sorrí). Ætli mér hafi ekki þótt leikkonan góð líka, ég held það. Söguþræðirnir í þessum myndum renna svolítið saman fyrir mér. En ég fíla þær samt. Það þarf ekki allt að vera eftirminnilegt og það er ekki eini mælikvarðinn á gæði. *** Sideways. Gamall klassíker. Líka í flugvél. Ekki nógu woke, held ég, sennilega myndi því fólki finnast hún fullmikið normalísera eitthvað toxískt. Hún fjallar um tvo misheppnaða náunga. Annar á bágt með að leyfa fólki að elska sig af því hann hatar sig sjálfur svo mikið og hinn á bágt með að elska aðra, sennilega af því hann er of sjálfselskur. Þeir fara í ferðalag um vínekrur Kaliforníu til að velja vín í brúðkaup þess sjálfselska – sem hefur einnig hugsað sér að ríða mjög mikið á þessum lokametrum fyrir hnappheldu, og koma hinum vonlausa vini sínum upp á kvenmann. Bæði tekst í sjálfu sér en hefur alls konar neikvæðar afleiðingar. Þegar myndin var gerð hafði enginn vit á víni. Að hafa vit á víni – eða bjór eða ólífum eða súrdeigsbrauði eða öllu hinu – var eitthvað sem oflátungar höfðu. Það þótti mjög fyndið að heyra þessi merkikerti rífast um merlot. Þetta hefur breyst mjög mikið. Nú hafa allir skoðun á merlot – eða, flestir eru komnir í náttúruvín, held ég. Eru þau líka merlot? Ég er svo mikill oflátungar að ég er yfir þetta hafin – grobba mig beinlínis af því að kaupa bara vínflöskur út frá verðinu (ég er svona 2.500-3.000 króna flösku maður í ríkinu – fer hærra í fríhöfninni og geymi þær flöskur fyrir sérstök tilefni). Í alvöru er þetta samt bara af því ég hef ekki tíma til að vita allt og það eru of mörg vín í ríkinu. *** Once upon a time in Hollywood. Nú er hætt við að ég verði ofsalega margorður en ég ætla að standast það. Þetta er besta mynd Quentins Tarantino frá Pulp Fiction – eða í það minnsta Kill Bill – og hugsanlega sú sem höfðaði mest til mín. Ég er orðinn rosalega þreyttur á sögum sem draga mig áfram á plottpunktum og vendingum – þessu netflix-heilkenni, keppninni um athygli okkar, þetta horfðu á mig horfðu á mig horfðu á mig – og var eiginlega bara mjög þakklátur fyrir að fá svona sögu þar eru engir eiginlegir plottpunktar fyrren í lokin. Fyrstu tveir og hálfi tíminn eru bara einsog ljóð úr kvikmyndaminnum og fegurðarblæti – svo kemur ofsalegt þriggja mínútna kaþarsis. Knús og kómedí í lokin. Ég lenti í stuttri rimmu um myndina á Facebook – við Gunnar Smára. Hann tók woke-afstöðuna og las í þetta kvenhatur, barnaskap og hægrimennsku – kvað meira að segja upp Reagan og sagði myndina andsnúna hippum. Gekk meira að segja svo langt að segjast ekki vita „hvers kyns fólk Manson og hans lið var“ – það væri kannski bara búið að demónísera þau svona. Smári er yfirleitt mjög læs á stórsöguna, þótt hann eigi til að missa sjónar á díteilum og mikilvægum undantekningum, en eitthvað held ég hann hafi misst úr nokkra kafla í menningarsögunni þegar hann er farinn að lesa Reaganisma út úr höfundarverki Quentin Tarantino og einfalda hippa úr Manson og kompaní. Nema bara veröldin sé öll komin á hvolf. Annars er það vel að merkja alveg satt að það er ýmislegt misfagurt í myndinni og sjónarhornið og karakterarnir eru ekki endilega neitt æðislega réttlát – þetta er mynd um misheppnað en fallegt fólk og sjónarhornið er á tíma sem voru misheppnaðir en fallegir. Einsog allt fólk og allir tímar eru misheppnuð og falleg strax og maður stígur upp úr eigin skinhelgi og sér það í perspektífi. Þetta lærði ég af hippanum Allen Ginsberg (raunar mætti segja að Howl/Ýlfur Ginsbergs sé svipað byggt og af álíka fetisjisma fyrir eigin sögu – Ýlfur fjallar líka um gallað og ljótt fólk sem er fallegt og heilagt). Það má reyndar lesa eitthvað í söguna um samtímann – ég segi það alls ekki – og það er ekki allt einhver dýrðarsöngur um (móralska) vinstrimenn. Ég held það sé ekki tilviljun að woke-drottningin Lena Dunham er látin tilheyra Mansongenginu. Og það er ekki tilviljun að þau halda ræður um skemmtanabransann – sem hafi gert þau að morðingjum, spillt þeim. Móralska krafan sem hangir yfir Hollywood – sem er ásamt tölvuleikjahönnuðum og tónlistarmönnum kennt um að búa til siðleysingja, morðingja, sjálfsmorðingja, aumingja, úrhrök og svo framvegis – er þrúgandi og Tarantino hefur ábyggilega fengið kaþarsis út úr því að slátra henni bara svona metaforískt. Og það má alveg halda því til haga að þangað til á allra síðustu árum kom þessi siðsemiskrafa ekki síst frá hægri – og a.m.k. ekki vestræna vinstrinu – og náði þá hápunkti sínum hjá áðurnefndum Reagan og hans ágætu frú, Nancy.  Jú og Tipper Gore líka – ef við viljum kalla hana „vinstri“ þá er vinstrið ekki alveg saklaust af þessu heldur. *** Continuum gengur hér í bakgrunninum. Þetta er nú soldið næs þótt þetta sé gelt. Svo það sé sagt. Ég er náttúrulega á rétta aldrinum fyrir adult contemporary (sem ég hafði annars dellu fyrir þegar ég rétt skriðinn yfir tvítugt). Hann mætti nú samt syngja af aðeins minni tilfinningu stundum, hann John. Það er ekki hægt að ná neinum toppum ef maður byrjar alltaf í botni. En hann getur líklega ekkert gert að því að vera svona rosalega tilfinningasamur maðurinn. *** Ég fór á Bossa Nova tónleika í Edinborg. Það var líka eins gott – missti af Salóme Katrínu á Tjöruhúsinu og mun missa af austurrísku sveitinni Fräulein Hona á Húsinu á laugardag (erum að fara í Flatey með gjafakort til að fagna 12 ára brúðkaupsafmæli). Ef ég hefði misst af öllum þremur hefði ég orðið mjög leiður. Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson léku aðallega lög eftir – eða í útsetningu – Joao Gilberto. Þetta var bæði skemmtilegt og fróðlegt. Bossa Nova er í grunninn samba-taktar spilaðir á klassískan gítar – endurframleiðsla á nístandi toppum ásláttarhljóðfæra á hljóðfæri sem hefur enga toppa, er náttúrulega kompressað, ljúft og tamið. Hitinn og þunginn hvíldi á Ife á gítarnum allan tímann – hann söng líka, í þessum sérstaka söngstíl sem á uppruna sinn í einhverju héraði í Brasilíu sem ég man ekki hvað heitir, og var tekinn upp í Bossa Nova (sem þýðir bara „nýbylgja“, vel að merkja). Óskar leikur sér að þessu – að vísu var hann stundum aðeins of mikið á sjálfstýringu, en það er helvíti mikið á spunasólóista lagt að halda 100% einbeitingu allan tímann. Meira að segja Hendrix datt öðru hverju úr zóninu. Ég tala nú ekki um þegar menn eru hangandi í bíl allan daginn milli gigga og spila á hverju kvöldi. Hann átti líka geggjaða spretti og var auðvitað Óskar Guðjónsson alla tónleikana, og það leika ekki margir eftir, og ég er ekki að segja að þetta hafi ekki verið frábært! *** Ég hlustaði á podcast-viðtal við Vanessu Place, ljóðskáld sem skrifaði bók sem er í grunninn ekkert annað en sægur af nauðgunarbröndurum aðallega frá sjónarhóli gerenda. Einsog þið getið kannski ímyndað ykkur tók samtíminn bókinni ekki alveg fagnandi og hún var auðvitað afboðuð og fær sjaldan boð um upplestra eða annað í bókmenntakreðsunum í Bandaríkjunum. Hún var að vísu alltaf umdeild og var a.m.k. búið að hálfafboða hana fyrir að tísta allri Gone with the Wind, orðrétt, á twitter. Það þótti mjög ljót endurvinnsla á rasískri bók en vakti aðallega athygli og úlfúð sem hálfgerð framhaldsathygli og framhaldsúlfúð í óveðrinu þegar Kenneth Goldsmith – postuli „uncreative writing“ og fundinna texta – las upp krufningarskýrslu Michael Browns á uppákomu í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Þá var Vanessa afboðuð eiginlega bara af því fólkið var hvort eð er með kvíslarnar á lofti og hún þvældist fyrir þeim á leiðinni heim. Rape Jokes hefur verið í Amazonkörfunni minni um nokkra hríð en ég hef ekki keypt hana enn – en hef heyrt Vanessu lesa næstum alla bókina á netinu. Þetta er fyndið og alls ekki fyndið og hrikalegt og allt í senn. Merkingarlítið sem stakir brandarar en nær einhverjum skriðþunga svona hver á fætur öðrum í deadpan flutningi innanum fólk sem veit ekkert hvernig það á að bregðast við. Annars er hún líka umdeild fyrir fræðistörf sín. Hún er lögfræðingur og raunar lögmaður – ver verstu skítseyðin, fólk sem er sakað um nær ólýsanlega ljóta glæpi – og hefur skrifað bók þeim og sér til varnar. Þá bók hef ég lesið og man kannski helst eftir því sem hún skrifaði um DNA-rannsóknir í glæpamálum og oftrú okkar á þá annars ágætu tækni. Jú og almennt um takmarkanir laganna og hvað við eigum erfitt með að sætta okkur við að lögin skuli ekki leysa öll vandamál, að réttlætið sé hreinlega ekki alltaf í boði. Mér var reyndar bent á hvað þetta viðtal væri hræðilega pródúserað. Þetta er símaviðtal á einhverju heimapoddkasti og gaurinn sem tekur það er með meira agenda en Vanessa, sem er kúl. Annars er svo mikið af ljóðapoddköstunum sem ég hef hlustað á svo brjálæðislega lo-fi – bara eitthvað fólk með iphone á milli sín í klukkutíma – að ég tek ekki eftir svona lengur. *** Við Aino lásum Hvernig á að passa afa eftir Jean Reagan. Hún fjallar um strák sem passar afa sinn meðan foreldrar hans fara út. Er eins konar leiðarvísir. Textinn er skrítinn, ég átta mig ekki á því hvort bókin er illa þýdd eða bara illa skrifuð, en þetta er ruglingslegt. Aino finnst hún samt skemmtileg. Verksmiðjulegar teikningar. Við lásum líka Það er tígrisdýr í garðinum eftir Lizzy Stewart. Hún er nú ekki illa þýdd! Enda amma Ainoar Magneu og hálfnafna, Herdís Magnea, sem þýddi og hún kastar sko ekki til hendinni. Bókin fjallar um stelpu sem leiðist heima hjá ömmu sinni (sem er held ég undarlegur og ókunnur veruleiki fyrir Aino og ömmu hennar) og er send út í garð á þeirri forsendu að þar sé tígrisdýr, ísbjörn og ýmislegt fleira ævintýralegt. Stelpan er vantrúuð á þetta en fer samt og auðvitað stendur þetta allt heima. Mjög skemmtileg bók og fallegar teikningar. *** Það er kannski ekki beinlínis menningarviðburður en ég gekk í fangið á einu uppáhalds ljóðskáldinu mínu á dögunum, hinum suður-kóreska Ko Un. Það var eiginlega alveg fáránlegt. Ko Un var einn allra líklegasti kandídatinn til þess að fá nóbelsverðlaun þar til hann lenti í einhverjum áreitniskandal sem ég kann ekki mikið um – en held hafi verið mínímal – og svo þegar akademían lenti sjálf í epískum áreitnisskandal – fremur maxímal – þá dó sú von held ég alveg. Ko Un er samt alltaf og verður eitt allra besta skáld samtímans – ég held að enginn tali jafn sterkt til mín. Og svo bara birtist hann hérna – einsog hver annar Alexander Skarsgård (sem Andri Snær dró mig einu sinni út í bjór með á Tjöruhúsinu). Ég var lasinn heima og fékk skilaboð frá kunningja mínum á Flateyri, Eyþóri Jóvinssyni, sem sagði Ko Un hafa rambað inn í bókabúðina sína. Í svona fimm mínútur sat ég bara og velti því fyrir mér hvort ég ætti að gera eitthvað. Hvort ég væri of gamall til að láta einsog ég væri fimmtán ára, árið væri 1965 og Ko Un væri John Lennon. Átti ég að fara á áritunarveiðar? Var ég of kúl fyrir það? Var kannski ekkert lúðalegra en að vera of kúl fyrir áritunarveiðar þegar maður veit af átrúnaðargoði á næstu slóðum? Á endanum ákvað ég að ég gæti ekki minna gert en farið úr húsi og náð í bækurnar mínar ef ég skyldi fá tækifæri til að biðja um áritun. Ég hjólaði niður á kontór, náði í þær upp í hillu og þegar ég kom út aftur var Ko Un og fjölskylda hans fyrsta fólkið sem ég sá. Hann tók mér vel og áritaði bækurnar og þau sögðu mér aðeins af ferðum sínum og að þau væru að vonast til að það yrði einhver viðburður í Reykjavík þann 23. ágúst en strandaði á einhverju, sem ég áttaði mig ekki á hvað ætti að vera. Svo þakkaði ég bara fyrir mig af öllum innileik og lét mig hverfa. Ég er ekki viss um að maður græði neitt á því að kynnast átrúnaðargoðum sínum – það er kannski bara til að gera út af við galdurinn. Hluti af mér er svo auðvitað á því að ég hefði bara átt að elta hann út á enda veraldar, sitja við fótskör hans og nema eilífðarvísindin. En það verður ekki sleppt og haldið og sennilega hefði fjölskyldunni hans bara þótt það vandræðalegt. *** Gítarleikari vikunnar er John Mayer. Ég reyndi að finna eitthvað live og svolítið hrátt en hann verður bara ekkert hrárri en þetta. Samt mjög góður – og auðvitað frábært lag.

id““:““5sb44″“

Auk þess að vera á þremur samfélagsmiðlum og skrifa blogg held ég fýsíska dagbók. Svo er ég auðvitað með nokkrar bækur í smíðum á hverjum gefnum tíma – svo ég geti gripið í þá sem ég er best stemmdur fyrir. Stundum líður mér í þessum skrifofsa öllum saman einsog manni sem hrapar til jarðar og baðar út öngunum í von um að fljúga. Baðar út öngunum á sex-sjö vígstöðvum samtímis. Með því á ég ekki við að mér finnist ég ekki kunna að skrifa – mér finnst ég satt að segja kunna fátt annað – en það er ekki víst það geri mikið gagn þegar maður er í frjálsu falli. En stundum flýgur maður samt. Og ekki hef ég skollið á jörðinni enn. En það var ekki það sem ég ætlaði að segja. Yfirleitt skrifa ég mjög stutt í fýsísku dagbókina – á löngu tímabili voru þetta bara hraðritaðir listar yfir það sem ég ætlaði að gera, óskiljanlegar glósur og alls kyns hrat, innkaupalistar, þyngdartölur, hlaupnir kílómetrar, hvað var í matinn o.s.frv. Eitthvað til að markera tímann og tilvist mína. Á enn lengri tímabilum hef ég enga dagbók haldið. Fyrir fáeinum vikum síðan tók ég mig taki og ákvað að sýna dagbókinni meiri virðingu. Að skrifa til dæmis þannig að ég skilji það sjálfur viku síðar. Rithöndin mín getur orðið alveg hrikaleg og þegar ég hraðrita fyrir sjálfan mig skrifa ég alltaf „færri og færri orð“ – því hver hefur nokkuð við persónufornöfn að gera? Hvað þá sérnöfn? Setning þarf ekki  bæði sagnir  og nafnorð – það er bara bruðl. Ef eitthvað er óþolandi og maður þarf að létta á sér er best að henda bara í eitt vel valið „andskotinn“ – ef maður man ekki hvað það var sem kallaði fram viðbrögðin var það sennilega ekkert merkilegt hvort eð var. En nú skrifa ég sem sagt eitthvað aðeins meðvitaðra og jafnvel úthugsaðra í þessa bók. Það er ekki endilega að þetta sé efni sem „eigi ekki erindi“ við neinn annan – þótt það komi fyrir – og sömuleiðis er dagbókin ekki full af efni sem „gæti misboðið“ einhverjum, þótt það komi líka fyrir og manni sé hollt að eiga stað fyrir þær hugsanir sínar sem eru óþægilegar. Ef maður kemur þeim hugsunum hvergi fyrir er hætt við að það komi drep í þær og fyrr en varir situr maður uppi með þær einsog rotnandi lík í stofunni. Ég nenni nú samt sjaldnast að röfla við sjálfan mig þannig. Ég er ekki alltaf glaður í dagbókina mína en ég er sjaldan beiskur. Mest eru þetta einhverjir heimspekilegir þankar – stundum eitthvað sem mér finnst of sjálfsagt eða banalt til að segja við aðra, stundum eitthvað sem ég veit ekki alveg hvert er að fara með en þarf að orða. En nú á laugardaginn lýsti ég deginum áður. Þetta var mjög góður dagur. Við Nadja fórum til Stokkhólms og gistum í svítu á Hotel Gamla Stan í boði foreldra minna, sem gáfu okkur þetta í jólagjöf. Við fórum líka út að borða á asískan veitingastað sem heitir MoonCake (og fær okkar bestu meðmæli) og eyddum morðfé. Spjölluðum meira að segja við fólkið á næsta borði – einsog það væri hreint enginn faraldur. Þegar máltíðinni lauk var allt lokað – í Svíþjóð lokar allt 20.30 – og Nadja vildi fara í göngutúr en mig langaði að fara að horfa á sjónvarpið. Ég veit ekki hvers vegna ég beit þetta í mig. Við eigum sjónvarp en það er ekki tengt línulegri dagskrá – bara notað í tölvuleiki og Netflix – og mig langaði svo að horfa á línulegt föstudagssjónvarp. Svo var mér líka mál á klósettið svo við frestuðum göngutúrnum fram á morgun og fórum upp á hótel (þar sem okkar beið líka kampavínsflaska). Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn var að finna fjarstýringuna – hlut sem þrátt fyrir miklar hótellegur síðustu ár ég snerti afar sjaldan – og kveikja á sjónvarpinu. Það var stillt á einhverja útlenska sjónvarpsstöð svo ég smellti bara þar til ríkissjónvarpið birtist – man ekki hvort það var rás 1 eða 2. Við okkur blasti spjallþáttur – tveir karlmenn á skjánum, annar bakvið „spyrilsborð“ og hinn í sófa. Veckans Ord med Kristian Luuk . Þáttarstjórnandinn spyr gest sinn, sem ku „sérfræðingur“, hver sé skítugasti hluturinn í hverju hótelherbergi. „Það er ekki spurning“, svarar gesturinn. „Það er sjónvarpsfjarstýringin. Hún er viðbjóðsleg gerlagildra. Ég myndi heldur drekka úr klósettskálinni en snerta fjarstýringuna.“ Orð vikunnar var „hótel“ og þátturinn var mjög skemmtilegur. Þar kom meðal annars fram að elsta hótel í heimi var standsett árið 705 í Japan og hefur verið í rekstri sömu fjölskyldunnar í 52 kynslóðir. Þetta skrifaði ég í dagbókina mína og væri svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að næstu klukkustundirnar greip mig kunnugleg tilfinning sem ég skildi samt ekki alveg. Mig langaði að kíkja í dagbókina, líta aftur á þessa sögu. Fyrst hélt ég að ég hefði gleymt að skrifa eitthvað eða gert einhver mistök sem ég áttaði mig ekki alveg á. En svo rann það upp fyrir mér. Mér fannst þessi saga um fjarstýringuna svo sniðug sjálfum að ég var að athuga hvort ég hefði ekki fengið einhver læk. En það var alveg sama hvað ég kíkti oft – ég fékk engin læk. Ekki einu sinni komment. *** Plata vikunnar er I Ain’t No Bad Gal með Memphis Minnie, sem er án nokkurs vafa frægust þeirra blúskvenna sem léku á gítar á fyrri hluta 20. aldar – nær allar stórstjörnur blússins af kvenkyni voru fyrst og fremst söngkonur, en Minnie var líka frumkvöðull í gítarleik. Á þessari plötu er hún á tindinum – þroskaður listamaður, ennþá grittý, en með alla færnina og þokkann og öryggið. Minnie fæddist árið 1894* og hét þá Lizzie Douglas – var kölluð „Kid“ af fjölskyldunni. Hún var reyndar alls ekki frá Memphis en flutti þangað þegar hún flúði að heiman 13 ára gömul, tveimur árum eftir að hún eignaðist sinn fyrsta gítar. Þar lék hún á götunum og á einhverju tímabili – vonandi aðeins síðar – hafði hún aukatekjur af vændi. Fyrsti eiginmaður hennar var Casey Bill Weldon úr Memphis Jug Band og þótt hann komi lítið við sögu í ferli hennar annars er talið að hann hafi verið hennar helsti kennari á fyrri hluta þrítugsaldurs – þegar Minnie var að verða Minnie. Nafnið fékk hún eftir að hún tók saman við Kansas Joe McCoy – einsog ég las söguna einhvers staðar var það plötuútgefandi sem fannst það hljóma vel saman, Kansas Joe og Memphis Minnie. Joe söng mörg af lögunum sem þau léku saman en hún sá um flóknari hluta undirspilsins. Þau slógu í gegn með Bumble Bee árið 1929, þegar Minnie var 33 ára, og áttu marga slagara á næstu 6 árum áður en þau skildu 1935. Að því er segir á plötuumslagi þessu – í ágætri ritgerð Petes Welding – átti Kansas Joe erfitt með að þola hversu miklu meiri vinsælda og virðingar Minnie naut. Sama ár kynntist hún öðrum Joe – Ernest „Little Son Joe“ Lawler – sem varð þriðji eiginmaður hennar og skráður höfundur allra laganna á I Ain’t No Bad Gal (það er þó talið nokkuð víst að hún hafi samið megnið af þessu sjálf). Platan er tekin upp í maí og desember 1941 – Minnie er fíníseraðri en hún var áður, upptökurnar eru betri, en hún er ekki orðin alveg jafn „borgarleg“ og hún varð seinna. Það er enn í þessu passlega mikill sveitabragur. Í seinni upptökunni leikur Minnie á rafmagnsgítar – að ég held í fyrsta skipti á upptöku. Platan er fyrst gefin út 1988 en ríflega helmingur laganna hafði komið út í einhverri mynd áður. Allra frægast þar á meðal er Me and My Chauffeur Blues. Won’t you be my chauffeur
Won’t you be my chauffeur
I wants him to drive me
I wants him to drive me downtown
Yes he drives so easy, I can’t turn him down
But I don’t want him
But I don’t want him
To be ridin’ these girls
To be ridin’ these girls around
So I’m gonna steal me a pistol, shoot my chauffeur down Þetta er af kassagítarhliðinni – en það er hin hliðin sem ég held meira upp á. Þar leikur Lawler enn á kassagítar en Minnie er með rafmagnsgítarinn og tekur þátt í að leggja grunninn að Chicago-blúsnum. Hún plokkar og hendir í sólólínur en Lawler tekur bassalínur og strömmar. Svo tekur hún ofsalega fínt sóló – og hrópar og æpir á meðan „Play it! Play it for me, boy!“ og er væntanlega að tala við Joe í undirspilinu (eða gítarinn sinn?) Hann á allavega ekki þetta sóló – en hann á sólóið í næsta lagi á plötunni, titillaginu, sem er reyndar líka mjög gott (en allt öðruvísi). *** * Mikið af þessum ártölum orka tvímælis – fer eftir því hvaða heimild maður treystir. Ég leyfi mér að fara bara eftir upplýsingunum á plötuumslaginu þar sem þær eru til staðar. Wikipedia segir t.d. að þau Lawlers hafi ekki byrjað saman fyrren 1938. Ég á líka einhvers staðar hérna ævisögu hennar í bókarformi en hún er bara hálflesin af því hún var svo leiðinleg – og um svo margt annað en hana, endalausar upptalningar á fólki. Minnir mig. Ég kannski lít á hana aftur – það er alveg hugsanlegt að ég hafi bara verið þreyttur og gramur þegar ég las hana.

createdTimestamp““:““2024-05-16T03:27:35.018Z““

Ég las  Ljóð um hold og frjósemi þess úr Óratorrek á Catalínu í gær. Ég las það upp fyrir útvarp í vikunni og fannst ég uppgötva að það væri betra í upplestri en ég hafði ímyndað mér. Í gær var ég svo næstum hættur við. Fyrstu ljóðin sem voru lesin í gær fjölluðu mikið til um kvenmannslíkamann og mér fannst kannski ekki á það bætandi. En ég er ánægður að ég lét af því verða. Sennilega fær fólk bara aldrei nóg af kvenmannslíkamanum. *** Það var ekkert ort um karlmannslíkamann á sviðinu í gær. Að vísu var Óskar Árni með ljóð um neglur karla og kvenna – neglur skálda. En ég held ég hafi varla heyrt minnst á limi í gær. Eða eistu. *** Ég hlýt samt að eiga einhver ljóð um karlmannslíkamann. Um tilveru karlmannsins í líkama sínum. Um hvað það þýðir að líkamna sem karlmaður. Sennilega eru samt flest holdljóðin mín um líkamann almennt – líkama manneskjunnar, dauðann, lostann, hungrið og það allt saman. *** Fyrirmennskun . Er það gott orð fyrir gentrification? Ég nenni ekki enn öðru -væðing orði. *** Fyrirmennskun Kópavogsbæjar hófst sem sagt í gær þegar 101 Reykjavík gerði innrás á Café Catalínu. Ungir, fátækir listamenn blandast drykkfelldu úthverfafólki. Það er uppskriftin að fyrsta og mest spennandi skrefi allrar fyrirmennskunar. Og það skref getur enst lengi – það þarf ekki nauðsynlega að breytast í lifandi helvíti markaðssamfélagsins (einsog 101, Prenzlauer Berg eða önnur hverfi sem hafa klárað sinn fyrirmennskunarferil). Þar þarf ekki allt að verða hreint og fínt og dýrt. Það getur haldið áfram að vera skítugt, sjúskað og heiðarlegt. *** En það þarf að viðhalda stiginu. Þarf að halda orkunni gangandi og í skefjum. Hamraborgin hentar af mörgum ástæðum – maður er enga stund að fara þangað og strætósamgöngur eru góðar úr miðbænum. Það þarf ekki að slást við skipulagsyfirvöld – það má reka bari þarna, þetta er „miðbær“. Sennilega væri meira að segja hægt að fá borgaryfirvöld (var það ekki Kópavogur sem tók upp borgarheitið?) til að leggja alls kyns grósku lið. *** Borgaryfirvöld í Reykjavík eru líka sjálf á lokastigi fyrirmennskunnar. Jakkafatahippsterar nærðir á lífrænt ræktuðu og sojalattéum. Þau eru post-world einsog borgin sjálf; hafa gleymt sjúskinu, misst kontakt við drulluna. Þau vilja ekki styðja listina eða stoppa hana, þau vilja bara vera hún sjálf. Vera rokkstjörnuborgarstjórar. Myndlistarstjörnuborgarstjórar. Skáldborgarstjórar. En það gengur ekki upp án þess að svipta listina lífsblóði sínu. Borgarstjórar eiga að vera óviljugir samstarfsmenn gróskunnar – grámenni sem standa í bakgrunni í von um að fá hið minnsta litsmit af trylltri æskunni. Ekki þrumuþjófar eða gjörningameistarar. *** Listin þarf ekki að vera í andstöðu við allt yfirvald – þótt hún sé það oft – en hún verður að geta lifað án beins stuðnings við það. *** Það er ekki víst að það séu spennandi tímar í væntum í Hamraborginni. En það er óhemju pótensjall, alveg trylltur. ***

id““:““8qpit““

Ferill AC/DC spannar eitthvert mesta siðspillingartímabil 20. aldarinnar. Þegar hann hefst árið 1974 er til þess að gera nýbúið að opna flóðgáttir kynlífs, eiturlyfja, áfengis og myrkra húsasunda og þær standa einfaldlega galopnar út öldina – utangarðsmenningin ryður sér rúms í öllum hverfum. Unglingar eru fullari en áður, fólkið lauslátara og fríkin markera sér svæði miðsvæðis í tilverunni. Með Stiff Upper Lip kveðja AC/DC þessa gullöld og allan hennar harm og hefja aðlögunargönguna löngu inn í öryggiskröfur 21. aldarinnar – safe space andans og holdsins, með sínum reykingabönnum, öryggisbeltum og kúltíveruðum kraftbjórum. Það er ekkert að óttast lengur. *** Stiff Upper Lip er líka síðasta verulega góða plata sveitarinnar. Að minnsta kosti fram til þessa (það hefur enn ekkert verið gefið upp um hvort þeir séu hættir, þótt sveitin sé að sönnu löskuð). Það er rosalega mikil sing-along stemning í þessu, viðlögin eru endurtekin ad deliriam og platan þéttsetin mögulegum smáskífulögum. Þrjú voru gefin út, en auk titillagsins voru það Safe in New York City og Satelite Blues (sem er alls ekki eitt af mínum eftirlætis – ég hefði miklu frekar hent í lírukassarokksmellinn Can’t Stand Still, sem fékk ekki einu sinni að vera með í liveprógraminu – eða Damned). *** I warn you ladies, I shoot from the hip, I was born with a stiff … stiff upper lip syngur Brian út um glottið á sér í titillaginu á meðan Angus hristir mjaðmirnar og kinkar kolli svo þessi sperrtasta efrivör í bransanum dúar undan. Dónaskapurinn ríður húsum, röftum og öðru sem verður á vegi hans – einsog fyrr. *** Kannski er Stiff Upper Lip Bonaðasta Brianplatan. *** Ári eftir að platan kom út var Safe in New York City sett á lista Clear Channel yfir lög sem innihéldu „vafasaman texta“. Þetta var i kjölfar árásanna á Tvíburaturnanna (en sveitin átti fyrir sex önnur lög á listanum sem höfðu ekkert með New York að gera). Sem er auðvitað skrítið. Ætli New York búar hefðu ekki einmitt haft gott af því að láta peppa í sig dálitlu trausti? *** All over the city and down to the dives

Don’t mess with this place it’ll eat you alive

Got lip smackin’ honey to soak up the jam

On top of the world ma’ ready to slam I feel safe in New York City

I feel safe in New York City *** Annars meintu Youngbræður þetta víst allavega að hálfu kaldhæðið. Þeim hafði alltaf þótt New York vera fremur kaotísk borg og ótrygg en nú voru allir stanslaust að tala um hvað hún væri „örugg“ – í kjölfar borgarstjóratíðar Rudys Giuliani og no tolerance stefnunnar. Í einhverjum skilningi fjallar lagið um árekstrana þarna á milli líka – hvernig maður getur átt heimkynni sín í siðspillingunni og fundist maður óöruggur utan hennar. Þannig má a.m.k. lesa ljóðið fyrir mína parta. Stærstan hluta 20. aldarinnar áttu fríkin og utangarðsmennirnir ekkert annað athvarf – en svo er sjálfur utangarðurinn gentrífieraður, hreinsaður upp og illgresin fjarlægð. *** „I feel safe in a cage in New York City“. Myndbandið nær kjarna þessa ágætlega. Fimm atvinnuutangarðsmenn fastir í umferðargöngum með fimmtán þúsund löggum í viðbragðsstöðu og löggubílum með sírenurnar á. Loksins seif. *** Damned er á svipuðum slóðum – þetta er Veröld sem var nýrrar aldar. Það er verið að binda endi á siðspillinguna og þeir sem tilheyrðu henni eru á leiðinni á sorphauga mannkynssögunnar, ef ekki hreinlega bannfærðir til helvítis. Don’t smoke don’t fight don’t light no cigarettes

Or else you’ll wind up in the can

No jokes no rights sit tight don’t fool around

You are a guest of Uncle Sam

Stand up look right don’t slouch and stand at ease

Allow no sex above the knees

When I snap you jump into the master plan

I’ll be damned

Well I’ll be damned *** Stiff Upper Lip kemur út sama ár og fyrsta alvöru vestræna reykingabannið er sett á – í Kaliforníu árið 2000 en er að mestu samin 2-3 árum fyrr.  Stemningin vafrar inn á þetta svæði en textarnir eru þó flestir fyrst og fremst klassískir rokktextar – og kannski aldrei jafn klassískir og einmitt hérna. Can’t Stand Still gæti verið fiftísrokk – og takið eftir gítarsólóinu, þetta er Malcolm! *** Lagasmíðarnar eru enn blúsaðri en áður en það er líka helvíti mikið Nashville í mörgu hérna og alls kyns spes trix – teknískt nákvæmlega endurtekin riffin verða stundum einsog þau séu lúppuð og minna þá á lírukassa (Can’t Stand Still og Hold Me Back) eða hreinlega nikku (viðlagið í Meltdown). Sándið er frekar hreint – AC/DC spilar miklu hreinna sánd en margir halda – og það er stóri bróðir, George Young, sem snýr tökkunum einsog í gamla daga, en í þetta sinn án félaga síns, Harry Vanda. *** Ég hef stundum haldið því fram að lög verði betri og rokkaðri við það eitt að heita eitthvað með „rock“ í titlinum – og með þeim rökum að þetta geri enginn nema hann geti staðið við það, þetta sé ekkert sem maður blöffi – en það kom mér nokkuð á óvart að uppgötva að „jazz“ í titli virðist hafa svo til sömu áhrif. Það gerir lagið vel að merkja ekki neitt djassaðra, heldur bara rokkaðra, eða jafnvel aðeins blúsaðra. #ACDC

createdTimestamp““:““2024-12-02T10:30:38.949Z““

Ég er að reyna að koma einhverju skipulagi á líf mitt aftur. Það er sosum ekki mikið að gerast akkúrat í augnablikinu – fyrir utan flutninga, sem eru reyndar flóknir – en ég þarf skyndilega að setja hluti aftur upp í dagatal svo ég tvíbóki mig áreiðanlega ekki í haust. Ég þarf líka að sjá út haustið af því ég er með bók. Nýja skáldsögu – ekki nema átján mánuðum eftir þá síðustu. Að vísu var hún tilbúin fyrir tveimur árum en þetta var nú frekar stutt meðganga (getur maður talað um meðgöngur án þess að eiga við meðgöngu barns – maður gengur allavega með skáldsögur, finnst mér, a.m.k. jafn mikið og maður gengur með meðgöngukaffi og áreiðanlega meira en maður gengur með meðgönguljóð). Mér finnst heillandi tilhugsun að ferðast eitthvað. Ég hef ekki komið upp í flugvél síðan í febrúar 2020. Þá fór ég til Jönköping, einsog í fyrradag – en nú fórum við bara keyrandi. Tókum nokkra daga í bústað við Hällingssjö og fórum svo til Jönköping á hótel og tókum næsta dag á Visingsö og í Gränna (þar sem polkagrísinn er upprunninn). Ég fékk fjögur skógarmítlabit – fæ ábyggilega TBE og dey. En svo hlakka ég líka til að vera heima og rækta ræturnar mínar í haust. Sinna húsinu, hitta vini mína og fjölskyldu, elda mat í eldhúsinu mínu, leika mér með gítarana mína. Og að vinna í nýrri bók sem ég hef verið að kortleggja síðustu vikur og verður ábyggilega frekar stór. Ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira í hana hér því maður þarf nokkrar lítt truflaðar vikur til að komast á skrið – annars skrifar maður bara einhverja vitleysu sem maður endar á að henda (af því þegar maður er ekki að skrifa breytast hugmyndirnar og eru óþekkjanlegar þegar maður sest aftur niður – maður þarf svolítinn massa af texta til að hann haldi, sé fokheldur). En maður getur augljóslega ekki bæði verið heima og ferðast – eða einbeitt sér að öllu í einu. Mig langar líka að halda áfram í tónlistinni. Og gera súrdeig og súrsa grænmeti og halda matarboð og koma mér í form og það allt saman. *** Plata vikunnar er King of the Delta Blues Singers með Skip James. Það er til fræg samnefnd plata með lögum eftir Robert Johnson en þetta er sem sagt ekki hún, heldur Skip James plata sem inniheldur upptökur af lögum hans frá 1931. Skip tók þá upp nokkur lög og hugðist verða heimsfrægur – varð svo mjög hissa þegar það gerðist ekki og gaf tónlistina upp á bátinn, að miklu leyti. Um þrjátíu árum síðar datt hann svo inn á radar blúsáhugamanna sem sáu hann sem einhvers konar forvera Roberts Johnson – sem er einmitt annars álitinn ókrýndur kóngur deltablússöngvaranna – og má sannarlega til sanns vegar færa. Að minnsta kosti er hafið yfir allan vafa að Robert hefur átt eina eða tvær af þessum fáu 78 snúninga plötum Skips sem seldust við útgáfu. Þegar blúsnördin voru búin að finna Skip var honum auðvitað ruslað inn í stúdíó og látinn taka upp lög sín að nýju, í betri gæðum – en þá var gítarleikurinn ryðgaður og lögin hægari. Hins vegar er söngröddin á nýrri lögunum dýpri og sterkari – eða kannski eru það bara upptökugæðin. Ég fór annars nánar í ævi Skips á blúsblogginu fyrir rúmu ári – það má lesa hér . Ofsalegur maður. Lagið sem ég ætla að velja af þessari plötu er Devil Got My Woman.

id““:““5i5la““

Blow Up Your Video er ellefta hljóðversplata AC/DC og kemur í kjölfar 3,9 platna niðurlægingarskeiðs í sögu bandsins og sú síðasta áður en Guns N’ Roses endurreisa list gítarrokksins og færa hana í nýjar hæðir með frumraun sinni, Appetite for Destruction. *** Eftir því sem maður kynnist hljómsveit betur þeim mun betur sér maður mismuninn – þú veist, blús er ekki bara eitt lag, frekar en dauðarokk eða djass eða ópera, einsog mörgum finnst sem heyra bara ávæninginn annað veifið og finnst hann kunnuglegur. Ég hef verið manna fyrstur til þess að taka undir með Angus Young, sem játaði því að þeir hefðu nú eiginlega bara alltaf gefið út sömu plötuna. Það verður hins vegar minna og minna satt eftir því sem maður sökkvir sér ofan í þetta. *** Í fyrsta lagi er ég farinn að heyra Geordie áhrifin. Þessar diskórokklaglínur voru að vísu þarna á Bon-árunum líka (t.d. í Touch too much) en þær skerpast mikið með Brian – hann er einfaldlega miklu meira clean cut en Bon og skotnari í poppmelódíum. Hugsið ykkur You Shook Me All Night Long og Mistress for Christmas (af næstu plötu, Razors Edge) versus Highway to Hell eða Riff Raff. Hér er Nick of Time augljósa Geordie lagið. *** *** Í öðru lagi er ég farinn að taka eftir þróunum hjá Angusi. Hann fær dellur fyrir tilteknum trixum og fullkomnar þær á nokkrum árum og snýr svo að einhverju öðru. Ég hef áður nefnt þetta hvernig hann hálfvegis krosspikkar sóló riff (krosspikkar er auðvitað rangt, því hann fer oft ekkert á milli strengja – en hann er að stökkva milli áttunda á sama hátt), hvernig hann fer skyndilega að demp-plokka þriggja strengja hljóma neðarlega á hálsinum. Á þessu niðurlægingarskeiði á hann sínu bestu kafla þegar hann stillir allt gain svoleiðis í botn að gítarinn vælir við minnstu snertingu og svona hálfpartinn titrar svo yfir strengina – slengir fingrunum til og frá svo það koma flaututónar og alls kyns óhljóð ofan í sjálfar nóturnar. Tónninn verður einmitt lýsandi fyrir þetta grunnelement í konseptinu AC/DC – mann finnst einsog hann sé að leiða rafmagn úr gítarnum í hlustirnar á manni. *** Í þriðja lagi er ég farinn að taka miklu meira eftir því hver er að tromma. Hér spilar Simon Wright – einsog á síðustu tveimur – og hann er bara hálfvonlaus. Vantar allan kraft og attitúd í hann – Phil Rudd er vandræðafígúra, augljóslega, en hann er samt fantatrommari. Með sterka upphandleggsvöðva og kann að tromma fast. Það er mikill kostur í svona bandi. Simon Wright vantar bara allt úmf – hann meinar þetta ekki nógu hart. *** Í fjórða lagi eru þessar plötur bara svo misgóðar. Frá algerlega óeftirminnilegum klisjum yfir í sturlað og ógleymanlegt rokk. Og stutt á milli samt – samt er næstum einsog þetta sé allt sama lagið. Þetta er eilíft stríð við herslumuninn. *** Blow Up Your Video er ekki sérstök, þannig lagað. Ég var að hlusta á Highway to Hell á vínyl áður en ég setti hana aftur á í gegnum Spotify til að skrifa þetta og það er rosalega langt á milli þeirra í gæðum. Sándið í græjunum skiptir máli, en það er líka mixið, líka að Brian er ekki að standa sig, lagasmíðarnar eru upp og ofan (Malcolm er þarna á barmi þess að fara í meðferð) og svo er bara mid eighties og það var ekki góður tími fyrir þessa músík, var enginn að uppskera mikið á gítarekrunum. *** Brian er sterkari á þessari en síðustu þremur. Einsog hann sé að ná vopnum sínum aftur. Gítarinn er veikari en á köflum mjög fínn samt (þetta er náttúrulega alltaf sterkasta vopn sveitarinnar – þessir bræður eru dýrðlegir á sínum versta degi). *** Það er líka augljóst að þeir eru á uppleið. Það er búið að snúa skútunni við – og styttist auðvitað í Razors Edge. Auðvitað voru þeir löngu búnir að sanna sig – maður gefur ekki út plötur einsog Highway to Hell og Back in Black og gleymist neitt í bráð – en þetta var búið að vera ansi þunnt í nokkur ár og fer nú loks að þykkna. Lög einsog This Means War, That’s the Way I Wanna Rock and Roll og Meanstreak eru einfaldlega frábær lög og hefðu sómt sér vel á hvaða Acca Dacca plötu sem er – þótt þau hefðu kannski aldrei orðið singlar. *** #ACDC

createdTimestamp““:““2024-05-19T11:58:23.708Z““

Ég hef alltof lítið náð að spila síðustu vikuna. Ég var eitthvað að möndla við að æfa tóneyrað – aðallega með því að pikka upp hljóma í lögum sem ég hlusta á og spila melódíur sem ég man án þess að hafa neitt til hliðsjónar. En svo var Nadja lasin fyrstu daga síðustu viku og ég svo strax í kjölfarið og gítarsmíðin tók yfir allan lausan tíma frá fimmtudegi (ásamt því reyndar sem ég smíðaði Zelda-sverð fyrir Aram, til notkunar á maskadaginn). Nú er ég að fara til Münster á miðvikudag og kem ekki aftur fyrren á mánudag svo það verður líklega lítið úr spileríi og smíðum. En ég ætti samt að reyna að læra a.m.k. eitt nýtt lag í kvöld eða á morgun. Var að spá í Jesus Left Chicago með ZZ Top. Það er mjög einfalt en ég kannski læri þá textann líka. Það er hægt að gera það gítarlaus í Münster. *** Hlynurinn kom með póstinum á miðvikudag. Ég reif mig upp úr flensunni til að líma hann saman svo ég kæmist með hann til Dodda í Fab Lab á fimmtudeginum – því það er bara opið á fimmtudögum og þriðjudögum. Alla jafna. Það var óþægilega mikil sveigja í spýtunni og við Doddi tókum hana yfir í trésmíðadeild til Þrastar til að spyrja ráða og hann mælti með því að við myndum pressa hana yfir nótt í til þess gerðri pressu. Doddi kom mér þá til bjargar með að hleypa mér inn á föstudeginum þótt það væri alls ekki opið. Við byrjuðum á að fræsa spýtuna niður í 6,5 mm þykkt og fræstum svo fyrir útlínunum.
Ég fór beint með spýtuna heim og sagaði í hana f-gatið og límdi hana fasta á búkinn. Ég vildi gera þetta hratt og örugglega áður en hún myndi sveigjast aftur til baka. Ég gerði líka einhverjar tilraunir með að festa bindingu í f-gatið en þær voru ekki sérlega uppörvandi og kannski sleppi ég bara bindingu þar. Þetta eru mjög skarpar beygjur og erfitt að fá plastið til að setjast almennilega að kantinum. Þegar ég fór að mæla fyrir staðsetningu á hljóðdósum og hálsvasa kom í ljós að sennilega hef ég gert dálitla skyssu. Hálsinn er í Gibson hlutföllum – 628 mm skali – en ég hafði verið að reikna fjarlægð vasans að brú útfrá Fender hlutföllum, sem er með 650 mm skala. Sem þýðir að í staðinn fyrir að brúin komi til með að vera 181 mm frá vasanum verður hún 170 mm frá vasanum – sirka – og færist því fram um heilan sentimetra. Ef ég er ekki eitthvað að rugla. Þetta gæti þýtt að ég þurfi að færa hljóðdósirnar nær hver annarri og skera aðeins í klórplötuna (þessi á myndinni er aukaplata – sú alvöru er í Reykjavík í prentun, það er líka verið að grafa í hálsplötuna). Svo það sé bærilegt pláss fyrir allt. Ég ætla samt ekki að fræsa fyrir hljóðdósum eða hálsi fyrren ég er kominn með hálsinn í hendurnar og get reiknað þetta allt nákvæmlega út. Ég var vel að merkja að fylla út tollskýrsluna fyrir hann og fæ hann vonandi á morgun. Ég fræsti samt fyrir hnappaholinu og tengdi það við innputholið. Það var bölvað moj. Ég var ekki með nógu langan bor og þurfti að koma báðum megin að þessu og bora nokkrum sinnum til að finna leiðina. Svo gerði ég smá trékítti úr gömlu sagi til að fylla í götin. En það er nú ekki sérlega fallegt – skiptir kannski litlu svona innan í, en ég hugsa að ég reyni nú samt aðeins að fixa það. Ég prófaði mig líka áfram með bæsið, bæði á hlyn og mahóní. Ég byrjaði á að bæsa svart á hlyninn og pússa það næstum alveg upp. Svo smá rauðsvarta blöndu sem ég pússaði líka upp, svo nokkur lög af rauðblárri búrgúndarblöndu. Ég setti smá af sömu blöndu á mahóníið til samanburðar, þótt ég sé ekki búinn að grain-fylla það. Þetta er vel að merkja allt afgangsefni (ég nota kannski þennan hlyn einhvern tíma en sný honum þá hinsegin). Mahóníið er ósnert þarna neðri hlutinn. Svarta bæsið dregur svona fram æðarnar í hlyninum – ofan á þetta fer svo tung-olía og bílabón. Næst fræsti ég rásina fyrir bindinguna með dremli og til þess gerðum bita og græju frá Stew Mac. Það var rosalegt moj að ná því sæmilegu án þess að skemma gítarinn. Þessi mynd er tekin áður en ég pússaði rásina með 60 gritta sandpappír. Það skánaði nú umtalsvert við það. Næst notaði ég tonnatak til þess að líma bindinguna fasta. Og hárþurrkuna sem ég gaf Nödju einu sinni til þess að hita og beygja bindinguna. Það var líka mikið þolinmæðisverk og ég er ekki alls kostar ánægður með hvernig til tókst – aðallega vegna þess að rásin var skemmd á a.m.k. einum stað. Þar er dálítið gap milli bindingar og búks sem ég þarf annað hvort að fylla með bindingu uppleystri í acetoni eða tréfylli. Einsog sjá má var drukkið í vinnunni í gær. Þetta er Biska – króatískur snaps úr mistilteini. Mjög gott. Ég keypti á sínum tíma líka þykkari bindingu ef ég skildi klúðra – auðveldara að stækka rásina en minnka hana. Og nýtti mér það í gær þótt það væri reyndar ekki vegna neins klúðurs. Ég ákvað bara að fela alveg skilin á hlyninum og mahóníinu með bindingunni – meðal annars vegna þess óhjákvæmilega litamismunar sem verður eftir bæsingu. Svo veit ég auðvitað ekkert hvernig þetta lítur út undir öllu þessu teipi. Ég kem til með að þurfa að pússa þetta helling til. Ég gerði tilraunir með lím áður en ég valdi eitthvað „industrial grade“ tonnatak og þetta ætti nú að halda. En það er ómögulegt að segja hvort það séu mörg álíka göp undir teipinu fyrren ég er búinn að fjarlægja það og pússa svolítið. Það gerist í kvöld og á morgun kemur vonandi hálsinn og þá fræsi ég fyrir honum. *** Gítarleikari vikunnar er St. Vincent / Annie Clark. Ég átti rosa erfitt með að velja gott myndband – en fann svo þetta best off þar sem hún fer fullkomlega á kostum, og stundum hamförum. Það sakar heldur ekki að signatúr-gítarinn hennar frá Ernie Ball er ógeðslega fallegur – en hann er reyndar ekki í neinni af þessum klippum, hann er ekki nema svona 2-3 ára gamall, svo ég henti bara með einni mynd af honum í bónus. Jack White spilar líka stundum á svona.

id““:““6d99l““

Sagan Nýhils – tólfta brot brotabrots brotabrotabrots

Við sóttum bækurnar á leiðinni út úr bænum. 2004 eftir Hauk Má og Nihil Obstat, sem ég hafði skrifað. Sigurjón í Letri prentaði og fræddi okkur um allar þær sögufrægu bækur sem hann hafði prentað í gegnum tíðina – fyrir Dag Sigurðarson og fleiri. Sennilega fannst okkur við vera einmitt á réttum stað, í réttri rómantík. En fyrst var þessi ljósmynd tekin – þetta er í tröppunum þarna hjá Grænum kosti. Eða þar sem Grænn kostur var að minnsta kosti einhvern tíma, hinumegin við götuna frá Mokka (þar hittum við ljósmyndarann). Hún er kölluð Bítlamyndin, þótt við séum miklu fleiri en Bítlarnir – kannski Lynyrd Skynyrd væri nær lagi (þeir voru sjö). En hver vill líkja sér við þá? Frá vinstri, Ófeigur Sigurðsson, Steinar Bragi, Haukur Ingvarsson, ég, Bjarni Klemenz, Grímur Hákonarson og Haukur Már Helgason. Myndin er tekin skömmu áður en Haukur Ingvars sagði sig úr félagsskapnum og stofnaði Gamlhil. Og þá voru bara sex (eftir á myndinni). Auk þeirra sem eru á myndinni fóru í þennan fyrir hluta túrsins þau Halldór Arnar Úlfarsson, Kristín Eiríksdóttir og Böðvar Yngvi Jakobsson (Böddi brútal – sennilega kom hann fram sem Oberdada von Brutal). Sennilega kom Haukur Ingvars reyndar alls ekki með á fyrsta legginn. Hann hefur bara komið á Mokka til að vera með á myndinni (en þar söfnuðum við líka saman í bílana). Ég man eftir að hafa opnað bókakassann minn á bensínstöð og farið yfir í næsta bíl til að gefa Hauki Má sitt eintak og benda honum á að hún væri tileinkuð honum. Einhvern veginn vorum við farnir að renna svo mikið saman í eitt eftir veruna í Berlín, að við mundum ekkert hver hafði hugsað hvað (enda höfðu flestar hugsanir sprottið upp í einhverjum samræðum). Þess vegna, sumsé, hann átti alveg jafn mikið í henni og ég, einhvern veginn. Ég man eftir að hafa stöðvað í Ríkinu í Selfossi og fyllt annan bílinn af áfengi. Eitthvað var áreiðanlega drukkið í báðum bílunum, en í mínum kláraðist allt og var búið þegar við komum á Seyðisfjörð um kvöldið, við talsvert uppnám í hinum bílnum, þar sem menn héldu að við værum að „spara okkur“. Ég man eftir að hafa gert hlé á ferð okkar við Jökulsárlón. Þar sem var ekki kjaftur – annað en maður á að venjast núna. Og þetta var vel að merkja í byrjun júlí. Ég hafði aldrei komið þangað áður og ég man ekki til þess að náttúra hafi orkað jafn sterkt á mig og í þetta skipti. Ekki að ég kunni að hafa um það orð, mér hafa alltaf þótt ægilegar lýsingar á náttúrunni vera hjárænulegt klám í besta falli og stækur þjóðernisrembingur í versta falli. Og nú skilst mér að þetta sé einhver minnst sjarmerandi staður landsins. Einhvers konar Niagara Falls Íslands. Mér hefur að vísu alltaf þótt Niagara Falls (bærinn) mjög sjarmerandi staður, en það er sérálit. Ég á enga mynd af Nýhil á Jökulsárlóni – þótt mig minni að þar hafi verið tekin hópmynd – en hér er ég í Niagara Falls, árið 2006. Auk okkar var í bílnum Gunnar Þorri Pétursson, þáverandi starfsmaður Víðsjár. Hann gerði nokkuð langt innslag um ferðina og ég man að í þættinum, sem ég á einhvers staðar á kassettu, segir hann frá símtali þar sem Danni – Daníel Björnsson, myndlistarmaður, Berlínarnýhilisti og þáverandi vert á Skaftfelli – hefði tilkynnt þeim (í hinum bílnum) að á Seyðisfirði biði okkar heitur maður. Allir voru uppveðraðir yfir heita manninum sem reyndist svo auðvitað vera heitur matur. Svona var nú símasambandið í mínu ungdæmi, börnin mín góð. Einsog gerðist gjarna á þessum tíma hafði ég ekkert sofið um nóttina. Ég vann sem næturvörður á Hótel Ísafirði og yfirleitt þegar ég fór eitthvað á fríhelgum, sem gerðist ósjaldan, fór ég beint af vaktinni suður. Þegar við komum á Seyðisfjörð var ég ekki bara rallandi fullur heldur með hvínandi höfuðverk af því sem ég hélt að væri koffínskortur. Ég vatt mér beint að Danna og spurði hversu margfaldan espresso hann gæti gert – mig minnir að það hafi verið tólffaldur, í það minnsta var glasið stórt og vökvinn þykkur einsog síróp. Ég sturtaði þessu í mig og höfuðverkurinn margfaldaðist á augabragði. Þá fékk ég parkódín forte og meira að drekka. Ég veit ekki alveg í hvaða veröld ég var þegar ég steig á svið um kvöldið – en í henni voru miklir þokubakkar. Ég man líka að Friðrika Benónýs var þarna og kom til mín um kvöldið til að þakka fyrir Heimsendapestir, sem hún hafði skrifað mjög fallega um í DV (minnir mig). Og það var pakkfullt og mikil stemning. Ég færði einhvern tíma upptökur af upplestrunum yfir á tölvuna og var með þær við höndina hér um daginn – en svo skipti ég um tölvu og ég hef sennilega asnast til að eyða þeim. Sem er leitt því þetta var afskaplega gott efni. Stína las úr Kjötbænum og söng línurnar úr Komu engin skip í dag. Offi var manna ölvaðastur og urraði stóran hluta úr Roða – maður skildi minnst nema að þetta fjallaði um „horguðinn“ – og svo byrjaði hann að ýta hljóðnemanum að hátalaranum til að búa til fídbakk, aftur og aftur, aftur og aftur, þar til einhver bar hann af sviðinu við talsverðar mótbárur. Ég las hraðar en ég var vanur (og var vanur að lesa hratt). Það eina sem ég á hérna á netinu – af því ég var búinn að hlaða því upp – var þetta: Oberdada von Brutal flytur Raxö ðiv aná (Öxar við ána) ásamt Halldóri Arnari Úlfarssyni, sem leikur á prótótýpu af dórófóni. Það heyrist reyndar eiginlega ekkert í dórófóninum á þessari upptöku. Hljóðfærinu lýsir Jónas Sen svo: Hvað er eiginlega dórófónn? Það er hljóðfæri sem er hugarfóstur Halldórs Úlfarssonar myndlistarmanns. Þaðan kemur nafnið; dórófónn er stytting á Halldórófónn. Þetta er eins konar selló, að hluta til rafknúið en með hljómbotni og strengjum. Hljómbotninn er furðulegur í laginu, manni dettur í hug plastselló sem einhver hefur ráðast á og lamið í klessu. Notagildi dórófónsins virðist vera mjög sveigjanlegt. Á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu á tónlistarhátíðinni Tectonics var spilað á hann eins og selló. En svo voru líka framkölluð með honum undarleg hljóð sem minntu bæði á orgel og rafmagnsgítar. Við sváfum í tómu húsi við hliðina á Skaftfelli – en þar mátti held ég ekki vera með neitt partístand (ég hef sennilega verið of svartur, því ég man ekkert hvort það var eitthvað partístand, sennilega var samt partístand). Mig rámar í að hafa eitthvað verið að þvælast úti með Stínu og Offa (sem voru rétt að byrja að „stinga saman nefjum“ – ég man ekki hvort við uppnefndum þau svo þau heyrðu, en þau voru oft kölluð Sid & Nancy, af augljósum ástæðum). Hér er einhver tímalapsus. Við fórum austur á föstudegi – hugsanlega var upplesturinn þá á laugardegi. Því það var áreiðanlega sunnudagur þegar við fórum. Og þann dag vöknuðum við þunn og keyrðum á Höfn í Hornafirði. Þegar við höfðum keyrt austureftir var mikið talað um yfirstandandi humarhátíð í bænum – og lögð áhersla á að þetta væri fjölskylduhátíð, ekki einhver fylleríishátíð. Sem truflaði okkur lítið, enda vorum við þá þegar frekar volkuð. Að keyra inn á Höfn var samt eftirminnileg reynsla. Það var einsog það hefði fallið partíkjarnorkusprengja á bæjarfélagið. Úti um öll tún voru tómir bjórkassar, yfirgefin tjöld flaksandi í vindinum og hálfklæddir timbraðir hátíðargestir að leita að skónum sínum og/eða bíllyklunum, ringlaðir á grasflötum. Við vorum bókuð með upplestur í Byggðasafninu, sennilega um 17 leytið. Við Ófeigur brugðum okkur á veitingastað niðri í bæ. Þar pöntuðum við okkur hvor sinn bjórinn. Ég man eftir uppgjöfinni í augum afgreiðslukonunnar. Það var einsog hún vildi spyrja hvort þessu ætlaði aldrei að linna. Hvort þessir partísturluðu aðkomumenn gætu ekki bara drullað sér heim. Við Offi tókum bjórana okkar skömmustulegir og settumst út í horn til að spjalla og komum okkur síðan út hið snarasta. Þegar við komum síðan á Byggðasafnið kom í ljós að það hafði ekki upp á neinn samkomusal að bjóða – og samanstóð af mörgum litlum herbergjum. Við enduðum á að lesa upp á bakvið afgreiðslukassann – sem var inni í svona kassalaga diskvirki sem tók upp næstum allt plássið í herberginu. Það var rétt svo ein mannsbreidd utan um það – til að hægt væri að ganga í kringum það. Og þar var áheyrandinn. Sem var kannski tveir, ég man það ekki. En þetta var skásta herbergið og kom auðvitað ekki að sök, fyrst ekki mættu fleiri. Ég held að Bjarni Klemenz hafi verið sá Nýhilistinn sem var í bestu formi þennan daginn – og las að mig minnir einhvern brjálæðislegan texta um alter-egóið sitt, Deleríum Klemenz, og George W. Bush. Eftir upplesturinn var debaterað um hvort við ættum að dveljast í Höfn um nóttina, einsog var í boði, eða drífa okkur í bæinn og reyna að ná á Sirkus fyrir lokun. Síðari valkosturinn varð úr. Og rétt náðist – ég held við höfum náð einum bjór (og kannski svo ráfað í eftirpartí einhvers staðar, sem var sennilega tilgangurinn með innlitinu). Lauk þar fyrsta legg ljóðapartítúrsins 2003.